Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Adolf H Bernsden - safn036
Starfsmenn Marska og Rækjuvinnslunnar í kaffipásu. Frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Hjördís Sigurðardóttir, Sylvía Hrólfsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari341
Hér er unnið við grjótnám í Höfðanum. Grjótið var sprengt úr Höfðanum, síðan komið á bíl sem flutti það í uppfyllingu við hafnargerðina. Myndin var líklega tekin 1934 en þá var hafnargerðin í fullum gangi. Eins og sjá má var tæknin við grjótnámið samkvæmt því sem þá þekktist. Greinilega hefur derhúfan - "sixpensarinn" - þjónað því hlutverki sem öryggishjálmar gera í dag. Í baksýn sést Ægissíða sem nú er löngu horfin. Myndina tók Björn Bergmann en mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn007
Mynd frá vígslu söluskála Olís á Skagaströnd 1979. Á myndinni er Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988) smiður til vinstri og óþekktur starfsmaður Olís í Reykjavík til hægri.
Óþekktur ljósmyndari338
Vermenn frá Skagaströnd 1916 ?. Standandi frá vinstri: óþekktur, óþekktur, Axel Helgason (d. 16.7.1971), Þorleifur Benediktsson (d. ?), Björn Þorleifsson (d.?), Jón Haraldur Guðlaugsson (d. ?), Sigurður Íshólm Klemensson (d. ?), Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) og Kristmundur Jakobsson (d. 1.5.1976). Sitjandi frá vinstri: óþekktur, óþekktur, Jónatan Guðmundsson (d. ?), Ari Einarsson (d. ?) og Eiríkur Guðlaugsson (d. ?). Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari336
Í texta með þessari mynd frá 1960 segir að þetta sé sjúkraflugvél. Hvað sem er um það þá var myndin tekin af vélinni á túni upp með vetrarbrautinni þar sem hún lenti, enda hefur aldrei verið flugbraut á Skagaströnd. Eins og sjá má var ungdómurinn ákaflega áhugasamur um vélina.

