Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari258
Um þennan bát segir svo í bókinni Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:<em> "<strong>Húni</strong> Hu 2 <strong>398</strong>. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Ísafirði árið 1955 og var 17 brl. með 72 ha. June Munktell vél. Árið 1958 var sett í bátinn 162 ha. MWM vél. Hann hét <strong>Helga Guðmundsdóttir ÞH 133</strong> þegar Húnaströnd h/f keypti hann til Skagastrandar í mars 1978 og gerði bátinn út á færi og línu sem og rækju og skel. Húni var seldur í september 1981 til Hafnarfjarðar og fékk þá nafnið <strong>Haftindur HF 123</strong>. Eigendur Húnastrandar h/f voru Þorvaldur Skaftason og Ómar Jakobsson. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1987."</em>
Skagaströnd - safn195
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er af hestamönnum sem voru á námskeiði í járningum við Hrossafell. Frá vinstri : Benóný Gunnarsson, Gunnlaugur Sigmarsson, Ólafur Ágeirsson,tveir óþekktir, Guðmundur Viðar Guðmundsson með barn, Jónmundur Ólafsson, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Jónatan Hjaltason, Þorsteinn Jónsson, Jón Garðarsson kennari á námskeiðinu, Jóhann Ásgeirsson, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011), Jón Pálsson, Kári Lárusson og Sigrún Lárusdóttir. Myndina tók Magnús B. Jónsson.
Dagný Sigmarsdóttir019
<p>Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Ingólfur Bjarnason verkstjóri í miðju símtali. </p>
Dagný Sigmarsdóttir016
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við Hreinsi-færibandið, frá vinstri: Berglind Karlsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Sandra Ómarsdóttir.
Skagaströnd - safn197
<p>Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga. Hann aflaði vel og Skagstrendingur hf, eigandi Örvars, gerðist stór hluthafi í fyrirtæki sem keypti lítið flutningaskip, Ísberg, og var það notað til að koma afurðum Örvars beint til kaupenda erlendis. Samstarfið stóð í nokkur ár en síðan var farið að flytja afurðirnar út í gámum og Ísbergið var selt. </p>
Skagaströnd - safn039
1978 var rekið niður stálþil og gerður viðlegukantur - Ásgarður - í Skagastrandarhöfn austan við síldarverksmiðjuna. Þessir tveir ungu menn, sem unnu við hafnargerðina, eru hér í smók-pásu sem þá tíðkuðust. Gréta Smári Hallbjörnsson til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir014
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er starfsfólk í leikfimi til að liðka sig eftir langa setu við færiband eða við önnur einhæf störf. Frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, baksvipur Söndru Ómarsdóttur og Lísebet Gestsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari270
Í þessu húsi var verslunarútibú Kaupfélags Skagstrendinga - KAST. Húsið stóð stutt vestan og norðan við Holt. Kassinn til vinstri við glugga verslunarinnar er útstillingarkassi frá Skagastrandarbíói sem rekið var um árabil í gömlu Tunnunni og seinna í Fellsborg.
Skagaströnd - safn202
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Ari Guðmundsson (d.6.9.2003) starfsmannastjóri LÍ , Þorbjörg Magnúsdóttir, Kjartan Birgisson, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), Lúðvík Jósefsson (d. 18.11.1994) alþingismaður og ráðherra, Ragnar Arnalds alþingismaður, óþekktur og Hallbjörn Björnsson.
Skagaströnd - safn017
Bílafloti Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar ehf utan við starfsstöð fyrirtækisins við Oddagötu 18.
Skagaströnd - safn267
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Frá vinstri: Elva Gunnarsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir og sér í Eygló Amelíu Valdimarsdóttur lengst til hægri.
Skagaströnd - safn076
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin í kaffistofu Slippstöðvarinnar en þar bauð stöðin upp á molakaffi en síðan til kvöldverðar í Sjallanum um kvöldið. Frá vinstri á þessari mynd: Steindór Gíslason, óþekktur, Ólafur Ingibjörnsson (situr), Högni Jensson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Ingibjörg Kristinsdóttir.
Skagaströnd - safn009
Árblik var spunaverksmiðja sem starfrækt var um tíma í gamla frystihúsinu við Einbúastíg eftir að fiskvinnsla lagðist þar af. Vélar verksmiðjunnar voru keyptar notaðar ásamt stórum lager af garni og fleiru sem þurfti til rekstursins en reksturinn gekk ekki vel og starfsemin var lögð af og vélarnar fjarlægðar úr húsinu. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks við eina af vélum fyrirtækisins.
