Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Dagný Sigmarsdóttir008
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Dagný Hannesdóttir (Lilla) við vinnu sína í pökkunardeildinni.
Skagaströnd - safn098
Ludendorf Hu 46 með fána á sjómannadegi. Bátinn átti Ole Aamundsen í Lundi.
Skagaströnd - safn194
Dráttarbrautin á Skagaströnd í byggingu. Brautin var vígð 1985 þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1984 eða 1985.
Skagaströnd - safn042
Árni Björn Ingvarsson gröfumaður, lengst til vinstri, spjallar við Hjalta Hólmar Indriðason í vinnunni við hafnargerð á Skagaströnd 1978. Fyrir aftan þá sér í Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Skagaströnd - safn275
Árið 1996 var grafið fyrir grunni íþróttahússins. Á þessari mynd eru þeir Kristján Helgi Gunnarsson til vinstri og Magnús Hjaltason (d. 2014) til hægri að brjóta sig niður í næga dýpt.
Dagný Sigmarsdóttir032
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Þessi mynd er af Jóhannesi Óskarssyni við pillunarvélarnar.
Skagaströnd - safn270
Leitað að vatni sumarið 1996 á Hrafndal. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Sigurjón Ástmarsson, Rolf Árnason (d. júní 2014), Páll Jóhannesson og Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011).
Skagaströnd - safn200
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Pálmi Jónsson alþingismaður, Stefán Guðmundsson (d. 10.12.2011) alþingismaður, Jón Pálsson, Jón Ingi Ingvarsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Bjarney Valdimarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir038
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Svava Sigurðardóttir við vinnu sína við gæðaeftirlit.
Skagaströnd - safn266
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Frá vinstri: Tinna Gunnarsdóttir, Hákon Þórarinsson (nær), Marta Kristín Jónsdóttir (fjær), Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Elva Gunnarsdóttir og lengst til hægri sér í Eygló Amalíu Valdimarsdóttur.
Skagaströnd - safn075
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin í kaffistofu Slippstöðvarinnar en þar bauð stöðin upp á molakaffi en síðan til kvöldverðar í Sjallanum um kvöldið. Frá vinstri: María Magnúsdóttir, Elísabet Árnadóttir og Kristinn Jóhannsson.
Skagaströnd - safn210
Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar: Byggðin undir Borginni og Ingibergur Guðmundsson, sem var í ritnefnd bókarinnar. Bókin kom út 1989 þannig að sennilega hefur myndin verið tekin á því ári.
Skagaströnd - safn097
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2004) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir hjónunum Önnu H. Aspar (d. 1.9.1999) og Bernódusi Ólafssyni (d. 18.9.1996) íbúð sína að Mánabraut 5 í febrúar 1983.
Skagaströnd - safn094
Elínborg Jónsdóttir formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir Ernu Hreinsdóttur og Fannari Viggóssyni lyklana að íbúð sinni að Mánabraut 11 í febrúar 1983.
Skagaströnd - safn260
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri vinnur hér í áhaldahúsinu að undirbúningi kántrýhátíðar 1996.
Skagaströnd - safn300
Jarðhitaleit í Hrafndal veturinn 1998. Boraðar voru nokkrar holur en árangurinn varð lítill sem enginn. Á myndinni eru Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) fremst til vinstri og Rúnar Jóhannsson til hægri. Milli þeirra sér í Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) en maðurinn með gula hjálminn er óþekktur.
Skagaströnd - safn277
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Yfirsmiður hússins var Kristján Helgi Gunnarsson húsasmíðameistari og á myndinni er hann í ræðustóla að lýsa byggingu þess.
Skagaströnd - safn166
Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) flytur tölu í tilefni af því að kvenfélagið Eining var að gefa lækningatæki á Heilsugæsluna á Skagaströnd einhverntíma á árunum 1974 - 1978.
Skagaströnd - safn079
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd eru þau Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til vinstri og Halldóra Þorláksdóttir til hægri á spjalli við Stefán Reykjalín stjórnarformann Slippstöðvarinnar.
Skagaströnd - safn041
Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) í vinnu við hafnargerð á Skagaströnd 1978. Maðurinn bak við Magnús er óþekktur.
Skagaströnd - safn095
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir hjónunum Gunnari Benónýssyni (d. 29.7.2003) og Bergljótu Óskarsdóttur (d. 22.2.2004) íbúð sína að Mánabraut 1 í febrúar 1983.
Skagaströnd - safn024
Útgerðarfyritækið Skagstrendingur hf var stofnað 8. desember 1968 af Höfðahreppi og fólkinu í þorpinu. Þar af leiðandi hélt félagið upp á 30 ára afmæli sitt 1998. Þessi mynd af Bjarna Ottóssyni, sem þá var starfsmaður hjá félaginu, að skera sér sneið af afmælistertu, var líklega tekin um borð í Örvari HU 2 sem þá var nýkominn í eigu Skagstrendings hf. Hinn 1. janúar 2005 var félagið síðan sameinað Fiskiðjunni Skagfirðingi hf og nafni hins sameiginlega félags breytt í FISK Seafood hf og megin hluti starfseminnar flutti á Sauðárkrók.
