Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn007
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd er verið að pakka saltfiski til útflutnings. Frá vinstri: Högni Jensson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) og Davíð Reynisson.
Guðmundur Guðnason050
Þessi ofn var reistur á melunum ofan við kirkjugarðinn. Hann þjónaði sem sorpbrennsluofn. Ofninn var fremur óvinsæll því reykinn úr honum lagði gjarnan yfir bæinn ef vindátt var þannig. Einkum var þetta áberandi á Felli og í Mýrinni. Ofninn var ekki notaður lengi vegna mengunarvarna því bruninn í honum var ekki nógi hreinn.
Guðmundur Guðnason048
Þetta hús þjónaði sem útibú kaupfélagsins í mörg ár. Það var staðsett vestan við Holt eiginlega í suðvestur horni skólalóðarinnar sem nú er og út á götuna sem þar er (Oddagötu). Húsið komst svo í eigu Hestamannafélagsins Snarfara á Skagaströnd og ætluðu félagar í félaginu að fara með húsið upp að skeiðvelli sínum, sem er á melunum ofan og norðan við bæinn. Húsið var dregið af stað á símastaurum sem virkuðu eins og meiðar undir því. Þegar komið var með húsið að Snorrabergjunum og átti að fara þar upp voru staurarnir hins vegar uppeyddir og húsið komst aldrei lengra. Það var seinna rifið þarna sem það stendur á myndinni og aldrei reist við skeiðvöllinn.
Ólafur Bernódusson 533
<p>Í maí 1993 smíðuðu trillu - og jullueigendur á Skagaströnd flotbryggjur til að bæta aðstöðu sína innan hafnarinnar. Þessi mynd var tekin af körlunum við starf sitt að smíðinni. Frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Stefán Jósefsson, Guðmundur Björnsson, Vilhjálmur Skaftason og Baldvin Hjaltason. Þorvaldur Skaftason sagar lengst til hægri og Snorri Gíslason (d.29.5.1994) er í baksýn. </p>
Óþekktur ljósmyndari220
Tveir starfsmenn Hólaness hf 1957 eða 1958 fyrir utan frystihús félagsins. Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) verkstjóri til vinstri og Jón Áskelsson (d. ?) framkvæmdastjóri til hægri.
Guðmundur Guðnason184
Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og kona hans Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir á sýningu í Reykjavík þar sem fyrirtæki frá Skagaströnd kynntu starfssemi sína og framleiðsluvörur. Á myndinni standa þau hjónin í kynningarbás Vélaverkstæðis Karls Berndsen. Barnið sem Karl heldur á er Mikael Karl Ágústsson - sonur Laufeyjar Berndsen dóttur þeirra hjóna.
Guðmundur Guðnason112
Þessi mynd sýnir fjárhús og hlöðu. Ekki er alveg víst hvar þessi skepnuhús voru en líklega tilheyrðu þau Bergsstöðum. Búið er að bera heyið á túninu upp í sátur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson551
Þessi mynd var tekin sumarið 1983 af hvalskurði á bryggjunni í Skagastrandarhöfn. Á þessum árum voru tímabundið gerðir út hrefnuveiðibátar frá Skagaströnd af aðkomumönnum sem áttu hrefnukvóta. Þeir drógu síðan hvalskrokkana til hafnar þar sem þeir voru dregnir á land með vörubíl eða gröfu. Síðan var hvalurinn skorinn á bryggjunni og kjöti og spiki komið fyrir í körum sem síðan voru flutt burt til kaupenda. Beinin, bægslin og annað sem ekki nýttist var síðan tekið með um borð og því fleygt í hafið á Húnaflóa fjarri landi.