Skagaströnd - safn059
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) var umsvifamikill atvinnurekandi á Skagaströnd í áratugi. Hér er hann árið 1981 að vinna við að steypa þekju á viðlegukant á Ásgarði í Skagastrandarhöfn ásamt mönnum sínum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn013
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á myndinni eru fjórir alþingismenn Norð- vesturlands. Frá vinstri: Stefán Guðmundsson (d. 10.9.2011), Ragnar Arnalds, Páll Pétursson (d.23.11.2020 og Pálmi Jónsson (d.9.10.2017).
Skagaströnd - safn005
Ránarbraut 9 - 15 voru byggð í kringum 1990 af Eðvarð Hallgrímssyni byggingameistara.
Skagaströnd - safn234
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á myndinni er kaffitími hjá þessu góða fólki með starfsmönnunum 16. nóvember 1998. Frá vinstri: María Magnúsdóttir, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3. 2011), Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir. Hægra megin við borðið sitja í röð: Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011), og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) í rauðri peysu.
Óþekktur ljósmyndari172
Kristján Guðmundsson bóndi í Háagerði slær með hestasláttuvél sem hann hefur beitt tveimur hestum fyrir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Skagaströnd - safn218
Myndin var tekin í flökunar- og vélasal frystihúss Hólaness hf 1976. Á myndinni eru frá vinstri: Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) handflakari, Guðjón Jóhannesson (d. 11.2.2011) handflakari, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) við roðflettivél og Kjartan Bjarnason líka við roðflettivél.
Skagaströnd - safn040
Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) starfaði hjá Vitamálastofnun sem verkstjóri við hafnargerð víða um land. Hér er hann að stjórna gerð viðlegukants - Ásgarðs - í Skagastrandarhöfn 1978. Aðalsteinn kom síðan aftur til Skagastrandar 1990 - 1991 og stýrði þá gerð - Sæðgarðs - í höfninni.
Ólafur Bernódusson505
Krakkarnir í vinnuskólanum á Skagaströnd fóru sumarið 1994 út í Kálfshamarsvík til að hreinsa fjöruna. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir verkstjóri, Ragna Gunnarsdóttir, Hákon Þórarinsson og Rakel Petrea Finnsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari182
Réttað í Landsendarétt. Landsendarétt var staðsett við Landsenda sem er nyrsti endi Höfðans. Réttin var sem sagt á flötinni norðan við Réttarholt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn123
Höskuldsstaðakirkja í byggingu en hún var síðan vígð árið 1963.
Óþekktur ljósmyndari184
Síldarsöltun á bryggjuplaninu sennilega árið 1936 eða 1937. Húsið í baksýn er Hafnarhúsið en það var byggt 1935 en síðan flutt á núverandi stað á árunum í kringum 1944.Lengra frá má sjá frystihúsið lengst til vinstri og kaupfélagshúsið aftan við Einbúann fyrir miðri mynd.
Óþekktur ljósmyndari229
Bíllinn er H 8 sem var Ford hálfkassabíll,árgerð 1939, með boddýi og eigandinn Ágúst Jónsson (d. 21.7.1983) á Blönduósi. Hann var með sérleyfisflutninga, póstflutninga og fólksflutninga til Skagastrandar í tvo eða þrjá áratugi. Það er Ágúst sem stendur aftan við bílinn, við hlið mannsins í gráafrakkanum. Ágúst er í uppháum leðurstígvélum, bílstjórastígvélunum. Ágúst notaði bílinn fram í stríðsárin, en 1944 fékk hann H 10 Chefrolett árgerð 43, 28 manna rútu sem hann notaði í Skagastrandarferðum fram yfir 1960. Hér hefur hann áð með farþega sína við Ytri Ey. Maðurinn í ljósa frakkanum er Björn Þorleifsson (d.?). Lílklega var myndin tekin kringum 1940.
Guðmundur Guðnason187
Myndin var tekin árið 1970 sennilega í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en er sennilega úr Svartárdal og Blöndudal að mestu. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir024
Jóney Gylfadóttir og Steindór Haraldsson vert á hótel Dagsbrún stilla sér upp á hótelinu.
Skagaströnd - safn049
Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) til vinstri og Kristján Blöndal til hægri við fráslátt í viðbyggingu við Höfðaskóla 1978.
Skagaströnd - safn088
Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) frá Dagsbrún vinnur við gatnagerð í Ægisgrund sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Einar var oftar en ekki kenndur við Kjalarland þar sem hann bjó um tíma.
Skagaströnd - safn235
Margt er sér til gamans gert í félagsstrafi aldraðra í Fellsborg. Á þessari mynd frá 16. nóvember 1998 spila þrír góðborgara á Skagaströnd. Frá vinstri: Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003).
