Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson175
Fyrstu árin eftir að stjórnsýsluhúsið var byggt var Hótel Dagsbrún rekið á miðhæðinni. Fyrstu rekstraraðilar hótelsins voru hjónin Sveinn Ingi Grímsson og Líney Jósefsdóttir. Þau eru hér fremst á myndinni til hægri en síðan koma tvær starfsstúlkur, Þórhalla Þórhallsdóttir og óþekkt kona. Myndin var tekin í veitingasal hótelsins en það var í eigu Skagstrendings hf á þessum tíma. Eftir að þau hjón Sveinn Ingi og Líney hættu rekstri hótelsins hafa nokkrir aðilar spreytt sig á að reka það en allir hætt þannig að í nokkur ár hefur engin starfsemi farið þar fram. Hótelið er nú í eigu Fisk Seafood á Sauðárkróki. Ef þú veist hvað konan lengst til vinstri heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson269
Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er búið að hífa Skarfinn úr kafi og verið að dæla úr honum sjó. Björgunarsveitarbáturinn Þórdís kom að góðu gagni við að ná Skarfinum upp en um borð í honum má sjá Guðmund Jón Björnsson lengst til hægri en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson079
Mörgum finnst gott að eiga lítinn bát til að geta sótt sér fisk í soðið. Allmargar jullur og smærri trillur eru því til á Skagaströnd en slíkir bátar þarfnast aðstöðu við hæfi eins og aðrir stærri bátar. Vorið 1993 gerðu trillu- og jullukarlar samning við sveitarstjórn um að fá að smíða flotbryggju fyrir báta sína og jafnframt um staðsetningu hennar í höfninni. Samningurinn fól í sér að sveitarfélagið skaffaði efni í bryggjuna en bátakarlarnir skyldu smíða hana og hjálpa til við að koma henni fyrir. Voru báðir aðilar ánægðir með samninginn. Fljótlega tók hópurinn á myndinni sig til og smíðaði tvær flotbryggjulengjur sem tengdar voru saman í eina bryggju þannig að það myndaðist viðlegupláss fyrir allmargar jullur. Var bryggjunni komið fyrir ofan við (norðan við) og í skjóli við smágarð. Reynslan af þessari bryggju var svo góða að nokkrum árum síðar lét sveitarfélagið byggja aðra eins og koma fyrir á sömu slóðum. Á þessari mynd eru hressir bátakarlar við nýsmíðaða flotbryggju - lengju 1993. Frá vinstri: Jóhann Sigurjónsson, Guðmundur Björnsson, Baldvin Hjaltason, Vilhjálmur Skaftason, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Þorvaldur Skaftason, Stefán Jósefsson, Árni Björn Ingvarsson og Árni Geir Ingvarsson. Á myndina vantar Ragnar Smára Ingvarsson og Ólaf Bernódusson sem tók þessa mynd. Þess má geta að nú 20 árum eftir smíðina eru bryggjurnar enn í fullri notkun yfir sumarmánuðina.
Ólafur Bernódusson456
Mynd frá byggingu Sægarðs í júlí 1991. Á myndinni er verið að keyra út kjarnann í bryggjunni. Bílinn var H 144 í eigu Harðar Ragnarssonar.
Ólafur Bernódusson178
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd flytur Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frumsamið ljóð í hófinu.
Ólafur Bernódusson194
1987 varð bruni í Sæbóli sem stóð ekki langt frá þar sem leikskólinn Barnaból stendur í dag. Guðmundur Óskarsson svaf í húsinu þegar eldurinn kom upp eldsnemma morguns og brenndist hann mjög illa og var lengi að komast á fætur aftur. Á þessari mynd er Hörður Ragnarsson slökkviliðsmaður að skoða skemmdir á húsinu eftir að eldurinn hefur verið slökktur.
Ólafur Bernódusson276
Þessir þrír menn báru hitan og þungan af byggingu Hólaneskirkju síðustu byggingarárin. Frá vinstri: séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur, Kristján Helgi Gunnarsson byggingameistari kirkjunnar og Lárus Ægir Guðmundsson formaður bygginganefndar.
