Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason 2 377
Örlygsstaðir og Hlíð í Skagabyggð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 427
Þessar prúðbúnu systur eru Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Hjördís Sigurðardóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1950.
Guðmundur Guðnason 2 475
Messa í ?Bólstaðahlíðarkirkju?. Jón Tryggvason (d. 7.3.2007) frá Ártúnum er við hljóðfærið. Frá vinstri í kórnum á myndinni: tvær óþekktar, Guðlaug Steingrímsdóttir frá Skriðulandi, Erla Hafsteinsdóttir Gili, Sigurjón Stefánsson Steiná, Bylgja Angantýsdóttir Móbergi, Áslaug Guðmundsdóttir Finnstungu, Katrín Grímsdóttir Steiná, Guðmundur Valtýsson Brattahlíð á bak við Katrínu, Bjarni Sigurðsson Eyvindarstöðum, Friðrik Björnsson (d. 3.1.2007) Gili, Sigurjón Guðmundsson Fossum en bak við hann sér í Valgarð Hilmarsson frá Fremsta - Gili. Bak við Friðrik sér í Runólf Aðalbjörnsson frá Hvammi. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú veist hvaða kirkja þetta er eða þekkir fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn362
Myndin var tekin á föndurdegi í Höfðaskóla í desember 1991. Á myndinni eru mæðgurnar Auður Eva Guðmundsdóttir og Þórunn Bernódusdóttir að klippa og líma.
Skagaströnd - safn 329
Haustið 2003 kom forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, í heimsókn til Skagastrandar ásamt fylgiliði. Meðal annars leit hann við í Höfðaskóla við miklar vinsældir nemenda og starfsfólks þar. Á þessari mynd er Ólafur í miðjum hópi fagnandi skólabarna utan við íþróttahúsið. Til hægri sést aftan á sýslumann Húnavatnssýslu, Bjarna Stefánsson og forsetafrúna Dorrit Moussaief.
umf Fram 314
Þessar konur kepptu um árabil í kastgreinum fyrir umf. Fram á Skagaströnd. Frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir sem setti Íslandsmet í kúluvarpi 1992 en metið stendur enn þagar þetta er skrifað í janúar 2015.
Minjasafn 88
Gripur nr. 88. Mynd af fólki sem fór á ball í Búðardal 1941 eða 1942 ásamt lýsingu á farartæki þeirra.
Guðmundur Guðnason 2 392
Eygló Guðbjartsdóttir frá Vík.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn053
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg af þeim Guðbjörgu Viggósdóttur, Magnúsi B. Jónssyni, sem var aðalleikarinn í verkinu, og Guðjóni Sigurvaldasyni leikstjóra.
DX-11
Piparkökubakstur í Barnabóli 30. nóvember 2002. Á þessari mynd eru frá vinstri: Cornelia Silud Boncales, Eymundur Grétarsson, Elmar Grétarsson, Amy Eymundsdóttir og Linda Ómarsdóttir. Amy er amma barnanna á myndinni en Cornelia er móðir drengjanna tveggja.
umf Fram 325
USAH stóð nokkrum sinnum fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinendur á þessum námskeiðum voru Ólafur Oddsson og Pétur Eysteinsson til skiptis. Á námskeiðunum var fólki kennd ræðumennska, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Pétur Eysteinsson leiðbeinandi, Jónas Bjarnason Blöndudalshólum og Guðmundur Valtýsson frá Brattahlíð.
Skagaströnd - safn375
Fermingarsysturnar Ingibjörg Kristinsdóttir til vinstri og Ester Axelsdóttir til hægri. Árið er 1962.
Guðmundur Guðnason2 343
Á þessari mynd sjást uppáhalds skepnur Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar - kindur. Í baksýn má sjá gapandi sárið í Höfðanum eftir grjótnám þar. Til vinstri sjást svo nokkur fjárhús, sem karlarnir sem bjuggu í Bankastræti undir Höfðanum, áttu.
Barnaból - safn003
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Birna Ágústsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Magnús Filip Sævarsson, Magnús Líndal Þrastarson og Gunnar Helgason.
Jón Jónsson251
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Birna Blöndal í hlutverki sínu í sýningunni.</p>
Jón Jónsson321
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Axel Jóhann Hallgrímsson til vinstri og Ingibjörg Kristinsdóttir til hægri hafa lokið keppni í að mata hvort annað á jógúrt í keppni við annað par. Bæði voru þau í hreppsnefnd Höfðahrepps á þessum tíma.