Séra Pétur og Dómhildur - safn106
<p>Þessir ungu menn tóku saman prestsvígslu 15. júní 1941. Með myndinni fylgja eftirfarandi upplýsingar: <em>Frá v. Stefán Snævarr f. 22. mars 1914. 1. eink. 105 stig. Vígður að Vallarprestakalli, Svarfaðardal. Prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi 1967. Pétur Þ. Ingjaldsson f. 28. jan. 1911. 1. eink. 105, 2/3 stig. Vígður að Höskuldsstaðaprestakalli. Prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi 1967, hinu nýja (þ.e. að viðbættu Strandaprófastsdæmi) 1971. Magnús Már Lárusson f. 2. sept. 1917. 1. eink. 135 stig. Vígður að Breiðabólsstað á Skógarströnd. 1944 að Skútustöðum. prófessor við guðfræðideildina 1947. Sigurður Kristjánsson f. 8. jan. 1907. 2. eink. betri 94 stig. Vígður að Hálsprestakalli í Suð. Þing. 1942 Ísafjörður. Prófastur í Ísafjarðarprófastsdæmi 1955.</em></p
Guðmundur Guðnason100
<p>Um þennan bát segir svo í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 -2010 : <em>"Ludendorf Hu 46. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, var í eiga Ole Omundsen um og upp úr 1940 og var um 4 brl. með 10 ha. Sabb vél og seinna bílvél. Hann endaði daga sína í sandunum framan við Lund. Bátarnir Stígandi (Stóri -Gulur), Hindenburg og Ludendorf voru notaðir til þess að draga uppskipunarbáta. Einning var það svo að þegar kerin voru steypt fyrir neðan Bjarmanes (Gamli skólinn) og síðan látin renna fram í sjó voru þessir bátar látnir draga þau að höfninni, þar sem þeim var sökkt og voru þar með orðinn hluti af nýjum hafnargarði". </em>Gaman er fyrir kunnuga að virða fyrir sér húsin í baksýn enda er götulínan orðin ansi mikið breytt síðan þessi mynd var tekin um eða uppúr 1940. </p><p><em><br></em></p>
Óþekktur ljósmyndari185
Tveir verkamenn á heimleið úr vinnu eftir fjörunni fyrir víkina. Til vinstri Lárus Guðmundsson og Sveinbjörn Hannesson til hægri. Húsið sem sést á milli þeirra er Viðvík þar sem lengi var rekið veitinga- og gistihús. Húsið til vinstri er Karlsminni. Myndin var líklega tekin í kringum 1940.
Ólafur Bernódusson523
Gunnar Jónsson á Funa Hu 89 dró lax á handfæri í ágúst 1994. Afar sjaldgæft er að lax fáist á handfæri en á myndinni sýnir Gunnar okkur Laxinn.
Óþekktur ljósmyndari177
Myndin var tekin ofan af þrónum yfir söltunarplanið á bryggjunni. Hún sýnir söltun í fullum gangi en ártalið er ekki vitað.
Guðmundur Guðnason090
Á þessari mynd er verið að koma með fjársafnið til réttar í Spákonufellsrétt. Maðurinn með tvo til reiðar er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) frá Ási. Lárus var oft gangnaforingi í göngum frá Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari330
Þessi mynd, tekin af sjó einhverntíma á árunum 1965 - 1970, sýnir innbæinn eins og hann var þá. Takið eftir að verið er að byggja ker í slippnum fyrir framan Bjarmanes á Hólanesinu.
Óþekktur ljósmyndari248
Tvær hrefnur skornar á bryggjunni á Skagaströnd. Það voru eingöngu aðkomubátar sem veiddu hrefnur og gerðu að þeim á bryggjunni. Maðurinn sem fylgist með hvalskurðinum með hendur í vösum er sennilega Gunnar Jónsson bílstjóri.
Ólafur Bernódusson516
Á þessari mynd sýnir, Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, óþekktum ráðherra frá Namibíu vinnsludekkið í Arnari Hu 1. Myndin var tekin í nóvember 1994.
Ólafur Bernódusson543
Óskar Þórðarson við vinnu sína sem framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Myndin var tekin veturinn 1995.
