Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason 2 483
Signý Gunnlaugsdóttir á Balaskarði með kiðling í fanginu.
umf Fram300
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, er Jens Jónsson á Brandaskarði að kenna Páli Halldórssyni að aka Massey Ferguson dráttarvél. Myndin var tekin í heimsókn krakkanna á leikjanámskeiðinu út að Brandaskarði.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn110
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Viggó Brynjólfsson sem var tónlistarmaður við nokkrar sýningar klúbbsins á sínum tíma.
Guðmundur Guðnason 2 382

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps er 90 ára nú á Sumardaginn fyrsta 2015 sem þýðir að hann var stofnaður þann dag árið 1925. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af kórfélögum en það hefur sennilega verið einhverntíma á sjöunda áratugnum. Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar kórnum til hamingju með langa starfsævi. Á myndinni eru:

Fremsta röð frá vinstri : Guðmundur Sigurjónsson Rútsstöðum, Björn Jónsson (d.18.2.1991) Gili, Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) Eiríksstöðum, Elsa Óskarsdóttir Fagranesi, Gerður Aðalbjörnsdóttir (d. 12.6.2007) Hólabæ, Guðrún Jakobsdóttir (d. 5.1. 2005) Grund, Jón Tryggvason (d. 7.3.2007) Ártúnum, Árni Jónsson Víðimel og sr.Birgir Snæbjörnsson (d. 17.7.2008) Æsustöðum.

Önnur röð frá vinstri: Árni Sigurjónsson Rútsstöðum , Pétur Sigurðsson (d. 11.5.2000) Skeggstöðum, Sigvaldi Sigurjónsson Rútsstöðum, Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971) Brandsstöðum, Pétur Pétursson (d. 7.5.1977) Höllustöðum, Guðmundur Tryggvason Finnstungu, Jónas Tryggvason (d. 17.8.1983) Ártúnum, Guðmundur Jósafatsson Austurhlíð og Runólfur Aðalbjörnsson Hvammi.

Þriðja röð frá vinstri: Jón Guðmundsson Eiríksstöðum, Sigurjón Stefánsson Steiná, Bjarni Sigurðsson Barkarstöðum, Ingvar Þorleifsson Sólheimum, Guðmundur Halldórsson (d. 13.6.1991) Bergsstöðum, Aðalsteinn Sigurðsson (d.21.8. 2005) Leifsstöðum, Sigurgeir Hannesson (d. 8.2.2005) Stekkjardal, Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) Bollastöðum og Grímur Eiríksson (d. 22.5.1993) Ljótshólum.

Fjórða röð frá vinstri: Sigmar Ólafsson (d. 30.10.1991) Brandsstöðum, Þórður Þorsteinsson (d. 8.8.2000) Grund, Haraldur Karlsson (d.30.10.2007) Litladal, Auðunn Guðmundsson Austurhlíð, Pétur Guðmundsson Eiríksstöðum, Sigurður Sigurðsson (d. 5.7.1984) Leifsstöðum, Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008) Auðkúlu, Halldór Eyþórsson (d. 21.9.2007) Syðri-Löngumýri, Jósef Sigfússon Torfustöðum, Friðrik Björnsson (d. 3.1.
Jón Jónsson266
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd er Helga Ottósdóttir sem var formaður Leikklúbbsins á þessum tíma.
Jón Jónsson310
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) til vinstri og Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn til hægri.
Skagaströnd - safn418
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís. Á þessari mynd undirbúa sig fyrir veiðiskap í Hraunvatni þeir Magnús B. Jónsson sem mokar og Gunnlaugur Sigmarsson sem bíður tilbúinn með borinn.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn122
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sigurbjörgu Árdísi Indriðadóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Jón Jónsson325
Magnús B. Jónsson til vinstri spjallar við Svein Ingólfsson framkvæmdastjóra Skagstrendings hf á bryggjunni. Í baksýn er Örvar Hu 21 að koma úr veiðiferð. Þeir sem standa frammi á bakka er frá vinstri: Friðrik Gígja, Axel Hallgrímsson, Árni Sigurðsson, Ellert Svavarsson og Vilhelm Þórarinsson.
umf Fram 330
Á þessari mynd eru ungir íþróttamenn úr umf. Fram á Skagaströnd. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma kringum 1975. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Hjörtur Guðmundson (sitjandi), Kristján Blöndal, Hafþór Gylfason, Sigurjón Ingólfsson (fjær), Guðrún Berndsen (nær) og Sólveig Gunnarsdóttir.
umf Fram 318
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Taflmennska var eitt af því sem krakkarnir stunduðu í búðunum en á þessari mynd teflir Valdimar Viggósson, til hægri, við óþekktan andstæðing. Bergþór Gunnarsson fylgist sposkur með.
Guðmundur Guðnason 2 372
Pétursborg á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson264
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristján Blöndal og Ágústa Friðriksdóttir í hlutverkum sínum.
Guðmundur Guðnason290
Jónína Valdimarsdóttir og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988). Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Barnaból - safn169
Einar Örn Þórðarson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn377
Þessir fermingarbræður eru Valgarður Hilmarsson frá Fremstagili til hægri en drengurinn til vinstri er óþekktur. Kirkjan er líklega Holtastaðakirkja. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram 319
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Á henni leika sér í sundlauginni bræðurnir Hafsteinn Pálsson, sem horfir á ljósmyndarann, og Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989).
Guðmundur Guðnason 2 371
Breiðavað í Langadal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn192
Ólafur Guðmundsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Barnaból - safn240
Þessi ungi drengur er óþekktur. Hann var á leikskólanum Barnaból, sennilega á árunum kringum 1985. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn173
Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Guðjón Árnason og Einar Haukur Arason.
Barnaból - safn177
Bára Dröfn Kristinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Árni Geir Ingvarsson - safn 459

