Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Hafnarframkvæmdir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
109 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 467
Sjómannadagur á Skagaströnd fyrir 1970. Það sem sést á myndinni er mikið breytt í dag, nóvember 2017. Rörið milli verksmiðjunnar og mjölskemmunnar er horfið ásamt undirstöðum þess. Í gegnum þetta rör var síldarmjölinu dælt frá verksmiðjunni út í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt. Stóru tankarnir eru báðir horfnir og frystihúsinu, sem er stóra gráa húsið með rauða þakinu, hefur verið mikið breytt með viðbyggingum og málun. Miklar landfyllingar eru komnar framan við skemmuna og þar er kominn viðlegukantur fyrir minni báta ásamt því að hafnarvigtin er staðsett þar. Gamla Salthúsið sem stendur uppi í Höfðanum til vinstri er nú orðið gistiheimili fyrir ferðamenn. Það sem er óbreytt er að enn er keppt í kappróðri á sjómannadegi og endamarkið er á svipuðum slóðum og báturinn er á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 180
Á myndinni eru hafnar framkvæmdir við nýjan viðlegukant - Sægarð - í höfninni á Skagaströnd haustið 1990. Jafnframt sést á myndinni að verið er að skipa út frystum afurðum annað hvort rækju eða fiski í skip sem liggur við Útgarð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 114
Á myndinni liggur skip við hafnargarðinn eða hafskipabryggjuna sem kölluð var. Ef grannt er skoðað má sjá að fremsti hluti bryggjunnar hallast til vesturs. Það er vegna þess að karið sem myndar garðinn seig eftir að búið var að koma því fyrir. Kraninn sem sést lengst til vinstri var löndunarkrani fyrir síldarverksmiðjuna. Hafnargarðurinn hefur nú verið varinn með stórgrýti og þjónar ekki lengur sem viðlegukantur heldur sem brimvörn fyrir innri höfnina. Löndunarkraninn er löngu horfinn. Skipið á myndinni er M.s. Tungufoss I.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1370
Fólkið a myndinni fylgdist með fyrirlestri um hafnargerð á Skagaströnd í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélaginu sem haldin var 13. október 2012. Fyrir og eftir fyrirlesturinn skoðaði fólk myndir úr Ljósmyndasafni Skagastrandar og reyndi að þekkja fólk sem á þeim var. Fólkið á myndinni er, frá vinstri:Lárus Ægir Guðmundsson (situr næst), Guðlaug Grétarsdóttir í rauðum buxum, Lilja Hjaltadóttir í rauðri úlpu, Adolf H. Berndsen, Herdís Jakobsdóttir, Hjalti Viðar Reynisson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Magnús B. Jónsson.
Óþekktur ljósmyndari414
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna á Caterpillar jarðýtu við hafnargerðina á Skagaströnd. Hugsanlega er verið að vinna við byggingu Skúffugarðsins en það var kringum 1948. Maðurinn á ýtunni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari415
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna í grjótnáminu í Höfðanum. Það hófst 1934 þegar þangað var sótt grjót í uppfyllingu milli lands og Spákonufellseyjar vegna hafnargerðar. Næstu ca 30 ár var tekið grjót úr Höfðanum en með hléum. Klöppin var sprengd til að losa um grjótið en mulningurinn var líka notaður með stóru steinunum. Einnig voru járnkarlar mikið notaðir til að færa grjótið til og koma á það böndum til hífinga. Maðurinn á Caterpillar D 7 ýtunni er að hreinsa til svo hægt sé að ná grjótinu með góðu móti. Maðurinn er óþekktur en ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið eftir 1943 því fyrstu vélarnar af þessari gerð komu þá til landsins á vegum Bandaríska hersins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1408
Myndin, sem tekin var 5. maí 2011, sýnir niðurrif á síldarþrónum við suðurenda síldarverksmiðjunnar. Niðurrifið var mikið verk enda þrærnar vel byggðar og mikið járnbundnar. Mala þurfti alla steypu niður til að ná úr henni öllu járni áður en steypumolunum var fargað. Með því að fjarlægja þrærnar fékkst stóraukið athafnasvæði á höfninni.
