Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 29
Þessi gamla mynd sýnir "Litlu bryggjuna" sem lengi var aðal bryggja smærri báta á Skagaströnd. Bryggjan hallaði fram, eins og sjá má, sem auðveldaði löndun og aðra vinnu við litla báta. Húsið til vinstri á myndinni er Hafnarhúsið sem byggt var á þessum stað 1935 en síðan flutt á núverandi stað þegar það þurfti að víkja fyrir verksmiðjubyggingunni einhverntíma á árunum 1943- 1946. Síldarsöltunarbásarnir sjást svo líka til vinstri og í baksýn sjást m.a. gömlu verslunarhúsin á Skagaströnd og yfir Einbúann sér í Kaupfélagshúsið sem byggt var 1929.
Fisk Seafood - safn 174
Halldór Gunnar Ólafsson, í blárri skyrtu til hægri, rekstrarstjóri Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd, í skoðunarferð í Rækjuvinnslu Bakka í Bolungavík. Maðurinn í gráu peysunni er Ásgeir Hjörleifsson en hann kom að smíði nokkurra véla sem notaðar voru í rækjuvinnslum á landinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 2000.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 097
Nýr Kántrýbær var vígður árið 1998 eftir að sá gamli brann til grunna 22. nóvember 1997. Nýi bærinn var m.a. byggður fyrir söfnunarfé og reis sem sagt á mjög stuttum tíma á sama stað og gamla húsið stóð.
Páll J. Pálsson safn 26
Húni Hu 1 á netaveiðum 1963. Karlarnir eru að draga færið á einni trossunni. Mennirnir eru, frá vinstri: Gunnlaugur Árnason stýrimaður, Þorleifur Þórarinsson, sem dregur af koppnum, og bræðurnir Steingrímur Einarsson og Pálmi Einarsson.
Páll J. Pálsson safn 20
Bræðurnir Baldvin Hjaltason til vinstri og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014) frá Skeggjastöðum á leið að smala heimahagana haustið 1959. Myndin var tekin á hlaðinu á gamla bænum á Bakka.
Héraðsskjalasafn A-Hún 182
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn 15. október 1973 eftir langa ferð frá Japan þar sem hann var smíðaður. Þennan dag var fögnuður og hátíð í bæ á Skagaströnd. Þetta skip var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf.
María Magnúsdóttir - safn 017
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Við borðið nær okkur sitja frá vinstri: Kristófer Árnason (d. 10.5.2000), Jóna Guðjónsdóttir, Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) og svo sér í hálft andlit Sigurbjargar Björnsdóttur (d. 3.4.1981) (Boggu í Grund). Dökkhærði maðurinn við hitt borðið er Sigurður Bjarnason en aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Ólafur Bernódusson595
Íþróttahúsið á Skagaströnd var vígt 15. mars 1998. Á þessari mynd er Helgi Gunnarsson yfirsmiður hússins ásamt konu sinni Ragnheiði Sigurjónsdóttur með stóran lykil sem hann afhenti formlega við vígsluna sem tákn um að verkinu væri lokið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 715
Torfi Friðrik Magnason vinnur við þökulagningu í slakkanum norðan við stóru mjölskemmuna á vegum vinnuskólans á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson580
Hallbjörn Hjartarson flytur ræðu við endurvígslu Kántrýbæjar í júní 1998 eftir bruna vorið 1997.
Jón Jónsson 381
Þessi mynd var líklega tekin 1985 en hún er af Jóni Jónssyni (d. 9.7.1991) framkvæmdastjóra Rækjuvinnslunnar hf um árabil.Líklega var myndin tekin um borð í Örvari Hu 21.