Guðmundur Guðnason193
Í Stafnsrétt 1970. Ekki er vitað hverju fólkið er svona spennt fyrir en fólkið er óþekkt þannig að ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari340
Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) dælir olíu á jarðýtu sem var mikið notuð við snjómokstur á götum Skagastrandar á sinni tíð - á sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda. Við dæluna stendur Ernst Berndsen ( 21.8.1983) frá Karlsskála umboðsmaður BP á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn255
Stórt veitingatjald var reist við Kántrýbæ fyrir síðustu hátíðina sem haldin var 2002. Gámurinn var nýttur sem lager fyrir Kántrýbæ. Mikill mannfjöldi sótti þessa síðustu Kántrýhátíð - svo margir að það varð til vandræða því það rigndi alla helgina og tjaldsvæðin urðu fljótlega að drullusvaði.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn012
Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998) Miðnesi glöð og kát í Spákonufellsrétt.
Ólafur Bernódusson472
Þessi mynd er frá fundi í Rækjuvinnslunni 1990. Á fundinn mættu fulltrúar erlendra kaupenda og innlendur útflytjandi á vörum Rækjuvinnslunnar. Tilefni fundarins með starfsfólkinu var að afhenda þeim viðurkenningu fyrir vörugæði. Á myndinni eru frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, fjórir óþekktir. Standandi upp við gluggann til vinstri: Sigrún Jónsdóttir og Hjalti Indriðason. Sigrún Lárusdóttir situr í horninu til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson situr með hönd undir kinn. Upp við gluggann fyrir endanum eru Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Grétar Haraldsson og Björn Ingi Óskarsson. Við borðin hægra megin í salnum sitja frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Lísebet Gestsdóttir, Sigurþór Sigurðsson, óþekkt, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Sigurðardóttir, Sólveig Eiðsdóttir og óþekktur.
Skagaströnd - safn015
Malbikunarframkvæmdir á Bogabraut sennilega kringum árið 2000.
Óþekktur ljósmyndari337
Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 1961 - 1962. Aftari röð frá vinstri: Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) hús- og gangavörður, Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010) ræstitæknir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) kennari, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kennari. Fremri röð frá vinstri: Jón Pálsson kennari, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prófdómari og kennari, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri og Sveinn Ingólfsson kennari.
Óþekktur ljósmyndari202
Þessi mynd var tekin sumarið 1934 þegar byrjað var á að gera upfyllingu frá landi út í Spákonufellsey. Á sama tíma var unnið við að brjóta niður hluta eyjarinnar til að nota í uppfyllingu í væntanlegri höfn. Á myndinni má sjá, ef grannt er skoðað, gálga og menn að vinnu úti í eyju ásamt mönnunum sem eru að vinna við að hlaða kant að vestanverðu á uppfyllingunni til varnar sjógangi. Grjótið í uppfyllinguna var sótt í Höfðann þar sem það var sprengt niður.
Skagaströnd - safn261
Þessi borði blasti við aðkomufólki á Kerlingarholti þegar það mætti á kántrýhátíð á Skagaströnd 1996. Á myndinni er Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri að koma borðanum fyrir með aðstoð lyftara. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn201
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ragnar Arnalds alþingismaður, Adolf J. Berndsen, Róbert Þórðarson (d. 26.11.2011), Páll Pétursson alþingismaður, baksvipur Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996) og Bjarney Valdimarsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari228
Þessi höfn/bryggja var byggð rétt austan við Hólsnefið (syðsti oddi Höfðans) árið 1922. Sjómenn á Skagaströnd gáfu 130 dagsverk við bygginguna en Verslunarfélag Vinhælinga sá um fjármögnun að öðru leyti. Bryggjan var byggð úr hlöðnu grjóti en fremst var trékar sem var fyllt af grjóti. Fiskvinnsluhús voru svo beint upp af bryggjunni. Þetta var aðal (eina ?) bryggjan á Skagaströnd þar til höfnin var byggð 1934 -1935. Í dag sjást engin ummerki eftir bryggjuna. Báturinn á myndinni er líklega Magnús Jónsson Hu 29, sem var trilla í eigu Þorkels Magnússonar í Goðhól.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn013
Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998) Miðnesi í Spákonufellsrétt við réttarstörf.
Skagaströnd - safn243
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða í veitingahúsinu Við árbakkann á Blönduósi. Á myndinni eru Sigurbjörn Björgvinsson (Sibbi) og María Rós Karlsdóttir að gera aðalréttinum skil.
Skagaströnd - safn001
Íþróttahúsið á Skagaströnd var tekið í notkun 1998. Í því eru einnig þrjár kennslustofur og varð það til þess að Höfðaskóli hefur verið einsetinn síðan.
Séra Pétur og Dómhildur - safn120
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) við afgreiðslu í nýopnuðu bókasafninu í kjallara Fellsborgar kringum 1980. Lengst til vinstri er Hrafnhildur Jóhannsdóttir að skoða bók sama á við um séra Pétur Þ. Ingjaldsson en Gestur Arnarson fær afgreiðslu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Síðan þessi mynd var tekin hefur bókasafninu heldur betur vaxið fiskur um hrygg með auknum bókakosti.
