Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn106
Skagastrandarhöfn 1935. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að byggja Hafnarhúsið við höfnina. Húsið var síðar fært á þann stað þar sem það stendur í dag til að rýma til fyrir síldarverksmiðjunni sem reis þarna á árunum kringum 1946.
Skagaströnd - safn236
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á þessari mynd frá 16. nóvember 1998 eru þær niðursokknar í að mála, frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, María Magnúsdóttir og Guðrún Ágústsdóttir.
Ólafur Bernódusson559
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér jakka og húfu/hatt sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Guðmundur Guðnason 2 452
Þessi dráttarvél Hd 152 hefur örugglega verið mikið þarfaþing á sínum tíma. Vélin er af Hanomag gerð eins og sjá má en ekki er vitað með vissu hver átti vélina en sennilega hefur það verið Jökull Sigtryggsson á Núpi í Laxárdal því þar endaði vélin lífdaga sína. Hræið af henni stóð þar á hlaðinu í mörg ár en hefur nú verið fjarlægt og komið í hendurnar á einhverjum hugsjónamanni sem er með hugmyndir um að endurbyggja slíka vél úr mörgum.
Skagaströnd - safn282
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Skarphéðinn Ragnarsson þáverandi svæðisstjóri VÍS í ræðustól en VÍS styrkti bygginguna með fjárframlagi.
Ólafur Bernódusson 556
Sveinn Ingi Grímsson var refaskytta á Skagaströnd og í Skagabyggð í mörg ár. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er hann nýkominn úr vel heppnuðum grenjatúr. Hann náði báðu fullorðnu dýrunum og þremur ylfingum þeirra.
Árni Geir Ingvarsson - safn 444
Hafrún HU 12 fyrir brerytingu. Húsið með rauða þakinu, sem ber í skólann, er Ásbyrgi sem nú hefur verið rifið.
Skagaströnd - safn254
Indíánatjald reist á tjaldsvæðinu fyrir síðustu kántrýhátíðina sem var haldin 2002. Á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Magnús B. Jónsson, Rósa Björg Högnadóttir, Kristín Þórðardóttir (uppi í stiga), Íris Valgeirsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir.
Skagaströnd - safn242
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða og í sund í sundlauginni á Skagaströnd. Á myndinni er Sigurbjörn Björgvinsson (Sibbi) að gera sig kláran fyrir sundsprett.
Árni Geir Ingvarsson - safn 392
Á Skagaströnd er vinsælt að eiga sér lítið bátshorn til að geta farið og fiskað sér í soðið þegar best er á sumrin eða stundað silungsveiði meðfram landinum. Þennan bát smíðuðu feðgarnir Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri og Sigurður Björnsson sonur hans.
Ólafur Bernódusson 558
Þessi mynd var tekin í september 1989 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhenti Guðrúnu Berndsen lyklana að nýrri leiguíbúð Höfðahrepps að Skagavegi 10.
Guðmundur Guðnason 2 422
Þessi mynd var tekin á fyrstu kántrýhátíðinni 1984. Þessi fyrsta hátíð var ekki eins fjölsótt og þær sem síðar voru haldnar. Myndin sýnir hluta gesta hlýða á kántrýmessu. Sitjandi frá vinstri: Kristbjörg Antonsdóttir, Una D. Kristjánsdóttir, tvö óþekkt börn, óþekktur maður (nær), Bjarney Valdimarsdóttir (fjær), Erla María Lárusdóttir (stendur), Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Soffía Lárusdóttir?, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), óþekkt, Fannar Viggósson og Erna Berglind Hreinsdóttir. Aðrir sem sitja eru óþekktir. Standandi frá vinstri: Jón Helgason, óþekkt, Pétur Eggertsson, Sylvía Hrólfsdóttir, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) (nær), Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996) (fjær), fjórir óþekktir, Guðmundur Jóhannesson og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006). Aðrir eru óþekktir nema maðurinn við kvikmyndavélina er Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi en hann gerði heimildamynd um kántrýhátíðina 1984 sem hann kallaði: Kúreki norðursins.
Skagaströnd - safn102
Við H 17 standa þeir Engilbert Óskarsson bílstjóri frá Skagaströnd og Friðgeir Jóhannsson frá Ósi í Nesjum. Ekki er vitað hvað þeir félagar voru að fara en myndin var sennilega tekin kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 458
Sandburður í höfnina á Skagaströnd er vandamál sem leysa þarf reglulega með dýpkun. Á þessari mynd er verið að moka sandi frá dráttarbrautinni til að hann safnist ekki ofan á framenda brautarinnar og verði til þess að dráttarsleðinn fari út af teinunum sem hann hvílir á.
