Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn272
Hér er unnið að vatnsdælingu í sambandi við vatnsleit í Hrafndal sumarið 1996. Rolf Árnason (d. júní 2014) vinnur við sogbarkann en Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) stjórnar dælunni.
Skagaströnd - safn291
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Þessir tveir menn stjórnuðu framkvæmdum við bygginguna. Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari til vinstri og Helgi Gunnarsson trésmíðameistari til hægri. Myndin var tekin í líkamsræktarsal íþróttahússins.
Skagaströnd - safn271
Páll Jóhannesson fylgist með vatnsdælingu við vatnsleit í Hrafndal sumarið 1996.
Dagný Sigmarsdóttir007
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) við vinnu í pökkunardeildinni.
Skagaströnd - safn162
Sveitarstjóraskipti 1984. Lárus Ægir Guðmundsson, sem var sveitarstjóri á árunum 1972 til 1984, afhendir Sigfúsi Jónssyni lyklavöldi sveitarstjóra en hann tók við af Lárusi og var sveitarstjóri á Skagaströnd í um það bil tvö ár þegar hann tók við sem bæjarstjóri á Akureyri. Hreppsnefndarmennirnir, frá vinstri: Adolf J. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson og Gylfi Sigurðsson fylgjast með.
Ólafur Bernódusson 557
Þorvaldur Skaftason heima í stofunni sinni. Tilefni myndatökunnar var að daginn áður hafði trilla, sem Þorvaldur var einn á, sökk undir honum þegar hann var á leið í róður. Þorvaldur komst í gúmmíbát og sendi upp blys sem sást frá landi og var honum bjargað um borð í Þórdísi, sem var björgunarbátur Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd. Þorvaldi var ekki meint af volkinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það mun hafa verið á níunda áratugnum.
Skagaströnd - safn016
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri Höfðahrepps, og eftir nafnbreytingu, Sveitarfélagsins Skagaströnd, á skrifstofu sinni.
Óþekktur ljósmyndari179
<p>Von Hu 2. Um þennan bát segir svo í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:<em> "Von HU 2. Báturinn var smíðaður úr eik og furu í Reykjavík 1908 og var 4,8 brl. með 12 ha Dan vél. Árið 1930 var sett í bátinn 38 ha. Tuxham vél. Hann var keyptur frá Hólmavík í júní 1944 og hét þá <strong>Von ST 22</strong>. Eigendur voru Guðmundur Jóhannesson, Guðmundur Karlsson, Hallgrímur Kristmundsson, Óskar Frímannsson og Snorri Gíslason. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1948".</em> </p><p><br></p>
Skagaströnd - safn189
Frysti- og sláturhús Kaupfélags Skagstrendinga - KAST - einhverntíma á sjötta áratugnum. Stóru lýsis- og olítankarnir eru í baksýn. Í þá daga voru ekki gerðar athugasemdir við að hugsanleg megnunarhætta gæti stafað frá olíutönkum á næstu lóð við matvælafyrirtæki.
Skagaströnd - safn163
Lárus Ægir Guðmundsson til hægri afhendir Jóni Pálssyni skólastjóra formlega nýja viðbyggingu við Höfðaskóla haustið 1982.
Skagaströnd - safn233
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á myndinni er kaffitími hjá þessu góða fólki með starfsmönnunum 16. nóvember 1998. Frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011), óþekkt, Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), óþekkt, Guðný Finnsdóttir (fjærst), Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Guðrún Ágústsdóttir og Guðrún Angantýsdóttir.
Skagaströnd - safn257
Síðasta Kántrýhátíðin sem haldin var 2002 var afar fjölmenn en jafnframt afar blaut því það rigndi alla helgina. Fljótlega breyttust því tjaldsvæðin - sem voru út um allan bæ - í drullusvað eftir of mikla bílaumferð. Salernisaðstöðu var komið fyrir við öll tjaldsvæðin og hér er mynd af salernunum fyrir sunnan íþróttavöllinn. Þeim var haldið snyrtilegum og þau tæmd tvisvar - þrisvar á dag. Aftur á móti gekk erfiðlega að halda svæðinu kringum þau í góðu horfi eins og sést á þessari mynd.
Skagaströnd - safn100
Ólafur Magnússon Hu 54 við Skúffugarðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1990 - 1996.
Ólafur Bernódusson 554
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir - Alla á Póshúsinu - vinnur að gróðursetningu í Borginni. Hér er hún að gera plöntnum til góða með áburðargjöf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn164
Byggingarnefnd vegna viðbyggingar við Höfðaskóla 1982. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Adolf J. Berndsen og Ólafur Bernódusson.
