Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Gudun_HU2_SM
Þennan bát létu Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason smíða á Siglufirði árið 1961. Seldu þeir, eftir árið, bátinn til Hólmavíkur þar sem hann fékk nafnið Hrefna II St 123. Á myndinni liggur Guðrún HU-2 rígbundinn við litlu brygguna á Skagaströnd. Helgan hans Ensa fyrir aftan hana og Svanur HU-4 innst en hann var í eigu Baldurs og Júlíusar Árnasona.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn033
Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum sýnir Bernódusi Ólafssyni (d.18.9.1996) úr Stórholti hvernig vanir menn flaka stórþorsk. Þeir félagar unnu lengi í frystihúsi Hólaness hf við að handflaka fisk sem var of stór fyrir flökunarvélarnar.
Guðmundur Guðnason118
Willis jeppi líklega í eigu Jósefs Stefánssonar í Reykholti. Myndin er tekin í mynni Hrafndals á gangnadegi 1967.
Jón Jónsson178
Leikskólabörn úr Barnabóli í heimsókn í Rækjuvinnslunni á Skagaströnd á öskudegi sennilega árið 1980. Erfitt er að þekkja börnin en fremst á myndinni í rauð-skræpóttum samfestingi með gula sól á höfðinu er Arnar Ólafur Viggósson. Þórunn Bernódusdóttir er konan með brúnu prjónahúfuna en Bára Þorvaldsdóttir er í bláum jakka með hvíta húfu. Við færibandið sjást Guðrún Sigurðardóttir og Signý Richter.
Guðmundur Guðnason176
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri á myndinni eru: Elsa Lára Blöndal, Líney Jósefsdóttir Reykholti, Kári Kristjánsson Kárastöðum og Sigurður Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason116
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Maðurinn í lopapeysunni til vinstri er Ólafur Guðmundsson, Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) er við rútuhornið með húfu, Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) er með eitthvað í fanginu og konan með slæðuna til vinstri á myndinni er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson177
Leikskólabörn úr Barnabóli í heimsókn í Rækjuvinnslunni á Skagaströnd á öskudegi. Stúlkan með bláu lambhúshettuna er Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, í hvítri úlpu, snýr baki í myndavélina og Þórunn Bernódusdóttir er með brúna prjónahúfu. Konurnar á færibandinu eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Signý Richter en á milli þeirra sér í Báru Þorvaldsdóttur. Við hlið Signýjar er Líney Jósefsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Sólveig Eiðsdóttir. Myndin var tekin kringum 1980.
Guðmundur Guðnason180
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Ljóshærði drengurinn í lopapeysunni er Kjartan Bjarnason frá Holti. Maðurinn með hendur í vösum er Sigmar Jóhannesson. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason158
Tvær vaskar konur í Stafnsrétt 1963. Sigurbjörg Stefánsdóttir til vinstri og Þóra Sigurðardóttir frá Hvammi til hægri.
Óþekktur ljósmyndari121
Bærinn Brautarholt var reistur 1914 af Ólafi Jóni Guðmundsyni utan í hólnum sem stendur á milli Fellsbrautar 9 og Fellsbrautar 13. Ólafur bjó þarna með móður sinni sem hét Elísabet Karólína Ferdínantsdóttir. Ólafur giftist Þuríði Jakobsdóttur og eftir það bjuggu þau þrjú í Brautarholti. Elísabet dó 1958, Þuríður 1965 og Ólafur 1985 þá orðinn blindur. Brautarholt var rifið árið 1987. Þessi mynd var tekin 1977.
Guðmundur Guðnason177

Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni sem var eðlilega á þjóðlegum nótum með glímusýningu og menn gengu um klæddir að hætti fornmanna eins og þessir tveir óþekktu kappar. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.