1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Hér er Guðmundur Björnsson að moka frá húsinu að Fellsbraut 15 svo íbúarnir komist út.

Árni Geir Ingvarsson - safn 363 (2)
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Sigrún Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Fannar Viggósson, Vigdís Viggósdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kristján Blöndal, Magnús B. Jónsson og Jón Ingvar Valdimarsson.
Minjasafn 57
Gripur nr. 57. Gamalt póstkort í gylltum ramma. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Barnaból - safn238
Auður Eva Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 405
Stefnir St tekinn upp í slippnum á Skagaströnd. Kári Lárusson stendur gleiðfættur framan við stýrishúsið en aðrir eru óþekktir.
Sigurður Jónsson - safn 007
Þessi drengur er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn172
Anna Sólrún Bates á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Jón Jónsson342
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson.
Jón Jónsson284
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni eru tveir gamlir samherjar við opnunina: Ragnar Arnalds til vinstri og Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) til hægri.
Guðmundur Guðnason 2 418
Á þessari mynd leggur Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) höndina yfir axlir vinar síns Sveins Þórarinssonar. Maðurinn lengst til vinstri er Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 456
Fjórhjóladrifið er ekki alltaf nóg til að komast áfram. Hér hefur einhver fest sig í snjó en þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst segir einhversstaðar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn063
Hjalti Reynisson liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar
Guðmundur Guðnason2 340
Réttað í Skrapatungurétt sennilega um 1960. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 379
Skrapatunga í Laxárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn089
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri: Ólafur Magnússon, Lovísa Vattnes, Elín Njálsdóttir, Ingólfur Bjarnason, Jón Ólafur Sigurjónsson, Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Fannar Viggósson, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Jensína Lýðsdóttir (fjærst), Elva Dröfn Árnadóttir (í miðju), Guðjón Hall Sigurbjörnsson (næst), Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Steindór Haraldsson og Óli Hjörvar Kristmundsson.
Barnaból - safn227
Guðjón Hall Sigurbjörnsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn321
Helena Mara Velemir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Jón Jónsson236
Lárus Ægir Guðmundsson afhendir hér verðlaun á skíðamóti á skíðasvæðinu í Spákonufelli. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Linda Rós Rúnarsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) og Jón Heiðar Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1988 - 1990.
Skagaströnd - safn333
Nágrannarnir, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) í Ægissíðu til vinstri og Lárus Árnason (d. 21.5.2011) frá Ási til hægri, fá sér "smók" saman á heimili annars hvors þeirra.
DX-9
Frá vinstri á þessari mynd eru mæðgurnar: Ásdís Steingrímsdóttir, Sæunn Steingrímsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir og Elín Rafnsdóttir. Allar eru þær að baka piparkökur í leikskólanum Barnaból 30 nóvember 2002.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn016
Þessi mynd var tekin á Höfðanum vorið 1977. Sennilega eru krakkarnir á myndinni úr Höfðaskóla í vettvangsferð með kennaranum sínum. Frá vinstri: Kristján Steinar Kristjánsson, Einar Ásgeirsson, Ari Þórsson, Þórhildur Jakobsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 439
Karl Berndsen (d. 12.2.1995) við vinnu í slippnum. Í baksýn er hálf rifinn skrokkur Arnarborgarinnar HU 11 sem Karl var að vinna við að rífa þegar myndin var tekin 1993.
Óþekktur ljósmyndari364
Þessi mynd sýnir gömul vinnubrögð við að koma heyi heim að skepnuhúsum þeirra tíma. Myndin eykur líka skilning manns á af hverju hesturinn var kallaður "þarfasti þjónninn" fyrir öld dráttarvéla og annarra vélknúinna tækja í sveitum landsins. Hér er verið að reiða heim hey á fjórum hestum. Heyið var bundið í bagga á vellinum og síðan hengt á klakk á baki hestsins. Síðan var lestin teymd heim, oft af einhverjum hálstálpuðum krakka, sem sá svo um að koma með hestana til baka fyrir næstu ferð. Á þessari mynd er þó fullorðin maður sem teymir en krakki "situr á milli" á aftasta hestinum. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær en líklega hefur hún verið handmáluð.
Guðmundur Guðnason 2 429
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir. Sama má segja um réttina - ekki er vitað hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn415