Dagný Sigmarsdóttir013
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er starsfólk að njóta sólarinnar í kaffipásu við innganginn í Rækjuvinnsluna. Frá vinstri: Nikola ?, Sandra Ómarsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Svava Sigurðardóttir og Árný Helgadóttir. Fyrir framan eru svo: Jóna Guðjónsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Óþekktur ljósmyndari231
Verkamannabústaðurinn Höfðaborg (Bankastræti 9) í byggingu 1949. Höfðabrekka (Bankastræti 10) sést til hægri.
Skagaströnd - safn036
Grettir "hinn nýi" dýpkar í Skagastrandarhöfn árið 1978. Appelsínuguli pramminn við hlið hans var notaður til að flytja sandinn út úr höfninni en báturinn sem sér í aftan við Gretti dró prammann fram og til baka.
Dagný Sigmarsdóttir037
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd úr kaffistofunni 1993 eru til vinstri systurnar Inga Lára Sigurðardóttir og Svava Sigurðardóttir en hægra megin er Jóhanna Gunnlaugsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari232
Á myndinni, sem tekin var í kringum 1950, er Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978), sem þá var bóndi á Efri Harrastöðum, með kerru sína fulla af börnum. Gunnlaugur og fleiri bændur á Skaga seldu bæjarbúum á Skagaströnd mjólk og fluttu hana til kaupenda í mjólkurbrúsum á kerrum sínum eða sleðum aftan í dráttarvél eða hesti. Krakkarnir í hverfinu hópuðust að þegar mjólkurpósturinn kom og fengu að fljóta með smá spöl í því farartæki sem notað var hverju sinni. Á myndinni má þekkja Birgi Þórbjarnarson á Flankastöðum, sem stendur hjá kerrunni. Fyrir aftan hann er Sveinn Torfi Þórólfsson og Árni Þórólfsson (fjær) og aftast er Almar Þórólfsson (dökkhærður) sem allir áttu heima í Höfðaborg. Halla Bernódusdóttir Stórholti er hægra megin við Birgi og hallar sér fram með úlpuhettu yfir höfðinu. Litla ljóshærða stúlkan við hlið Höllu er Elínborg Ingvarsdóttir í Sólheimum. Næst henni hægra megin er Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum með barn í fanginu (Halla Jökulsdóttir ?). Þórunn Bernódusdóttir Stórholti er ljóshærð lengst til hægri og framan við hana er dökkhærð Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin í Bankastræti og húsin sem sjást eru Höfðabrekka til vinstri og Bjarnarhöfn til hægri.
Skagaströnd - safn203
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Pálmi Jónsson alþingismaður og Róbert Þórðarson (d. 26.11.2011) fyrsti útibússtjórinn.
Skagaströnd - safn244
Að lokinni sumarvinnu 1996 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða á hótel Dagsbrún á Skagaströnd. Á þessari mynd eru flokkstjórar sumarsins frá vinstri: Kristín Þórðardóttir, Maríana Þorgrímsdóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir og Linda Kristjánsdóttir.
Ólafur Bernódusson564
Trillan Benni Ólafs Hu 10 með eiganda sinn Ólaf Bernódusson um borð.
Óþekktur ljósmyndari301
Verslunarhús Kaupfélags Skagstrendinga var byggt 1930 og stendur við Einbúastíg. Margvísleg starfsemi hefur farið fram í húsinu gegnum tíðina en í dag eru þar skrifstofur, aðsetur Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og Námsver.
Skagaströnd - safn286
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Gunnlaugur Sigmarsson þáverandi útibússtjóri Landsbankans á Skagaströnd í ræðustól. Bankinn styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Skagaströnd - safn301
Höfðaberg, sem stóð upp undir Höfðanum norðan við núverandi Bankastræti, var rifið í desember árið 2000 eftir að hafa staðið autt um tíma.
Skagaströnd - safn281
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Ernst Berndsen þáverandi formaður starfsmannafélags Arnars í ræðustól en starfsmannafélagið styrkti byggingu hússins með fjárframlagi.
Guðmundur Guðnason189
Fjársafnið rekið til réttar í Spákonufellsrétt árið 1970. Fólkið á myndinni er óþekt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn155
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd blessar séra Guðmundur Karl Brynjarsson nýja húsið og starfssemina þar.
