Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 072
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Andri Þór Ómarsson, Elín Ósk Ómarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir og Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993).
Jón Jónsson 449
Myndin var líklega tekin 1985. Á henni er fólk að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf við að hreinsa frá skeljabrot og annað sem ekki á heima á borði neytenda. Konurnar á myndinni eru, talið frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990).
Ólafur Bernódusson621
Á myndinni stendur Óli Axel Óskarsson við brunnið færiband á Vélaverkstæði Karls Berndsen í júní 2001. Kviknað hafi í bandinu um nótt og það leit svona út morguninn eftir þegar menn komu til vinnu.
Jón Jónsson 377
Myndin var tekin 1985 af stúlkum að pakka rækju í Rækjuvinnslunni hf. Það liggur greinilega vel á stúlkunum sem eru, talið frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Guðmunda Ólafsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 705
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni eru þrír ungir drengir á vegum vinnuskólans að búa til lítið steinalagt torg þar sem Shell tankurinn stóð við enda vegslóðans upp á Höfðann. Drengirnir eru frá vinstri: Indriði Björnsson, Almar Fannarsson og Jóhann Stefánsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 403
Þórarinn Björnsson (d. 24.12.1967) frá Syðri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) skipherra hjá Landhelgisgæslunni í 30 ár.
Héraðsskjalasafn A-Hún 273
Páll Jónsson (d.19.7.1979) Skólastjóri á Skagaströnd. Páll varð fyrsti skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd þegar Höfðahreppur varð til 1939 eftir skiptingu Vindhælishrepps hins forna í þrjá hreppa. Sinnti hann því starfi allt til ársins 1966 er sonur hans Jón Pálsson tók við.
Héraðsskjalasafn A-Hún 8
Mennirnir í þessum vinnuflokki eru óþekktir nema sá sem hringur hefur verið dregin um. Hann er Hannes Sigurður Einarsson (1895 - 1940) frá Óseyri á Skagaströnd. Ekki er vitað hvað mennirnir voru að starfa við en það gæti hafa verið mótaka eða vegagerð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 703
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni eru þrír ungir menn úr vinnuskólanum að slétta svæðið þar sem þrír Olís-tankar stóðu. Svæðið var síðan þökulagt og gert aðlaðandi til útivistar. Ungu mennirnir eru frá vinstri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Viktor Örn Valdimarsson og Torfi Friðrik Magnason.
Héraðsskjalasafn A-Hún 353
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 029
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni er Helgi Marínó Magnússon í góðum gír en hann var einn af kennurunum á námskeiðinu.
Jón Jónsson 403
Í mörg ár bauð umf Fram upp á leikjanámskeið fyrir yngri krakka á Skagaströnd. Hér er einn hópurinn af fara í hjólatúr saman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fremsti hjólagarpurinn er <br>Elva Þórsdóttir næstur er líklega Magnús Filip Sævarsson þá Gunnar Helgason en aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson 375
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Díana Kristjánsdóttir með gítar, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Sigurður Bjarnason.
Héraðsskjalasafn A-Hún 382
Sýslunefndarmenn úr Austur Húnavatnssýslu á fundi nefndarinnar. Frá vinstri: Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) frá Skagaströnd, Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum í Sveinsstaðahreppi, Sigurður Þorbjörnsson (d. 5.3.2002) frá Geitaskarði í Engihlíðarhreppi, Björn Jónsson (d.21.4.1992) frá Ytra-Hóli í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) og Sveinn Sveinsson frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 760
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að vinna við undirstöðurnar undir bíslagið.
Páll J. Pálsson safn 10
Myndin var tekin 1946 af Páli Tómasyni (d.3.6.1963) bónda á Bakka í Skaghreppi þar sem hann situr á hestasláttuvél og slær. Til hægri á myndinni eru þrjú börn hans og eiginkona, talið frá vinstri: Björg Þóra Pálsdóttir, Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013), Lilja Guðrún Pálsdóttir og eiginkonan María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975).
Ólafur Bernódusson653
Stefán Velemir situr á nýrri sláttuvél sinni og Róbert Björn Ingvarsson aðstaðamaður hans stendur með hrífuna. Stefán byrjaði mjög snemma á að taka að sér garðslátt fyrir fólk. Það þróaðist fljótlega út í allsherjar sláttuþjónustu þar sem hann bætti við sig að slá opin svæði í sveitarfélaginu. Til þess að það gengi upp þurfti hann auðvitað að eiga góð tæki og sláttuvélin á myndinni reyndist honum vel. Myndin var tekin 3. júlí 2009 nokkrum dögum áður en Stefán varð 15 ára.
