Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn187
Kjörstjórn Höfðahrepps að störfum í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið um 1970. Frá vinstri: Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) Iðavöllum, Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) Ásholti og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri, Norður-Skála.
Óþekktur ljósmyndari320
Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) frá Kambakoti og Reykholti var mikill veiðmaður og góð skytta. Hann skaut margan refinn gegnum tíðina og á þessari mynd, sem tekin var 1969 af Stefáni Jósefssyni, heldur hann á einum þeirra. Hlauplanga haglabyssan, sem hann er með, var af gerðinni Husqvarna en slíkar byssur voru nokkuð algengar á þessum tíma
Óþekktur ljósmyndari318
Þessir menn frá vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík unnu að byggingu síldarverksmiðjunnar 1945 - 1947. Eitt af því sem þeir smíðuðu voru tveir risa-tankar upp við Höfðann. Hér hafa þeir stillt sér upp utan á öðrum þeirra til myndatöku.
Ólafur Bernódusson493
Myndin var tekin í desember 1993 af starfsfólki Skagstrendings hf á námskeiði í Fellsborg. Frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Stefán Ægir Lárusson, fjórir óþekktir, Björgvin Karlsson, óþekktur (fjær), Sigurbjörn Björgvinsson, Hjalti Indriðason (næst), Gylfi Guðjónsson, óþekktur (fjærst), Gunnar Jón Jónsson, Ragnar Högnason, óþekktur, Guðjón Guðjónsson, þrír óþekktir, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (næst), Sveinn Ingólfssonn, óþekktur (fjærst) og Ágúst Ómarsson.
Óþekktur ljósmyndari346
Þessi mynd var tekin fyrir 1906 og er af gamla íbúðarhúsi danska kaupmannsins sem byggt var 1774 en rifið 1908. Svarta húsið var fjós og hesthús kaupmannsins og líklega pakkhús að hluta til. Hvíta húsið hægra megin við bátinn var Búðin og áfast við hana er pakkhús/kornhlaða sem líklega var aðal lagergeymsla Búðarinnar. Búðin stóð fram á sjöunda áratuginn og var undir það síðast notuð sem sementsgeymsla fyrir KAST = Kaupfélag Skagstrendinga. Kornhlaðan var sennilega rifin um eða rétt fyrir miðja 20 öldina. Hægra megin við þessar byggingar, á kafi í snjó er Sæmundsenbúðin. Báturinn á myndinni hét Traffik og var eign Hoephnersverslunar.
Guðmundur Guðnason128
Gömul mynd af réttastörfum í ókunnri rétt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn256
Síðasta Kántrýhátíðin sem haldin var 2002 var afar fjölmenn en jafnframt afar blaut því það rigndi alla helgina. Fljótlega breyttust því tjaldsvæðin - sem voru út um allan bæ - í drullusvað eftir of mikla bílaumferð.
Skagaströnd - safn030
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) oddviti, til hægri, skálar hér við Þorgeir Hafsteinsson, einn af starfsmönnum Miðfells hf, eftir að fyrirtækið hafði lokið lagningu varanlegs slitlags á götur á Skagaströnd 1976. Milli þeirra situr Elín Njálsdóttir.
Ólafur Bernódusson546
Helga Björg Hu 7 kemur til heimahafnar á Skagaströnd um mánaðarmótin jan/feb 1996. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um þetta skip:<em> "<strong>Helga Björg</strong> Hu 7 <strong>2266</strong>. Árið 1995 keypti Skagstrendingur h/f rækjufrystitogara frá Grænlandi sem hét <strong>Betty Belinda</strong>. Hann var byggður í Noregi 1976 og var 490 brl. en var lengdur og skipt um aðalvél, spil o.fl. árið 1986. Skipið varð þá 50 metra langt og 9,5, metrar á breidd, 935 brl. að stærð og aðalvélin 1795 ha. Alpha Diesel. Umfangsmiklar endurbætur voru gerðar á skipinu hjá Slippstöðinni á Akureyri eftir að Skagstrendingur h/f eignaðist það og byrjaði togarinn veiðar á árinu 1996. Í byrjun árs 1999 var skipið selt til Laka Ltd., félags í eigu Skagstrendings og fleiri aðila, sem var skrásett í Eistlandi. Skipið var gert út til veiða á Flæmingjagrunni undir nafninu <strong>Tahkuna</strong> þar til það var selt árið 2000".</em>
Skagaströnd - safn072
<p>Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt 1981 eða vorið 1982 og þessi mynd er frá þeim atburði. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Lárus Ægis Guðmundsson, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002)(nær), Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra (fjær), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Páll Pálsson ljósmyndari, Magnús Ólafsson og Gylfi Sigurðsson. </p>
Skagaströnd - safn262
Í mörg horn var að líta við undirbúning kántrýhátíðar 1996. Hér eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Sigurður Berndsen til hægri að reisa samkomutjaldð á Hnappstaðatúni.