Jón Jónsson286
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Elín Njálsdóttir.
Skagaströnd - safn136
Á myndinni er verið að leggja út kjarnann í nýjum viðlegukanti í Skagastrandarhöfn 30. júlí 1991. Stálþil var síðan rekið niður að norðanverðu við kjarnann, fyrir enda hans og ca 20 metra upp með honum að sunnanverðu.
Skagaströnd - safn073
Skagstrendingar fjölmenntu til Akureyrar til að fylgjast með þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni 1982. Á myndinni er verið að binda hann við bryggju að sjósetningu lokinni.
Skagaströnd - safn273
Hér er unnið að plægingu á stýrisstreng fyrir vatnsveitu í Hrafndal sumarið 1996. Myndin var tekin af gröfunni á kafi í mýri neðan og vestan við skíðaskálann. Þrátt fyrir að vera á tvöföldu bæði að framan og aftan sökk grafan eins og sést. Allt fór þó vel enda vanur maður á gröfunni, Guðmundur J. Björnsson.
Skagaströnd - safn091
Gatnagerð sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Á þessari mynd slaka þeir á augnablik, frá vinstri: Kristján Karlsson, Sigurður Jónsson og Einar Karlsson þar sem þeir eru við vinnu á Skagavegi.
Skagaströnd - safn265
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Hákon Þórarinsson rekur út úr sér tunguna framan í ljósmyndarann.
Ólafur Bernódusson559
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér jakka og húfu/hatt sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Adolf H Berndsen - safn039
Steinunn Berndsen (d.29.10.1953) þvær fisk upp úr vaskafati. Í baksýn sést Spákonufellsey óskemmd en hún var brotin niður að hluta þegar hún var notuð undir höfnina á Skagaströnd meðal annars með uppfyllingu í land úr grjóti sem tekið var í Höfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrir 1934 því þá hófst hafnargerðin.
Skagaströnd - safn248
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er annað þeirra risið - til hægri - og verið að vinna að uppsetningu hins síðara. Berglind Karlsdóttir er stúlkan í rauðu peysunni en aðrir eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir006
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru frá vinstri við hreinsi-færibandið: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Dagný Hannesdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 226
Fjársafni smalað að Stafnsrétt í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir012
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Nikola ? við pillunarvélarnar.
Þórður Jónsson053
<p>Bergur Jón Þórðarson eða Bergur Thorberg er listmálari sem þróað hefur sérstaka aðferð í listsköpun sinni. Hann málar með kaffi og málar myndir sínar á hvolfi. Bergur er sonur Þórðar sem tók þessa mynd. </p>
Skagaströnd - safn285
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Jóel Kristjánsson, þáverandi framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, í ræðustól en félagið styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Skagaströnd - safn292
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Fremst á myndinni situr hreppsnefnd Höfðahrepps sem eingöngu var skipuð karlmönnum á þessum tíma. Frá hægri: Adolf H. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Gylfi Guðjónsson, Hallbjörn Björnsson og Steindór Haraldsson. Fjær sitja í sömu röð: Kolbrún Viggósdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Guðný Sigurðardóttir
Skagaströnd - safn117
Slippurinn eða dráttarbrautin á Skagaströnd var vígð 1985. Á þessari mynd var verið að dýpka framan við garðana sem bera sleðann. Jafnframt er verið að byggja garðana.
Skagaströnd 1966 d
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Á þessari mynd er búið að slá frá og karið bíður þess að vera sett á flot.
Árni Geir Ingvarsson - safn 451
Þrír bátar í slippnum og nóg að gera. Þorlákur Helgi SI 71, Helga Björg HU 7 og Þórir GK 116. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd
Skagaströnd - safn293
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Á eftir var kaffiveisla í Fellsborg þar sem meðal annars var boðið upp á risatertu sem sést á myndinni. Guðrún Soffía Pétursdóttir skammtar á disk en Guðrún Guðmundsdóttir og Hafþór Sigmundsson bíða eftir að röðin komi að þeim.
Dagný Sigmarsdóttir020
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er einn af tryggustu starfsmönnum fyrirtækisins, Sigurður Bjarnason við pillunarvélarnar.
