Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 055
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd eru þær á spjalli Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir til vinstri og Danica Zupancic til hægri. Lengst til hægri sér svo í Ómar Jakobsson.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 033
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Erna Sigurbjörnsdóttir, Hulda Birna Frímannsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Rut Jónasdóttir og Erla Sigurbjörnsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 147
Aftan á þessari skemmtilegu mynd stendur: "Jeg sjalfur, Elmur og Clifford við sláttuvél. John Hillmann & sons 1940. Evarts Alberta Canada". Einnig er myndin stimpluð: GOODALL PHOTO SUPPLY WINNEPEG.
Ólafur Bernódusson589
Myndin var tekin kringum 1980 af málaragengi unglinga sem unnu við að mála togarann Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) í Skagastrandarhöfn. Þessi fjörmikli hópur vann verkið undir verkstjórn fullorðinna. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson (fjær með húfu), Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Guðmundur Óskarsson (fjær), Arnar Erlingsson, Björn Halbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir (nær), Ingimar Oddsson (í miðið), Arnar Arnarsson (fjærst), Pálína Freyja Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Fisk Seafood - safn 195
Ólafur Guðmundsson við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 34
Fjöldi síldarskipa í höfninni á Skagaströnd einhverntíma kringum 1936. Ekki er ólíklegt að einhver þessara skipa hafi verið frá Færeyjum því Færeyingar voru duglegir að stunda veiðar á Íslandsmiðum á þessum tíma.
Héraðsskjalasafn A-Hún 193
Síldveiðibátar í vari á Kálfshamarsvík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma snemma á fimmta áratugnum.
María Magnúsdóttir - safn 012
Rækjan eða stóri kampalampi hefur oft verið kölluð rauða gullið vegna tekna sem veiðar hennar og vinnsla hafa gefið þjóðfélaginu. Á Skagaströnd var rekin Rækjuvinnsla í fremstu röð í áratugi sem veitti fjölda manns atvinnu og þar með góðar tekjur. Eftir að veiðar drógust mjög saman við Ísland var vinnslunni hætt og starfsfólkinu sagt upp.
Ólafur Bernódusson 576
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá Sigrúnu Jónsdóttur sýna peysu úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum en myndin var líklega tekin 1983-84.
Fisk Seafood - safn 176
Heiða Berglind Fannarsdóttir við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 566
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Þessi mynd var tekin af Unni Kristjánsdóttur að sýna eina af peysunum sem framleiddar voru hjá Violu. Unnur hannaði flíkur fyrir Violu um tíma og myndin er hluta af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Óþekktur ljósmyndari 392
Myndin var tekin á skólastjóraskrifstofunni í Höfðaskóla líklega 1986. Jóhanna Jónsdóttir kennari í vinnu með Jóni S. Pálssyni skólastjóra.
Fisk Seafood - safn 171
Komið að landi eftir langan túr. Sennilega var myndin tekin í desember 1999 og skipið er líklega Arnar Hu 1. Maðurinn í miðið er Sigurjón Ingólfsson og lengst til hægri er Guðmundur Finnbogason? en maðurinn til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 12
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) frá Viðvík á Skagaströnd við bátinn sinn í fjörunni neðan við Læk. Gísli bjó seinna í Reykholti (Fellsbraut 6) á Skagaströnd. Viðvík er húsið sem sést lengst til vinstri á myndinni en þar var rekið gisti- og veitingahús í lok nítjándu aldar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 36
Höfðaskóli eins og hann var þegar hann var tekinn í notkun haustið 1958. Byggt var við suðurenda skólans snemma á níunda áratugnum. Maðurinn á myndinni er líklega Páll Jónsson (d. 19.7.1979) fyrsti skólastjóri Höfðaskóla.