Skagaströnd - safn099
Húni II í Skagastrandarhöfn áður en Þorvaldur Skaftason hófst handa við endurbyggingu hans.
Ólafur Bernódusson528
Viðbygging við leikskólann Barnaból var tekin í notkun í nóvember 1994. Á þessari mynd er fólk að kynna sér nýbygginguna. Frá vinstri: Þórdís Skúladóttir, Birna Sveinsdóttir (krýpur), Ragnheiður Magnúsdóttir, tvær óþekktar, Rolf Árnason, Jóhannes Símonsen, Fjóla Ævarsdóttir, óþekkt, Kristín Jónsdóttir, Adolf H. Berndsen, Kolbrún Viggósdóttir og Halla Lýðsdóttir. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Guðmundur Guðnason 2228
Þessi mynd var tekin af fjársafni sem verið er að reka yfir ?Svartá? á leiðinni til réttar í Stafnsrétt. Smalamennirnir eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir035
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru tvö af tryggustu starfsmönnum vinnslunnar þau Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og Sigurður Bjarnason. Myndin var tekin sumarið 1993.
Guðmundur Guðnason199
Séð yfir Stafnsrétt 1969. Hér er verið að rétta hross.
Adolf H Berndsen - safn037
Ernst Berndsen (f. 2.6.1900 - d. 21.8.1983) á Karlsskála siglir hér á bát sínum Helgu þó ekki sé leiðið gott. Ernst var fyrsti hafnarvörður Skagastrandarhafnar og gengdi því starfi í áratugi. Þá var hann lóðs í Húnaflóa og lóðsaði lítil og stór skip til hafnar í höfnunum við flóann. Ernst var lengi umboðsmaður fyrir Olíufélag Íslands - Olís en jafnframt því sótti hann sjó á eigin trillum þegar færi gafst. Þeir eru ófáir sjómennirnir sem fóru sinn fyrsta róður með Ensa, eins og hann var kallaður, og lærðu hjá honum réttu handtökin á sjó. Nú síðasta vetur (2014) var Helgan gerð upp þannig að siglingasögu hennar er ekki lokið en hún er nú í eigu afkomenda Ernsts.
Guðmundur Guðnason191
Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970 þar sem menn eru að ræða málin. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn215
Þessi mynd sýnir horfinn tíma. Hún var tekin í vinnslusal frystihúss Hólaness hf 1976. Á henni má telja 21 konu sem eru að snyrta og pakka fiski. Ekki þekkjast allar konurnar en frá hægri eru: Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Kristín Sigurðardóttir, Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), óþekkt, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d.13.10.2000), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Laufey Sigurvinsdóttir (d. 21.12.1994), fjórar óþekktar, Elísabet Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991) (nær), óþekkt (fjær), Elísabet Árnadóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir en aðrar eru óþekktar. Nú hefur vinnslusalnum verið breytt í rannsóknarstofur og Vörusmiðju BioPol ehf.
Guðmundur Guðnason195
<p>Myndin var tekin í Stafnsrétt 1970. Á myndinni frá vinstri má greina Maríu Steingrímsdóttur bónda á Brandsstöðum en fjórði maður frá henni, með gleraugu, er Markús? bóndi á Reykjahóli og síðan Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) bóndi á Bollastöðum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn013
<p>Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Myndin var tekin í kaffipásu. Frá vinstri Sigfús Sævar Sigurðsson, Sigrún Benediktsdóttir og Gunnar Albertsson.</p>
Þórður Jónsson058
Húni Hu 1 leggur af stað til síldveiða úr Skagastrandarhöfn með nótabát í eftirdragi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson557
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvíburarnir Þröstur Árnason til vinstri og Svanur Árnason til hægri að sýna jólafötin það árið.
Skagaströnd - safn037
Slitlagsframkvæmdir á horni Sólarvegar og Bogabrautar árið 1978. Adolf J. Berndsen sturtar af bíl sínum í útlagningarvélina. Lengst til hægri í ljósum hlífðarslopp er Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) bæjarverkstjóri frá Lækjarbakka.
