Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 109
Hafþór Freyr Sigmundsson kennari við vinnu sína í Höfðaskóla. Hafþór kenndi á Höfðaskóla í nokkur ár á tíunda áratugnum.
Fisk Seafood - safn 148
<p>Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, afhendir Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, hjónunum June og Dennis Lumbard, eigendum Norbrit, steinskjöld með ágrafinni mynd af Örvari Hu 21 með Spákonufellið í baksýn sem þakklætisvott fyrir löng og góð viðskipti. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum áhafnarmeðlimum Örvars persónulegan viðurkenningarskjöld fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin. </p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 580
Óþekktur bátur (Hu 20) í höfninni á Skagaströnd á friðsælum degi. Ef þú veist hvað báturinn heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 191
Skagstrendingur hf keypti gömlu síldarverksmiðjuna á sínum tíma og gerði vel við húsið. Jarðhæðinni var breytt í frystiklefa og geymslu, miðhæðin er geymsla - aðallega fyrir umbúðir - og efsta hæðin er lítið notuð geymsla. Húsið var klætt að utan með bárujárni eins og sjá má en löngu seinna voru svo þrærnar, sem ekki sjást á myndinni en voru sambyggðar til vinstri, rifnar.
Fisk Seafood - safn 039
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Á þessari mynd er fylgst vandlega með hvernig þetta virkar allt saman. Frá vinstri: Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002), Haraldur Árnason verkstjóri og Þorgeir Jónsson.
Fisk Seafood - safn 086
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Meðal gesta á árshátíðinni voru þessi systkin; Ómar Jakobsson og Drífa Kristjánsdóttir.
Fisk Seafood - safn 159
Bogabraut 9 eftir útlitsbreytingu og eftir að hafa verið járnklætt. Lengi var skrifstofa Skagstrendings hf á miðhæðinni og Hólaness hf á efstu hæðinni. Þá var um tíma bókhaldsskrifstofa í kjallaranum/jarðhæðinni.
María Magnúsdóttir - safn 018
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf - veislukaffi. Verkstjórarnir Grétar Haraldsson til vinstri og Kristófer Árnason til hægri fyllast valkvíða við veisluborðið. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 526
Nýsmíðin Björg Hu 40 sjósett í fyrsta sinn. Aftast ýtir Þórhildur Jakobsdóttir, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) er í munstraðri peysu, Ólafur Guðmundsson (d. 7.4.2015) í brúnum jakka og Herdís Jakobsdóttir stendur í stýrishúsdyrunum.
Fisk Seafood - safn 183
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Baldri Magnússyni en það hefur verið fyrir öld farsímanna því Baldur hefur fengið að skreppa í símann í verkstjórakompunni í Rækjuvinnslunni hf þar sem hann var við vinnu.
Höfðaskóli - safn 205
Myndin var tekin í vinnuviku í Höfðaskóla. Slíkar vikur voru haldnar annað hvert ár en þá var hefðbundin kennsla felld niður í viku og nemendur fengu ýmis konar önnur verkefni að fást við. M.a. var rekið skólaútvarp í einni slíkri viku og einnig var gefið út skólablað. Á þessari mynd eru nemendur á fundi, annað hvort í ritstjórn skólablaðsins eða skólaútvarpsins, með umsjónarkennara hópsins. Frá vinstri: Ægir Jónssson, Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Hugrún Pálsdóttir og Magnús B. Jónsson kennari. Myndin var tekin í skólanum einhverntíma kringum 1985.
Fisk Seafood - safn 040
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Hér vinna Jóhanna Sigurjónsdóttir til vinstri og Erna Högnadóttir til hægri við pökkun á roð- og beinlausum þorskflökum til útflutnings.
Fisk Seafood - safn 222
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Þessi mynd var tekin á skrifstofu eiganda fyrirtækisins, Denis Lumbards, þegar nokkrir starfsmenn Skagstrendings hf heimsóttu Norbrit í Grimsby. Frá vinstri: óþekktur, Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Denis Lumbard framkvæmdastjóri Norbrit Fish Sales Limited, Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri og Sævar R. Hallgrímsson bátsmaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1990.
