Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Ljósmyndarar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn290
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Fyrsti húsvörður hússins var Ragnar Smári Ingvarsson sem sést hér á myndinni bak við afgreiðsluborðið í anddyri hússins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 474
Benni Ólafs er skemmtibátur sem Guðmundur Björnsson og Ólafur Bernódusson keyptu frá Dalvík 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 419
Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði ræsinu og veginum burt svo ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd sjást leyfarnar af ræsinu og stálið í vegstæðinu þar sem bílar bíða í ráðaleysi á brúninni að sunnanverðu.
umf Fram 342
Þessir tveir herramenn hafa starfað ötullega innan ungmennafélagshreyfingarinnar í allmörg ár auk annarra félagsstarfa. Mennirnir eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Skagaströnd og Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Tilefni handtaksins er óþekkt en tengist mjög líklega einhverjum sigrum umf Fram félaga.
Guðmundur Guðnason 2 444
Óþekkt stúlka á sjómannadegi á Skúffugarðinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. H 30 mun Þorvaldur Þorláksson (Valdi í Vísi) frá Blönduósi hafa átt. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 482
Heimalningum á Balaskarði gefin mjólk að drekka. Konan í rósótta kjólnum er Signý Benediktsdóttir ( d. 7.1.1991) en hin konan er líklega Geirlaug Ingvarsdóttir dóttir Signýar.
Guðmundur Guðnason 2 441
Reiptog er fastur liður í hátíðahöldum á sjómannadegi á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en þarna hafa hátíðahöldin farið fram á Skúffugarðinum. Næstur okkur á reipinu er Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) og síðan Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001). Annars eru á myndinni, talið frá vinstri: Stefán Hólm, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Birgir Árnason (d. 2.2.2005), Sveinn Hjartarson (d. 21.11.1961), Ingibjörg Kristinsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 423
Fjallsminni eða Hólabraut 2
Guðmundur Guðnason 2 434
Sjómannadagur haldinn á Skúffugarðinum á óþekktu ári. Konan á myndinni er óþekkt (?Lauga í Lundi?) en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 477
Kirkjukórinn syngur í Fellsborg. Tilefnið er óþekkt en myndin var tekin einhverntíma á tímabilinu 1987 - 1990. Í kórnum eru, talið frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Helga Guðmundsdóttir, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Bára þorvaldsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Guðrún Sigurðardóttir, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) og Hjördís Sigurðardóttir. Við kaffiborðið situr Dagný Guðmundsdóttir (d. 22.4.2004).
Barnaból - safn335

13. september 2001 fóru krakkarnir í leikskólanum Barnaból út á golfvöll - Háagerðisvöll - til að kynna sér golfíþróttina. Á þessari mynd er Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) að kenna Lindu Rún Einarsdóttur að pútta.

Guðmundur Guðnason 2 377
Örlygsstaðir og Hlíð í Skagabyggð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 427
Þessar prúðbúnu systur eru Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Hjördís Sigurðardóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1950.
Minjasafn 56
Gripur nr. 56. Hnappsstaðir á Skagaströnd í ramma. Teiknuð mynd. Gefandi: Bergljót Óskarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 416
Snjómokstur neðst á Mánabraut. Ekki dugir minna en jarðýta af stærstu gerð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn380
Ekki er vitað hvenær þessi mynd af kirkjukórnum var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma í kringum 1970. Fremst krjúpa bræðurnir Jón Hallur Pétursson til vinstri og Pétur Ingjaldur Pétursson til hægri. Sitjandi frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) frá Njálsstöðum, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Standandi frá vinstri: Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) Grund, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður-Skála, Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Elísabet Árnadóttir Réttarholti, Ása Hafsteinsdóttir, Hallbjörn Hjartarson frá Vík, Bára Þorvaldsdóttir, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Sævar Bjarnason Bjargi, Guðrún Sigurðardóttir og Edda Pálsdóttir.
Barnaból - safn286
Albert Ingi Haraldsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn239
Guðjón Ebbi Guðjónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn 324
Þessi sæmdarhjón, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), voru heiðruð á sjómannadegi 1992 með heiðurmerki sjómannadagsins á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn410
Þessi mynd var tekin 16. janúar 1995 í vetrarbrimi. Myndin sýnir sjó ganga yfir brimvarnargarðinn ( Útgarð). Síðan þessi mynd var tekin hefur grjótvörn við garðinn verið stóraukin og endubætt og þó enn skvettist yfir garðinn í verstu brimum þá er það ekkert í líkingu við það sem myndin sýnir. Vitinn á enda garðsins hefur verið rifinn og röraviti verið reistur í staðinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 463
Funi HU 89 sokkin í höfninni en búið að koma á hann böndum og verið að ná honum upp aftur.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn080
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Þessi mynd var tekin á æfingu. Frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 373
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Dagný Sigmarsdóttir, óþekkt, ?Jóney Gylfadóttir?, Guðbjörg Gylfadóttir, Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson
Árni Geir Ingvarsson - safn 425

