Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 587
Hákarl dreginn á land í krikanum sem áður var sunnan við hafnarvogina.
Minjasafn797
Reynir BA 66. Stærð 53 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1946 í Svíþjóð. Vél Hundsted 150 hestöfl. Heimahöfn Bíldudalur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 088
Ungu drengirnir á þessari snjáðu mynd voru skólabræður í Höfðaskóla á yngri árum en störfuðu síðan báðir um tíma hjá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Bergþór Gunnarsson er til vinstri og Valdimar Viggósson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 497
Þorvaldur Skaftason til vinstri og Fritz Hendrik Berndsen til hægri við vinnu á vinnupalli við stjórnsýsluhúsið á kuldalegum degi.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 040
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) við vinnu á dekkinu á Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 011
Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri við vinnu sína við vélaviðgerð um borð í einum af togurum Skgastrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 048
Jón Indriðason vélstjóri til vinstri og Gísli Snorrason frá Vélaverkstæðinu vinna við vél í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn802
Viðey RE 12. Stærð 231 rúmlest brúttó. Smíðaár 1964 í Noregi. Vél Lister - Diesel 660 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn684
Síldarsöltun 1958 eða 1959 á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd
Árni Geir Ingvarsson - safn 492
Suð-vestan átt er stundum erfið í höfninni á Skagaströnd. Þá getur ókyrrð orðið allmikil á sumum stöðum innan hennar þó aðrir séu í nokkuð góðu skjóli eins og t.d. Arnar Hu 1 á þessari mynd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 012
Rafvirkinn Hjalti Reynisson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn764
M/b Svanur Hu 7 frá Akureyri 1930 11 tonn að stærð. Eigendur voru Gunnlaugur Árnason, Jakob Bjarnason og fleiri frá Hvamstanga. Síðar Júlíus og Baldur Árnasynir á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.Gefandi: Gunnlaugur Árnason Karlsskála í september 1996
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 077
Samstarfsmenn á Vélaverkstæði Karls Berndsen bregða á leik. Frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson, Vilhelm Björn Harðarson, Jóhannes Sveinsson og Gísli Snorrason.
Minjasafn756
Skröyfa var líklega norskt síldarskip þar sem saltað var um borð. Myndin er sennilega frá því um aldamótin 1900 og kemur úr búi Carls Berndsen frá Karlsskála á Skagaströnd. Áhafnarmeðlimirnir eru óþekktir enda sennilega allir norskir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. maí 1996.
Minjasafn739
Sigurfari Hu 32 að koma úr róðri. Um Sigurfara segir svo í bókinni <em>"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010"</em> eftir Lárus Ægi Guðmundsson<em>:" Sigurfari Hu 32. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, 3,5 brl. með 6 ha. Bolinder vél. Þetta var gullfallegur hringlotaður bátur. Hann var hvítmálaður með bikaðan botn og breiðan rauðan fleyg sem náði aftur á bóga en svona skraut var ekki algengt. Eigendur hans voru Snorri Gíslason, Guðjón Einarsson og Hrólfur Jakobsson sem var formaður. Þeir félagar eignuðust bátinn 1935 en seldu hann til Drangsness 1943".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 004
Ernst Berndsen yfirvélstjóri á kunnuglegum slóðum í stjórnherberginu í vélarrúmi Arnars Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 085
Karl Berndsen (d. verkstæðisformaður á Vélaverkstæði Karls Berndsen á verkstæðisbílnum. Karl gerði ýmsar tilraunir með eldsneyti á bílinn lét hann t.d. ganga á lýsi um tíma auk þess að blanda úrgangsolíu saman við hráolíuna en alltaf gekk bíllinn hjá Kalla.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 090
Oft hefur verið mikið um að vera í dráttarbrautinni. Bátar af öllum stærðum og gerðum koma þar og fara. Sumir þeirra enda þar ævi sína eins og raunin varð með Auðbjörgu Hu 6, sem er á myndinni og Hinrik? sem er húslaus lengst til vinstri. verið er að hífa Beggu GK 717 upp á pallinn á kranabílnum sem síðan flutti hana burt. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 502
Haukur Böðvarðsson ÍS 847 dreginn upp í dráttarbrautina á Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 024
Hér eru þeir Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014 ) háseti til vinstri og Gunnar Reynisson kokkur í góðum gír í eldhúsinu um borð í annað hvort Arnari Hu 1 eða Örvari Hu 21.