Fisk Seafood - safn 131
Þessi mynd var tekin í Rækjuvinnslunni hf en ekki er vitað hvenær. Við bandið vinna, frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Ragnheiður Magnúsdóttir.
Fisk Seafood - safn 058
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd taka þátt í fjöldasöng, frá vinstri: Herborg Þorláksdóttir, Súsanna Þórhallsdóttir og Rut Jónasdóttir.
Óþekktur ljósmyndari 399
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að berjast við eldinn í baneitruðum reykmekki. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 179
Stefán Þór Árnason verkstjóri í Rækjuvinnslunni hf glaðbeittur í vinnunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 037
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. jánúar 1989. Þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) (nær), óþekktur og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 029
Guðmundur Kristinsson við vinnu í vélasalnum í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989.
Fisk Seafood - safn 083
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri í aftari röð: Guðrún Angantýsdóttir, Björn Ingi Óskarsson, óþekktur drengur, Hjalti Indriðason, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) með dóttur sína Sóley Elsu í fanginu, Kári Lárusson, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Vilhjálmur Skaftason, Guðrún Pálsdóttir, Óskar Þórðarson með barn, Rósa ? , Guðný Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson með dætrum sínum Erlu og Báru. Fremri röð frá vinstri: óþekkt barn og tvær óþekktar konur, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Berglind Karlsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Kristín Blöndal, Sólveig Eiðsdóttir, Ólafur Bernódusson, óþekkt barn, Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Soffía Lárusdóttir.
Fisk Seafood - safn 194
Arnar Ólafur Viggósson við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 220
Sigurður Bjarnason í vinnu við endurbætur í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004. Sigurður vann í áratugi í Rækjuvinnslunni allt þar til henni var lokað.
Fisk Seafood - safn 027
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu og mökum í "menningarferð" til Reykjavíkur í mars 1987. Á leiðinni var leiðinda veður og ófærð. Ein af rútunum þremur sem fluttu fólkið fór út af veginum og tafði það för meðan verið var að ná bílnum upp á veginn aftur. Enginn meiddist við óhappið og fljótlega var aftur farið að syngja og gleðjast í rútunni eftir að hún var komin af stað aftur. Þekkja má á myndinni til vinstri: Sigríður Gestsdóttir og Stefán Jósefsson, Guðrún Magnúsdóttir er í blárri úlpu og Erna Högnadóttir í rauðri úlpu með sígarettu í hendinni. Lengst til hægri er svo Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996).
Fisk Seafood - safn 160
Stjórnsýsluhúsið var tekið í notkun 1988, byggt af Hólanesi hf og Skagstrendingi hf. Bæði fyrirtækin voru með skrifstofur sínar á efstu hæðinni, hótel Dagsbrún var á miðhæðinni og Búnaðarbankinn og Höfðahreppur voru með afgreiðslur sínar og skrifstofur á jarðhæðinni. Hótel Dagsbrún var í eigu Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 599
Fé rekið til réttar í Spákonufellsrétt. Hér á árum áður, allt fram á níunda áratuginn, var fjáreign almenn á Skagaströnd og allt að 3000 fjár í Höfðahreppi. Í dag má telja kindurnar í sveitarfélaginu í tugum en ekki þúsundum eins og þá. Myndin var tekin áður en þjóðvegurinn var lagður út með Spákonufellinu þar sem hann er nú. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 006
Myndin var líklega tekin á Hótel Íslandi einhverntíma kringum 1990. Þá bauð Hólanes hf starfsfólki sínu í helgarferð til Reykjavíkur og til skemmtunar og hátíðakvöldverðar á Hótel Íslandi. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Egill Bjarki Gunnarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Erna Sigurbjörnsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Rósa Björg Högnadóttir, Halla Lýðsdóttir og Þorbjörg Eðvarðsdóttir. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Rögnvaldur Ottósson, Ingimar Oddsson, Guðmundur Óskarsson, Gylfi Sigurðsson, Helgi Þór Helgason og Guðbjörg Gylfadóttir.
