Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Óþekkt079
Gatnagerð neðst á Fellsbraut 1988. Framkvæmdir við smíði kirkjunnar í fullum gangi.
Guðmundur032
Kristján Hjartarson spilar hér á orgel heima hjá sér. Kristjan var ljóðskáld, söngvari og tónlistarmaður af Guðs náð. Kristján stjórnaði kirkjukór Hólaneskirkju um árabil
Óþekkt084
Tvær stórar vinnuvélar að moka snjó af Strandgötunni þ.e. fyrir víkina.
Snorri008
Helga Björg Hu 7 á siglingu
Guðmundur071
Raðhús á Mánabraut í forgrunni og í baksýn er verið að byggja hús trésmiðju Helga Gunnarssonar.
Óþekkt105

Veisla á hótel Dagsbrún 1991 til að fagna verklokum við smíði Sægarðs. Við borðið fremst á myndinni eru, frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Birgir Árnason (snýr baki í myndavélina), Ólafur Bernódusson og Magnús Blöndal. Við borðið þar fyrir aftan eru, frá hægri: Rúnar Jóhannsson, Sigurjón Ástmarsson, óþekktur og Lúkas ?? kranastjóri. Við borðið til vinstri má þekkja Viggó Brynjólfsson. Maðurinn í röndótta bolnum er vertinn á hótel Dagsbrún, Steindór Rúniberg Haraldsson. Aðrir eru óþekktir.

Guðmundur127
Arnar Hu 1 að koma til hafnar, fyrir framan má sjá byrjunarframkvæmdir við byggingu á frystiklefa Hólnesfrystihússins á uppfyllingu við Skúffugarðinn.
guðmundur160
Á þessari mynd er stund milli stríða hjá verkamönnunum sem halla sér upp að jarðýtutönninni í smá pásu. Eftir bakgrunninum að dæma er verið að vinna við lagningu Vetrarbrautarinnar norðan við núverandi byggð á Skagaströnd. Maðurinn lengst til hægri í fremri röð er Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) póstur og ljósmyndari frá Ægissíðu. Við hlið hans er Ágúst Jakobsson (d. 1.6.1989) í Blálandi en aðrir eru óþekktir. Takið eftir bókelska manninum, hann nýtir pásuna í vinnunni til að líta í bók ! Myndin hefur líklega verið tekin um 1950. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur067
Á myndinni sést gamla Tunnan sem seinna varð Spákonuhof. Hafði áður þjónað sem samkomuhús, íþróttasalur, kvikmyndahús og áhaldahús sveitarfélagsins. Við hlið Tunnunnar eru leyfarnar af gamla hafnartrukknum en í baksýn sér í Ólafsvelli (Náttbrún) og raðhúsið við Suðurveg 2 - 8. Yfir Tunnuna til vinstri sér í hornið á Iðavöllum.
Guðmundur134

Afgreiðslan á pósthúsinu. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir póstmeistari til hægri en Ása Jóhannsdóttir situr við símaskiptiborðið.

