Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Baldvin_ Gunnar_Albertsson

Á línuveiðum á Stíganda Hu 9. Myndin er tekin úr skutnum fram eftir bátnum. Fram við stýrishúsið er Ólafur Bertelsson en Leifur Ásmundsson frá Ásbúðum situr á bjóðunum aftan við húsið.

img006
Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (snýr baki í ljósmyndara), Guðmundur Jóhannesson og Birgir Árnason við vinnu sína í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar.
Gudun_HU2_SM
Þennan bát létu Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason smíða á Siglufirði árið 1961. Seldu þeir, eftir árið, bátinn til Hólmavíkur þar sem hann fékk nafnið Hrefna II St 123. Á myndinni liggur Guðrún HU-2 rígbundinn við litlu brygguna á Skagaströnd. Helgan hans Ensa fyrir aftan hana og Svanur HU-4 innst en hann var í eigu Baldurs og Júlíusar Árnasona.
01_Kaupfelagshusid
Kaupfélagshúsið við Einbúann: Byggt á árunum kringum 1930.
15_Skip_londunarkrani_fra_Holanesi
Flutningaskip athafnar sig í höfninni á Skagaströnd ca 1950
img011
Á slíkum vagni eða bílpalli var féð flutt á milli staða eftir að réttarstörfum lauk. Fólkið á myndinni er óþekkt.
img077
Gunnar Sveinsson skipstjóri og útgerðamaður fæddur 1939 um borð í Húna HU-1.
Ljosm_GunnarAlbertsson
Húni ll Hu 2 á siglingu.
Texti4_ljosm_GunnarAlbertsson

Óþekktir menn á línuveiðum á óþekktum bát.

250
Ker í smíðum í kerslippnum fyrir neðan Bjarmanes. Myndin sennilega tekin um 1950. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
HuniHU2_1963_SM
Húni ll HU 2 drekkhlaðinn af síld á miðunum árið 1966
21_Gudm_Rafnss_og_Knutur_Benrdsen
Guðmundur Rafnsson og Knútur Berndsen við járnavinnu við karaslippinn neðan við Bjarmanes
4_Ovedur_ca_80-90_AJ_Berndsen
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum. Brimið gengur yfir hafnargarðinn (Útgarð).
HuniHU1_5_SM
Um borð í Húna Hu 1 á netavertíð. Mennirnir á dekkinu eru frá vinstri: Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Gunnar Albertsson, Eðvarð Jóhannesson (fjær), óþekktur (nær) og Þorleifur Þórarinsson (d.?) frá Neðstabæ.

HuniHU2_2_SM
Húni ll Hu 2 við síldveiðar. Verið er að háfa síld úr nótinni.
HuniHU1_a_linu_a_Skagastrond_SM
Húni Hu1 kemur með góðan afla úr línuróðri.
44_Rosa_Jonsdottir_fra_Spakonufelli
Rósa Jónsdóttir frá Spákonufelli í heyskap.
47_Kaupfelagid_fra_Hofdanum_Postkort_E_Hemmert
Myndin er tekin ca 1930 af Höfðanum yfir Kaupfélagið og verslunarhúsin í útbænum eða á Skagaströnd eins og kallað var. Húsin á myndinni eru frá hægri: verslunarstjórahús, Kaupfélag Skagstrendinga (KAST), Assistentahús sem stendur þvert á háreist pakkhúsið sem er með viðbyggingu til norðurs. Ljósa húsið nær okkur er Garður. Vinstra megin við pakkhúsið er Sæmundsenbúð.
HuniHU1_Landad_med_gomlu_adferdinni_SM
Síld landað á skagaströnd úr Húna Hu 1. Hér hefur Húni fengið fullfermi og karlarnir eru að vinna við að landa. Löndun þótti þrældómur því allri síld þurfti að moka í málin með þar til gerðum háfum. Fjalir voru lagar yfir stíurnar til að merja ekki síldina meðan verið var að moka henni. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema dökkhærði maðurinn í bússunum er Björn Haraldsson og sá sem er lengst til hægri og snýr baki í ljósmyndarann er Gunnar Sveinsson. Aðrir eru óþekktir
HuniHU2_3_SM

Síld landað úr Húna ll Hu 2 einhversstaðar á austfjörðum.