Óþekktur ljósmyndari413
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Grjótflutningar úr Höfðanum í uppfyllingu við hafnargerðina. Líklega var myndin tekin kringum 1940. Maðurinn á myndinni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 552
Unnið við gerð nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn í apríl 2014. Lengst til hægri sér í hús hafnarvigtarinnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Grettir dýpkar Skagastrandarhöfn
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 553
Nýr viðlegukantur gerður í apríl 2014. Á myndinni er byrjað að klæða dekkið á bryggjunni en eftir á fylla að og malbika. Mennirnir á myndinni eru óþekktir
Óþekktur ljósmyndari407
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er verið að vinna við grjótnám í Höfðanum en grjótið var sprengt fram og notað til uppfyllingar við hafnargerð á Skagaströnd. Sú hafnargerð hófst 1934 en ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir ýtumanninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Grettir dýpkar í Skagastrandarhöfn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 11
Myndin var tekin haustið 1990 af byrjunarframkvæmdum við Sægarð í Skagastrandarhöfn. Byrjað var á að keyra út kjarna úr möl og er það í gangi á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1163
22. október 2010 var nýi vigtarskúrinn fluttur frá verkstæði Helga Gunnarssonar, þar sem hann var smíðaður, niður að hafnarvigtinni þar sem honum var svo komið fyrir. Helgi Gunnarsson gengur á undan bílnum til að vara vegfarendur við plássfrekum flutningi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1569
5. maí 2011 voru stórvirkar vinnuvélar á fullu við að brjóta niður og fjarlæga þrærnar við síldarverksmiðuna. Við það jókst vinnupláss hafnarinnar mikið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1169
Þessi mynd var tekin í gamla vigtarskúrnum 5. september 2005. Þórey Jónsdóttir hafnarvörður situr við skrifborðið en Þröstur Líndal Gylfason "starfsmaður á plani" spjallar við hana.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1566
Helgi Gunnarsson til vinstri og óþekktur maður frá verktaka til hægri fylgjast með niðurbroti á þrónum við síldarverksmiðuna 4. maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1723
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1965. Á henni sjást, til hægri, tvö ker sem verið er að hækka. Kerin sjálf voru steypt í slippnum neðan við Bjarmanes og síðan fleytt að Skúffugarði og byggt ofan á þau þar. Á myndinni má sjá horfna húsið, Efri-Læk, yfir vinstra hornið á Hafnarhúsinu, sem er stóra skemman fyrir miðri mynd.
Ólafur Bernódusson 1099
Þessi mynd frá 18.febrúar 2014 sýnir framkvæmdir við lengingu á viðlegukanti Miðgarðs. Þar kom svo þriðji löndunarkraninn eins og þekkt er. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn608
Kristján Helgi Gunnarsson verktaki við vinnu á höfninni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson005
Á myndinni, sem var tekin í júlí 1989, er verið að byrja á byggingu Smágarðs við Skúffugarðinn.
20241125_165625
Hálfnað verk þá hafið er. Myndin var tekin 25. nóvember 2024. þegar unnið var að uppbyggingu gömlu löndunarbryggjunnar eða Ásgarðs eins og hann heitir í dag. Bryggjan var komin til ára sinna, byggð einhverntíma rétt fyrir 1950. Hún hefur nú verið hækkuð og endurbyggð frá grunni með stálþili og steyptri þekju.
20241001_101109
Myndin var tekin haustið 2024 þegar unnið var að því að rífa gömlu löndunarbryggjuna eða Ásgarð eins og hann heitir í dag. Bryggjan var komin til ára sinna, byggð einhverntíma rétt fyrir 1950. Hún hefur nú verið hækkuð og endurbyggð frá grunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 10
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á þessari mynd er búið að reka niður stálþilið og koma fyrir ankerunum, sem halda við þilið. Úr ankerunum, sem eru steyptu flekarnir sem sjást hægra megin við miðju myndarinnar, er svo stálteinn út í þilið. Síðan var fyllt að ankerunum með möl og grjóti og þannig tryggt að stálþilið tollir á réttum stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 179
Á myndinni er verið að koma fyrir grjótvörn í víkinni frá Hólsnefinu að uppfyllingunni vestan við verksmiðjuna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 181
Unnið við jarðvegskjarna í nýjum viðlegukanti í höfninni á Skagaströnd sumarið 1990. Garðurinn hlaut nafnið Sægarður er hann var fullbúinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 268
Ekki er mikið eftir sýnilegt af Spákonufellsey. Megnið af henni er undirstaða hafnarinnar á Skagaströnd og hluti hennar hefur verið þakinn stórgrýti sem brimvörn hafnarinnar. Á myndinni má þó sjá hluta eyjarinnar vaxinn grastoppum og skarfakáli. Fjær sér í hluta grjótvarnarinnar.
Óþekktur ljósmyndari411
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna við grjótnám í Höfðanum. Bak við manninn sér í Caterpillar jarðýtu sem notuð var við verkið. Maðurinn er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 590
Gísli Reynisson vinnur að endurbótum á dráttarbrautinni í maí 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1369
Tengdamæðgurnar Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) til vinstri og Erna Berglind Hreinsdóttir til hægri fylgjast með fyrirlestri um hafnargerð á Skagaströnd í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélaginu sem haldin var 13. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 689
Helgi Gunnarsson smiður og verktaki vinnur að viðgerðum á meiðunum í dráttarbrautinni 24. júní 2014.