Hafbjörg HU 100. Um þennan bát segir eftirfarandi í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:

"Hafbjörg HU 101 1842. Báturinn var smíðaður úr plasti hjá Mark hf á Skagaströnd árið 1087 og var 7 brl. með 274 ha. Ford Mermaid vél. Eigandi hans var Hrönn s/f en það fyrirtæki var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og var báturinn gerður út árin 1987 - 1988. Hafbjörg var seld til Þorlákshafnar árið 1989 og fékk nafnið Vismin ÁR 12.

Guðmundur Guðnason 2 409

Margrét Guðlaugsdóttir dóttir Soffíu Ólafsdóttur og Guðlaugs? sem bjuggu í Mjóadal og víðar.

Sigurður Jónsson - safn 003

Félagarnir Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu á Skagaströnd, í ljósum buxum, og Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum á ferðalagi í Merkigili á Skagafirði.

Leikklúbbur Skagastrandar - safn107
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Víði Ólafsson sem var starfsmaður við nokkrar sýningar klúbbsins.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn176
Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd er Þorvaldur Skaftason í hlutverki sínu í verkinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn233
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Önnu Sjöfn Jónasdóttur sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Magnús B Jónsson094
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru þeir Guðmundur til vinstri og Ólafur til hægri, kampakátir að skoða hvalinn í fjörunni.
Barnaból - safn230
Arnar Ólafur Viggósson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Guðmundur Guðnason 2 459
Þessi kona er óþekkt og sama gildir um stúlkubarnið sem hún hampar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 487

(H)eldri borgara á Skagaströnd, og fleiri, fóru saman í ferðalag og þar á meðal var fólkið á myndinni. Stoppað var á Kerlingarholtinu og þar var spilað og sungið. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmóniku, Helga Guðmundsdóttir með gítar og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006).

