Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn289
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Mike Jones leikur á píanó og Skarphéðinn Einarsson á trompet við vígsluna. Báðir voru þeir kennarar við Tónlistarskóla A-Hún á þessum tíma.
Þórður Jónsson044
Á þessari mynd, sem var tekin á tröppum Höfðaskóla af nemendum fæddum 1948 og 1949 ásamt kennara sínum, eru frá vinstri: fremsta röð: Árni Björn Ingvarsson, Gissur Jóhannsson, Helgi Bjarnason (d. 1.3.2007) og Gísli Kristjánsson. Önnur röð: Ólöf Smith, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir og Anna Bára Sigurjónsdóttir. Þriðja röð: María Jónsdóttir, Hrefna Júlía Viggósdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Jóna Kristjánsdóttir, María Bjarnadóttir (d. 1984) og Ester Axelsdóttir. Aftasta röð: Jóhann Ingibjörnsson, Þórir Ágússon (d. 24.9.2000), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Sigurður Bjarnason og Árni Björn Birgisson.
Barnaból - safn284
Erla Sif Kristinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Barnaból - safn293
Eyþór Kári Egilsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn186
Rebekka Laufey Ólafsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Jón Jónsson308
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni er Lára Kristjánsdótir (d. 6.9.1993).
Guðmundur Guðnason 2 384
Um þessa mynd er ekkert vitað annað en að aftan á henni stendur skrifað:<em> " A. sundsveit 8. stofa". </em>Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða veist eitthvað um hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 64
Gripur nr. 64. Listræn mynd af Íslandi í ramma. "Hilsen fra Island" stendur í boga. Myndskreytt með ljóðrænum textum. Myndin var teiknuð af Samúel Eggertssyni fyrir 1915.
Skagaströnd - safn365
Golfarar sem tóku þátt í golfmóti á Hágerðisvelli 1991 raða sér upp við nýreistan golfskálann á vellinum. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Dagný Sigmarsdóttir, Adolf H. Berndsen, Soffía Pétursdóttir, óþekktur, Hjördís Sigurðardóttir, Kristín Mogesen, (krýpur), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Fanney Zophaníasdóttir, Ingibergur Guðmundsson, óþekktur, Jón Sigurðsson, Árni Jónsson (með svarta húfu) , óþekktur, Guðmundur Kristinsson, þrír óþekktir og Vilhelm Jónsson. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 460
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin upp Bogabraut og sýnir tvo menn að moka ofan af þaki Bogabrautar 15. Húsið til hægri er Bogabraut 12.
Barnaból - safn 137
Guðrún Sigurðardóttir leikur á gítar undir söng barnanna í leikskólanum Barnaból í desember 1991. Gunna Sig. var starfsmaður leikskólans í mörg ár.
Skagaströnd - safn 320
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd eru Gunnar Albertsson verkstjóri til vinstri og Ottó Ákason (d. 17.9.2005) til hægri að krunka yfir snúningstromlunni sem flokkaði skelfiskinn eftir stærð.
Barnaból - safn026
Valrún Eva Vilhelmsdóttir rúllar kökukeflinu við enda borðsins. Hjá henni er móðir hennar Vigdís Viggósdóttir. Við sama borð sitja feðgarnir Ómar Jakobsson með yfirvararskegg og Andri Ómarsson. Bak við Vigdísi sér í Díönu Kristjánsdóttur en bak við Ómar stendur Svava Magnúsdóttir. Myndin var tekin á piparkökudegi í leikskólanum Barnaból 16. desember 1984.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn078
Mynd frá æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar á leikritinu: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson árið 1990 undir leikstjórn HarðarTorfasonar. Frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Þorvaldur Skaftason og Kristín Jónsdóttir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn026
Kappróður á sjómannadegi 1963. Róið var frá höfninni og endað fram af enda Skúffugarðsins. Löndunarkraninn og síldarfæribandið sjást vel á myndinni en það er nú hvort tveggja löngu horfið.
Guðmundur Guðnason 2 446
Réttað í Spákonufellsrétt á óþekktum tíma. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Barnaból - safn074
Þessi mynd var tekin utan við Höfðaskóla af áhorfendum á sýningu brúðuleikhúss. Sennilega var myndin tekin 1996 eða 1997. Fremst sitja börn af leikskólanum Barnabóli en aðrir áhorfendur eru nemendur Höfðaskóla og nokkrir fullorðnir.
umf Fram 333
Síðaskálinn var vígður 1985 með almennri kaffiveislu. Á þessari mynd, sem tekin var í veislunni eru frá vinstri: óþekktur, Guðrún Elsa Helgadóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Helgi Gunnarsson, Berglind Karlsdóttir, Árný Helgadóttir, Soffía Lárusdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Erla María Lárusdóttir.
