Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 413
Þakjárn fauk af að hluta á húsinu Skagavegur 10 - 12 í norð-austan stórviðri. Á þessari mynd eru smiðir mættir á staðinn til að koma á nýju járni eftir að veðrið er dottið niður.
Guðmundur Guðnason 2 449
Maðurinn sem slær á Massey Ferguson er Jökull Sigtryggsson, síðar bóndi á Núpi í Laxárdal, við heyskap á Skagaströnd. Heyskapur virðist ganga vel ef tekið er mið af sátunum í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 368
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Dagný Sigmarsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson.
Guðmundur Guðnason 2 400
Þetta glaða fólk í heyskap er, talið frá vinstri: Bergur Jón Þórðarson, Guðmundur Guðnason, Björg Thorberg, Margrét Anna Þórðardóttir, Edda Carlsdóttir og Guðríður Bergsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið í kringum 1960. Björg og Edda voru systurdætur Guðríðar og komu oft á sumrin í "sveitina" til Skagastrandar í heimsókn og tóku þá þátt í lífinu þar eins og jafnaldrar þeirra.
Skagaströnd - safn392
Skrúðganga frá höfninni til kirkju er föst venja á sjómannadegi á Skagaströnd. Þessum sið hefur verið haldið í áratugi og er messan sem á eftir fer alltaf mjög fjölsótt. Þessi mynd sýnir eina slíka skrúðgöngu en ártalið er líklega kringum 1970. Frá vinstri á myndinni eru: Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996), Ingibergur Guðmundsson, Ari Ólafsson, óþekkt stúlka, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Sævar Bjarnason, ?Hafþór Gylfason?, Guðmundur Jóhannesson og Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981).
Guðmundur Guðnason 2346
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin en sennilega hefur dansleikurinn eitthvað tengst Lionhreyfingunni. Maðurinn sem þenur harmónikuna er Kristófer Kristjánsson frá Köldukinn en hinir spilararnir eru óþekktir. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 461
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin suður í Mýri þegar verið var að moka ofan af þökum húsa þar.
Minjasafn 446
Gripur nr. 446. Gamall spegill. Fúinn. Engin rammi en það er járnskraut á hornunum.
Skagaströnd - safn382
Myndin var tekin á tröppum Hólaneskirkju eldri þegar biskupinn kom í heimsókn í sóknina einhverntíma rétt fyrir 1970. Á myndinni er biskup með sóknarnefndarmönnum, presti og organista. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri og formaður sóknarnefndar, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri og meðhjálpari, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) póstur, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Grétar Smári Hallbjörnsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) smiður, herra Sigurbjörn Einarsson biskup (d. 28.8.2008), Hallbjörn Hjartarson verslunarmaður og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) organisti kirkjunnar.
Barnaból - safn314
Berglind Ósk Ingvadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Minjasafn 290
Gripur nr. 290. Veggáttalínulampi. Grænt glerið er undir olíuna. Kveik og lampaglas vantar. Úr búi Stefáns Ágústssonar Ytri-Ey. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey Vindhælishreppi (Skagabyggð) í september 1994.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn013
Þessi mynd frá 1977 var tekin á skíðamóti í Spákonufellinu. Eins og sjá má á myndinni voru margir áhugasamir um skíðamennsku á þessum árum.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn022
Skrúðganga til kirkju á sjómannadegi 1964. Á myndinni er gangan að fara framhjá gamla útibúi kaupfélagsins sem stóð ekki langt frá þeim stað sem söluskálinn er í dag. Þarna var rekin verslun í mörg ár. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn183
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru Guðný Sigurðardóttir og Ólafur Bernódusson í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Barnaból - safn263
Marta Kristín Jónsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Árni Geir Ingvarsson - safn 470
Akurgerði eða Hólabraut 9. Húsið hefur verið rifið og nýtt reist á sama stað.
Barnaból - safn259
Elísabet Vattnes Sigurbjörnsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983
Jón Jónsson340
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Brynjar Pétursson, Björn Sigurðsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 452
Það er alltaf fagnaðarefni þegar nýr bátur bætist í flota þeirra sem fyrir eru á litlum stöðum eins og Skagaströnd. Á þessari mynd er Ólafur Magnússon HU 54 að koma til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Báturinn var í eigu Jökuls hf sem er í eigur hjónanna Stefáns Jósefssonar og Sigríðar Gestsdóttur.