Skagaströnd 1966 a
<p>Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina en Guðmundur (d. 15.10.2002) er lengst til hægri á myndinni. Næstur honum stendur Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) en hinir mennirnir tveir eru óþekktir.</p>
Skagaströnd - safn279
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Hér takast í hendur feðgarnir Adolf H. Berndsen, til vinstri, oddviti Höfðahrepps og Adolf J. Berndsen, til hægri, fyrrverandi oddviti og þáverandi umboðsmaður Olís á Skagaströnd. Olís styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Skagaströnd - safn184
Myndin var tekin um borð í frystitogaranum Örvari Hu 21 að kvöldi 5. janúar 1991 af almannavarnanefnd Höfðahrepps á fundi. Skagaströnd var þá vatns- og rafmagnslaus eftir mikið óveður sem reif niður raflínur og braut rafmagnsstaura í Skagastrandarlínu. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) slökkviliðsstjóri og Þór Gunnlaugsson lögreglumaður. Örvar var notaður sem starfsstöð almannavarnanefndar því þar var rafmagn og annað sem nefndin þurfti við störf sín.
Skagaströnd - safn064
Þekja steypt á Ásgarð 1981. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Hallur Pétursson, Víðir Ólafsson, Bjarni Ottósson og Hafsteinn Pálsson verkamenn hjá Guðmundi Lárussyni sem hafði yfirumsjón með verkinu.
Skagaströnd - safn294
Orkudagar voru haldnir í Fellsborg haustið 2000. Þar voru kynntar ýmsar vörur og lausnir í sambandi við orku og orkunotkun. Eitt af fyrirtækjunum sem sýndi vörur sínar á orkudögum var vefnaðarfyrirtækið Árblik á Skagaströnd, sem var rekið í gamla frystihúsi Hólaness við Einbúastíg frá 1999 - 2007. Þeir sýndu meðal annars værðarvoðir sínar og þar var þessi vísa. Ekki er vitað hver er höfundurinn en gaman væri ef hann gæfi sig fram við Ljósmyndasafnið. <br><br>
Guðmundur Guðnason 2 223
Réttað í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og óvíst hvort tekist hefur að bera kennsl á fólk á myndinni. Maðurinn lengst til hægri inni í fjáhópnum er sennilega Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) frá Blálandi og maðurinn sem hallar sér yfir réttarvegginn gæti verið Þorkell Magnússon (d.30.8.1868) frá Goðhól. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn251
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og á þessari mynd er Hávarður Sigurjónsson frá Blönduósi að hjálpa til við að reisa stærra tjaldið.
Skagaströnd - safn161
Þessi mynd var tekin á fundi hreppsnefndar 1984. Tilefni fundarins var meðal annars sveitarstjóraskipti á Skagaströnd. Lárus Ægir Guðmundsson var að hætta, eftir að hafa verið sveitarstjóri frá árinu 1972, og Sigfús Jónsson að taka við. Á myndinni eru hreppsnefndarmenn og sveitarstjórarnir báðir. Frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Adolf J. Berndsen oddviti, Lárus Ægir Guðmundsson fráfarandi sveitarstjóri, Magnús B. Jónsson, Gylfi Sigurðsson og Sigfús Jónsson nýr sveitarstjóri á Skagaströnd.
16
Hörður Aðils Vilhelmsson með föður sínum Vilhelm Birni Harðarsyni á nýjum sorphreinsunarbíl. Myndin var tekin 1994 þegar þeir feðgar voru nýkomnir til Skagastrandar á þessum nýja bíl.
Skagaströnd - safn283
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Dagný Sigmarsdóttir umboðsmaður Sjóvá- almennar í ræðustól en félagið styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Skagaströnd - safn113
Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007) heilsugæsluhjúkrunarkona og Sigursteinn Guðmundsson læknir skoða tæki sem heilsugæslunni bárust að gjöf - líklega frá kvenfélaginu Eining. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 438
Hilmir ST 1 fer ný málaður úr slippnum
Árni Geir Ingvarsson - safn 443
Á þessari mynd er verið að hífa stýrishúsið af Arnarborginni HU 11 í slippnum 1993 þegar báturinn var rifinn.
Skagaströnd 1959 a
Myndin er af karasmíð sumarið 1959 í dráttarbrautinni sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Ef grannt er skoðað má sjá eitt kar í geymslu við Miðgarð í baksýn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson558
Hallbjörg Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Séra Pétur og Dómhildur - safn154
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Hallbjörn Hjartarson eigandi Kántrýbæjar, tveir óþekktir, Hörður Ragnarsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Fríða Hafsteinsdóttir. Aðalbjörg styður hönd á öxl Friðvins Inga Berndsen. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn087
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) Höfðatúni vinnur við gatnagerð í Ægisgrund sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti.
Skagaströnd - safn183
Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Þessi mynd var tekin 28. júlí 1989. Þá var Jón í forsvari fyrir Skógræktarfélag Skagastrandar og þarna tók hann þátt í að gróðursetja 50 trjáplöntur á Hnappstaðatúninu sunnanverðu í tilefni af 50 ára afmæli Höfðahrepps.
1
…
21
22
23
…
75
Leita í myndasafninu
Leita