Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 509

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd ávarpar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri áhöfn og gesti. Lengst til hægri er Gunnar Sveinsson þá Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður og dóttir hans Elva Dröfn Árnadóttir. Aðrir eru óþekktir.

Ólafur Bernódusson279
Kvenfélagið Einingin hefur reynst Skagstrendingum ákaflega þarft félag. Hafa konurnar í félaginu t.d. verið iðnar við að safna fé og gefa ýmis tæki til heilsugæslunnar á staðnum auk þess að bera hag aldraðra mjög fyrir brjósti. Þessi mynd var tekin í júní 1989 í læknisbústaðnum/heilsugæslunni af nokkrum Einingarkonum eftir að þær höfðu fært stofnuninni ný tæki. Frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Særún Jónsdóttir, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Þórunn Þorláksdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Lísebet Gestsdóttir, Birna Blöndal, Hjördís Sigurðardóttir og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010).
Ólafur Bernódusson433
Skagastrandarhöfn full af bátum og togurum í október 1990.
Ólafur Bernódusson426
Guðbjartur Guðjónsson við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson359
Leiguíbúðirnar að Skagavegi 10 - 12 teknar í notkun í september 1989.
Ólafur Bernódusson282
Hofskirkja í endurbyggingu í júlí 1989.
Ólafur Bernódusson234

Dýpkunarskipið Grettir vinnur að dýpkun hafnarinnar í júní 1988.

Ólafur Bernódusson429
Kolbrún Viggósdóttir við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson373
Magnús B. Jónsson, oddviti Höfðahrepps, þakkar Elínborgu Jónsdóttur (d.7.1.2007), formanni ritnefndar vel unnin störf við útkomu bókarinnar: Byggðin undir Borginni, í desember 1989. Lárus Ægir Guðmundsson (með gleraugu) ritnefndarmaður og Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar fylgjast með.
Óskar Kristinsson safn136
Á myndinni, sem Hjörtur Guðbjartsson tók um borð í frystitogaranum Örvari Hu 2, er verið að sjósetja, eða taka um borð, gúmmítuðruna sem var þar. Uppi í tuðrunni er Ragnar Högnason. Guðmundur Gunnlaugsson er í köflóttri skyrtu við stefni bátsins en aðrir eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson452

Þessi mynd var tekin í júní 1991 af vinnu við bát í slippnum. Kári Lárusson er fyrir neðan stigann en hann rak slippinn á þessum tíma. Hinir mennirnir eru óþekktir.

Óskar Kristinsson safn132
Gunnar Þór Gunnarsson kokkar um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hjörtur Guðbjartsson tók hana.
Óskar Kristinsson safn133
Þessa mynd af Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra tók Hjörtur Guðbjartsson um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum 1992 - 1995. Ebbi var farsæll og fengsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um áratugi.
Ólafur Bernódusson427
Fjóla Jónsdóttir til vinstri og Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) við skógrækt í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson485
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum.
Óskar Kristinsson - safn176
Unnið að vírasplæsingu um borð - líklega í isfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Alexandersson, óþekktur, Kristján Alexandersson, Jón Gunnarsson og Ingvar Þór Jónsson.
Ólafur Bernódusson 508

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd ávarpar Magnús Schram áhöfn og gesti. Magnús vann lengi að sölumálum á afurðum fyrir skip Skagstrendings hf, fyrst hjá Asiaco og síðar hjá sölufyrirtæki Skagstrendings hf.

Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn008
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Myndin var tekin í kaffitíma. Frá vinstri: Ottó Ákason (d. 17.9.2005), Guðmundur ? fiskmatsmaður, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý) og Inga Kristjánsdóttir.
Ólafur Bernódusson419
Myndin var tekin á fyrsta fundi nýkjörinnar hreppsnefndar Höfðahrepps í júní 1990. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Sveinn S. Ingólfsson, Þorvaldur Skaftason, Elín Njálsdóttir og Adolf J. Berndsen.
Guðmundur Guðnason124
Þessir óþekktu menn eru óvenjulega fínir við að rifja. Myndin gæti verið tekin í Langadal en mennirnir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær hún var tekin. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 499

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar.