Fisk Seafood - safn 187
Halldór Gunnar Ólafsson rekstrarstjóri Rækjuvinnslunnar hf við skrifborðið sitt í vinnunni. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
Fisk Seafood - safn 041
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Þessi mynd var tekin þennan dag þar sem þær vinna við snyrtingu á þorskflökum þær Sigríður Ásgeirsdóttir til vinstri og Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012)
Fisk Seafood - safn 128
Guðmunda Ólafsdóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 011
Örvar Hu 14 var annar báturinn sem Skagstrendingur hf eignaðist. Bátinn keypti félagið notaðan frá Noregi og kom hann til Skagastrandar 28. desember 1970. Hann var svo gerður út frá Skagaströnd fram í maí 1974 þegar hann var seldur til Patreksfjarðar. Örvar Hu 14 var annar af tveimur fyrstu bátunum á Íslandi sem var með allan afla sinn í fikikössum um borð.
Fisk Seafood - safn 062
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er dansað af hjartans list. Fremst á myndinni eru Haraldur Árnason og Hrafnhildur Jóhannsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 025
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á þessari mynd ávarpar Sigurjón Guðbjartsson, stjórnarformaður Hólaness hf á þessum tíma, starfsfólk og gesti.
Fisk Seafood - safn 088
Pétur Eggertsson við vinnu sína í Hólanesi hf. Pétur var vélstjóri hjá frystihúsinu í mörg ár.
María Magnúsdóttir - safn 019
Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Fisk Seafood - safn 001
Hér skoðar Magnús Sigurðsson, útgerðarstjóri hjá Skagstrendingi hf, vinnsluþilfarið á einhverjum óþekktum togara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 211
Hallbjörn Björnsson rafvirki við vinnu í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Fisk Seafood - safn 056
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd syngur föngulegur hópur fyrir gestina. Frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Herborg Þorláksdóttir og Hans Birgir Högnason.
Fisk Seafood - safn 051
Tertukaffi í kaffistofu Hólaness hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefni veislunnar var. Á henni er hluti starfsfólk Hólaness hf ásamt fólki úr stjórn félagsins. Konan í gulu peysunni fyrir endanum er óþekkt en við hlið hennar sitja Guðmundur Ólafsson og Guðrún Magnúsdóttir. Vinstra megin við langborðið sitja næst okkur þeir Sigfús Sævar Sigurðsson og Sigurþór Sigurðsson en aðrir, þeim megin við borðið, eru óþekktir. Hægra megin við borðið eru, talið frá hægri: Hrefna Björnsdóttir, Gunnar Albertsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Gunnar Helgason (d.19.10.2007), Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og innst er Þorgeir Jónsson. Aðrir eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 054
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjalti Indriðason, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Björn Ingi Óskarsson, Óli Axel Óskarsson og Jensína Lýðsdóttir.
Fisk Seafood - safn 004
<p>Sigurður Bjarnason tekur hér við viðurkenningu frá framkvæmdastjóra Marfangs fyrir hönd starfsfólks Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd. Marfang var útflutningsaðili á rækju frá Rækjuvinnslunni og viðurkenningin var veitt fyrir framúrskarandi gæðaframleiðslu á rækju um langt árabil. Myndin var tekin 9. maí 1989. </p>
Fisk Seafood - safn 196
Sigrún Benediktsdóttir við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 015
SH eða Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna átti 50 ára afmæli í febrúar 1992. Hólanes hf frystihúsið var eitt af félögunum í Sölumiðstöðinni. Í tilefni afmælisins bauð Hólanes hf starfsfólki sínu því til kaffisamsætis í kaffistofu frystihússins þar sem afhentar voru gjafir frá afmælisbarninu. Á þessari mynd eru þau sem sáu um veitingarnar í afmælinu, Steindór Haraldsson og Hallbjörgu Jónsdóttur ásamt hluta veitinganna sem boðið var upp á. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Fisk Seafood - safn 068
Á árunum 1987 - 1989 var unnið töluvert magn af saltfiski í salthúsi Hólaness hf á Hólanesinu. Á þessari mynd er verið að meta og flokka saltfiskinn áður en honum er pakkað. Fremst á myndinni til vinstri er matsmaður ?Guðmundur?. Aftan við hann er Högni Jensson en hinum megin við borðið eru Ottó Ákason (d.17.9.2005) til vinstri og Stefán Þór Árnason til hægri.