Árni Geir Ingvarsson -safn 483
Arnar HU 1. Þessi bátur var fyrsti bátur Skagstrendings hf. Hann var gerður út á togveiðar og varð upphafið að farsælli útgerðarsögu Skagstrendings hf. Skagstrendingur hf var stofnaður 1968 og myndin er sennilega tekin einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 433
Sjómenn svíður alltaf svolítið í hjartað þegar gamlir bátar eru sagaðir sundur og eyðilagðir. Hér hefur einn báturinn endað lífdaga sína í slippnum á Skagaströnd. Báturinn nefndist Ingólfur þegar þessi mynd var tekin sennilega 1992. Hann var keyptur af Skagstrendingi hf til Skagastrandar til niðurrifs en kvótann hirti félagið fyrir togara sína.
Árni Geir Ingvarsson - safn 401
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er verið að vinna við að koma fyrir frárennslislögn vestur úr fjörunni fyrir neðan sundlaugina. Maðurinn á myndinni er Rolf Árnason (d. ?) tæknifræðingur.
Jón Jónsson293
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Magdalena Jóhannsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Skagaströnd - safn259
40 feta gámur, sem stóð á gámasvæðinu norðan við rauða klefann á Skúffugarðinum, tókst á loft í miklu roki og fauk ca fjórar lengdir sínar og var nærri farinn í sjóinn. Eins og sést á myndinni var það níðsterkur bryggjukanturinn sem stöðvaði gáminn. Ef það hefi ekki gerst hefði Sigurður Jónsson Hu 18, sem sést á myndinni, ekki verið á floti lengur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma á árunum 2000 - 2005.
Skagaströnd - safn280
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Ingibergur Guðmundsson þáverandi skólastjóri Höfðaskóla fagnar tilkomu hússins.
Ólafur Bernódusson556
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru Valrún Eva Vilhelmsdóttir til vinstri og Dagbjört Agnarsdóttir til hægri.
Jón Jónsson292
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, láta þeir fara vel um sig frá vinstri: Jónas Hafsteinssson (d. 22.11.1995) Njálsstöðum, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðmundur Jóhannesson og Hallbjörn Björnsson.
Skagaströnd - safn090
Guðbjartur Sævarsson til vinstri og Vilmundur Árnason vinna við gatnagerð í Ægisgrund sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti.
Jón Jónsson290
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og María Magnúsdóttir.
Skagaströnd - safn373
Holan virkar !! Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Á myndinni er verið að prófa hvort fóðringin, sem mennirnir eru nýbúnir að koma fyrir, virkar eins og hún á að gera. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson við loftpressuna, Rúnar Jóhannsson sem skrúfar frá krananum og Sigurjón Ástmarsson bíl- og kranastjóri.
Skagaströnd - safn335
Þessi mynd var tekin af gatnagerð á horni Fellsbrautar og Oddagötu árið 1988. Það sumar kom forsetinn frú Vigdís Finnbogadóttir í heimsókn til Skagastrandar og reynt var að hafa allt fínt og fágað í bænum þegar hún kom. Á myndinni er Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) að vinna með jarðvegsþjöppu og maðurinn sem stjórnar krananum á H 34 er Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) eigandi bílsins. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn186
Þessi mynd var tekin af Viggó Brynjólfssyni að moka snjó á Skagaströnd með jarðýtu í kringum 1960. Myndina tók Þórður Jónsson.
Jón Jónsson287
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir og Karl Berndsen (d. 12.2.1995)
Skagaströnd - safn159
Sanddæluskipið Hákur dældi sandi úr höfninni árið 1977. Sandinum var dælt yfir í fjöruna fyrir neðan sundlaugina og þannig búin til landfylling, sem þar er í dag, með því að setja grjótvörn fyrir frama og fylla svo með sandi og möl.
Scan10096
<p> Vilhelm Björn Harðarson við vinnu sína á ruslabílnum á Kántrýhátíð 2001.</p>
Dagný Sigmarsdóttir015
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið, frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Dagný Hannesdóttir.