Árni Geir Ingvarsson - safn 532
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) við vinnu í bílakirkjugarðinum sem var við rætur Spákonufells um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 549
Trollið komið inn á dekk í Örvari Hu 21 fullt af fiski. Skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, stendur fyrir aftan kranann og virðir fyrir sér aflann. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 554
Ragnar Ingvarsson býr sig undir að sleppa að framan um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 059
Jón Indriðason vélstjóri nýtur hér aðstoðar Friðvins Inga Ernstsonar við vinnu sína.
Árni Geir Ingvarsson - safn 585
Þessi mynd af Skagaströnd sýnir vel framkvæmdir við byggingu raðhúsanna við Mánabraut 1 - 11 á sínum tíma. Á myndinni má líka sjá nokkur hús sem nú eru horfin t.d. Héðinshöfða, niðri í horninu hægra megin, Efri-Læk, sem ber yfir suðurenda plötunnar að Mánabraut 7, og Efri-Jaðar, sem ber yfir vinkilbygginguna til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 520
Arnarborg Hu 11 á rækjuveiðum í blíðskapar veðri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 530
Karlinn brosir í brúnni enda úrgreiðsluborðið fullt af fiski eins og hann vill hafa það. Myndin var tekin um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 á netavertíð. Karlarnir eru, frá vinstri: Kristján Karlsson á rúllunni, Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðamaður í brúnni, Ragnar Ingvarsson og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) við úrgreiðsluborðið. Maðurinn bak við Ragnar er Kristinn Thor Sigurðsson. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson sem var kokkur á Ólafi á þessum tíma.
Minjasafn690
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 í Skagastrandarhöfn 1959 eða 1960. Síldinni mokað með sérsmíðuðum háfum í "veltitunnnur" sem síðan eu hífðar í land, tæmdar þar og hífðar svo um borð aftur. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, Gunnlaugur Árnason, Björn Haraldsson (d.21.9.1988) , Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000)(í köflóttri skyrtu). Bak við Sigmar er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og lengst til hægri er Gunnar Sveinsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 088
Smiðirnir Einar Haukur Arason til vinstri og Axel Jóhann Hallgrímsson til hægri vinna við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar - eldri hluta.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 006
Ari Þórsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri frá Vélaverkstæði Skagastrandar í viðhaldsvinna í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 070
Þessi mynd var tekin í skíðaskálanum á Skagaströnd þegar starfsmenn Vélaverkstæðisins og rafmagnsverkstæðisins Neistans gerðu sér glaðan dag með mökum sínum og grilluðu saman við skálann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson Vélaverkstæðinu, Hjalti Reynisson Neistanum, Guðlaug Grétarsdóttir, Óli Axel Óskarsson Vélaverkstæðinu, Jón Ólafur Sigurjónsson Vélaverkstæðinu, Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Björnsson Neistanum, Lilja Ingólfsdóttir og Ernst Berndsen Vélaverkstæðinu. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Skúladóttir, Gísli Snorrason Vélaverkstæðinu, Þórunn Óladóttir, Steinunn Berndsen Vélaverkstæðinu, Þórey Jónsdóttir, Björn Hallbjörnsson Neistanum og Ari Þórsson Vélaverkstæðinu.
