Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Hafnarframkvæmdir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
109 myndir
Flæði
Reitir
30600012
Hafnarvitinn fram á löngu bryggu, sem heitir í dag Útgarður. Vitinn var byggður 1951.
Ólafur Bernódusson234
<p>Dýpkunarskipið Grettir vinnur að dýpkun hafnarinnar í júní 1988.</p>
Hjördís Sigurðardóttir - safn041
Myndin var tekin 1978 af Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddvita Höfðahrepps. Í baksýn er dýpkunarskipið Grettir að dýpka höfnina með því að moka sandi og móhellu úr botninum í prammann sem liggur við hlið Grettis. Báturinn lengst til hægri dró síðan prammann fullan fram fyrir Höfðann þar sem botn hans var opnaður og sandinum hleypt úr.
Skagaströnd - safn060
Menn á vegum Guðmundar Lárussonar vinna við að steypa þekju á viðlegukant - Ásgarð - í Skagastrandarhöfn árið 1981.
Skagaströnd - safn154
Þessi mynd sýnir framkvæmdir við smábátabryggjuna við Skúffugarðinn. Ólafur Guðmundsson snýr baki í myndavélina en Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) er úti á horni í köflóttri skyrtu. Ólafur Bernódusson og Guðmundur Björnsson eru að sjósetja bátinn sinn í fjörunni til hægri og vinnsla er í frystihúsi Hólaness hf. Lýsistankurinn stendur enn til hægri og síldarþrærnar einnig bak við flutningaskipið. Myndin var tekin 22. júlí 1989.
Óþekktur ljósmyndari207
Þessi mynd var sennilega tekin sumarið 1934 af mönnum við grjótnám í Höfðanum. Grjótið var síðan notað í uppfyllingu í höfninni. Húsin í baksýn eru Melstaður og Laufás.
Óþekktur ljósmyndari292
Verkamenn að hlaða grjóti á pallbíl. Glöggt má sjá vinnubrögðin sem viðhöfð voru við að koma grjóti frá Höfðanum niður í uppfyllingu við hafnargerðina á Skagaströnd. Myndin var tekin 1934 en þá stóð vinna við höfnina sem hæst.
Hjördís Sigurðardóttir - safn043
Hafnarsvæðið á Skagaströnd 1978. Framkvæmdir standa yfir við verksmiðjuna þegar áætlanir voru uppi um að fara að bræða loðnu í henni. Undirbúningur að smíði viðlegukants við verksmiðjuna í undirbúningi með dýpkun hafnarinnar sem er í fullum gangi. Húsið sem sést í horninu neðst til vinstri eru vinnubúðir sem tiheyrðu framkvæmdum við verksmiðjuna. Þær brunnu seinna um miðja nótt en allir sem inni voru sluppu heilir út í tæka tíð.
Séra Pétur og Dómhildur - safn114
Dælt upp úr Skagastrandarhöfn. Dæluskipið dældi sandinum upp úr höfninni vestur fyrir höfnina í fjöruna fyrir neðan sundlaugina. Þannig myndaðist landfylling sem er þar í dag.
Óþekktur ljósmyndari202
Þessi mynd var tekin sumarið 1934 þegar byrjað var á að gera upfyllingu frá landi út í Spákonufellsey. Á sama tíma var unnið við að brjóta niður hluta eyjarinnar til að nota í uppfyllingu í væntanlegri höfn. Á myndinni má sjá, ef grannt er skoðað, gálga og menn að vinnu úti í eyju ásamt mönnunum sem eru að vinna við að hlaða kant að vestanverðu á uppfyllingunni til varnar sjógangi. Grjótið í uppfyllinguna var sótt í Höfðann þar sem það var sprengt niður.
Skagaströnd - safn059
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) var umsvifamikill atvinnurekandi á Skagaströnd í áratugi. Hér er hann árið 1981 að vinna við að steypa þekju á viðlegukant á Ásgarði í Skagastrandarhöfn ásamt mönnum sínum.
Skagaströnd - safn040
Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) starfaði hjá Vitamálastofnun sem verkstjóri við hafnargerð víða um land. Hér er hann að stjórna gerð viðlegukants - Ásgarðs - í Skagastrandarhöfn 1978. Aðalsteinn kom síðan aftur til Skagastrandar 1990 - 1991 og stýrði þá gerð - Sæðgarðs - í höfninni.
Skagaströnd - safn045
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru þeir Kristján Helgason tæknifræðingur hjá Vitamál til vinstri og Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri .
Skagaströnd - safn194
Dráttarbrautin á Skagaströnd í byggingu. Brautin var vígð 1985 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1984 eða 1985.
Skagaströnd - safn057
<p>1979 var útbúin byggingarlóð, með uppfyllingu, við Skúffugarðinn fyrir frystiklefa og hugsanlegt frystihús. Allir vörubílar á svæðinu voru kallaðir til enda þurfti að aka miklu efni á svæðið. Á þessari mynd eru bílarnir og eigendur þeirra fyrir framan þá. Frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson, Jónas Skaftason, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007), Hörður Ragnarsson, Kristinn Andrésson (d. 12.7.1991), Sigurgeir Jónasson og Hjálmar Pálsson (d. 28.12.2001). Á myndina vantar Adolf J. Berndsen sem var líka með vörubíl í þessari vinnu. </p>
Skagaströnd - safn136
Á myndinni er verið að leggja út kjarnann í nýjum viðlegukanti í Skagastrandarhöfn 30. júlí 1991. Stálþil var síðan rekið niður að norðanverðu við kjarnann, fyrir enda hans og ca 20 metra upp með honum að sunnanverðu.
Skagaströnd - safn106
Skagastrandarhöfn 1935. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að byggja Hafnarhúsið við höfnina. Húsið var síðar fært á þann stað þar sem það stendur í dag til að rýma til fyrir síldarverksmiðjunni sem reis þarna á árunum kringum 1946.
Skagaströnd - safn044
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru Sigurður Ingi skrifstofustjóri hjá Vitamál til vinstri og Adolf J. Berndsen til hægri.
Guðmundur Guðnason2 342
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er grjótnám í Höfðanum í fullum gangi. Sennilega var myndin tekin kringum 1950 af hlaðinu í Ægissíðu, þar sem ljósmyndarinn bjó.
Skagaströnd - safn347
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), starfsmaður Siglingamálastofnunar, Ólafur Bernódusson, Elín Njálsdóttir, Birgir Þórbjarnarson og Magnús B. Jónsson.
Skagaströnd - safn409
Þessi mynd var tekin vestan við verksmiðjuna 16. janúar 1995. Hún sýnir að gatan er á kafi í sjó sem gengur yfir sjóvörnina til vinstri á myndinni. Nú hefur sjóvörnin verið aukin til muna með grjótgarði þannig að ástand eins og myndin sýnir er óþekkt í dag.
Skagaströnd - safn351
Þessi mynd var tekin snemma árs 1992 af Sægarði sem þá var í smíðum. Eins og sjá má er verið að byggja spennihúsið og eftir er að leggja þekjuna á garðinn ásamt því að hengja dekk á bryggjuna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 407
Þrátt fyrir grjótvörn vestan við gömlu síldaverksmiðjuna flæddi sjór inn á hafnarsvæðið í slæmum suð-vestan veðrum. Sjórinn safnaðist fyrir og var oft það djúpur að ekki dugði að fara þar um á stígvélum. Nú hefur grjótvörnin verið aukin og bætt þannig að þetta vandamál er úr sögunni að mestu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 582
Á myndinni eru leifar af hafnarmannvirki sem var reist á Hólanesinu 1938 eða þar um bil. Þessi varnargarður, sem nú er að mestu horfinn, skýldi litlum bryggjustúf sem átti að þjóna frystihúsi Hólaness hf sem reist var 1944 ofan við bryggjuna. Í því húsnæði er nú Listamiðstöðin Nes.
Árni Geir Ingvarsson - safn 595
Þessi mynd af Skagatrönd hefur líklega verið tekin kringum 1965. Takið eftir að verið er að byggja ker í slippnum fram af Bjarmanesi og viðbygging við skólann er ekki komin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 119
Þessi mynd af síldarsöltun á Skagaströnd var tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1943. Stóra húsið á myndinni miðri er Hafnarhúsið sem var fært 1943 -1944 á núverandi stað ofan við Skúffugarð til að hægt væri að reisa síldarverksmiðjuna á lóðinni. Litli skúrinn vinstra megin við Hafnarhúsið var tvöfalt salerni (kamar) sem byggt var þannig að afurðirnar sem skilað var þar fóru beint í sjóinn fyrir neðan. Eins og sjá má hefur umhverfi hafnarinnar, og henni sjálfri, verið breytt mjög mikið með landfyllingum síðan myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 29
Þessi gamla mynd sýnir "Litlu bryggjuna" sem lengi var aðal bryggja smærri báta á Skagaströnd. Bryggjan hallaði fram, eins og sjá má, sem auðveldaði löndun og aðra vinnu við litla báta. Húsið til vinstri á myndinni er Hafnarhúsið sem byggt var á þessum stað 1935 en síðan flutt á núverandi stað þegar það þurfti að víkja fyrir verksmiðjubyggingunni einhverntíma á árunum 1943- 1946. Síldarsöltunarbásarnir sjást svo líka til vinstri og í baksýn sjást m.a. gömlu verslunarhúsin á Skagaströnd og yfir Einbúann sér í Kaupfélagshúsið sem byggt var 1929.
