Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 452
Það er alltaf fagnaðarefni þegar nýr bátur bætist í flota þeirra sem fyrir eru á litlum stöðum eins og Skagaströnd. Á þessari mynd er Ólafur Magnússon HU 54 að koma til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Báturinn var í eigu Jökuls hf sem er í eigur hjónanna Stefáns Jósefssonar og Sigríðar Gestsdóttur.
Skagaströnd - safn342
Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra í heimsókn á Skagaströnd ásamt embættismönnum 26.september 1991. Hægra megin við borðið sitja ráðamenn Höfðahrepps á þeim tíma. Innst er Steinunn Steinþórsdóttir, Sveinn S. Ingólfsson, Magnús B. Jónsson, Þorvaldur Skaftason og næst okkur er Adolf J. Berndsen.
Jón Jónsson328
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, spjalla hjónin Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir við Kjartan Örn Kjartansson frá Asiaco sem var umboðsaðili fyrir Japans togarana á sínum tíma. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 430
Guðbrandur Magnússon, til vinstri á myndinni, átti og gerði út bátinn Magnús HU 11 á handfæri. Stundum aflaðist svo vel að hann þurfti að setja fisk í plastpoka fram í stýrishúsið hjá sér. Hér er hann að landa eftir einn slíkan aflatúr. Hinn maðurinn á myndinni er Ágúst Ómarsson.
Sigurður Jónsson - safn 004
Sigurjón Lárusson (d. 30.11.2001) frá Tindum á kafi í bilaðri dráttarvél. Konan á myndinni er Eygló Lilja Hólm Stefánsdóttir.
Skagaströnd - safn353
Myndin var tekin í júlí 1992 af framkvæmdum við stækkun leikskólans Barnabóls. Eldri byggingin er til hægri en hún var byggð á vegum Lionklúbbs Skagastrandar og síðan afhent sveitarfélaginu til eignar og rekstar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 412
Smiðir dytta að þakinu á Steinholti eftir norðan áhlaup með miklum snjó. Höfðaberg, sem sést í baksýn, er löngu horfið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 462
Arnar Hu 1. Eitt af mörgum skipum sem borið hafa þetta nafn og númer í eigu Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 402
Sigurbjörg St 55 tekinn upp í slipp á Skagaströnd. Kári Lárusson er fremst til vinstri en aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 454
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal sem var heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) en fjölskylda hans bjó í dalnum á nokkrum bæum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Á myndinni er Guðmundur að teyma heim hesta með heybagga á klökkum. Á þennan hátt var heyið flutt heim að fjárhúsum af engjum sem gátu verið langt frá bænum. Oft voru þá krakkar og liðléttingar notaðir til að teyma hestana á milli.
Árni Geir Ingvarsson - safn 388
Arnarborg HU11 í slippnum á Skagaströnd. Þar var báturinn rifinn og endaði á áramótabrennunni 1993.
Skagaströnd - safn403
<p>Þegar þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1943 - 1946 var mikil uppbygging á Skagaströnd. Verksmiðjuskorsteinninn er risinn en ekki búið að fjarlægja vinnupallana kringum hann. Grindin í stóru mjölskemmunni er að rísa og byggingarefni liggur út um allt. Sundlaugin er í byggingu og niðri í horninu lengst til vinstri er búið að steypa undirstöðu fyrir olíutank sem þar reis síðar. Járnplötur sem voru efni í tankinn liggja við hlið sökkulsins. Fjósið sést norðan við kaupfélagið enda ekki búið að byggja Kaupfélagsskemmunna en sökklar hennar eru þó komnir. Ef grannt er skoðað má sjá á myndinni mörg hús sem nú eru horfin eða hafa vikið fyrir nýjum. Myndina tók Guðmundur Guðnason. </p>
Minjasafn 36
Gripur nr. 36. Mynd af síldarsöltun á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 397
Ingimundur Gamli Hu 65 var gerður út frá Hvammstanga á úthafsrækjuveiðar. Ingimundur sökk út af Húnaflóa í október árið 2000 og þá voru þrír menn í áhöfn. Einn þeirra, skipstjórinn, fórst með bátnum en hinir tveir komust í björgunarbát og var bjargað þaðan skömmu eftir að báturinn sökk. Hinn báturinn á myndinni er dráttarbáturinn Goðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn685
Síld landað úr Húna Hu 1, líklega 1958 eða 1959, í höfninni á Skagaströnd. Myndina, sem er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, tók Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu, Skagaströnd.
