Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
guðmundur191
Hólmsteinn Snædal Rósbergsson, bróðursonur Guðmundar ljósmyndara myndarinnar
Óþekkt076
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn. Dökkhærði maðurinn á myndinni er Þorvaldur Skaftason en hinn er óþekktur.
Image94
Flankastaðir. Myndin er tekin af Höfðanum af Flankastöðum (nú Bankastræti 7). Hvíta húsið í baksýn er Garður sem nú er löngu horfinn.
Jón001
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna á sjómannadegi 1983.
Jón059
Spákonufell haustið 1985
guðmundur226
Myndin sennilega tekin í skemmtisiglingu á sjómannadegi. Fremstir á myndinni eru Páll Jónsson (d.19.7.1979) skólastjóri með hatt og sólgleraugu og Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988).
hem043
Lending í vörinni sem var neðan við þar sem sundlaugin er nú. Unnið því að skipta afla dagsins. Sá sem stendur í bátnum er Jón Bjarnasson Brúarlandi, maðurinn með skeggið fyrir stafni bátsins er Guðmundur á Flankastöðum, sá sem stendur við fiskinn með hendur í vösum er Carl Berndsen. Myndin sennilega tekin á árunum 1908 - 1910. Ekki er vitað hvaða hlutverki húsið utan í Einbúanum gegndi en lengra frá má sjá í þök á tveimur húsum. Húsið með skorsteininum var hús verslunarstjóra Höphnersverslunar en hitt húsið var fjós og hesthús. Ekki er vitað hvað torfhúsið lengst til vinstri var.
fram054
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Karl Lúðvíksson í baksundi.
Jón012
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum.
Mundi243
Á 30 ára afmæli ungmennafélagsins Fram, veisla í Tunnunni. Þarna er vangasvipur Jökuls Sigtryggssonar lengst til hægri þá Axel Helgason (d.16.7.1971) og Jóhanna Lárusdóttir (d.12.12.1980) kona hans frá Læk. Aðrir í myndinni eru óþekktir
Jón049
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Skemmtikrafturinn Jonny King er fyrir miðri mynd með ljósan hatt og í ljósum jakka.
Jón095
Skólaskemmtun í Höfðaskóla 1984. Þorbjörg Eðvarðsdóttir syngur við undirleik hljómsveitar. Ingvar Þór Jónsson spilar á trommur og Viggó Magnússon á gítar. Auk þeirra var Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) í hljómsveitinni.
Óþekkt036
Útimarkaður við Kántrýbæ. Sér í bakið á Sigurlaugu Jónsdóttur frá Ási. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir seldi kökur og fleira.
guðmundur183
Maðurinn lengst til hægri er Guðmundur Guðnason. Konan og stúlkan eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
fram124
Meistaramót yngstu aldursflokkanna á Selfossi 1977. Guðbjörg Gylfadóttir umf. Fram keppir í spjótkasti.
fram022
Við skráningar- og tímatökuborðið í víðavangshlaupi Landsbankans. Þorbjörg Magnúsdóttir skrifar, Flemming Jessen með skeiðklukkuna, Sigfús Jónsson skoðar pappíra og Kjartan Birgisson starfsmaður bankans fylgist með. Myndin tekin ca 1985.
fram012

Pálmi Gíslason frá Grænuhlíð formaður UMFÍ hengir heiðursmerki Ungmennasambandsins á séra Pétur Þ. Ingjaldsson