Ólafur Bernódusson161
Arnar Hu 1 var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf en hann kom nýsmíðaður frá Japan 1973. Hér er Arnar að leggja að bryggju á Skagaströnd sumarið 1987.
Ólafur Bernódusson093
Þessi mynd var tekin við skírn nýsmíðarinnar Laxdal NS110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar 1982 eða 83. Á myndinni eru frá vinstri: Pétur Eggertsson, Hallbjörn Björnsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Gísli Snorrason, Hjörtur Guðbjartsson, þrír óþekktir, Hendrik Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Adolf J. Berndsen.
Ólafur Bernódusson394
Sem unglingur var Þröstur Árnason með andarækt og seldi hann úr þeim eggin til fólks á Skagaströnd. Þetta fyrirtæki Þrastar endaði þó illa því minkur komst í andabúið og drap allar endurnar. Þröstur kom þó við krók á móti bragði og tókst að veiða og drepa minkinn. Á þessari mynd frá því í apríl 1990 er Þröstur með minkinn í hendinni og fórnarlömb minksins liggja á jörðinni í kring.
Ólafur Bernódusson138
Stjórnsýsluhúsið í byggingu. Myndin var tekin 1986 eða 1987.
Ólafur Bernódusson222
Séð yfir salinn í suamastofunni Violu á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu á Skagaströnd í nóvember 1987. Saumakonurnar eru frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Guðný Finnsdóttir og óþekkt.
Ólafur Bernódusson265
Báturinn á miðri mynd, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 eins og hann er á myndinni þ.e. bara skelin. Hann var þá stærsti plastbáturinn í Íslenska flotanum. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffærann. Hér hann nýkomin og vinna við hann ekki hafin. Helga Björg Hu 7 er aftan við Þóri en óþekktur bátur fyrir framan.
Ólafur Bernódusson119
Vorið 1986 var haldið námskeið fyrir starfsfólk Rækjuvinnslunnar. Á þessari mynd sést hluti starfsmannanna hlusta á einhvern óþekktan leiðbeinanda. Frá vinstri: Heimir Fjeldsteð, þrír óþekktir leiðbeinendur og Guðrún Angantýsdóttir.
Ólafur Bernódusson144
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd sér yfir salinn í kaffistofunni þar sem starfsmenn Hólaness hf og aðrir gestir njóta kaffiveitinga í tilefni dagsins.
Ólafur Bernódusson370
Hofskirkja að lokinni endurbyggingu í desember 1989. Kirkjan er líklega elsta timburbygging í Húnavatnssýslum sem enn stendur. Hún var byggð 1876 en gerðar voru á henni lagfæringar um 1950 og síðan var hún endurbyggð 1989, eins og áður segir. Kirkjan var síðan friðuð 1. janúar 1990. Hofsprestakall var lagt niður og fært undir Höskuldsstaði árið 1907 en tilheyrir Skagastrandarprestakalli í dag eins og Höskuldsstaðakirkja. Í kirkjunni er ævagamall trénegldur predikunarstóll með myndum af guðspjallamönnunum. Altaristaflan, sem sýnir upprisuna, er líka gömul og er hún talin vera verk einhvers íslensks listamanns. Jón Árnason þjóðsagnasafnari fæddist á Hofi, sonur Árna Illugasonar prests þar.
Ólafur Bernódusson225
Raðhúsin á Ránarbraut 17 - 23 nýbyggð haustið 1987. Á þessari mynd eru þau fokheld, máluð með gleri og hurðum en ófrágengin að innan. Það var Eðvarð Hallgrímsson byggingarmeistari sem byggði húsin fyrir eigin reikning og seldi þau síðan.
Ólafur Bernódusson220
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri saumastofunnar Violu innan um framleiðsluvörur saumastofunnar. Sjálfur klæðist hann peysu sem var vinsæl framleiðsluvara Violu. Saumastofan var rekin á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu. Myndin var tekin í nóvember 1987.