guðmundur012
Hér er Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari í fullum skrúða á pósthjólinu fyrir utan heimili sitt að Ægissíðu.
Guðmundur069
Á myndinni sjást framkvæmdir við byggingu nýrrar Hólaneskirkju einhverntíma á níunda áratugnum.
Jón064
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti og Ástmar Kári Ástmarsson inni í spilhúsinu við vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Guðmundur037
Þessi fjárhúskofi tilheyrði Ægissíðu þar sem Guðmundur Guðnason ljósmyndari þessarar myndar átti heima.
Guðmundur086
Örvar Hu 21 í fyrsta sinn í heimahöfn 1982. Hópur fólks um borð að skoða hið nýja skip.
Snorri004
Arnar Hu 1 á siglingu.
Snorri007
Örvar Hu 21 frá Skagaströnd á siglingu. Þetta skip var fyrsti frystitogari Íslendinga.
Snorri006
Örvar Hu 21 frá Skagaströnd á siglingu. Þetta skip var fyrsti frystitogari Íslendinga.
guðmundur203
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari með hrútinn sinn fyrir utan fjárhúsin. Myndin var sennilega tekin kringum 1950.
Jón065
Arnarborgin bíður örlaga sinna í slippnum á Skagaströnd þar sem hún var rifin
Guðmundur065
Fjárhús og heyfúlgur sem tilheyrðu Ægissíðu.
guðmundur024
Verslunin Borg. Þarna var ekta krambúð þar sem Sigurður Sölvason og Margrét Konráðsdóttir kona hans versluðu.
Guðmundur085
Örvar Hu 21 skreyttur. Sennilega er myndin tekin 1982 þegar Örvar kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd og fólk hópast um borð til að skoða skipið.
guðmundur229
Húni Hu-1 fánum prýddur við Hafnargarðinn (Útgarð). E.t.v. við fyrstu komu til Skagastrandar?
Guðmundur124
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn lengst til vinstri (með hatt) er Ágúst Jakobsson sem bjó í Blálandi en fremst á myndinni (með alskegg) er Gunnlaugur Björnsson í Drangey.
guðmundur158
Willys Overland jeppi H 192 líklega í eigu Ingva Guðnasonar frá Ægissíðu. Myndin var tekin á götunni framan við Ægissíðu.
óþekkt001
Þarna sést Hafnarhúsið með tunnum hlaðið upp við vesturhlið þess. Auk þess sjást bátar við bryggju sem var suður af frystihúsinu (nú H59). Hafnarhúsið var seinna flutt á þann stað sem það er í dag. Myndin er tekin eftir 1935 því þá var Hafnarhúsið byggt en fyrir 1945 því þá var það flutt á núverandi stað. Bryggjan í forgrunni var byggð 1922 af sjó- og verkamönnum á Skagaströnd sem gáfu vinnu sína í þetta framfaramál en Verslunarfélag Vindhælinga skaffaði efni sem til þurfti. Engin ummerki sjást í dag eftir bryggjuna.
hem041
Uppboð á eigum Höephnersverslunar 1921. Ewald Hemmert, sem var verslunarstjóri verslunarinnar, flutti inn á Blönduós. Þessi hús stóðu skammt austur af Einbúanum. Ljósa húsið var búðin en hærra húsið var pakkhús. Við horn pakkhússins sér í Assistentastofu sem var heimili versluraþjónsins sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans. Hægra megin við búðina sér í íbúðarhúsið Sæmundsensbúð.
Jón023
Vörubíllinn á myndinni var í eigu Gunnars Helgasonar sem átti marga slíka, ávallt með númerinu H 34. Bláa Wolksvagen - bjallan var í eigu Bernódusar Ólafssonar. Á myndinni er verið að vinna í fiski á planinu hjá frystihúsi Hólaness hf. Ekki er búið að byggja beinahúsið sem nú er til vinstri við byggingarnar á myndinni.
guðmundur231

Þessi mynd er tekin við heimkomu Húna HU 1 til Skagastrandar í september 1957. Húni var 75 Brl og með fyrstu stálskipum sem smíðuð voru í Austur Þýskalandi fyrir Íslendinga.
Jón091
Friðgeir Eiríksson (d.17.5.1985) frá Sviðningi í Fossárrétt 1984.

Óþekkt055
Magnús B. Jónsson gerir fána kláran til að hengja upp fyrir forsetaheimsókn 1988.
Óþekkt042
Bræðurnir Ari, Þórarinn og Atli Þórssynir á Kántrýhátíð. Ari er sá með húfuna, Þórarinn (Diddi) með hattinn og Atli er í norskri peysu.
guðmundur022

Verslunin Borg , sem var í húsinu á myndinni, var ekta krambúð þar sem hægt var að fá keypt nánast hvað sem var til heimilisins. Verslunina áttu og ráku hjónin Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) og Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974). Hjónin bjuggu í húsinu - í austurenda þess - en verslunin var í meginhluta hússins. Kjallari var undir því og var hann nýttur fyrir hluta af lager verslunarinnar. Hinum megin við götuna var líka lagerhúsnæði, sem þau hjón áttu, en það hús stendur enn þó verslunarhúsið sjálft á myndinni hafi verið rifið fyrir allöngu. Eftir að Sigurður lést var húsið selt rafmagnsfyrirtækinu Neistanum sem þá var í eigu þeirra Jóns Inga Ingvarssonar og Hallbjörns Björnssonar. Ráku þeir félagar saman rafverkstæði í húsinu í allmörg ár. Hallbjörn keypti síðan hlut Jóns Inga, þegar hann fór að starfa á öðrum vettvangi, og hefur átt og rekið Neistann síðan. Hallbjörn byggði stórt húsnæði yfir starfsemi sína ekki langt frá þessu húsi og þar hefur hann rekið Neistann til þessa dags (janúar 2016). Húsið á myndinni var svo rifið fyrir allnokkrum árum eftir að Neistinn hafði flutt í nýja húsnæði sitt. Þá var verslunarhúsið komið í eigu Höfðahrepps.