img004
Réttarholt
guðmundur194
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari með lamb í fanginu. Myndin er tekin á túninu heima við Ægissíðu en í baksýn sér í Laufás.
fram030
Langhlaupararnir (frá vinstri): Víðir Ólafsson, Daníel Smári Guðmundsson og Hilmar Pétur Valgarðsson árið 1990.
Mundi264
Óþekkt kirkja. Ef þú þekkir kirkjuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Mundi237
Þessi mynd er líklega tekin inni í stofu í Ægissíðu. Frá vinstri: Guðni Sveinsson (d.15.11.1971), Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Ingvi Guðnason (d.31.12.1991). Konurnar eru óþekktar en eru sennilega Soffía Sigurðardóttir (d.11.9.1968), kona Ingva, og Klemensína Klemensdóttir (d.12.6.1966) kona Guðna og móðir Guðmundar og Ingva.
Jón029
Haldið til veiða frá Skagastrandarhöfn. Sumir segja að þetta sé bátur sem hét Öldufell HU og var í eigu Sveins Garðarssonar og Bjarna Viggóssonar. Aðrir telja að báturinn hafi heitið Lómur og ekki verið skráður á Skagaströnd. Ef þú veist hið sanna í málinu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
img001
Nokkur hús við Bankastræti undir Höfðanum. Myndin er tekin kringum 1970. Húsið lengst til vinstri er Bankastræti 9 við hlið þess er Bankastræti 7, Flankastaðir. Þetta hús hefur verið rifið og annað byggt á sama stað. Hinum megin við götuna eru Höfðabrekka og Bjarnarhöfn en hægra megin við Flankastaði, sömu megin götunnar, eru Kárastaðir (Bankastræti 5), sem nú hafa verið rifnir. Lengst til hægri er svo Stórholt (Bankastræti 3) .
fram008
USAH þing í Húnaveri. Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum, formaður sambandsins, í ræðustóli. Maðurinn til vinstri er Eggert levy skólastjóri á Húnavöllum.
Jón019
Allir auðir blettir nýttir á Kántrýhátíð. Tjaldsvæði á íþróttavellinum og á lóðinni neðan við Fellsborg.
fram048
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Kolbrún Viggósdóttir í langstökki án atrennu.
Mundi271
Þórgunnur Snædal sumarið 1960 í Ægissíðu
Jón003
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna fylgjast með leikjum á sjómannadegi 1983
img124
Eftir að Ísland var hernumið 1940 voru reistar svona byggingar víða um land sem hýbýli fyrir hermennina. Eftir að herinn fór nýtti fátækt fólk sér gjarnan braggana sem heimili þrátt fyrir að þeir þættu afar slæmir til íbúðar, kaldir og saggafullir. Á sumum þeirra voru gerðar nokkrar endurbætur eins og t.d. á bragganum á þessari mynd þar sem búið er að byggja á hann kvist með tveimur gluggum. Fólkið á þessari mynd er óþekkt og einnig staðsetning bragganna.
fram093

Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Garðar Geirfinsson, óþekktur, Sofanías Lárusson, óþekktur, Arnór Snorri Gíslason, Magnús Filip Sævarsson, Andri Ómarsson, Sigurgeir Árnason, Kritsján Pétur Guðjónsson, óþekktur og Sunna Gylfadóttir.

Elísabet035
Hafnarsvæðið og hluti útbæjarins á Skagaströnd einhverntíma fyrir 1950
Mundi277
Rósberg G. Snædal (d.9.1.1983) myndin er tekin í Ægissíðu sumarið 1960.
fram041
17. júni mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Skúli Tómas Hjartarson stekkur lang- eða þrístökk Karl Lúðvíksson bíður tilbúinn með málbandið.
fram077

Myndin er tekin á héraðsmóti á Bakkakotsvelli 1999. Frá vinstri: Sigurbjörg Dís (Bogga Dís) Konráðsdóttir umf. Fram , Sigurbjörg Ólafsdóttir umf. Hvöt og Erla Rut Valsdóttir umf. Geisla.

Jón099
Frá vinstri: Guðni Már Lýðsson, Lýður Ragnar Arason og Ásdís Lýðsdóttir í snjó á Bogabraut.
Mundi290
Klemensína Klemensdóttir (d. 12.6.1966) í Ægissíðu, móðir Guðmundar ljósmyndara þessarar myndar.
fram102

Tilefni myndarinnar er ekki þekkt en hún var tekin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Á myndinni eru standandi frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Sunna Gylfadóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Arís Eva Vilhelmsdóttir og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir. Drengurinn er Ómar Ísak Hjartarson

