Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson630
Reyk- og neftóbakspása á Vélaverkstæði Skagastrandar. Frá vinstri: Óli Axel Óskarsson, Ari Þórsson og Ástmar Sigurjónsson. Óli og Ari eru starfsmenn verkstæðisins en Ástmar er menntaður vélstjóri. Myndin var tekin í febrúar 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 963
Snjómokstur í Bankastræti líklega vorið 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 904
Hlaðinn síldarbátur á Reykarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Jósef H Sigurðsson - safn 015
Jósep Sigurðsson í matsalnum á einhverju óþekktu skipi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hallgrímur Kristmundsson safn070
Hafnarsvæðið á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1944 - 1947. Stóra síldarskemman var enn í byggingu þegar myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson629
Jón Ólafur Sigurjónsson stendur hér við vettlingaþurrkara sem framleiddir eru á vinnustað hans, Vélaverkstæði Skagastrandar. Myndin var tekin 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 742
Það verður að teljast óvenjulegt, a.m.k. í seinni tíð, að það þurfi að smala kindum á höfninni. Þessar kindur voru þó að villast þar og fóru m.a. fram á Útgarð til að skoða sig um. Á myndinni eru Stefán Sveinsson til vinstri og Rúnar Jóhannsson til hægri að smala þeim í aðhald þar sem hægt var að skoða mörkin til að komast að hver átti þessar hafnarrollur.
Hallgrímur Kristmundsson safn032
Báturinn á myndinni er óþekktur. Verið er að taka nótina því nótabáturinn liggur við hlið bátsins en inn í hann var nótin dregin, á handafli, og síðan var háfað úr nótinni um borð í bátinn sjálfan. Ef þú veist hvaða bátur þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 739
Ás á Skagaströnd. Maðurinn sem er að slá fyrir utan húsið er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) sem átti heima í Ási.
Árni Geir Ingvarsson - safn 721
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Stúlkan á myndinni er Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 004
Þessi mynd var tekin í matsalnum á ókunnu skipi af þeim skipsfélögum Jósep Sigurðssyni vinstra megin og Erni Berg Guðmundssyni (Assa) til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 040
Myndin var tekin um borð í Aðalbjörgu Hu 7 af Hartmann Jóhannessyni (d.22.12.1976) nær og Viggó Maríusson (d. ?) fjær. Ekki er vitað í hvaða höfn myndin var tekin né heldur hvenær.
Elínborg Jónsdóttir - safn 31
Sláttur í sumarblíðu á túninu við Másstaði í Vatnsdal. Í baksýn standa Víðidalsfjöllin á haus í Flóðinu í Vatnsdalsánni. Hestasláttuvélar voru ekki fluttar til landsins í neinu magni fyrr en eftir 1925. Þær þóttu algjör munaður miðað við að áður var allt slegið með orfi og ljá. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 934
Fjör um borð í nótabát, harmónikuspil og gaman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega í Siglufirði?. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 751
Með tilkomu Nes listamiðstöðvar hafa listamenn af ýmsu þjóðerni og ýmsum gerðum dvalið á Skagaströnd í lengri og skemmri tíma. Margir þeirra hafa auðgað mannlífið með nærveru sinni og uppátækjum. Hér hefur einn listamaðurinn sest upp við vegg Hólanesshússins í góðviðri og er að teikna það sem fyrir augun ber í skissubókina sína. Maðurinn er óþekktur.
Hallgrímur Kristmundsson safn006
Myndin var líklega tekin í Skagafirði (Þórðarhöfði og Málmey í baksýn?) af þremur sjómönnum á spjalli um borð. Mennirnir eru óþekktir og líka hvenær myndi var tekin. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 035
Kvennaskólastúlkur kvennaskólans á Blönduósi veturinn í apríl 1960. Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti á Skagaströnd er önnur frá vinstri en hinar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 419
Ole Aamundsen (d.?) - Óli norski - í Lundi á Skagaströnd. Ole var athafnamaður og rak lifrarbræðslu og útgerð á Skagaströnd jafnframt því að vera umboðsmaður fyrir Shell olíufélagið.
