Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 481
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1950. Á myndinni eru frá vinstri: Ólöf Smith (Lólý), Halla Björg Bernódusdóttir, óþekktur, óþekkt og Þórunn Bernódusdóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 382
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) í Straumnesi gerði út á grásleppu í mörg ár á bát sínum Blíðfara Hu 27, einkum á miðunum sunnan við Skagaströnd. Hann var áður m.a. verkstjóri á síldarplönum bæði á Skagaströnd og annarstaðar, hafnarvörður Skagastrandarhafnar í mörg ár og formaður slysavarnadeildarinnar í nokkur ár. Birgir var hæfileikamaður á mörgum sviðum en skapríkur og rakst ekki allaf vel í hópi en var tryggur vinur vina sinna og höfðingi heim að sækja. Hann eignaðist þrjú börn Búa Þór (d. 18.9.2009), Árna Björn og Eyrúnu með konu sinnI Ingu Þorvaldsdóttur (d. 14.12.2012) en þau bjuggu í áratugi í Straumnesi á Skagaströnd. Áður en Birgir eignaðist Blíðfara höfðu nokkrir Skagstrendingar átt bátinn. Lengst átti Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) í Þórsmörk hann og gerði út og fiskaði vel. Einnig átti Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Blíðfara um tíma.
umf Fram 309
Myndin var tekin á héraðsmóti í körfubolta á Húnavöllum í ársbyrjun 1983. Á þessari mynd keppa félagar úr Hvöt á Blönduósi og Fram á Skagaströnd. Hvatarmenn eru númer 5, 8 og 6 og eru óþekktir en félagarnir úr Fram eru Kristinn Guðmundsson til vinstri og Fannar Viggósson til hægri. Ef þú þekkir leikmenn Hvatar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Skagaströnd - safn355
Á þessari mynd er verið að selja postulínsdiska til styrktar kirkjubyggingar á Skagaströnd. Á diskunum er mynd og áletrun. Eins og oft vill verða þá eru þessir diskar að öðlast meira og meira söfnunargildi eftir því sem lengra líður frá framleiðslu þeirra. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Jón Ingi Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 462
Arnar Hu 1. Eitt af mörgum skipum sem borið hafa þetta nafn og númer í eigu Skagstrendings hf.
Minjasafn 191
Gripur nr. 191. Púðurdós. Á miðju loki er rós ígreipt í glerung, svört umgjörð utan um. Dósin er 8 cm breið. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn3
Gripur nr. 3. Skyrsía úr tré. Stærð 23x23 cm að ofan, botn 18x 18 cm, dýpt 6 cm. Sex rimlar í botni. Notuð var strigasía, sem var lögð í botninn. Skyrsían er úr búi Guðna Sveinssonar (d. 15.11.1971) og Klemensínu Klemensdóttur (d. 12.6.1966). Gefandi: Guðmundur Guðnason Frá Ægissíðu á Skagaströnd í nóvember 1975.
Árni Geir Ingvarsson - safn 376
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Kristín Jónsdóttir, Jóney Gylfadóttir og Ólafur Bernódusson.
Minjasafn 55
Gripur nr. 55. Mynd af Skafta Fanndal Jónassyni (d. 2.9.2006) og Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d. 13.7.2003) í átthyrndum ramma. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Minjasafn 412
Gripur nr. 412. Loftljósakúpull, ferningslagaður, kúptur, úr brúnleitu gleri með munstri. Perustæðið (ljósastæðið) fylgir með.
Minjasafn 206
Gripur nr 206. Litlir sauðskinnsskór með hvítum leðurbryddingum. Bláir og hvítir illeppar. Unnir af Sigríði Hjálmarsdóttur á Sauðárkróki. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 113
Gripur nr. 113. Brauðrist, lítil fyrir rafmagn. Hæð 15 cm og breidd 17 cm. Litlir svartir og hvítir hnúðar á endunum. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Guðmundur Guðnason 2 497
Þessi mynd var líklega tekin í hófi í Fellsborg, sem haldið var til að kveðja séra Odd Einarsson, þegar hann hætti prestskap á Skagaströnd 1. september 1986, Á myndinni er Elín Njálsdóttir þáverandi formaður sóknarnefndar, séra Oddur Einarsson og kona hans Una Dagbjört Kristjánsdóttir. Barnið er óþekkt.
Minjasafn 104
Gripur nr. 104. Trésleif, stór úr ljósum viði, lengd 41 cm, breiðust 10 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn046
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þær Bjarnhildur Sigurðardóttir til vinstri og Guðný Sigurðardóttir til hægri.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn019
Þessi mynd var tekin á leikskólanum Barnaból, líklega einhverntíma 1982 - 1984. Á myndinni eru frá vinstri: Þorlákur Ómar Guðjónsson (nær), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (fjær) og Guðný Kristín Finnsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn100
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallbjörn J. Hjartarson sem lék í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess leikstýrði hann og sá um tónlist í uppsetningum á vegum klúbbsins.
