Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 455
Unnið við löndun úr Örvari HU 21. Á myndinni eru þau samhent að vinna; Jón Vilhjalmsson (d. 31.8.2011) og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 364
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: " Á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Klemens Kristjánsson (á miðri mynd) segir frá tilraunum með Kornrækt. Ljósm. Guðm. Kr. Guðnason". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og fólkið á myndinni er óþekkt nema Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem horfir í átt að ljósmyndaranum.
Skagaströnd - safn159
Sanddæluskipið Hákur dældi sandi úr höfninni árið 1977. Sandinum var dælt yfir í fjöruna fyrir neðan sundlaugina og þannig búin til landfylling, sem þar er í dag, með því að setja grjótvörn fyrir frama og fylla svo með sandi og möl.
Skagaströnd - safn396

Báturinn Re 317 hét Sæljón og landaði oft á Skagaströnd en hinn báturinn er Brynjar St 50 frá Hólmavík. Eigendur bátanna voru bræðurnir Gunnar Guðmundsson eigandi Sæljóns og Jóhann Guðmundsson sem átti Brynjar. Milli bátanna eru nótabátarnir en þeir voru notaðir við síldveiðarnar þannig að nótin var dregin inn í þá þegar snurpað var (= þrengt að síldinni í nótinni). Var það gert með handafli en síðan var síldin háfuð um borð í móðurbátinn með háf eins og þeim sem sést hanga í bómunni á Sæljóninu. Bassaskýli var nafnið á litlu kössunum/skjólunum sem sjást uppi á stýrishúsum bátanna. Þegar verið var að leita að síld var einn eða fleiri menn hafðir uppi í Bassaskýlinu til að reyna að koma augu á vaðandi síldartorfur. Þó að skýlin væru axlarhá og lokuð allan hringinn var oft kalsamt að standa þar og stara út á hafið í kring. Bassaskýlin voru síðan aflögð með tilkomu astiks og fleiri tæknivæddra fiskleitartækja um borð í bátunum.

Guðmundur Guðnason 2 458

Hér er verið að landa úr óþekktum bát. Ekki er vitað hvar myndin er tekin né hvenær. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Scan10096

Vilhelm Björn Harðarson við vinnu sína á ruslabílnum á Kántrýhátíð 2001.

Guðmundur Guðnason 2 224
Hér sitja þeir hesta sína gangnamennirnir Már Hall Sveinnsson (d. 1.3.2008) frá Réttarholti til vinstri og Gísli Kristjánsson frá Háagerði til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið upp úr 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 385
Á þessari mynd er annað hvort verið að sjósetja Lottó Hu 538 eða taka bátinn upp. Maðurinn á myndinni er Árni Guðbjartsson en hann átti bátinn með bróður sínum Sigurjóni Guðbjartssyni. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1990 -1992 en það er sá tími sem þeir bræður áttu bátinn.
Skagaströnd - safn 321
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd er Gunnar Albertsson verkstjóri í verkstjóarkompunni að glugga í samningana um kaup og kjör.
Árni Geir Ingvarsson - safn 386

Um Kristján Hu 123 segir svo í bókinni ,,Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson:

,, Kristján HU 123 734. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1948 og var 38 brl. með 132 ha. Kelvin vél. Hann var endurbyggður 1970 og sett í hann 240 ha.Caterpillar vél og mældist þá 37 brl. Báturinn var endurbyggður öðru sinni árið 1979 og árið 1983 kom í hann 325 ha. Catepillar vél. Skagstrendingur h/f eignaðist Kristján árið 1990 en þá var félagðið að safna rúmmetrum vegna smíði nýs togara. Báturinn var leigður Björgu s/f og var gerður út á úthafsrækjuveiðar sumarið 1990. Hann var seldur til Ólafsvíkur árið 1991."