Skagaströnd - safn352
Búið er að fjarlægja báða þessa tanka í dag (apríl 2015). Þeir voru upphaflega báðir jafn stórir en síðan var annar þeirra lækkaður um helming. Þeir voru reistir í sambandi við smíði síldarverksmiðjunnar á árunum kringum 1943-´46 og þá notaðir undir svartolíu og lýsi. Þegar þeir voru byggðir voru ekki gerðar kröfur um lekaþró kringum þá þ.e. svæði sem gæti tekið við hugsanlegum leka úr tönkunum án þess að menga umhverfið. Í dag eru kröfurnar um slíkt mun strangari sem betur fer. Tankarnir stóðu vestur undir Höfðanum ekki langt frá sundlauginni.
Minjasafn 140
Gripur nr. 140. Ístað 13 cm breitt og 13 cm hátt. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 469
Þessi mynd var tekin á logndegi í Skagastrandarhöfn en margir bátar í höfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson314
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri og Sigríður Ólafsdóttir - Sissa - (d. 2008) til hægri í veislunni.
Sigurður Jónsson - safn 005
Ragna Friðriksdóttir (d. 5.2.1981) og Sigurður Jónsson í Vestfjarðaferð 1974 ásamt fjölmörgum öðrum Skagstrendingum. Myndin var tekin í Ísafjarðardjúpi - líklega á Arngerðareyri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 399
Arnar Hu 1 í eigu Skagstrendings hf að koma til hafnar á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn 327
Þessi mynd var tekin á vinabæjarmóti í vinabæ Skagastrandar í Finnlandi, Lohja. Á myndinni eru hjónin Adolf H. Berndsen oddviti Höfðahrepps fyrir miðri mynd og Dagný Sigmarsdóttir, lengst til hægri, að spjalla við hjónin Matti og Aila Saarinen frá Lohja en Matti er þingmaður á finnska þinginu. Vinstra megin við Dagnýju er Ritva Sylvander frá Lohja.
Skagaströnd - safn408
Lýsistankur SR- Mjöls rifinn haustið 1994. Olís tankurinn við hlið hans hefur einnig verið rifinn.
Guðmundur Guðnason 2 453
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal við heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og sér í mynni Vesturáarskarðs í baksýn. Fjölskylda Guðmundur bjó í dalnum á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Konan lengst til vinstri er Klemensína Klemensdóttir (d.12.6.1966) móðir Guðmundar. Ungi maðurinn sem bindur bagga er Pálmi (d. 23.3.1994), Ingvi (d. 31.12.1991), eða Rósberg (d. 9.1.1983) en þeir voru bræður Guðmundar (líklegast er að þetta sé Rósberg). Guðmundur sjálfur heldur í hestinn og faðir hans Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) hleður fúlgu úr heyinu í baksýn.
Guðmundur Guðnason 2 411
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á hestbaki. Líklega var myndin tekin einhversstaðar á Laxárdal þar sem Guðmundur var alinn upp.
Skagaströnd - safn372
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson, Rúnar Jóhannsson og Sigurjón Ástmarsson.
Jón Jónsson272
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd er fólk að njóta veitinga í tilefni dagsins. Frá vinstri: Rúnar loftsson, Linda Kristjánsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Lilja Bernódusdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) (nær) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) (fjær). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn025
Kappróður á sjómannadegi 1966. Líklega eru hér tvær unglingasveitir að keppa en að þessu sinni var róið frá höfninni í austur og endað fram af enda Skúffugarðsins.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn157
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þau Steindór Haraldsson og Björk Sveinsdóttir. Í baksýn sér í Ástmar Kára Ástmarsson.
Guðmundur Guðnason 2 468
Guðmundur Óskarsson frá Ásholti með skólatöskuna sína e.t.v. á fyrsta skóladeginum í Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson - safn 447
Grímsey ST 2 að koma úr slipp á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason 2 384
Þessi skeggprúði maður er Guðmundur Pálsson (d. 14.12.1976) kenndur við Karlsminni.
Guðmundur Guðnason 2 414
Á þessari mynd eru hjónin Bergur Jón Þórðarson og Eydís Ólafsdóttir með tveimur dætrum sínum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn149
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu af Guðmundu Ólafsdóttur sem vann við búninga og Árna Geir Ingvarssyni sem var ljósameistari við sýninguna eins og svo margar síðan.
Guðmundur Guðnason 2 437
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né af hvaða tilefni. Hún virðist vera tekin í listigarðinum á Akureyri. Maðurinn sem krýpur lengst til vinstri er Gunnar Albertsson og beint aftan við hann, með ljósa derhúfur (sixpensara), er Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Við hægri hlið Jóns situr Kristinn Ásgrímsson í Hjarðarholti. Lengst til vinstri, sitjandi, er Hallbjörn Hjartarson og síðan Úlfar Björnsson. Strákarnir við hlið Gunnars gætu verið ?Hörður Ragnarsson og Gylfi Sigurðsson? Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Jón Jónsson265
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd, sem tekin var í hléi sýningarinnar, eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn069
Ingunn Björnsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar
Minjasafn 172
Gripur nr. 172. Koparkanna með gylltum stút og handfangi. Einnig er gyllt rönd um hana miðja. Kannan er 23 cm á hæð og 53 cm að ummáli þar sem hún er breiðust. Með könnunni fylga tvö staup á fæti í sömu litum og kannan. Gefandi: Borghildur Jónasdóttir Álftamýri 40, Reykjavík í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn168
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Ingimar Oddsson. Aftan við Magnús grillir í Þorvald Skaftason.