Óþekktur ljósmyndari264
Verkamannabústaðirnir á Bogabraut 3 og 5 í byggingu 1962 -1964.
Skagaströnd - safn288
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Kirkjukór Hólaneskirkju söng við undirleik Mike Jones organista. Frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, óþekkt, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Sigmar Jóhannesson, Guðrún Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson, Hjördís Sigurðardóttir og bak við hana sér í Einar Hauk Arason.
Skagaströnd - safn190
Þessi mynd frá 1961 sýnir verkamenn vinna við að handmoka möl á vörubílspall. Myndin var sennilega tekin í malarkrúsinni ofan við Skagaströnd. Ekki er vitað hverjir mennirnir eru.
Skagaströnd - safn105
Þessi mynd var tekin af framkvæmdum við Skagastrandarhöfn 1934. Búið er að leggja veg á uppfyllingu út í Spákonufellsey en hún hefur verið brotin niður að hluta. Grjótið í uppfyllinguna var sprengt úr Höfðanum eins og þekkt er. Á myndinni er verið að vinna við að steypa varnarvegg vestan við veginn út á fyrirhugað hafnarsvæði. Það er áhugavert að bera þessa mynd saman við hvernig höfnin lítur út í dag. Myndin hefur líklega verið tekin af Einbúanum.
Skagaströnd - safn018
Myndin er af skíðaskálanum í Spákonufelli. Þarna var skíðaparadís sem byggð var upp af samhentu áhugafólki með stuðningi sveitarfélags og fyrirtækja. Skíðamennska lagðist af þarna kringum árið 2000 m.a. vegna mjög hertra öryggiskrafna yfirvalda, sem gerðu gömlu skíðalyftuna nánast ónothæfa. Á myndinni er mikið um að vera í blíðviðri og margir á skíðum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn160
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd skemmtir söngflokkur úr línudanshópnum með söng. Drífa Kristjánsdóttir spilar á gítarinn en aftan við hana eru frá vinstri: Linda Björk Ævarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Kristíni Blöndal.
Skagaströnd - safn038
Guðmundur Björnsson mokar á bíl efni í slitlag á götur á Skagaströnd árið 1978.
Skagaströnd - safn048
Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) stýrir steypusílói við byggingu viðbyggingar við Höfðaskóla 1978.
Óþekktur ljósmyndari295
Skagaströnd 1935 - 1940. Síldarskipin bíða eftir þjónustu, ker í byggingu í dráttarbrautinni og Hafnarhúsið er risið (1935).
Skagaströnd - safn198
Dráttarbrautin á Skagaströnd í byggingu. Brautin var vígð 1985 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1984 eða 1985. Í baksýn má sjá breytta götumynd frá því sem nú er. Héðinshöfði, þar sem bíllinn er fyrir utan, er horfinn og Kárastaðir, sem sér í til vinstri við Héðinshöfða, eru líka farnir. Líka eru horfin Höfðaberg og Höfðakot sem eru næst Höfðanum til hægri á myndinni. Þá er ólokið við að byggja spilhúsið við enda dráttarbrautarinnar.
Óþekktur ljósmyndari324
Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, framkvæmdastjóri og eigandi saumastofunnar Víólu, í símanum á skrifstofu sinni í Gamla Kaupfélagshúsinu snemma á áttunda áratugnum.
Skagaströnd - safn276
Carl Erik Jakobsen íþróttakennari skoðar íþróttahús í Vogum á Vatnsleysuströnd líklega 1995 eða 1996. Myndin er skemmtileg því Calle sést frá öllum hliðum á henni - í speglunum.
Skagaströnd - safn310
Um og eftir miðja síðustu öld var algengt að fólk á Skagaströnd ætti nokkrar kindur í kofa einhversstaðar nálægt heimili sínu. Sumir áttu líka eina til tvær kýr fyrir heimilið og jafnvel einhverja hesta. Mörg þessara kofa/útihúsa voru byggðir úr afgöngum og drasli og báru þess glögg merki. Þessi útihús eru á ræktarlandi nr. 24, sem mun vera norðan og austan við Höfðatún og Vík. Húsið stendur enn (sept. 2014).
Skagaströnd - safn162
Sveitarstjóraskipti 1984. Lárus Ægir Guðmundsson, sem var sveitarstjóri á árunum 1972 til 1984, afhendir Sigfúsi Jónssyni lyklavöldi sveitarstjóra en hann tók við af Lárusi og var sveitarstjóri á Skagaströnd í um það bil tvö ár þegar hann tók við sem bæjarstjóri á Akureyri. Hreppsnefndarmennirnir, frá vinstri: Adolf J. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson og Gylfi Sigurðsson fylgjast með.
Ólafur Bernódusson560
Hallbjörg Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
1
…
19
20
21
…
75
Leita í myndasafninu
Leita