Ólafur Bernódusson 564
Mörgum þykir sigin grásleppa vera hnossgæti. Öðrum þykir hún versti matur sem til er eða jafnvel að hún sé alls ekki matur yfirleitt. Á myndinni eru Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) til vinstri og tengdasonur hans Guðmundur J. Björnsson búnir að skera grásleppu í tvo kassa og eru að fara af stað til að hengja þær upp í hjallinn. Þar eru þær látnar hanga 10 - 20 daga eftir veðurfarinu hverju sinni áður en þær eru tilbúnar í pottinn. Myndin var tekin einhverntíma seint á níunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson682
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni eru Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Dagný Sigmarsdóttir til hægri fyrir utan golfskálann en þær eru eigendur og spákonur Spákonuhofsins á Skagaströnd og stóðu fyrir Þórdísargöngunni.
Jón Jónsson 373
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 073
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, óþekktur, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Bryndís Ingimarsdóttir.
Ólafur Bernódusson614
Mikill fjöldi gesta sótti Kántrýhátíð í ágúst 2001. Eitt af því sem boðið var upp á á hátíðinni var að fara rúnt um bæinn í opnum hestvagni af flottustu gerð. Myndin sýnir ánægða gesti í einni slíkri hringferð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 749
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru menn frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar að slá upp fyrir kantsteini til afmörkunar á svæðinu framan við skólann. Mennirnir eru frá vinstri: Hrólfur Pétursson, Ómar Ingi Ómarsson og Einar Gunnarsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 197
Gert að fiski á bryggju sem reist var upp úr 1920 rétt austan við syðsta odda Höfðans, Hólsnefið. Bátakostur Skagstrendinga þessa tíma sést á myndinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 55
Færeyskir sjómenn á höfninni á Skagaströnd 1938. Algengt var að Færeyskar duggur kæmu í höfn á Skagaströnd allt fram undir 1960.
Jón Jónsson 374
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Árni Guðbjartsson, Guðrún Angantýsdóttir, Agnar Hávarðarson og Sigurjón Guðbjartsson. Barnið á myndinni er óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 28
Síldarsöltun á Siglufirði sumarið 1963. Líklega er verið að salta síld úr Húna Hu 1 sem var á síldveiðum þetta sumar og landaði m.a. á Siglufirði. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Jón Jónsson 402
Í mörg ár bauð umf Fram upp á leikjanámskeið fyrir yngri krakka á Skagaströnd. Hér er einn hópurinn af fara í hjólatúr saman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fremsti hjólagarpurinn er Gunnar Karlsson? næstur er Davíð Bragi Björgvinsson þá Þórarinn Ingvarsson og svo Elva Þórsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 030
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Erla Kristinsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, óþekktur, óþekkt, Ragnar Jónsson (með skalla) og Helgi Marínó Magnússon.
Óþekktur ljósmyndari 385
Guðmundur Rafnsson (d. 23.9.1968) úr Sunnuhlíð. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 728
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir og Alma Eik Sævarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 713
Fyrir mistök voru tröppur sem voru vestan á Höfðaskóla, eldra húsinu, eyðilaggðar og brotnar niður. Brotthvarf trappanna hefur gjörbreytt ásýnd skólans sem ekki eru allir sáttir við.
Árni Geir Ingvarsson - safn 711
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en stúlkan í appelsínugula samfestingnum er Helga Dögg Jónsdóttir. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 765
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Á þessari mynd er Árni Geir Ingvarsson að vinna við þökulagningu á lóðinni umhverfis Árnes fyrir opnunina.
Héraðsskjalasafn A-Hún 385
Nýbyggð Höskuldstaðakirkja var vígð 31.mars 1963 og þá var þessi mynd tekin. Biskupinn yfir Íslandi Herra Sigurbjörn Einarsson vígði kirkjuna að viðstöddum prestum úr prófastsdæminu og fleirum. Á myndinni er Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) fyrir miðju. Vinstra megin situr séra Þorsteinn Gíslason í Steinnesi nær en séra Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991) í Bólstaðahlíð fjær.Hægra megin situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) Skagaströnd og Höskuldsstöðum nær en hinn presturinn er óþekktur. Til vinstri við kórinn má sjá séra Gísla H. Kolbeins fjærst og maðurinn með gleraugun er Jón Ísberg (d.24.6.2009) sýslumaður Húnvetninga. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 446
Þegar uppihald varð í vinnslu á rækju í Rækjuvinnslunni hf málaði starfsfólkið húsnæði vinnslunnar að utan í blíðviðrinu. Þessi mynd var tekin 1985.