Eftirfarandi frétt Þórðar Jónssonar (d.25.12.2010) um vélina birtist í Morgunblaðinu 29. október 1960:
"Í dag kom hér sjúkraflugvélin TFHÍS, sem er eins hreyfils Cessna-vél, til að sækja sjúkling sem komast þurfti til Reykjavíkur. Flugmaðurinn lenti á nýræktuðu túni rétt við þorpið, og tókst bæði lending og flugtak prýðilega. Flugmaðurinn, Kristján Gunnlaugsson, sagði, að túnið væri ágætur flugvöllur, aðeins þyrfti að merkja hann betur...."
Óþekktur ljósmyndari186
Í bókinni : Byggðin undir Borginni (1989) segir um þessa mynd sem er á blaðsíðu 223: " Starfsfólk Hólaness við salthúsið, frá vinstri: Bergur Jón Þórðarson Skjaldbreið, Jón Árnason Ólafsvöllum, Ólafur Guðlaugsson Sævarlandi, Jóhann Jakobsson Blálandi, Árni Kristófersson Árnesi, Teitný Guðmundsdóttir Bergi, Karla Helgadóttir Ásbergi, Þórður Jónsson Skjaldbreið, Jóhanna Jónasdóttir Höfðatúni, Ingunn Valdís Júlíusdóttir Hjallholti, Sveinn Kristófersson Bergi, Árni M. Haraldsson Bergi, Guðrún Angantýsdóttir, Rósa Pétursdóttir Miðnesi, Kristófer Árnason Sunnuhvoli, Oddný Jóhannsdóttir Skálholti, Skafti Jónasson Dagsbrún, Elín Jónsdóttir Sólbakka, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Jón Áskelsson framkvæmdastjóri, Hólanesi, Sigurður Magnússon verkstjóri, Sólvöllum". Ekki kemur fram hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari321
Trjáplöntur gróðursettar á skógræktarsvæði Skóræktarfélags Skagastrandar ofan við Hólabergin. Hér er verið að gróðursetja víðiplöntur í skjólbelti nyrst á svæðinu árið 1988. Fólkið á myndinni eru óþekktir frumkvöðlar. Myndina tók Jón Jónsson.
Skagaströnd - safn026
Kvöldstemning við Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir005
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru félagarnir Ilic ? til vinstri og Hjalti Indriðason til hægri frammi í móttöku.
Hjördís Sigurðardóttir - safn043
Hafnarsvæðið á Skagaströnd 1978. Framkvæmdir standa yfir við verksmiðjuna þegar áætlanir voru uppi um að fara að bræða loðnu í henni. Undirbúningur að smíði viðlegukants við verksmiðjuna í undirbúningi með dýpkun hafnarinnar sem er í fullum gangi. Húsið sem sést í horninu neðst til vinstri eru vinnubúðir sem tiheyrðu framkvæmdum við verksmiðjuna. Þær brunnu seinna um miðja nótt en allir sem inni voru sluppu heilir út í tæka tíð.
Óþekktur ljósmyndari277
Naustavík EA 151 var stundum gerð út frá Skagaströnd tíma og tíma. Báturinn var meðal annars einn af þeim sem gerður var út á hrefnuveiðar þó hvalbyssan sé ekki um borð á þessari mynd.
Skagaströnd - safn011
Rafmagnsverkstæðið Neistinn við Strandgötu 32.
Séra Pétur og Dómhildur - safn114
Dælt upp úr Skagastrandarhöfn. Dæluskipið dældi sandinum upp úr höfninni vestur fyrir höfnina í fjöruna fyrir neðan sundlaugina. Þannig myndaðist landfylling sem er þar í dag.
Ólafur Bernódusson534
Hér er Arnarborg Hu 11 í sinni síðustu sjóferð. Verið er að koma Arnarborginni í dráttarbrautin þar sem hún var síðan söguð niður og eyðilögð. Myndin var tekin vorið 1993.
Óþekktur ljósmyndari234
Mikil umferð er um Skagastrandarhöfn allt árið en einkum þó á sumrin meðan á strandveiðunum stendur. Þetta er ekkert nýtt eins og þessi mynd frá 1936 - 1938 sýnir en þá var síld um allan Húnaflóa á sumrin og fjöldi báta, sem stundaði síldveiðar. Þá lá Skagastrandarhöfn vel við því stutt var þaðan á miðin. Í framhaldinu var svo tekin ákvörðun um að byggja síldarverksmiðju á Skagaströnd því mönnum datt ekki í hug að síldin mundi allt í einu breyta hegðunarmunstri sínu og hætta að ganga inn í Húnaflóann eins og hún hafði gert um áratugi. Á myndinni eru síldarskip í Skagastrandarhöfn kringum 1936. Húsið til hægri með skúrþakinu hét Kárastaðir, Dvergasteinn var húsið næst okkur fyrir miðri mynd með áfastri dökkri hlöðu. Þórshamar er nýlega húsið með kvistinum og neðar með götunni, sömu megin, er Garður. Til vinstri á myndinni eru Brúarland og Móar ásamt fleiri húsum sem einhver voru skepnuhús. Stóra þriggja hæða húsið nær sjónum er Gamla kaupfélagshúsið og á reitnum hjá því hægra megin er Kaupfélagshúsið og enn lengra til hægri grillir í frysthúsið. Húsið næst okkur á myndinni, ljóst með dökku þaki er óþekkt (stendur ca þar sem Skálholt stendur í dag). Ef þú kannt skil á hvað hús þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á: myndasafn@skagastrond .is.
Séra Pétur og Dómhildur - safn099
