Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 339
Myndin var tekin á Hólahátíð en ártalið er óþekkt. Frá vinstri: séra Björn Björnsson Hólum, óþekktur, séra Pétur Þ. Ingjaldsson Höskuldsstöðum (Skagaströnd), séra Friðrik Friðriksson Húsavík, óþekktur, séra Lárus Arnórsson Miklabæ og séra Páll Þorleifsson Skinnastað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 700
Það getur verið erfitt að halda sér vakandi á heimstími í góðu veðri eftir langan og erfiðan dag á miðunum. Það fékk eigandi og eini áhafnarmeðlimur Beggu Gk 717 að reyna 23. júlí 2007 þegar hann vaknaði með andfælum við að vera kominn langt upp í fjöru í Vækilvíkinni á Höfðanum. Það var lán í óláni að hann hitti á víkina en keyrði ekki á fullri ferð í klettana sem eru beggja vegna við víkina. Báturinn skemmdist nokkuð við slysið missti stýrið, skrúfan ónýttist og leki kom í ljós í lúkar. Maður slasaðist lítilega en gekk þó þurrum fótum frá bátnum á strandstað.
Páll J. Pálsson safn 24
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 veturinn 1964 þegar hann var á netaveiðum. Við rúlluna þ.e. lengst til vinstri er Gunnlaugur Árnason stýrimaður. Næstur honum er Jónatan Pálsson og bak við hann, með svart hár, sér í MagSveinbjörn Jónsson. Maðurinn með "sixpensarann" er Steingrímur Einarsson og bak við hann bograr Þorleifur Þórarinsson. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) er aftur í ganginum við hliðina á stýrishúsinu að leggja niður netin. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina nær okkur við borðið er Pálmi Einarsson og lengst til hægri, ekki í stakk, er Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003).
Ólafur Bernódusson676
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni eru Adolf H. Berndsen og Guðbjörg Viggósdóttir að safna kröftum fyrir síðustu brekkunu upp á Borgarhausinn.
Hallgrímur Kristmundsson safn041
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af fólki að vinna við síldartunnur á bryggjusporði. Líklega er verið að pækla tunnurnar en það fólst í því að bæta saltlegi á tunnurnar eftir að þær voru fylltar, hafði verið lokað og látnar standa í nokkra daga. Til að þetta væri hægt var haft gat - spons - á hlið tunnunnar og trétappi rekinn í. Tunnurnar voru svo geymdar liggjandi á hliðinni til að síður læki úr þeim. Ef þú þekkir hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 717
Eftir að þökur hafa verið lagðar er nauðsynlegt að vökva þær vel. Á þessari mynd vökva, með brunaslöngu, nýlagðar þökur við Einbúann þær: Amy Ósk Ómarsdóttir til vinstri og Alma Eik Sævarsdóttir til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 387
Nýbyggð Höskuldstaðakirkja var vígð 31.mars 1963 og þá var þessi mynd tekin. Biskupinn yfir Íslandi Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) vígði kirkjuna að viðstöddum prestum úr prófastsdæminu og fleirum. Á þessari mynd ganga leikmenn og prestar úr gömlu kirkjunni til hinnar nýju með gripi sem tilheyra Höskuldsstaðakirkju. Fremstir ganga óþekktur maður til vinstri og Hafsteinn Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum til hægri. Á milli þeirra sér í Björn Jónsson (d.21.4.1992) frá Ytra-Hóli og við hlið hans, hægra megin er Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) frá Mánaskál. Aftan við Torfa sér í séra Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991)og skeggjaði presturinn er líklega séra Sigurður Norland (d. 27.5.1971) frá Hindisvík. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) frá Skagaströnd er aftast til vinstri en maðurinn í svörtu hempunni aftarlega er líklega séra Gísli H. Kolbeins. Ef þú þekkir einhvern óþekktu mannanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn015
Hvar var þessi friðsæla mynd tekin? Á henni eru tvö eða þrjú handsnúin spil, tvö hús og tveir bátar. Ef þú veist hvar þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 036
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Erla Sigurbjörnsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson, Hrönn Valgarðsdóttir, Ársæll Guðmundsson og Helgi Marínó Magnússon.