Ólafur Bernódusson 498
Hallbjörn Hjartarson bauð til veislu í veitingastað sínum Kántrýbæ í nóvember 1992 í tilefni af því að hanna var að opna Útvarp Kántrýbæ á efri hæðinni. Á þessari mynd njóta gestir veitinga á básunum sem einkenndu gamla Kántrýbæ. Á básnum næst okkur eru Gunnlaugur Sigmarsson og Magnús B. Jónsson. Á næsta bás þekkist Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) bróðir Hallbjörns og textahöfundur við nokkur laga hans. Aðrir eru óþekktir
Ólafur Bernódusson431
Ardís Ólöf Arelíusdóttir, til vinstri, og Ragnheiður Sigurjónsdóttir við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson 505

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd , sem tekin var í borðsalnum, njóta gestir veitinga. Frá vinstri: Steindór Haraldsson, Þórarinn Grétarsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Ófeigur Gestsson. Sitjandi við borðið er Steinunn Berndsen ásamt fleirum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn001
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd eru Sigfús Sævar Sigurðsson og Sigrún Benediktsdóttir í kaffipásu inni á kaffistofu.
Ólafur Bernódusson 490
Litháenski togarinn Sterkas landar rækjufarmi á Skagaströnd í júlí 1992. Kaupandi var Hólanes hf fyrir hönd Rækjuvinnslunnar.
Guðmundur Guðnason054
Þessi vörubíll er sennilega af Chevrolet gerð. Ekki er vitað hver átti þennan bíl en myndin var tekin á heimkeyrslunni að Laufási og Melstað sem þá stóð uppi sunnan við Laufás.
Ólafur Bernódusson463
Í október 1991 kom Röst Sk 17 til hafnar á Skagaströnd því báturinn hafði fengið á sig brotsjó á miðunum og gluggi í brúnni brotnaði og bleyta komst í tæki í brúnni. Þessi mynd var tekin af skipstjóranum, Finni Sigurbjörnssyni, sem sýnir að ramminn, sem hélt rúðunni, brotnaði við átökin og í baksýn má sjá hvernig skipverjar lokuðu glugganum eftir óhappið.
Ólafur Bernódusson388
Veturinn 1990 smíðaði Helgi Gunnarsson sumarhús fyrir Verkalýðsfélag Skagastrandar. Var húsið smíðað inni á verkstæði Helga en síðan dregið út nánast fullbúið í júní 1990 og síðan flutt burtu og komið fyrir á sínum stað. Á myndinni er verið að draga húsið út. Helgi Gunnarsson er lengst til vinstri og faðir hans Gunnar Helgason er sá með húfuna. Hinir tveir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson288
Frá afhjúpun minnisvarða um Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) fræðimann frá Syðra-Hóli. Á þessari mynd, sem tekin var í ágúst 1989, flytur Elínborg Jónsdóttir ( d. 7.1.2007) ræðu en hún var ein af forgöngumönnunum um að minnisvarðinn var reistur.
Ólafur Bernódusson224
Séð yfir salinn í saumastofu Violu á efstu hæðinni í Gamla kaupfélagshúsinu í nóvember 1987. Konurnar eru óþekktar nema Guðný Finnsdóttir er lengst til hægri.
Ólafur Bernódusson281
Kvenfélagið Einingin hefur reynst Skagstrendingum ákaflega þarft félag. Hafa konurnar í félaginu t.d. verið iðnar við að safna fé og gefa ýmis tæki til heilsugæslunnar á staðnum auk þess að bera hag aldraðra mjög fyrir brjósti. Á þessari mynd frá júní 1989 standa stjórnarkonur Sjúkrasjóðs Einingar við ný tæki sem kvenfélagið færði heilsugæslunni að gjöf. Frá vinstri: Birna Blöndal, Ása Jóhannsdóttir og Soffía Lárusdóttir( d. 31.3.2010).
Ólafur Bernódusson417
Bar var opnaður á hótel Dagsbrún í júní 1990. Var það að öllum líkindum fyrsti barinn sem opnaður var frá því að gistihúsið í Viðvík lagði upp laupana. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ingibjörn Sigurjónsson, Árni Geir Ingvarsson, Ágúst Ómarsson og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Ólafur Bernódusson371
Kristján Kristjánsson (d. 10.10. 2007) frá Steinnýjarstöðum, sóknarnefndarformaður í Hofssókn og Rafn Sigurbjörnsson frá Hlíð, oddviti Skagahrepps, á tröppum Hofskirkju eftir að endurbyggingu hennar var lokið í desember 1989. Kristján er til vinstri á myndinni.
Ólafur Bernódusson 506

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Þessi mynd var tekin af gestum við að skoða millidekkið. Frá vinstri Ingólfur Bjarnason og Hörður Ragnarsson en aðrir eru óþekktir.