Ásdís Hu 10 sjósett í fyrsta sinn. Um þennan bát er ritað í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson :" Ásdís HU 10 1183. Báturinn var smíðaður úr eik á Skagaströnd árið 1971. Hann var 21 brl. með 185 ha. Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson, Skagaströnd og Guðbjörn Hallgrímsson, Hafnarfirði. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971. Fjórir menn voru á bátnum og björguðust allir um borð í Jón Vídalín ÁR 1 frá Þorlákshöfn. Þetta var fyrsti báturinn sem smíðaður var hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd".
Skagaströnd - safn264
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Frá vinstri: Hákon Þórarinsson, Marta Kristín Jónsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Elva Gunnarsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir
Óþekktur ljósmyndari252
Anný HU 3 var fyrsti plastbáturinn sem Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf afhenti. Skrokkur bátsins var fluttur inn en síðan var báturinn fullkláraður í stöðinni. Fyrir aftan Anný er Helga Björg HU 7. Myndin var tekin 1977.
Dagný Sigmarsdóttir009
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) að vinna við pökkun á rækju.
Ólafur Bernódusson 497
Hallbjörn Hjartarson bauð til veislu í veitingastað sínum Kántrýbæ í nóvember 1992 í tilefni af því að hanna var að opna Útvarp Kántrýbæ á efri hæðinni. Á myndinni bendir Hallbjörn á fallega tertu sem á er letrað: Útvarp Kántrýbær - FM 100,7 - Villta Vestrið - Skagaströnd. Myndin var tekin í gamla Kántrýbæ sem seinna brann en var strax endurbyggður með glæsibrag.
Dagný Sigmarsdóttir001
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið frá vinstri: Ragnheiður Magnúsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Ardís Ólaöf Arelíusdóttir.
Ólafur Bernódusson549
Auðbjörg Hu 6 lenti í mokfiskirí í einn daginn vorið 1996. Ekki voru næg ílát undir fiskinn um borð þannig að hann var út um allt dekk þegar komið var í land. Á myndinni eru karlarnir að tína fiskinn af dekkinu í kör fyrir löndun.
Skagaströnd - safn096
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2004) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir Birnu Bjarnadóttur lykilinn að íbúð sinni að Mánabraut 3 í febrúar 1983. Maður Birnu, Níels Grímsson, var fjarverandi.
Óþekktur ljósmyndari327
Gamli bærinn í Réttarholti. Hann stóð niður við sjó við Landsenda (nyrsta enda Höfðans) en brann eftir að flutt var úr honum einhverntíma á sjöunda áratugnum. Til hægri við bæinn grillir í Landsendarétt sem þarna var.
Óþekktur ljósmyndari344
Síldarverksmiðjan er til vinstri á myndinni. Mjölskemman er svo til hægri. Milli verksmiðjunnar og skemmunnar er svert rör en eftir því var mjölinu dælt úr verksmiðjunni til sekkjunar og geymslu í skemmunni.
Óþekktur ljósmyndari205
Síldarlöndun og síldarsöltun í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er sennilega frá árunum 1935 - 1937. Á þessum tíma var síldinni landað á höndum í tágakörfum eins og sést á myndinni og var það hinn mesti þrældómur fyrir sjómennina. Síldin var svo söltuð undir berum himni hvernig sem viðraði. Hreinlætisaðstaðan var einn tvöfaldur kamar sem var í raun bara lítill skúr með milligerði og setbekk með tveimur götum. Kamrinum var komið þannig fyrir að afurðirnar duttu beint í sjóinn í höfninni. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson544
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995. Þá var gripið til þess ráðs að í stað þess að moka göturnar var troðin slóð ofan á snjónum og ekið í slóðinni. Á þessari mynd er snjótroðarinn, sem sannarlega nýttist vel þennan vetur, að draga hálfgám sem sorpinu var safnað í. Á myndinni er snjótroðarinn í ca tveggja metra hæð á Bogabrautinni.
Óþekktur ljósmyndari316
Síldaverksmiðjan í byggingu árin 1945 - 1947. Myndin hefur líklega verið tekin af efstu hæð vinnupalls sem var utan á stóra verksmiðjuskorsteininum. Þrærnar sem eru lengst frá á myndinni hafa verið brotnar niður og fjarlægðar og sama má segja um rörið sem á myndinni liggur frá verksmiðjunni að mjölskemmunni sem er utan myndar. Eftir þessu röri var mjölinu blásið heim í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt þar til það var selt og sent í burtu. Eins og sjá má á myndinni var hafnargarðurinn - Útgarður- ekki kominn nema að litlu leiti.
Óþekktur ljósmyndari274
Gufuskipið Laura sigldi milli Danmerkur og Íslands í upphafi 20. aldarinnar. Í mars 1910 strandaði Laura á skeri á Bótinni norðan við Höfðann í dimmviðri. Allir björguðust í land og miklu af farmi skipsins var bjargað en Laura náðist ekki á flot aftur og liðaðist hún í sundur á skerinu á skömmum tíma. Skerið sem hún strandaði á hefur síðan verið nefnt eftir skipinu - Láruskerið. Á þessari mynd er verið að dæla sjó úr skipinu og bjarga verðmætum úr því. Utar er gufuskipið Geir í viðbragðsstöðu til að reyna að draga Lauru af skerinu.
Guðmundur Guðnason205

