Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 046

Á þessari mynd er verið að "taka það" þ.e. draga trollið inn, að þessu sinni með góðum kolmunnaafla. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1. Maðurinn lengst til hægri er Óskar Þór Kristinsson en hinir karlarnir á myndinni eru óþekktir. Pokinn á trollinu var leystur frá og Börkur NK tók pokann og dældi úr honum. Síðan var pokanum skilað og trollið gert klárt á ný. Í þessum túr bilaði bakborðs togvindan og
farið var í að skipta um togvindur. (Heimild: Guðmundur Henry Stefánsson)

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 007

Óli Axel Óskarsson við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 026

Slakað á í borðsalnum á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Guðjón Guðjónsson, óþekktur og Níels Grímsson.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 076
Þessir menn unnu saman á Vélaverkstæði Karls og Þórarins, sem var rekið í mörg ár í gömlum bragga sem stóð austan við Lækjarbakka við Strandgötu. Mennirnir eru frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Árni Max Haraldsson (d.6.12.1976), Gunnar Albertsson og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985).
Árni Geir Ingvarsson - safn 560

Hólaneskirkja nýrri í byggingu á hlaðinu á Hólaneskirkju eldri.

Höfðaskóli - safn 124
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Frá vinstri: Ásþór Óðinn Egilsson, Almar Fannarsson og óþekktur.
Höfðaskóli - safn 123
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Nemendurnir eru frá vinstri: Aris Eva Vilhelmsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Maríanna Ástmarsdóttir, Brynja Ágústsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 091
Bogga í Vík HU 6 í eigu Árna Guðbjartssonar og gerð út af honum. Myndin var sennilega tekin einhversstaðar í Snæfellsbæ.
Árni Geir Ingvarsson - safn 521

Fólk skoðar björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar - líklega á sjómannadegi - við höfnina á Skagaströnd. Lögreglumaðurinn til vinstri er Þór Gunnlaugsson og maðurinn með yfirvaraskeggið er Haraldur Árnason. Aðrir á myndinni er óþekktir.

Árni Geir Ingvarsson - safn 503
Nýsmíði inni á gólfi í skipasmíðastöðinni Mánavör hf. Ekki er vitað hvaða nafn þessi bátur fékk né hvert hann fór. Ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 518
Orka Ís 119 á fullu ferðinni úti á rúmsjó. Maðurinn um borð er óþekktur.
Minjasafn759
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: "Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir". Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Sveinn Hjartarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 512
Þorvaldur Skaftason aðstoðar Sigurbjörn Björgvinsson við að klæðast flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 049
Ernst Berndsen yfirvélstjóri vinnur við aðalvélina í einum af togurum Skagstrendings hf.
Óþekktur ljósmyndari374
Guðmundur Þór Hu 17 nýbyggður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd í reynslusiglingu. Fólkið um borð er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 595
Þessi mynd af Skagatrönd hefur líklega verið tekin kringum 1965. Takið eftir að verið er að byggja ker í slippnum fram af Bjarmanesi og viðbygging við skólann er ekki komin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 555
Mikil ókyrrð var við Skúffugaðinn áður en grjótgarður var gerður þvert á hann, fremst, til að mynda skjól. Síðan kom trébryggja, Smágarður, ofar út frá Skúffufgarðinum þannig að í dag er ákjósanlegt bátalægi við Skúffugarðinn í hvernig veðrum sem er. Á þessari mynd má sjá að bátarnir dönsuðu í landfestunum í sunnan kælunni.
Höfðaskóli - safn 127
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Á myndinni stilla 6 - 7 ára börn sér upp með kennara sínum Báru Þorvaldsdóttur. Fremsta röð frá vinstri: tveir óþekktir, Helga Dögg Jónsdóttir, óþekkt, ?Steinar Ólafsson? og Bára kennari. Önnur röð frá vinstri: tveir óþekktir, Ómar Ísak Hjartarson og Katrín Guðmundsdóttir. Þriðja röð frá vinstri: Alma Eik Sævarsdóttir, Brynja Ágústsdóttir, óþekkt og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir. Efst tróna svo tveir óþekktir nemendur. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 551
Stefán Jósefsson til vinstri og Ragnar Ingvarsson til hægri sansa veiðarfæri um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 í ljósaskiptunum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 075
Myndin var tekin í kaffi á Strandgötu 10, heimili Karls Berndsen, á óþekktum tíma. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Hörður Ragnarsson og Jóhann Björn Þórarinsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 029
Sævar Hjaltason glaðbeittur við vinnu sína um borð í Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 550