Jón Jónsson 401
Þessi mynd var tekin af húsnæði plastverksmiðjunnar Mark hf við Oddagötu eftir bruna sem þar varð 14. apríl 1989. Var það í annað sinn á þremur árum sem stórbruni varð hjá fyrirtækinu. Eins og sjá má var húsið mjög illa farið eftir brunann. Húsið var stálgrindahús en hitinn í brunanum var svo mikill að stálstoðir og bitar undust upp og misstu alla burðargetu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 761
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Á þessari mynd er verkið komið vel á veg undir yfirstjórn Helga Gunnarssonar verktaka á Skagaströnd. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) og Sigurður F. Björnsson smiðir frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Hjá þeim stendur Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að virða fyrir sér framvindu verksins.<br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 725
Gamli slökkvibíllinn á Skagaströnd sendur burt eftir að hafa verið leystur af hólmi með nýrri og fullkomnari bíl. Þessi var af Bedford gerð með öflugri dælu. Dælan og allur annar búnaður sem hægt var að nota áfram var tekin úr bílnum áður en hann var sendu burt á bílasafn.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 038
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Kristján Birgisson og Hafdís Ásgeirsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 449
Lárus Jónsson (d.3.7.1983) læknir frá Haga í Þingi. Lárus var læknir á Skagaströnd 1956 -1966 og var hann síðasti læknir Höfðalæknishéraðs en það var lagt niður 1973 og lagt undir Blönduóslæknishérað sem breytt var í heilsugæslustöð H2 sem hafa skyldi tvo lækna hið minnsta.
Árni Geir Ingvarsson - safn 852
Þetta skip Arnar Hu 1 skipaskrárnúmer 2173 var smíðað fyrir Skagstrending hf í Bergen í Noregi. Skipið kom til heimahafnar rétt fyrir jól 1992 og var eitt glæsilegast skip íslenska flotans á þeim tíma. Skipið var svo selt til Grænlands í október 1995 eftir að mikill kvótaniðurskurður á Íslandi hafi kippt rekstargrundvelli þess í burtu. Keypt var annað ódýrara skip frá Rússlandi sem einnig var skírt Arnar Hu 1 með skipaskrárnúmerið 2265. Það skip var einnig smíðað í Noregi árið 1986.
Árni Geir Ingvarsson - safn 778
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn. Bíllinn var í eigu Benedikts Ólafssonar sem gerði út vöruflutningabíla frá Blönduósi í allmörg ár
Hallgrímur Kristmundsson safn007
Miðað við hvernig allt er útatað í hreistri þá er Elsa á síldveiðum. Maðurinn á myndinni er óþekktur en neðst til vinstri sér í háfinn sem síldin var háfuð með um borð úr nótinni. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 386
Mánavör hf byggði marga stóra og smáa plastbáta. Til þess þarf að hafa mót til að steypa skrokkinn. Á myndinni er eitt af þessum mótum sem Mánavör notaði til að steypa 13 tonna báta.
Árni Geir Ingvarsson - safn 738
Reglulega þarf að dæla eða moka sandi af botninum í Skagastrandarhöfn. Sandurinn berst inn í höfnina frá ánum á ströndinni inn með landinu. Á þessari mynd er verið dýpka með því að moka sandi í pramma sem síðan fer með hvert fullfermið á fætur öðru fram fyrir Höfðann þar sem botninn er opnaður og sandinum hleypt niður.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 039
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Hulda Birna Frímannsdóttir, Rut Jónasdóttir, Erla Sigurbjörnsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson og Hrönn Valgarðsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 274
Jón Sveinn Pálsson kennari og skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd. Jón tók við af föður sínum, Páli Jónssyni (d.19.7.1979), sem skólatjóri 1966 og gegndi því starfi til 1986.