Jón Jónsson 390
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátraskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan bát: "Guðbjörg HU 31. Sigurður Guðmonsson í Þórsmörk keypti þennan bát frá Akranesi um 1950. Þetta var opin trilla, rúmlega 2 tonn að stærð og frambyggð. Björgvin Guðmundsson frá Saurum í Skagahreppi keypti bátinn af Sigurði og lét setja í hann 8 ha. Saab vél og er hún nú í eigu Gunnars Albertssonar. Eðvarð Ingvason og Jón Jónsson keyptu bátinn af Björgvini 1964 og létu setja á hann nýtt stýrishús að aftan en þá ver hægt að standa frammi í barka þegar grásleppuveiðar voru stundaðar. Þeir félagar áttu bátinn í um 20 ár en þá var hann orðinn ónýtur".
Ólafur Bernódusson 575
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá framkvæmdastjóra fyrirtækisins Guðmund Hauk Sigurðsson sýna jakkapeysu úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum en hún var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 571
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd sýna þrjár ungar konur peysur úr framleiðslulínu Violu. Frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Margrét Ólafsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Árni Geir Ingvarsson - safn 706
Hér er verið að auka og bæta grjótvörnina fyrir Víkina. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson634
17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Hjalti Reynisson fallbyssuskytta að gera sig kláran fyrir að skjóta úr fallbyssunni góðu sem hleypt var af í tilefni dagsins.
Héraðsskjalasafn A-Hún 9
Elín Rannveig Briem (1856 - 4.12.1937). Elín var skólastýra kvennaskólans að Ytri-Ey og seinna aftur þegar skólinn hafði verið fluttur á Blönduós. Hún skrifaði bókina Kvennafræðarinn sem út kom um áramótin 1888 -89 og seldist afar vel og hafði mikil áhrif á íslenska matargerð, hússtjórn og hreinlæti á heimilum. Elín starfaði mikið að kvenréttindamálum sérstaklega þeim sem tóku til menntunnar kvenna.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 031
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Ársæll Guðmundsson, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson, Helgi Marínó magnússon og Gunnar Þröstur Ásgeirsson.
Jón Jónsson 448
Myndin var líklega tekin 1985. Á henni er fólk að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf við að hreinsa frá skeljabrot og annað sem ekki á heima á borði neytenda. Vinstra megin við bandið eru, frá vinstri: Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Björn Ingi Óskarsson og Dagný Hannesdóttir. Hægra megin við bandið, frá hægri: Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990), Guðrún Angantýsdóttir og tvær óþekktar.
Fisk Seafood - safn 210
Vilhelm Þórarinsson vélamaður við vinnu í rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Héraðsskjalasafn A-Hún 164
Ingibjörg Jónsdóttir (d. 15.7.1970) frá Skrapatungu í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) við ullarþvott.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 037
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Kristján Birgisson, óþekkt, Aðalheiður Árnadóttir, Erna Sigurbjörnsdóttir og Hulda Birna Frímannsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 27
Myndin sýnir síldarlöndun og söltun á höfninni á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin 1935 eða 1936. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 035
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni er Guðbjörg Þorleifsdóttir að taka til eftir hófið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 726
Nýi slökkvibíllinn prófaður við Rækjuvinnsluna. Í bílnum er öflug dæla sem er að sjálfsögðu nauðsyn í slíkum farartækjum. Mennirnir á myndinni eru óþekktir liðsmenn Slökkviliðs Skagastrandar.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 076
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Á þessari mynd er blúshljómsveitin Vinir Dóra að spila þar 20. desember 1993.