Hallgrímur Kristmundsson safn066
Myndin var tekin af smíði á kari í slippnum neðan við (vestan við) Bjarmanes. Körin voru steypt þarna síðan sett á flot og svo dregin á réttan stað og sökkt þar til að mynda hafnargarð/bryggjukant í einhverri íslenskri höfn. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Hallgrímur Kristmundsson safn070
Hafnarsvæðið á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1944 - 1947. Stóra síldarskemman var enn í byggingu þegar myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 964
Á myndinni er verið að vinna að grjótvörn sunnan við gamla frystihúsið við Einbúastíg. Grjótlagerinn er í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 8
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) verkstjóri til hægri að koma fyrir vinnupalli til að nota við niðurrekstur á stálþilinu.
Ólafur Bernódusson456
Mynd frá byggingu Sægarðs í júlí 1991. Á myndinni er verið að keyra út kjarnann í bryggjunni. Bílinn var H 144 í eigu Harðar Ragnarssonar.
Ólafur Bernódusson478
Þessi mynd var tekin í desember 1991 af vinnuflokknum sem var að vinna að gerð nýju bryggjunnar Sægarðs í Skagastrandarhöfn. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson bifreiðastjóri, Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) verkstjóri, Magnús Bjarni Blöndal (d. 7.9.2001), Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020), Rúnar Jóhannsson, Guðjón Árnason, Ólafur Sigurjónsson og Ólafur Bernódusson.
Óþekktur ljósmyndari303
<p>Á þessari mynd eru verkamenn við grjótnám í Höfðanum vegna hafnargerðar á Skagaströnd 1934. Milli 40 og 60 verkamenn unnu við hafnargerðina þetta sumar. Grjótið var sprengt úr Höfðanum og komið upp á vörubíl, oftast með handafli, og síðan flutt í uppfyllingu frá landi og út í Spákonufellsey, sem einnig var brotin niður að hluta og notuð í uppfyllinguna. Strax sumarið 1935 var svo söltuð síld á tréplani í höfninni, sem gjörbreytti allri aðstöðu fyrir báta og fiskmóttöku. Húsin í baksýn voru Melstaður (nær) og Laufás lengst til vinstri.</p>
Óþekktur ljósmyndari288
Dýpkunarskipið Grettir dýpkar í Skagastrandarhöfn 1977. Aftari báturinn er Ósk HU 21 í eigu Sytefáns Stefánssonar (d 2.1.1988). Hinn báturinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari203
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1944 af höfninni á Skagaströnd. Söltunarkassarnir/borðin bíða eftir silfri hafsins og "Litla bryggjan " bíður bátanna. Hún var látin halla fram til að auðveldara væri að landa fiski við hana úr litlum bátum.
Óþekktur ljósmyndari183
Þessi mynd var tekin 1934 úti í Spákonufellsey. Karlarnir á myndinni eru að brjóta hana niður en grjótið var notað í uppfyllingu í höfninni ásamt grjóti úr Höfðanum. Eins og sjá má voru vinnubrögðin frumstæð, karlarnir með hamra og meitla við að brjóta grjótið og færanlegur gálgi til að lyfta grjótinu á einhvers konar vagn sem rann eftir teinunum sem sjást á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari341
Hér er unnið við grjótnám í Höfðanum. Grjótið var sprengt úr Höfðanum, síðan komið á bíl sem flutti það í uppfyllingu við hafnargerðina. Myndin var líklega tekin 1934 en þá var hafnargerðin í fullum gangi. Eins og sjá má var tæknin við grjótnámið samkvæmt því sem þá þekktist. Greinilega hefur derhúfan - "sixpensarinn" - þjónað því hlutverki sem öryggishjálmar gera í dag. Í baksýn sést Ægissíða sem nú er löngu horfin. Myndina tók Björn Bergmann en mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn039
1978 var rekið niður stálþil og gerður viðlegukantur - Ásgarður - í Skagastrandarhöfn austan við síldarverksmiðjuna. Þessir tveir ungu menn, sem unnu við hafnargerðina, eru hér í smók-pásu sem þá tíðkuðust. Gréta Smári Hallbjörnsson til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason til hægri.