Óþekktur ljósmyndari223
Síldarverksmiðjan í byggingu 1945 - 46.
Dagný Sigmarsdóttir039
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru tvær drottningar, Inga Lára Sigurðardóttir til vinstri og Árný Helgadóttir til hægri. Myndin var tekin sumarið 1993.
Dagný Sigmarsdóttir002
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Hrönn Árnadóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson545
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri með tvo af sonum sínum í brúnni á rækjutogaranum Helga Björg Hu 7 þegar Hjörtur var nýkominn með skipið til Skagastrandar í fyrsta sinn í jan/feb 1996. Strákarnir eru Kristján Ýmir Hjartarson í fangi pabba síns og Ómar Ísak Hjartarson sem stendur hjá þeim. Helga Björg var rækufrystitogari í eigu Skagstrendingas hf á árunum 1995 - 1999 og var gert út til rækjuveiða þessi ár.
Skagaströnd - safn250
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er verið að leggja lokahönd á reisa stærra tjaldið. Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir er í Nike peysu og svo má þekkja baksvipinn á Ragnari Ingvarssyni lengst til hægri.
Óþekktur ljósmyndari233
Síldarskip í Skagastrandarhöfn sennilega 1936 eða 1937.
Dagný Sigmarsdóttir023
<p>Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Þessi myn var tekin á Litlu jólum starfsfólks rétt fyrir jólin 1991. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Berglind Karlsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, Dagný Hannesdóttir, óþekkt og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Hægra megin við borðið er Kristín Sigurðardóttir innst en aðrir eru óþekktir. Lengst til hægri er svo Jóhannes Óskarsson og Sigríður Gestsdóttir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Óþekktur ljósmyndari317
Þessir vösku menn störfuðu að byggingu síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd 1945 - 1947. Þeir voru flestir - ef ekki allir - starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins í Reykjavík.
Ólafur Bernódusson524
Þessum hestasteini var komið fyrir rétt hjá Kántrýbæ í september 1994.
Dagný Sigmarsdóttir010
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið frá vinstri: Lísebet Gestsdótti og Kristín Jóna Sigurðardóttir.
Óþekktur ljósmyndari291
Slitlag lagt á Fellsbraut 1976 í miklu átaki við að leggja varanlegt slitlag á götur á Skagaströnd. Drengurinn við ljósastaurinn til hægri, með hendur í vösum, er líklega Guðmundur Jónsson en aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn120
Björn Hallbjörnsson vinnur við járnabindingar í nýbyggingu við Mánabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en íbúðirnar voru afhentar, fullbúnar, í febrúar 1983.
Dagný Sigmarsdóttir018
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Berglind Karlsdóttir að mæta á vaktina en um tíma var verksmiðjan í gangi allan sólarhringinn.
Skagaströnd - safn296
Haustið 2000 var malbikaður hluti Bogabrautarinnar. Þessi mynd sýnir malbikunargengið að störfum. Ragnar Ingvarsson og óþekktur fylgjast með framkvæmdunum.
Dagný Sigmarsdóttir022
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd starfsfólkið að njóta góðra veitinga í tilefni Litlu jólanna 1991. Á myndinni eru við borðið hægra megin talið frá vinstri: Steindór Haraldsson, Jóhannes Óskarsson, óþekkt, Sigríður Gestsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir,óþekkt, Ingólfur Bjarnason og Sigurður Bjarnason.
Þórður Jónsson022
Öflugt skátastarf var á vegum skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd í allmörg ár á sjötta og sjöunda áratugnum undir stjórn Þórðar Jónssonar félagsforingja. Eitt af verkefnum skátanna var að koma sér upp skála í Brandaskarði. Skálinn var því miður aldrei fullgerður heldur voru einungis steyptar undirstöður og botnplata. Nokkrum árum seinna byggðu svo skátarnir skála í suðurhlíðum Spákonufells. Á þessari mynd eru galvaskir skátar í vinnuferð í Brandaskarði. Frá vinstri: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Hallbjörn Björnsson Jaðri, Gissur Jóhannsson Lækjarbakka, Kristinn Lúðvíksson Steinholti, Ísleifur Haraldsson Jaðri, Þórunn Bernódusdóttir Stórholti, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum, Birgir Júlíusson Höfðabergi, Jóhann Ingibjörnsson, Frímann Lúðvíksson Steinholti, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson Höfðabrekku.