Árni Geir Ingvarsson -safn 482
Þetta er Auðbjörg Hu 6 í Skagastrandarhöfn 1968. Bátinn áttu þeir Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson, Eiður Hilmarsson og Gunnar Sveinsson. Um þennan bát segir svo í bókinni Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Auðbjörg Hu 6 301. Báturinn var snmíðaður úr eik og beyki í Hafnarfirði árið 1939 og var 26 brl. með 90 ha. June Munktell vél. Árið 1957 var sett í hann 150 ha. Albion vél, 1963 kom 200 ha. Scania vél og svo 1973 fékk hann 230 ha. Scania vél. Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn í júlí 1947 og gerði út til ársins 1959 er hann var seldur til Reykjavíkur og hét þá Auðbjörg RE 341. Í júní 1967 var báturinn keyptur á nýjan leik til Skagastrandar frá Ólafsvík þar sem hann hét Auðbjörg SH 197. Kaupendur voru Eiður Hilmarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Jósef Stefánsson. Þeir félagar gerðu bátinn út fram í júní 1970 er hann var seldur til Kópavogs og fékk nafnið Sigmundur Sveinsson KÓ 6. Báturinn sökk á Húnaflóa 27. júní 1979 og hét þá Vinur ST 21 og var í eigu aðila á Hólmavík. Áhöfn bátsins, tveir menn, komust í gúmbjörgunarbát. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF Sýn, fann gúmbátinn og vísaði flutningaskipinu Jökulfelli á hann og tók það mennina um borð".

Hafliði Óskarsson sem var skipverji á Jökulfellinu þegar þessir atburðir gerðust segir svo frá atburðinum: "Skipbrotsmennirnir tveir af m.b. Vin ST 21 (ex Auðbjörg HU 6) höfðu dvalist í gúmmíbjörgunarbátnum í einar 10-12 klst. þegar m.s. Jökulfell bar að og tók mennina um borð. Báðir voru mennirnir klæddir svokölluðum varmapokum, en þeir kvörtuðu undan kulda engu að síður þegar þeir komu um borð í Sambandsskipið. Þótti víst lítið skjól af pokunum þó um hásumar væri. Jökulfellið sigldi að lokinni björgun stystu leið til næstu hafnar, sem var Skagaströnd, fyrrum heimahöfn bátsins sem hér var nýlega sokkinn í sæ. Úti fyrir Skagastrandarhöfn beið þilfarsbátur sem ferjaði skipbrotsmennina til hafnar, en Jökulfell snéri stefni til hafs og hélt áfram för
Árni Geir Ingvarsson - safn 403
Nýr bátur sjósettur frá Mánavör hf. Maðurinn vinstra megin við bátinn er Ástmar Kári Ástmarsson en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 479
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) stundaði netaveiði á silungi á þessu litla horni sínu og fór einnig með færið sitt til að fá sér þorsk í soðið á góðviðrisdögum á sumrin. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 672
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru frá hægri: Hallbjörg Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Líney Árnadóttir þáverandi forstöðumaður greiðslustofunnar. Hinar konurnar á myndinni eru óþekktar.
Jón Jónsson289
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, er Gunnlaugur Sigmarsson starfsmaður bankans á spjalli við óþekktan mann.
Skagaströnd - safn 320
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd eru Gunnar Albertsson verkstjóri til vinstri og Ottó Ákason (d. 17.9.2005) til hægri að krunka yfir snúningstromlunni sem flokkaði skelfiskinn eftir stærð.
Skagaströnd - safn 319
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd eru konur að hreinsa innyfli frá vöðva hörpudisksins en vöðvinn var afurðin, sem var hirt og skapaði verðmæti vinnslunnar. Konan til hægri er Þórey Jónsdóttir en aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn289
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Mike Jones leikur á píanó og Skarphéðinn Einarsson á trompet við vígsluna. Báðir voru þeir kennarar við Tónlistarskóla A-Hún á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 457
Unnið að snjómokstri í Hafstaðabrekkunni áður en veginum var breytt í það horf sem hann er í í dag. Myndin var sennilega tekin 1995 eða 1996.
Guðmundur Guðnason 2 472
Fólkið á þessari mynd er óþekkt og það sama má segja um hvaða rétt þetta er. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson329
Hjónin Guðjón Ebbi Sigtryggsson og Halldóra Þorláksdóttir um borð í Örvari Hu 21. Guðjón Ebbi var farsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um árabil.
Jón Jónsson284
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni eru tveir gamlir samherjar við opnunina: Ragnar Arnalds til vinstri og Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 439
Karl Berndsen (d. 12.2.1995) við vinnu í slippnum. Í baksýn er hálf rifinn skrokkur Arnarborgarinnar HU 11 sem Karl var að vinna við að rífa þegar myndin var tekin 1993.
Óþekktur ljósmyndari364
Þessi mynd sýnir gömul vinnubrögð við að koma heyi heim að skepnuhúsum þeirra tíma. Myndin eykur líka skilning manns á af hverju hesturinn var kallaður "þarfasti þjónninn" fyrir öld dráttarvéla og annarra vélknúinna tækja í sveitum landsins. Hér er verið að reiða heim hey á fjórum hestum. Heyið var bundið í bagga á vellinum og síðan hengt á klakk á baki hestsins. Síðan var lestin teymd heim, oft af einhverjum hálstálpuðum krakka, sem sá svo um að koma með hestana til baka fyrir næstu ferð. Á þessari mynd er þó fullorðin maður sem teymir en krakki "situr á milli" á aftasta hestinum. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær en líklega hefur hún verið handmáluð.
Skagaströnd - safn415