Guðmundur Guðnason173
Hér er hópur Skagstrendinga í heimsókn í ókunnri kirkju. Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) er annar frá vinstri, Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.2992) er fimmti frá vinstri og Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985) kona hans er í hvítri kápu með veski. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) er í miðjunni og leiðir tvo drengi. Við hlið drengsins hægra megin eru hjónin Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) og Hafsteinn Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) er lengst til hægri. Aftast lengst til hægri er Hallbjörn Hjartarson en þriðja frá hægri í þeirri röð er Guðrún Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn 047
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum. Vesturhliðin á verksmiðjunni.
Guðmundur Guðnason166
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Maðurinn til vinstri, með derhúfu, er Magnús Indriðason frá Húsey. Þriðji frá hægri er Jakob Sigurðsson (d. 27.5.1991) frá Steiná síðar á Hóli. Til hægri er Ottó Þorvaldsson frá Víðimýrarseli og teymir hyrnda kind.
Guðmundur Guðnason211
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Brugðið á leik í vinnunni. Frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Helgi Jónatansson og Þórarinn Hjartarson frá Vík.
Guðmundur Guðnason181
Fólkið í þessum sönghópi er talið frá vinstri: Jóhanna Björnsdóttir frá Gili, Sigurjón Stefánsson Steiná, Sigfús Guðmundsson frá Eiríksstöðum, Friðrik Björnsson Gili og Sigurbjörg R. Stefánsdóttir. Myndin var tekin þegar karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt tónleika á Húnavöku. Ártalið er óþekkt.
Guðmundur Guðnason191
Réttað í Spákonufellsrétt haustið 1962.
Guðmundur Guðnason186
Þessi mynd var tekin 1970 sennilega í Stafnsrétt. Á myndinni er réttarstörfum að ljúka og fólk er að skoða hross og spá í lífið og tilveruna. Guðmundur Ó. Guðmundsson er fjórði frá vinstri í ljósum buxum. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason428
Myndin var tekin á hrútasýningu sennilega á árunum upp úr 1960. Frá vinstri: Guðbjartur Guðmundsson ráðunautur, Skarphéðinn Einarsson frá Dagsbrún, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) Lækjarhvammi, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) Kárastöðum og lengst til hægri er Sigurlaug Jónsdóttir Ási.
Guðmundur Guðnason149
Í Hofsrétt sumarið 1965. Hrönn Árnadóttir hjálpar Ingu Jónsdóttur í Náttbrún (Ólafsvöllum) að finna kindurnar sínar í safninu. Strákarnir á réttarveggnum eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason147
Ungu mennirnir á réttarveggnum í Hofsrétt sumarið 1965 eru Bergur Jón Þórðarson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari124
Kántrýhátíð 2002, sú síðasta, undirbúin. Óþekktur, Magnús B. Jónsson og Ólafur Bernódusson (lengst til hægri) koma fyrir borða til að bjóða fólk velkomið við pípuhliðið á heimkeyrslunni til Skagastrandar uppi á Kerlingarholti
Guðmundur Guðnason244
Stíflan í Hrafnánni var á sínum tíma gerð til að safna neysluvatni fyrir bæjarbúa. Í mörg ár var allt neysluvatn tekið þarna úr ánni en það gat stundum verið gruggugt á leysingum á vorin. Einnig kom það fyrir að skepnur, kindur eða hestar, drápust í ánni ofan við stífluna þannig að fólk var að drekka seyðið af þeim næstu mánuði. Í bókinni Byggðin undir Borginni segir á bls. 298:
........Vatnsveita Skagstrendinga þótti löngum mjög slæm. Notast var við árvatn úr Hrafná sem oft varð dökkt af óhreinindum,einkum í vorleysingum og því mjög óheppilegt til nútímalegs fiskiðnaðar og auk þess hvimleitt sem neysluvatn...........
Magnús B Jónsson054
Árni Geir Ingvarsson lítur eftir skíðalyftunni á Skagaströnd. Alltaf þurfti að vera maður á lyftunni til að skammta út stafina/diskana fyrir þá sem vildu fara upp með henni. Í baksýn grillir í Lárus Ægi Guðmundsson.
16_Ker_i_byggingu
Ker í smíðum í kerjaslippnum neðan við Bjarmanes. Myndin sennilega tekin ca 1950.
Guðmundur Guðnason170
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri eru: Óskar Jóhannesson, Kári Lárusson frá Ási, Frits M.Bjarnason Bjargi og bak við hann grillir í Jóhannes Hinriksson frá Ásholti.
Guðmundur Guðnason242
Fremst eru fjárhús og hlaða sem voru í eigu Sigurbjörns Kristjánssonar (d. 10.9.1989) frá Kárastöðum. Gulu húsin í baksýn voru fjárhús og hlaða sem Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) í Stórholti átti. Bæði stóðu þessi fjárhús í þyrpingu slíkra skepnuhúsa undir Höfðanum við götuna sem liggur út með honum að austanverðu.
Guðmundur Guðnason315
Réttað í ókunnri rétt (Hofsrétt?). Maðurinn sem er að draga kind á miðri mynd er Páll Jóhannesson. Maðurinn til hægri í köflóttu skyrtunni er Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014) og lengst til hægri, með hatt, er Konráð Klemensson (d. 20.11.1981) frá Garðhúsum - Konnabæ. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason189