Héraðsskjalasafn A-Hún 181
Á myndinni er Guðmundur Þór Hu 17 að verða fullsmíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Guðmundur Þór var annar tveggja fyrstu bátanna sem smíðaðir voru í stöðinni. Hinn var Ásdís Hu 10. Guðmundur Þór er enn gerður út frá Skagaströnd undir nafninu Dagrún St 12 síðan árið 1975 er núverandi eigendur keyptu bátinn.
Ólafur Bernódusson 574
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá tvær peysur úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84. Sýningastúlkurnar á myndinni eru Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Guðbjörg Gylfadóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson 570
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Sigrún Jónsdóttir að sýna peysu sem framleidd var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 071
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Valur Friðvinsson, Ása Ásgeirsdóttir, óþekkt, Andri Þór Ómarsson og Elín Ósk Ómarsdóttir.
Hallgrímur Kristmundsson safn029
Ekki er vitað í hvaða skipi þessi mynd var tekin og mennirnir eru óþekktir. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 743
Það verður að teljast óvenjulegt, a.m.k. í seinni tíð, að það þurfi að smala kindum á höfninni. Þessar kindur voru þó að villast þar og fóru m.a. fram á Útgarð til að skoða sig um. Kindunum var smalað í aðhaldið sem sést á myndinni þar sem Rúnar Jóhannsson er að athuga markið á þeim svo hægt sé að finna eiganda kindanna. Sjá einnig mynd nr 10073.
Árni Geir Ingvarsson - safn 752
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru þrír ungir menn að gera klárt undirlag fyrir steinalagningu. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson og Almar Freyr Fannarsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 091
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) var verkstjóri í frystihúsi Hólaness hf um langt árabil. Eitt af skyldustörfum verkstjórans var að greiða fólki út laun fyrir vinnu sína. Þegar þessi mynd var tekin 1965, fékk fólk útborguð laun sín í peningum í umslagi. Þá þurfti Sigurður að telja seðla og smámynt í umslag hvers og eins og allt þurfti auðvitað að stemma. Þetta var fyrir tölvuöld og bankar voru fjarlægar stofnanir á Skagaströnd. Þessa "aukavinnu" vann Sigurður heima hjá sér í Hólaneshúsinu eftir langan dag í frystihúsinu.
Jósef H Sigurðsson - safn 010
Mennirnir tveir um borð í þessum óþekkta bát eru að bíða meðan færið er dregið. Axel Gígjar Ásgeirsson til vinstri og ?Hjalti Indriðason? til hægri. Ekki er vitað hver báturinn er né hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 764
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Útveggir hússins voru illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson til vinstri og Einar Gunnarsson til hægri á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar við að bera á klæðninguna utanhúss fyrir opnunina.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 072
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Andri Þór Ómarsson, Elín Ósk Ómarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir og Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993).
Jón Jónsson 449
Myndin var líklega tekin 1985. Á henni er fólk að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf við að hreinsa frá skeljabrot og annað sem ekki á heima á borði neytenda. Konurnar á myndinni eru, talið frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 088
Í nokkur ár upp úr 1990 var Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) skemmtanastjóri í veitingahúsinu Kántrýbæ á Skagaströnd. Bjarnhildur fékk marga af topp listamönnum þjóðarinnar í dægurgeiranum til að koma og vera með tónleika á litla sviðinu í Kántrýbæ. Auðvitað gengur svona skemmtanahald ekki upp án starfsmanna. Á myndinni er Kristín Kristmundsdóttir að vinna "á bakvið" 20. ágúst 1994.
Jósef H Sigurðsson - safn 032
Hjalti Indriðason líklega um borð í Hafrúnu Hu 12 á netaveiðum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson621
Á myndinni stendur Óli Axel Óskarsson við brunnið færiband á Vélaverkstæði Karls Berndsen í júní 2001. Kviknað hafi í bandinu um nótt og það leit svona út morguninn eftir þegar menn komu til vinnu.
1
…
34
35
36
…
75
Leita í myndasafninu
Leita