Guðmundur Guðnason 2 480
Fermingarbörn í Hólaneskirkju (eldri) vorið 1978 ásamt sér Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996). Í fremstu röð frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson, Bergþór Gunnarsson, séra Pétur, Karl Berndsen og Axel Gígjar Ásgeirsson. Miðröð frá vinstri: Vilborg Másdóttir, Hjalti Hólmar Indriðason, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Jónsdóttir, Einar Karlsson, Soffía Guðmundsdóttir, Sveinn Kristjánsson og Sigurður Georgsson. Aftasta röð frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) og Vilhelm Jónsson.
Skagaströnd - safn346
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á þessari mynd má sjá, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Adolf J. Berndsen, Þorvaldur Skaftason, Rolf Árnason (d. 3.6.2014), Vilhelm Jónsson, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Magnús B. Jónsson og starfsmaður Siglingamálastofnunar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 476
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Herbert byrjaði snemma að taka ljósmyndir og eftir hann liggur stórt safn mynda. Sumar þeirra eru til sýnis á safni - Kört - í gömlu heimasveit hans í Árneshreppi á Ströndum.
Minjasafn 318 no2
Gripur nr. 318. Trékistill, geirnegldur, viðarlitaður. Lengd 35 cm, breidd 18,5 cm og hæð 23 cm. Kistillinn er falsaður saman á hornunum með tveimur járnlömum aftan á. Á lokinu eru tveir stórir naglhausar sem ganga niður í lamirnar. Á öðrum enda loksins en geirneglt, listi undir. Flísað er smá stykki af á annarri hliðinni á lokinu (inn að miðju loki). Skráargatið að framan er hjartalagað. Kistill þessi er frá Lækjarbakka. Smá hólf er inni í kistlinum á annarri hliðinni efst upp við brún. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn229
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sigrúnu Jónsdóttur sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 47
Gripur nr. 47. Mynd af Maríu Birgittu Berndsen í ramma. 01. 1940. Gefandi: Helga Berndsen.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn060
Brugðið á leik á æfingu Leikklúbbs Skagastrandar í Fellsborg líklega á leikritinu: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson árið 1990. Leikstjóri var Hörður Torfason. Vigdís Viggósdóttir til vinstri og Anna Sjöfn Jónasdóttir til hægri snyrta Óla Hjörvar Kristmundsson með afkastamiklum verkfærum.
Barnaból - safn148
Anna Dúna Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn024
Hraðsigling á sjómannadegi 1966. Belgirnir í baksýn eru markið í kappróðrinum sem er fastur liður á sjómannadegi. Mennirnir á bátnum eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn076
Mynd frá æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar á leikritinu: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson árið 1990 undir leikstjórn HarðarTorfasonar. Frá vinstri: Einar Haukur Arason, Kristín Jónsdóttir, Elín Njálsdóttir og Þorvaldur Skaftason.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn054
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg af þeim Ágústu Friðriksdóttur og Magnúsi B. Jónssyni í hlutverkum sínum.
Jón Jónsson345
Þessi mynd var tekin að vorlagi einhverntíma kringum 1985. Á henni svífur Magnús B. Jónsson niður brekkuna í Spákonufelli í sólbráðinni.