Séra Pétur og Dómhildur - safn115
Þarna er nýbúið að opna bókasafn Skagastrandar í kjallara Fellsborgar. Bókavörðurinn Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) afgreiðir, frá vinstri: Pálínu Freyju Harðardóttur, Jóney Hrönn Gylfadóttur, Katrínu Bryndísi Sigurjónsdóttur og Áslaugu Sif Gunnarsdóttur. Hrafnhildur Jóhannsdóttir bíður eftir að röðin komi að henni.
Óþekktur ljósmyndari254
Landburður af fiski var hjá Arnari HU 1 hafísvorið 1969. Gripið var til þess ráðs að koma í land með aflann óslægðan og landa honum þannig á bryggjuna þar sem slægingagengi tók við og slægði fiskinn sem síðan var fluttur upp í frystihús. Arnar hélt aftur á móti strax aftur á miðin. Slægingarmennirnir á myndinni eru óþekktir en Arnar HU 1 er í baksýn á leið út úr höfninni aftur. Einnig sjást nokkrir ísjakar á reki. Myndin var tekin löngu fyrir alla kvótasetningu á fiski á Íslandsmiðum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn025
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), lengst til vinstri, stendur hér við Dodge vörubíl sinn númer H 351. Maðurinn við hlið hans er óþekktur og hefur líklega verið gröfustjóri á gröfunni á myndinni. Adolf átti tvo vörubíla - H 351 - gegnum tíðina og vann sem vörubifreiðastjóri. Á þessari mynd er hann greinilega í malarflutningum e.t.v. í vegavinnu. Á þessum tíma var vinsælt hjá krökkum að fá að "sitja í" hjá bílstjórunum við vinnu sína. Sú er raunin á þessari mynd því Adolf er með þrjá unga farþega með sér í vinnunni. Það skal tekið fram að þessi mynd var tekin fyrir þann tíma að nokkrum var farið að detta í hug öryggisbelti í bílum. Myndin var sennilega tekin á sjöunda áratugnum í krúsinni/malarnáminu fyrir ofan Spákonufellsrétt.
Halldór003
Myndin var tekin seint í desember 1998 þegar mennirnir á myndinni voru að bíða eftir að taka á móti Örvari Hu 2, áður Blængur NK 117, þegar hann kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd, þá nýkomin í eigu Skagstrendings hf. Mennirnir eru, frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, óþekktur, Gylfi Sigurðsson, Adolf H. Berndsen óþekktur og Jóel Kristjánsson.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn011
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Erla Theódórsdóttir að vinna við pökkun á saltfiski.
Guðmundur Guðnason082
Myndin var tekin 1958 - 1960 þegar yfir stóð uppboð á ýmsum eigum úr búi Engilberts Óskarssonar (d. 13. 9. 1982) og Sigríðar Helgadóttir í Skálholti. Þau voru að flytja til Reykjavíkur og til að minnka umfang flutningsins héldu þau uppboðið. Á þessari mynd eru: Albert Haraldsson (d. 28.9.1980) Litla Bergi með derhúfu og ljósan trefil um hálsinn. Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) Fjallsminni er aftast á myndinni. Maðurinn með poka undir hendinni er Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) Kárastöðum og til hægri við hann með ljóst um hálsinn er Elínborg Árnadóttir (d.7.4.1979) Sólheimum. Vinstra megin við Kára er Björgvin Guðmundsson (d. ?) frá Melstað. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir hitt fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 507
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd biður séra Egill Hallgrímsson fyrir Arnari og áhöfn þess og blessar skipið. Fréttamaður útvarps tekur upp en Guðjón Ebbi Sigtryggsson hlustar á og sama geri Steindór Haraldsson (með skegg) til hægri. Aðrir eru óþekktir. </p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn096
Þetta er mynd af gömlu brúnni yfir Laxá í Refasveit. Brúin gat verið varasöm að vetri í hálku því það voru brekkur að henni beggja megin og vinkilbeygjur inn á hana. Þetta var ekki fyrsta brúin yfir ána því að áður var brú mun nær sjónum, nálægt þeim stað þar sem laxastigar eru nú í ánni. Nýja brúin sem notuð er í dag, er staðsett um það bil þar sem rafmagnsstaurarnir eru á myndinni.