Óþekkt045
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir við þökulangningu á Hnappstaðatúni fyrir forsetaheimsókn 1988.
Óþekkt040
Hallbjörn Hjartarson á hestbaki á Kántrýhátíð. Fremst á myndinni til hægri eru konur að sýna kántrýdans.
2_Ovedur_ca_80-90_AJ_Berndsen
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum. Vesturhliðin á verksmiðjunni.
Óþekkt098
Malarkjarna keyrt út í Miðgarð 1991
Óþekkt043
Þökulagning á Hnappstaðatúni 1988. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson, Rúnar Jóhannsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
Steina_netatrossu_i_Grindavik_SM
Unnið við að steina niður netatrossu um borð í Húna Hu 1 í höfn í Grindavík. Dökkhærði maðurinn aftast til vinstri er Snorri Gíslason og ungi maðurinn fremst á myndinni er Gylfi Sigurðsson. Bogni maðurinn í dökku peysunni er Indriði Hjaltason og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Sigmar Jóhannesson. Lengst til hægri er Hákon Magnússon.
HuniHU2_gott_kast_SM
Síld háfuð um borð í Húna ll Hu 2.
Óþekkt080
Gatnagerð neðst á Fellsbraut. Karl Guðmundsson stjórnar þjöppunni, Gunnar Helgason stjórnar krananum á bíl sínum H 34. Aðrir eru óþekktir.
Óþekkt103
Veisla á hótel Dagsbrún til að fagna verklokum við smíði Sægarðs 1991. fremst á myndinni er Elín Njálsdóttir. Maðurinn í bláu peysunni sem snýr andlitinu að ljósmyndaranum er Davíð Reynisson. Aðrir eru óþekktir.
Óþekkt041
Þökulagning á Hnappstaðatúni 1988. Í baksýn er húsið Ásbyrgi/Ásberg og til hægri er Breiðablik
Óþekkt051
Unnið við að koma fyrir fánum fyrir forsetaheimsókn 1988
Texti5_ljosm_GunnarAlbertsson
Um borð í Stíganda Hu 9. Bátinn átti Bjarni Helgason og sést hann kíkja út um glugga á stýrishúsinu. Maðurinn uppi á stýrishúsinu er óþekktur
14_Innbr_af_Hofda
Myndin er tekin 1945-1946. Búið er að byggja helming mjölskemmunnar en austari hluti hennar er í byggingu. Í vinstra horni myndarinnar sér í hornið á Skálholti. Nær okkur sést svo örlítið í þökin á Dvergasteini og Draumalandi. Niðri í hægra horninu eru svo Kárastaðir sem seinna var byggt ofan á. Húsin sem standa niður með Skagavegi eru svo: Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfði áður en byggt var við hann, Garður og braggarnir.
10_Holnes_til_Hofda
Á myndinni sést að tankar verksmiðjunnar eru í byggingu. Myndin er því tekin 1945 eða 1946. Sjá má tjöld verkamannanna á túninu neðan við Tjaldklaufina á Höfðanum. Á myndinni sést líka vel staðsetning "Hólsnefsbryggju" sem var fram af fiskvinnsluhúsi kaupfélagsins (seinna Hólaness hf).
img009
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti við réttastörf með skinnhúfu á höfði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
12_Skemman_Hofdinn
Verksmiðjan til vinstri og Hafnarhúsið til hægri. Myndin tekin 1945 - 1946.
18_Sildarverksm
Myndin tekin 1945 eða 1946. Greinilega byrjuð síldarbræðsla í verksmiðjunni þótt byggingarframkvæmdum sé ekki lokið.
16_Ker_i_byggingu
Ker í smíðum í kerjaslippnum neðan við Bjarmanes. Myndin sennilega tekin ca 1950.
Texti3_ljosm_GunnarAlbertsson
Húni Hu 1 kemur til hafnar á Skagaströnd fulllestaður af síld.
img023
Guðmundur Þór HU17 frá Skagaströnd smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, seinna Dagrún St
ÞorbjornJonsson_KariKristjansson_BirgirArnason_Adolf_J_Berndsen_Kristinn_Johannsson2
Á tunnunum sitja þeir Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Kári Kriststjánsson (d.11.12.1990), neðri röðin frá vinstri til hægri eru Birgir Árnason (d.2.2.2005), Adolf Berndsen (d.27.8.2018) og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002).
22_Oliugeymar_ bygging
Hér er verið að byggja lýsistankana stóru sem stóðu við Höfðann. Leiðslur lágu frá verksmiðjunni að tönkunum og líka frá þeim fram á Hafnargarðinn (Útgarð) til að skipa lýsinu út. Myndin er tekin 1945 eða 1946.
17_Kersmidi
Ker í smíðum í kerjaslippnum neðan við Bjarmanes. Myndin sennilega tekin ca 1950.
24_Hofdinn_ grjotnam
Grjótnám í Höfðanum vegna hafnargerðar. Myndin tekin 1934 - 1940.
20_Lilli_Bjornsson_og_Sverrir
Smiðir við kersmíði, Þórarinn Björnsson (Lilli Björns) til hægri og Sverrir Fossdal til vinstri
Huni_HU1_2_SM

