Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn075
Fannar Viggósson með gítarinn og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmónikuna á æfingu á Saumastofunni? hjá Leikklúbbi Skagastrandar 1984.
Barnaból - safn316
Ágústa Lóa Jóelsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Minjasafn 452
Gripur nr. 452. Lítið gerfijólatré á trékubbi með myndum.
Guðmundur Guðnason 2 445
Þetta fólk stendur á tröppum óþekktrar kirkju. Maðurinn lengst til vinstri, aftast með hatt, er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu en lengst til hægri í sömu röð er Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri frá Breiðabliki. Konan fremst til hægri, með slæðu, er Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) frá Jaðri. Maðurinn með svörtu húfuna aftast gæti verið ?Hrólfur Jónsson? (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi og konan framan við hann gæti verið ein af dætrum Hafsteins Sigurbjarnarsonar frá Reykholti?. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn159
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri:Óli Hjörvar Kristmundsson, Ingimar Oddsson og William Sillar. Fólkið í baksýn er ekki í fókus og þekkist því ekki.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn150
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á fundi ritnefndar leikskrárinnar í kennarastofunni í Höfðaskóla. Frá vinstri: Birna Blöndal, Kristín Björnsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Minjasafn 97
Gripur nr. 97. Gylltur rammi með mynd af kvennahópi. Myndin er mjög máð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 452
Það er alltaf fagnaðarefni þegar nýr bátur bætist í flota þeirra sem fyrir eru á litlum stöðum eins og Skagaströnd. Á þessari mynd er Ólafur Magnússon HU 54 að koma til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Báturinn var í eigu Jökuls hf sem er í eigur hjónanna Stefáns Jósefssonar og Sigríðar Gestsdóttur.
Guðmundur Guðnason 2 354
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: <em>"Frá Vallabökkum í Skagafirði".</em> Konan á myndinni mun vera Elín Jóhannesdóttir (d. 1981) frá Merkigili síðar húsfreyja á Völlum í Hólmi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson339
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Páll Jónsson frá Brandaskarð og Þórarinn Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason 2 412
Bræðurnir Pálmi Guðnason (d.23.3.1994) til vinstri og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til hægri.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn083
<p>Nokkrir félagar úr Leikklúbbi Skagastrandar taka lagið á sviðinu í Fellsborg. Myndin var líklega tekin á æfingu fyrir einhverja kvöldvöku hjá Leikkklúbbnum. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Erna Hreinsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Díana Kristjánsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Þorvaldur Skaftason og Guðbjörg Viggósdóttir.</p>
Guðmundur Guðnason 2 373
Á þessari myn er karlakór að syngja í Höfðaskóla en þar voru tvær samliggjandi stofur, sem hægt var að opna á milli, oft notaðar fyrir ýmis konar uppákomur. Kórinn á myndinni er líklega karlakórinn Heimir úr Skagafirði en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn342
Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra í heimsókn á Skagaströnd ásamt embættismönnum 26.september 1991. Hægra megin við borðið sitja ráðamenn Höfðahrepps á þeim tíma. Innst er Steinunn Steinþórsdóttir, Sveinn S. Ingólfsson, Magnús B. Jónsson, Þorvaldur Skaftason og næst okkur er Adolf J. Berndsen.
Minjasafn 171
Gripur nr. 171. Kola í stíl við grip 170 sem er kertastjaki. Kolan stendur á stétt og er úr gukllituðum málmi (látúni?). Er með loki yfir eldsneytisbollanum. Gefandi: Borghildur Jónasdóttir Álftamýri 40, Reykjavík í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn178
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru leikarar og starfsfólk sýningarinnar að hlusta á athugasemdir Þrastar leikstjóra eftir æfingu í Fellsborg. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir (nær), óþekktur, Sigrún Jónsdóttir, William Sillar, Ólafur Bernódusson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Þröstur Guðbjartsson (snýr baki í myndavélina), óþekktur, Þórhildur Jakobsdóttir, Steindór Haraldsson, Ingibergur Guðmundsson (fjær), óþekktur (nær), Bergþór Gunnarsson, Bóel Hallgrímsdóttir (krýpur), Guðmunda Ólafsdóttir, tvær óþekktar, Þorvaldur Skaftason, Herborg Þorláksdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Guðmundur Guðnason 2 421
Þessi mynd var tekin af kántrýmessu á fyrstu kántrýhátíðinni 1984. Á henni er Hallbjörn Hjartarson, meðhjálpari og sá sem stóð fyrir hátíðinni, að skrýða prestinn, séra Odd Einarsson. Kirkjukórinn bíður tilbúinn að syngja undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar (d. 2.8.2003) sem situr við hljóðfærið. Í kórnum eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) og Gylfi Sigurðsson.
Minjasafn 73
Gripur nr. 73. Brúnn rammi með mynd af Húna Hu 1.
Myndasafn 366
Gripur nr. 366. Kökudiskur. Hvítur, postulín, rimlaðir kantar, gylling meðfram brúnum. Blómaskreyting/blómakrans í ysta lagi botnsins. Mynd af Öxará í Almannagjá í botni. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 31
Gripur nr. 31. Tóbaksdós. Gefandi: Skafti Fanndal Jónasson.