Skagaströnd - safn057
<p>1979 var útbúin byggingarlóð, með uppfyllingu, við Skúffugarðinn fyrir frystiklefa og hugsanlegt frystihús. Allir vörubílar á svæðinu voru kallaðir til enda þurfti að aka miklu efni á svæðið. Á þessari mynd eru bílarnir og eigendur þeirra fyrir framan þá. Frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson, Jónas Skaftason, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007), Hörður Ragnarsson, Kristinn Andrésson (d. 12.7.1991), Sigurgeir Jónasson og Hjálmar Pálsson (d. 28.12.2001). Á myndina vantar Adolf J. Berndsen sem var líka með vörubíl í þessari vinnu. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 383
Arnar Hu 1 var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf og kom til landsins 1973 frá Japan. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir011
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Þráinn Bessi Gunnarsson við vinnu sína.
Skagaströnd - safn214
<p>Fyrirtæki á Skagaströnd tóku þátt í atvinnulífssýningu í Reykjavík og kynntu þar framleiðsluvörur sínar og starfsemi. Á myndinni smakkar frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands á framleiðsluvöru frá Marska hf. Halldór Ásgrímsson ráðherra fylgist með en konan til hægri er óþekkt. </p>
Hjördís Sigurðardóttir - safn014
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Magdalena Jóhannsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn113
Síldarverksmiðjan á Skagaströnd að bræða. Sennilega er verið að bræða fiskibein og úrgang en ekki síld eins og upphaflega var ætlað. Í forgrunni er fjara sem mynduð var með uppdælingu við dýpkun hafnarinnar hinum megin við verksmiðjuna. Sennilega var myndin tekin kringum 1970.
Skagaströnd - safn119
Grafið fyrir grunni dvalarheimilisins Sæborgar við Ægisgrund. Guðmundur Björnsson mokar á vörubíl Sigurjóns Ástmarssonar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Sæborg var vígð 22. október 1988.
Óþekktur ljósmyndari215
Sigríður Helgadóttir í Skálholti. Í baksýn eru Kárastaðir til vinstri, Draumaland til hægri og fjárhús frá Flankastöðum eða Kárastöðum fjær. Myndin var tekin kringum 1945.
Skagaströnd - safn004
Ránarbraut 17 - 23 voru byggð á níunda áratugnum af Eðvarð Hallgrímssyni byggingameistara.
Hjördís Sigurðardóttir - safn008
Myndin er frá vígslu söluskála Olís á Skagaströnd 1979. Á myndinni eru þeir Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) til vinstri og Sigurður Guðmundsson til hægri. Báðir unnu þeir við byggingu skálans.
Dagný Sigmarsdóttir031
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru þær Aðalheiður Guðmundsdóttir til vinstri og Edda Pálsdóttir til hægri að gera leikfimiæfingar eftir langa setu við hreinsi-færibandið.
Skagaströnd - safn022
Sjórinn gengur yfir eyjuna og brimvörnina vestan við verksmiðjuna í slæmum veðrum - einkum í suðvestanátt. Nú hefur brimvörnin verið hækkuð og bætt til að minnka ágang sjávarins í höfninni.
Skagaströnd - safn078
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin af Jóni Jónssyni (d. 9.7.1991), framkvæmdastjóra Rækjuvinnslunnar hf, á vinnsludekkinu í Örvari.
Skagaströnd - safn007
Vélaverkstæðið er að hluta til starfrækt í gamalli skemmu sem byggð var í tengslum við byggingu síldarverksmiðjunnar á árunum 1946 - 47. Sá hluti er fjær á myndinni en hlutinn sem er nær er seinni tíma viðbygging.
Skagaströnd - safn045
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru þeir Kristján Helgason tæknifræðingur hjá Vitamál til vinstri og Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri .
Ólafur Bernódusson554
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni eins og sjá má í hillunum til hægri á myndinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru að sýna, þær: Valrún Eva Vilhelmsdóttir lengst til vinstri, Auðna Ýr Oddsdóttir og Dagbjört Agnarsdóttir lengst til hægri. Í bakgrunninum sést Magnús B. Jónson filma herlegheitin og í áhorfendahópnum eru góðir og gegnir Skagastrendingar.
Skagaströnd - safn103
<p>Fólk í síldarvinnu sumarið 1935 á nýbyggðu hafnarsvæði Skagastrandarhafnar. Fólkið er óþekkt.</p>
Skagaströnd - safn274
Myndin var tekin 1996 af vinnu við að koma fyrir safntanki vegna vatnsveitu í Hrafndal. Við bílinn standa Rolf Árnason (d. 2014) með rauða húfu og Sigurjón Ástmarsson. Niðri í skurðinum er Páll Jóhannesson í blárri úlpu og tveir óþekktir menn.