Magnús B Jónsson090
Stakkur RE 186 var ein af nýsmíðunum frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Á myndinni er nýbúið að gefa bátnum nafn og eigandi hans, Rögnvaldur Sæmundsson, flytur ræðu af því tilefni.
Ólafur Bernódusson494
Myndin var tekin á námskeiði starfsfólks Skagstrendings hf í desember 1993. Frá vinstri: tveir óþekktir, Sveinn Ingólfsson (fjær), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (nær), Ágúst Ómarsson, fjórir óþekktir, Sævar Hallgrímsson, Ingvi Sveinn Eðvarðsson (nær), Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) (fjær), tveir óþekktir, Sigurbjörn Ingólfsson, óþekktur, Jóhannes Símonsen, óþekktur, Guðmundur Guðmundsson (nær), Árni Sigurðsson (fjær), fimm óþekktir, Stefán Sveinsson, Steinunn Grímsdóttir (fjær) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (nær).
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Á þessari mynd er verið að salta síld í Skagastrandarhöfn. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1943, sennilega árið 1935 eða 1936. Húsin sem sjást í baksýn eru frá vinstri: Viðvík, þar sem lengi var rekin veitingasala og gistihús, Vík, Sæból, Sæborg og Bjarg. </P>
Ólafur Bernódusson532
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Sigfús Guðmundsson mjólkurbílstjóri, Baldvin Sveinsson Tjörn og Reynir Davíðsson frá Neðri Harrastöðum.
Óþekktur ljósmyndari302
Í bókinni Byggðin undir Borginni á bls. 63 segir svo um þessa mynd: <em>" Verslunarstaðurinn árið 1910; fremst er verslunarstjórahúsið, þá assistentastofan, pakkhúsið og búðin. Fjær eru Gamli-Lækur og Jaðar. Á grindurnar í hægra horninu var breiddur fiskur, en Höphnersverslun hafði þá mesta fiskverkun. Spákonufellið gnæfir yfir og til hægri er Einbúinn".</em>
Óþekktur ljósmyndari319
Þessi mynd var tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 - þeirri fyrstu með því nafni á Skagaströnd - á síldveiðum á Húnaflóa. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en þessi Auðbjörg var gerð út frá Skagaströnd árin 1947 - 1959 þannig að myndin hefur verið tekin einhverntíma á þessu árabili. Líklega er Auðbjörgin á reknetaveiðum og myndin er lýsandi fyrir af hverju síldin er kölluð "silfur hafsins" því karlarnir og allt skipið eru þakin silfurlitu hreistri síldarinnar.
Dagný Sigmarsdóttir036
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Grétar Haraldsson verkstjóri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn158
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd sýnir dansflokkur frá Skagaströnd línudans við vígsluna. Í dansflokknum eru frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Kristín Blöndal, Sæmundur Gunnarsson, Eygló Gunnarsdóttir, Linda Björk Ævarsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir.
Skagaströnd - safn006
Í þessu húsi var starfrækt framsækin rækjuverksmiðja þar til að rækjustofnin hrundi í hafinu. Eftir það var fiskvinnsla í húsinu um tíma en síðan stóð húsið autt og engin starfsemi fór þar fram.
Óþekktur ljósmyndari259
Helga Björg HU 7 drekklestuð af síld á miðunum við Norð- austurland sumarið 1966. Verið er að háfa síld úr nótinni undir stjórn skipstjórans Jóns Ólafs Ívarssonar (d. 29.12.2013).
Skagaströnd - safn209
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri saumastofunnar Violu bregður á leik innan um farmleiðsluvörur saumastofunnar. Myndin var tekin í nóvember 1987 af Ólafi Bernódussyni.
Skagaströnd - safn124
Hjónin Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Bergljót Óskarsdóttir (Begga) (d. 22.2.2004) hlýða á ræðu í hófi, sennilega í febrúar 1983, í tilefni af tilkomu nýrra íbúða í verkamannabústöðum við Mánabraut.