Skagaströnd 1966 b
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Á þessari mynd er verið að gera klárt fyrir að láta karið renna í sjóinn. Bátarnir á myndinni sáu um að koma taug úr karinu yfir í stærri bát sem dró það síðan yfir að hafnargarðinum þar sem karið var gert klárt fyrir ferðalag á endanlegan áfangastað. Stærri báturinn er líklega Ægir Hu 30.
Skagaströnd - safn183
Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Þessi mynd var tekin 28. júlí 1989. Þá var Jón í forsvari fyrir Skógræktarfélag Skagastrandar og þarna tók hann þátt í að gróðursetja 50 trjáplöntur á Hnappstaðatúninu sunnanverðu í tilefni af 50 ára afmæli Höfðahrepps.
Skagaströnd 1966 c
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Öll steypuvinna fór fram á staðnum með hrærivél og steypan hífð upp með gamla hafnar-kranabílnum.
Skagaströnd - safn123
Þessi mynd er sennilega frá hófi í febrúar 1983, sem haldið var til að fagna tilkomu verkamannaíbúða við Mánabraut. Á myndinni hlusta þau Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Guðmundur Björnsson á einhvern óþekktan ræðumann.
Skagaströnd - safn114
Þessi mynd var tekin veturinn 1982 þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni á Akureyri. Fólkið á myndinni er stjórnarmenn, framkvæmdastjóri, skipstjóri og kona hans en hún gaf skipinu nafn. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012)stjórnarmaður, Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri, Halldóra Þorláksdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) stjórnarformaður, Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) stjórnarmaður, Jón Ingi Ingvarsson stjórnarmaður og Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður.
Skagaströnd - safn232
Kaffifundur í kaffistofu Hólanes hf 1994, sennilega hluthafafundur í Skagstrendings hf. Við borðið sitja frá vinstri: Davíð Bragi Björgvinsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Stefán Jónsson (d. 29.6.2009), Sigríður Höskuldsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Guðrún Angantýsdóttir og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). Hrönn Árnadóttir skoðar myndirnar á veggnum með son sinn Brynjar Max Ólafsson í fanginu og hjá henni stendur dóttir hennar Rebekka Laufey Ólafsdóttir og skoðar með henni.
Skagaströnd - safn157
Þessi mynd var tekin þegar verið var að steypa upp Stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd. Helgi Gunnarsson, sem er með hjálm á myndinni, var verktaki og yfirsmiður við bygginguna en Jón Hannesson (d. 10.9.2002) átti og rak Steypustöð Blönduóss, sem sá um að framleiða steypuna í stjórnsýsluhúsið.
Skagaströnd - safn167
Sigursteinn Guðmundsson læknir, til vinstri, tekur við lækningatækjum fyrir Heilsugæsluna á Skagaströnd úr höndum Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996) oddvita Höfðahrepps einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Tækin gáfu kvenfélagskonur í Einingu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 421
Slippurinn fullur af trébátum og nóg að gera. Ekki er hægt að koma nema þremur bátum í slippinn í einu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 453
Þessi mynd var tekin þegar Ólafur Magnússon HU 54 kom í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Ragnar Ingvarsson er að koma út um brúardyrnar, Stefán Jósefsson skipstjóri og eigandi bátsins er í brúarglugganum en Hjörtur Guðmundsson stendur með hendur í vösum við brúarhornið.
Scan10080
Þessi mynd var tekin árið 2000 þegar Sunnuhlíð (Bogabraut 19) var rifin til að rýma fyrir nýju húsi á lóðinni en það var byggt sumarið 2001.
Skagaströnd - safn165
Soffía Lárusdóttir(d. 31.3.2010) flytur tölu í tilefni af því að kvenfélagið Eining var að gefa lækningatæki á Heilsugæsluna á Skagaströnd einhverntíma á árunum 1974 - 1978.
Skagaströnd - safn155
Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) við járnaborðið við byggingu stjórnsýsluhússins á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 441
Þrír bátar í slippnum og nóg að gera. Þorlákur Helgi SI 71 er næst okkur, Helga Björg HU 7 er bak við hann og svo sést í skutinn á Þóri GK 116. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd
Skagaströnd - safn231
Gylfi Sigurðsson í ræðustól á fundi í kaffistofu Hólaness hf 1994. Fundarefnið er ekki þekkt en gæti verið hluthafafundur hjá Skagstrendingi hf þar sem Gylfi var stjórnarformaður um tíma.
