Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason098
Ásbjörg Hu 5 að koma úr róðri. Í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar, Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, segir svo um þennan bát: " Ásbjörg Hu 5 292. Báturinn var smíðaður úr eik og beyki í Hafnarfirði árið 1939 og var 26 brl. með 90 ha. June Munktell vél. Árið 1953 var sett í hann 118 ha. Caterpillar vél og 1970 kom 230 ha. Scania vél. Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn frá Hafnarfirði 1947 og hét hann þá Ásbjörg GK 300. Hann var gerður út til 1959 en seldur í febrúar 1960 til Reykjavíkur og skráður þar Ásbjörg RE 55. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í árslok 1977 en þá var hann með sama nafni í eigu aðila á Hólmavík:"
Ólafur Bernódusson530
Pungaprófsnemar, ásamt leiðbeinendum, á eldvarnarnámskeiði í febrúar 1995. Frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir (nær), Jón Gunnarsson, tveir óþekktir, Gylfi Guðjónsson, óþekktur, Jón Örn Stefánsson (krýpur), óþekktur, Svanur Árnason (krýpur), óþekkt, Gunnar Jónsson, óþekktur, Steinn Rögnvaldsson og óþekktur. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari323
Myndin var tekin af tveimur starfsstúlkum saumastofunnar Víóla. Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) til vinstri og Ragnheiður Sigurjánsdóttir til hægri. Víóla var með starfsemi sína á efstu hæðinni í Gamla Kaupfélaginu á árunum eftir 1970.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn003
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd er kaffitími. Frá vinstri: Davíð Reynisson, Sigfús Sævar Sigurðsson, óþekkt, Gunnar Albertsson og baksvipurinn á Ottó Ákasyni (d. 17.9.2005).
Óþekktur ljósmyndari171
Myndin var tekin 1962 og sýnir síldarþrærnar við verksmiðjuna. Þrærnar voru í tveimur átta þróa röðum með vegg á milli. Í botninum, á milli þeirra, var færiband sem flutti síldina úr þrónum inn í verksmiðjuna sjálfa sem er fyrir endanum á myndinni. Til vinstri á myndinni er svo færibandið sem flutti síldina frá löndunarkrananum og í þrærnar. Til vinstri og hægri við þrærnar voru skúrar eða lítil hús sem notaðir voru sem geymslur undir t.d. salt, rotvarnarefni og annað sem verksmiðjan notaði. Syðsti skúrinn hægra megin var þó notaður fyrir síldarradíóið en þar var alltaf maður á vakt yfir síldveiðitímann og voru skipin í sambandi við hann með aflatölur, löndunartíma og annað þess háttar. Þrærnar hafa nú verið brotnar niður til að skapa gámapláss á höfninni en ef einhvern langar að púsla þeim saman aftur þá er grjótmulningurinn úr þeim í haug í grifjunni fyrir ofan Spákonufellsrétt :-).
Guðmundur Guðnason134

Aftan á þessa mynd hefur verið skrifað:" Í Spákonufellsrétt. Réttarstjóri Jón Sölvason í Réttarholti sést á miðri myndinni". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Jón Sölvason dó 17.8.1969 þannig að augljóslega var myndin tekin fyrir þann tíma. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason145
Fjársafn við Spákonufellsrétt. Á árum áður var algengt að menn ættu nokkrar kindur í fjárhúsum einhversstaðar. Tölur um fjáreign bæjarbúa eru nokkuð á reiki en talan 3000 fjár er oft nefnd sem fjáeign á árunum í kringum 1960 og upp úr því. Í dag eru kindur í eigu Skagstrendinga nær tölunni 20.
Óþekktur ljósmyndari224
Verslunarhús Kaupfélags Skagstrendinga um 1945. Eftir að þessi mynd var tekin var gluggum hússins breytt en síðan við uppbyggingu kringum 2010 var húsinu aftur breytt til upprunalegs útlits fyrir utan að öðruvísi þakefni voru sett á húsið.
Óþekktur ljósmyndari303

Á þessari mynd eru verkamenn við grjótnám í Höfðanum vegna hafnargerðar á Skagaströnd 1934. Milli 40 og 60 verkamenn unnu við hafnargerðina þetta sumar. Grjótið var sprengt úr Höfðanum og komið upp á vörubíl, oftast með handafli, og síðan flutt í uppfyllingu frá landi og út í Spákonufellsey, sem einnig var brotin niður að hluta og notuð í uppfyllinguna. Strax sumarið 1935 var svo söltuð síld á tréplani í höfninni, sem gjörbreytti allri aðstöðu fyrir báta og fiskmóttöku. Húsin í baksýn voru Melstaður (nær) og Laufás lengst til vinstri.