Skagaströnd - safn334
Friðrik Björnsson (d.3.1.2007) frá Gili til vinstri og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu til hægri.
Jón Jónsson332
Gangarnir um borð í Örvari Hu 21 eru þröngir en vel lýstir. Á þessari mynd eru, í einum ganginum, talið frá vinstri: Sveinn Ingólfsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) í Sólheimum og Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) frá Garði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 430
Guðbrandur Magnússon, til vinstri á myndinni, átti og gerði út bátinn Magnús HU 11 á handfæri. Stundum aflaðist svo vel að hann þurfti að setja fisk í plastpoka fram í stýrishúsið hjá sér. Hér er hann að landa eftir einn slíkan aflatúr. Hinn maðurinn á myndinni er Ágúst Ómarsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn205
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Kristínu Jónsdóttur sem þátt tók í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Barnaból - safn156
Ragnar Stefán Rögnvaldsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Jón Jónsson333
Hrólfur Herbert Jakobsson (d. 27.12.1996) á gangi á Oddagötu á Skagaströnd.
Minjasafn 166
Gripur nr.166. Klemmur. Gamaldags klemma smíðuð af Birni Jóhannessyni Efra-Nesi á Skaga. Gefandi: Inga Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 208
Gripur nr. 208. Rjómakanna bleik á lit. Munstur í leirnum. Leirkanna 7 cm á hæð. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1982.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn068
Fjóla Jónsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar
Leikklúbbur Skagastrandar - safn132
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Fannar Viggósson sem komið hefur að mörgum sýningum klúbbsins, einkum sem tónlistarmaður.
Minjasafn 213
Gripur nr 213. Borðlampi með styttumynd af karlmanni í rauðum buxum og grænum jakka og með svarta spanjólu. Hæð 32 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1988.
Árni Geir Ingvarsson - safn 432
Nýsmíði sjósett frá Mánavör hf. Liklega er hér um að ræða Mímir RE 3 sem smíðaður var fyrir ríkissjóð 1985 sem rannsóknar- og skólaskip. Mími hvolfdi í Hornarfjarðarósi í október 1991 og með honum fórust tveir menn en fimm fimmtán ára skólapiltum tókst að bjarga sér í land á sundi.
umf Fram 347
Myndin var tekin haustið 1993 af þátttakendum í ungbarnaleikfimi á vegum umf. Fram í Fellsborg undir stjórn Carls Lehman Jakobsen íþróttakennara, sem er fremst á myndinni vinstra megin. Uppi á sviðinu er fullorðna fólkið, talið frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, óþekkt kona, Kristín Jónsdóttir með son sinn Alexander Ragnarsson á handlegg og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir. Á gólfinu hægra megin við dýnuna stendur Björn Ingi Óskarsson. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn194
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Fritz Hendrik Berndsen sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Skagaströnd - safn353
Myndin var tekin í júlí 1992 af framkvæmdum við stækkun leikskólans Barnabóls. Eldri byggingin er til hægri en hún var byggð á vegum Lionklúbbs Skagastrandar og síðan afhent sveitarfélaginu til eignar og rekstar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 461
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin suður í Mýri þegar verið var að moka ofan af þökum húsa þar.
Minjasafn 446
Gripur nr. 446. Gamall spegill. Fúinn. Engin rammi en það er járnskraut á hornunum.
Skagaströnd - safn382
Myndin var tekin á tröppum Hólaneskirkju eldri þegar biskupinn kom í heimsókn í sóknina einhverntíma rétt fyrir 1970. Á myndinni er biskup með sóknarnefndarmönnum, presti og organista. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri og formaður sóknarnefndar, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri og meðhjálpari, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) póstur, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Grétar Smári Hallbjörnsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) smiður, herra Sigurbjörn Einarsson biskup (d. 28.8.2008), Hallbjörn Hjartarson verslunarmaður og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) organisti kirkjunnar.
Minjasafn 59 no2
Gripur nr. 59. Hvítt umslag með mörgum myndum í. Sex ljósmyndir frá Skagaströnd líklega teknar 1945 - 1946. Gefandi: Gunnar Albertsson.
Guðmundur Guðnason 2 492
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) með Brynjari Einarssyni vini sínum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en staðurinn er Hvammur í Hjaltadal þar sem Einar faðir Brynjars bjó á þessum tíma.
Minjasafn 116
Gripur nr. 116. Netanál (skytta). Lengd 14,5 cm, trélituð. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Guðmundur Guðnason 2 480
Fermingarbörn í Hólaneskirkju (eldri) vorið 1978 ásamt sér Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996). Í fremstu röð frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson, Bergþór Gunnarsson, séra Pétur, Karl Berndsen og Axel Gígjar Ásgeirsson. Miðröð frá vinstri: Vilborg Másdóttir, Hjalti Hólmar Indriðason, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Jónsdóttir, Einar Karlsson, Soffía Guðmundsdóttir, Sveinn Kristjánsson og Sigurður Georgsson. Aftasta röð frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) og Vilhelm Jónsson.
