Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 395
Húni HU 62 í slippnum á Skagaströnd. Arnarborg Hu 11 bíður örlaga sinna við hlið Húna. Myndin hefur líklega verið tekin 1992-1993.
Skagaströnd - safn348
Rjúpnafell rifið 24. janúar 1991.
Árni Geir Ingvarsson - safn 442
Arnarborg HU 11 rifin í slippnum 1993. Á myndinni eru við vinnu sína frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Gísli Snorrason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 475

Unnið við að mála gluggana á suðurhlið Bogabrautar 16 á lognværum, grænum sumardegi.

Árni Geir Ingvarsson - safn 467
Arnar HU 1 að koma í land úr túr. Verið er að skipa út fiski í flutningaskip sem liggur við Útgarð og grafa er að ýta út fyllingu í nýjan viðlegukant, Vesturgarð. Myndin var sennilega tekin haustið 1990.
Skagaströnd - safn414
Gunnar Albertsson mokar snjó frá Gamla Hólanesfrystihúsinu á Hólanesi í október 1995. Sér til hjálpar hefur hann traktorsgröfu undir stjórn Guðmundar Björnssonar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 393
Næst okkur á myndinni er Helga Björg HU 7 sem liggur utan á Hafrúnu HU 12 en næst bryggjunni er Arnarborg HU 11. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrir 1993 því þá var Arnarborgin rifin og brennd. Græna fyrirbærið í baksýn var íssnigill sem notaður var til að koma ís um borð í bátana.
Árni Geir Ingvarsson - safn 396
Gauti Hu 59 í slippnum á Skagaströnd. Þessi bátur hét áður Húni II og var svo gerður upp og skírður aftur sínu fyrra nafni Húni II. Báturinn er nú á Akureyri og er í eigu Hollvina Húna II þar. Báturinn er gerður út sem ferðamannafley og til lengri og skemmri ferða um Eyjafjörð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 424
Stundum þarf að koma vélarvana bátum í slippinn. Á þessari mynd er verið að koma einum slíkum í sleðann með hjálp tveggja hjálparbáta.
Skagaströnd 1959 b
Myndin er af karasmíð sumarið 1959 í dráttarbrautinni sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Á þessari mynd er nýbúið að renna fullsmíðuðu kari á flot. Báturinn sem dregur það yfir að hafnargarði er líklega Stígandi Hu 9. Við hafnargarðinn var gengið frá karinu til flutnings á endanlegan áfngastað.
Magnús B Jónsson096
Þessi mynd var tekin 1998. Á henni er verið að leita að heitu vatni í landi Höfðahrepps með jarðbor. Boraðar voru allmargar holur, 30 metra djúpar, á völdum stöðum hér og þar , til að leita að heitu vatni. Ekkert heitt vatn fannst við þessa leit.
Árni Geir Ingvarsson - safn 449
Helga Björg HU 7 var togari í eigu Skagstrendings hf og gerður út til rækjuveiða bæði hér við land og á miðunum á Flæmingjagrunni. Helga Björg var keypt frá Grænlandi og kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd 17. janúar 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 419
Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði ræsinu og veginum burt svo ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd sjást leyfarnar af ræsinu og stálið í vegstæðinu þar sem bílar bíða í ráðaleysi á brúninni að sunnanverðu.
Skagaströnd - safn290
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Fyrsti húsvörður hússins var Ragnar Smári Ingvarsson sem sést hér á myndinni bak við afgreiðsluborðið í anddyri hússins.
Skagaströnd - safn410
Þessi mynd var tekin 16. janúar 1995 í vetrarbrimi. Myndin sýnir sjó ganga yfir brimvarnargarðinn ( Útgarð). Síðan þessi mynd var tekin hefur grjótvörn við garðinn verið stóraukin og endubætt og þó enn skvettist yfir garðinn í verstu brimum þá er það ekkert í líkingu við það sem myndin sýnir. Vitinn á enda garðsins hefur verið rifinn og röraviti verið reistur í staðinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 425

Hafbjörg HU 100. Um þennan bát segir eftirfarandi í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:

"Hafbjörg HU 101 1842. Báturinn var smíðaður úr plasti hjá Mark hf á Skagaströnd árið 1087 og var 7 brl. með 274 ha. Ford Mermaid vél. Eigandi hans var Hrönn s/f en það fyrirtæki var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og var báturinn gerður út árin 1987 - 1988. Hafbjörg var seld til Þorlákshafnar árið 1989 og fékk nafnið Vismin ÁR 12.