TF Eir mun vera fyrsta þyrlan sem Landhelgisgæslan eignaðist. Þyrlan var í rekstir á árunum 1965 - 1971. Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin ná hver konan og barnið eru. (Heimild: http://www.flugsafn.is/index.php?option=com_content&view=article&id=55&Itemid=145&lang=en)

Óþekktur ljósmyndari314
Verslunarhúsin á Hólanesi voru reist 1885 en brunnu til kaldra kola sjö árum síðar 1892. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 83)  Þar brunnu inni m.a. gjafakorn sem átti að úthluta fátækum þannig að sumum varð meiri eftirsjá að korninu en húsunum sjálfum.
Óþekktur ljósmyndari209
Myndin er af Laufey Jónsdóttur (d. 25.12.1969) frá Reykholti með kúna sína hana Gránu.
Dagný Sigmarsdóttir033
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir og Dagný Hannesdóttir. Konan í baksýn er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari305
Hermannabyrgi sunnarlega á Höfðanum. Fyrst voru nokkrir breskir hermenn á Skagaströnd en síðan voru þeir leystir af af Amerískum hermönnum. Hlutverk hermannanna var að fylgjast með umferð skipa og flugvéla á og yfir Húnaflóa. Á þessari mynd er breski hermaðurinn Tom sem lætur fara vel um sig. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 180).
Dagný Sigmarsdóttir021
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd, sem tekin var 1991, er Kristín Sigurðardóttir að fá sér af kræsingum sem fram voru bornar í tilefni Litlu jóla fagnað starfsfólksins.
Ólafur Bernódusson473
Á myndinni, sem tekin var í kaffistofu Rækjuvinnslunnar 1990, er Sigurður Bjarnason að taka við viðurkenningu fyrir vörugæði , fyrir hönd starfsfólks Rækjuvinnslunnar, úr höndum Ingimundar Konráðssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem flutti út vörur fyrirtækisins.
Óþekktur ljósmyndari169
Myndin var tekin af Höfðanum 1946 eða 1947. Síldarverksmiðjan er í byggingu en virðist jafnframt vera komin í notkun því það rýkur úr skorsteininum. Einungis grindin er komin að skemmunni og enn eru vinnupallar á skorsteininum. Verkamenn sem unnu við bygginguna bjuggu í tjöldum sem sjást í forgrunni myndarinnar. Þá eru komnar undirstöður undir Kaupfélagsskemmuna norðan við gamla kaupfélagið.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn009
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á myndinni er verið að meta saltfiskinn í flokka til útflutnings. Uppi satendur Högni Jensson og einhver óþekktur. Guðmundur ? fiskmatsmaður er með gleraugu og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) horfir á ljósmyndarann.
Óþekktur ljósmyndari285
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935 - 1940. Planið þar sem söltunarplanið er var fullgert fyrir síldarvertíð 1935 og hófst þá þegar söltun þar. Hafnarhúsið sem sér í til vinstri á myndinni var byggt sumarið 1935 en seinna (1943 - 1945) flutt á núverandi stað til að rýma fyrir verksmiðjubyggingunni. Bryggjan skemmdist um veturinn 1936 þannig að hún gekk upp um miðbikið (allt að 1 metra) og var hún því rifin niður og endurbyggð vorið 1937. Húsin í baksýn eru frá hægri: Lækjarbakki (gamli bærinn), Jaðar (Efri Jaðar), Lækur og Karlsskáli. Á bak við staurinn sem er á planinu má sjá Brúarland og lengst til vinstri er Gamla búðin. Önnur hús eru óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari257
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Örvar HU 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn nýsmíðaður frá Akureyri. Eins og sjá má var fjölmenni á bryggjunni til að fagna hinu nýja skipi.
Óþekktur ljósmyndari245
Þessi mynd var tekin í apríl 1989 þegar verið var að moka Mánabrautina. Fremst til hægri er vélaverkstæðið á kafi í snjó og ekki dugir minna en ein traktorsgrafa, hjólaskófla og jarðýta af stærstu gerð til að ráða við verkefnið.
Skagaströnd - safn284
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Jón S. Pálsson fyrrverandi skólastjóri fagnar tilkomu hússins í ræðustól.
Skagaströnd - safn241
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða í veitingahúsinu Við árbakkann á Blönduósi. Á þessari mynd er Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) sem var einn af flokksstjórunum þetta sumar.
Óþekktur ljósmyndari272

