Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn086
Hópur fólks að þökuleggja flötina -"greenið"- á einni af brautunum á golfvellinum á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Guðmundur Kristinsson er með appelsínugulu gúmmívetlingana en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn088
Beðið eftir næsta skammti af þökum til að leggja á flötina á braut 4 á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Frá vinstri: Fríða Hafsteinsdóttir, Adolf H. Berndsen, óþekktur drengur og Sigurður Berndsen. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 015
Auðbjörg Hu 6 í slipp á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 903
Síldarsöltun á plani og síldarbræðsla í verksmiðjunni í fullum gangi á Djúpuvík. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 054
Myndin var tekin um borð í Aðalbjörgu Hu 7 á síldveiðum líklega sumarið 1961. Maðurinn á myndinni er Snorri Gíslason (d.29.5.1994).
Adolf H Berndsen - safn040
Myndin er af fyrstu sjoppunni á Skagaströnd en hún var rekin í græna timburhúsinu sem stendur vinstra megin við við Karlsskála. Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á Karlsskála var umboðsmaður fyrir olíufélagið BP á Íslandi og rak hann sjoppuna með Helgu dóttur sinni. Bensíndæla frá BP var fyrir utan sjoppuna eins og sést á myndinni. Ein af nýungunum sem sjoppan var með á sínum tíma var að fara að selja ís, pinnaís og ís í pökkum, upp úr frystikistu í sjoppunni. Lengst af var ekki fastur opnunartími í sjoppunni heldur þurfti að fara og banka á dyrnar á Karlsskála og biðja um afgreiðslu. Sjoppan var rekin í allmörg ár á árunum um og eftir 1960. Myndin var tekin á sjómannadaginn 1964 og konurnar á myndinni eru Oddný Þórisdóttir og Bára Þórðardóttir. Strákarnir eru Vilhelm Harðarsson nær og Aðalsteinn Jörgensen fjær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 724
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Á myndinni eru ?Ellen Lind Sigurjónsdóttir? til vinstri og Indriði Björnsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 779
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Ekki mátti miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn. Á þessari mynd er Sigurjón Ástmarsson vörubifreiðastjóri að koma fyrir böndum á bílinn til að geta lyft honum upp úr gjótunni með krananum á bílnum sínum.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn060
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Þessi mynd var tekin af nokkrum konum í eldhúsinu í Fellsborg að undirbúa kvöldverð og skemmtikvöld sem þær héldu í hópnum. Vigdís Elva Þorgeirsdóttir til vinstri og Eygló Gunnarsdóttir til hægri undirbúa veisluna ásamt fleirum sem eru óþekktar.
Ólafur Bernódusson681
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er fólk komið niður af Borgarhausnum aftur en þá beið hópsins veislukaffi í golfskálanum á vegum Spákonuhofsins. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Jónmundur Ólafsson og Magnús B. Jónsson að gæða sér á veitingunum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 9
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á þessari mynd eru byrjunarframkvæmdir í gangi. Verið er að byggja vinnupall á staurum sem hafa verið reknir niður. Vinnupallurinn var svo notaður til að reka niður fleiri staura og síðan til að stilla af stálplöturnar sem reknar voru niður og mynda viðlegukantinn í dag. Maðurinn á flekanum er Ólafur Bernódusson og yfir honum stendur Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) verkstjóri. Magnús Blöndal (d.7.9.2001) stendur við plankastaflann við kranann.
Adolf H Berndsen - safn 043
Þessi mynd var tekin 1925. Bryggjan á myndinni var staðsett rétt austan við Hólsnefið, sem er syðsti endi Spákonufellshöfða. Hún var byggð 1922 með 130 dagsverka vinnuframlagi sjómanna á Skagaströnd en Verslunarfélag Vindhælinga fjármagnaði verkið að öðru leiti. Bryggjan var hlaðin úr grjóti, um 40 metra löng og fimm til átta metra breið. Fremst var svo grjótfyllt timburverk. Hlaðni hlutinn var með steyptu plani eins og sjá má á myndinni. Bryggjan kostaði um 80 þúsund krónur á sínum tíma sem þóttu miklir peningar. Lengst af gekk hún undir nafninu Litla bryggjan manna á meðal. Á þessari mynd er aðgerð í gangi en mennirnir á henni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 056
Ósk Hu 33 á siglingu á grásleppuvertíð. Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) frá Kambakoti átti bátinn og gerði hann út. Á myndinni dregur Óskin litla skektu sem notuð var til að vitja um grásleppunetin. Aflanum var svo landað um borð í Óskina og skorin þar meðan annar maður hélt áfram umvitjunum á skektunni. Maðurinn á dekkinu er annað hvort Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) eða Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) en þeir voru lengi samstarfmenn Stefáns við grásleppuveiðina.