Höfðaskóli - safn 229
Guðbjörg Ólafsdóttir, heimilisfræðikennari við Höfðaskóla í nokkur ár, í vinnunni í eldhúsi Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Minjasafn755
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. "Siggi í Siggabúð", eins og hann var oft kallaður, stundaði m.a. útflutning á ull og gærum um tíma meðfram dagvöruverslun sinni. Verslunin Borg var einnig heimili Sigurðar og konu hans Margrétar Konráðsdóttur (d. 17.9.1974) en verslunin var í litlu húsi sem stóð norðan við mjölskemmuna. Seinna var svo rekið rafmagnsverkstæði í húsinu, sem nú hefur verið rifið. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 035
Gestur Arnarson slakar á yfir kaffibolla í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 517
Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður á kunnuglegum slóðum í brúnni á Ólafi Magnússyni Hu 54.
Árni Geir Ingvarsson - safn 557
Ólafur Bernódusson dregur hér grásleppunet á bát sínum, Balda, á veiðsvæði sunnan við Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 039
Kátir karlar í netavinnu á dekkinu á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Gestur Arnarson, Sævar Hjaltason, Vilhjálmur Jónsson og Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004).
Óþekktur ljósmyndari371
Þessi útstillingar - kassi/skápur var á stafni bragga sem stóð norðan við götuna beint á móti mjölskemmunni. Eigandi kassans/skápsins var Skagastrandarbíó sem notaði hann til að auglýsa kvikmyndasýningar sínar, sem voru, þegar best lét, þrisvar í viku. Að þessu sinni er auglýst "Heimsfræg stórmynd gerð eftir samnefndri metsölubók, sýnd kl 9 í kvöld, sunnudag". Myndin sem um ræðir hét: The Carpetbaggers samkvæmt auglýsingunni. Samkvæmt bókinni "Byggðin undir Borginni" var Skagastrandarbíó stofnað 1958 að frumkvæði Hallbjörns Hjartarsonar, sem var sýningarmaður bíósins, og fleiri. Sýningar voru í Tunnunni, sem þá þjónaði sem samkomuhús bæjarbúa. Snemma á áttunda áratugnum voru sýningarnar færðar í Fellsborg en þá var farið að draga verulega úr aðsókn, einkum vegna samkeppni við sjónvarpið. Skagastrandarbíó seldi síðan Höfðahreppi sýningarvélar sínar 1979 og hætti starfsemi. Félagsheimilið hélt uppi merkinu í nokkur ár en starfsemin fjaraði út hægt og hægt á nokkrum árum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 050
Ungur nemur gamall temur. Friðvin Ingi Ernstson hjálpar Ara Þórssyni við vinnu í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 575
Þessi appelsínuguli skúr var byggður sem verkfæra - verkstæðis- og kaffiskúr þegar Skagastrandarhöfn var í byggingu. Skúrinn var notaður í áratugi- mis mikið eftir því hve miklar framkvæmdir voru í gangi á hverjum tíma. Lengi vel var hann svartur á litinn og var þá alltaf kallaður: "Svarti skúrinn" manna á milli. Hann var staðsettur á a.m.k. þremur stöðum við höfnina en endaði svo æfi sína á þessum stað og var undir það síðasta notaður sem geymsluskúr fyrir útgerðardót.
Minjasafn798
Jón á Stapa SH 215. Stærð 121 rúmlest brúttó. Smíðaár 1961 í Svíþjóð. Vél June - Munkt. 425 hestöfl. Heimahöfn Ólafsvík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn799
Geir RE 406. Stærð 73 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í A- Þýskalandi. Vél MAK - Diesel 240 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 087
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) starfsmaður á Vélaverkstæði Karls Berndsen við veisluborð á Strandgötu 10 sem var heimili eiganda verkstæðisins, Karls Berndsen (d. 12.2.1995).
