Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Ljósmyndarar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 32
Gripur nr. 32. Rakhnífur. Rakhnífur í svartri öskju. Hnífurinn sjálfur er líka svartur King Cutter.
Minjasafn 42
Gripur nr. 42. Lítil mynd af Sigríði Guðlaugsdóttur (d. 25.3.1996) frá Bjarmalandi á Skagaströnd.
Minjasafn 570
Gripur nr. 570. Útvarp. Blátt og hvítt með haldi á toppi. Merkt: "Vilhelmína Andrésdóttir".
Minjasafn 199
Gripur nr. 199. Staup 3 stk. með gullrönd og mynd af einhverskonar dýri.
Guðmundur Guðnason 2 385
Þessi unga manneskja er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 278 no2
Gripur nr. 278. Orgelstóll á þrífæti en langfóturinn er sexstrendur viðarfótur. Járngjörð er við enda fótarins neðst þar sem tengir saman þrífótinn. Setan er útsaumuð með krosssaum, litir: drapp, grænn, blár og rauður.
Minjasafn 48
Gripur nr. 48. Ljósmynd af Valný Benediktsdóttur frá Brandaskarði í ramma. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson.
Minjasafn 503
Gripur nr. 503. Hlekkir úr leðri og skinni með járnkeðju.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn235
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ara Þórsson sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 456 no2
Gripur nr. 456. Par af dömu-hælaskóm. Dökkbrúnt leður, reimaðir með brúnum reimum.
Skagaströnd - safn332
Þetta fólk skipaði stjórn Héraðshælis Austur Húnvetninga (HAH) árið 1991. Aftari röð frá vinstri:Magnús B. Jónsson, Gunnar Richardsson, Páll Elíasson, Ingvi Þór Guðjónsson og Björn Magnússon. Fremri röð frá vinstri: Sigursteinn Guðmundsson, Sveinfríður Sigurpálsdóttir og Ómar Ragnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 489
Hólaneskirkjur eldri og yngri. Eldri kirkjan, sem var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni húsmeistara ríkisins og byggð 1928, var rifin í febrúar 1992 eftir að sú nýja hafði verið tekin í gagnið.
Minjasafn 214
Gripur nr. 214. Ljósmynd af bátnum Gamla Kóp, sem Skafti Fanndal Jónasson í Lundi Skagaströnd átti. Myndin er í ljósum viðarramma en á hann eru límdir kuðungar og skeljar í kringum myndina. Rammann gerði Sigríður Hjálmarsdóttir Sauðárkróki. Stærð 18 x 18 cm. Gefandi: Jóna Guðrúna Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Guðmundur Guðnason 2 396
Þóra Kristín Sveinsdóttir - Gagga (d.27.5.1996). Þóra var dóttir Sveins Hannessonar, Elivoga Sveins - eins og hann var gjarnan kallaður, en Þóra bjó í Bandaríkjunum á fullorðinsárum og lést þar.
Minjasafn 612 no2
Gripur nr. 612. Búðarkassi, svartur en skúffan er úr stáli og er krómuð. Handsveif á hliðinni. Takkarnir eru hvítir. Kassinn er ca 40 cm á hæð.
Minjasafn 62
Gripur nr. 62. Brúnn rammi með fimm myndum. Á myndinni eru: Jakobína, Snorri Gíslason, Albert Haraldsson, Jóhanna Thorarensen, Gísli Einarsson, Marta Guðmundsdóttir (óskírt - móðir Jóhanns Péturssonar frá Lækjarbakka).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn227
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Herborgu Þorláksdóttur sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Skagaströnd - safn331
Kjartan Stefánsson Keen (d.22.12.2006) við Spákonufellsrétt 1991. Kjartan bjó lengi í Bjarmalandi og stundaði listmálun.
Minjasafn 322
Gripur nr. 322. Garðhrífa og skófla. Járnstöng með skóflu á öðrum enda og klóru á hinum endanum. Lengd 46 cm. Eigandi var Sigríður Ásgeirsdóttir Lækjarbakka f. 1914 -d. 2006. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn125
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Ágústa Friðriksdóttir og Hallbjörn Hjartarson.
Minjasafn 181
Gripur nr. 181. Veggteppi, ofið með glitvefnaði, er dökk brúnt á litinn. Hæð 107 cm og lengd 192 cm. Ofið af gefanda á Kvennaskólanum á Blönduósi. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 358
Gripur nr. 358. Kassi með þurrum sjávarlífverum. Kuðungar, gaddakrabba, krossfiskur og fleira. Einnig bláir plattar með skrauti úr hafinu. Gefandi: Rósa Björg Högnadóttir Miðnesi, Skagaströnd.