Ólafur Bernódusson 563
Hallbjörn J. Hjartarson við framreiðslustörf í Kántrýbæ eldri þ.e. fyrir bruna og endurbyggingu. Í baksýn er Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Óþekktur ljósmyndari 396
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að berjast við eldinn sem var gríðarlegur eins og sjá má. Maðurinn með talstöðina er Sigurjón Ingólfsson og yfir öxlina á manninum í græna samfestingnum (Karl Berndsen?) má þekkja Hallbjörn Björnsson með gleraugu og síðhærði maðurinn er Vilhelm Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 192
Vitinn í Kálfshamarsvík. Vitann teiknaði Guðjón Samúelsson sem var húsameistari ríkisins 1920 - 1950. Vitinn, sem er 16,3 metrar á hæð, var byggður 1940 en ekki tekinn í notkun fyrr en 1942 því ekki tókst að afla ljóstækja í hann fyrr. Gasljós var í vitanum til 1973 en þá var hann rafvæddur. (heimild: http://www.sjominjar.is/vitar/kalfshamarsviti/)<br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 38
Húsið næst okkur á myndinni var hús verslunarstjóra verslunarinnar sem sést örlítið fjær eins og tvö sambyggð hús. Á sínum tíma voru tvær verslanir á núverandi Skagaströnd. Var önnur á Hólanesi en hin, sú sem er á myndinni, var á Skagaströnd. Svæðinu var sem sagt skipt í Hólanes og Skagaströnd, sem var svæðið kringum Einbúann. Húsið lengst til hægri á myndinni er óþekkt en ef þú veist hvað það hét vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 372
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Árni Guðbjartsson, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Aðalheiður Guðmundsdóttir og Sólveig Eiðsdóttir.
Páll J. Pálsson safn 3
Árabátur sem notaður var til að róa til fiskjar frá Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Bátinn átti Páll Tómasson bóndi á Bakka 1923 - 1960.
Fisk Seafood - safn 225
Guðlax er sjaldséður fiskur á togslóð. Hér hafa þó þrír slíkir slæðst með í trollið. Sjómennirnir eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Axel J. Hallgrímsson og Ragnar Högnason. Maðurinn fyrir framan er Hilmar Stefánsson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 034
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru nemendurnir og kennararnir á "skólamynd". Fólkið er, talið frá vinstri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Ársæll Guðmundsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Erna Sigurbjörnsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Kristján Birgisson, Erla Sigurbjörnsdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Hrönn Valgarðsdóttir, Hulda Birna Frímannsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Rut Jónasdóttir og Helgi Marínó Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson - safn 720
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann, sem er húsið með brúna þakinu á myndinni. Húsið lengst til hægri er gamli lyftuskúrinn en hann stendur einn eftir af því sem tengdist skíðalyftunni en hún lá frá skúrnum og langt upp í hlíð fjallsins. Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010.
Fisk Seafood - safn 049
15. desember 1988 útskrifaðist hópur af starfsfólki Hólaness hf sem sérhæft fiskvinnslufólk. Í tilefni dagsins bauð fyrirtækið til kaffiveislu í kaffistofu félagsins. Þessi mynd var tekin í veislunni af hluta fólksins sem þar mætti. Frá vinstri: Jónas Jónasson, Hjalti Indriðason, Jón Indriðason, óþekkt og Hafdís Þorvaldsdóttir. Hægra megin við borðið má sjá Jóhönnu Sigurjónsdóttur og Gylfa Sigurðsson.
Fisk Seafood - safn 173
Á þessari mynd eru þeir Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri Skagstrendings hf til vinstri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri til hægri staddir í Englandi hjá einum af kaupendum/notendum á fiski frá Skagstrendingi hf. Fiskurinn frá fyrirtækinu þótti ávalt af besta gæðaflokki enda var metnaður fyrir slíku meðal allra sem hjá Skagstrendingi hf störfuðu.