Minjasafn 435
Gripur nr. 435. Brún dömuhúfa/hattur með grænu tígluðu munstri neðan á deri/hattbarði.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn077
<p>Leikritið Síldin kemur og síldin eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar vorið 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Sýningin var fjölmenn og leikararnir á öllum aldri. Þessi mynd var tekin á einni af lokaæfingunum á verkinu og sýnir hluta starfsfólks sýningarinnar. Á myndinni eru frá vinstri:Guðmunda Ólafsdóttir, Steindór Haraldsson, Birna Blöndal, Árdís Indriðadóttir, Þórey Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, óþekktur drengur, Sigrún Jónsdóttir, Magnús B. Jónsson, Herborg Þorláksdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Ingibergur Guðmundsson, Þorvaldur Skaftason, óþekkt og Viggó Magnússon. </p>
Minjasafn 254
Gripur nr. 254. Mjólkurkanna úr hvítum leir og með bláum blómum framan á. Mjög kvarnað úr börmum og stúturinn brotinn. Kom úr húsinu Brautarholti líklega úr eigu Þuríðar Jakobsdóttur eða Elísabetar K. Ferdinandsdóttur sem þar bjuggu.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn008
<p>Þessi mynd, sem er af grímuklæddum nemendum Höfðaskóla, var tekin 19. apríl 1995. Uppi á sviðinu eru frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, óþekktur (af augljósum ástæðum) og Vignir Hafþórsson. Framan við Vigni er Kristbjörg Una Guðmundsdóttir.</p><p><br></p>
Guðmundur Guðnason 2 445
Þetta fólk stendur á tröppum óþekktrar kirkju. Maðurinn lengst til vinstri, aftast með hatt, er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu en lengst til hægri í sömu röð er Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri frá Breiðabliki. Konan fremst til hægri, með slæðu, er Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) frá Jaðri. Maðurinn með svörtu húfuna aftast gæti verið ?Hrólfur Jónsson? (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi og konan framan við hann gæti verið ein af dætrum Hafsteins Sigurbjarnarsonar frá Reykholti?. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn159
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri:Óli Hjörvar Kristmundsson, Ingimar Oddsson og William Sillar. Fólkið í baksýn er ekki í fókus og þekkist því ekki.
Guðmundur Guðnason 2 500
Myndin var tekin af fólki sem sótti hátíðarhöld sjómannadagsins sem þetta ár, líklega kringum 1985, voru haldin á planinu austan við verksmiðjuna. Veggurinn í baksýn hefur nú verið fjarlægður ásamt síldarþrónum sem voru þar fyrir innan. Á myndinni má þekkja marga Skagstrendinga og gesti þeirra.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn005
Þessir krakkar, sem voru saman í bekk í Höfðaskóla, fæddust 1947 og 1948. Á myndinni eru þau með kennara sínum Jóni S. Pálssyni. Standandi frá vinstri: Pétur Jóhannsson, Ísleifur Haraldsson, Jóhann Björn Þórarinsson, María Bjarnadóttir (d.1984), Jóhann Ingibjörnsson, Jón S. Pálsson kennari, Búi Þór Birgisson (d. 18.9.2009), Steinunn Margrét Ellertsdóttir (d. 2014), Sigurður Bjarnason og Árni Björn Birgisson. Sitjandi frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Jóhanna Valdimarsdóttir.
Skagaströnd - safn 322
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd er hreinsibandið fullt af skelfiski.
Minjasafn 437
Gripur nr. 437. Bunkar af dagatölum, litlum. Hægt er að rífa af einn dag í einu. Bunkarnir er frá 1994.
Minjasafn 501
Gripur nr. 501. Halasnælda úr tré.
Guðmundur Guðnason 2 463
Konan með hrútinn er Ingibjörg Karlsdóttir frá Neðri Lækjardal, seinna á Blönduósi.
Guðmundur Guðnason 2 378
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: <em>" Við Spákonufellsrétt 1959. Safnið komið inn".</em> Húsið í bakgrunninum var notað sem kaffiskúr og þar var selt kaffi (kvenfélagið?) á réttardögum. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Jón Jónsson318
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1988. Á henni eru systurnar Elva Ösp Gunnarsdóttir til vinstri og María Jóna Gunnarsdóttir til hægri.
umf Fram 313
Helgi Björnsson frá Læk var öflugur íþróttamaður á yngri árum. Á þessari mynd kastar hann kúlu eða kringlu á íþróttamóti á Skagaströnd einhverntíma kringum 1985. Í bakgrunninum má m.a. sjá Rúnar Loftsson, Viggó Magnússon, Adolf H. Berndsen, Soffíu Guðmundsdóttur, Kára Lárusson og Bjarnhildi Sigurðardóttur.