Óþekkt040
Framkvæmdir komnar vel á veg við nýja kirkju á Skagaströnd. Sú gamla sést í baksýn.
Snorri009
Helga Björg Hu 7 á siglingu.
Óþekkt087
Snjótroðarinn á ferð í skafrenningi og miklum snjó á Túnbraut.
Óþekkt116
Helgi Gunnarsson vinnur að frágangi lóðarinna við Hólaneskirkju.
Guðmundur064
Kjörstjórn að störfum á kjörstað í Fellsborg. Frá vinstri: Guðmundur Rúnar Kristjánsson, Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) og Kristófer Árnason (d.10.5.2000).
Óþekkt107
Veisla á hótel Dagsbrún til að fagna verklokum við smíði Sægarðs 1991. Á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Rolf Árnason tæknifræðingur, Aðalsteinn Aðalsteinsson verkstjóri, Adolf J. Berndsen oddviti, Elín Njálsdóttir hreppsnefndarmaður og Þorvaldur Skaftason hreppsnefndarmaður
guðmundur219
Þarna er verið að vinna í 5 punda pakkningar í gamla Hólanesfrystihúsinu. Sylvía Hrólfsdóttir er lengst til vinstri og Teitný Guðmundsdóttir við hlið hennar. Sigurður Magnússon verkstjóri er fyrir innan. Konan með köflótta höfuðklútinn lengst til hægri er Jóhanna Vilbjörg Bertelsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Snorri001
Arnar Hu 1 frá Skagaströnd.
Guðmundur068
Byrjunarframkvæmdir við byggingu söluskála Olís (sjoppunnar) á Skagaströnd. Myndin tekinn einhverntíma á áttunda áratugnum.
guðmundur031
Guðni Sveinsson faðir Guðmundar ljósmyndara og pósts. Húsið í baksýn er Ægissíða þar sem Guðni bjó ásamt konu sinni Klemensínu Klemensdóttur og Guðmundi syni sínum.
guðmundur201
Unnið að lagningu Vetrarbrautarinnar norðan við þorpið. Maðurinn á jarðýtunni er óþekktur. Myndin er tekin fyrir 1950.
Elísabet039
Skagastrandarhöfn sennilega 1946 eða ´47
guðmundur157
Willys Overland jeppi líklega í eigu Ingva Guðnasonar (d.31.12.1991) frá Ægissíðu. Myndin var tekin á götunni framan við Ægissíðu.
hem038

Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm hvalir voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að einum hvalnum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berdsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir
Guðmundur074
Raðhúsin við Mánabraut í forgrunni. Í baksýn eru tveir bátar í slippnum.
Guðmundur070
Bygging nýrrar Hólaneskirkju einhverntíma á níunda áratugnum. Myndin er sennilega tekin á messudegi því flaggað er við gömlu kirkjuna.
Jón066
Vígsla dráttarbrautarinnar 1985. Ástmar Kári Ástmarsson við spilið í spilhúsinu. Konan er Vigdís Viggósdóttir með dóttur sína Valrúnu Evu Vilhelmsdóttur í fanginu.
Jón063
Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður og Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Mánavarar við vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Elísabet042
Skagaströnd 1943 eða 1944 því þá var unnið að gerð Skúffugarðsins
Guðmundur087
Myndin tekin yfir hluta hafnarsvæðisins á hátíðisdegi - sjómannadagur? Örvar Hu 21 og fleiri bátar skreyttir fánum í tilefni dagsins. Fyrir framan Örvar liggja Helga Björg Hu 7 og Auðbjörg Hu 6.
guðmundur230
Húni Hu 1 fánum prýddur við hafnargarðinn (Útgarð). E.t.v. var myndin tekin þegar Húni kom í fyrsta sinn til heimahafnar?
Óþekkt067
Trillubátur í eigu Þorvaldar Skaftasonar sökk þar sem hann lá við Skúffugarðinn. Á myndinni er verið að hífa hana upp úr sjónum.
Guðmundur066
Hafnarhúsið er til hægri og Rauði frystiklefinn á miðri mynd. Dýpkunarframkvæmdir standa yfir í höfninni
Jón106

Nýja Hólaneskirkja í byggingu. Sú gamla er í baksýn. Myndin er sennilega tekin 1982.

Jón068
Fjölmenni var viðstatt vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Image250
Kerjasmíði á Skagaströnd í slippnum neðan við Gamla skólann (Bjarmanes). Myndin var sennilega tekin á árunum 1935 - 1940.
1
2
3
4
5

75
Leita í myndasafninu
Leita