Sorg ríkti á Skagaströnd í september 1962 eftir að Íris Jónsdóttir drukknaði í Skagastrandarhöfn. Hafði hún ekið bíl sínum í höfnina og komst ekki út úr honum. Á þessari mynd er verið að bera kistu Írisar til kirkju eftir húskveðju á heimili hennar. Líkmennirnir eru frá vinstri: Gunnlaugur Árnason, Sigurjón Magnússon, Sigmundur Magnússon, Jón Jónsson, Bjarni Loftssson og Gunnar Albertsson. Presturinn er séra Pétur Þ. Ingjalddsson.

Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 090
Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans á Skagaströnd 2. nóvember 1958. Í fremstu röð frá vinstri eru: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Hulda Pálsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekkt kona. Undir glugganum sitja talið frá hægri: Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981), Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974), Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) og Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 089
Vígsla nýbyggingar barnaskólans á Skagaströnd 2. nóvember 1958. Á myndinni má þekkja séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Huldu Pálsdóttur fremst. Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) er konan sem situr vinstra megin með röndóttann trefil en konan aftan við Pétur, með krosslagðar hendur, er Ingunn Júlíusdóttir (d. 22.4.1998). Lengst til vinstri er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) með myndavél. Milli Péturs og Huldu sjást Elsa Axelsdóttir Schiöth (d.14.7.1966) til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason148

Aftan á þessari mynd af fjórum konum stendur : Frá v. Kamilla frá Dalvík, 2. Sigrún Ármannsdóttir, 3. ?, 4. Sigríður frá Dalvík. 1954. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hugsanlega tengjast konurnar Kvennaskólanum á Blönduósi á einhvern hátt. Ef þú veist eitthvað meira um myndina og konurnar á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Ólafur Bernódusson043
Í nokkur ár fóru félagar úr björgunarsveitinni á Skagaströnd í eggjatökuleiðangra út í Stapa, sem er eyjan rétt norðan við fossinn á Króksbjarginu. Þar söfnuðu þeir svartbakseggjum og fílseggjum sem voru síðan seld til ágóða fyrir sveitina. Svartbakseggin þóttu góð til átu en fílseggin voru meira notuð í bakstur. Kökur sem bakaðar voru úr fílseggjum urðu fallega skærgular á litinn. Á þessari mynd er Helgi Gunnarsson að ganga frá eggjunum í plastbrúsa en Guðmundur Björnsson bíður á brúninni til að láta eggin síga niður í björgunarbátin Þórdísi sem sést í baksýn. Myndin er tekin ca 1987 - 1988.
Guðmundur Guðnason193
Réttað í Spákonufellsrétt 1962. Páll Jóhannesson er maðurinn í ljósu úlpunni með svartan kraga. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason171
Óþekkt barn að róla sér í útbænum undir stjórn barnapíu . Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason187
Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu(d. 21.11.1988) ljósmyndari, póstur og organisti með harmonikuna sína um jól.
Óþekktur ljósmyndari141
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Guðrún Soffía (Obba) Pétursdóttir verkstjóri.
Guðmundur Guðnason157
Fólkið á kóræfingunni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari147
Starfsfólk og fyrrverandi starfsfólk Höfðahrepps gerir sér glaðan dag í sumarlok 24. ágúst 2001. Frá vinstri: Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Ragnar Ingvarsson húsvörður íþróttahúss og félagsheimilis, Rósa Björg Högnadóttir vinnuskólaverkstjóri, Þröstur Líndal lögreglumaður og fyrrum starfsmaður Höfðahrepps, María Rós Karlsdóttir vinnuskólaverkstjóri og Sigurbjörn Björgvinsson vörubilstjóri.
Guðmundur Guðnason199
Í Spákonufellsrétt sennilega sumarið 1961. Þá tíðkaðist að smala fé til réttar um mitt sumar til að rýja kindurnar. Feðginin frá Ólafsvöllum, Jón Árnason og Ingiríður Jónsdóttir eru að rýja.
14_Innbr_af_Hofda
Myndin er tekin 1945-1946. Búið er að byggja helming mjölskemmunnar en austari hluti hennar er í byggingu eins og skorsteinninn. Í vinstra horni myndarinnar sér í hornið á Skálholti. Nær okkur sést svo örlítið í þökin á Dvergasteini og Draumalandi. Niðri í hægra horninu eru svo Kárastaðir sem seinna var byggt ofan á. Húsin sem standa niður með Skagavegi eru svo: Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfði áður en byggt var við hann, Garður og braggarnir.
47_Kaupfelagid_fra_Hofdanum_Postkort_E_Hemmert
Myndin er tekin ca 1930 af Höfðanum yfir Kaupfélagið og verslunarhúsin í útbænum eða á Skagaströnd eins og kallað var. Húsin á myndinni eru frá hægri: verslunarstjórahús, Kaupfélag Skagstrendinga (KAST), Assistentahús sem stendur þvert á háreist pakkhúsið sem er með viðbyggingu til norðurs. Ljósa húsið nær okkur er Garður. Vinstra megin við pakkhúsið er Sæmundsenbúð.
Guðmundur Guðnason162
Réttastörf í Stafnsrétt 1963.
Guðmundur Guðnason229
Þessi mynd var tekin á Siglufirði á síldarárum þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en greinilega er síldarbræðsla í gangi. Bryggjufjöldinn bera þess glöggt vitni að hér hafa stundum verið mikil umsvif og margir bátar.
Guðmundur Guðnason092
Frá vinstri: Hjálmfríður Bjarnadóttir og Anna Bjarnadóttir aldar upp í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Lengst til hægri er Ásdís Þórbjarnardóttir sem var alin upp á Flankastöðum (Bankastræti 7).
Kristín Björnsdóttir004

Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) landar fiski úr Sigurði Hu 18við "Litlu bryggju". Á bryggjunni er Guðmundur J. Björnsson bróðir Hallbjörns og býr sig undir að tína fiskinn upp á kerruna sem sér í hornið á til vinstri. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð Hu 18 árið 1966 og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var báturinn þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns og Guðmundar. Sigurður Hu 18 er enn til og er í öruggri vörslu Sigurðar Björnssonar. Reyndar var skipt um nafn á bátnum því Sigurðar nafnið var í einkaeigu og var hann því nefndur Sigurður Jónsson eftir það. Báturinn aftan við Sigurð hét Ósk Hu og var í Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988). Aftast sér svo í Víking St 12 sem var í eigu Péturs Ástvaldssonar á Hólmavík. Pétur fórst ásamt öðrum manni með Víkingi í mars 1971. "Litla bryggjan" er nú löngu horfin en hún var um það bil þar sem nú er suð-austur hornið á Miðgarði (Arnarsbryggjunni). "Litla bryggjan" lækkaði fram til endans til að auðveldara væri að landa fiski við hana eftir stærð bátsins sem landað var úr. Maðurinn fremst á bryggjunni er óþekktur.

Guðmundur Guðnason434
Starfsmenn í frystihúsi Hólaness hf á Hólanesi fyrir utan frystihúsið. Frá vinstri: Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) Blálandi, Henrý Kristjánsson (22.6.1972) Kárastöðum, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið, Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1998) Sævarlandi, Jón Árnason (d. 5.9.1993) Náttbrún, Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Fjalli, Árni Max Haraldsson ( d. 6.12.1976) Litla Bergi, Jón Áskelsson (d. 26.3.1989) Hólanesi og Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) þá: Sólvöllum
Guðmundur Guðnasonr682
Réttarstörf í Hofrétt. Maðurinn sem sést aftan á lengst til hægri er Bernódus Ólafsson en maðurinn með húfuna er Henrý Kristjánsson. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason188
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri:. Pétur Sigfússon bóndi í Álftagerði Seyluhreppi, Valtýr Guðmundsson bóndi í Brattahlíð í Svartárdal og Jónas Haraldsson á Völlum í Skagafirði sem skoðar markið á hrossinu. Sá með gleraugun er Björn Eysteinn Jóhannesson bóndi í Stokkhólma í Vallhólmi. Ljósklæddi maðurinn til hægri er Guðmundur Ó. Guðmundsson en hann var um skeið skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Magnús B Jónsson017