Óþekktur ljósmyndari195
Steinbryggjan við Hólsnefið. Þessa bryggju byggðu sjómenn í sjálfboðavinnu gegn fjárframlagi frá Verslunarfélagi Vindhælinga árið 1922. Á þessari mynd er aðgerð í gangi á fiski úr fjórum bátum sem sjást á myndinni. Báturinn, sem er nær bryggjunni fyrir miðri mynd, hét Langlíf og var í eigu Axels Helgasonar frá Læk.
Óþekktur ljósmyndari180
Síðasta síldarsöltunarsumarið á Skagaströnd 1962. Myndin var tekin á síldarplaninu á bryggjunni.
Óþekktur ljósmyndari250
Sjaldan voru þrír bátar í dráttarbrautinni á sama tíma en þannig var það þó þegar þessi mynd var tekin árið 1988. Bátarnir eru frá vinstri: Þorlákur Helgi SI 71, Helga Björg Hu 7 og Þórir Jóhannsson GK 116.
Skagaströnd - safn008
Hafnarhúsið var upphaflega byggt 1935 á lóðinni þar sem síldarverksmiðjan var seinna byggð. Hafnarhúsið var því flutt á núverndi stað einhvertíma á árunum 1943 - 1945. Húsið er timburhús sem seinna var klætt með lituðu bárustáli.
Skagaströnd - safn154
Þessi mynd sýnir framkvæmdir við smábátabryggjuna við Skúffugarðinn. Ólafur Guðmundsson snýr baki í myndavélina en Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) er úti á horni í köflóttri skyrtu. Ólafur Bernódusson og Guðmundur Björnsson eru að sjósetja bátinn sinn í fjörunni til hægri og vinnsla er í frystihúsi Hólaness hf. Lýsistankurinn stendur enn til hægri og síldarþrærnar einnig bak við flutningaskipið. Myndin var tekin 22. júlí 1989.
Dagný Sigmarsdóttir017
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Jóhanna Karlsdóttir að pakka í neytendaumbúðir til útflutnings - væntanlega upp í samning við verslunarkeðjuna Marks & Spencer í Englandi.
Skagaströnd - safn067
Fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða voru teknar í notkun 1980. Af því tilefni var fólki boðið til kaffidrykkju í Fellsborg og að skoða íbúðirnar. Á þessari mynd er fólk að skoða eina íbúðina. Sigurður Jónsson með húfu á höfðinu, og Páll Þorfinnsson, sem lagði rafmagn í íbúðirnar, standa í andyrinu ásamt fleirum.
Ólafur Bernódusson535
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Á þessari mynd er verið að reyna að moka snjó í Bankastræti hjá Flankastöðum (Bankastræti 7) þó svo virðist sem jarðýtan sé uppi á þaki hússins.
Óþekktur ljósmyndari288
Dýpkunarskipið Grettir dýpkar í Skagastrandarhöfn 1977. Aftari báturinn er Ósk HU 21 í eigu Sytefáns Stefánssonar (d 2.1.1988). Hinn báturinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari175
Hér er í byggingu hornstólpi undir færiband frá löndunarkrana upp í síldarverksmiðjuna. Myndin mun vera tekin á árunum 1945 - 47.
Óþekktur ljósmyndari207
Þessi mynd var sennilega tekin sumarið 1934 af mönnum við grjótnám í Höfðanum. Grjótið var síðan notað í uppfyllingu í höfninni. Húsin í baksýn eru Melstaður og Laufás.
Óþekktur ljósmyndari203
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1944 af höfninni á Skagaströnd. Söltunarkassarnir/borðin bíða eftir silfri hafsins og "Litla bryggjan " bíður bátanna. Hún var látin halla fram til að auðveldara væri að landa fiski við hana úr litlum bátum.
Skagaströnd - safn047
Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) frá Sólheimum, byggingafulltrúi Höfðahrepps, skoðar frágang á uppslætti við smíði viðbyggingar við Höfðaskóla 1978.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn017
Frystihús Hólaness hf á Hólanesi. Mennirnir eru óþekktir en líklega er maðurinn með hattinn Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólaness hf.
Halldór004
Myndin var líklega tekin í desember 1998. Á henni er fólk sem vann í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd. Þau eru, frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Björn Hjálmarsson og Stefán Þór Árnason.
Skagaströnd - safn249
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er verið að undirbúa að reisa annað þeirra. Frá vinstri: Reynir Lýðsson, óþekktur maður frá þeim sem leigðu út tjaldið og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) verkstjóri sveitarfélagsins.
Óþekktur ljósmyndari267
Kennarar og skólastjóri í Höfðaskóla veturinn 1960 - 1961. Aftari röð frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) og Sveinn Ingólfsson. Fremri röð frá vinstri: María Magnúsdóttir og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007).
Óþekktur ljósmyndari183
Þessi mynd var tekin 1934 úti í Spákonufellsey. Karlarnir á myndinni eru að brjóta hana niður en grjótið var notað í uppfyllingu í höfninni ásamt grjóti úr Höfðanum. Eins og sjá má voru vinnubrögðin frumstæð, karlarnir með hamra og meitla við að brjóta grjótið og færanlegur gálgi til að lyfta grjótinu á einhvers konar vagn sem rann eftir teinunum sem sjást á myndinni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn010
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á myndinni eru frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti Höfðahrepps, Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður og Ólafur Bernódusson fréttaritari Morgunblaðsins.
Óþekktur ljósmyndari292