Húsin á Brandaskarði fara stundum á kaf ef mikið snjóar því þá skefur yfir þau. Þessi mynd var tekin í október 1995 þegar verið var að moka snjó af þakinu á bænum. Þegar myndin var tekin var farið að glitta í þilið og þakið var fundið. Gröfunni stjórnaði Guðmundur Björnsson.

Skagaströnd - safn421
Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), þáverandi starfsmaður Höfðahrepps, kannar skemmdir á hafnargarðinum (Útgarði) í febrúar 1996 áður en grjótvörn var sett við garðinn og ofan á hann.
Árni Geir Ingvarsson - safn 391
Arnar Hu 1 - Japans Arnar - leggur upp í veiðiferð frá Skagaströnd í suð-vestan brælu.
Skagaströnd - safn287
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Fermingarbörn ársins 1998 tóku þátt í athöfninni. Frá vinstri á myndinni eru, í hvítum fermingarkirtlum : Bára Dröfn Kristinsdóttir, Guðni Már Lýðsson, Leó Kristberg Einarsson, Jón Ingi Ragnarsson,Hermann Freyr Guðjónsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, Elín Anna Konráðsdóttir og Rebekka Laufey Ólafsdóttir. Fermingarbörnunum til aðstoðar eru konurnar Hrönn Árnadóttir til vinstri og Guðbjörg Eiríksdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 459

1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Hér er Guðmundur Björnsson að moka frá húsinu að Fellsbraut 15 svo íbúarnir komist út.