Barnaból - safn255
Elín Ósk Ómarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
Barnaból - safn 127
Sumarið 1991 heimsóttu leikskólakrakkarnir af Barnabóli hrossabóndann Gunnar Sveinsson. Á þessari mynd eru komnar á bak þær Jenný Lind Sigurjónsdóttir aftast, Anna María Magnúsdóttir í miðið og Eydís Inga Sigurjónsdóttir fremst en Gunnar heldur í hestinn. Ragnar Gunnarsson er í skræpóttri úlpu en Elva Ösp Gunnarsdóttir fylgist með til hægri. Þar standa líka starfsstúlkurnar Katrín Sigurjónsdóttir fjær og Bára Þorvaldsdóttir nær. Barnið sem Bára leiðir er óþekkt.
Barnaból - safn009
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Erla María Lárusdóttir horfir í átt að ljósmyndaranum en Kolbrún Eðvarðsdóttir er að hreinsa hveiti af borðinu. Baksvipinn á Helga Guðmundsdóttir en fjær sér í Ágúst Jónsson sem er að hjálpa dóttur sinni Birnu Ágústsdóttur við baksturinn.
Guðmundur Guðnason 2 408
Þessi börn eru óþekkt en hugsanlega eru þau, eða einhver þeirra, Jónsbörn frá Köldukinn. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 368
Hjónin Dóra Guðrún Magdalena Ásta Guðbjartsdóttir (d. 3.9.2004) og Ólafur Jóhannesson (d. 29.5.1984). Ólafur var forsætisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn árin 1971 - 1974 og 1978 - 1979. Auk þess gegndi hann öðrum ráðherraembættum ríkistjórnum Íslands á árunum 1971 - 1983. Á þessari mynd eru þau hjónin að ganga úr kirkju að Hólum í Hjaltadal einhverntíma á árunum 1971 - 1979.
Árni Geir Ingvarsson - safn 398
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) kemur brosmildur að landi á skektunni sinni frá því að vitja um silunganet.
Guðmundur Guðnason 2 376
Gunnsteinsstaðir í Langadal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 435
Þessi mynd er frá hátíðahöldum sjómannadagsins á höfninni. Á planinu er í gangi leikurinn pokahlaup en fólkið á myndinni er allt óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en báturinn HU 5 hét Ásbjörg og var gerð út frá Skagaströnd á árunum 1947 - 1959 þannig að myndin hefur verið tekin einhverntíma á þessu árabili.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn146
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á sýningu en á henni eru í hlutverkum sínum talið frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) og Elín Njálsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn203
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Elínu Njálsdóttur sem tók þátt í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins 1996 - 1997.
Skagaströnd - safn 319
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd eru konur að hreinsa innyfli frá vöðva hörpudisksins en vöðvinn var afurðin, sem var hirt og skapaði verðmæti vinnslunnar. Konan til hægri er Þórey Jónsdóttir en aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn251
Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Séra Pétur og Dómhildur - safn 183
Ekki er vitað hvenær þessi gamla mynd var tekin en á henni er síldarsöltun á fullu á planinu sem var sunnan við verksmiðjuna. Þarna úti var staðið við söltun hvernig sem viðraði enda ekki búið að finna upp vinnueftirlitið á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 457
Unnið að snjómokstri í Hafstaðabrekkunni áður en veginum var breytt í það horf sem hann er í í dag. Myndin var sennilega tekin 1995 eða 1996.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn101
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Díönu Kristjánsdóttur sem lék í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Baldur Eðvarðsson - safn 5
Því miður er þessi mynd svo illa farin að ekki er hægt að þekkja drenginn á henni en hann gæti verið Björn Fossdal Hafsteinsson (d. 13.4.1983). Aftur á móti er húsið til hægri á myndinni greinilegt, en það hét Valhöll. Það er löngu horfið og myndir af því eru fágætar. Valhöll var eitt af húsunum sem fyrst var reist í Kálfshamarsvík en síðan flutt til Skagastrandar einhverntíma á árunum 1930 - 1940. Húsið við enda Valhallar er Steinholt. Myndin var tekin á sjöunda áratugnum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn043
Guðmundur Haukur Sigurðsson í hlutverki sínu sem þýskur flóttamaður/njósnari í Skjaldhömrum leikárið 1976 - 1977 hjá Leikklúbbi Skagastrandar. Á myndinni er hann að flýja upp í vitann til að fela sig fyrir breskum hermönnum sem leituðu hans.
Barnaból - safn305
Jón Atli Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn343
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi af Lúðrasveit Höfðaskóla. Lúðrasveitin starfaði um skamman en ánægjulegan tíma undir stjórn Skarphéðins Einarssonar. Sveitin spilaði á nokkrum uppákomum í bænum meðan hún starfaði en þegar lúðraþeitararnir urðu eldri tvístarðist sveitin m.a. í hina ýmsu framhaldsskóla landsins.
24
Nýr ruslabíll kominn til Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar árið 2003. Á myndinni eru börn Vilhelms, Hörður Aðils með húfu og Ástrós Villa með sítt ljóst hár. Litla stúlkan er Þóra Karen, dóttir Krsitínar Jónu fósturdóttur Vilhelms.
Þórður Jónsson036
Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri úr Norður-Skála fyrir utan Hólaneskirkju á sjómennadegi.