Skagaströnd - safn346
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á þessari mynd má sjá, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Adolf J. Berndsen, Þorvaldur Skaftason, Rolf Árnason (d. 3.6.2014), Vilhelm Jónsson, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Magnús B. Jónsson og starfsmaður Siglingamálastofnunar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 476
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Herbert byrjaði snemma að taka ljósmyndir og eftir hann liggur stórt safn mynda. Sumar þeirra eru til sýnis á safni - Kört - í gömlu heimasveit hans í Árneshreppi á Ströndum.
Minjasafn 318 no2
Gripur nr. 318. Trékistill, geirnegldur, viðarlitaður. Lengd 35 cm, breidd 18,5 cm og hæð 23 cm. Kistillinn er falsaður saman á hornunum með tveimur járnlömum aftan á. Á lokinu eru tveir stórir naglhausar sem ganga niður í lamirnar. Á öðrum enda loksins en geirneglt, listi undir. Flísað er smá stykki af á annarri hliðinni á lokinu (inn að miðju loki). Skráargatið að framan er hjartalagað. Kistill þessi er frá Lækjarbakka. Smá hólf er inni í kistlinum á annarri hliðinni efst upp við brún. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn229
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sigrúnu Jónsdóttur sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Skagaströnd - safn360
Jólasveinninn heimsækir 2. eða 3. bekk í Höfðaskóla á litlu jólum 1991. Kennarinn í rauða kjólnum er Jóney Gylfadóttir en sú til hliðar með barn á handlegg er óþekkt. Við borðið sitja frá vinstri: Guðrún Rúnarsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, María Markovic, Magnús Filip Sævarsson, Loftur Árni Björgvinsson og þrír óþekktir.
Magnús B Jónsson095
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúfubak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðan á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur - tarfur - um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni er Hafró fólkið, íklætt hlífðarbuxum, að undirbúa sýnatöku. Guðmundur J. Björnsson stendur við sporðinn í blárri peysu, aðrir eru óþekktir. Til gamans má geta þess að reður hvalsins var sendur til Reðursafns Íslands að ósk eiganda safnsins en hann ætlaði að hafa reðurinn þar til sýnis með öðrum slíkum líffærum af hinum ýmsu spendýrum. Myndina tók Magnús B. Jónsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn232
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Steindór Haraldsson sem tók þátt í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hann formaður Leikklúbbsins 1992 - 1995.
Minjasafn 9
Gripur nr. 9. Hvítt silkislifsi með kögri. Balderuð rós i báðum endum, með gylltum vír. Lengd 130 cm en breidd 23 cm. Þetta er brúðarslifsi Vilborgar Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal , en hún gifti sig árið 1920. Slifgsið var balderað og saumað af Jakobínu Guðmundsdóttur systur Vilborgar. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn049
Árið 1983 stóð Leikklúbbur Skagastrandar fyrir "Jónasarvöku" í Fellsborg . Þar voru flutt brot úr verkum Jónasar Árnasonar í söng, tali og leik. Jónas sjálfur var heiðursgestur samkomunnar og tók þátt í fjöldasöng og fór með gamanmál. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Díana Kristjánsdóttir, Erna Hreinsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Helga Hermannsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Þorvaldur Skaftason, Kolbrún Viggósdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn065
Ása Jóhannsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar
Minjasafn 224 og 225
Gripur nr 224 og 225. Þjóðbúningabrúða í íslenskum búningi 19. aldar upphlut með gult fléttað hár og er í hvítu pilsi. Hæð 19 cm. Hin brúðan er í íslenskum 18. aldar búningi. Húna er í rauðum kjól með leggingum neðst. Hæð 19 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir Réttarholti, Skagaströnd í júní 1990.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn196
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ingimar Oddsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma
Minjasafn107
Gripur nr. 107. Koyo útvarp, fyrir rafmagn. Lengd 29,5 cm, hæð 19 cm. Svart á litinn. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 382
Gripur nr. 382. Kassi nr 17 hefur eingöngu að geyma kort og umslög og jólakort með umslögum. Virðast nýleg og hafa e.t.v. verið ætluð til skrauts á minjasafninu þegar því verður komið fyrir í eigin húsnæði.
Minjasafn 117
Gripur nr. 117. Kartöflustappari með tréhaldi, sem er málað grænt. Annað er úr járni. Hæð 24 cm, breidd 11 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 412
Smiðir dytta að þakinu á Steinholti eftir norðan áhlaup með miklum snjó. Höfðaberg, sem sést í baksýn, er löngu horfið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn001
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur verið einhverntíma kringum 1940. Á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Albertsson, ?Ármann Eydal Albertsson?, og Jón S. Pálsson.
Guðmundur Guðnason 2 387
Sylvía Hrólfsdóttir, sennilega á fermingardaginn sinn.
1
…
95
96
97
…
167
Leita í myndasafninu
Leita