Árni Geir Ingvarsson - safn 422
Þessi mynd var tekin á athafnasvæði slippsins og á henni eru tveir af ötulustu starfsmönnum þar. Ólafur Guðmundsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn347
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), starfsmaður Siglingamálastofnunar, Ólafur Bernódusson, Elín Njálsdóttir, Birgir Þórbjarnarson og Magnús B. Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 469
Þessi mynd var tekin á logndegi í Skagastrandarhöfn en margir bátar í höfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 427

Þarna er verið að fara með Arnarborgina HU 11 upp í slippinn til að setja á hana nýjan hvalbak og snúa spilinu, sem var langsum bakborðsmegin. Spilinu var snúið þvert eins og venja er að spilin snúi. Líklegt var myndin tekin í kringum 1985-86. Helga Björg HU 7 aðstoðar við að koma Arnarborginni í slippinn.

Guðmundur Guðnason 2 453
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal við heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og sér í mynni Vesturáarskarðs í baksýn. Fjölskylda Guðmundur bjó í dalnum á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Konan lengst til vinstri er Klemensína Klemensdóttir (d.12.6.1966) móðir Guðmundar. Ungi maðurinn sem bindur bagga er Pálmi (d. 23.3.1994), Ingvi (d. 31.12.1991), eða Rósberg (d. 9.1.1983) en þeir voru bræður Guðmundar (líklegast er að þetta sé Rósberg). Guðmundur sjálfur heldur í hestinn og faðir hans Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) hleður fúlgu úr heyinu í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 415
Þessi flutningabíll valt í mikilli vindkviðu á brautinni milli Fells og Vindhælis. Á myndinni er verið að koma bílnum á réttan kjöl aftur með hjálp traktorsgröfu. .
Árni Geir Ingvarsson - safn 406
Hér er verið að sjósetja bát við gömlu bryggjuna á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Baldur Eðvarðsson - safn 4
Guðbjörg HU 31 bundin við Litlu bryggju. Myndin var sennilega tekin seint á sjöunda áratugnum en þá var báturinn í eigu Jóns Jónssonar (d. 9.7.1991) og Eðvarðs Ingvasonar (d. 29.5.2011). Upphaflega keypti Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) bátinn frá Akranesi en þá var hann frambyggður með bensínvél. Líklega var Guðbjörgin fyrsti frambyggði báturinn á Skagaströnd. Seinna var nýtt stýrishús sett á bátinn eins og sjá má en það var gert því auðveldara var að fara með grásleppunetum á bátnum svona en með húsið fram á.
Árni Geir Ingvarsson - safn 440
Ólafur Magnússon HU 54 í slippnum á Skagaströnd. Einn af mörgum bátum í eigu Stefáns Jósefssonar með þetta nafn.
Jón Jónsson331
Þessar konur sáu um kaffiveitingar í veislu sem haldin var í Skátaskálanum af óþekktu tilefni sem tengdist Skagstrendingi hf. Veislan fór fram í Skátaskálanum en þar var um þær mundir rekið mötuneyti fyrir menn sem voru að vinna að breytingum á síldarverksmiðjunni. Frá vinstri á myndinni: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), sem sá um mötuneytið, og Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020). Myndina tók Jón Jónsson einhverntíma kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 413
Þakjárn fauk af að hluta á húsinu Skagavegur 10 - 12 í norð-austan stórviðri. Á þessari mynd eru smiðir mættir á staðinn til að koma á nýju járni eftir að veðrið er dottið niður.
Guðmundur Guðnason 2 463
Konan með hrútinn er Ingibjörg Karlsdóttir frá Neðri Lækjardal, seinna á Blönduósi.
Skagaströnd - safn370
Þessi mynd var tekin 11. apríl 1995 af snjómokstri í Bankastræti. Veturinn 1995 var með snjóþyngstu vetrum sem menn muna á Skagaströnd. Bankastrætið var t.d. ekki mokað fyrr en farið var að vora svolítið og menn farnir að vonast til að snjókomunni væri að linna. Ef grannt er skoðað má sjá límbandshringi á ljósastaurnum næst okkur en límbandið var sett á staurinn þar sem snjórinn stóð hæst á hverjum tíma. Enn ( í maí 2015) má sjá leyfarnar af límbandinu ef fólk hefur áhuga á.
Scan10091