Jón Jónsson 380
Þessi mynd var tekin 1985 í Rækjuvinnslunni hf. Konurnar við færibandið hreinsuðu skeljabrot og annað, sem ekki átti að vera með, úr soðinni rækju á bandinu áður en rækjan fór svo til baka í frystingu og þaðan í pökkun. Færiböndin voru þrjú á þessum tíma og við hvert band unnu sex konur ef fullskipað var. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir snýr baki í okkur, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), óþekkt og Guðmundur Jóhannesson. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn040
Nokkrar óþekktar stúlkur að salta síld. Konur voru yfirleitt alltaf með slæðu eða eitthvað annað yfir hárinu við söltunina. Ekki er víst að það hafi verið gert til að hár færu ekki í tunnuna með síldinni heldur vildu konur ekki fá hreistur, sem er mikill fylgifiskur síldarinnar, í hár sitt. Konurnar á myndinni eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 964
Á myndinni er verið að vinna að grjótvörn sunnan við gamla frystihúsið við Einbúastíg. Grjótlagerinn er í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 892
Drekkhlaðinn síldarbátur á miðunum 1965 með nótabát við síðuna. Ekki er vitað hvaða bátur þetta er en hann hefur verið GK 430 eða EA 430. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 880
Myndin er tekin á svokallaðri lægri-brún beint fyrir ofan Djúpuvík. Þarna hefur vinnuflokkur frá verksmiðjunni nýlokið við að losa krapastíflu í Djúpavíkurá. Hún var þá stífluð vegna kraps fyrir ofan brúnina og óttast var að stíflan mundi að endingu bresta og áin, með sínu krapaflóði, steypast fram af brúninni og lenda á verksmiðjunni. Nokkrar ljósmyndir er til af þessum atburði en þessa mynd tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) árið 1949.
Ólafur Bernódusson624
Guðbjartur er einn af fjölmörgum bátum sem gert hafa út frá Skagaströnd gegnum tíðina. 10. október 2007 var hann að fara í línuróður á myrkri nóttu. Á sama tíma var Húnabjörgin, björgunarbátur Landsbjargar á Skagaströnd, að fara í útkall. Þegar Húnabjörgin var við að fara fram úr Guðbjarti, rétt norður af Höfðanum, beygði hann skyndilega á stjórnborð, þvert fyrir Húnabjörgina, sem skall á Guðbjarti af fullum þunga. Afleiðingarnar sjást á þessari mynd því báturinn brotnaði mikið og tæki í stýrishúsinu eyðilögðust. Húnabjörgin skemmdist lítið og gat haldið afram í útkallið eftir að hafa fylgt Guðbjarti til hafnar. Skipstjóri Guðbjarts hafði setið í stólnum, sem var þar sem Húnabjörgin kom á bátinn, niðursokkinn við dýptarmælinn þegar áreksturinn varð. Hann hentist úr stólnum niður á gólf en slapp með skrámur. Á myndinni eru menn að skoða skemmdirnar á Guðbjarti. Frá vinstri: Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013), tveir óþekktir, Hafsteinn Pálsson og Sigurjón Guðbjartsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 777
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn.
Ólafur Bernódusson699
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Þessi mynd er af tveimur leikurum í sýningunni í gervum sínum: Steindór Haraldsson er til vinstri og Fjölnir Ásbjörnsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 8
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) verkstjóri til hægri að koma fyrir vinnupalli til að nota við niðurrekstur á stálþilinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 943
Þrímastra skúta kemur til hafnar á Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940.
Elínborg Jónsdóttir - safn 28
Á myndinni er verið að breiða úr ull á grasvelli til þurkunar eftir að hún hafði verið þvegin í stórum potti með sjóðandi vatni og síðan skoluð í bæjarlæknum. Myndin var tekin hjá bænum Másstöðum í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær og fólkið á myndinni er óþekkt.
Jón Jónsson 379
Rækjuvinnslan hf var í áratugi einn af burðarásum atvinnulífsins á Skagaströnd. Fyrirtækið var ávallt búið nýjustu tækni við vinnsluna og var í fremstu röð í heiminum í framleiðslu á frosinni rækju í neytendapakkningum. Á tímabilum var fyrirtækið keyrt á þremur vöktum dag og nótt og hafði fjölda starfsmanna. Á þessari mynd sem tekin var 1985, af einni vaktinni, má telja a.m.k. 16 konur við að hreinsa og pakka rækju. Hinum megin við plexiglervegginn voru síðan starfsmenn við móttöku, suðu og frystingu í "vélasalnum". Starfssemi við rækjuvinnslu var síðan lögð niður þegar Skagstrendingur hf, sem átti vinnsluna undir það síðasta, fór undir eignarhald Fisk Seafood á Sauðárkróki.