Fisk Seafood - safn 082
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) var véla- og viðgerðamaður hjá frystihúsi Hólaness hf í fjölda ára. Þessi mynd var tekin af honum í vinnunni 23. júní 1991.
Fisk Seafood - safn 028
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu og mökum í "menningarferð" til Reykjavíkur í mars 1987. Á leiðinni var leiðinda veður og ófærð. Ein af rútunum þremur, sem fluttu fólkið, fór út af veginum og tafði það för meðan verið var að ná bílnum upp á veginn aftur. Enginn meiddist við óhappið og fljótlega var aftur farið að syngja og gleðjast í rútunni eftir að hún var komin af stað aftur. Fremst á myndinni er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og sér aftan á Guðmund Kristinsson í ljósum fötum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 067
Á árunum 1987 - 1989 var unnið töluvert magn af saltfiski í salthúsi Hólaness hf á Hólanesinu. Á þessari mynd eru þrjár af starfsstúlkunum við saltfiskvinnsluna, frá vinstri: Ingunn Kristjánsdóttir, Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir og Danica Zupancic.
Fisk Seafood - safn 205
Einar Haukur Arason smiður til vinstri og Árni Geir Ingvarsson verkstjóri vinna að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík.
Fisk Seafood - safn 216
Einar Karlsson pípulagningamaður við vinnu að endurbótum í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Fisk Seafood - safn 184
Davíð Bragi Björgvinsson við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 014
SH eða Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna átti 50 ára afmæli í febrúar 1992. Hólanes hf frystihúsið var eitt af félögunum í Sölumiðstöðinni. Í tilefni afmælisins bauð Hólanes hf starfsfólki sínu því til kaffisamsætis í kaffistofu frystihússins þar sem afhentar voru gjafir frá afmælisbarninu. Á þessari mynd má sjá starfsfólk Hólaness hf, ásamt stjórnendum félagsins, njóta góðra veitinga í veislunni. Við borðið næst okkur sitja vinstra megin: Jóhann Björn Þórarinsson næst ,Magnús Guðmannsson við hlið hans og maðurinn í köflóttu skyrtunni er Sigurður Bjarnason. Við enda borðsins snýr baki í ljósmyndarann Sigurjón Guðbjartsson þáverandi stjórnarformaður Hólaness hf. Hægra megin við þetta borð sitja talið frá hægri: Slavko Velemir, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Ingibjörg Skúladóttir, Pálfríður Bjarnadóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Signý Magnúsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Anna H. Aspar (d. 1.9.1996) og Guðný Björnsdóttir. Hægra megin við næsta borð eru frá hægri: Haukur Gunnlaugsson, Björn Ingi Óskarsson, Haraldur Árnason, séra Egill Hallgrímsson og lengra frá Gunnlaugur Sigmarsson (með gleraugu). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Fisk Seafood - safn 189
Magnús Guðmannsson undir stýri á lyftara. Magnús var lengi starfsmaður Hólaness hf og síðan Skgastrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 157
Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá var slegið upp veislu í Fellsborg. Myndin sýnir hluta gesta í veislunni. Frá vinstri: Baksvipur Karls Berndsen (d.12.2.1995) stjórnarformanns Skagstrendings hf á þessum tíma, óþekktur, Sigursteinn Guðmundsson, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Þorvaldur Skaftason (fjær), Brigitta Vilhelmsdóttir (d.6.1.1995), Jónas Skaftason, óþekkt, Hlíf Sigurðardóttir, Jón Ísberg (d.24.6.2009), Árni Ólafur Sigurðsson og óþekkt kona.