Líklega eru þessir þrír sjómenn á frívakt. Myndin var sennilega tekin uppi á brúarþakinu á Örvari Hu 21 í blíðskapar veðri innan um íshrafl. Mennirnir eru frá vinstri: Friðrik J. Arngrímsson fv. framkvæmdastjóri LÍÚ, Böðvar Björnsson frá Löngumýri og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Minjasafn794
Eyjaberg VE 130. Stærð 94 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1959 í A- Þýskalandi. Vél MWM Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Vestmannaeyjar. Strandaði og sökk 1965. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn788
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi á Skagaströnd sker hákarl til að setja hann síðan í kösina til kæsingar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 052

Þessi mynd var tekin í spilhúsinu í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Líklega er verið að draga upp bát eða slaka honum á flot. Mennirnir á myndinni eru Karl Berndsen (d.12.2.1995) frá Vélaverkstæðinu, til vinstri, og Ástmar Kári Ástmarsson frá Mánavör hf sem rak dráttarbrautina um árabil.

Árni Geir Ingvarsson - safn 515
Arnarborg Hu 11 tekin upp í dráttarbrautina. Verið er að byggja hliðargarða til hægri í dráttarbrautinni en þangað var svo Arnarborgin færð og seinna rifin og brennd 1993. Í baksýn sjást grænmálaðir togarar Skagstrendings hf; frystitogarinn Örvar Hu 21 nær og Arnar Hu 1 fjær. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Höfðaskóli - safn 171
Unnur Kristjánsdóttir myndmenntakennari í Höfðaskóla um árabil.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 036
Guðjón Guðjónsson (Jonni Ebba) fær sér kaffisopa á vaktaskiptum í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 602
Þetta skilti, sem málað var af Sveinbirni Blöndal, prýddi kaffiskúrinn við Spákonufellsrétt. Fyrirmyndin á skiltinu var Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti.
Árni Geir Ingvarsson - safn 531
Vilhelm Þórarinsson við vinnu í bílakirkjugarðinum sem var við rætur Spákonufells um tíma.
Höfðaskóli - safn 170
Ólafur Bernódusson kennari við Höfðaskóla niðursokkin við að færa einkunnir nemenda inn á einkunnaspjöld þeirra. Myndin var líklega tekin vorið 1990.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 028
Stund milli stríða í borðsalnum í Arnari Hu 1. Frá vinstri: Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014).
Árni Geir Ingvarsson - safn 498
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin af heiðursmönnunum Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) frá Jaðri til vinstri og Skafta Fanndal Jónassyni (d. 2.9.2006) í Lundi við vinnu sína.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 081
Valdimar Viggósson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í togara.
Árni Geir Ingvarsson - safn 613
Kristinn Guðmundsson (d. 1.12.1986) í Bræðraborg í fjáragi við Spákonufellsrétt.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 069
Starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen 1985. Talið frá vinstri: Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson, Jóhannes Sveinsson, Gísli Snorrason, Sigurjón Ingólfsson og Bergþór Gunnarsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 031
Hafþór Gylfason til hægri og Kiddi "Gullrass" til vinstri í borðsalnum á Arnari Hu 1. Ef þú veist hið rétta nafn á Kidda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn691
Húni II Hu 2 frá Höfðakaupstað í óþekktri höfn 1963. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Lárusi Ægi Guðmundssyni á Skagaströnd 1995.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 015
Viðhaldsgengi á verkstæðinu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf. Frá vinstri: Björn Hallbjörnsson rafvirki frá Neistanum, Gísli Snorrason vélvirki frá Vélaverkstæði Skagastrandar, Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari frá Neistanum, Guðmundur Andersen vélstjóri, Óli Axel Óskarsson frá Vélaverkstæðinu og Hjalti Reynisson rafvirki frá Neistanum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 494
Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) leggur upp í sjóferð í suð-vestan roki. Arnar var ísfiskstogari og mikið happaskip með góða skipstjóra. Túrarnir voru mis langir, frá viku upp í hálfan mánuð.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 030
Brugðið á leik um borð í Arnari Hu 1. Gestur Arnarson hampar Sævari Hjaltasyni í fanginu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 043
Bjarni Ottósson frá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 558
Mörgum finnst gaman að eiga lítinn bát til að geta skroppið á sjó og dregið sér fisk í soðið. Á þessari mynd má sjá skektufjölda sem liggur innan við Smágarð út frá Skúffugarðinum. Þetta svæði hafnarinnar er oft nefnt "Hobbýkarla svæðið" vegna eðlis þeirrar útgerðar sem stunduð er á bátunum sem þar liggja. Myndin var tekin fyrir 1993 því þá smíðuðu hobbýkarlarnir flotbryggju og komu fyrir á svæðinu þar sem skekturnar liggja.
Árni Geir Ingvarsson - safn 579
Skíðaskálinn á Skagaströnd við rætur Spákonufells. Hvíti skúrinn á myndinni var lyftuskúr en hann fauk í ofviðri og splundraðist.
Fisk Seafood - safn 026
Endurbygging frystihúss Hólaness hf í fullum gangi árið 1985. Gamalt hús var rifið og nýtt byggt eins og sjá má á myndinni ásamt gagngerum endurbótum á vinnslusölum frystihússins. Verktaki við framkvæmdirnar var Eðvarð Hallgrímsson. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 584