Minjasafn 389
gripur nr. 389. Kleinujárn, mjög gamalt. Grænn litur á hjólinu ( spanskgræna?).
Minjasafn 15
Gripur nr. 15. Mortel, skálarlagað, með könnustút og fylgir því stautur með hnúð á enda. Þvermál skálar er 8x8 cm og dýpt er 5 cm en lengd stauts er 9 cm. Mortelið er úr leir með hvítri glerhúð. Þetta mortel var notað til að mylja meðöl í handa skepnum. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti 8. febrúar 1973.
Minjasafn 179
Gripur nr. 179. Illeppar sauðsvartir með mislitum röndum. Heklað grænblátt utan um, prjónaðir af gefanda. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 408
Gripur nr. 408. Sex stykki smádiskar mismunandi í útliti.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn187
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jón Indriðason sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 134
Gripur nr. 134. Tréhöldur, níu stórar og tvær litlar, allar þræddar upp á snæri. Brennimerktar: Óskar, Jón og fl. Notaðar til að binda upp reiðing. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 89
Gripur nr. 89. Málverk í silfurramma af akkeri á ströndu.
Minjasafn711
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Maðurinn með hvítu húfuna til vinstri er Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Bautarholti, Frakkaklæddi maðurinn hægra megin við Ólaf er Hörður Ragnarsson en konan í dökku dragtinni og hvítu bandaskónum er líklega Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka. Til hægri spjalla saman þeir Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi til vinstri og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) Höfðaborg (Bankastræti 9) til hægri með hvíta húfu. Aðrir eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Guðmundur Guðnason 2 489
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á ferðalagi á hálendinu. Skálinn í baksýn er sennilega Hvítárskáli Ferðafélags Íslands við Hvítárvatn. Þar er sagt að sé draugagangur.
Guðmundur Guðnason 2 484
Eldri borgara í heimsókn í Þingeyrarkirkju ásamt nokkrum kvenfélagskonum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Þórunn Þorláksdóttir, Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988),Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Guðmundur Guðnason 2 473
Fólkið á myndinni er óþekkt og líka hvaða rétt þetta er. Ef þú þekkir einhvern eða veist hvaða rétt þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 277
Gripur nr. 277. Snældustóll, viðarlitaður 29 cm langur, breidd 13,5 cm og 28 cm hár. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd. Björn var fæddur í maí 1897.
Árni Geir Ingvarsson - safn 363
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Hér er Ólafur Bernódusson allur á lofti í hlutverki sínu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn207
<p>Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Julian Hewlett sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins sem tónlistarmaður á sínum tíma. </p>
Minjasafn 431
Gripur nr. 431. Lítill skrautplatti. Sporöskulagaður, blár með gulum krossi og gulum rósum. Gefandi Hrafna Jóhannesdóttir Hólabraut 25, Skagaströnd.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn006
Líklega hefur þessi mynd verið tekin um 1975 en tilefnið er óþekkt. Í aftari röð eru frá vinstri: Ingólfur Sveinsson, Vilhelm Harðarson, Georg Ottó Georgsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Páll Jónsson (d.13.5.2021)og Hjörtur Guðmundsson. Sitjandi frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, Vilhelm Jónsson og Sigurður Guðmundsson.
Minjasafn 404
Gripur nr 404. Kastarola (lítill skaftpottur). Eitt langt hald/skaft. Ekkert lok, stútur á einni hlið. "Smörlíkispottur".
Steinþór Karlsson 003
Skemmtisigling á sjómannadegi. Hefð er fyrir því að útgerðarmenn bjóði fólki í skemmtisiglingu á sjómannadegi. Þessar siglingar eru mjög vinsælar og fjölsóttar eins og þessi mynd ber með sér.
Árni Geir Ingvarsson - safn 428
Lýður Hallbertsson um borð í bát sínum Dagrúnu HU 121.
Skagaströnd - safn358
Þessi mynd var tekin af starfsstúlkum í Landsbankaútibúinu á Skagaströnd 8. apríl á óþekktu ári. Konurnar eru Elín Njálsdóttir til vinstri og Birna Sveinsdóttir til hægri.