Minjasafn 312
Gripur nr. 312. Kvenmannsveski úr svörtu leðri lengd 25 cm, hæð 15 cm. Breiðast neðst. Veskið er með svörtu leðurhaldi. Var í eigu Mörtu Guðmundsdóttur Lækjarbakka, Skagaströnd, dáin 1957. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
umf Fram 334
Þessi mynd af Unni Gunnarsdóttur var tekin í 50 ára afmælisveislu umf. Fram hinn 28. desember 1976. Unnur var þá í stjórn félagsins. Í baksýn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) í ræðustól.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn219
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Aðalheiði Harðardóttur sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn005
Hér taka hjónin, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson, vel undir í söng á einhverri góðri stund.
Guðmundur Guðnason 2 501
Árið 1977 gengu þeir félagar Sigurður Jónsson, sem myndin er af, og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Náttstaður þeirra var hjá bænum Vesturá þar sem þessi mynd var tekin. Bærinn var þá löngu kominn í eyði en þar átti Guðmundur æskuár sín.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn153
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru þær Bóel Hallgrímsdóttir niðri og Björk Sveinsdóttir uppi í hlutvekum sínum.
Minjasafn 349
Gripur nr. 349. Hengilás með keðju.
Guðmundur Guðnason 2 440
Pálfríður Bjarnadóttir í Bjarnarhöfn á Skagaströnd. Dóttir Fanneyjar Jónsdóttur og Bjarna Loftssonar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn182
Gísl eftir Brendan Beham í þýðingu Jónasar Árnasonar setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir. Leikritið gekk vel og var sýnt víða m.a. á Seltjarnarnesi fyrir fullu húsi. Á myndinni, sem Jónas Baldursson tók, eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Elín Njálsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Ólafur Bernódusson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Guðmundur Guðnason 2 406
Þessi stúlka, Heiðdís Sigrún Þorbjörnsdóttir, er ein af dætrum Þorbjörns Jónssonar og Aðalbjargar Sigurðardóttur sem lengi bjuggu í Akurgerði á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason 2 407
Þessi fjölskylda flutti frá Skagaströnd að Núpi í Laxárdal árið 1957 en flutti síðan á Blönduós 1976 en þá fór Núpur í eyði. Hjónin eru Valgerður Kristjánsdóttir og Jökull Sigtryggsson. Valgerður situr undir Valgarði Jökulssyni, Halla Jökulsdóttir er á milli hjónanna og Jökull situr með Kristján Jökulsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 427
<p>Þarna er verið að fara með Arnarborgina HU 11 upp í slippinn til að setja á hana nýjan hvalbak og snúa spilinu, sem var langsum bakborðsmegin. Spilinu var snúið þvert eins og venja er að spilin snúi. Líklegt var myndin tekin í kringum 1985-86. Helga Björg HU 7 aðstoðar við að koma Arnarborginni í slippinn. </p><p><br></p>
Skagaströnd - safn390
Skrúðganga frá höfninni til kirkju er föst venja á sjómannadegi á Skagaströnd. Þessum sið hefur verið haldið í áratugi og er messan sem á eftir fer alltaf mjög fjölsótt. Þessi mynd sýnir eina slíka skrúðgöngu en ártalið er óþekkt. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson gengur fyrir skrúðgöngunni í hempu með pípuhatt á höfði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 480
Húsið til vinstri var Sunnuhlíð - Bogabraut 19. Húsið hefur verið rifið og nýtt hús reist á sama stað.
Minjasafn 160
Gripur nr. 160. Kaffikvörn úr járni rauð á lit. Máluð blóm framan á gul, blátt og grænt. Hæð 20 cm og breidd 14 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir 1984.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn211
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórdísi Skúladóttur sem þátt tók í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 434
Gripur nr. 434. Grá dömuhúfa/hattur með svörtum borða og slaufu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 415
Þessi flutningabíll valt í mikilli vindkviðu á brautinni milli Fells og Vindhælis. Á myndinni er verið að koma bílnum á réttan kjöl aftur með hjálp traktorsgröfu. .
Leikklúbbur Skagastrandar - safn117
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 127
Gripur nr. 127. Lyfseðill frá Páli Kolka lækni. Úr eigu Fritz Magnússonar Ásbergi Skagaströnd. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd í ágúst 1994.
1
…
92
93
94
…
167
Leita í myndasafninu
Leita