Barnaból - safn161
Silvia Bates á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Jón Jónsson335
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Birna Sveinsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Barnaból - safn 128
Sumarið 1991 heimsóttu leikskólakrakkarnir af Barnabóli hrossabóndann Gunnar Sveinsson. Á þessari mynd eru komin á bak þau Kristrún Lilja Sævarsdóttir (=Lilja Nótt Sævarsdóttir) og Daníel Guðmundsson. Gunnar Sveinsson heldur við krakkana en hin börnin á myndinni eru óþekkt.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn007
<p>Á þessari mynd eru hjónin Kristján Kristófersson og Guðrún Jónsdóttir Espólín með börn sín Bergþóru Önnu Kristjánsdóttur og Jón Espólín Kristjánsson. Líklega var myndin tekin kringum 1930. </p><p><br></p>
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn022
1984 var skötuveislan á Þorláksmessu haldin í Skátaskálanum. Þá voru þessar veislur minni í sniðum en seinna varð. Á þessari mynd eru Gunnar Reynisson til vinstri og óþekktur (Hafþór Gylfason?) að undirbúa veisluna með því að sjóða skötuna.
Séra Pétur og Dómhildur - safn 181
Á árum áður var stundum kennd heimilsfræði í félagsheimilinu Fellsborg á vegum Höfðaskóla. Á þessari mynd er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) að kenna bakstur. Nemendurnir eru frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000) og Ingvi Sveinn Eðvarðsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Guðmundur Guðnason 2 359
Hafís á Húnaflóa. Myndin var líklega tekin 1960 - 1965.
Jón Jónsson289
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, er Gunnlaugur Sigmarsson starfsmaður bankans á spjalli við óþekktan mann.
Barnaból - safn254
Guðrún Ásta Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
umf Fram 335
Síðaskálinn var vígður 1985 með almennri kaffiveislu. Á þessari mynd, sem tekin var í veislunni, eru frá vinstri við borðið næst okkur: Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Gylfi Sigurðsson, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Gunnar Albertsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Hrefna Björnsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn153
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Inga Þorvaldsdóttir (d. des. 2012), Sigurður Björnsson, Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007), Sandra Ómarsdóttir, Einar Gunnarsson, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) er á bak við Einar, Guðrún Guðmundsdóttir er í gráum jakka, Einar Karlsson situr við gluggann í ljósri peysu, Steinunn Steinþórsdóttir er fremst á myndinni og Eygló Gunnarsdóttir er með hatt næst lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson334
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir frá Brandaskarði, Anna Þór Birgisdóttir og Jóney Gylfadóttir.
Jón Jónsson324
Á þessari mynd má sjá þrjár kynslóðir. Eldri konan sem er lengst til vinstri er Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) frá Þórsmörk en undir stýri er Reynir Sigurðsson sonur hennar með dóttur sína Hafdísi Hrönn Reynisdóttur í fanginu. Myndin var tekin kringum 1985.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn097
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jónas Baldursson sem lék í nokkrum sýningum leikklúbbsins á sínum tíma en var jafnframt aðal ljósmyndari hans um árabil.
Guðmundur Guðnason 2 379
Hér er verið að landa eða ferma báta í höfninni á ?Blönduósi? ef til vill með fé?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú getur staðfest að þetta sé höfnin á Blönduósi vinsamlega hafðu þá samband.
Óþekktur ljósmyndari366
Þessi mynd hefur verið tekin einhverntíma á árunum 1929 - 1933 af Höfðanum yfir hafnarsvæðið. Á myndinni má sjá Spákonufellsey sem nú er ein af undirstöðum hafnarinnar því 1934 var byrjað á uppfyllingu frá landi og út í eyju jafnframt því sem hluti hennar var brotin niður í uppfyllinguna. Húsið lengst til hægri var heimili verslunarstjóra og stóra húsið með græna þakinu er gamla kaupfélagið sem byggt var 1929-1930. Gula húsið með rauða þakinu til vinstri er Garður. Úti á víkinni liggja nokkrir bátar við legufæri enda hafnaraðstaða lítil sem engin á þessum tíma. Lengra frá sést Árbakkasteinn. Ljósmyndin hefur líklega verið handmáluð á sínum tíma.
Jón Jónsson329
Hjónin Guðjón Ebbi Sigtryggsson og Halldóra Þorláksdóttir um borð í Örvari Hu 21. Guðjón Ebbi var farsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um árabil.
Árni Geir Ingvarsson - safn 400
Þegar veður eru válynd og hann brælir upp er gott að vita af skipum og bátum í öruggri höfn. Þessi mynd er tekin á einum þessara illviðrisdaga og sýnir höfnina á Skagaströnd fulla af bátum.
Jón Jónsson285
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á þessari mynd er Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) á tali við óþekktan mann. Björgvin var sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Skagastrandar sem Landsbankinn yfirtók þegar útibúið var opnað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 490
Loftmynd af Skagaströnd sennilega tekin kringum 1985.
Guðmundur Guðnason 2 472
Fólkið á þessari mynd er óþekkt og það sama má segja um hvaða rétt þetta er. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
87
88
89
…
167
Leita í myndasafninu
Leita