Skagaströnd - safn358
Þessi mynd var tekin af starfsstúlkum í Landsbankaútibúinu á Skagaströnd 8. apríl á óþekktu ári. Konurnar eru Elín Njálsdóttir til vinstri og Birna Sveinsdóttir til hægri.
Minjasafn735
Þrír ungir drengir á árabát vestan við uppfyllinguna frá Einbúanum út í Spákonufellsey. Í baksýn til hægri sér í talíu á þrífæti sem notuð var til að færa til grjót í uppfyllingunni undir bryggjuna. Myndin var sennilega tekina 1934 eða 1935 þegar hafnarframkvæmdir stóðu sem hæst. Drengirnir eru Theódór Ólafsson, Jörgen Berndsen og Steinþór Ólafsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 423
Reglulega þarf að dýpka höfnina á Skagaströnd vegna sandburðar inn í hana. Á þessari mynd er verið að draga fullan sandpramma út á rúmsjó til að hleypa úr honum sandinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn401
Höfðaskóli í byggingu, unnið að því að setja þak á húsið. Ekki er vitað hvenær Guðmundur Guðnason tók þessa mynd en skólinn var vígður haustið 1958 þannig að myndin hefur verið tekin einu - tveimur árum fyrr.
Skagaströnd - safn406
Viðbygging við leikskólann Barnaból formlega tekin í notkun í september 1994. Magnús B. Jónsson sveitarstjóri flytur tölu í tilefni dagsins. Frá vinstri á myndinni eru: Halla Lýðsdóttir en dóttir hennar Þórey Fjóla Aradóttir stendur við hlið hennar með blómaspöng í hárinu. Sonur Höllu, Guðjón Örn Arason, situr fyrir framan mömmu sína í skrautlegu vesti. Bára Þorvaldsdóttir þáverandi leikskólastjóri heldur um axlir Bergrósar Hafsteinsdóttur fyrir framan sig. Svandís Hannesdóttir er næst en framan við hana er Arnrún Finnsdóttir. Vilhelm Harðarson stendur í horninu og framan við hann er dóttir hans, Ástrós Vilhelmsdóttir og tvö óþekkt börn. Ragnar Ingvarsson er með son sinn Alexander Ragnarsson í fanginu og síðan koma Ingólfur Bjarnason og Magnús B. Jónsson. Jensína Lýðsdóttir er konan í rauðu blússunni og framan við hana er Patrik Bjarnason sonur hennar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn397
Akraborg EA 50 var síldarbátur sem oftkom með síld til Skagastrandar. Hér er hann í höfn með báta í gálgum á báðum síðum. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að vinna að viðgerð á krananum í baksýn. Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Minjasafn 138
<p>Gripur nr. 138. Sex brýni ýmsar gerðir, sum mikið notuð, einnig grjótbrýni. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994. </p><p><br></p><p><br></p>
Texti4_ljosm_GunnarAlbertsson
Hér er verið að byggja lýsistankana stóru sem stóðu við Höfðann. Leiðslur lágu frá verksmiðjunni að tönkunum og líka frá þeim fram á Hafnargarðinn (Útgarð) til að skipa lýsinu út. Myndin er tekin 1945 eða 1946.
Árni Geir Ingvarsson - safn 407
Þrátt fyrir grjótvörn vestan við gömlu síldaverksmiðjuna flæddi sjór inn á hafnarsvæðið í slæmum suð-vestan veðrum. Sjórinn safnaðist fyrir og var oft það djúpur að ekki dugði að fara þar um á stígvélum. Nú hefur grjótvörnin verið aukin og bætt þannig að þetta vandamál er úr sögunni að mestu.