Minjasafn 87
Gripur nr. 87. Smellurammi með níu myndum af fólki. Það eru upplýsingar um nöfn á öllu þessu fólki við hverja mynd. Skrásett af Guðrúnu Þ Guðmundsdóttir
Guðmundur Guðnason 2 354
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: <em>"Frá Vallabökkum í Skagafirði".</em> Konan á myndinni mun vera Elín Jóhannesdóttir (d. 1981) frá Merkigili síðar húsfreyja á Völlum í Hólmi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson339
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Páll Jónsson frá Brandaskarð og Þórarinn Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason 2 412
Bræðurnir Pálmi Guðnason (d.23.3.1994) til vinstri og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til hægri.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn083
<p>Nokkrir félagar úr Leikklúbbi Skagastrandar taka lagið á sviðinu í Fellsborg. Myndin var líklega tekin á æfingu fyrir einhverja kvöldvöku hjá Leikkklúbbnum. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Erna Hreinsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Díana Kristjánsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Þorvaldur Skaftason og Guðbjörg Viggósdóttir.</p>
Guðmundur Guðnason 2 373
Á þessari myn er karlakór að syngja í Höfðaskóla en þar voru tvær samliggjandi stofur, sem hægt var að opna á milli, oft notaðar fyrir ýmis konar uppákomur. Kórinn á myndinni er líklega karlakórinn Heimir úr Skagafirði en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn342
Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra í heimsókn á Skagaströnd ásamt embættismönnum 26.september 1991. Hægra megin við borðið sitja ráðamenn Höfðahrepps á þeim tíma. Innst er Steinunn Steinþórsdóttir, Sveinn S. Ingólfsson, Magnús B. Jónsson, Þorvaldur Skaftason og næst okkur er Adolf J. Berndsen.
Minjasafn 171
Gripur nr. 171. Kola í stíl við grip 170 sem er kertastjaki. Kolan stendur á stétt og er úr gukllituðum málmi (látúni?). Er með loki yfir eldsneytisbollanum. Gefandi: Borghildur Jónasdóttir Álftamýri 40, Reykjavík í júlí 1994.
Minjasafn 9
Gripur nr. 9. Hvítt silkislifsi með kögri. Balderuð rós i báðum endum, með gylltum vír. Lengd 130 cm en breidd 23 cm. Þetta er brúðarslifsi Vilborgar Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal , en hún gifti sig árið 1920. Slifgsið var balderað og saumað af Jakobínu Guðmundsdóttur systur Vilborgar. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Scan10091
<p>Vilhelm Harðarson við nýjan bíl Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar 1994. Með honum á myndinni er fósturdóttir hans Kristín Jóna Sigurðardóttir.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn172
Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Einar Haukur Arason, Þorvaldur Skaftason og Kristín Jónsdóttir.
Skagaströnd - safn356
Ekki er vitað hvert var tilefni þessarar samkomu í Fellsborg en líklega hefur myndin verið tekin einhverntíma á árunum 1985 - 1990. Fólkið á myndinni er á fremsta bekk frá vinstri: Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Guðmundur Henry Stefánsson og Jósef Stefánsson. Næst fremsti bekkur frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996) og Sylvía Hrólfsdóttir. Bekkur þrjú frá vinstri: Þorlákur Ómar Guðjónsson, Birkir Rafn Gíslason, Karen Peta Karlsdóttir, óþekkt og Steinunn Friðriksdóttir. Fjórði bekkur frá vinstri: Guðrún Guðmundsdóttir (Rúnarsdóttir), Rúnar Kristjánsson, Guðrún Hrólfsdóttir, óþekkt barn og Jónína Valdimarsdóttir. Aftar eru frá vinstri: María Markovic sitjandi í glugganum, Sólveig Gunnarsdóttir, Jón Jónsson (d. 9.7.1991), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) óþekkt fólk, Anna H. Aspar (með gleraugu) (d. 1.9.1999) og María Magnúsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson328
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, spjalla hjónin Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir við Kjartan Örn Kjartansson frá Asiaco sem var umboðsaðili fyrir Japans togarana á sínum tíma. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1.
Skagaströnd - safn381
Kirkjukór Hólaneskirkju kringum 1970. Frá vinstri á myndinni: Edda Pálsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Sævar Bjarnason (fjær), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) (nær), Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Björg Björnsdóttir söngstjóri, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Áslaug Hafsteinsdóttir, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990), Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989), Guðrún Sigurðardóttir og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
1
…
94
95
96
…
167
Leita í myndasafninu
Leita