Báturinn Sæborg Hu 177 leggur úr höfn á Skagaströnd í sléttum sjó. Sæborg var smíðuð í Vestur-Þýskalandi 1956 eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar og endurbyggður í Keflavík 1978 - 1979. Sæborgin fórst út af Rifi á Snæfellsnesi 8. mars 1989 og með honum einn maður. Maðurinn sem fylgist með á bryggjukantinum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) fyrrverandi sjómaður og áhugaljósmyndari.

Árni Geir Ingvarsson - safn 505
Kafarinn Kjartan? frá Ísafirði býr sig undir að kafa við rækjubát. Maðurinn sem snýr baki í okkur er Ólafur Ingibjörnsson sem var skipstjóri á bátnum (Hafbjörg Hu 100 ?).
Árni Geir Ingvarsson - safn 529
Árni Guðbjartsson um borð í Hafrúnu Hu 12 býður ljósmyndaranum í nefið. Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) bíður á bryggjunni eftir að röðin komi að honum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 010
Rafvirkameistarinn Hallbjörn Björnsson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.. Hallbjörn hefur að stórum hluta séð um viðhald sem snýr að rafmagni og raftækjum um borð í togurum félagsins frá upphafi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 559
Magnús B. Jónsson leggur flísar í forstofu á ókunnum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 525
Séra Oddur Einarsson blessar nýsmíðina Björg Hu 40 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 019
Ari Þórsson til vinstri og Indriði Hauksson til hægri vinna við að setja vél í bíl á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 062
Jóhannes Sveinsson til vinstri og Bergþór Gunnarsson til hægri við vinnu sína á Vélaverkstæði Karls Berndsen.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 082
Björn Viðar Hannesson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í Örvari Hu 21 í júlí 1994.
Óþekktur ljósmyndari376
Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) við vinnu sína sem lagermaður hjá skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf og seinna hjá Mánavör hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 038
Sævar Hjaltason ísar fisk í kassa á millidekkinu á Arnari Hu 1. Þegar myndin var tekin hefur fiskirí verið gott því almennt var ekki hafður fiskur á millidekkinu. E.t.v. var lestin orðin full ?
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 084
Gísli Snorrason við rennibekkinn um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 499
Stefán Þór Árnason í byggingarvinnu á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 566
Fjár- og hesthús við Skagaveg, nú löngu horfin. Húsin stóðu ca 50 metar norðan við Sólheima. Skepnuhúsin átti Ingvi Guðnason (d. 31.12.1991) á þeim tíma sem algengt var að menn á Skagaströnd ættu nokkrar kindur "til heimilisins" og jafnvel tvo þrjá hesta sér til yndisauka.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 001
Gísli Snorrason á kunnuglegum slóðum að sinna viðhaldi í vélarúmi á togara, sennilega Örvari HU 21.
1

28
29
30

75
Leita í myndasafninu
Leita