Ólafur Bernódusson534
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á myndinni sést mjólkurbíllinn og dráttarvélar bændanna með mjólkurílátin sín. Allir voru bændurnir á öflugum dráttarvélum enda ófært fyrir önnur farartæki en þau sem voru vel búin t.d. með fjórhjóladrif.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn019
Frystihús Hólaness hf á Hólanesi - nú listamiðstöðin Nes. Mennirnir eru óþekktir en líklega er maðurinn til hægri með hattinn Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólaness hf. Myndin var tekin af bryggjustúf sem var vestan við frystihúsið. Húsin sem sjást í baksýn á milli húsa frystihússins eru Bogabraut 9 (Þorfinnshúsið) til vinstri og Holt til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrri 1957 því annars mundi Höfðaskóli líka sjást á milli húsanna.
Ólafur Bernódusson533
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á þessari mynd er Sigfús Guðmundsson mjólkurbílstjóri að dæla upp úr brúsum frá Árna Sveinbjörnssyni frá Króksseli. Í baksýn eru að spjalla Baldvin Sveinsson frá Tjörn, Vilhjálmur Skaftason Skagaströnd, óþekktur og Jens Jónsson frá Brandaskarði.
Óþekktur ljósmyndari261
Þessi mynd var tekin 1937 eða 1938 af síldarskipum við Skagaströnd. Á þessum tíma var Hafnarhúsið enn á þessum stað en það var síðan flutt á núverandi stað síðar til að rýma fyrir síldarverksmiðju á sömu lóð. Nær okkur á myndinni til vinstri sést í bryggjuna frá 1922 rétt austan við Hólsnefið og þar eru menn í aðgerð.
Óþekktur ljósmyndari249
Kjötþvottur í sláturhúsi Kaupfélags Skagstrendinga KAST einhverntíma upp úr 1960. Konurnar á myndinni eru Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Ólína Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) til hægri. Sláturhúsið var þar sem seinna var fiskmóttaka í frystihúsi Hólaness hf við Einbúastíg.
Óþekktur ljósmyndari218
Gömul mynd af Bankastræti. Myndin var sennilega tekin upp úr 1940 en óvíst er með hvenær. Næst okkur á myndinni er búið að taka grunn að Höfðaborg (Bankastræti 9). Þar fyrir aftan sést grind að Flankastöðum (Bankastræti 7) og er þetta a.m.k. annað húsið sem byggt var á þessum reit undir Flankastaðanafninu. Þetta er þó ekki húsið sem stendur þarna í dag, það var byggt miklu síðar. Lágreista húsið sem ber yfir grindina að Flankastöðum var Kárastaðir (Bankastræti 5). Seinna var byggð önnur hæð ofan á Kárastaði og enn síðar var það rifið. Enn aftar eða fjær okkur á myndinni standa Draumaland og Dvergasteinn sem bæði eru horfin. Stórholt (Bankastræti 3) er ekki komið en það var byggt 1950 - 51. Lengst til hægri á myndinni er Þórshamar við Skagaveg og síðan Skálholt sem einnig stendur við Skagaveg. Húsið sem stendur vinstra megin við Skálholt, dálítið nær Höfðanum, er Höfðakot. Önnur hús á myndinni eru fjós, hlöður eða hest- eða fjárhús sem tilheyrðu þeim sem bjuggu við Bankastræti. Þó er húsið, sem stendur vinstra megin við grindina að Flankastöðum, sennilega eldra Flankastaðahús sem svo var aflagt með tilkomu hins nýja.Takið eftir að ekki er búið að gera götuna, Bankastræti, eins og við þekkjum í dag. Takið líka eftir fólkinu sem er í heyskap á blettinum neðan við Tjaldklaufina næst okkur á myndinni.