Árni Geir Ingvarsson - safn 734
Hér er verið að vinna við undirstöðu skiltis við Tjaldklaufina í Höfðanum. Þarna er nú komið upplýsingaskilti sem sýnir gönguleiðina um Höfðann því þarna er einn af upphafsstöðum hennar. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Ýmir Hjartarson, Almar Freyr Fannarsson og Vilhelm Harðarsson stjórnar bílkrananum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 710
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og fólkið er óþekkt nema stúlkan í miðjum hópnum er Helga Dögg Jónsdóttir frá Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 248 - Copy
Laufás á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru einhverjar framkvæmdir í gangi því maður (Sigurður Guðmundsson?) er uppi á þakinu að smíða.
Árni Geir Ingvarsson - safn 762
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá hvernig bíslagið var byggt við húsið og Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að snúast við húsið.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 095
Veturinn 1995 var mjög snjóþungur og illviðrasamur. Þessi mynd var tekin 24. febrúar 1995 og sýnir Kántrýbæ eldri á kafi í snjó. Inngangurinn var að sunnanverðu og því er búið að moka frá dyrunum þeim megin. Greinilega kunnu börnin vel að meta snjóinn því þau eru búin að búa sér til rennibraut frá mæni hússins og niður á götu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 265
Sýslunefndarmenn úr Austur Húnavatnssýslu á fundi nefndarinnar. Frá vinstri: Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) frá Skagaströnd, Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum, Sigurður Þorbjörnsson (d. 5.3.2002) frá Geitaskarði, Björn Jónsson (d.21.4.1992) frá Ytra-Hóli og Sveinn Sveinsson frá Tjörn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 740
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er verið að vinna á lóðinni. Vilhjálmur Jónsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri leggja hellusteina á göngustíg og Gunnar Þór bílstjóri fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 741
Á myndinni er verið að steypa kantsteina í beygjunni vestan við Einbúann. Verktakar komu og steyptu slíka kanta víðs vegar um bæinn en síðan hafa víða verið gerðar gangstéttar innan við kantsteininn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 396
Halkion VE 27 var keyptur frá Vestmanneyjum til Skagastrandar 1960 og hlaut nafnið Máni Hu 5. Báturinn var dæmdur ónýtur 1965. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægir Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 729
Hallbjörn Björnsson rafverktaki hjá Neistanum sinnir einhverri fínvinnu við dælu eða mæli á ókunnum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 737
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er verið að vinna á lóðinni. Ómar Ingi Ómarsson er næstur okkur að vökva og þökuleggja. Til hægri eru Stefán Sveinsson og Vilhjálmur Jónsson að hlaða vegg úr steinum og helluleggja kringum leiktækin.
Jón Jónsson 378
Í pásum í Rækjuvinnslunni hf var vinsælt hjá starfsfólkinu að skreppa út á pall til að fá sér frískt loft. Á þessari mynd frá 1985 eru þrjú sem eru að spjalla fyrir utan rækjuna. Frá vinstri: Guðmunda Ólafsdóttir, Ari Þórsson með son sinn Sveinþór Ara í fanginu og Ingvar Þór Jónnsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 383
Myndin var tekin af þessum tveimur heiðursmönnum í tengslum við fund hjá sýslunefnd A-Húnavatnssýslu þar sem þeir voru báðir kjörnir nefndarmenn síns sveitarfélags. Vinstra megin er Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) á Skagaströnd fyrir Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) og til hægri er Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum fyrir Sveinsstaðahrepp (nú Húnavatnshreppur).
Jón Jónsson 401
Þessi mynd var tekin af húsnæði plastverksmiðjunnar Mark hf við Oddagötu eftir bruna sem þar varð 14. apríl 1989. Var það í annað sinn á þremur árum sem stórbruni varð hjá fyrirtækinu. Eins og sjá má var húsið mjög illa farið eftir brunann. Húsið var stálgrindahús en hitinn í brunanum var svo mikill að stálstoðir og bitar undust upp og misstu alla burðargetu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 711
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en stúlkan í appelsínugula samfestingnum er Helga Dögg Jónsdóttir. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 385
Nýbyggð Höskuldstaðakirkja var vígð 31.mars 1963 og þá var þessi mynd tekin. Biskupinn yfir Íslandi Herra Sigurbjörn Einarsson vígði kirkjuna að viðstöddum prestum úr prófastsdæminu og fleirum. Á myndinni er Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) fyrir miðju. Vinstra megin situr séra Þorsteinn Gíslason í Steinnesi nær en séra Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991) í Bólstaðahlíð fjær.Hægra megin situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) Skagaströnd og Höskuldsstöðum nær en hinn presturinn er óþekktur. Til vinstri við kórinn má sjá séra Gísla H. Kolbeins fjærst og maðurinn með gleraugun er Jón Ísberg (d.24.6.2009) sýslumaður Húnvetninga. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 84
Jakob Möller (d. 5.11.1955) frá Stóra-Bergi á Skagaströnd. Jakob var alþingismaður 1919 - 1927 og aftur 1931 - 1945. Fjármálaráðherra var hann 1939 - 1942 og jafnframt dómsmálaráðherra 1942. Síðan sendiherra í Danmörku 1945 og Finnland bættist við 1947. Jakob hætti sendiherrastörfum 1951.