Undir þessari mynd á bls. 213 í Byggðin undir Borginni stendur: "Á línuveiðum. Þorkell Magnússon í Goðhól heldur á þorski, fyrir aftan hann er Gísli Jóhannesson frá Garði og Einar Guðjónsson er við rúlluna". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Gísli drukknaði í Laxá í Dalasýslu 11.5.1953 þannig að myndin var sennilega tekin 1945 - 1950.

Óþekktur ljósmyndari214

Gamli Sólheimabærinn. Bærinn stóð við Skagaveg skáhalt á móti núverandi Sólheimum. Á myndinni er Karla Berndsen að taka upp kartöflur.

Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn020
Frystihús Hólaness hf á Hólanesi. Myndin var tekin sunnan frá. Ekki er vitað hvenær hún var tekin en alllangt er síðan uppfylling kom upp að húsinu, þannig að líklega er myndin frá sjötta áratugnum.
Skagaströnd - safn050
Sigurður Guðmundsson glímir við steypusíló í viðbyggingu við Höfðaskóla 1978.
Skagaströnd - safn027
Byrjað var að leggja varanlegt slitlag á götur á Skagaströnd 1976. Ms Sandey flutti efnið til Skagastrandar og hér er verið að skipa því upp á pallinn á vörubíl Eiðs Hilmarssonar H 474.
Skagaströnd - safn058
Steypuvinna við uppsteypun verkamannabústaða við Suðurveg árið 1981. Magnús Ólafsson heldur við síólið og Vilhelm Jónsson er með vibratorinn.
Guðmundur Guðnason114
Frystihús KAST (Kaupfélags Skagstrendinga), sem seinna komst í eigu Hólaness hf og hefur verið mikið breytt og bætt. Til vinstri sést að bryggjan, sem reist var framan við frystihúsið 1922, er enn uppistandandi. Myndin hefur sennilega verið tekin í kringum 1940.
Óþekktur ljósmyndari332
Sæljón RE 317 landar síld í bræðslu á Skagaströnd. Herbert Ólafsson tók þessa mynd en hann var háseti á Sæljóninu. Myndin var tekin snemma á sjöunda áratugnum.
Skagaströnd - safn101

Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 , eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir á bls 106 um þetta skip:

" Arnar HU 1 2265 Í árslok 1995 keypti Skagstrendingur h/f frystitogarann Neptun, af rússnesku félagi en hann var byggður úr stáli í Noregi árið 1986 fyrir færeyska útgerð. Skipið var 1.803 brl., 60 metra langt og 13 metra breitt með 4073 ha. Wartsila vél. Þegar togarinn var keyptur var hann á veiðum við strendur Kóreu og var siglt þaðan til Vigo á Spáni, þar sem fram fóru umfangsmiklar breytingar. Arnar kom í heimahöfn á Skagaströnd í lok mars 1996 og hefur síðan verið gerður þeðan út. Árið 2002 fiskaði hann 7.042 tonn á 300 úthaldsdögum eða 23,5 tonn á dag og nam aflaverðmætið 1063 milljónum króna. Þetta var mesta aflaverðmæti sem íslenskt frystiskip hafði komið með að landi á einu ári. Í júlí árið 2003 kom Arnar úr Barentshafi eftir 22 daga úthald og þar af hafði skipið verið að veiðum í 13 daga. Aflinn var 720 tonn upp úr sjó á þessum tíma þ.e. 55 tonn á dag eða sem samsvarar 33 tonnum á úthaldsdag. Árið 2010 var aflaverðmæti skipsins liðlega 2 milljarðar króna".

Óþekktur ljósmyndari276
Á myndinni eru Auðbjörg HU 6 fyrir innan og Ásbjörg HU 5 utan á henni. Bátana átti Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar sem gerði þá út frá Skagaströnd. Myndin var tekin á sjötta áratugnum
Hjördís Sigurðardóttir - safn009
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á myndinni eru frá vinstri: Magdalena Jóhannsdóttir útibússtjórafrú, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Hjördís Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason136
Mjóadalsrétt á Laxárdal. Bærinn í baksýn er Gautsdalur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Skagaströnd - safn025
Myndin var tekin þegar Ólafsvellir/Náttbrún var rifin. Húsið stóð nokkurn vegin á horninu þar sem nú mætast Oddagata og Túnbraut. Vörubíllinn á myndinni var H 34 í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.10.2007), sem situr undir stýri á myndinni. Myndin var tekin einhverntíma rétt fyrir 1990 en Stjórnsýsluhúsið, sem er í baksýn, var tekið í notkun 1987.
Skagaströnd - safn187
Kjörstjórn Höfðahrepps að störfum í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið um 1970. Frá vinstri: Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) Iðavöllum, Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) Ásholti og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri, Norður-Skála.
Skagaströnd - safn003

Eldri hluti Höfðaskóla var tekinn í notkun 1958 en nýrri hlutinn um 1980. Eldri hlutinn er fjær okkur á myndinni.

Skagaströnd - safn035
Anný Hu 3 var fyrsti plastbáturinn sem smíðaður var í skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Báturinn var smíðaður 1977 fyrir Einar Guðmundsson frá Saurum. Anný var síðan seld austur á firði og gerð út þar meðal annars sem ferja/póstbátur milli fjarða. Á þessari mynd liggur Anný Hu 3 framan við Helgu Björg Hu 7 en í forgrunni eru trillurnar Kópur Hu 28 og Sigurður Jónsson Hu 18.
Óþekktur ljósmyndari279

Myndin var tekin í sláturhúsi Kaupfélags Skagstrendinga KAST um 1960. Á henni eru frá vinstri: Bjarni Loftsson (d. ?) frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) fláningsmaður, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) frá Stórholti (Bankastræti 3) skar fyrir ( = skar fæturna af við "hné" og opnaði gæruna fyrir fláningsmennina), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) fláningsmaður og Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) frá Iðavöllum fláningsmaður.

1

17
18
19

75
Leita í myndasafninu
Leita