Minjasafn715
Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka með lambhrút í bandi eftir mikinn eltingaleik við hrútinn, sem ekki var sammála Jóhanni hvað varðar frelsi og útigang. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 078
Þó þessi mynd sé snjáð og illa farin má þekkja á henni samstarfsmenn á Vélaverkstæði Karls og Þórarins. Frá vinstri: Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985), sonur hans, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) og Viggó Brynjólfsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 582
Á myndinni eru leifar af hafnarmannvirki sem var reist á Hólanesinu 1938 eða þar um bil. Þessi varnargarður, sem nú er að mestu horfinn, skýldi litlum bryggjustúf sem átti að þjóna frystihúsi Hólaness hf sem reist var 1944 ofan við bryggjuna. Í því húsnæði er nú Listamiðstöðin Nes.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 044
Björn Sigmundsson vélstjóri við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn787
Auðbjörg Hu 6. Báturinn var smíðaður í Stykkishólmi 1973 fyrir Auðbjörgu hf en eigendur félagsins voru Árna Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson í október 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 507
Ekki er alltaf sól og blíða á Skagaströnd. Þrátt fyrir leiðinda veður halda hjól atvinnulífsins áfram að snúast eins og sést á þessari mynd þar sem Helga Björg Hu 7 er tekin upp í dráttarbrautina í skafrenningi og kulda.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 017
Axel Jóhann Hallgrímsson vinnur við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 083
Þrír karlar frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu um borð í Örvari Hu 21, 7. júlí 1994. Frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006), Gísli Snorrason og Björn Viðar Hannesson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 581
Njörður Nk 25/Eygló NK 28 var gerður út til hrefnuveiða frá Skagaströnd í nokkur sumur. Njörður/Eygló var með sérkennilega yfirbyggingu eins og sjá má á myndinni. Samkvæmt heimildum frá Gunnari Þorsteinssyni á Neskaupstað var báturinn í eigu Gunnars Vilmundarsonar (1931 - 1992) frá Neskaupstað og upphaflega mun Njörður/Eygló hafa verið tollbátur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 533
Maðurinn til vinstri er Guðmundur Karlsson (d. 28.7.2001), sem ólst upp á Árbakka og var lengi skipstjóri í Grindavík. Hér spáir hann í spilin með Stefáni Jósefssyni skipstjóra og útgerðarmanni á Skagaströnd, sem er til hægri.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 071
Þessi mynd var tekin fyrir neðan Ketilhús SR á Skagaströnd af Karli Berndsen (d. 12.2.1995) til vinstri og Valdimar Núma Guðmundssyni (d. 14.3.1972) til hægri hjá Scania flutningabíl sem Númi átti. Númi stundaði vöru- og fólksflutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar í allmörg ár m.a. á bílnum á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 547
Ragnar Ingvarsson við vinnu sína um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Árni Geir Ingvarsson - safn 522
Hér sýnir Landhelgisgæslan þyrlubjörgun úr sjó á TF - SIF á sjómannadegi í höfninni á Skagaströnd. Sigmaðurinn hefur farið niður og er með mann í flot- björgunarbúningi í fanginu á leið upp í þyrluna. Maðurinn sem er á leið upp í þyrluna er Axel Jóhann Hallgrímsson en sá sem glittir í í sjónum fyrir neðan er Sigurbjörn Björgvinsson, sem bíður eftir að röðin komi að honum. Á myndinni virðast tveir menn vera í sjónum en í raun eru það höfuð og tær Sigurbjarnar sem sjást.
Árni Geir Ingvarsson - safn 567
<p>Auðbjörg Hu 6 var gerð út frá Skagaströnd frá árinu 1977 þar til henni var komið fyrir á hliðargarði í dráttarbrautinni 1998. Þar stóð hún svo ósköp umkomulaus í ein 11 ár til ársins 2009 þegar hún var rifin og fjarlægð. </p><p><br></p>
Höfðaskóli - safn 248
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla vorið 1986. Frá vinstri: Björk Axelsdóttir, Ólafur Bernódusson og Jón S. Pálsson skólastjóri.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 013
Óli Hjörvar Kristmundsson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 079
Á þessari gömlu mynd eru starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen við vinnu utan við verkstæðið. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Viggó Brynjólfsson og Hjörtur Guðbjartsson.
1
…
27
28
29
…
75
Leita í myndasafninu
Leita