Árni Geir Ingvarsson - safn 756
Á myndinni eru þrír áhugamenn um mótorkross-akstur að útbúa braut fyrir sig í krúsinni á melunum fyrir ofan Spákonufellsrétt. Eftir að hún var tilbúinn var hún vel nýtt af hópi áhugamanna á Skagaströnd í nokkur ár. Eftir alvarlagt slys á svæðinu dró úr notkuninni og undir það síðasta (2016) hefur brautin verið lítið notuð. Áhugamennirnir á myndinni eru frá vinstri: frændurnir Björn Sigurðsson, Björn Hallbjörnsson og Ragnar Einarsson sem stendur hjá þeim.
Árni Geir Ingvarsson - safn 940
Þrír sjómenn slaka á um borð. Mennirnir eru óþekktir en Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson671
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson kom til hafnar á Skagaströnd í mars 2008 með gamalt tundurdufl sem þeir fengu í trollið. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Á myndinni eru tveir óþekktir skipverjar að koma sprengihleðslunni fyrir á kerru aftan í bíl björgunarsveitarinnar Strandar. Kristján Pétur Guðjónsson úr Strönd og Höskuldur B. Erlingsson lögreglumaður bíða eftir að geta flutt hana á eyðingarstaðinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 931
Tveir menn að lagfæra bát, líklega á Djúpavík. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 885
Falleg mynd frá Djúpuvík. Greinilega stendur eitthvað til því það er fullt af fólki á bryggjunni. Síldarverksmiðan er til vinstri og söltunarplanið fremst á bryggjukantinum framan við hana. Báturinn, sem sést í forgrunni á myndinni hét Nonni, venjulega kallaður skemmtibáturinn Nonni. Tómas Jónsson frá Reykjanesi sá um þennan bát og var skipstjóri á honum. Báturinn var notaður í sendiferðir fyrir verksmiðjuna, til dæmis út á Gjögur eða yfir fjörðinn með fólk. Þegar lítið var um að vera var farið með fólk i skemmtiferðir um fjörðinn, og jafnvel til Hólmavíkur.<br>Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 2.4.2007) sennilega kringum 1940.
Héraðsskjalasafn A-Hún 384
Nýbyggð Höskuldstaðakirkja var vígð 31.mars 1963 og þá var þessi mynd tekin. Biskupinn yfir Íslandi Herra Sigurbjörn Einarsson vígði kirkjuna að viðstöddum prestum úr prófastsdæminu og fleirum. Á myndinni er Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) fyrir miðju. Vinstra megin fjær situr séra Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991) en hinn presturinn er óþekktur. Hægra megin situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) nær en hinn presturinn er óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu prestana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 442
Þessi mynd af Jóni Jónssyni var tekin um áramótin 1985-86 þegar hann lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins.
Jósef H Sigurðsson - safn 065
Bræðurnir Jósep Sigurðsson (nær) og Hjörtur Sigurðsson (d.9.5.2015) (fjær) vinna saman að einhvers konsar viðhaldi á gólfi heima í Hólaneshúsinu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 383
Myndin var tekin af þessum tveimur heiðursmönnum í tengslum við fund hjá sýslunefnd A-Húnavatnssýslu þar sem þeir voru báðir kjörnir nefndarmenn síns sveitarfélags. Vinstra megin er Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) á Skagaströnd fyrir Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) og til hægri er Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum fyrir Sveinsstaðahrepp (nú Húnavatnshreppur).
Hallgrímur Kristmundsson safn009
Ekkert er vitað um þennan ómerkta bát né heldur hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugsemd um það.
Árni Geir Ingvarsson - safn 754
Hér eru þeir á kunnuglegum slóðum tengdafeðgarnir Magnús B. Jónsson til vinstri og Viggó Brynjólfsson til hægri. Viggó byrjaði ungur að vinna á eigin jarðýtum og öðrum vinnuvélum og Magnús vann lengi á þessum tækjum hjá tengdaföður sínum.