Hjördís Sigurðardóttir - safn134
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Adolf H. Berndsen og Fríða Hafsteinsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 071
Það var alltaf stutt í gleðina hjá þessu fólki, sem var við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Á myndinni er Þórarinn Hjartarson (d.28.1.1991) með tvíburasystrunum Guðrúnu Angantýsdóttur til vinstri og Sigurbjörgu Angantýsdóttur (d.10.9.1997) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 043
Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) frá Kambakoti sker grásleppu um borð í bát sínum Ósk Hu 33. Stefán gerði Óskina út á grásleppu margar vertíðir og þá gjarnan í samvinnu við Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) eða Indriða Hjaltason (d. 2.4.2006). Drógu þeir tvær skektur á Óskinni sem karlarnir fóru svo um borð í og vitjuðu um netin. Aflanum var síðan skilað um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppurnar meðan hinir fóru í næstu trossur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 886
Hvar var þessi mynd tekin árið 1964? Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 073
Rækjupökkun í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Þórarinn Hjartarson (d.28.1.1991) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 072
Þessir tveir menn voru verkstjórar í Rækjuvinnslunni hf í fjölda ára. Grétar Haraldsson til vinstri og Kristófer Árnason (d.10.5.2000) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 959
Sennilega voru þetta starfstúlkur í síldarmötuneytinu í Djúpuvík. Efst í hópnum trónir Ester Magnúsdóttir í Djúpuvík seinna í Hafnarfirði. Hinar stúlkurnar eru óþekktar. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir einhverja stúlknanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 957
Þegar síldarverksmiðjan var reist á Djúpavík 1934 - 1935 var ekki vegasamband þangað því vegur var ekki lagður norður í Árneshrepp fyrr en 1965. Þess vegna var sjórinn í raun þjóðvegurinn þangað og þaðan. Á myndinni má sjá litla trillu, fulla af fólki, líklega á leiðinni frá Kúvíkum inn að Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn063
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Þær héldu veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða á þrettándanum 2003 í Fellsborg þar sem þær borðuðu góðan mat og skemmtu hver annarri með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru systurnar Hjördís, til vinstri, og Guðrún Sigurðardætur að spila og syngja fyrir og með konunum í veislunni.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 043
Hrönn Árnadóttir til vinstri og Guðrún Angantýsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson 463
Þessi mynd sýnir kappróður á ísavori á Skagaströnd líklega 1965 eða 1966. Á henni sést vel færibandið sem flutti síld frá löndunarkrananum, sem er utan myndar til vinstri, og upp í þrær síldarverksmiðjunnar til hægri. Færibandið, stöplarnir undir því og þrærnar hafa nú verið fjarlægt fyrir löngu síðan. Stóri báturinn til vinstri er sennilega Helga Björg Hu 7 en báturinn utan á henni er óþekktur. Fremst við "Litlu bryggjuna", sem er nær á myndinni, er Stígandi Hu 9 og ofan við hann Ósk Hu 33. Til gamans má benda á salernisaðstöðuna - kamarinn - á höfninni en hún var í litla gráa húsinu sem ber í stöpulinn sem er næstur verksmiðjunni til hægri. Kamrinn var tvískiptur en þegar inn var komið var setst á þverspýtu í sethæð með stóru gati í miðjunni. Gegnum gatið blasti svo við sjórinn í höfninni fyrir neðan.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 045
Margar ungar stúlkur byrjuðu feril sinn á vinnumarkaðnum við pillunar-færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Á þessari mynd er Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir til vinstri og Inga Rós Sævarsdóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn061
Guðbjörg Viggósdóttir skreytir matborðið fyrir veislu félagsskaparins Líkami og sál sem haldin var í Fellsborg á þrettándanum 2003.