Hallgrímur Kristmundsson safn002
Þessi mynd var tekin um borð í Leifi Eiríkssyni frá Dalvík. Tveir karlar eru uppi á stýrishúsinu í bassaskýlinu að reyna að koma auga á síldarvöðu til að kasta á. Karlarnir í ganginum hægra megin eru að súpa kaffi í rólegheitunum meðan leitað er. Þessi háttur var hafður á við síldarleit áður en ný og fullkomin síldarleitartæki komu um borð í bátana. Þá varð að treysta á að síldin væri að vaða til að hægt væri að finna hana. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og sjómenirnir eru óþekktir en miðað við fjöllin í baksýn hefur hún verið tekin skammt norð vestur af Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 26
Myndin er af gömlu hlóðaeldhúsi að Höfnum á Skaga. Á þilið/þakið á húsinu hafa verið spítt selskinn til þurkunar en skinnin voru gjarnan seld þannig, þurr, skafin og útspítt. Góðar selveiðar voru ein af hlunnindunum sem fylgdu Hafnarjörðinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 723
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Örn Stefánsson, Torfi Friðrik Magnason, Amy Ósk Ómarsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir og tvö óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 759
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að vinna við upphleðslu á grunninum undir húsið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 757
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru ungir menn á vegum áhaldahússins að leggja gúmmímottur undir eitt af leiktækjunum. Slíkar gúmmí-mottu-hellur eiga að koma í veg fyrir slys því þær eru tiltölulega mjúkar. Ungu mennirnir eru frá vinstri: Óskar Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson og Indriði Björnsson.
Hallgrímur Kristmundsson safn017
Síldarbátarnir Leifur Eiríksson frá Dalvík og ?? Magnússon frá Hrísey í höfn og hásetarnir á spjalli afturá meðan karlinn tvístígur í stýrishúsinu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 264
Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) frá Skagaströnd og Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum á sýslunefndarfundi þar sem þeir voru fulltrúar hvor síns sveitarfélags í nefndinni.
Jón Jónsson 371
Þessi mynd var tekin 1985 þegar starfsfólk Rækjuvinnslunnar er að fagna einhverju í kaffipásunni. Fremst á myndinni má sá bakið á Guðmundi Jóhannessyni og Hrafnhildi Jóhannsdóttur að dansa. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Sigrún Jónsdóttir (stendur), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) (situr), Þórey Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir en hinar konurnar eru óþekktar.
Jósef H Sigurðsson - safn 070
Hjörtur í Vík Hu 11 var gerður út frá Skagaströnd á árunum 1975 -1980 þegar hann var talinn ónýtur og tekinn af skrá. Bátinn áttu bræðurnir Árni og Sigurjón Guðbjartssynir. Untan á Hirti liggur Þröstur sem einnig var í eigu þeirra bræðra um tíma. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Hallgrímur Kristmundsson safn005
Ekki er vitað hvað mennirnir á myndinni í fjörunni eru að gera. Þeir virðast vera að safna þangi upp á einhvers konar grind hvort sem það hefur verið til að nýta sem skepnufóður eða hvort grindin er í raun hlunnar og þangið mokað yfir þá til að auðvelda að setja upp bát í hálu þanginu. Maðurinn í ljósa jakkanum til hægri er Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) en hinir mennirnir eru óþekktir. Í baksýn til vinstri er einhverskonar bryggja, gangfjöl eða holræsisútrás fram í sjó. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en það gæti þó hafa verið í fjörunni sem var neðan við sundlaugina og skerið í baksýn væri þá eitt af djúpskerjunum, upp úr á há fjöru.
Ólafur Bernódusson673
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er hópurinn nýlagður af stað og labbar í fallegum brekkum í Hólkotsdal.