Ólafur Bernódusson397
Ingibjörg Kristinsdóttir við vinnu sína á skrifstofu Skagstrendings hf í maí 1990.
Ólafur Bernódusson435
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á þessari mynd má m.a. sjá Bjarnhildi Níelsdóttur og Elísabet Eik Guðmundsdóttur lengst til vinstri. Elín Ósk Ómarsdóttir er fyrir miðri mynd og við hlið hennar, hægra megin, er Pétur Hinrik Herbertsson. Viðar Guðmundsson er strákurinn í köflóttu skyrtunni hægra megin við Pétur. Aftan við Pétur sitt hvoru megin sjást tvíburasysturnar Áslaug og Vilborg Jóhannsdætur.
Ólafur Bernódusson407
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd er á fremsta bekk hluti af kennaraliði skólans þennan vetur. Frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Vilborg Magnúsdóttir með Báru Kristinsdóttur, dóttur sína, í fanginu, Jóhanna Jónsdóttir, Sigríður Laufey Einarsdóttir, Erla ?? og Stefán Ægir Lárusson.Ef þú veist hvers dóttir Erla er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson459
Þetta stykki á myndinni er hluti af hverflum Blönduvirkjunar. Þetta var á sínum tíma þyngsti einstaki hlutur sem farið hafði um Skagastrandarhöfn. Fenginn var sérstakur krani til að lyfta hlutnum úr skipi á flutningavagn og dráttarbíll dró hlutinn að virkjuninni. Myndin var tekin í júlí 1991. Gaman getur verið að telja öll hjólin sem þurfti til að koma hlutnum á áfangastað.
Ólafur Bernódusson430
Skógræktarfólk í hlíðum Spákonufells í júlí 1990. Frá vinstri: Ragnheiður Sigurjónsdóttir, óþekkt barn, Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó), Fjóla Jónsdóttir, Jökulrós Grímsdóttir með barn, Gunnar Helgason, Guðrún Elsa Helgadóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, María Magnúsdóttir, Guðbjartur Guðjónsson og Jón Jónsson sem lengi var formaður og aðal driffjöður Skógræktarfélags Skagastrandar.
Ólafur Bernódusson289
Frá afhjúpun minnisvarða um Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) fræðimann frá Syðra-Hóli. Á þessari mynd, sem tekin var 30. júlí 1989, á aldarafmæli fræðimannsins, afhjúpar Magnús Björnsson bóndi á Syðra Hóli, og afabarn hans, skjöld með mynd af afa sínum. Rúnar Kristjánsson fylgist með en hann var einn af forgöngumönnum þess að minnisvarðinn var reistur.
Ólafur Bernódusson481

Þessi mynd var tekin í júní 1992 af hópi krakka og leiðbeinenda eftir vel heppnaðan gróðursetningardag í hlíðum Spákonufells. Í fremstu röð frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir, Arnar Ólafur Viggósson, Jóhannes V. Grétarsson, Jón Örn Stefánsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og óþekkt. Í annarri röð frá vinstri: Gestur Arnarson, óþekktur, Sigurður Berndsen, Árni Max Haraldsson, Ástmar Sigurjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Ragna Gunarsdóttir, óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir og Salóme Ýr Rúnarsdóttir. Aftast eru frá vinstri: Guðjón Magnússon leiðbeinandi og Kristján Gunnar Guðmundsson. Það er gaman fyrir þetta fólk að líta yfir svæðið í dag og sjá góðan árangur starfs síns í plöntum sem nú eru um tveggja metra há tré.