Jósef H Sigurðsson - safn 012
Gunnar Reynisson um borð í óþekktum bát.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 028
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Jón Ingvar Valdimarsson, Sigríður Einarsdóttir, Gunnar Ásgeirsson, Erla Kristinsdóttir og óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 271
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) Frá Skagaströnd. Guðmundur var húsasmiður og umsvifamikill atvinnurekandi á Skagaströnd. Rak trésmíðaverkstæði og skipasmíðastöð auk þess að vera frumkvöðull að stofnun, og fyrsti framkvæmdastjóri, Rækjuvinnslunnar hf.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 032
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Ársæll Guðmundsson, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Helgi Marínó Magnússon og Jón Ingvar Valdimarsson
Árni Geir Ingvarsson - safn 851
Myndin var tekin aftur eftir trolldekkinu á Arnari Hu 1 skipaskrárnúmer 2173. Þessi Arnar var gerður út af Skagstrendingi hf árin 1993 - 1995 er hann var seldur til Grænlands.
Árni Geir Ingvarsson - safn 730
Smári Hf 122 slitnaði upp í höfninni og endaði upp í grjótvörninni í krikanum milli Sægarðs og Ásgarðs. Báturinn brotnaði eitthvað þannig að leki kom að honum. Hann var síðan tekinn á land og gerður sjóklár á ný.
Ólafur Bernódusson700
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd bindur Davíð Bragi Björgvinsson skóþveng sinn á æfingu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 850
Þessi mynd var tekin þegar Arnar Hu 1 2173 kom til Skagastrandar rétt fyrir jól 1992 ný smíðaður í Bergen í Noregi. Karlarnir í brúnni eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipsstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson fyrsti stýrimaður, Ernst Berndsen 1. vélstjóri, Gylfi Sigurðsson stjórnarformaður Skagstrendings hf og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri fyriortækisins.
Jósef H Sigurðsson - safn 008
Auðbjörg Hu 6 í höfn.
Ólafur Bernódusson674
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er áð við álfastein á leiðinni upp með Skagaströnd í baksýn. Hönd er lögð á steininn til að komast í samband við álfana í honum. Margrét Einarsdóttir reynir að ná sambandi með tvíþumla ullarvettling á hinni hendinni til að bæta sambandið. Beint aftan við Margréti er Ólafur Bernódusson og til hægri er Helgi Gunnarsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 707
Þessir tveir ungu menn taka gjarnan að sér hellu- og steinalagnir fyrir fólk og fyrirtæki. Á myndinni eru þeir að undirbúa hellulögn við hús á Blönduósi. Stefán Sveinsson til vinstri og Vilhjálmur Jónsson til hægri.
Jón Jónsson 447
Þessi mynd, sem var líklega tekin 1985, er af þeim Þórunni Óladóttur til vinstri, Þórarni Hjartarsyni (d. 28.1.1991) og Sigurbjörgu Angantýsdóttur (d. 10.9.1997) til hægri að vigta og pakka rækju í neytendapakkningar í Rækjuvinnslunni hf. Greinilegt að Þórarni leiðist ekki í vinnunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 727
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Alma Eik Sævarsdóttir og Ellen Lind Sigurjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 763
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Á þessari mynd eru nágrannar Árness að fylgjast með framkvæmdum við húsið. Frá vinstri: Lilja Nótt Sævarsdóttir, Heiðar Sigurbjörnsson og Rósa Björg Högnadóttir en þau bjuggu í Miðnesi á þessum tíma.
Jón Jónsson 391
Myndin er af þeim Guðmundi Jóhannessyni til vinstri og Sigurði Bjarnasyni til hægri í vinnunni við hreinsikeflin í Rækjuvinnslunni hf. Eftir að rækjan hafði verið soðin fór hún eftir þessum keflum sem slitu af henni skelina áður en hún fór áfram á færibandið þar sem lokahreinsun fór fram áður en hún fór í frystingu og pökkun.