Óþekktur ljósmyndari412
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er unnið að grjótnámi úr Höfðanum og þarna hefur tekist að finna risa stein og koma honum upp á bílpall. Síðan var hann keyrður niður að höfn og notaður í uppfyllingu þar. Uppfylling milli lands og út í Spákonufellsey hófst 1934 en síðast var tekið grjót úr Höfðanum u.þ.b. 30 árum síðar. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Óþekktur ljósmyndari409
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er stór loftpressa sem lengi var í notkun á Skagaströnd t.d. við hafnargerð. Ljósa húsið til hægri er líklega Höfðatún/Strandgata 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1945 - 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 10
Myndin var tekin veturinn 1991 þegar framkvæmdir stóðu yfir við byggingu Sægarðs í Skagastrandarhöfn. Til hægri á myndinni eru steinsteypt ankeri og mitt í gegnum þau er löng járnstöng sem fer gegnum skúffurnar sem mynda viðlegukantinn til vinstri og draga þær að stálbitanum sem réttir þær af. Ankerin eru síðan hulin möl og svo er steypt plan yfir allt saman.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1164
Nýjum vigtarskúr komið fyrir á sínum stað við hafnarvogina með aðstoð fjögurra lyftara 22. október 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 973
Sigurbjörn Björgvinsson hjálpar konunni sinni Þórey Jónsdóttur hafnarverði með rafmagnið á höfninni 3. júlí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1162
Gamli vigtarskúrinn fjarlægður til að rýma fyrir nýjum, stærri og betri. Sigurbjörn Björgvinsson hífir, Rúnar Kristjánsson og Hallbjörn Björnsson passa upp á rafmagnskaplana en maðurinn við hornið á skúrnum er óþekktur. Myndin var tekin 24. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1308
Myndin var tekin 6. nóvember 2011 þegar verið var að grjótverja betur gamla hafnargarðinn - Útgarð. Grjót í vörnina var sótt út á Skaga í hæðarnar ofan við Brekkubæina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1176
Á þessari mynd eru frá vinstri iðnaðarmennirnir Árni Halldór Eðvarðsson smiður, rafvirkjarnir og feðgarnir Hallbjörn Björnsson og Björn Hallbjörnsson og Halldór Gunnar Ólafsson hjá BioPol lengst til hægri. Þeir eru að fylgjast með, 24. september 2010, þegar gamli vigratskúrinn við höfnina var fjarlægður svo hægt væri að koma hinum nýja fyrir á sama stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1677
Platan steypt á nýjum viðlegukanti - Sægarði - í Skagastrandarhöfn síðsumars 1991. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1093
Sandburður inn í höfnina er vandamál á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin 12. mars 2014 en þá hafi sandur sest á brautir dráttarbrautarinnar úti í sjó. Það varð til þess að sleðinn, sem bátarnir eru dregnir upp í, fór út af brautunum. Á myndinni eru starfsmenn Vélaverkstæðis Skagastrandar, Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri, að undirbúa að hífa sleðann og bátinn í honum upp á brautirnar aftur til að hægt sé að draga bátinn upp á sinn stað. Við þessa vinnu voru notaðar tvær stórar beltagröfur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1573
Árni Geir Ingvarsson bæjarverkstjóri lokar veginum niður á höfnina 6. maí 2011 vegna framkvæmda við niðurbrot á þrónum við síldarverksmiðjuna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1565
Á myndinni er verið að byrja á að rífa niður þrærnar við síldarverksmiðjuna 4. maí 2011 með stórvirkum vinnuvélum.
Ólafur Bernódusson1055
Myndin var tekin sumarið 1997 af stórgrýti sem safnað var úti á Skaga, lagerað á uppfyllingunni neðan við sundlaugina og síðan raðað í grjótvörn við höfnina. Eins og sjá má eru steinarnir engin smásmíði .
Ingibergur Guðmundsson 371
Dýpkunarskipið Grettir dýpkar í Skagatrandarhöfn 1988. Uppgröfturinn var notaður til uppfyllingar fremst á Skúffugarðinum.
Ólafur Bernódusson1072
Myndin var tekin af dýpkunarskipi (Gretti?) við vinnu í Skagastrandarhöfn í september 1997. Næst okkur er dráttarbátur sem dró sandprammann vestur fyrir Höfðann þar sem losað var úr honum. Pramminn er á milli dráttarbátsins og dýpkunarskipsins á myndinni.
Ingibergur Guðmundsson 344
Myndin var tekin sumarið 1989 þegar Smágarður við Skúffugarðinn var í byggingu.
20250926_101153
Myndin var tekin í september 2025 þegar verið var að steypa hluta af þekju á ný endurgerðum Ásgarði í Skagastrandarhöfn.
1
2
Leita í myndasafninu
Leita