Minjasafn795
Manni KE 99. Stærð 72 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í V- Þýskalandi. Vél MWM - Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn687
Starfsmenn á síldarplani á Skagaströnd líklega 1938. Fremri röð frá vinstri: Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Guðjón Einarsson (d.?) Harrastöðum, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) Höfðakoti, Björn Jónsson (d.?) Brúarlandi og Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) Réttarholti (seinna Flankastöðum). Aftari röð frá vinstri: Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Árnesi (seinna Sunnuhvoli), Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Brúarlandi (seinna Bjarmalandi), Hartmann Jóhannesson (d. ?) Garði, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) Vík, barn e.t.v. Ásta Kristjánsdóttir?, Kristján Ebenesarson (d. ?) verkstjóri, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) Lækjarbakka og Þormóður Óskarsson (d. ?). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar og var gefin þangað af Kristófer Árnasyni.
Minjasafn683
Þessi mynd var tekin af Pétri H.J.Jakobssyni af síldarlöndun á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gáfu hjónin Jónas Tryggvason og Þorbjörg Bergþórsdóttir á Blönduósi.
Höfðaskóli016
Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 1991 - 1992. Nöfn fólksins eru í myndinni. Á þessum tíma var Ingibergur Guðmundsson skólastjóri og Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri.
Minjasafn 152
Gripur nr. 152. Hárklippur tvö stykki járnlitaðar. Jón Sumarliðason , eiginmaður gefanda, notaði klippurnar en hann gerði mikið af því að klippa menn. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn750
Síldarsöltun á planinu á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum kringum 1960 og sýnir vel hvernig starfsaðstaðan var. Saltað var úti undir berum himni hvernig sem viðraði ef ræst var út í síld. Eins og sjá má á myndinni vann fjöldi manns á planinu en "söltunarstúlkurnar" - sem stundum voru karlkyns - unnu í akkorði við söltunina og fóru laun þeirra eftir því hve margar tunnur þær söltuðu yfir daginn. Karlarnir á planinu þjónustuðu þær með síld, salt, tómar tunnur og fjarlægðu fullar tunnur frá þeim. Á planinu var líf, fjör og hávaði og margir minnast þessa tíma með gleði. Eins og kemur fram í textanum á myndinni er maðurinn með fötuna fyrir miðri mynd næst okkur, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Minjasafn686
Síldarsöltun á bryggjunni á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndina tók Pétur H.J. Jakobsson en hún er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, gefin af hjónunum Jónasi Tryggvasyni og Þorbjörgu Bergþórsdóttur á Blönduósi.
Skagaströnd - safn346
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á þessari mynd má sjá, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Adolf J. Berndsen, Þorvaldur Skaftason, Rolf Árnason (d. 3.6.2014), Vilhelm Jónsson, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Magnús B. Jónsson og starfsmaður Siglingamálastofnunar.
Scan10091
<p>Vilhelm Harðarson við nýjan bíl Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar 1994. Með honum á myndinni er fósturdóttir hans Kristín Jóna Sigurðardóttir.</p>
Jón Jónsson332
Gangarnir um borð í Örvari Hu 21 eru þröngir en vel lýstir. Á þessari mynd eru, í einum ganginum, talið frá vinstri: Sveinn Ingólfsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) í Sólheimum og Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) frá Garði.
Skagaströnd - safn351
Þessi mynd var tekin snemma árs 1992 af Sægarði sem þá var í smíðum. Eins og sjá má er verið að byggja spennihúsið og eftir er að leggja þekjuna á garðinn ásamt því að hengja dekk á bryggjuna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 432
Nýsmíði sjósett frá Mánavör hf. Liklega er hér um að ræða Mímir RE 3 sem smíðaður var fyrir ríkissjóð 1985 sem rannsóknar- og skólaskip. Mími hvolfdi í Hornarfjarðarósi í október 1991 og með honum fórust tveir menn en fimm fimmtán ára skólapiltum tókst að bjarga sér í land á sundi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 464
Tveir af frystitogurum Skagstrendings hf. Arnar Hu 1 er nær bryggjunni en Örvar HU 21 er utan á honum.