Árni Geir Ingvarsson - safn 950
Myndin er tekin yfir Djúpavík þegar allt var í fullum gangi við síldarbræðslu í verksmiðjunni og margir bátar í höfn. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Hallgrímur Kristmundsson safn021
Skemmtileg mynd af Skagastrandarhöfn tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1944. Bryggjan í forgrunninum, þar sem fiskaðgerð er í gangi, var byggð 1922 -1923 með sameiginlegu átaki sjómanna á Skagaströnd. Hafnarhúsið, sem er á myndinni, var reist 1935 á þessum stað en flutt á núverandi stað 1943 eða 1944 til að rýma fyrir byggingu síldarverksmiðjunnar. Í dag sést því miður hvorki tangur né tetur af gömlu bryggjunni í forgrunninum.
Jósef H Sigurðsson - safn 013
Jósep Sigurðsson slakar á í sólinni um borð í óþekktum ísfiskstogara.
Hallgrímur Kristmundsson safn033
Þessi bátur er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn031
Óþekktur síldarbátur á fullu stími. Ef þú þekkir bátinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 388
Þessi mynd var líklega tekin við kirkjuvígslu eða þegar séra Sigurður Stefánsson var vígður sem vígslubiskup 1959 á Hólum í Hjaltadal. Prestarnir á myndinni eru frá vinstri: herra Ásmundur Guðmundsson fráfarandi biskup, séra Sigurður Stefánsson prófastur og vígslubiskup á Möðruvöllum í Hörgárdal, herra Sigurbjörn Einarsson biskup og séra Bjarni Jónsson vígslubiskup.
Árni Geir Ingvarsson - safn 970
Óþekktur sjómaður um borð í bát sínum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 702
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni eru þeir Almar Fannarsson til vinstri og Indriði Björnsson til hægri að vinna við að gera lítið steinalagt torg þar sem Shell tankurinn stóð við enda vegslóðans upp á Höfðann.
Árni Geir Ingvarsson - safn 912
Síldarverksmiðjan í Djúpavík og sér út Reykjarfjörð. Myndin a tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940.
Jósef H Sigurðsson - safn 085
Myndin var tekin í sal frystihúss Hólaness hf þar sem í dag (2017) er listamiðstöðin Nes. Á miðri mynd er Sigurður Magnússon (d.2.8.2015) verkstjóri. Ragnheiður Sigurjónsdóttir úr Sunnuhlíð er lengst til vinstri og bak við hana er Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) (d.6.3.2007) frá Læk. Á móti Diddu er Guðný Finnsdóttir og við hliðina á henni er Hrafnhildur Jóhannsdóttir úr Blálandi. Maðurinn sem ber yfir Sigurð, í hvítum jakka með dökkan sixpensara, er Árni Kristófersson (d.11.10.1982) frá Árnesi og flakarinn lengst til hægri er Ari Ólafsson úr Sævarlandi. Ari snýr baki í Jón Árnason (d.11.4.1986) frá Náttbrún/Ólafsvöllum en á móti Jóni, með hvíta húfu, er Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum. Milli Sigurðar og Árna er líklega Lilja Ásmundsdóttir? (d.2.4.1990) frá Holti. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Hallgrímur Kristmundsson safn028
Því miður eru þessir sjómenn óþekktir þannig að ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá afhugasemd.
Jón Jónsson 400
Þessi mynd var tekin af húsnæði plastverksmiðjunnar Mark hf við Oddagötu eftir bruna sem þar varð 14. apríl 1989. Var það í annað sinn á þremur árum sem stórbruni varð hjá fyrirtækinu. Eins og sjá má var húsið mjög illa farið eftir brunan og öll verkfæri og mót ónýttust.
Ólafur Bernódusson670
Húnabjörg kemur úr útkalli í mars 2008. Tilefnið var að rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fékk gamalt tundurdufl í trollið og fékk Húnabjörgina sem fylgdarskip til hafnar. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Mennirnir á Húnabjörginni eru, uppi í brú: Ágúst Ómarsson gulklæddur og Bjarni Ottósson í rauðri peysu. Framan við brúna eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Reynir Lýðsson, Guðmundur Jón Björnsson og Stefán Sveinsson.
1
…
36
37
38
…
75
Leita í myndasafninu
Leita