Jósef H Sigurðsson - safn 077
Samkvæmt áletrun á þessari mynd var hún tekin á síldarmatnsmannanámskeiði í júní 1955. Ekki er vitað hvar myndin var tekin og mennirnir eru óþekktir nema Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) sem er lengst til vinstri í aftari röð. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 009
Það liggur vel á Heimi Sigurbjörnssyni um borð í óþekktum bát. Maðurinn á bak við dekkið er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 052
Húni Hu 1 í höfn á Skagaströnd með fullfermi af síld sem bíður löndunar. Kassinn á söltunarplaninu er fullur af síld en síldarstúlkurnar eru ekki komnar enda enn verið að undirbúa söltunina. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Héraðsskjalasafn A-Hún 313
Myndin, sem sýnir grjótnám í Spákonufellshöfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Grjótið var sprengt og síðan flutt í uppfyllingu og/eða varnargarð við hafnargerð á Skagaströnd. Maðurinn í munstruðu peysunni er líklega Krsitján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Vík og bærinn sem sést á henni var Ægissíða, sem nú er löngu horfin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 893
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 061
Haustið og veturinn 1994 byggðu Helgi Gunnarsson og starfsmenn hans tvö ræsi á og við þjóðveginn við Húnaver. Á þessari mynd er fyrra ræsinu lokið og sést það í baksýn en framkvæmdir standa yfir við síðara ræsið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema bílstjórinn sem er að hífa er Sigurjón Ástmarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 7
Líklega eru þeir á silungsveiðum á Kambi, Ragnar Smári Ingvarsson og óþekktur ræðari. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 823
Þessir ungu menn skipuðu hljómsveitina Jójó ásamt Fannari Viggóssyni. Strákarnir eru frá vinstri: Ingimar Oddsson, Kristján Blöndal, Viggó Magnússon og Jón Arnarson. Jójó gerði garðinn frægan um tíma á Íslandi eftir að hafa unnið í Músiktilraunum 1988, sérstaklega með laginu "Stæltir strákar á ströndinni"
Árni Geir Ingvarsson - safn 716
Þessir þrír vinir fylgdust spennt með breytingum á skólalóðinni líklega kringum 2010. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Daði Stefánsson og Valgerður Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 946
Síldarlöndun á Djúpavík úr Fróðakletti GK 250. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 29
Á myndinni er verið að þó ull. Fyrst var hún þvegin í heitu vatni í pottinum á myndinni og síðan var hún skoluð í bæjarlæknum. Að því loknu var hún breidd út á grasbala til að þurka hana. Áður fyrr var notuð keyta (staðið hland) til að þvo ullina og ná úr henni fitunni. Hún var svo að sjálfsögðu skoluð vel á eftir og þurkuð áður en farið var að vinna frekar með hana. Myndin var tekin nálægt Másstöðum í Vatnsdal en ekki er vitað hvenær og fólkið er óþekkt.
Hallgrímur Kristmundsson safn030
Sjómennska er ekki bara eintómt puð og pus. Á þessari mynd taka menn sig saman og spila á gítara og syngja sitjandi á síldarnótinni aftur á í skipi sínu. Einn getur þó ekki stillt sig um að taka í kríulöpp á meðan. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 6
Snjó mokað af þökum húsa við Bogabraut líklega veturinn 1995 - 96. Þá þurfti að moka af þökum húsa við Bogabraut og Sunnuveg vegna hrunhættu af snjóþunga. Einnig var mokað af þaki Vélaverkstæðisins. Moksturinn var snúinn vegna þess hve erfitt var að koma snjónum frá sér.
Hallgrímur Kristmundsson safn034
Óþekktur bátur á síldveiðum. Ef þú þekkir bátinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn038
Karlarnir á myndinni eru að vinna við síldarnætur um borð í tveimur nótabátum. Svona bátar voru dregnir á eftir síldarbátum og þegar til veiðanna kom þá var nótin dregin um borð í þessa báta til að þrengja að síldinni í nótinni. Þaðan var hún svo háfuð um borð í síldarbátinn sjálfan. Eins og sjá má er komið spil um borð í bátinn nær okkur en þar sem engin vél var í nótabátunum var spilið handknúið og notað til að snurpa þ.e. loka nótinni að neðan til að búa til poka úr henni.
Hallgrímur Kristmundsson safn039
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Hann hefur tyllt sér á kaðalhönk og virðir fyrir sér síldarnótina eða trollið fyrir framan sig. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 445
Jón Jónsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf um áramótin 1985-86. Af því tilefni hélt Jón samstarfsfólki sínu samkvæmi en myndin var tekin við þetta tækifæri á kaffistofu fyrirtækisins. Á myndinni eru frá hægri: Guðný Sigurðardóttir, Hrönn Árnadóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Kristín Sigurðardóttir og Svanhildur Lýðsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 352
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni og karlarnir komnir út á ísinn í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 714
Framlag vinnuskólakrakkanna við umhirðu og fegrun bæjarins er oft vanmetið og fólki hættir til að tala niður til þeirra. Það er þó algjör óþarfi því þau leggja gjörva hönd á margt sem til framfara horfir. Á þessari mynd eru þau að þökuleggja sár sem myndaðist við niðurrif hússins sem eitt sinn hýsti verslunina Borg. Krakkarnir eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Silfá Sjöfn Árnadóttir og ?Katrín Guðmundsdóttir?.