Ólafur Bernódusson458
Jarðýta kemur með skipi til Skagastrandar í júlí 1991.
Óskar Kristinsson safn135
Sigurbjörn Björgvinsson albúinn að fara um borð í gúmmítuðruna um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Kvenfélagið Eining - safn092
Mynd af hluta þeirra lækningatækja sem kvenfélagið Eining hefur fært heilsugæslunni á Skagaströnd að gjöf.
Ólafur Bernódusson462
Í október 1991 kom Röst Sk 17 til hafnar á Skagaströnd því báturinn hafði fengið á sig brotsjó á miðunum og gluggi í brúnni brotnaði og bleyta komst í tæki í brúnni. Þessi mynd var tekin af Röstinni á leið í höfn.
Ólafur Bernódusson375
Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar: Byggðin undir Borginni, áritar bókina á útgáfudegi í desember 1989.
Ólafur Bernódusson445
Þessar fjórar konur settu á stofn saumastofu í desember 1990. Þær nefndu fyrirtæki sitt Saumasmiðjan og var hún til húsa á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu þar sem nú er Rannsókasetur Háskólans og Námsstofa. Konurnar eru frá vinstri: María Alexandersdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó), Fjóla Jónsdóttir og Ingunn Björnsdóttir.
Ólafur Bernódusson478
Þessi mynd var tekin í desember 1991 af vinnuflokknum sem var að vinna að gerð nýju bryggjunnar Sægarðs í Skagastrandarhöfn. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson bifreiðastjóri, Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) verkstjóri, Magnús Bjarni Blöndal (d. 7.9.2001), Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020), Rúnar Jóhannsson, Guðjón Árnason, Ólafur Sigurjónsson og Ólafur Bernódusson.
Ólafur Bernódusson460
Myndin var tekin í júlí 1991. Helgi Gunnarsson er með vinnuflokk að steypa gangstétt við Bogabraut. Frá vinstri: Björn Sigurðsson, Helgi Gunnarsson, Jón Heiðar Jónsson, Steinþór Karlsson, Ragnar Friðrik Gunnlaugsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson.
Ólafur Bernódusson360
28. október 1989 sökk trillan Frami Hu 25 á miðunum nálægt Hofsgrunni. Eigandinn, Þorvaldur Skaftason, var einn um borð og komst hann í gúmmíbjörgunarbát og sendi upp neyðarblys, sem sást frá landi. Björgunarsveitin Strönd brást fljótt við og fór á Þórdísi og bjargaði Þorvaldi. Á þessari mynd er Þórdís að koma í land en maðurinn á myndinni er Guðmundur Jón Björnsson björgunarsveitarmaður.
Ólafur Bernódusson477

Á árum áður gat það verið góð tekjulind fyrir menn að stunda rjúpnaveiði til að selja síðan rjúpurnar fyrir jólin. Veiðitímabilið stóð þá frá 15. október til 20. desember og engin höft voru á sölu á rjúpu. Þessi mynd var tekin af Sveini Inga Grímssyni 23. október 1991 þegar hann var að koma úr 40 rjúpna túr. Hangandi í kringum hann er veiði fyrri rjúpnatúra ársins.

Ólafur Bernódusson423
Gunnar Helgason við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson489

Marska tók að sér að pakka og flytja út vatnasilungi úr Skagaheiðinni. Þessi mynd sem tekin var í júní 1992 sýnir starfsstúlkur Marska við vinnu sína við silunginn. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Lilja Kristinsdóttir og Birna Bjarnadóttir.

Ólafur Bernódusson 501

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd er óþekktur maður að færa Sveini S. Ingólfssyni framkvæmdastjóra Skagstrendings hf blóm í tilefni dagsins. Gestir um borð fylgjast með.

Kvenfélagið Eining - safn093
Hér hefur ein kvenfélagskona úr Einingu klætt sig í sýnishorn af ullar-neyðarfatnaði sem kvenfélagskonurnar bjuggu til og gáfu um borð í skip sem gerð voru út frá Skagaströnd
Ólafur Bernódusson506
Krakkarnir í vinnuskólanum á Skagaströnd fóru sumarið 1994 út í Kálfshamarsvík til að hreinsa fjöruna. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurður S.Ó. Hallgrímsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Ragna Gunnarsdóttir og Rakel Petrea Finnsdóttir eftir að hreinsunarstarfinu var lokið.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn014
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Frá vinstri: Ottó Ákason (d. 17.9.2005) og Hans Birgir Högnason.
Ólafur Bernódusson550
Töluvert margir aðilar gerðu út á grásleppu í grennd við Skagaströnd á litlum bátum áður fyrr. Þessi mynd var tekin með miklum aðdrætti vorið 1996 af einum þeirra við veiðarnar. Bólið sést til vinstri og Strandafjöllin eru í baksýn.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn005
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á myninni er Davíð Reynisson.
1

14
15
16

75
Leita í myndasafninu
Leita