Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn080
Bernódus Ólafsson við vinnu sína úti á sjó.
Guðmundur Guðnason523
Réttað í Spákonufellsrétt. Konan til vinstri er Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti og bogni maðurinn til hægri er Lárus Árnason frá Ási (d. 21.5.2011).
Guðmundur Guðnason632
Myndin var tekin í september 1962 í ferð sem Guðmundur Guðnason fór um æskuslóðir sínar í Laxárdal. Þessi mynd sýnir vegghleðslur sem hafa haft þýðingu fyrir Guðmund. Sennilega eru þetta hleðslur bæjarins á Refstöðum gerðar af Karli Jónssyni <font size="1">(heimild: Skáldið frá Elivogum og fleira fólk eftir Rósberg G. Snædal)</font>
Guðmundur Guðnason516
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Páll Jónsson frá Reykholti (d. ?) er á miðri mynd. Aðrir eru óþekktir. </p>
Skagaströnd - safn449
Á myndinni er fyrsta hreppsnefnd Höfðahrepps sem varð til 1939 við skiptingu Vindhælishrepps hins forna í Skagahrepp, Höfðahrepp og Vindhælishrepp. Nú hafa Vindhælis- og Skagahreppur sameinast aftur í Skagabyggð og Höfðahreppur hefur skipt um nafn yfir í Sveitarfélagið Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason451
Dvalarheimilið Sæborg tekið í notkun. Soffía Lárusdóttir baráttukona fyrir byggingu Sæborgar í ræðustól.
Adolf H Bernsden - safn023
Hér standa, við framleiðsluvörur Marska, mennirnir á bak við fyrirtækið. Frá vinstri: Heimir Fjeldsteð framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar, Steindór R. Haraldsson framleiðslustjóri Marska og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf.
Guðmundur Guðnason529
Slegist við hross í stóðréttum í Spákonufellsrétt. Mennirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason528
<p>Í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Elínborg Árnadóttir Sólheimum (d. 7.4.1979), Kristín Björnsdóttir Jaðri, óþekkt, Ólafur Guðmundsson Brautarholti (d. 6.10.1985), Már Hall Sveinsson Réttarholti (d. 1.3.2008), óþekktur, Kári Kristjánsson Kárastöðum (d. 11.12.1990), Steingrímur Jónsson Höfðakoti (d. 15.1.1992), óþekktur, Sigurlaug Jónsdóttir Ási (d. 15.8.2011) og óþekktur. </p>
Adolf H Berndsen - safn022
Starfsstúlkur hjá Marska pakka framleiðsluvörum fyrirtækisins, rækju- og saltfisksrúllum og sjávarréttapizzum. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Guðmundur Guðnason518
Maðurinn fremst á myndinni er Jónatan Jónsson (17.7.1971) , kenndur við Hólagerði. Hann er við réttarstörf í Spákonufellsrétt. Til hægri sér í Jóhann Jakobsson Blálandi (d. 24.3.1987) að fanga lamb.
Guðmundur Guðnason532
Hér eru Húnvetnskir bændur með hrúta sína.Mennirnir eru frá vinstri: Ingvar Þorleifsson í Sólheimum og Auðunn Guðjónsson frá Marðanúpi síðan Árni Karlsson frá Víkum á Skaga (d. 19.7.2011) og Njáll Þórðarson á Blönduósi. Þá kemur Sigþór Sigurðsson í Brekkukoti, Reynir Hallgrímsson frá Kringlu, Heiðar Kristjánsson frá Hæli og óþekktur drengur. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason591
Félagsheimilið Fellsborg á lokastigum byggingarferilsins.
Skagaströnd - safn459
Ellefta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1978 - 1982. Elín Njálsdóttir var fyrsta konan sem kjörin var í nefndina.
Skagaströnd - safn455
Sjöunda hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1962 - 1966.
Skagaströnd - safn460
Tólfta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1982 - 1986.
Guðmundur Guðnason612
Þessi mynd er sennilega tekin kringum 1960 á hrútasýningu í einhverju af mörgum fjárhúsum á Skagaströnd sem þá stóðu. Frá vinstri á myndinni eru: Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) og sonur hans Hinrik Jóhannesson frá Ásholti. Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) frá Goðhóli, Jón Árnason (d. 11.4.1986) í Náttbrún og Jón Jónsson (d. 9.7.1991) í Asparlundi.
Skagaströnd - safn450
Þetta ar mynd af hreppsnefndarmönnum Höfðahrepps 1942 - 1946. Þeir sátu aðra hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939.
Skagaströnd - safn463
Fimmtánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1994 - 1998.