Vitjað um net á Húna Hu 1. Maðurinn á rúllunni er Gunnlaugur Árnason.

GunnarAlbertsson_ljosm
Gunnar Albertsson við spilið
Texti1_ljosm_GunnarAlbertsson
Gunnar Albertsson með rígaþorsk um borð í Húna ll Hu 2 frá Höfðakaupstað (Skagatrönd)
Mynd_tekin_af_SM
Netin dregin með góðum afla á Húna Hu1
48_Barnaskolinn

Skólahúsið var tekið í notkun 1958. Húsið við norðurenda skólans var í eigu Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd en var alltaf kallað Þorfinnshús því í því bjó Þorfinnur Bjarnason oddviti með fjölskyldu sinni.

50_Brim_vid_Skagastrond_postkort
Brim við Skagaströnd. Myndin er tekin einhverntíma á árunum 1905 - 1910. Á myndinni sést Spákonufellsey sem seinna varð undirstaða hafnargerðar á Skagaströnd.
Óþekkt082
Snjómokstur fyrir víkina.
HuniHU1_4_SM
Netaumvitjun um borð í Húna Hu 1. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Eðvarð Jóhannesson Ásholti, Þorleifur Þórarinsson (d.?) frá Neðstabæ, óþekktur og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) sem er á rúllunni lengst til hægri. Indriði og Eðvarð eru að greiða fiskinn úr netinu meðan Þorleifur dregur af spilinu og hjálpar til við úrgreiðsluna ef færi gefst. Gunnlaugur fylgist með á rúllunni með gogginn klárann ef fiskur er að losna úr netinu þegar það kemur upp úr sjó. Bogni óþekkti maðurinn er að blóðga fiskinn og setur hann svo niður í lest gegnum gatið sem sést á netaborðinu við hlið hans.
HuniHU2_Verid_ad_hafa_SM
Síld háfuð um borð í Húna ll Hu 2.
HuniHU2_1_SM
Húni ll HU-2 Höfðakaupstað í reynslusiglingu á Eyjafirði í júní 1963. Báturinn var smíðaður á Akureyri fyrir Björn Pálsson og Hákon Magnússon 130 brúttótonn með 450 hestafla Stork vél og þótti lista smíð á sinum tíma. Hét seinna Haukafell SF-111. Gauti HU ? Sigurður Lárusson SF ? og síðan Húni ll og heitir það enn og er varðveittur á Akureyri.
Óþekkt044
Rúnar Jóhannsson við þökulagningu á Hnappstaðatúni fyrir forsetaheimsókn 1988
Óþekkt053
Mikið á sig lagt til að skreyta bæinn með fánum fyrir forsetaheimsókn 1988. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri að störfum.
Óþekkt101
Hér er verið að koma fyrir fyrstu skúffunni í viðlegukantinum syðst í höfninni 1991. Baksvipurinn tilheyrir s Hjalta Indriðasyni. Eldri maðurinn var verkstjórinn Aðalsteinn Aðalsteinsson, maðurinn í græna mittisjakkanum er Magnús Blöndal en hálfi maðurinn er Ólafur Bernódusson.
Huni_HU1_3_SM
Góður afli í netin hjá Húna Hu 1. Mennirnir eru óþekktir.
Óþekkt096
Malarkeyrsla úr krús ofan við Spákonufellsrétt til uppfyllingar í Miðgarð í höfninni 1991
1
2
3
4
5

75
Leita í myndasafninu
Leita