Bjarni Jónsson 20
Myndin er af jólakorti eftir Bjarna Jónsson frá 1992. Hún sýnir vel vinnubrögð við að setja bát í naust eins og menn gerðu í gamla daga áður en bryggjur voru byggðar til að láta bátana liggja við. Víða um land, við sjávarsíðuna, má finna leifar af handspilum eins og sést á myndinni. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson451
<p>Á þessari mynd sem tekin var í júní 1991 er allt pláss í slippnum í notkun. Egill BA 468, Jón Kjartan Hu 27 og Auðbjörg Hu 6 eru í vinnslu.</p>
Ólafur Bernódusson120
Vorið 1986 var haldið námskeið fyrir starfsfólk Rækjuvinnslunnar. Á þessari mynd er Steindór R. Haraldsson sem þá vann hjá Marska sem hýst var í Rækjuvinnslunni.
Bjarni Jónsson 27
Bátar á leið til lendingar og heimafólk kemur hlaupandi til að hjálpa. Myndin er eftir Bjarna Jónsson frá árinu 1988 er hún var á jólakorti. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson147
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson starfsmaður Hólaness hf í ræðustól. Í forgrunni hlustar Jóhann Ásgeirsson á ræðu Bernódusar.
Bjarni Jónsson 40
Á þessari mynd Bjarna Jnssonar undirbýr kona smjörgerð með strokki. Myndin var á jólakkorti líklega árið 1981. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson272
Í desember 1988 var komið fyrir ruslapressu um borð í Arnari Hu 1. Var þetta gert til að minnka umfang ruslsins, sem getur orðið umtalsvert, á þessum 26 manna vinnustað í löngum 30 - 35 sólarhringa túr. Maðurinn á myndinni er Gunnar Reynisson kokkur á Arnari.
Ólafur Bernódusson421
Þessi fríski hópur vann að þökulagningu í ágústlok 1990 í hallanum sunnan við Stóra Berg, sem sést í baksýn, en það stóð sunnan við Fellsbraut nálægt kirkjunni. Á myndinni eru frá vinstri: Þóra Ásgeirsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Magnús Helgason, Milan Djurica, Kristín Þórðardóttir, Bryndís Ingimarsdóttir (aftast), Ragnar Friðrik Gunnlaugsson, Þröstur Árnason, Jóhannes Indriðason, Jósef Stefánsson og Hjörtur Jónas Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson270
Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er verið að hífa kranabílinn aftur upp úr kafinu með öflugum krana sem fengin var til verksins.
Ólafur Bernódusson113
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) reri stundum til fiskjar að gamni sínu og til að ná sér í fisk í soðið. Almennt voru þorskarnir sem hann dró ekki eins stórir og þessi sem mældist 140 cm á lengd og vó 38 kg. Þorskinn fékk Skafti í róðri vorið 1986.
Bjarni Jónsson 38
Myndin er af jólakorti eftir eftir Bjarna Jónsson. Líklega var hún þá kortum jólin 1982. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Óskar Kristinsson - safn178
Myndin var tekin á einhverri árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg. Á henni eru stjórnarmenn og framkvæmdastjóri félagsins að taka þátt í léttu gríni. Mennirnir eru, frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson veislustjóri, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri, Gylfi Sigurðsson og Hallbjörn Björnsson.
Ólafur Bernódusson271
Fegrunarátak var gert á Skagaströnd sumarið 1988. Á þessari mynd er fólk sem tók sig til í ágúst það ár og málaði Drangey að utan. Húsið hafði þá verið í niðurníðslu um tíma svo ekki var vanþörf á að gefa því andlitslyftingu. Málararnir eru frá vinstri: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Kristinsdóttir, Axel Hallgrímsson, Vigdís Viggósdóttir og Ingibjörg Kristinsdóttir. Ekki er vitað hvert barnið á myndinni er. Drangey var seinna rifin en húsið stóð norðan við Fellsbraut fyrir neðan Ásgarð, beint á móti kirkjunni.