Guðmundur Guðnason533
Stóðréttir í ókunnri rétt. Hávaxni maðurinn í ljósu úlpunni er Magnús Blöndal (d. 7.9. 2001), hjá honum er Ásgeir Axelsson Litla Felli (d. 8.6.2011) og skeggjaði maðurinn með prjónahúfuna er Gunnlaugur Sigmarsson.
Adolf H Berndsen - safn025
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á myndinni er kynningarstandur fyrir utan Laugardagshöllina.
Skagaströnd - safn458
Tíunda hreppsnefnd Höfðahrepps frá því að hann var stofnaður 1939. Þessir menn sátu í nefndinni 1974 - 1978.
Guðmundur Guðnason590
Túnbraut 7 í byggingu. Húsið byggðu og bjuggu í Jón Pálsson og kona hans Björk Axelsdóttir með sínum börnum ásamt föður Jóns og systur, Páli Jónssyni (d. 19.7.1979) og Eddu Pálsdóttur. Jón tók við sem skólastjóri Höfðaskóla af föður sínum Páli þegar hann lét af störfum.
Skagaströnd - safn454
Sjötta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni voru í nefndinni 1958 - 1862.
Skagaströnd - safn457
Níunda hreppsnefnd Höfðahrepps frá því að hann varð til 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1970 - 1974.
Ólafur Bernódusson211
Á myndinni er verið að leggja bundið slitlag á veginn milli Skagastrandar og Blönduóss 1987. Vegagerðin ætlaði ekki að leggja á veginn alla en Skagstrendingur hf lánaði peninga til framkvæmdarinnar svo hægt væri að leggja á alla leið. Á myndinn sést brúin yfir Hrafná.
Skagaströnd - safn466
Átjánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2006 - 2010. Árið 2007 var nafni sveitarfélagsins breytt í: Sveitarfélagið Skagaströnd. Magnús Jónsson var ekki kjörinn fulltrúi heldur ráðinn sveitarstjóri.
Guðmundur Guðnason888
Allmiklar breytingar hafa orðið á Skólavörðuholtinu síðan þessi mynd var tekin árið 1963. Hún sýnir styttuna af Leifi Eiríkssyni - Leifi heppna en í baksýn er Hallgrímskirkja að rísa.
Skagaströnd - safn461
Þrettánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1986 - 1990.
Skagaströnd - safn464
Sextánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1998 - 2002.
Ólafur Bernódusson180
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Þórunn Óladóttir, óþekkt, Sylvía Hrólfsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir, óþekkt, Guðbjörg Kristinsdóttir, Sigrún Lárusdóttir, þrjár óþekktar, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Björn Ingi Óskarsson.
Guðmundur Guðnason530
<p>Réttað í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Konráð Klemensson Konnabæ (Garðhúsum) (d. 20.11.1981), Gunnlaugur Björnsson Harrastöðum (d. 8.5.1978 ), Ágúst Jakobsson Blálandi (d. 1.6.1989) ), Sveinn Ingi Grímsson og óþekktir. </p>
Guðmundur Guðnason449
Dvalarheimilið Sæborg tekið í notkun. Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri í ræðustól.
Guðmundur Guðnason474
Eggert Skarphéðinsson í Sólheimum (d. 2.6.1987) klöngrast út um baggagatið á hlöðunni sinni.
Adolf H Berndsen - safn014
Ole Aamundsen (Óli norski) í Lundi var m.a. umboðsmaður fyrir Shell olíufélagið á Skagaströnd. Hér er hann við birgðatank félagsins að auglýsa Rotella smurolíu frá Shell.
Guðmundur Guðnason491
Ragnar Arnalds alþingismaður heldur ræðu á framboðsfundi í Fellsborg. Fundarstjórinn Þorfinnur Bjarnason oddviti (d. 6.11.2005) situr við hlið ræðumanns. Á milli þeirra grillir í Ólaf Jóhannesson (d. 20.5.1984) alþingismann og forsætisráðherra. Aðrir eru óþekktir
Adolf H Berndsen - safn030
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á þessari mynd lýsir Örnólfur Thorlasíus heimsmetið gilt eftir að hafa sjálfur smakkað á pizzunni. Lengst til hægri í áhorfendaskaranum eru Pétur Eggertsson og Kári Lárusson. Nær okkur á myndinni til hægri er svo Ingibjörg Björgvinsdóttir eiginkona Steindórs.
Guðmundur Guðnason592
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), ljósmyndari þessarar myndar, var póstur á Skagaströnd í áratugi. Það er þess vegna ekkert skrítið þó hann tæki mynd af hillunum/hólfunum þar sem hann flokkaði póstinn áður en hann raðaði honum rétt í póstburðartöskuna og lagði af stað á hjólinu eða gangandi hús úr húsi.