Óþekktur ljósmyndari 380
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi en ártalið er óþekkt. Þegar myndin var tekin voru kappróðrasveitir að gera sig klárar fyrir kappróður en þá var róið frá bryggjunni til vinstri og endað fram af endanum á Skúffugarði. Bátarnir tveir eru óþekktir en gætu verið Auðbjörg og annað hvort Aðalbjörg eða Ásbjörg. Síldarverksmiðjan er eins og hún var upprunalega byggð með færibandi suður úr og þrærnar sem hvort tveggja er horfið í dag. Yfir verksmiðjuna fjær rísa taknarnir tveir upp undir höfðanum. Annar var notaður undir olíu en hinn undir lýsi frá verksmiðjunni. Tankarnir hafa nú (2016)verið rifnir og sama má segja um Kaupfélagshúsið/verslunarstjórahúsið sem sést í bilinu milli verksmiðjunnar sjálfrar og ketilhússins. Auk þessa er höfnin gjörbreytt í dag frá þessari mynd og sama má segja um Hólanesfrystihúsið sem sést yfir þrærnar.
Fisk Seafood - safn 091
Kaffistofa Hólaness hf er mjög aðlaðandi og býður upp á ýmsa möguleika. Stöku sinnum tók starfsfólk fyrirtækisins sig saman og hittist að kvöldi til á kaffistofunni og átti þar notalega stund. Þessi mynd var tekin á einni slíkri samkomu. Hafdís Þorvaldsdóttir fer með einhver gamanmál en við borðið nær okkur eru frá vinstri: Sigþór Sigurðsson, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý)(snýr baki í okkur) og Haraldur Árnason í blárri peysu lengst til hægri. Við borðið fjær, eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Sveinn Jónasson tvær óþekktar konur, Jóhanna Harðardóttir, óþekkt kona, Vilhelm Harðarson og Kristín Kristmundsdóttir.
Fisk Seafood - safn 048
15. desember 1988 útskrifaðist hópur af starfsfólki Hólaness hf sem sérhæft fiskvinnslufólk. Í tilefni dagsins bauð fyrirtækið til kaffiveislu í kaffistofu félagsins. Þessi mynd var tekin í veislunni þar sem fólk situr og hlustar á einhvern ávarpa hópinn. Frá vinstri: Haraldur Árnason verkstjóri, Ása Jóhannsdóttir, óþekkt, Kristín Sigurðardóttir, Signý Magnúsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir og Linda Kristjánsdóttir.
Fisk Seafood - safn 144
Fólkið á myndinni starfaði saman á skrifstofum Hólaness hf og Skagstrendings hf nema Jón Gunnarsson sem starfaði á netagerðaverkstæði Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var en hún var tekin á hótel Dagsbrún sem var á næstu hæð neðan við skrifstofur fyrirtækjanna í stjórnsýsluhúsinu. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðný Sigurðardóttir, Jensína Lýðsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Jón Gunnarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Steinunn Grímsdóttir og Kristinn Guðmundsson.
Fisk Seafood - safn 200
Erla Jónsdóttir fjármálastjóri Skagstrendings hf við vinnu sína á skrifstofu félagsins. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
Fisk Seafood - safn 133
Starfsstúlkur við eitt af færiböndunum í Rækjuvinnslunni hf við vinnu sína. Frá vinstri: Árdís Indriðadóttir, Svanhildur Lýðsdóttir, Helga Ólína Aradóttir og Guðmunda Ólafsdóttir. Konan við hitt færibandið er óþekkt og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson577
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson tók við pretsembætti við Hólaneskirkju í júní 1998. Með honum á þessari mynd er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) sem þá var ekkja eftir séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) sem þjónaði á Skagaströnd í 40 ár.
Fisk Seafood - safn 079
Þessi mynd var tekin yfir vinnslusal frystihúss Hólaness hf árið 1976. Á myndinni má telja a.m.k 26 starfsmenn en aðeins hluti starfsmannanna var í vinnslusalnum þegar fiskvinnsla var í gangi. Áætla má að starfsmenn frystihússins hafi verið a.m.k. 50 talsins þegar myndin var tekin. Í dag (2016) er enginn fiskur unninn á Skagaströnd.
1
…
30
31
32
…
75
Leita í myndasafninu
Leita