Ólafur Bernódusson361
28. október 1989 sökk trillan Frami Hu 25 á miðunum nálægt Hofsgrunni. Eigandinn, Þorvaldur Skaftason, var einn um borð og komst hann í gúmmíbjörgunarbát og sendi upp neyðarblys, sem sást frá landi. Björgunarsveitin Strönd brást fljótt við og fór á Þórdísi og bjargaði Þorvaldi. Á þessari mynd er björguninni lokið og félagarnir í björgunarsveitinni eru að draga gúmmíbjörgunarbátinn upp á bryggju. Guðmundur Jón Björnsson snýr baki í myndavélina, Magnús Sigurðsson er honum til hjálpar og Ástmar Kári Ástmarsson er um borð í Þórdísi.
Ólafur Bernódusson228
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Lengst frá okkur, með loðhúfu, er Sigurjón Guðbjartsson sem leiddi hópinn í allan sannleik um notkun tækjanna. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Hafdal, Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson og Magnús Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson216
Löndun úr Örvari Hu 21 í apríl 1988. Löndunarmaðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson092
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) flytur ræðu í tilefni af skírn nýsmíðarinnar Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð sinni árið 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson198
Á þessari mynd er verið að steypa sökkla undir raðhúsin að Ránarbraut 17 - 23 árið 1987. Bílstjóri steypubílsins er óþekktur en hinir eru, frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Einar Ásgeirsson (snýr baki í myndavélina) og Þorsteinn Jónsson.
Ólafur Bernódusson242
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri og útgerðarmaður um borð í bát sínum Auðbjörgu Hu 6 í lok maí 1988. Auðbjörgina gerði Gunnar út í mörg ár til rækjuveiða frá Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson094
Laxdal NS 110, smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, á sinni fyrstu reynslusiglingu 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson239
Sveinn Garðarsson (d.17.2.2019) við vinnu sína á bryggjunni í maí 1988.
Ólafur Bernódusson241
Stefán Jósefsson skipstjóri um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 í lok maí 1988. Stefán gerði Ólaf Magnússon út á rækjuveiðar í mörg ár. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson354
Litlu mundaði að vöruflutningabíll, fulllestaður af rækjuafurðum, ylti í sjóinn fyrir neðan Hafnarhúsið á Skagaströnd í mars 1989. Steypta þekjan á planinu gaf sig undan þunga bílsins þannig að annað afturhjólið sökk á kaf.
Ólafur Bernódusson428
Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson349
Ný flæðilína var mikil framför í fiskvinnslunni í frystihúsi Hólaness hf. Þessi mynd var tekin í janúar 1989 þar sem konurnar eru að vinna við nýju flæðilínuna í sal frystihússins.
Ólafur Bernódusson129
Sumarið 1986 dældi dæluskipið Hákur sandi úr höfninni til að dýpka hana. Sandinum var dælt vestur fyrir verksmiðju og þannig búin til uppfylling. Hákur sést á þessari mynd við dælinguna.
Ólafur Bernódusson420
Ein af jólabókunum 1990 var bók um Hallbjörn Hjartarson. Þessi mynd var tekin heima í stofu hjá Hallbirni í ágúst 1990 þegar þeir Hallbjörn og Páll Ásgeir Pálsson, höfundur bókarinnar, voru að fara yfir próförk af bókinni.
Ólafur Bernódusson267
Áhöfnin á Örvari Hu 21 hélt upp á 300 milljóna aflaverðmæti á kvótaárinu í september 1988, sem þá þótti gríðarlega mikið. Frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson, Árni Sigurðsson, Páll Valgeirsson, Gylfi Guðjónsson, Kristján Alexandersson, Gunnar Jónsson, Finnur Kristinsson, Sigurbjörn Björgvinsson, Jóhannes Simonsen, Hjörtur Guðbjartsson (í efstu röð), Guðjón Sigtryggsson skipstjóri, Sævar Hallgrímsson, Björgvin Karlsson, Axel Hallgrímsson (í efstu röð), Sigurður M. Alexandersson, Ingibjörn Sigurjónsson, Quentin Bates, Ingólfur Sveinsson, Óli Sigurjón Pétursson, Þórarinn Grétarsson (í efstu röð), Rögnvaldur Ottósson, og Hafsteinn Pálsson. Myndin var tekin í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson229
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Jakob Guðmundsson og Guðmundur J. Björnsson.