Verkamenn að hlaða grjóti á pallbíl. Glöggt má sjá vinnubrögðin sem viðhöfð voru við að koma grjóti frá Höfðanum niður í uppfyllingu við hafnargerðina á Skagaströnd. Myndin var tekin 1934 en þá stóð vinna við höfnina sem hæst.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn002
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd skemmta þau sér vel í vinnunni Ottó Ákason (d. 17.9.2005) og Sigrún Benediktsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari286
Á sjávarútvegssýningu 1984. Þá sýningu sóttu nokkur fyrirtæki á Skagaströnd og kynntu starfsemi sína. Á myndinni eru þeir Sigfús Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Adolf J. Berndsen oddviti til hægri á bás Hólaness hf og Vélaverkstæðis Karls Berndsen
Guðmundur Guðnason116
Varðskipið Óðinn í höfn á Skagaströnd. Myndin var tekin á stríðsárunum.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn007
Starfsstúlkur í frystihúsi Hólanes hf meðan það var með vinnslu sína á Hólanesi. Frá vinstri: Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Jóhanna Jónasdóttir, Ingunn Valdís Júlíusdóttir (d. 22.4.1998), Guðrún Angantýsdóttir, Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998), Oddný Jóhannsdóttir, Elín Jónsdóttir og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson488
Sumarið 1993 var haldinn sölumarkaður í Kántrýbæ. Myndin er frá markaðnum. Aftast horfir Sigrún Guðmundsdóttir á ljósmyndarann og við hlið hennar er tengdadóttir hennar Elva Þórisdóttir. Lovís Vattnes er fremst fyrir miðri mynd en konan í dökka jakkanum til hægri er Karitas Pálsdóttir en aftan við hana er Steinþór Karlsson.
Kvenfélagið Eining - safn095
Hér sjást kvenfélagskonur í Einingu við framleiðslu á ullar-neyðarfatnaði fyrir sjómenn. Fatnaðinn gáfu þær síðan um borð í skip sem gerð voru út frá Skagaströnd. Vinstra megin er Soffía Lárusdóttir(d. 31.3.2010) í köflóttri peysu og dökkhærða konan er Elísabet Árnadóttir (Bebbý), hinar eru óþekktar. Hægra megin eru frá vinstri: Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), óþekkt og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Óþekktur ljósmyndari313
Húni HU 1 liggur innan við Húna II HU 2 við löndunarbryggjuna í Skagastrandarhöfn árið 1963 eða ´64. Aftan við þá liggja Hrönn HU 15 og Helga Björg HU 7. Bátarnir til hægri eru líklega Loftur HU 5, næst okkur, Ægir HU 30 og Njörður HU 16 upp við bryggjuna.
Dagný Sigmarsdóttir004
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru þau Jóna Guðjónsdóttir og Grétar Haraldsson verkstjóri við vinnu sína í pökkunardeildinni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn041
Myndin var tekin 1978 af Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddvita Höfðahrepps. Í baksýn er dýpkunarskipið Grettir að dýpka höfnina með því að moka sandi og móhellu úr botninum í prammann sem liggur við hlið Grettis. Báturinn lengst til hægri dró síðan prammann fullan fram fyrir Höfðann þar sem botn hans var opnaður og sandinum hleypt úr.
Skagaströnd - safn092
Þessi mynd var tekin af þeim Sigurjóni Ingólfssyni og Hallbjörgu Jónsdóttur með son sinn Jón Ólaf Sigurjónsson í júní 1982. Tilefni myndatökunnar var að þá var þeim afhent fyrsta íbúðin í Verkamannabústöðum við Suðurveg.
Skagaströnd - safn060
Menn á vegum Guðmundar Lárussonar vinna við að steypa þekju á viðlegukant - Ásgarð - í Skagastrandarhöfn árið 1981.
Séra Pétur og Dómhildur - safn097
Þessi mynd var tekin fram Hafnargarðinn ( nú Útgarð) 1957. Unnið við að gera síldartunnur klárar ef sá brellni fiskur skyldi láta sjá sig.
Óþekktur ljósmyndari255
Um borð í Arnari HU 1 - síðutogaranum - vorið 1969. Mikill afli var þetta hafísvor og stóð á höndunum í aðgerðinni. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Helgason (snýr baki í myndavélina), Árni Petersen, Guðjón Jónsson og Sigurjón Haraldsson fjær.
Óþekktur ljósmyndari262
Rækjuvinnslan nýbyggð 1975 og án síðari tíma viðbygginga.
Óþekktur ljósmyndari199
Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967) Baldursheimi. Sigurjón var farkennari á Skagaströnd í mörg ár áður en fastur skóli var stofnaður þar 1939.
Óþekktur ljósmyndari273
Við færibandið í Rækjuvinnslunni snemma á níunda áratugnum. Frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Signý Ósk Richardsdóttir, Líney Jósefsdóttir og Árdís Indriðadóttir. Til hægri: Sólveig Eiðsdóttir, Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990), Dagný Hannesdóttir og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 225).
Skagaströnd - safn034
Árnesingur ÁR 75 var einn af síðustu eikarbátunum sem framleiddir voru í skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. hér er verið að sjósetja bátinn í fyrsta sinn árið 1976.
Ólafur Bernódusson536
Í apríl 1993 strandaði dýpkunarprammi/flutningaprammi í fjörunni við uppfyllinguna neðan við gamla Hólanes frystihúsið. Pramminn fék tóg í skrúfuna og rak stjórnlaus þarna upp í fjöruna. Strax var settur vír í prammann tilað stöðva ruggið á honum og til að halda honum örugglega á réttum kili. Pramminn var síðan dreginn á flot beyglaður á botninum en ólekur. Engan sakaði við þetta óhapp.
Ólafur Bernódusson 504