Jón102
Myndin er af barnabörnum Jóns Jónssonar (d.9.7.1991) og Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) í dyrunum heima hjá þeim hjónum í Asparlundi. Stúlkan er María Jóna Gunnarsdóttir en drengurinn er óþekktur.
Óþekkt075
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn. Mennirnir á myndinni eru Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson fyrrverandi sveitarstjórti til hægri
Jón109
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Jóhanna Sveinsdóttir og Skúli Tómas Hjartarson sýna nýjustu unglingatískuna.
img125
Myndin er tekin af Höfðanum, sennilega 1940 - 1943. Sundlaugin er í forgrunni og síðan kaupfélagshúsin og svo húsin við víkina. Skúffugarðurinn er í smíðum til hægri á myndinni og garður út frá honum til vesturs ( í átt að myndavélinni). Bak við þennan garð átti að vera aðstaða fyrir smábáta en hún reyndist illa og var seinna fyllt upp. Ekki er búið að færa Hafnarhúsið þegar þessi mynd var tekin en það var gert 1943 eða 1944.
Mundi263
Kappróður á sjómannadegi á bátunum Gusti og Golu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma fyrir 1957 því Höfðaskóli hefur ekki verið byggður enn.
Jón009
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum
Óþekkt031
Á útmarkaði við Kántrýbæ. Fremst á myndinni eru mæðgurnar Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og Linda Kristjánsdóttir að kynna sér hvað er í boði. Aðrir eru óþekktir.
fram055
Héraðsmót USAH í sundi 1977. Takið ykkur stöðu! Jóhannes Fossdal og Karl Lúðvíksson eru tilbúnir að stinga sér. Milli þeirra standa Gestur Arnarson og Magnús Blöndal.
Jón111
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Helga Kristmundsdóttir og Hólmfríður Oddsdóttir (til vinstri) sýna föt.
Image103
Þarna er verið að draga ker yfir víkina, frá smíðastað neðan við gamla skólann (Bjarmanes). Myndin er sennilega tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1940 .
fram033
Íþróttakonurnar sem hér eru með verðlaun um hálsinn eru frá vinstri: Sunna Gestsdóttir, Soffía Pétursdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir.
fram086

Maðurinn í úlpunni er Kristinn Guðmundsson. Drengirnir á verðlaunapallinum eru, frá vinstri: Sigurður Haukur Heimisson, Jóhannes Grétarsson og Árni Max Haraldsson.

Mundi257

Systurnar Pálfríður Bjarnadóttir til vinstri og Ólína Jóna Bjarnadóttir til hægri frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) í jólakjólunum sínum. Myndin var tekin 1956 - 1958.

guðmundur235
Skemmtun í gömlu Tunnunni, líklega skólaskemmtun. Skemmtikraftarnir sem eru að hneigja sig á sviðinu eru óþekktir. Drengurinn sem horfir í átt að myndavélinni er Árni Björn Birgisson. Aðrir eru óþekktir
Mundi283
Helga Berndsen, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) og óþekkt leikkona leika hlutverk sín í óþekktri leiksýningu í Tunnunni.
fram037
17. júní mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Ingibergur Guðmundsson og Guðbjörg Gylfadóttir halda í málbandið. Aftan við Guðbjörgu spjalla Birna Sveinsdóttir (til hægri) og Áslaug Gunnarsdóttir saman. Aðrir eru óþekktir.
fram038
17. júní mót Fram á vellinum við Fellsborg 1983. Stúlkan með skrifblokkina er Vala Ingvarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Jón052
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Aðal skemmtikraftar hátíðarinnar Jonny King og Hallbjörn Hjartarson tilbúnir í slaginn.

Jón056
Jón Gunnarsson á hestbaki á Hólabrautinni
Jón043
Kappróður á sjómannadegi 1985. Óþekkt róðrarsveit með Jón Inga Ingvarsson við stýrið.
Óþekkt088
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson les úr Biblíunni í Hólaneskirkju (gömlu) á jólum.
fram046
Frjálsar iþróttir, innanhús, Íslandsmeistaramót í febrúar 1977. Verðlaun fyrir hástökk meyja, frá vinstri: Guðrún Berndsen USAH, Þórdís Gísladóttir ÍR og óþekkt stúlka.
1

8
9
10

167
Leita í myndasafninu
Leita