Adolf H Berndsen - safn034
Hér er stjórnsýsluhúsið í byggingu. Litla húsið til vinstri var Ólafsvellir eða Náttbrún eins og húsið var líka kallað. Myndin var tekin um miðbik níunda áratugarins.
Guðmundur Guðnason064
Þessi mynd var tekin á hrútasýningu einhverntíma kringum 1960. Slíkar sýningar voru haldnar reglulega og vöktu mikla spennu því á þessum tíma voru margir með kindur og starfandi var ræktunarfélag sauðfjárbænda á Skagaströnd. Frá vinstri eru á myndinni: óþekktur drengur, Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) Skálholti, óþekktur, Páll Jóhannesson, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi (fjær), Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi (nær), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Stórholti (nær) og óþekktur (fjær). Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kvenfélagið Eining - safn090
<p>Kvenfélagskonur í Einingu hafa komið víða við. Á þessari mynd eru þrjár þeirra með bunka af ullarnærfatnaði, sokkum og vettlingum, sem Eining gaf um borð í báta og togara, sem gerðir voru út frá Skagaströnd. Fatnaðurinn var hugsaður sem neyðarfatnaður ef eitthvað kæmi fyrir um borð. Það að gefa slíkan fatnað um borð í skip frá Skagaströnd fór ekki hátt enda hafa kvenfélagskonur oftar en ekki starfað "bak við tjöldin" og ekki barið sér á brjóst vegna ýmissa líknar- og mannúðarstarfa sem þær hafa sinnt í gegnum árin. Á myndinni, sem tekin var í Höfðaskóla, eru frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) prestsfrú á Skagaströnd, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003) úr Sænska húsinu og Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) frá Sæbóli (áður Njálsstöðum). Allar voru þessar konur ötular í kvenfélaginu á sinni tíð. </p>
Guðmundur Guðnason092
Snjómokstur á götunni fyrir ofan Ægissíðu. Maðurinn á myndinni er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) í Ægissíðu. Húsið sem sér í bakvið jarðýtuna var Melstaður sem stóð suðaustan við Laufás.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn006
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd eru þær við vinnu sína; Sigrún Benediktsdóttir til vinstri og Dana ? til hægri. Ef þú veist eftirnafn Dönu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari173
Skagaströnd 1947. Byggingaframkvæmdir við síldarverksmiðjuna í fullum gangi.
Ólafur Bernódusson501
Eitt af því sem fylgdi síldaverksmiðjunni voru þessir tveri risastóru tankar. Annar var undir olíu en hinn var undir lýsi. Þegar þessi mynd var tekin 1994 var búið að lækka annan tankinn - olítankinn - um helming en hinn - lýsistankurinn- er að liðast í sundur eftir stórviðri. Tankurinn var fljótlega eftir þetta rifinn og settur í brotajárn.
Ólafur Bernódusson 502
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd fer Gylfi Sigurðsson stjórnaformaður Skagstrendings hf yfir byggingarsögu skipsins. Notast var við hátalarakerfi skipsins til að hægt væri að hlusta á Gylfa hvar sem var um borð. </p>
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn012
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Spjall í kaffipásu, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý), og Dana ? . Ef þú veist eftirnafn Dönu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn011
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á þessari mynd flytur Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti Höfðahrepps ávarp. Hjá honum stendur Lúðvík Jósefsson (d. 18.11.1994) þáverandi formaður bankaráðs Landsbankans. Lúðvík var alþingismaður og ráðherra í sinni tíð.
Ólafur Bernódusson492
Myndin var tekin í desember 1993 þegar fulltrúar frá Verkalýðsfélagi A- Hún afhentu Hallbirni Hjartarsyni styrk til rekstrar Kántrýútvarpsins. Frá vinstri á myndinni: Valdimar Guðmundsson, Hallbjörn Hjartarson, Halla Björg Bernódusdóttir, Ólafur Guðmannsson og Stefanía Garðarsdóttir.