Óþekktur ljósmyndari228
Þessi höfn/bryggja var byggð rétt austan við Hólsnefið (syðsti oddi Höfðans) árið 1922. Sjómenn á Skagaströnd gáfu 130 dagsverk við bygginguna en Verslunarfélag Vinhælinga sá um fjármögnun að öðru leyti. Bryggjan var byggð úr hlöðnu grjóti en fremst var trékar sem var fyllt af grjóti. Fiskvinnsluhús voru svo beint upp af bryggjunni. Þetta var aðal (eina ?) bryggjan á Skagaströnd þar til höfnin var byggð 1934 -1935. Í dag sjást engin ummerki eftir bryggjuna. Báturinn á myndinni er líklega Magnús Jónsson Hu 29, sem var trilla í eigu Þorkels Magnússonar í Goðhól.
Skagaströnd - safn105
Þessi mynd var tekin af framkvæmdum við Skagastrandarhöfn 1934. Búið er að leggja veg á uppfyllingu út í Spákonufellsey en hún hefur verið brotin niður að hluta. Grjótið í uppfyllinguna var sprengt úr Höfðanum eins og þekkt er. Á myndinni er verið að vinna við að steypa varnarvegg vestan við veginn út á fyrirhugað hafnarsvæði. Það er áhugavert að bera þessa mynd saman við hvernig höfnin lítur út í dag. Myndin hefur líklega verið tekin af Einbúanum.
Skagaströnd - safn022
Sjórinn gengur yfir eyjuna og brimvörnina vestan við verksmiðjuna í slæmum veðrum - einkum í suðvestanátt. Nú hefur brimvörnin verið hækkuð og bætt til að minnka ágang sjávarins í höfninni.
Skagaströnd - safn043
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru á spjalli þeir Gylfi Sigurðsson til vinstri og Aðalsteinn Aðalsteinsson verkstjóri til hægri.
Skagaströnd - safn042
Árni Björn Ingvarsson gröfumaður, lengst til vinstri, spjallar við Hjalta Hólmar Indriðason í vinnunni við hafnargerð á Skagaströnd 1978. Fyrir aftan þá sér í Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Skagaströnd - safn041
Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) í vinnu við hafnargerð á Skagaströnd 1978. Maðurinn bak við Magnús er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 458
Sandburður í höfnina á Skagaströnd er vandamál sem leysa þarf reglulega með dýpkun. Á þessari mynd er verið að moka sandi frá dráttarbrautinni til að hann safnist ekki ofan á framenda brautarinnar og verði til þess að dráttarsleðinn fari út af teinunum sem hann hvílir á.
Skagaströnd - safn259
40 feta gámur, sem stóð á gámasvæðinu norðan við rauða klefann á Skúffugarðinum, tókst á loft í miklu roki og fauk ca fjórar lengdir sínar og var nærri farinn í sjóinn. Eins og sést á myndinni var það níðsterkur bryggjukanturinn sem stöðvaði gáminn. Ef það hefi ekki gerst hefði Sigurður Jónsson Hu 18, sem sést á myndinni, ekki verið á floti lengur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma á árunum 2000 - 2005.
Skagaströnd - safn159
Sanddæluskipið Hákur dældi sandi úr höfninni árið 1977. Sandinum var dælt yfir í fjöruna fyrir neðan sundlaugina og þannig búin til landfylling, sem þar er í dag, með því að setja grjótvörn fyrir frama og fylla svo með sandi og möl.
Skagaströnd - safn421
Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), þáverandi starfsmaður Höfðahrepps, kannar skemmdir á hafnargarðinum (Útgarði) í febrúar 1996 áður en grjótvörn var sett við garðinn og ofan á hann.
Skagaströnd - safn410
Þessi mynd var tekin 16. janúar 1995 í vetrarbrimi. Myndin sýnir sjó ganga yfir brimvarnargarðinn ( Útgarð). Síðan þessi mynd var tekin hefur grjótvörn við garðinn verið stóraukin og endubætt og þó enn skvettist yfir garðinn í verstu brimum þá er það ekkert í líkingu við það sem myndin sýnir. Vitinn á enda garðsins hefur verið rifinn og röraviti verið reistur í staðinn.