Óþekktur ljósmyndari 398
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að berjast við eldinn. Ekki þótti óhætt að fara inn í húsið vegna gaskúta sem þar voru og líka hins að húsið var stálgrindahús og hefði getað lagst saman hvenær sem var vegna gríðarlegs hita. Á myndinni má þekkja Gísla Snorrason til vinstri, Jón Ingi Ingvarsson er að fara að setja á sig hjálminn og Ólafur Bernódusson er klár með sprautustút en bíður eftir vatni á slönguna. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 565
Vorinu fylgir veiði á grásleppu. Mörgum þykir sigin grásleppa vera hnossgæti. Öðrum þykir hún versti matur sem til er eða jafnvel að hún sé alls ekki matur yfirleitt. Á myndinni er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) að búa sig undir að hengja upp nýskornar grásleppur í hjallinn. Eins og sést í í hjallinum í baksýn eru grásleppur þar að síga á mörgum hæðum. Þær þurfa að hanga 10 - 20 daga eftir verðurfari áður en þær eru tilbúnar í pottinn. Myndin var tekin einhverntíma seint á níunda áratugnum. <br>
Fisk Seafood - safn 188
Sigríður Gestsdóttir skrifstofustúlka hjá Skagstrendingi hf við skrifborðið sitt í vinnunni. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
Fisk Seafood - safn 221
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Þessi mynd var tekin á skrifstofu eiganda fyrirtækisins, Denis Lumbards, þegar nokkrir starfsmenn Skagstrendings hf heimsóttu Norbrit í Grimsby. Frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Denis Lumbard framkvæmdastjóri Norbrit Fish Sales Limited og óþekktur maður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1990.
Héraðsskjalasafn A-Hún 120
Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm háhyrningar voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Nokkru síðar uppgötvuðust tveir hnúfubakar í annarri vök dálítið bnorðar. Þeir voru einnig drepnir og fólk gerði sér mat úr þeim. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að öðrum hnúfubaknum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berndsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir munnlegri frásögn Steingíms Jónssonar). Myndin tók Evald Hemmert.
María Magnúsdóttir - safn 311
Guðmundur Jóhannesson við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd. Í baksýn er Sigurður Bjarnason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 029
Konurnar sitja við pillunarfæribandi í Rækjuvinnslunni hf. Hægra megin má þekkja Díönu Kristjánsdóttur en vinstra megin eru frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir?, Jóna Guðjónsdóttir, Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Fisk Seafood - safn 209
Hjalti Viðar Reynisson rafvirki við vinnu í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Fisk Seafood - safn 214
Ástmar Kári Ástmarsson við vinnu að endurbótum í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Páll J. Pálsson safn 9
Þessi mynd er af smalamönnum í haust smölun árið 1958, tekin í Brandaskarði á Skagaströnd.<br>Talið frá vinstri. Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) Skeggjastöðum, Davíð Sigtryggsson (d. 3.7.1971)Neðri-Harrastöðum, Guðmundur Kristjánsson Steinýjarstöðum, Reynir Davíðsson Neðri-Harrastöðum, Kristján Kristjánsson (d. 10.10.2007) Steinýjarstöðum, Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978) Efri-Harrastöðum, strákur frá Brandaskarði, Jón vilhjálmsson (d. 31.8.2011) Brandaskarði strákur frá Brandaskarði og Hilmar Árnason (d. 16.3.1099) Hofi.<br> Myndina tók Páll J. Pálsson Bakka.
Jón Jónsson 376
Myndin var tekin 1985 af nokkrum starfsstúlkum Rækjuvinnslunnar hf. Eins og sjá má var oft gleði við færibandið í vinnunni en auðvitað fór það eftir fólkinu sjálfu eins og alltaf er. Konurnar eru, frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Sigrún Jónsdóttir og Þórey Jónsdóttir. Hægra megin frá vinstri: Erna Högnadóttir? og Dagný Hannesdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 231
Aftan á myndinni stendur: "Harry + Pete Hillman´s barn. 1940". Myndin var tekin í Vestuheimi sennilega einhversstaðar nálægt Winnipeg. Greinilegt er að eigandinn er stoltur af þessari eign sinni fyrst hann/hún er að senda myndir af hlöðunni heim til gamla landsins.