Ólafur Bernódusson489
Guðjón Guðjónsson (Jonni) um borð í Örvari Hu 21, sem hann stýrði farsællega sem skipstjóri. Myndin var tekin 1993.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn008
Starfsmenn frystihúss Hólanes hf meðan það var með vinnslu á Hólanesi. Frá vinstri: Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) Blálandi, Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið, Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) Sævarlandi, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli, Jón Árnason (d. 11.4.1986) Ólafsvöllum/Náttbrún, Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi, Árni Max Haraldsson (d. 6.12.1976) Litla Bergi, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) Dagsbrún, Jón Áskelsson (d. 1989) Hólanesi, framkvæmdastjóri Hólaness hf og Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) Sólvöllum, verkstjóri í frystihúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á sjöunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson490
Guðlaugur Hjaltason og Kristjana Jóhannsdóttir með dóttur sína Laufey Sunnu Guðlaugsdóttur á tröppunum í Reykholti (Fellsbraut 6). Myndin var tekin 1993 en tilefni myndatökunnar var að þau hjón höfðu þá nýverið stofnað flutningafyrirtækið Alla leið hf.
Séra Pétur og Dómhildur - safn111
<p>Aftan á þessa mynd hefur verið skrifað: <em>Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson. Þannig ferðaðist hann til allra prestsverka fyrstu árin. Þá var aðeins vegur... </em>Pétur hafði aðsetur á Höskuldsstöðum en ferðaðist þaðan til annarra kirkna í Höskuldsstaðasókn t.d. á Skagaströnd og úti á Hofi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. </p>
Ólafur Bernódusson527
Viðbygging við leikskólann Barnaból var tekin í notkun í nóvember 1994. Á þessari mynd heldur Magnús B. Jónsson sveitarstjóri ræðu. Ragnar Ingvarsson er lengst til vinstri en Ingólfur Bjarnason er við hlið hans. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson531
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 og endalaus illviðri. Á þessari mynd er verið að ná Hafdísi Hu 2 á flot eftir að hún sökk í óveðri 17. mars 1995. Báturinn var gerður upp eftir óhappið og gerður út áfram. Ólafur Magnússon Hu 54 í baksýn.
Ólafur Bernódusson 496
Þessi mynd var tekin í október 1992 af tillukörlum að spjalla á bryggjunni. Mennirnir tveir til vinstri eru óþekktir en svo koma Sigurður Pálmason, sem lengi gerði út trillu frá Skagaströnd og Árni Björn Ingvarsson sem einnig gerði út trillu frá Skagaströnd.
Halldór001
Myndin var tekin þegar Örvar Hu 2, áður Blængur Nk 117, kemur í heimahöfn á Skagaströnd nokkrum dögum fyrir jólin 1998. Þann 22. desember 1998 kom eftirfarandi frétt í Morgunblaðinu: "Nýtt skip Skagstrendingur hf, Örvar HU 2, verður til sýnis á Skagaströnd á morgun en það kom til heimahafnar síðastliðinn sunnudag. Að auki bjóða Skagstrendingur og sjómenn félagsins til skötuveislu í Fellsborg en hún er árviss viðburður. Loks verður boðið upp á kaffiveitingar í tilefni af 30 ára afmæli Skagstrendings og komu nýja skipsins um borð í Örvari HU 2. Örvar HU 2 bar áður nafnið Blængur NK 117 og var í eigu Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað en Skagstrendingur hf. festi kaup á skipinu fyrir skemmstu. Örvar er smíðaður á Spáni árið 1993. Skipið er 1.200 brúttótonn að stærð, tæpir 52 metrar að lengd og með 3.000 hestafla aðalvél. Örvar leysir eldra rækjuskip Skagstrendings hf., Helgu Björgu HU 7, af hólmi. Dagskrá hátíðarhaldanna hefst kl. 11 að morgni Þorláksmessu með hefðbundinni skötuveislu í Fellsborg í boði Skagstrendings og sjómanna félagsins. Kl. 13.30 verður nýja skipið blessað af sóknarpresti og að því loknu, eða frá kl. 14 til 17, verður boðið upp á veitingar um borð í Örvari í tilefni afmælisins og komu skipsins".
