Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn218
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hjört Guðmundsson sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn197
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sigríði Ásgeirsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 475
<p>Unnið við að mála gluggana á suðurhlið Bogabrautar 16 á lognværum, grænum sumardegi.</p>
Barnaból - safn315
Ívar Einarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn020
1984 var skötuveislan á Þorláksmessu haldin í Skátaskálanum. Þá voru þessar veislur minni í sniðum en seinna varð. Á þessari mynd eru við borðið lengst frá, talið frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson stendur við borðsendann, Sólveig Eiðsdóttir, Eiður Hilmarsson og Bjarney Valdimarsdóttir. Við miðborðið frá vinstri: óþekkt (? Þórhildur Jakobsdóttir?), Sveinn Ingólfsson, Jakob Guðmundsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Guðmundur Jónsson, baksvipur Jóns Helgasonar og Ægir Jónsson. Við borðið næst okkur eru frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12. 2013), Guðrún Sigurðardóttir, Charlotta Traustadóttir, Arnar Erlingsson, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (fjær) og Gylfi Sigurðsson (nær). Baksvipinn næst okkur á sennilega Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn020
Árið 1969 kom Kristján Eldjárn forseti Íslands í heimsókn til Skagastrandar. Þessi mynd var tekin á Höfðanum við það tækifæri. Þekkja má baksvip nokkurra þeirra sem fylgdu forsetanum en þau eru talið frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) (snýr andlitinu að okkur), óþekkt fólk, Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður með embættishúfu á höfðinu, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) með hendur fyrir aftan bak. Maðurinn með hattinn í höndunum er Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) þáverandi sveitarstjóri og lengst til hægri er Adolf J. Berndsen. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 428
Hér er réttað í óþekktir rétt (Vindhælisrétt?) á óþekktum tíma. Ekki er hægt að þekkja fólkið á myndinni vegna þess hve filman er orðin máð.
Barnaból - safn232
Loftur Björgvinsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Árni Geir Ingvarsson - safn 391
Arnar Hu 1 - Japans Arnar - leggur upp í veiðiferð frá Skagaströnd í suð-vestan brælu.
Skagaströnd - safn 317
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd er fólk við vinnu við færiband þar sem fiskurinn er hreinsaður úr þeim skeljum sem ekki hreinsuðust í snúningstromlunni sem annars sá um það verk.
Jón Jónsson313
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á þessari mynd eru hjónin Sveinn Ingi Grímsson og Líney Jósefsdóttir en hún tók þátt í að útbúa veislukaffið í samsætinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn188
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jane Sillar sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Barnaból - safn200
Gunnar Borg Jónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Jón Jónsson281
Þessi mynd var tekin í hófi í Fellsborg í tilefni af að séra Pétur Þ. Ingjaldsson var að láta af prestskap á Skagaströnd 1981. Fólkið, sem hægt er að þekkja á myndinni, er frá vinstri: Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Jakob Guðmundsson, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) Runólfur ?, Jökulrós Grímsdóttir (nær), Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990), óþekkt, Guðsteinn Kristinsson (d. 26.2.2002), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d. 13.10.2000), Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982), Björg Björnsdóttir (d.11.11.1989)nær) Jónína Valdimarsdóttir (fjær), Gunnar Albertsson (fjær), Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) (nær), Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) og Laufey Sigurvinsdóttir (d. 21.12.1994). aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 409
Hér eru menn í basli við að koma niður streng í við ræsi neðan við Árbakka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 387
Helga Björg Hu 7 á leið í róður. Bátinn áttu og gerðu út þeir Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998).
Skagaströnd - safn413
Ofsaveður gekk yfir Skagaströnd 24. október 1995. Foktjón varð víða um bæinn en á þessari mynd sjást fjárhús - "Snorrahúsin"- sem hrundu að hluta til í veðrinu. Þessi hús stóðu undir bergjunum austan við beygjuna á Vetrarbrautinni. Þök fuku af hlöðum, útihúsum og bílskúrum í veðrinu ásamt því að nokkrar flaggstangir í bænum þoldu ekki álagið og brotnuðu.
Barnaból - safn309
Ægir Hreinn Bjarnason á leiksskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1993.
Árni Geir Ingvarsson - safn 393
Næst okkur á myndinni er Helga Björg HU 7 sem liggur utan á Hafrúnu HU 12 en næst bryggjunni er Arnarborg HU 11. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrir 1993 því þá var Arnarborgin rifin og brennd. Græna fyrirbærið í baksýn var íssnigill sem notaður var til að koma ís um borð í bátana.