Eftir að Þorvaldur Skaftason hafa kvartað, með réttu, undan að hreinlætisaðstaða við höfnina væri í ólestri, settu gárungar á vélaverkstæðinu upp þetta klósett við bát Þorvaldar, Kóp Hu 2. Ekki fylgir sögunni hvort klósettið var mikið notað enda var það fjarlægt nokkrum dögum seinna. Eins og sjá má þá var vísukorn límt á setuna. Vísan, sem var eftir Kristján Hjartarson sem vann á vélaverkstæðinu á þessum tíma, var eftirfarandi:

Ljúfi Valdi líttu á
látt ei í þig fjúka

Guðmundur Guðnason167
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari142
Undirbúningur Kátrýhátíðar árið 2000. Myndin var tekin 2. ágúst 2000 af starfsfólki Höfðahrepps við að koma fyrir samkomutjaldi á Hnappstaðatúni. Frá vinstri: Óþekkt, Gígja Óskarsdóttir og Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri.
img077
Gunnar Sveinsson skipstjóri og útgerðamaður fæddur 1939 um borð í Húna HU-1.
GunnarSveinsson_ljosm_GunnarAlbertsson
Gunnar Sveinsson í stýrishúsinu á Stíganda Hu 9.
TraustiBertelsson_ljosm_GunnarAlbertsson

Stígandi Hu 9 á stími í land með góðan afla á línu. Bjarni Helgason skipstjóri og eigandi í brúnni. Ásmundur Bjarni Helgason fæddist 30. nóvember 1903 að Eyri í Norður Ísafjarðarsýslu og dó 30. desember 1983. Hann var sjómaður allt sitt líf og lengst af skipstjóri. Hann flutti til Skagastrandar 1947 og gerði Stíganda, sem var 22 tonn að stærð, út þaðan í 30 ár. Eftir að hann seldi Stíganda gerði hann svo út á grásleppu á lítilli trillu. Margir sjómenn á Skagaströnd byrjuðu sína sjómennsku sem hásetar hjá Bjarna. Hann þótti afburða sjómaður og vílaði ekki fyrir sér að leggja einn í langferðir á Stíganda sínum. Þannig fór hann einn á honum frá Skagaströnd til Vestmannaeyja í febrúarmánuði (1960?) til að róa þar á vetrarvertíð. Kom hann við á Ísafirði og Reykjavík til að sofa. Bjarni var giftur Lilju Ásmundsdóttur (d. 2.4.1990) og gerðu þau sér heimili að Eyri (Holti) á Skagaströnd. Saman áttu þau fimm börn: Maríu, Helga, Skúla, Kjartan og Birnu. María og Helgi eru nú látin. Margar sögur eru sagðar af Bjarna á Stíganda en sennilega lýsir honum best það sem einn af hásetunum hans sagði um hann: " Bjarni er alltaf bestur þegar veðrið er verst". (Heimild: Skipstjórnarmenn 1. bindi eftir Þorstein Jónsson)

guðmundur218
Handflakarar í frystihúsi Hólaness hf. Frá vinstri eru: Ólafur Guðlaugsson frá Sævarlandi, Jónas Skaftason, Árni Max Haraldsson frá Litla Bergi og Bertel Björnsson Drangey. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Guðmundur Guðnason264
Bragginn fyrir miðri mynd er gamla Tunnan. Húsið hefur gegnt margvíslegum hlutverkum gegnum árin eftir að það var byggt á stríðsárunum. Þegar þetta er skrifað, í maí 2013, hefur húsið verið tekið í gegn og nú er í því Spákonuhof. Til vinstri er Rafstöðin og viðbygging sem þjónar nú sem áhaldahús Skagastrandar. Til hægri á myndinni er grænn skúr. Hann þjónaði um tíma sem lögreglustöð á Skagaströnd. Á milli Tunnunnar og Rafstöðvarinnar sér í Stóra Berg hægra megin við kirkjuna.
Guðmundur Guðnason266
Byrjunarframkvæmdir við söluskálann á Skagaströnd.
12_Skemman_Hofdinn
Verksmiðjan til vinstri og Hafnarhúsið til hægri. Myndin tekin 1945 - 1946.
Guðmundur Guðnason185

Fyrirtæki á Skagaströnd tóku þátt í sýningu í Reykjavík þar sem þau kynntu starfssemi sína og framleiðsluvörur. Á þessari mynd er Vigdís Finnbogadóttir forseti að smakka á framleiðsluvörum Marska. Adolf Berndsen er í baksýn í köflóttri peysu innan undir jakkanum.

1

9
10
11

75
Leita í myndasafninu
Leita