Þórður Jónsson025
Öflugt skátastarf var á vegum skátafélagsins Sigurfara á Skagaströnd í allmörg ár á sjötta og sjöunda áratugnum undir stjórn Þórðar Jónssonar (d.25.12.2009) félagsforingja. Eitt af verkefnum skátanna var að koma sér upp skála í Brandaskarði. Skálinn var því miður aldrei fullgerður heldur var einungis steyptar undirstöður og botnplata. Nokkrum árum seinna byggðu svo skátarnir skála í suðurhlíðum Spákonufells. Á þessari mynd eru skátar í vinnuferð í Spákonufelli líklega árið 1966. Frá vinstri: Steindór Haraldsson Höfðakoti, Ari Ólafsson Sævarlandi, Guðmundur Guðmundsson, Gissur Jóhannsson Lækjarbakka, Sigríður Ágústsdóttir Blálandi, Frits Bjarnason Bjargi, ?Gylfi Jóhannsson Læjarbakka?, ?Kristmundur Ingibjörnsson? og Gunnlaugur Sigmarsson. Vinsamlega sendu okkur athugasemd ef þú getur staðfest nöfn drengjanna Gylfa og Kristmundar.
Skagaströnd - safn156
Sigurður Björnsson mundar vibratorinn til að jafna út steypu í efstu plötunni í stjórnsýsluhúsinu.
Ólafur Bernódusson500
Þessi mynd var tekin í febrúar 1994 á þjóðveginum milli Árbakka og Vindhælis. Sveinn Þórarinsson, sem stendur framan við bílinn, keyrði lengi þennan bíl fyrir kaupfélagið á milli Blönduóss og Skagastrandar. Þennan dag var milkil hálka og hífandi rok þannig að Sveinn stoppaði til að keðja bílinn. Þegar hann var kominn með keðjuna í hendurnar og ætlaði að fara að setja hana á, skipti engum togum að bíllinn fauk á hliðina út í kant. Á þessari mynd er búið að fá aðstoð gröfu við að koma bílnum á fjögur hjól aftur. Bíllinn skemmdist furðu lítið við byltuna og var notaður í mörg ár eftir þetta. Hinn maðurinn á myndinni er óþekktur.
Skagaströnd - safn278
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Á myndinni afhendir Helgi Gunnarsson, yfirsmiður byggingarinnar, Adolf H. Berndsen, oddvita Höfðahrepps, íþróttahúsið formlega með táknrænum lykli að húsinu. Helgi er til hægri á myndinni.
Skagaströnd - safn118
Í þessu húsi, sem stóð á milli Sunnuvegar og Suðurvegar, og var upphaflega fjárhús, var Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) með hænsnabú í nokkur ár. Þegar húsið varð fyrir, vegna nýbygginga við Sunnuveg, var farið fram á það við Friðjón að hann fjarlægði húsið. Friðjón var ekki sáttur við það svo nokkuð drógst að fjarlægja húsið en það var þó gert að lokum í óþökk hans.
Skagaströnd - safn014
Neistinn ehf er rafmagnsverkstæði við Strandgötu. Á myndinni eru starfsmenn fyrirtækisins. Frá vinstri: Björn Hallbjörnsson, Hjalti Viðar Reynisson, Steinunn Berndsen og eigandinn Hallbjörn Björnsson. Myndin var sennilega tekin einhverntíma upp úr 2000.
Þórður Jónsson031
Frá vígslu Höskuldsstaðakirkju 1963. Prestar og leikmenn bera gripi úr gömlu kirkjunni, sem sér í efst í horninu til vinstri, inn í nýju kirkjuna. Fremst á þessari mynd er Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) frá Mánaskál. Tveir fremstu prestarnir eru óþekktir en séra Gísli Kolbeins heldur á bakka með bikurum. Yfir vinstri öxl hans sést í séra Jón Kr. Ísfeld (d. 1.12.1991) í Bólstaðarhlíð en yfir þá hægri sér í séra Þorstein Gíslason (d. 8.6.1980) í Steinnesi. Presturinn, sem heldur á höklinum er óþekktur, en vinstra megin við hann er sóknarprestur Höskuldsstaðarsóknar séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Á myndinni lítur út eins og séra Pétur sé með biskupshúfu á höfðinu en svo er ekki heldur gengur Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) biskup fyrir aftan Pétur og því kemur þetta svona út.
Skagaströnd - safn158
Þessi útihús og Ólafsvellir (Náttbrún) - gula húsið á myndinni - voru öll rifin til að rýma til fyrir byggingu stjórnsýsluhússins að Túnbraut 1 - 3. Húsin voru rifin 1985 eða 1986. Þegar þessi mynd var tekin var búið að rífa Dagsbrún sem var vinstra megin við myndina.
1
…
18
19
20
…
75
Leita í myndasafninu
Leita