Árni Geir Ingvarsson - safn 891
Hér hefur orðið óhapp þar sem afturhásing vörubílsins hefur sópast undan bílnum. Ekki er gott að segja hvernig svonalagað gerist en allavega er ljóst að bíllinn fer ekki lengra í bili. Gunnar Sig. Sigurðsson á Blönduósi segir um þessa mynd: "Veit ekki hvenær myndin er tekin en giska á að það sé um 1950 -1955 eða um það bil. Mér finnst vörubílarnir vera frá þeim tíma. Ég tel að þetta óhapp hafi orðið á búnni yfir Árfarið sem er við vegamótin ínn í Vatnsdal að austan. Mér finnst, með því að stækka myndina og rýna í hana þannig, að ég sjái bæina Hnausa nær og Sveinsstaði fjær og svo mótar fyrir Vatnsdaldhólunum til vinstri á myndinni og svo Hnausatjörnina vinstra megin. Ég var búinn að sjá mynd af sama óhappi sem sýnir betur bílinn sem er út af. Þar sést greinilega að á bílnum er Ferguson dráttarvél og þær voru að koma um eða upp úr 1950". <br> Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn040
Ungur óþekktur drengur fær að prófa að fara á hestbak við Undirfellsrétt í september 2004. Rúnar Jóhannsson heldur í hestinn og Guðrún Soffía Pétursdóttir passar upp á drenginn.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 063
Veislukaffi í Rækjuvinnslunni hf. Fólkið á myndinni eru Jón Jónsson (d.9.7.1991) framkvæmdastjóri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) starfsstúlka. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 039
Glaðbeittir starfsmenn Rækjuvinnslunnar hf til margra ára á kaffistofu fyrirtækisins. Guðrún Angantýsdóttir og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 049
Sóley Elsa Magnúsdóttir kom í heimsókn í Rækjuvinnsluna hf um jól og situr í fanginu á Kristínu Sigurðardóttur á þessari mynd. Sóley Elsa hefur líklega komið með mömmu sinni Sólveigu Eiðsdóttur sem vann í vinnslunni á þessum tíma. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Páll Jóhannesson teymir tvo hyrnda hrúta hjá gömlu torfhúsi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 061
Þessir þrír voru vinnufélagar hjá Trésmiðju Helga Gunnarssonar í fjölda ára. Þeir eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Hrólfur Pétursson og Baldvin Hjaltason. Myndin var tekin á Hólabraut 10 í innflutningspartýi hjá Hjalta Indriðasyni og Cristinu Silod Yecyec sem áttu húsið. Karlarnir á myndinni unnu við byggingu hússins.
Ólafur Bernódusson663
Þessi mynd var tekin 28. september 2009 þegar hafist var handa við að rífa Auðbjörgu Hu 6 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Þar hafði Auðbjörg staðið í ellefu ár - frá 1998 - áður en hún loks var rifin. Lýður Hallbertsson til hægri og Árni Geir Ingvarsson til vinstri, standa á malarhaugnum og fylgjast með. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 769
Stefán Jósefsson í sínu eðlilega umhverfi um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 að gera klárt fyrir grásleppuveiðarnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 12
Tveir gamlir bátar í höfninni á Skagaströnd. Gauti Hu 59 til vinstri smíðaður 1963 og Arnarborg Hu 11 til hægri smíðuð 1958. Örlög þessara báta urðu ólík. Gauti var endurbyggður og fékk aftur sitt gamla nafn Húni II og þjónar nú sem glæsilegur skóla- og hvalskoðunarbátur á Akureyri, þar sem hann var byggður á sínum tíma. Arnborgin endaði aftur á móti á áramótabrennu á Skagaströnd 1993 eftir úreldingu. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Dagný Sigmarsdóttir - safn 049
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) landar grásleppum um borð í Ósk Hu 33 þar sem Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) tók við þeim og skar. Óskin dróg skektuna sem Indriði fór svo um borð í og vitjaði um netin. Aflanum var síðan skilað um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppurnar meðan Indriði hinir fór í næstu trossu.
Hjördís Sigurðardóttir - safn124
Rolf Árnason (d.3.6.2014) að mála golfskálann á Háagerðisvelli líklega 1992.
Árni Geir Ingvarsson - safn 895
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 055
Konan á myndinni er Áslaug Torfadóttir frá Drangsnesi. Hún kom til Skagastrandar sem vinnukona hjá Ole Aamundsen en fór síðan sem kokkur um borð í Aðalbjörgu HU 7. Myndin var líklega tekin í kringum 1960 í óþekktum bát.
Skagaströnd - safn430
Ásholt stendur utan í Ásholtshólnum norðan við aðal byggðina á Skagaströnd. Íbúðarhúsið er til hægri á myndinni og síðan koma sambyggð skepnuhús og hlaða eins og oft var gert á þeim tíma er Ásholt var byggt, enda töluverður búskapur stundaður af ábúendum í Ásholti.