Skagaströnd - safn452
Fjórða hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Þessir menn voru í nefndinni 1950 - 1954.
Skagaströnd - safn456
Áttunda hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1966 - 1970.
Guðmundur Guðnason513
Hér eru þeir Hartmann Jóhannesson frá Garði (d. 1976) til vinstri og Þorkell Magnússon frá Goðhól (d. 30.8.1968) að draga sundur fé í Vindhælisrétt.
Adolf H Bernsden - safn024
Hér er Anna Bjarnadóttir blaðamaður að bíða eftir að fá að smakka sjávarrétta Crepes framleitt hjá Marska úr höndum kokks á hótel Loftleiðum. Næstur í röðinni er svo Haukur Alfreðsson verkfræðingur.
Guðmundur Guðnason520
Drengurinn á myndinni er Árni Björn Birgisson Streumnesi. Aðrir sem eru þarna í Spákonufellsrétt eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason024
Þessi mynd var líklega tekin í Laxárdal og fólkið á myndinni er líklega Klemensína Klemensdóttir (d. 12.6.1966) og sonur hennar Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu. Klemensína og Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) maður hennar voru síðustu ábúendur á Vesturá í Laxárdal með sonum sínum en þau fluttu þaðan 1939.
Skagaströnd - safn467
Nítjánda hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd (áður Höfðahreppur) frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2010 - 2014. Magnús Jónsson ekki kjörinn fulltrúi í nefndinni heldur ráðinn sveitarstjóri.
Adolf H Berndsen - safn003
Stefán Stefánsson (d.2.1.1988) stýrir bát sínum Ósk til lands eftir gráslepputúr. Óskin dregur tvo minni báta sem notaðir voru til að vitja um netin þegar komið var á miðin. Með Stefáni um borð voru Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og fóru þeir um borð í skekturnar, vitjuðu um trossurnar og svo kom Stefán á Óskinni, sótti aflann og dró skektuna að næstu trossu. Grásleppan var svo skorin um borð í Óskinni þegar tóm gafst til milli trossa og/eða á landleiðinni.
Guðmundur Guðnason531
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Frá vinstri: Kenny Hallbjörnsdóttir, Eggert Skarphéðinsson Sólheimum (d.2.6.1987), óþekktir og Guðmann Magnússon frá Vindhæli (d.22.11.2000).
Skagaströnd - safn470
Róbert Kristjánsson sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2014 - 2018. Hann var síðan endurkjörin fyrir kjörtímabilið 2018 - 2022.
Guðmundur Guðnason515
Pétur Jónsson Stóra Bergi ( d. 18.2.1966) til vinstri og Árni Daníelsson Eyjarkoti (d. 28.6.1970) til hægri við réttastörf í Spákonufellsrétt að sumri til þegar fénu var smalað til rúnings. Maðurinn sem bograr yfir kind til vinstri er Andrés Guðjónsson kaupmaður í Andrésarhúsi (d. 5.10.1968).
Guðmundur Guðnason521
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti (d. 6.10.1985) skoðar mark á kind. Takið eftir neftóbakskrukkunni og vasaklútnum í vinstri hendi hans.
Guðmundur Guðnason525
Guðni Sveinsson frá Ægissíðu (d. 15.11.1971) hugar að marki á kind í dilk í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason884
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi árið 1963. Verksmiðjan er nú horfin og komin íbúðabyggð í staðin á svæðinu.
Skagaströnd - safn465
Sautjánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2002 - 2006.
Skagaströnd - safn451
Á þessari mynd er þriðja hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Þessir menn voru í nefndinni 1946 - 1950.
Skagaströnd - safn469
Steindór Rúniberg Haraldsson sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2014 - 2018.
Ólafur Bernódusson148
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd er Adolf J. Berndsen oddviti Höfðahrepps í ræðustól en Jóhann Ásgeirsson starfsmaður Hólaness hf hlustar á.
Skagaströnd - safn471
Adolf H. Berndsen sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd um árabil þar á meðal kjörtímabilið 2014 - 2018 og þá sem oddviti.
Skagaströnd - safn453
Fimmta hreppsnenfd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Þessir menn sátu í nefndinni 1954 - 1958.
Guðmundur Guðnason014
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir nema maðurinn hægra megin uppi í bátnum er Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) fá Holti. Sjá má einkennisstafina ST á bátnum sem nær lengst til vinstri. Ef þú þekkir mennina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason600
Þessi mynd er sennilega tekin 1961. Myndin er úr Kálfshamarsvík og sýnir flota síldarbáta sem eru í vari við Kálfshamarsnesið.
1
…
11
12
13
…
75
Leita í myndasafninu
Leita