Guðmundur Guðnason 2 493
Hér er verið að gera við heyvagn á Hvammi í Hjaltadal. Maðurinn í miðjunni er Sigurður Jónsson frá Fjallsminni og sá í rauðu peysunni er Einar ? sem eitt sinn átti heima í Sólvangi á Skagaströnd. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Óþekktur ljósmyndari367
Þessa mynd af heyskap tók Evald Hemmert einhverntíma í kringum 1910. Myndin, sem hefur verið handmáluð, sýnir byggðina fyrir víkina og á Hólanesinu. Ef grannt er skoðaða má sjá mann á hesti með annan í taumi ríða fyrir víkina, líklega að koma úr verslunarferð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 437
Ólafur Guðmundsson - Óli skip - býr sig undir að saga sundur bát, sem á að eyða, með keðjusög. Kári Lárusson fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 384
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Hafrúnu Hu 12 en á henni er hún á leið úr höfn í Keflavík eftir að hafa farið þar inn í skjól undan vondu veðri. Myndin var þó tekin fyrir febrúar 1995 því þá sökk Hafrún í höfninni á Skagaströnd og var svo endurbyggð og breytt í það horf sem hún er í dag.
Skagaströnd - safn350
Þetta hús og umhverfi þess hefur tekið stakkaskiptum frá því að þessi mynd var tekin í febrúar 1992, ekki bara í útliti heldur líka hvað starfsemina varðar sem fram fer í húsinu. Áður var í húsinu frystihús Hólanes hf seinna rækjuvinnsla, saltfiskvinnsla og harðfiskframleiðsla. Þá stóð húsið autt í nokkur ár þar til Listamiðstöðin Nes hóf sína starfsemi í húsinu eftir nokkra yfirhalningu á því.
Skagaströnd - safn420
Sandur safnast gjarnan á og kringum teinana í dráttarbrautinni. Sandinn þarf að fjarlægja því annars er hætta á því að sleðinn, sem bátarnir er dregnir upp í, fari út af teinunum og þá er ekki hægt að ná viðkomandi bát upp. Á myndinni er verið að moka ofan af teinunum á há-fjöru eins langt fram og grafan nær.
Guðmundur Guðnason 2 473
Fólkið á myndinni er óþekkt og líka hvaða rétt þetta er. Ef þú þekkir einhvern eða veist hvaða rétt þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn416
Í áratugi var litla sundlaugin á Skagaströnd bara opin á sumrin en með tilkomu hitaveitunnar er hún nú opin allt árið. Hún var venjulega opnuð í byrjun maí því þá var skólasund í 2-3 vikur. Þessi mynd var tekin í byrjun maí 1995 en þá var sundlaugin mikið meira en full af snjó. Gripið var til þess ráðs að moka snjónum úr lauginni með gröfu og handskóflum en allra síðasti snjórinn var bræddur með því að úða vatni yfir hann. Sundkennslan hófst örlítið síðar en ætlað var en nemendur Höfðaskóla fengu sína sundkennslu þetta vorið eins og áður.
Skagaströnd - safn354
Neyslusamfélaginu fylgir mikið af rusli. Á þessari mynd frá 1991 er verið að pressa járnarusl á brotajárnshaugunum við rætur Spákonufells. Þetta var gert með reglulegu millibili þegar haugurinn var farinn að verða of umfangsmikill. Pressað járnið var síðan sett í skip og flutt út í endurvinnslu. Mennirnir á myndinni eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Rúnar Jóhannsson þáverandi starfsmaður Höfðahrepps að fylgjast með framkvæmdunum. Maðurinn á krananum er óþekktur.
Sigurður Jónsson - safn 002
Halda mætti að Jens Jónsson frá Brandaskarði, sem krýpur við dráttarvélina, sé að tilbiðja hana. Svo er þó ekki heldur er hann að gera við vélina með hjálp Sigurðar Jónssonar, sem tók þessa mynd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn090
Þessir tveir menn störfuðu lengi hjá síldarverksmiðju ríkisins á Skagaströnd. Þeir eru Jón Kristinsson (d. ?) til vinstri og Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) til hægri. Á myndinni standa þeir utan við verksmiðjuna á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn345
Áður en farið var í smíði nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn 1991 var gert líkan af höfninni hjá Siglingamálastofnun í Kópavogi. Líkanið var gert til að hægt væri að gera ýmsar mælingar til að átta sig á hvaða útfærsla gæfi bestan árangur hvað kyrrð og öryggi innan hafnarinnar varðar. Þessi mynd var tekin 25. mars 1991 þegar hópur fólks frá Skagaströnd fór til að skoða líkanið undir leiðsögn starfsmanna Siglingamálastofnunar. Á myndinni sést aftan á Ólaf Bernódusson til vinstri, Jón Ólaf Ívarsson (d. 29.12.2013) og þorvald Skaftason þar sem þeir hlíða á starfsmann Siglingamálastofnunar.