Fisk Seafood - safn 147
<p>Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, er Dennis Lumbard , eigandi fyrirtækisins, að afhenda Finni Kristinssyni vélstjóra á Örvari Hu 21, til vinstri, viðurkenningu fyrir góða vöru og góð viðskipti gegnum árin. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum öðrum áhafnarmeðlimum persónulegan viðurkenningarskjöld eins og þann sem Finnur er að taka á móti.</p>
Ólafur Bernódusson 572
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá tvær peysur úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84. Stúlkurnar á myndinni eru Bjarney Valdimarsdóttir til vinstri og Sigrún Jónsdóttir til hægri.
Jón Jónsson 444
Jón Jónsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf um áramótin 1985-86. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins. Vinstra megin við borðið eru, frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson, (?Signý Richter eða Vigdís Viggósdóttir?), Gunnar Þór Gunnarsson, Sigurður Bjarnason, Ingvar Þór Jónsson, Grétar Haraldsson og fimm óþekktar konur. Hægra megin við borðið sér í andlit Ara Þórssonar lengst til hægri en aðrir eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 185
Árni Geir Ingvarsson undir stýri á lyftara í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Páll J. Pálsson safn 25
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 sumarið 1964 þegar hann var á síldveiðum. Á myndinni er verið að þurrka upp úr nótinni til að hægt sé að háfa síldina um borð. Karlarnir þurftu að draga netið/nótina inn á höndum til að mynda poka á móti korkateininum sem sést hanga strekktur í bómunni að framan. Síðan var háfnum sökkt í síldarkösina og hann hífður fullur um borð og þar hleypt úr honum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir nema Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016)stýrimaður sem er fremstur og næstur honum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Myndina tók Páll J. Pálsson frá Bakka en hann var háseti á Húna á þessum tíma.
María Magnúsdóttir - safn 028
Ólöf Ardís Arelíusdóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Héraðsskjalasafn A-Hún 57
Í Skagastrandarhöfn. Stóri báturinn er Stígandi Hu 9 en sá næst stærsti er líklega Ósk Hu 33. Trillan með mastrið er óþekkt en trillan til vinstri er sennilega Helga Hu 30. Húsin í baksýn eru, talið frá vinstri: Hafnarhúsið, Gamla smiðjan, Lækjarbakki, slökkvistöðin/vélaverkstæði Karls og Þórarins, Karlsminni, Strandgata 10, Viðvík, Höfðatún og Vík. Húsin sem standa lengra frá sjónum eru útihús og hlöður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 98
Bærinn á myndinni hét Klettur og var í Kálfshamarsvík á fyrri hluta 20. aldar. Vinstra megin, og áfastur við húsið, er skúr sem m.a. var notaður undir spunavél í eigu kvenfélagsins Heklu sem félagskonur notuðu um alllangt skeið. Konan á myndinni er óþekkt. <br><br>
Páll J. Pálsson safn 23
Síld landað úr Húna Hu 1 í september 1963 Siglufirði. Á myndinni eru Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) til vinstri og Páll J. Pálsson til hægri. Mennirnir til hægri eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 227
<p>Skagstrendingur hf var stofnaður 8. desember 1968. Fyrsta skip félagsins var Arnar Re 21 sem var 187 tonn stálskip sem hélt í sinn fyrsta túr frá Skagaströnd 15. febrúar 1969 undir nafninu Arnar Hu 1. Þessi mynd var tekin um borð í þessum Arnari af þeim, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Óskar Þór Kristinsson, Ómar Jakobsson og Jón Þorgeirsson.<font size="1"> Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font> </p>
Fisk Seafood - safn 219
Stefán Þór Árnason verkstjóri hugar að vélbúnaði í Rækjuvinnslunni við endurbætur þar árið 2003 eða 2004.