Jón Jónsson260
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þær Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Bóel Hallgrímsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 442
Arnarborg HU 11 rifin í slippnum 1993. Á myndinni eru við vinnu sína frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Gísli Snorrason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 454
Hafrún Hu 12 sökk í höfninni á Skagaströnd í aftakaveðri 16. janúar 1995. Á myndinni er Hafrúnin að koma úr kafi því bátnum var bjargað og hann síðan endurnýjaður að nánast öllu leyti. Kafarar fóru niður að Hafrúninni og þéttu lestar og önnur op. Festu svo stóra poka við bátinn á mörgum stöðum. Síðan var lofti dælt í pokana og báturinn réttur af. Þá hófst dæling á lofti niður í rýmin sem þétt höfðu verið og loftið þannig látið ýta sjónum út. Smátt og smátt varð þetta til að Hafrúnin kom úr kafi og flaut á ný.
Jón Jónsson241
Þessi mynd var tekin á grímuballi Höfðaskóla 1985 í Fellsborg. Á myndinni eru mæðurnar Sólveig Eiðsdóttir og dóttir hennar Sóley Elsa Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 395
Húni HU 62 í slippnum á Skagaströnd. Arnarborg Hu 11 bíður örlaga sinna við hlið Húna. Myndin hefur líklega verið tekin 1992-1993.
Óþekktur ljósmyndari365
Skagaströnd Iceland er ritað á þessa mynd. Margir mundu e.t.v. ekki kannast við staðinn ef ekki væri fyrir Spákonufellið sem gnæfir yfir í baksýn. Annars sýnir myndin hvernig umhorfs var við Einbúann - klettinn sem er til hægri á myndinni - áður en hafist var handa við hafnargerð 1934 með uppfyllingu hérna megin við Einbúann. Stóra húsið á miðri mynd var fjós og hesthús og sennilega pakkhús að hluta. Hvíta húsið til vinstri var aðsetur verslunarstjórans. Við hornið á hesthúsinu vinstra megin sér í Assistentastofu, sem var húsnæði aðstoðarmanns verslunarstjórans. Litla húsið í Einbúanum var þvottahús og húsið sem sést fram undan stóra hesthúsinu til hægri var Sæmundsenbúð. Ljósmyndin er líklega handmáluð en er upprunalega póstkort sem á stendur 17. nóvember 1913 svo sennilega hefur myndin verið tekin þá.
Árni Geir Ingvarsson -safn 487
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) á ferðalagi í Strandasýslu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn412
Það getur stundum verið nauðsynlegt að hafa bakdyr á húsum. Þannig var það veturinn 1995 á Strandgötu 10 því eins og sést þá eru framdyrnar rækilega á kafi undir skaflinum sem hefur skafið fram af þaki hússins.
Guðmundur Guðnason 2 419
Á myndinni syngja saman félagar úr kirkjukór Hólaneskirkju á Skagaströnd og úr kirkjukór Hvammstanga. Frá vinstri á myndinni: óþekkt, Anna Guðmundsdóttir, óþekktur, Guðrún Sigurðardóttir, óþekktur, Sigurður Bjarnason, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) og Ingibjörg Pálsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 460
Þessi mynd var tekin í óþekktri kirkju (Hofskirkja?). Biskupinn herra Sigurbjörn Einarsson blessar söfnuðinn. Presturinn hægra megin er séra Pétur Þ. Ingjaldsson en aðrir eru óþekktir. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn061
Sex við sama borð og enginn lýgur er einþáttungur sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið sem kaffileikhús á Hótel Dagsbrún leikárið 1996 - ´97. Leikstjóri verksins var Einar Þorbergsson. Á myndinni skála eftir frumsýningu, flestir þeirra sem komu að uppsetningu verksins. Frá vinstri: Peter Wheeler (krýpur) sem sá um tónlistarflutning í verkinu, Jóhannes Óskarsson, Jensína Lýðsdóttir, Steindór Haraldsson, Vigdís Ómarsdóttir, Einar Þorbergsson leikstjóri (krýpur), Elín Njálsdóttir og Hólmgeir Kristmundsson.
Barnaból - safn236
Trausti Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn214
Theódór Líndal Helgason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn249
Þóra Lísebet Gestsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 404
Á myndinni er slæmt veður og báturinn virðist vera að slíta af sér landfestarnar. Mennirnir á myndinni eru sennilega að reyna að komast um borð til að koma í land festingu aftur í bátnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn167
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastarndar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Kristín Jónsdóttir og Þorvaldur Skaftason.
Guðmundur Guðnason 2 502
<p>Árið 1977 gengu þeir félagar Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), sem myndin er af, og Sigurður Jónsson um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Myndin var tekin á náttstað þeirra við Vesturá þar sem Guðmundur átti æskuár sín. Bærinn var löngu kominn í eyði þegar myndin var tekin. </p>
Steinþór Karlsson 1
Loftmynd af Spákonufelli tekin úr norð-vestri. Efst trónir Spákonufellsborgin sjálf eða Borgarhausinn eins og stundum er sagt. Framan við hann er Grenjadalur en norður af hausnum (nær okkur) er klettaborg sem heitir Molduxi. Hinum megin við hausinn, lengst til hægri á myndinni, er önnur hæð, Stóri speni. Lægðin sem afmarkast af Molduxa og hausnum sjálfum - fjær okkur á myndinni - er Leynidalur/Leynisdalur. Fjallið austur af Borgarhausnum þ.e. til vinstri á myndinni, heitir tveimur nöfnum: Hrútafjall eða Náttmálafjall. auðveldasta gönguleiðin upp á Borgarhausinn liggur meðfram snjóskaflinum sem er lengst til vinstri á myndinni og upp á rindann þar fyrir ofan og síðan eftir rindanum upp á hausinn sjálfan.