Minjasafn 37
Gripur nr. 37. Mynd af vermönnum. Vermenn af Skagaströnd og Nesjum sem fóru suður á vertíð 1903 - 1905.
Barnaból - safn304
Kristján Freyr Sigurbjörnsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Minjasafn 167
Gripur nr. 167. Seðlaveski, saumað af eiganda, Jóni Árnasyni Ólafsvöllum árið 1936. Veskið er úr sútuðu folaldaskinni og notaði hann veskið í 40 ár. Gefandi: Inga Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd 1982.
Árni Geir Ingvarsson - safn 437
Ólafur Guðmundsson - Óli skip - býr sig undir að saga sundur bát, sem á að eyða, með keðjusög. Kári Lárusson fylgist með.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn115
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bjarna Ottósson sem var starfsmaður við sýningu klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn198
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jónas Þorvaldsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins, þá barn, á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn106
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 272
Gripur nr. 272. Rjómakanna úr glæru gleri. Grópuð blóm í glerið framan á. Hæð 9 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk Skagaströnd.
Minjasafn 50
Gripur nr. 50. Mynd af Elísabetu Berndsen Lækjabergi Hafnarfirði í ramma. Gefandi: Haraldur Árnason í janúar 1995.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn155
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir, Jón Indriðason, Hallgrímur Oddsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Jane Sillar.
Guðmundur Guðnason 2 454
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal sem var heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) en fjölskylda hans bjó í dalnum á nokkrum bæum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Á myndinni er Guðmundur að teyma heim hesta með heybagga á klökkum. Á þennan hátt var heyið flutt heim að fjárhúsum af engjum sem gátu verið langt frá bænum. Oft voru þá krakkar og liðléttingar notaðir til að teyma hestana á milli.
Minjasafn 409
Gripur nr. 409. Glerfleygur með korktappa.
Minjasafn 16
Gripur nr. 16. Rakhnífur. Blaðlengd 8 cm. Heiti hnífs er GONG RAZOR Extra Hallow Ground, framleiddur í Þýskalandi 1918 af Geng Cullery Co. Hnífurinn er svartur og svart hulstur fylgir með. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti Skagaströnd 8. febrúar 1973.
Árni Geir Ingvarsson - safn 464
Tveir af frystitogurum Skagstrendings hf. Arnar Hu 1 er nær bryggjunni en Örvar HU 21 er utan á honum.
Minjasafn 35 no2
Gripur nr. 35. Gylltur rammi skreyttur með útskornu mynstri. Ca. 40 x 50 cm.
Minjasafn 400
Gripur nr. 400. Stór öngull, einfaldur, örlítið beyglaður. Líklega hákarlakrókur.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn214
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðný Sigurðardóttur sem þátt tók í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins 1995 - 1996 ásamt Birnu Blöndal.
Minjasafn 61
<p>Gripur nr. 61. Plastumslag með útprentuðum myndum báðum megin. Öðru megin eru myndir af húsum sem búið er að rífa. Hinum megin eru myndir af fólkinu sem bjó í húsunum.</p>
Magnús B Jónsson092
Rúnar Jósefsson í hestaferð 1998. Ekki er vitað hvar myndin var tekin. Takið eftir óþekkta manninum sem er að fá sér að drekka í baksýn.
Minjasafn 128
Gripur nr. 128. Útsaumaður kragi með enskum og frönskum saum. Saumaður af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir, dóttir Vilborgar, Réttarholti Skagaströnd í febrúar 1977.
Árni Geir Ingvarsson - safn 471
Þessi mynd af Skagaströnd hefur sennilega verið tekin kringum 1990 - 1995
Minjasafn 289
Gripur nr. 289. Olíulampastatif fyrir hengilampa. Grænn járnskermur er á statífinuog lítil hlíf ofaná en hringstykki (statif) er neðst fyrir lampann. Úr búi Stefáns Ágústssonar Ytri-Ey. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey Vindhælishreppi (Skagabyggð) í september 1994.
Guðmundur Guðnason 2 416
Á þessari mynd situr Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á milli vina sinna hjónanna Þórðar Jónssonar (d. 25.12.2009) og Guðríðar Bergsdóttur (d. 10.6.1996). Þórður og Guðmundur áttu m.a. ljósmyndun sem sameiginlegt áhugamál.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn074
Baldur Magnússon til vinstri og Atli Þórsson til hægri á æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar líklega á verkinu Kardimommubærinn.