Árni Geir Ingvarsson - safn 422
Þessi mynd var tekin á athafnasvæði slippsins og á henni eru tveir af ötulustu starfsmönnum þar. Ólafur Guðmundsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
umf Fram 343
Á níunda áratugnum stóð UMFÍ fyrir uppákomu sem fólst í því að hjólað var hringinn í kringum landið. Þátttakendur voru félagar í ungmennafélögum vítt og breytt um landið þar sem félagar viðkomandi félags hjóluðu um sitt félagssvæði. Á þessari mynd eru við hjólin tveir Skagstrendingar. Frá vinstri: Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) - Tóti í Vík - og Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) - Bergur sterki - en báðir hjóluðu þeir sinn spöl fyrir umf Fram. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn011
Myndin var tekin af stúlkum að leik á skautum á svelli við Hrafná 1966. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn347
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), starfsmaður Siglingamálastofnunar, Ólafur Bernódusson, Elín Njálsdóttir, Birgir Þórbjarnarson og Magnús B. Jónsson.
umf Fram 344
Á níunda áratugnum stóð UMFÍ fyrir uppákomu sem fólst í því að hjólað var hringinn í kringum landið. Þátttakendur voru félagar í ungmennafélögum vítt og breytt um landið þar sem félagar viðkomandi félags hjóluðu um sitt félagssvæði. Fólkið hjólaði til skiptis þrír eða fjórir í einu en rúta fylgdi hjólreiðafólkinu með þá sem áttu eftir að taka sína törn eða höfðu lokið sínum kafla. Á þessari mynd, sem tekin var inni í rútunni eru: vinstra megin við ganginn: Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012). Hægra megin við ganginn, talið frá vinstri: Charlotta Traustadóttir, Jökulrós Grímsdóttir, Edda Pálsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, óþekkt aftan við Fríðu, Ingibjörg Vera Kristinsdóttir og Gunnar Helgi Benónýsson (d. 29.7.2003).
Minjasafn 163
Gripur nr. 163. Kaffikanna, járnlituð með svörtu haldi en hvítt ofan á því. Er með skrúfum á botni vegna viðgerða. Gefandi: Elísabet Kristjánsdóttir Lundi, Skagaströnd 1980
Leikklúbbur Skagastrandar - safn133
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þorvald Skaftason sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Auk þess var Þorvaldur formaður Leikklúbbsins 1989 - 1991. Á myndinni er Þorvaldur í gerfi sínu í leikritinu "Er þetta ekki mitt líf" sem klúbburinn setti upp leikárið 1982 - 1983. Í baksýn sér í Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Guðmundur Guðnason 2 384
Þessi skeggprúði maður er Guðmundur Pálsson (d. 14.12.1976) kenndur við Karlsminni.
Guðmundur Guðnason 2 414
Á þessari mynd eru hjónin Bergur Jón Þórðarson og Eydís Ólafsdóttir með tveimur dætrum sínum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 90 no2
Gripur nr. 90. Brúnn rammi með myndum af Húna II á síldveiðum.
Minjasafn 385
Gripur nr. 385. Þrjú pör af gömlum ullarsokkum í poka.
Jón Jónsson336
Ungir skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Páll Jónsson frá Brandaskarð, Jóhannes Sveinsson og Sigurbjörn Kristjánsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn079
Mynd frá æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar á leikritinu: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson árið 1990 undir leikstjórn HarðarTorfasonar. á Myndinni eru Þorvaldur Skaftason til vinstri og Einar Haukur Arason til hægri.
Minjasafn 40
Gripur nr. 40. Mynd úr Hvalfirði í grænleitum leðurramma.
Guðmundur Guðnason 2 349
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað " Séð frá Varmahlíð, G.K.G.". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef til vill geta bílaáhugamenn giskað á það út frá útliti olíubílsins.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn018
Skólaskemmtun í Fellsborg. Börnin eru úr árgangi 1976 - 1977. Frá vinstri: Björgvin Ingi Kristjánsson, óþekkt, Theódór Karlsson, Ragna Fanney Karlsdóttir, Þorlákur Guðjónsson, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Írena Rúnarsdóttir, óþekkt, María Jóna Gunnarsdóttir, Kristján Gunnar Rúnarsson, Þóra Ásgeirsdóttir, þrjú óþekkt, Auðna Ýr Agnarsdóttir, Jósef Stefánsson og Arna Guðrún Jónsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn092
Í tilefni af 20 ára afmælis Barnabóls fengu allir afmælishúfur á kollinn. Á þessari mynd sem tekin var 19. júní 1997 eru frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Davíð Víðisson, Patrik Snær Bjarnason, Laufey Inga Stefánsdóttir, fjögur óþekkt börn, Hanna María Gylfadóttir, Guðjón Örn Kristjánsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn334
28. ágúst 2001 kom lögreglan í heimsókn í leikskólann Barnaból. Þá var þessi mynd tekin. Starfskonurnar eru Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri til hægri. Lögreglumaðurinn er óþekktur og hver og einn verður að þekkja sjálfan sig á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 377
Þessi mynd, sem tekin var í Fellsborg á óþekktum tíma, sýnir leikendur í einhverju skemmtiatriði sem þar var flutt af óþekktu tilefni. Frá vinstri eru í hlutverkum sínum: Pétur Ingjaldur Pétursson, Ragnar Jónsson, Guðmundur Jónsson, Egill Bjarki Gunnarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn225
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bergþór Gunnarsson sem þátt tók í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn081
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Þessi mynd var tekin á lokaæfingu. Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Rut Jónasdóttir til hægri í hlutverkum sínum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn082
Einar Rafn Haraldsson var leikstjóri sýningar Leikklúbbs Skagastrandar á Skjaldhömrum eftir Jónas Árnason leikárið 1976 - 1977. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu, er Guðmundur Haukur Sigurðsson að koma upp úr kjallaranum á Skjaldhömrum til að tala við vitavörðinn sem Ólafur Bernódusson lék.
Guðmundur Guðnason 2 464
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið í Gömlu Tunnunni á einhverri skemmtun. Frá vinstri á myndinni eru: Birna Blöndal, Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006). Malt Extrakt virðist hafa verið vinsæll drykkur meðal þessa fólks.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn058
Leikritið Stálblóm eftir Róbert Harling var sett á svið í Fellsborg vorið 1993. Það var Leikklúbbur Skagastrandar sem stóð fyrir uppsetningunni og fékk til liðs við sig, sem leikstjóra, Jónas Jónasson (d. 22.11.2011). Þessi mynd var tekin á æfingu en á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Jónas Jónasson, Sigrún Jónsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Birna Blöndal, Guðný Sigurðardóttir og Lovísa Vattnes.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn014
Líklega var þessi mynd tekin við skólaslit Höfðaskóla í Fellsborg kringum 1990. Krakkarnir í bláu jökkunum voru spilarar í lúðrasveit sem í voru krakkar af svæði Tónlistarskóla Austur Húnavatnssýslu en stjórnað af Skarphéðni Einarssyni. Frá vinstri á myndinni eru: Arnar Ólafur Viggósson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Sigurður Berndsen, Jón Örn Stefánsson, Halla Kristín Árnadóttir, Guðrún Björg Elísdóttir, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Bjarnhildur Níelsdóttir o g tvö óþekkt.
Minjasafn 1
Gripur nr. 1. Ylleppur, dökkfjólublár með hvítu munstri.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn103
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallveigu Ingimarsdóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
1

91
92
93

167
Leita í myndasafninu
Leita