Guðmundur Guðnason 2 466
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið í Gömlu Tunnunni á einhverri skemmtun. Frá vinstri á myndinni eru: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Gunnar Sveinsson.
104-0434_IMG
Leikskólinn Barnaból varð 25 ára 2002. Blásið var til afmælisveislu 8. júní um sumarið og þá tók Ólafur Bernódusson þessa mynd. Á henni eru gestir og nemendur leikskólans að fylgjast með einhverri uppákomu sem nemendur Barnabóls voru með.
Skagaströnd - safn178
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd fer vel á með hreppsnefndarmönnunum Gylfa Sigurðssyni til vinstri og Guðmundi Hauk Sigurðssyni til hægri.
umf Fram 322
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Þessi mynd er af námskeiðskrökkum - líklega frá Blönduósi - en þau eru öll óþekkt. Ef þú veist nöfn þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram 338
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1975- 1980. Á henni eru íþróttagarpar frá umf Fram á Skagaströnd með viðurkenningarskjöl sín. Frá vinstri: óþekktur, Sólveig Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Soffía Guðmundsdóttir,Steinunn Berndsen, Þórdís Guðmundsdóttir og Hafþór Gylfason. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né fyrir hvað krakkarnir fengu viðurkenningarskjölin.
Skagaströnd - safn417
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís.
Barnaból - safn285
Jóna Gréta Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 372
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn003
Þessi mynd var tekin á skólatröppunum við Höfðaskóla. Á myndinni, sem tekin var 1972, eru krakkar sem fædd voru 1962 og því saman í bekk. Fremsta röð frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Erla Másdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Sólveig Gunnarsdóttir. Í miðröð frá vinstri: Jóhann Grímsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Gunnar Gunnarsson og Vilhelm Harðarson. Aftast eru frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Guðmundur Jónsson og Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002).
Séra Pétur og Dómhildur - safn157
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Á myndinni eru Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka og Geirlaug Ingvarsdóttir frá Balaskarði.
Skagaströnd - safn414
Gunnar Albertsson mokar snjó frá Gamla Hólanesfrystihúsinu á Hólanesi í október 1995. Sér til hjálpar hefur hann traktorsgröfu undir stjórn Guðmundar Björnssonar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn112
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Vigdísi Viggósdóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Guðmundur Guðnason 2 448
Bræðurnir frá Þórsmörk Reynir Sigurðsson til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri . Myndin var tekin fyrir utan Akurgerði en þar var heimili systur þeirra bræðra Aðalbjargar Sigurðardóttur. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Guðmundur Guðnason 2 491
<p>Fermingarbörnin Anna Aðalheiður Halldórsdóttir frá Móbergi og Sigurður Örn Ágústsson frá Geitaskarði standa hér á tröppum Holtastaðakirkju ásamt séra Oddi Einarssyni sem fermdi þau í kirkjunni árið 1984. Maðurinn til vinstri er Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011). </p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 408
Þegar fast er sótt og menn jafnvel einir á sjó vill þreyta og syfja stöku sinnum taka yfirhöndina. Þannig fór að þessu sinni þegar handfærabátur strandaði á einu af djúpskerjunum við Skagaströnd. Ekki urðu slys á mönnum við óhappið önnur en ef til vill örlítið sært stolt sjómannsins um borð.
Barnaból - safn210
Árni Max Haraldsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn134
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Eðvarð Hallgrímsson sem lék í sýningu klúbbsins en var fyrst og fremst leiktjalda - og leikmunasmiður. Hér Eðvarð í gerfi sínu í leikritinu "Er þetta ekki mitt líf" sem klúbburinn setti upp leikárið 1982 - 1983.
Barnaból - safn291
Ívar Gylfason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
umf Fram 339
Lárus Ægir Guðmundsson hefur hér nýlokið við að hengja verðlaunapeninga um háls sigurvegara í víðavangshlaupi Fram - vorhlaupinu - á óþekktum tíma. Verðlaunahafarnir eru frá vinstri: Hrólfur Pétursson, Vilhelm Jónsson og Ingvar Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 448
Á myndinni er verið að vinna að því að lyfta lítilli trillu úr kafi eftir að hún sökk við skúffugarðinn. Ef þú veist nafnið á trillunni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn348
Rjúpnafell rifið 24. janúar 1991.
Barnaból - safn149
Ingibjörg Axelsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn312
Maríanna Ástmarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
1
…
89
90
91
…
167
Leita í myndasafninu
Leita