Óþekktur ljósmyndari347
Gatnagerð við undirbúning lagningar slitlags á Fellsbraut 1976. Á myndinni er verið að slétta undirlagið með veghefli. Maðurinn með skófluna er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 500
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Sigtyggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Ernst Berndsen vélstjóri, Gylfi Sigurðsson sjórnarformaður Skagstrendings hf og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Myndin var tekin í brú hins nýja skips. </p>
Óþekktur ljósmyndari260
Gott hal um borð í Arnari HU 1, fyrsta skuttogaranum með það nafn. Á pokanum standa þeir Níels Grímsson og Gestur Arnarson. Við hlið pokann til hægri stendur Guðmundur E. Guðmundsson. </p>
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn010
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Sigfús Sævar Sigurðsson vinnur á lyftara.
Óþekktur ljósmyndari208
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði í heyskap á túninu við Háagerði. Á myndinni er Kristján að ýta saman heyi með tveimur hestum eftir að hafa rakað heyinu saman í garða. Spýta var bundin aftan í hestana og síðan var staðið á spýtunni til að halda henni niðri. Hestarnir drógu svo spýtuna þar til næg hrúga af heyi var komin framan við hana. Þá var spýtunni lyft yfir hrúguna og haldið áfram framan við hana. Síðan var heyinu úr hrúgunum hlaðið upp í sæti/sátur eins og sést fyrir aftan Kristján. Seinna var svo heyinu ekið heim í hlöðu eða sett í fúlgu heim við fjárhús eða fjós. Hlutverk hesta í sveitum landsins hefur breytst mikið frá þessum tíma úr því að vera þarfasti þjónninn og helsta vinnutæki bænda yfir í það að vera fyrst og fremst skemmtigripur og skrautfjöður eiganda síns. </p><p><br></p>
Óþekktur ljósmyndari188
Á stríðsárunum voru nokkrir hermenn staðsettir á Skagaströnd. Þeir höfðu ekki mikið að gera og fannst þess vegna ágætt að grípa í hin ýmsu daglegu störf með íbúum bæjarins. Á þessari mynd er einn þeirra að beita með Jörgen Berndsen (d. 25.11.2012), sem er til hægri.
Óþekktur ljósmyndari187
Nýbyggingarráð kom í heimsókn til Skagastrandar í lok apríl 1945. Ráðinu var haldin veisla og þessar konur gengu um beina í veislunni. Frá vinstri: systurnar: Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Magdalena Helgadóttir (d. ?), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) og Jóninna Pálsdóttir. Drengurinn á myndinni er Adolf J. Berndsen <font size="1">(Heimild: Byggðin undir Borginni (1989) bls 186).</font>
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn004
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd er vinnsla í fullum gangi. Frá vinstri á myndinni: Hans Birgir Högnason, óþekkt, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý), Erla Theódórsdóttir og Ottó Ákason (d. 17.9.2005).
Óþekktur ljósmyndari225
Þessi mynd sýnir síldarsöltun á planinu í Skagastrandarhöfn 1935. Þetta er merkileg mynd að því leiti að þetta var fyrsta sumarið sem síld var söltuð þarna enda var bryggjan sem planið er á byggð sumarið áður 1934. Með því að telja fólkið á myndinni er auðvelt að ímynda sér hve mikil áhrif síldarvinnan hafði í samfélginu þar sem áður hefði ekki verið um mikla vinnu að ræða.
1
…
15
16
17
…
75
Leita í myndasafninu
Leita