Árni Geir Ingvarsson - safn 853
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd. Á netinu má finns eftirfarandi lýsingu á Borgarvirki og sögu þess:<br><br>"Borgarvirki er klettaborg er stendur á ásnum milli Vesturhóps og Víðidals og er um 177 metra yfir sjávarmáli. Talið er að Borgarvirki sé gosstapi sem myndaðist við eldgos á hlýskeiði ísaldar. Efst í virkinu er 5-6 metra djúp skeifulaga dæld með skarð er snýr til austurs. Þar er hlaðinni grjótveggur frá fornu en hann var endurhlaðinn á árunum 1940-50 og víðar á Borgavirki má sjá hleðslur. Borgarvirki er friðað vegna minja, en inn í virkinu eru rústir af tveimur skálum og skammt frá þeim hruninn brunnur.<br><br>Samkvæmt sögnum var Borgarvirki nýtt sem virki á þjóðveldisöld. Og segir sagan að þar hafi Víga-Barði Guðmundsson í Ásbjarnarnesi verið á ferð. Hann deildi við Borgfirðinga eins og segir frá í Heiðarvíga sögu. Sagt er að óvinir hans hafi komið að sunnan með óvígan her. En Barði barst af því njósnir og kom sér og sínum mönnum fyrir í Borgarvirki, þar sem ómögulegt reyndist að sækja að honum. Tóku Borgfirðingar á það ráð að ætla að svelta Barða og hans menn inni. Þegar matinn þraut tóku virkisbúar sig til og hentu síðasta mörsiðrinu (sláturkeppnum) út úr virkinu. Voru þá Borgfirðingar vissir um að Barði hefði nægar vistir og héldu heim á leið. Frábært útsýni er úr Borgarvirki og þar hefur verið sett upp útsýnisskífa. Í tengslum við unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi er haldnir einstakir tónleikar í Borgarvirki í júlí hvert ár". <br>( Heimild:http://www.hunathing.is/ferdamenn/athyglisverdir-stadir/borgarvirki)<br>
Adolf H Berndsen - safn085
Fiskpökkun hjá Marska ehf. Þórey Jónsdóttir og sonur hennar Guðjón Hall Sigurbjörnsson pakka sjófrystum fiskflökum í neytendapakkningar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn083
Eftir nokkra undirbúningsvinnu er hér verið að koma golfskálanum á Háagerðisvelli fyrir á undirstöðum sínum sumarið 1991. Skálinn hafði áður gegnt hlutverki rafmagnsverkstæðis Hólaness hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 945
Líklega er þetta færeyskur kútter á Íslandsmiðum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) úti á rúmsjó sennilega einhverntíma kringum 1960.
Jósef H Sigurðsson - safn 079
Þessi mynd var tekin yfir flökunarsalinn í frystihúsi Hólaness hf þar sem í dag (2017) er listamiðstöðin Nes. Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) verkstjóri úr Hólaneshúsinu sést neðst í horninu til vinstri. Flakarinn í dökku peysunni með hvítar ermar er Ari Ólafsson úr Sævarlandi, Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði er í dökkri peysu með munstri yfir brjóstið og Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996) úr Sóllundi er lengst til hægri með dökkar ermar. Í miðjunni aftan við bandið er Björn Guðmundsson (Biddi) frá Árbakka og aftan við hann eru Jóhann Jakobsson (d.24.3.2987) frá Blálandi og Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) á Iðavöllum. Maðurinn framan við Bidda er líklega Ólafur Guðlaugsson? (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson685
Öskudags-grímuball var haldið á vegum Höfðaskóla 6.febrúar 2008 í Fellsborg. Kennarar og fleiri tóku fullan þátt í gamninu og á myndinni er Ágúst Ingi Ágústsson kennari við Höfðaskóla á þessum tíma.
Ólafur Bernódusson684
Öskudags-grímuball var haldið á vegum Höfðaskóla 6.febrúar 2008 í Fellsborg. Kennarar og fleiri tóku fullan þátt í gamninu og á myndinni eru kennararnir Elva Þórisdóttir til vinstri og Helga Ólína Aradóttir til hægri í gervum sínum þetta kvöld.
Árni Geir Ingvarsson - safn 766
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Endurbyggingin var í höndum Trésmiðju Helga Gunnarssonar á Skagaströnd. Á myndinni er verkið komið á lokametrana og vinna hafin við að þökuleggja lóðina kringum húsið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 913
Óþekktir menn í Djúpuvík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir manninn fremst á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 780
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir gröfu við snjómokstur í miklum snjó við Karlsskála.
Árni Geir Ingvarsson - safn 930
Bátur kemur til hafnar á Djúpavík hlaðinn fólki. Nafn bátsins er óþekkt en á kinnungnum stendur GK 515. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940.
1
…
37
38
39
…
75
Leita í myndasafninu
Leita