Minjasafn 544
<p>Gripur nr. 544. Kydill sem hægt er að stinga í jörðina. </p>
Minjasafn 604
Gripur nr. 604. Koffort/taska úr tré. Brúnmálað. Tvær læsingar sitt hvoru megin við haldið.
Minjasafn 135
Gripur nr. 135. Halasnælda lítil 27 cm löng. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn135
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Á myndinni er Magnús í sminkun fyrir hlutverk sitt í "Er þetta ekki mitt líf" sem sýnt var leikárið 1982 - 1983.
Guðmundur Guðnason 2 493
Hér er verið að gera við heyvagn á Hvammi í Hjaltadal. Maðurinn í miðjunni er Sigurður Jónsson frá Fjallsminni og sá í rauðu peysunni er Einar ? sem eitt sinn átti heima í Sólvangi á Skagaströnd. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Minjasafn 203
Gripur nr. 203. Skrautskál, köntuð græn á lit, með munstri. Mjóst neðst en víkkar upp. Munstrað glerið. Lengd 14,5 cm og breidd 8 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1986.
Skagaströnd - safn391
Skrúðganga frá höfninni til kirkju er föst venja á sjómannadegi á Skagaströnd. Þessum sið hefur verið haldið í áratugi og er messan sem á eftir fer alltaf mjög fjölsótt. Þessi mynd sýnir eina slíka skrúðgöngu en ártalið er óþekkt. Fánaberinn fremst á myndinni er Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) (Bjarni á Stíganda). Aðrir eru óþekktir.
umf Fram 328
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin yfir Blönduós en líklega hefur það verið kringum 1975. </p>
Minjasafn 205
Gripur nr. 205. Veggplattar. A er hringlaga merktur ÍSLAND - ICELAND, ÞINGVELLIR og á honum er mynd frá Þingvöllum með hestum á beit í forgrunni. Breidd 15 cm. B er hringlaga merktur ÍSLAND - ICELAND, SKÓGARFOSS með mynd af Skógarfossi. Breidd 15 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd.
Minjasafn 306
Gripur nr. 306. Mjólkurflaska úr glæru gleri. Á henni stendur: <strong>Mjólkursamsalan 1/2 l</strong>. Í þessum flöskum var mjólkin keypt. En flöskurnar voru í notkun í kringum 1965 - 1975. Hæð 24 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir Bogabraut 24, Skagaströnd 5. nóvember 1994.
Minjasafn 96
Gripur nr. 96. Átta myndir af fólki í brúnum ramma. Myndirnar tók Guðrún Guðmundsdóttir af eldri borgurum á Skagaströnd á árunum 1984 - 1990.
Minjasafn 485
Gripur nr. 485. Þrjú stykki undirskálar. Hvítar, skreyttar með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 486.
Minjasafn 165
Gripur nr. 165. Pennabox gyllt á lit, merkt Birmingham.Var notað undir penna fyrir pennastangir. Boxið er eins og bók í laginu og opnað að ofan. No: 1346 á botninum. Penni límdur á kjölinn. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Guðmundur Guðnason 2 386
Undirfell í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 384
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Hafrúnu Hu 12 en á henni er hún á leið úr höfn í Keflavík eftir að hafa farið þar inn í skjól undan vondu veðri. Myndin var þó tekin fyrir febrúar 1995 því þá sökk Hafrún í höfninni á Skagaströnd og var svo endurbyggð og breytt í það horf sem hún er í dag.
Minjasafn 11 no2
Gripur nr. 11. Hekluð treyja, ermalaus svört og rauð. Tvíhneppt með silfruðum hnöppum. Hún er síðan um 1880. Eigandi var Ingibjörg Stefánsdóttir frá Engihlíð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Árni Geir Ingvarsson - safn 378
Myndin var tekin á æfingu í Fellsborg fyrir þorrablót einhverntíma á árunum kringum 1990. Frá vinstri: Vigdís Viggósdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir o g Guðbjörg Viggósdóttir.
Minjasafn 282 no2
Gripur nr. 282. Silverbakki (Plett) ferkantaður með ígreiptu munstri á botninum. 35 cm langur og 27 cm breiður. Munstur á börmum bakkans. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 433
Gripur nr. 433. Langt járnblað í laginu eins og sveðja. Blaðið er með nokkrum götum efst við bakkann. Er hluti af gömlum ljá sem var hnoðaður fastur við bakka ljásins. Gamall og mjög ryðgaður.
1
…
96
97
98
…
167
Leita í myndasafninu
Leita