Héraðsskjalasafn A-Hún 198
Þessi mynd af sýslunefnd A-Húnavatnssýslu var tekin einhverntíma á árunum 1980 - 1985. Í fremri röð frá vinstri: Jón Tryggvason (d. 7.3.2007 Ártúnum, Sigurður Þorbjarnarson (d. 15.3.2002) Geitaskarði, Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður Blönduósi, Björn Jónsson (d. 21.4.1992) Ytra-Hóli og Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) Sveinsstöðum. Aftari röð frá vinstri: Gísli Pálsson (d. 30.1.2013) Hofi í Vatnsdal, Þorfinnur Björnsson Ytri-Löngumýri, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Skagaströnd, Valgarður Hilmarsson Fremsta-Gili (Blönduósi), Sveinn Sveinsson Tjörn á Skaga, Sigursteinn Guðmundsson (d. 20.4.2016) Blönduósi og Stefán Jónsson (d. 29.6.2009) Kagaðarhóli. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson582
Hópur kántrýdansara sýnir dans við endurvígslu Kántrýbæjar 1998. Dansararnir eru frá vinstri í fremstu röð: Linda Kristjánsdóttir, Kristín Blöndal og Signý Magnúsdóttir (d. 7.4.2016). Miðröð frá vinstri: Linda Ævarsdóttir, Sæmundur Gunnarsson og Kristín Kristmundsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Vigdís Viggósdóttir. Lengst til vinstri á myndinni standa hjónin Hallbjörn Hjartarson og Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), eigendur Kántrýbæjar. Fyrir aftan Amy í gulum jakka er Guðrún Pálsdóttir og ljóshærði maðurinn með gleraugun sem sér í yfir höfuð Lindu Ævars er séra Guðmundur Karl Brynjarsson. Hægra megin við dyrnar eru hjónin Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir. Maðurinn í dökku jakkafötunum sem stendur upp við súluna er Helgi Gunnarsson. Sitjandi eru frá vinstri: Steinunn Steinþórsdóttir, Jóhanna Harðardóttir (fjær), Sandra Ómarsdóttir (nær), Hrólfur Pétursson (nær) og Ástmar Kári Ástmarsson (fjær). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 175
Húsnæði Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 027
Þessi mynd var líklega tekin í reisugilli í húsi Kaupfélags Húnvetninga (nú Samkaup á Skagaströnd )því skálað er í plastglösum. Á myndinni eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Rúnar Kristjánsson, Ingvar Sigtryggsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002), Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001) og Þórbjörn Jónsson (d. 22.11.1996). Guðmundur Lárusson rak trésmíðaverkstæði og var verktaki við byggingu hússins en karlarnir voru í vinnu hjá honum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975.
Fisk Seafood - safn 215
Unnið að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík. Í ferlinu var vinnslusalnum breytt með nýjum klæðningum og uppsetningu á veggjum og skilrúmum. Hér vinna við klæðninguna, frá vinstri: Helgi Gunnarsson smiður, Baldvin Hjaltason starfsmaður rækjuvinnslunnar,í rauðum samfestingi, og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) smiður.
Jón Jónsson 387
Síðustu árin sem fiskvinnsla var í frystihúsi Hólaness hf voru þorskhausar þurrkaðir í hjalli sem var upp á hæðinni sunnan og ofan við Spákonufellsrétt. Á þessari mynd er Pétur Ingjaldur Pétursson að hengja upp seilaða hausa í hjallinum. Bak við hann má þekkja bróður hans, Jón Hall Pétursson.
Ólafur Bernódusson 568
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Bjarney Valdimarsdóttir að sýna prjónakjól sem framleiddur var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Héraðsskjalasafn A-Hún 354
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var m.a. Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 eftir að Sellgeth hafði brotnað í ísnum og sokkið. Áhöfnin komst út á ísinn og var seinna bjargað þaðan því fleiri selveiðiskip voru á svæðinu. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán slíkar selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 731
Smári Hf 122 slitnaði upp í höfninni og endaði upp í grjótvörninni í krikanum milli Sægarðs og Ásgarðs. Báturinn brotnaði eitthvað þannig að leki kom að honum. Hann var síðan tekinn á land og gerður sjóklár á ný.
Árni Geir Ingvarsson - safn 744
Á myndinni er verið að slá upp undirstöðu - sökkli - fyrir bílskúr við Lækjarbakka á Skagaströnd. Smiðirnir eru Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Rúnar Kristjánsson til hægri.
Fisk Seafood - safn 177
Linda Kristjánsdóttir til vinstri og Marta Kristín Jónsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
33
34
35
…
75
Leita í myndasafninu
Leita