Dagný Sigmarsdóttir003
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Björn Ingi Óskarsson að vinna við pillunarvélarnar.
Skagaströnd - safn204
Hallbjörn Hjartarson í "gamla" Kántrýbæ það er að segja áður en hann brann og var svo endurbyggður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Séra Pétur og Dómhildur - safn127
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) tollvörður á Skagaströnd. Á sínum tíma var mikið um að flutningaskip kæmu við á Skagaströnd. Stundum voru þau að koma beint frá útlöndum og þá þurfti að tollafgreiða skipið á Skagaströnd af tollverði og sýslumanni og síðan stóð tollvörður eða lögreglumaður vakt um borð meðan skipið stoppaði í höfn. Oftast voru skipin tollafgreidd úti á legunni þ.e. áður en þau lögðust að bryggju. Þurfti þá að innsigla áfengi, tóbak og ýmsan annan varning um borð en áhöfnin fékk ákveðinn skammt af þessum vörum til sinna einkanota. Væru skipin ekki að koma beint frá útlöndum fór tollvörðurinn um borð, rauf innsiglið og síðan fékk áhöfnin sinn vikulega skammt en afgangurinn var síðan insiglaður á ný.
Skagaströnd - safn217
Þessi mynd var tekin í flökunarsal frystihúss Hólaness hf 1976. Á henni er handflakararnir, frá vinstri: Eygló Gunnarsdóttir, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) og Guðjón Jóhannesson (d. 11. 2. 2010).
Ólafur Bernódusson555
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd sýnir Viggó Magnússon það nýjasta í unglingatískunni það árið.
Skagaströnd - safn252
Á kántrýhátíð sennilega sumarið 2000 var reist indíánatjald á tjaldsvæðinu. Tjaldið var fagurlega skreytt eins og sjá má á myndinni en á henni er verið að koma tjaldinu upp. Stúlkan með húfuna lengst til vinstri er Berglind Karlsdóttir og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) verkstjóri sveitarfélagsins er lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn043
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru á spjalli þeir Gylfi Sigurðsson til vinstri og Aðalsteinn Aðalsteinsson verkstjóri til hægri.
Skagaströnd - safn093
Myndin var tekin þegar Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) formaður stjórnar vekamannabústaða á Skagaströnd afhenti Guðmundi Viðari Guðmundssyni íbúðina að Mánabraut 7 í febrúar 1983. Kona Guðmundar var fjarverandi þegar myndin var tekin.
Séra Pétur og Dómhildur - safn122
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) við afgreiðslu í nýopnuðu bókasafninu í kjallara Fellsborgar kringum 1980. Lengst til vinstri er Hrafnhildur Jóhannsdóttir að skoða bók meðan dóttir hennar Katrín Sigurjónsdóttir fær afgreiðslu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Síðan þessi mynd var tekin hefur bókasafninu heldur betur vaxið fiskur um hrygg með auknum bókakosti.
Skagaströnd - safn295
Orkudagar voru haldnir í Fellsborg haustið 2000. Þar voru kynntar ýmsar vörur og lausnir í sambandi við orku og orkunotkun. Á þessari mynd sitja og spjalla yfir kaffibolla, frá vinstri: Ragna Karlsdóttir, Magnús B. Jónsson og Björn Hannesson. Í baksýn er Jónína Valdimarsdóttir í gulri blússu á tali við Sigríði Vilhjálmsdóttur (d. 21.1.2012). Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn077
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin í ófullgerðri brú skipsins af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996), sem flytur bæn, og skipstjóranum Guðjóni Ebba Sigtryggssyni.
Skagaströnd - safn216
Þessi mynd sýnir horfinn tíma. Hún var tekin í vinnslusal frystihúss Hólaness hf 1976 fyrir tíma flæðilínunnar. Á myndinni eru nær 30 manns að vinna.
Skagaströnd - safn309
Um og eftir miðja síðustu öld var algengt að fólk á Skagaströnd ætti nokkrar kindur í kofa einhversstaðar nálægt heimili sínu. Sumir áttu líka eina til tvær kýr fyrir heimilið og jafnvel einhverja hesta. Mörg þessara kofa/útihúsa voru byggðir úr afgöngum og drasli og báru þess glögg merki. Á þessari mynd eru útihús stóðu á ræktarlandi nr. 212 sem mun vera norðan og austan við Vík.
1
…
20
21
22
…
75
Leita í myndasafninu
Leita