Skagaströnd - safn346
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á þessari mynd má sjá, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Adolf J. Berndsen, Þorvaldur Skaftason, Rolf Árnason (d. 3.6.2014), Vilhelm Jónsson, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Magnús B. Jónsson og starfsmaður Siglingamálastofnunar.
Skagaströnd - safn345
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á myndinni sést aftan á Ólaf Bernódusson til vinstri, Jón Ólaf Ívarsson (d. 29.12.2013) og þorvald Skaftason þar sem þeir hlíða á starfsmann Siglingamálastofnunar.
Minjasafn786
Þessi mynd var tekin af mönnum við köfunarstörf. Kafarinn með hjálminn er Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) en sá sem er að klæða hann, og snýr baki í okkur, er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Maðurinn í köflótta jakkanum er Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) en hann var verkstjóri og var í sambandi við Guðmund gegnum talstöð meðan hann var í kafi. Guðmundur var kafari í mörg ár og kafaði víða í höfnum á Íslandi. Á myndinni er Karl Berndsen (d. 12.2.1995) í "frosk-kafara" búningi lengst til vinstri en hinir tveir eru óþekktir. Hjólin, sem Karl og óþekkti maðurinn með húfuna halla sér upp að, var loftdælan sem notuð var til að dæla lofti niður í búninginn hjá Guðmundi kafara. ( Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrönn Árnadóttir Hólabraut 14, Skagaströnd).
Árni Geir Ingvarsson - safn 555
Mikil ókyrrð var við Skúffugaðinn áður en grjótgarður var gerður þvert á hann, fremst, til að mynda skjól. Síðan kom trébryggja, Smágarður, ofar út frá Skúffufgarðinum þannig að í dag er ákjósanlegt bátalægi við Skúffugarðinn í hvernig veðrum sem er. Á þessari mynd má sjá að bátarnir dönsuðu í landfestunum í sunnan kælunni.
Ólafur Bernódusson596
Höfnin á Skagaströnd er vel varin með stórgrýti utan af Skaga. Á þessari mynd er hluti af grjótinu sem nýttur var í grjótvörn vestan við verksmiðjuna. Vinnulagið var þannig að grjótið var sótt út á Skaga og sett í geymslu á planið sunnan við sundlaugina, þar sem þessi mynd var tekin. Síðan þegar nóg var komið af grjóti var farið í að raða því á sinn stað í grjótvörninni. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 706
Hér er verið að auka og bæta grjótvörnina fyrir Víkina. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hallgrímur Kristmundsson safn021
Skemmtileg mynd af Skagastrandarhöfn tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1944. Bryggjan í forgrunninum, þar sem fiskaðgerð er í gangi, var byggð 1922 -1923 með sameiginlegu átaki sjómanna á Skagaströnd. Hafnarhúsið, sem er á myndinni, var reist 1935 á þessum stað en flutt á núverandi stað 1943 eða 1944 til að rýma fyrir byggingu síldarverksmiðjunnar. Í dag sést því miður hvorki tangur né tetur af gömlu bryggjunni í forgrunninum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 738
Reglulega þarf að dæla eða moka sandi af botninum í Skagastrandarhöfn. Sandurinn berst inn í höfnina frá ánum á ströndinni inn með landinu. Á þessari mynd er verið dýpka með því að moka sandi í pramma sem síðan fer með hvert fullfermið á fætur öðru fram fyrir Höfðann þar sem botninn er opnaður og sandinum hleypt niður.
Héraðsskjalasafn A-Hún 313
Myndin, sem sýnir grjótnám í Spákonufellshöfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Grjótið var sprengt og síðan flutt í uppfyllingu og/eða varnargarð við hafnargerð á Skagaströnd. Maðurinn í munstruðu peysunni er líklega Krsitján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Vík og bærinn sem sést á henni var Ægissíða, sem nú er löngu horfin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 9
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á þessari mynd eru byrjunarframkvæmdir í gangi. Verið er að byggja vinnupall á staurum sem hafa verið reknir niður. Vinnupallurinn var svo notaður til að reka niður fleiri staura og síðan til að stilla af stálplöturnar sem reknar voru niður og mynda viðlegukantinn í dag. Maðurinn á flekanum er Ólafur Bernódusson og yfir honum stendur Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) verkstjóri. Magnús Blöndal (d.7.9.2001) stendur við plankastaflann við kranann.
1
2
Leita í myndasafninu
Leita