Skagaströnd - safn400
Hólabraut 14 í byggingu ekki er vitað hvenær myndin var tekin en húsið á bakvið er Vinaminni (Hólabraut 16). Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn398
Lagt af stað á miðin úr Skagastrandarhöfn með nótabátin aftaní. Báturinn er ÍS 106 en nafnið er óþekkt. Greinilega er ekki gert ráð fyrir löngu stími því að um borð í nótabátnum er maður. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Minjasafn792
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi um þetta skip: <em>"<strong>Höfðaborg Hu 10</strong>. Togarinn var smíðaður úr stáli í Selby á Englandi árið 1916 og keyptur til Íslands 1919. Hann var 337 brl. með 600 ha. 3ja þjöppu gufuvél og var fyrsti togarinn sem Skagstrendingar eignuðust. Skipið hét <strong>Belgaum RE 153</strong> þegar það var keypt til Skagastrandar í nóvember 1951 og gert út til 1954 af Höfðaborg h/f. Eigendur þess voru Höfðahreppur og allmargir íbúar í kauptúninu. Þetta reyndust fremur slæm kaup því skipið var lélegt og t.d. urðu menn að strengja segldúksbleðla yfir efstu kojurnar til að beina dekklekanum fram á gólfið. Síðasta sumarið sem togarinn var gerður út fór hann á síldveiðar en árangur varð ekki mikill. Togarinn var seldur í niðurrif til útlanda og tekinn af skrá í maímánuði 1955."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júlí 1996.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn012
Þessi mynd frá 1977 sýnir vel hvernig skíðaaðstaðan í Spákonufellinu var á þessum árum. Dráttarvél var notuð til að snúa spili með kaðli sem fór svo í gegnum blökk uppi á toppi brekkunnar. Fólk hékk síðan í kaðlinum á leið upp brekkuna. Bannað var að vera með trefil um hálsinn því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni upp og gat gripið í trefilinn og þannig hert að hálsi viðkomandi. Nokkrum árum eftir að þessi mynd var tekin var svo keypt toglyfta og sett í brekkuna norðan við þá sem lyftan á myndinni er í. Enn síðar var svo byggður skíðaskáli á svæðinu, sem enn stendur. Eins og sjá má á myndinni vantaði ekki áhugasamt skíðafólk til að nýta sér þessa frumstæðu aðstöðu á góðum dögum.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn029
Myndin sýnir fólk við réttastörf í Spákonufellsrétt 1965. Á þessum tíma var mikið um sauðfé á Skagaströnd líklega 2-3000 kindur sem settar voru á á hverjum vetri.
Minjasafn692
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd 1959 eða 1960. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Minjasafn694
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) í Höfðatúni á Skagaströnd við bátinn sinn í fjörunni austan við hafnarvogina. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992.
Minjasafn790
Helga Björg Hu 7 var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar (d. 29.12.2013), Hallgríms Kristmundssonar (d. 9.10.1998) og Gylfa Sigurðssonar sem gerðu bátinn út frá Skagaströnd í mörg ár. Helga Björg liggur utan á Húna II sem var seinna gerður upp og á nú heimahöfn á Akureyri og er þar m.a. notaður til að fara ferðir um Eyjafjörð með Ferðamenn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir Hólabraut 22, Skagaströnd í ágúst 1995.
Skagaströnd - safn395
Síld landað úr Húna Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en líklega er það Björn Haraldsson - Bangsi (d. 21.9.1988), sem stendur í dökkri skyrtu og horfir fram eftir bátnum. Eins og sjá má þurftu sjómennirnir að moka síldinni með sérstökum netháfum upp í tunnur. Þær voru svo hífðar í land og tæmdar á bílpall eða í handkerrur, sem síðan var ekið til söltunarstúlknanna, sem biðu þess albúnar að breyta silfri hafsins í söltuð verðmæti í tunnum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 045
Ernst Berndsen yfirvélstjóri við vinnu sína í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf, sennilega Örvars Hu 21.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 016
Ernst Berndsen vinnur við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar ásamt fleirum. Maðurinn í baksýn er líklega Kári Lárusson.
1
…
25
26
27
…
75
Leita í myndasafninu
Leita