Sigurður Jónsson - safn 002
Halda mætti að Jens Jónsson frá Brandaskarði, sem krýpur við dráttarvélina, sé að tilbiðja hana. Svo er þó ekki heldur er hann að gera við vélina með hjálp Sigurðar Jónssonar, sem tók þessa mynd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 397
Ingimundur Gamli Hu 65 var gerður út frá Hvammstanga á úthafsrækjuveiðar. Ingimundur sökk út af Húnaflóa í október árið 2000 og þá voru þrír menn í áhöfn. Einn þeirra, skipstjórinn, fórst með bátnum en hinir tveir komust í björgunarbát og var bjargað þaðan skömmu eftir að báturinn sökk. Hinn báturinn á myndinni er dráttarbáturinn Goðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 228
Gripur nr. 228. Matardiskur, hvítur með bláum blómum, ummál 22,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn028
Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á Skagaströnd frá árinu 1939. Fastur liður í hátíðahöldunum er kappróður þar sem sjómenn og aðrir reyna með sér. Fyrst voru notaðar skektur sem menn áttu til fiskveiða við kappróðurinn en árið 1948 voru í fyrsta sinn notaðir sérsmíðaðir kappróðrarbátar - Gustur og Gola - sem voru smíðaðir á Akureyri í bátastöð Kristjáns Nóa Kristjánssonar. Á hverju ári síðan hefur verið keppt á Gusti og Golu. Bátarnir eru nú í umsjón og geymslu slysavarnadeildarinnar Strönd á Skagaströnd. (Heimild: "Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár" eftir Lárus Ægi Guðmundsson, útg. 2009)<br>Á þessari mynd frá sjómannadegi 1966 er sigursveit í kappróðri karla að taka við verðlaunapeningum sínum á planinu við Hafnarhúsið. Frá vinstri: Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), sem er að hengja pening á sjálfan sig því hann var kynnir dagsins auk þess að vera stýrimaður þessarar sigursveitar, Eiður Hilmarsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Viggó Brynjólfsson og Gunnar Sveinsson. Börnin eru óþekkt. Myndin er úr safni Jóns Pálssonar og Bjarkar Axelsdóttur.
Minjasafn 256
Gripur nr. 256. Lampi fyrir rafmagn. Hann er úr plast sívalningi, hvítur með svörtum skáröndum. Svört 6 cm stétt undir. Gylltur barmur. Gefandi: Borghildur Jónsdóttir Reykjavík í júlí 1994.
Minjasafn 164
Gripur nr. 164. Upptakari, fiskur 13 cm langur. Hnífurinn er neðri vörin á fiskinum. Er járnlitaður og grænn. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982
Leikklúbbur Skagastrandar - safn093
Gunnþór Óskar Sæþórsson liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar.
Minjasafn 174
Gripur nr. 174. Mjólkurkanna 15 cm á hæð og 32 cm að ummáli. Kannan hefur verið hvít með myndum á t.d. hús, hallir, tré, vatn og maður á hesti. Kannan er úr búi Ingibjargar Jónsdóttur og Finns Guðmundssonar sem lengi bjuggu í Skrapatungu. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd, dóttir þeirra hjóna, í ágúst 1994.
Minjasafn 188 no2
Gripur nr. 188. Mokkabollapör með grænsanseruðum bekk, gulllituð blöð og rósir í bekknum. Rósir innan í bollanum. (Ath. aðeins 1 bolli og ein undirskál) Gefandi: Salóme Jóna Þórarinsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn113
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Kolbrúnu Viggósdóttur sem var starfsmaður við leiksýningu á vegum klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 574 no3
Gripur nr. 574. Segulbandstæki í brúnni leðurtösku með rennilás, sem passar akkúrat um tækið. Gamalt "spólutæki".
Leikklúbbur Skagastrandar - safn151
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru þær Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Hallveig Ingimarsdóttir til hægri í hlutvekum sínum.
Minjasafn 195
Gripur nr. 195. Veggkertastjakar úr járni með krækjumunstri. Lilla- litaðurglerplatti, hringlaga, hangir í miðjum stjaka. Hæð 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn190
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sigurbjörgu Baldursdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 157
Gripur nr. 157. Lukt, hvít á litin 25 cm á hæð. Notuð áður fyrr við gegningar, handlukt. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.
Minjasafn 455
Gripur nr. 455. 14 stykki hljómplötur án hulstra. Ýmsar plötur, allar saman innvafðar í pappa.
Minjasafn 264
Gripur nr. 264. Diskar, grunnir, hvítir með blárri rönd. Þvermál 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 19
Gripur nr. 19. Peningabudda, brún úr leðri, með tveimur hólfum. Aftara hólfið leggst fram yfir fremra hólfið og lokar buddunni. Stærð 11 cm á lengd og 7,5 cm á breidd. Mjög gömul. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti Skagaströnd 8. febrúar 1973.
1
…
98
99
100
…
167
Leita í myndasafninu
Leita