Skagaströnd - safn 317
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd er fólk við vinnu við færiband þar sem fiskurinn er hreinsaður úr þeim skeljum sem ekki hreinsuðust í snúningstromlunni sem annars sá um það verk.
Guðmundur Guðnason2 342
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er grjótnám í Höfðanum í fullum gangi. Sennilega var myndin tekin kringum 1950 af hlaðinu í Ægissíðu, þar sem ljósmyndarinn bjó.
Skagaströnd - safn 318
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd eru konur að hreinsa innyfli frá vöðva hörpudisksins en vöðvinn var afurðin, sem var hirt og skapaði verðmæti vinnslunnar. Brosandi konan á myndinni er Bajrnhildur Sigurðardóttir en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 478
Vegna sviptinga í kvótamálum og söfnunar á rúmmáli í skipum eignaðist Skagstrendingur hf þennan togara - Fisherman- eingöngu til að úrelda hann til að fá leyfi til að láta smíða nýjan og stærri togara. Fisherman var aldrei gerður út frá Skagaströnd öfugt við Rex sem var gamli Arnar HU 1 (Japans Arnar) en hann færði óhmju verðmæti á land á þeim árum sem hann var gerður út frá Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 429
Auðbjörg HU 6 í klössun í slippnum. Guli bíllinn á myndinni er Trabant en þeir bílar voru frægir fyrir að þeir voru (eru?) byggðir úr plasti. Gárungarnir söðu að munurinn á Trabant og Trabant Delux væri að það væri öskubakki afturí í Delux típunni.
Jón Jónsson330
Þessi friðsæla mynd var tekin einhverntíma á sjómannadegi yfir höfnina á Skagaströnd. Togarar Skagstrendings hf Arnar Hu 1 til vinstri og Örvar Hu 21 fánum prýddir en framan við Öravr sér í Helgu Björg Hu 7. Aftan við Arnar er annar kappróðrabátanna.
Guðmundur Guðnason 2 356
Fyrstu jepparnir voru gjarnan notaðir sem landbúnaðartæki. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er Willys H 94 notaður til að rifja heyið. Hjónin Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir áttu H 94 lengi en seinna fékk sonur þeirra Ástmar Kári Ástmarsson númerið og notaði á sína bíla.
Árni Geir Ingvarsson - safn 381
Þessi mynd var tekin við Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær. Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga, smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf á Skagaströnd. Hinir bátarnir á myndinni eru Sæfari Su 85, Helga Björg Hu 7 og Dagrún St 12.
Guðmundur Guðnason 2 450
Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) í Skálholti átti H 333 sem sést á myndinni þar sem hann stendur utan við Fellskjör, seinna Kántrýbæ, en húsið brann eins og kunnugt er og nýtt bjálkahús var reist á grunninum.
Guðmundur Guðnason 2 432

Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn á miðri mynd, með gleraugu, er Jón Sölvason (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Maðurinn með húfuna lengst til hægri gæti verið Sigurjón Magnússon ?(d. 16.3.2007) frá Sólvangi. Ef þú getur staðfest að um Sigurjón sé að ræða vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Séra Pétur og Dómhildur - safn126

Á myndinni er Björn Sigurðsson (Bjössi á Jaðri) (d. 5.10.1999) við smíðar um borð í Engilráð frá Ísafirði. Báturinn var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf. Í baksýn má sjá bátana Ósk Hu 21 nær og Stíganda Hu 9 fjær. Húsið sem ber yfir höfuð Björns er Karlsminni sem er nú löngu horfið.

Scan10094
Á myndinni sinnir Vilhelm Harðarson viðhaldi á fyrsta ruslabílnum sem kom í Húnavatnssýslurnar. Bílinn keypti Vilhelm til Skagastrandar 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 398
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) kemur brosmildur að landi á skektunni sinni frá því að vitja um silunganet.
Guðmundur Guðnason 2 379
Hér er verið að landa eða ferma báta í höfninni á ?Blönduósi? ef til vill með fé?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú getur staðfest að þetta sé höfnin á Blönduósi vinsamlega hafðu þá samband.
Guðmundur Guðnason2 341