Húsin á Brandaskarði fara stundum á kaf ef mikið snjóar því þá skefur yfir þau. Þessi mynd var tekin í október 1995 þegar verið var að moka snjó af þakinu á bænum. Þegar myndin var tekin var farið að glitta í þilið og þakið var fundið. Gröfunni stjórnaði Guðmundur Björnsson.

Guðmundur Guðnason 2 498
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) situr í stólnum en Bergur Jón Þórðarson tyllir sér á stólarminn hjá honum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 418

Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði veginum burt og ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd er verið að koma byggja brú til bráðabirgða til að gera bílfært.

Skagaströnd - safn287
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Fermingarbörn ársins 1998 tóku þátt í athöfninni. Frá vinstri á myndinni eru, í hvítum fermingarkirtlum : Bára Dröfn Kristinsdóttir, Guðni Már Lýðsson, Leó Kristberg Einarsson, Jón Ingi Ragnarsson,Hermann Freyr Guðjónsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, Elín Anna Konráðsdóttir og Rebekka Laufey Ólafsdóttir. Fermingarbörnunum til aðstoðar eru konurnar Hrönn Árnadóttir til vinstri og Guðbjörg Eiríksdóttir til hægri.
Barnaból - safn307
Guðlaugur Ómar Guðmundsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Guðmundur Guðnason 2 367
Þessi brú var (er ?) yfir Hólmsá í Skaftartungu. Augljóslega hefur verið vandasamt að aka rútum og lengri bílum yfir hana. Ökumaður þessarar rútu virðist þó kunna sitt fag því hann fer eins langt til hægri og hægt er til að ná beygjunni inn á brúna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 390

Þessi mynd sýnir Snorra Gíslason (d. 29.5.1994) að fara með grásleppunetum á bátnum sínum á miðunum inn með landi.

Guðmundur Guðnason 2 382
Þessi ungmenni eru óþekkt. Drengurinn gæti hafa verið að fermast. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn270
Dagbjört Agnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1985.
Guðmundur Guðnason 2 462
Þessi mynd var tekin sumarið 1986 við sumarbústað póstmannafélagsins að Rauðabergi í Austur Skaftafellssýslu. Á henni eru frá vinstri: Einar Karlsson, Kristín Blöndal Sigurðardóttir, Dagný Hannesdóttir, Jóhanna Karlsdóttir, Karl Guðmundsson og Berglind Karlsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 435
Hér er unnið við að mála Arnarborg HU 11. Maðurinn með rúlluna er Kristmundur Ingibjörnsson en hinn maðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn421
Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), þáverandi starfsmaður Höfðahrepps, kannar skemmdir á hafnargarðinum (Útgarði) í febrúar 1996 áður en grjótvörn var sett við garðinn og ofan á hann.
Guðmundur Guðnason 2 393
Systurnar í Skálholti, Pálfríður Benjamínsdóttir til vinstri og Sóley Benjamínsdóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið 1957 eða 1958.
Jón Jónsson295
Þessir ungu drengir hafa raðað sér upp eftir að hafa tekið þátt í víðavangshlaupi á vegum umf. Fram á Skagaströnd í maímánuði einhverntíma á árunum kringum 1985. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Arnarson í rauðleitri úlpu, Þröstur Árnason, Baldur Magnússon, Svanur Árnason, Theódór Karlsson með rauða og gráa húfu, Gunnar Halldór Hallbjörnson með gleraugu, Atli Þórsson, Björn Sigurðsson, Jón Heiðar Jónsson og Reynir Lýðsson. Maðurinn í bláu úlpunni í baksýn er Vilhelm Jónsson.
1

88
89
90

167
Leita í myndasafninu
Leita