Guðmundur Guðnason 2 360
<p> Á þessari mynd halda í hrúta sína á hrútasýningu á óþekktum stað, frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson (d. 20.10.1977) Holti Svínadal, Eysteinn Erlendsson (d. 27.10.1969) frá Beinakeldu, Leifur Sveinbjörnsson (d. 22.2.2008) í Hnausum, Reynir Steingrímsson (d. 3.11.1989) í Hvammi, Vatnsdal og Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008) á Auðkúlu. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. </p>
Skagaströnd - safn044
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru Sigurður Ingi skrifstofustjóri hjá Vitamál til vinstri og Adolf J. Berndsen til hægri.
Skagaströnd - safn269
<p>Þessi mynd er af gamalli tré- eða koparristu sennilega gerðri af þjóðverja. Aftan á myndinni stendur: <em>Island 19. jahrh. xylographié. </em>Einnig er svohljóðandi stimpill aftan á henni: <em>Karla Krüger. Münaen. Kaupferstiche. Bücker. Gerhoftstr. 2, 2000 Hamburg 36 Tel 34 67 32. </em>Undir myndinni stendur (á gamalli þýsku): Verslunarstaðurinn Skagaströnd á Íslandi. </p><p>Annað er ekki vitað um myndina.</p>
Jón Jónsson294
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Steindór Gíslason (d. ?), Bjarney Valdimarsdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Skagaströnd - safn160
Þessi mynd var tekin á fundi hreppsnefndar 1984. Tilefni fundarins var meðal annars sveitarstjóraskipti á Skagaströnd. Lárus Ægir Guðmundsson var að hætta og Sigfús Jónsson að taka við. Í hreppsnefnd voru talið frá vinstri: Elín Njálsdóttir fulltrúi Alþýðuflokksins, Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Alþýðubandalagi, Adolf J. Berndsen oddviti frá Sjálfstæðisflokknum, Magnús B. Jónsson frá Framsóknarflokknum og Gylfi Sigurðsson frá Sjálfstæðisflokknum.
Ólafur Bernódusson573
<p>Þessir þrír félagar áttu saman, og gerðu út í fjölda ára, bátinn Helgu Björgu Hu 7. Á vorinn réru þeir á grásleppu og verkuðu aflann sjálfir eins og sjá má af fullum hrognasigtum aftan við þá. Mennirnir eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) og Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998). Myndin var tekin snemma á tíunda áratugnum.</p>
Ólafur Bernódusson572
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) býr sig undir að hengja upp skorna grásleppu til að láta síga. Í baksýn sést í hjallinum að þetta er ekki fyrsti skammturinn af slíku sem hann hengir upp. Myndin var tekin snemma á tíunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson561
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Skagaströnd - safn013
Söluskáli Olís á Skagaströnd
Guðmundur Guðnason 2 388
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: <em>"Páll Jónsson fyrrv. skólastjóri organl. til 1965".</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er úr Hólaneskirkju eldri. Páll dó 19.7.1979.
Árni Geir Ingvarsson - safn 446
Brimnes BA 800 ný málaður í höfninni á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson571
Óhöpp gerast á sjónum eins og annars staðar. Á þessari mynd er verið að draga Auðbjörgina Hu 6 í dráttarbrautina til að hægt sé að skera snurvoðina úr skrúfunni. Eins og sést þarf ekki stóran bát til að draga ef stutt er að fara. Um borð í jullunni er Vilhjálmur Skaftason í gulri treyju en í stafni Auðbjargarinnar stendur Ólafur Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1995.
Árni Geir Ingvarsson -safn 478
Vegna sviptinga í kvótamálum og söfnunar á rúmmáli í skipum eignaðist Skagstrendingur hf þennan togara - Fisherman- eingöngu til að úrelda hann til að fá leyfi til að láta smíða nýjan og stærri togara. Fisherman var aldrei gerður út frá Skagaströnd öfugt við Rex sem var gamli Arnar HU 1 (Japans Arnar) en hann færði óhmju verðmæti á land á þeim árum sem hann var gerður út frá Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason 2 356
Fyrstu jepparnir voru gjarnan notaðir sem landbúnaðartæki. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er Willys H 94 notaður til að rifja heyið. Hjónin Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir áttu H 94 lengi en seinna fékk sonur þeirra Ástmar Kári Ástmarsson númerið og notaði á sína bíla.
1
…
22
23
24
…
75
Leita í myndasafninu
Leita