Hallgrímur Kristmundsson safn066
Myndin var tekin af smíði á kari í slippnum neðan við (vestan við) Bjarmanes. Körin voru steypt þarna síðan sett á flot og svo dregin á réttan stað og sökkt þar til að mynda hafnargarð/bryggjukant í einhverri íslenskri höfn. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Hallgrímur Kristmundsson safn014
Þessi bíll var af Chevrolet G 506 gerð. Upprunalega var hann herbíll á stríðsárunum og líklega fluttur hingað með hernum 1940 - ´41. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 733
Hallbjörn Björnsson rafverktaki hjá Neistanum sinnir einhverri fínvinnu við dælu eða mæli á ókunnum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 722
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Stúlkan á myndinni er Amy Ósk Ómarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 770
Þeir eru miklir golfáhugamenn Hafþór Gylfason til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri. Á myndinni eru þeir að búa í haginn á golfvellinum með því að smíða eitthvað, líklega girðingastiga, til að koma fyrir á Háagerðisvelli. Aðstöðu fyrir smíðina fengu þeir í áhaldahúsi hreppsins þar sem myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 718
Sumarstarfsmenn sveitarfélagsins Skagaströnd í reykingapásu fyrir utan áhaldahúsið. Frá vinstri: Amy Ósk Ómarsdóttir og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir.
Jón Jónsson 443
Jón Jónsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf um áramótin 1985-86. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins. Vinstra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Líney Jósefsdóttir, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt og Svanhildur Lýðsdóttir. Hægra megin við borðið, frá hægri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, óþekkt, Gréta Haraldsson og Ingvar Þór Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 719
Kaffitími í áhaldahúsinu. Alma Eik Sævarsdóttir til vinsri og Sigurbjörg Írena Rúnarsdótttir til hægri.
Jón Jónsson 450
Myndin var tekin 1985 í Rækjuvinnslunni hf. Á henni eru karlarnir á vaktinni í kaffipásu. Frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Sigurður Bjarnason og Grétar Haraldsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 927
Strandferðaskipið ms Skjaldbreið kemur til hafnar á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). <br>Ms Skjaldbreið var lengi í strandsiglingum á Íslandi en 16. janúar 1962 strandaði skipið á skeri nálægt Bjarnarey á Breiðafirði í vonsku veðri. 18 manns voru um borð og komust níu þeirra við illan leik í gúmmíbát sem þá slitnaði frá skipinu og rak burt. Því fólki var bjargað eftir fjóra og hálfan tíma um borð í vélbátinn Sigurfara. Skjaldbreiðin rann fljótlega af skerinu með lestarnar fullar af sjó en skilrúm héldu þannig að hægt var að dæla sjó úr vélarrúm með eigin dælum skipsins. Því var lagt við ankeri á staðnum því ekki þótti óhætt að hreyfa það í svo vondu veðri. 18. janúar fór skipið svo fyrir eigin vélarafli til Stykkishólms í fylgd með varðskipinu Þór. Þar voru lestarnar þéttar til bráðabirgða en síðan fór það til Reykjavíkur í fylgd vaðskipsins. (Heimild: Morgunblaðið 13. og 14. tölublað 17.og 18.janúar 1962)
Árni Geir Ingvarsson - safn 709
Á myndinni er Jóhann Björn Þórarinsson að gera við vél-hjólbörur uppi á Höfða. Börurnar voru notaðar við stígagerð á Höfðanum en hann er vinsælt útivistarsvæði þar sem margur fær sér hressandi göngutúr eftir merktum göngustíg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 758
Bræðurnir Guðmundur J. Björnsson til vinstri og Sigurður F. Björnsson til hægri við framkvæmdir vegna endurbyggingar Árness sem sést lengst til vinstri á myndinni. Guðmundur rak vélaleigu, þar með talið gröfuþjónustu, í áratugi á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 736
Myndin er af Vilhjálmi Jónssyni þar sem hann er að hlaða steinavegg á skólalóð Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson - safn 700
Það getur verið erfitt að halda sér vakandi á heimstími í góðu veðri eftir langan og erfiðan dag á miðunum. Það fékk eigandi og eini áhafnarmeðlimur Beggu Gk 717 að reyna 23. júlí 2007 þegar hann vaknaði með andfælum við að vera kominn langt upp í fjöru í Vækilvíkinni á Höfðanum. Það var lán í óláni að hann hitti á víkina en keyrði ekki á fullri ferð í klettana sem eru beggja vegna við víkina. Báturinn skemmdist nokkuð við slysið missti stýrið, skrúfan ónýttist og leki kom í ljós í lúkar. Maður slasaðist lítilega en gekk þó þurrum fótum frá bátnum á strandstað.
Ólafur Bernódusson644
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd, sem þá var tekin, er Guðjón Ólafsson skólafulltrúi A-Hún að setja keppnina með stuttu ávarpi.
1
…
35
36
37
…
75
Leita í myndasafninu
Leita