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd er Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri með konu sinni Halldóru Þorláksdóttur við skipstjórastólinn í brúnni. Lengst til vinstri brosir Adolf H. Berndsen en aðrir eru óþekktir.

Magnús B Jónsson089
Einni af nýsmíðum í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf gefið nafn á hefbundinn hátt með því að brjóta flösku á stefninu. Sjá má á myndinni að enn er límt yfir nafnið á kinnungnum. Það er Hjördís Sigurðardóttir sem gefur bátnum nafnið Stakkur RE í október 1983.
Skagaströnd - safn029
Hér er verið að koma fyrir niðurfalli á Oddagötu áður en varanlegt slitlag er lagt á hana 1976. Starfsmenn Höfðahrepps þeir Vilhelm Harðarson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri aðstoða ókunnan mann frá Miðfelli hf, sem sá um niðurlagninguna á slitlaginu.
Óþekktur ljósmyndari178
Ludendorf Hu 46 var í eigu Ole Aamundsen. Ole réri honum ekki sjálfur heldur réði til sín áhöfn til að geta gert bátinn út. Reyndar átti Ole annan bát, Hindenburg Hu 45, sem hann gerði út á sama hátt.
Ólafur Bernódusson 503

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd fylgjast gestir með ræðuflutningi í brú hins nýja skips. Frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Hörður Ragnarsson, Sveinn Ingi Grímsson, Ófeigur Gestsson, Lovísa Kristín Stefánsdóttir og fréttamaður frá útvarpinu að taka upp. Aðrir eru óþekktir.