Flaggað á réttardegi í Skrapatungurétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Á miðri mynd er Jón Guðmundsson (d. 3.7.1992) frá Sölvabakka boginn í baki og með húfu. Til hægri við hann í köflóttri skyrtu er Jökull Sigtryggsson frá Núpi þá kemur Magnús Daníelsson (d. 1.6. 1993) frá Syðri - Ey. Hallgrím Einarsson (d. 3.4.1998) frá Neðri-Mýrum má þekkja með ljósa húfu og í vinnugalla í hópnum vinstra megin við Jón. Ef þú þekkir einhverja fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Skagaströnd - safn121
Þorgeir Jónsson við vinnu í nýbyggingum við Mánabraut. Myndin var tekin 1982.
Árni Geir Ingvarsson - safn 434
Hér vinnur Karl Berndsen (d. 12.2.1995) ásamt fleirum að því að rífa Arnarborg HU 11 í slippnum. Maðurinn með húfuna og gleraugun er Sigurjón Ástmarsson en aðrir eru óþekktir.
24
Nýr ruslabíll kominn til Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar árið 2003. Á myndinni eru börn Vilhelms, Hörður Aðils með húfu og Ástrós Villa með sítt ljóst hár. Litla stúlkan er Þóra Karen, dóttir Krsitínar Jónu fósturdóttur Vilhelms.
Guðmundur Guðnason 2 446
Réttað í Spákonufellsrétt á óþekktum tíma. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Jón Jónsson285
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á þessari mynd er Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) á tali við óþekktan mann. Björgvin var sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Skagastrandar sem Landsbankinn yfirtók þegar útibúið var opnað.
Séra Pétur og Dómhildur - safn 183
Ekki er vitað hvenær þessi gamla mynd var tekin en á henni er síldarsöltun á fullu á planinu sem var sunnan við verksmiðjuna. Þarna úti var staðið við söltun hvernig sem viðraði enda ekki búið að finna upp vinnueftirlitið á þessum tíma.
Séra Pétur og Dómhildur - safn153
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Inga Þorvaldsdóttir (d. des. 2012), Sigurður Björnsson, Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007), Sandra Ómarsdóttir, Einar Gunnarsson, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) er á bak við Einar, Guðrún Guðmundsdóttir er í gráum jakka, Einar Karlsson situr við gluggann í ljósri peysu, Steinunn Steinþórsdóttir er fremst á myndinni og Eygló Gunnarsdóttir er með hatt næst lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari366
Þessi mynd hefur verið tekin einhverntíma á árunum 1929 - 1933 af Höfðanum yfir hafnarsvæðið. Á myndinni má sjá Spákonufellsey sem nú er ein af undirstöðum hafnarinnar því 1934 var byrjað á uppfyllingu frá landi og út í eyju jafnframt því sem hluti hennar var brotin niður í uppfyllinguna. Húsið lengst til hægri var heimili verslunarstjóra og stóra húsið með græna þakinu er gamla kaupfélagið sem byggt var 1929-1930. Gula húsið með rauða þakinu til vinstri er Garður. Úti á víkinni liggja nokkrir bátar við legufæri enda hafnaraðstaða lítil sem engin á þessum tíma. Lengra frá sést Árbakkasteinn. Ljósmyndin hefur líklega verið handmáluð á sínum tíma.
Guðmundur Guðnason2 340
Réttað í Skrapatungurétt sennilega um 1960. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 367
Þessi brú var (er ?) yfir Hólmsá í Skaftartungu. Augljóslega hefur verið vandasamt að aka rútum og lengri bílum yfir hana. Ökumaður þessarar rútu virðist þó kunna sitt fag því hann fer eins langt til hægri og hægt er til að ná beygjunni inn á brúna.
Guðmundur Guðnason 2 429
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir. Sama má segja um réttina - ekki er vitað hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 405
Stefnir St tekinn upp í slippnum á Skagaströnd. Kári Lárusson stendur gleiðfættur framan við stýrishúsið en aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 428
Hér er réttað í óþekktir rétt (Vindhælisrétt?) á óþekktum tíma. Ekki er hægt að þekkja fólkið á myndinni vegna þess hve filman er orðin máð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 418

Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði veginum burt og ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd er verið að koma byggja brú til bráðabirgða til að gera bílfært.

Árni Geir Ingvarsson - safn 390

Þessi mynd sýnir Snorra Gíslason (d. 29.5.1994) að fara með grásleppunetum á bátnum sínum á miðunum inn með landi.

Árni Geir Ingvarsson - safn 435
Hér er unnið við að mála Arnarborg HU 11. Maðurinn með rúlluna er Kristmundur Ingibjörnsson en hinn maðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1

23
24
25

75
Leita í myndasafninu
Leita