Vilhelm Harðarson við nýjan bíl Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar 1994. Með honum á myndinni er fósturdóttir hans Kristín Jóna Sigurðardóttir.

Guðmundur Guðnason 2 449
Maðurinn sem slær á Massey Ferguson er Jökull Sigtryggsson, síðar bóndi á Núpi í Laxárdal, við heyskap á Skagaströnd. Heyskapur virðist ganga vel ef tekið er mið af sátunum í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 448
Á myndinni er verið að vinna að því að lyfta lítilli trillu úr kafi eftir að hún sökk við skúffugarðinn. Ef þú veist nafnið á trillunni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 408
Þegar fast er sótt og menn jafnvel einir á sjó vill þreyta og syfja stöku sinnum taka yfirhöndina. Þannig fór að þessu sinni þegar handfærabátur strandaði á einu af djúpskerjunum við Skagaströnd. Ekki urðu slys á mönnum við óhappið önnur en ef til vill örlítið sært stolt sjómannsins um borð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 454
Hafrún Hu 12 sökk í höfninni á Skagaströnd í aftakaveðri 16. janúar 1995. Á myndinni er Hafrúnin að koma úr kafi því bátnum var bjargað og hann síðan endurnýjaður að nánast öllu leyti. Kafarar fóru niður að Hafrúninni og þéttu lestar og önnur op. Festu svo stóra poka við bátinn á mörgum stöðum. Síðan var lofti dælt í pokana og báturinn réttur af. Þá hófst dæling á lofti niður í rýmin sem þétt höfðu verið og loftið þannig látið ýta sjónum út. Smátt og smátt varð þetta til að Hafrúnin kom úr kafi og flaut á ný.
Árni Geir Ingvarsson - safn 404
Á myndinni er slæmt veður og báturinn virðist vera að slíta af sér landfestarnar. Mennirnir á myndinni eru sennilega að reyna að komast um borð til að koma í land festingu aftur í bátnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 409
Hér eru menn í basli við að koma niður streng í við ræsi neðan við Árbakka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 387
Helga Björg Hu 7 á leið í róður. Bátinn áttu og gerðu út þeir Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998).
Skagaströnd - safn371
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að fóðra innan ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru Rúnar Jóhannsson í bláum samfestingi og Sigurjón Ástmarsson bílstjóri sem stjórnar krananum með fjarstýringu.
Skagaströnd - safn349
Hólaneskirkja eldri rifin 19. febrúar 1992. Kirkjan var vígð 1928 en var afhelguð 1991 nokkru áður en hún var rifin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 436
Ólafur Guðmundsson skipasmiður hefur ný lokið við að saga sundur bátsskrokk í slippnum með keðjusög.
Skagaströnd - safn368
Þessi mynd var tekin 1.febrúar 1992 þegar Stóra Berg var rifið. Húsið stóð suð-austan við kirkjuna rétt hjá Iðavöllum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 431
Birgir Þórbjarnarson gefur skipanir úr brúarglugganum á Arnari HU 1 - Japans Arnari - en þar var Birgir stýrimaður og seinna skipstjóri í mörg ár.
Árni Geir Ingvarsson -safn 474
Benni Ólafs er skemmtibátur sem Guðmundur Björnsson og Ólafur Bernódusson keyptu frá Dalvík 1996.
Guðmundur Guðnason 2 349
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað " Séð frá Varmahlíð, G.K.G.". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef til vill geta bílaáhugamenn giskað á það út frá útliti olíubílsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 463
Funi HU 89 sokkin í höfninni en búið að koma á hann böndum og verið að ná honum upp aftur.
Skagaströnd - safn399