Óþekktur ljósmyndari306
Carl Berndsen (d. 15.12.1954) kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Skagaströnd í rúm fimmtíu ár.
Óþekktur ljósmyndari256
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 - síðutogaranum - hafísvorið 1969. Verið er að láta trollið fara aftur eftir 20 - 30 tonna hal. Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) er á gilsinum lengst til vinstri og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006) er við spili, Guðjón Jónsson er á forhleranum en í aðgerð eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Viggó Maríasson (d. 30.7.1973) og Óskar Kristinsson, sem snýr baki í myndavélina. Maðurinn milli Viggós og Óskars er óþekktur.
Skagaströnd - safn002
Húsið var byggt á níunda áratugnum. Þegar það var tekið í notkun voru m.a. skrifstofur Höfðahrepps og Búnaðarbankaútibú á neðstu hæð. Hótel Dagsbrún var á annari hæð en skrifstofur Skagstrendings hf og Hólaness hf á efstu hæðinni.
Óþekktur ljósmyndari275

Jóhanna Hemmert kaupmannsfrú á Skagaströnd var fyrsta konan sem kosin var í hreppsnefnd Vindhælishrepps hins forna árið 1910. Um þennan merka atburð má finna eftirfarandi klausu í tímaritinu Norðurland 29. tölublaði (16. 7.1910) 10. árgangi úr grein sem ber fyrirsögnina "Bréf frá Skagaströnd":

"....... Nýmæli eru það, að konur séu kosnar í hreppsnefnd. Á hreppaskilum Vindhælinga nú í vor, var kona kosin í hreppsnefnd. Kona þessi er frú Jóhanna Hemmert á Skagaströnd. Einnig var hún kosin í fræðslunefnd. Það er sómi fyrir hreppsbúa að hafa riðið á vaðið með að kjósa konu í þessar nefndir og ættu sem flestir hreppar að gera hið sama. Einnig á frú J. Hemmert þakkir skilið fyrir að gefa kost á sér til þessara starfa. Vonandi að árlega fjölgi konum í hreppsnefndum víðsvegar um landið og eigi verði langt að bíða þess, að konur fái fult jafnrétti við karlmenn. Ritað í júní 1910. Skagstrendingur ".

Þess má geta í þessu sambandi að konur og vinnuhjú, 40 ára og eldri, á Íslandi fengu ekki almennan kosningarétt fyrr en árið 1915. Á árinu 1882 fengu ekkjur og aðrar ógiftar konur, sem stóðu fyrir búi eða áttu með sig sjálfar, kosningarétt til að kjósa til hrepps- og sýslunefnda, bæjarstjórna og á safnaðarfundum ef þær voru orðnar 25 ára gamlar. Þó þessar konur mættu kjósa máttu þær ekki bjóða sig fram nema að uppfylltum ströngum skilyrðum um eignir, aldur og sjálfstæði. Lögunum var svo breytt 1920 þannig að þá fengu konur og vinnuhjú full pólitísk réttindi við 25 ára aldur.

Óþekktur ljósmyndari282
Þessir tveir menn áttu lengst af samleið gegnum lífið. Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) úr Höfðatúni til vinstri var sjómaður mestan hluta ævinnar en Björn Sigurðsson (d. 5. 10.1999) frá Jaðri til hægri var sjálflærður vélamaður, smiður og bátasmiður. Hér eru þeir félagar að dytta að bát í fjörunni neðan við skemmuna sem nú hýsir fiskmarkað, björgunarstöð og fleira. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson árið 1986.
Hjördís Sigurðardóttir - safn006
Frá vígslu söluskála Olís á Skagaströnd 1979. Mennirnir á myndinni komu allir að byggingu skálans sem smiðir eða bifreiðastjórar. Frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Sigurjón Ástmarsson og Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011).
Hjördís Sigurðardóttir - safn012
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á þessari mynd eru frá vinstri: Róbert Þórðarson (d. 26.11. 2011) útibússtjóri á tali við Sveinbjörn Egilsson sem sá um yfirtökuna. Fyrir aftan þá til hægri er Kjartan Birgisson starfsmaður í útibúinu.
Dagný Sigmarsdóttir034
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru að koma á vakt eða fara af vakt, frá vinstri: Ragna Gunnarsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Solla S. eins og segir aftan á myndinni.
1

16
17
18

75
Leita í myndasafninu
Leita