Ólafur Bernódusson213
Að lokinni slysavarnaæfingu í nóvember 1987. Ávallt þarf að skola seltuna af flotbúningunum áður en þeir eru þurrkaðir. Á myndinni er Jóhannes Sveinsson að skola af Hendrik Berndsen sem er í flotbúningnum.
Ólafur Bernódusson197
Á þessari mynd er verið að steypa sökkla undir raðhúsin að Ránarbraut 17 - 23 árið 1987. Bílstjóri steypubílsins, sem stendur við bílinn, er líklega Jónas Hrólfsson en hinir eru, frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Eðvarð Hallgrímsson byggingameistari og sá sem byggði húsin, Þorsteinn Jónsson og Einar Ásgeirsson.
Bjarni Jónsson 24
Jólakort eftir Bjarna Jónsson, líklega frá 1991. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson090
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson blessar nýsmíðina Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar árið 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson418
Sveinn Ingi Grímsson var grenjaskytta um árabil. Hér er hann nýkominn af greni sumarið 1990 með yrðling sem hann tók lifandi eftir að hafa eytt foreldrum hans. Það merkilega við yrðlinginn er að hann er greinilega blendingur villts dýrs og búrdýrs sem hefur sloppið úr búri sínu.
Ólafur Bernódusson268
<p>Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er síðan annar krani að hífa Skarfinn úr kafinu eftir óhappið. </p>
Ólafur Bernódusson133
Sumarið 1986 voru kofasmíðar barna á lóð sunnan við Höfðaskóla. Kofasmíðarnar voru einn þáttur í leikjanámskeiði barnanna og var þátttaka þeirra mjög góð. Var þetta með fyrstu árunum sem boðið var upp á leikjanámskeið fyrir börn að sumri á Skagaströnd. Börnin á myndinni eru því miður óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson- safn
Þessi mynd var tekin á Skúffugarðinum eftir mikið rok sem gekk yfir Skagaströnd. Svo mikið var rokið að tómur 40 feta gámur sem stóð á Skúffugarðinum fauk út í höfnina og endaði inn í krikanum hinum megin í höfninni þar sem hann sökk.Gámurinn hafði viðkomu á bryggjukantinum sem brotnaði eins og sjá má á myndinni. Hann fauk yfir bátinn Sigurð sem sést á myndinni án þess að snerta hann og olli engum skaða með flugferð sinni. Gámurinn til hægri fór líka af stað en stöðvaðist áður en hann fór í sjóinn.
Ólafur Bernódusson285
Á þessari mynd frá því í júlí 1989 sjást byrjunarframkvæmdir við byggingu smágarðs við Skúffugarðinn. Verið er að reka niður bryggjustaur með loft/vökvahamri.
Ólafur Bernódusson396
Þessi mynd var tekin af Magnúsi B. Jónssyni við störf sín í Búnaðarbanka Íslands, útibúinu á Skagaströnd, í maí 1990 skömmu áður en hann tók við starfi sveitarstjóra Höfðahrepps.
Ólafur Bernódusson176
Björgunarsveitin Strönd keypti hraðskreiðan björgunarbát frá Noregi 1987. Bátnum var gefið nafnið Þórdís og hér sést hann í einni af fyrstu prufusiglingunum. Um borð er Ástmar Kári Ástmarsson lengst til hægri en hinir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson488
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum. Þessi mynd er af kokkunum sem grilluðu ofan í mannskapinn. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Björgvin karlsson, Sigríður Gestsdóttir, Steindór R. Haraldsson, Sigurjón Guðbjartsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson219
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 21 eftir góðan túr í apríl 1988.
1
…
13
14
15
…
75
Leita í myndasafninu
Leita