Drekkhlaðinn síldarbátur á landleið fyrir Höfðann með nótabátinn í drætti. Í forgrunninum til vinstri sér í olíutankana sem stóðu á Höfðanum fram undir aldamót. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Guðmundur Guðnason 2 482
Heimalningum á Balaskarði gefin mjólk að drekka. Konan í rósótta kjólnum er Signý Benediktsdóttir ( d. 7.1.1991) en hin konan er líklega Geirlaug Ingvarsdóttir dóttir Signýar.
Skagaströnd - safn352
Búið er að fjarlægja báða þessa tanka í dag (apríl 2015). Þeir voru upphaflega báðir jafn stórir en síðan var annar þeirra lækkaður um helming. Þeir voru reistir í sambandi við smíði síldarverksmiðjunnar á árunum kringum 1943-´46 og þá notaðir undir svartolíu og lýsi. Þegar þeir voru byggðir voru ekki gerðar kröfur um lekaþró kringum þá þ.e. svæði sem gæti tekið við hugsanlegum leka úr tönkunum án þess að menga umhverfið. Í dag eru kröfurnar um slíkt mun strangari sem betur fer. Tankarnir stóðu vestur undir Höfðanum ekki langt frá sundlauginni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 399
Arnar Hu 1 í eigu Skagstrendings hf að koma til hafnar á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn408
Lýsistankur SR- Mjöls rifinn haustið 1994. Olís tankurinn við hlið hans hefur einnig verið rifinn.
Skagaströnd - safn372
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson, Rúnar Jóhannsson og Sigurjón Ástmarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 447
Grímsey ST 2 að koma úr slipp á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason 2 426
Á þessari mynd sjást tvö farartæki sem voru vel þekkt á Skagaströnd í mörg ár og settu svip á bæinn. Annar vegar er Scania vörubíll Gunnars Helgasonar (d. 19.10.2007) númer H 34 en Gunnar átti marga vörubíla með þessu númeri. Hitt farartækið er gamla pósthjólið hans Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) en það sést til vinstri á myndinni með pósttöskunni í grindinni framan á hjólinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 477
Gunnar Jónsson vinnur við að taka upp bát sinn Funa HU 89. Bátinn gerði Gunnar út á færi á árunum 1992 - 1996.
Guðmundur Guðnason 2 402
Á þessari mynd er Þórhildur Guðjónsdóttir Ísberg að afhjúpa minnismerki um kvennaskólann á Ytri-Ey, sem hóf störf þar 1883 og var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga. Skólinn var reyndar stofnaður 1879 en var fyrstu árin á hrakhólum á nokkrum bæjum í sýslunni áður en hann fékk fastan samastað á Ytri Ey 1883. Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) fylgist með en maðurinn sem aðstoðar Þórhildi er óþekktur. Myndin var sennilega tekin 1983.
Jón Jónsson288
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, séra Oddur Einarsson og Róbert Þórðarson (d. 26.11.2011) útibússtjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 445
Auðbjörg HU 6 sjósett eftir skveringu í slippnum.
Skagaströnd - safn 322
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd er hreinsibandið fullt af skelfiski.
Skagaströnd - safn409
Þessi mynd var tekin vestan við verksmiðjuna 16. janúar 1995. Hún sýnir að gatan er á kafi í sjó sem gengur yfir sjóvörnina til vinstri á myndinni. Nú hefur sjóvörnin verið aukin til muna með grjótgarði þannig að ástand eins og myndin sýnir er óþekkt í dag.
Jón Jónsson328
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, spjalla hjónin Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir við Kjartan Örn Kjartansson frá Asiaco sem var umboðsaðili fyrir Japans togarana á sínum tíma. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1.
1

24
25
26

75
Leita í myndasafninu
Leita