Adolf H Berndsen - safn088
Myndin var tekin yfir höfnina á Skagaströnd einhverntíma á árunum rétt fyrir 1940. Stóra húsið á myndinni er kaupfélagið og verslunarstjórahúsið hægra megin við það. Á höfninni stendur Hafnarhúsið sem byggt var 1935 en síðan flutt á núverandi stað 1944 eða 1945. Ljósa húsið til vinstri var gamla búðin og ef grannt er skoðað má sjá að verið er að smíða ker í kerjaslippnum við Bjarmanes á Hólanesinu. Fyrsta kerið sem þar var smíðað var sjósett 1938 en ekki er vitað hvort þetta er það ker eða einhvert þeirra sem á eftir komu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 894
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Jósef H Sigurðsson - safn 033
Aftan á þessari mynd stendur að þetta sé Máni Hu 5 sem var áður Halkion Ve 27. <br>Myndin var líklega tekin þegar Máni kom til Skagastrandar fyrst í september 1960 í eigu Hólaness hf. Hann var svo talinn ónýtur og tekinn af skrá 1965. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Ólafur Bernódusson 639
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti kennaranna, frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Erna Hreinsdóttir og Agnes Sævarsdóttir. Elva og Agnes eru með "indíánafléttur" í tilefni dagsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 951
Síldarbátar í höfn á Djúpavík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á fimmta áratugnum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Báturinn næst okkur ber einkennisstafina SF 58 en nafnið er óþekkt. Á kinnunginn á stálbátnum í baksýn stendur Jörundur. Líklega er það báturinn Jörundur Bjarnason frá Bíldudal.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 053
Aðalbjörg Hu 7 á landleið með fullfermi af síld sumarið 1961. Nótabáturinn með síldarnótinni innanborðs flýtur við hlið bátsins. Ofan á borðstokkana hafa verið settar upphækkanir, "merar", til að koma fyrir meiri síld á dekkinu.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 037
Ingólfur Bjarnason á heimavelli í Rækjuvinnslunni hf en hann vann þar sem verkstjóri um árabil. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson675
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni er Sigurður Bjarnason með dætrum sínum, Svövu Sigurðardóttur til vinstri og Ingu Láru Sigurðardóttur til hægri, í vatnspásu á leiðinni á toppinn. Vinstra megin við Sigurð situr Magnús B. Jónsson að fá sér vatnssopa en hægra megin við þau feðgin stendur Stefán Ægir Lárusson og skyggnir umhverfið. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 070
Margrét Sigurðardóttir (d.8.9.1982) frá Mánaskál við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Margrét var oft kennd við Fjallsminni sem er húsið sem hún bjó í á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn087
Þökurnar sem notaðar voru á flatirnar á Háagerðisvelli voru skornar annarsstaðar á vellinum utan brauta. Á þessari mynd frá því í ágúst 1993 eru Árni Jón Guðmundsson (d. 8.11.2006) til vinstri og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) að rífa upp þökur til flutnings á rétta staði.
Guðrún Guðbjörnsdóttir118
Damian Lukasz Kacica að beita fyrir Vík - útgerðina í febrúar 2016.
Hjördís Sigurðardóttir - safn130
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Gísli Snorrason og Stefán Þór Árnason.
Hjördís Sigurðardóttir - safn123
Karl Berndsen (d.28.1.2020) lengst til vinstri, Adolf H. Berndsen og Fríða Hafsteinsdóttir gróðursetja tré á Háagerðisvelli sumarið 1996.
Jón Jónsson 483
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 775
Tilraun var gerð til að dýpka meðfram Ásgarði með krana og skóflu eins og sést á myndinni. Sandinum var mokað á vörubíla og ekið burt. Á myndinni er Scania bíll H 34, sem var í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.19.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en þessi aðferð gaf ekki nógu góða raun.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 018
Hjördís Sigurðardóttir í frystihúsgallanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hallgrímur Kristmundsson safn027
Mynd af Skagaströnd líklega tekin rétt fyrir 1950. Hafnarhúsið er komið á sinn stað en það var upphaflega byggt á hafnarsvæðinu þar sem síldarverksmiðjan reis seinna. Framan við það (vestan við það) er "Dokkin", sem átti að verða lífhöfn fyrir litla báta en var aldrei notuð sem slík. Hún var svo fyllt upp með sanddælingu þegar verið var að dýpka höfnina. Uppfylling er komin fyrir Skúffugarðinn en ekki er búið eð reka niður stálþilið sem þar er. Mörg húsanna á myndinni eru nú horfin en önnur komin í staðin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 067
Konurnar við pillunarbandið í Rækjuvinnslunni hf eru frá vinstri: Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008), Ingibjörg Skúladóttir, Díana Kristjánsdóttir og Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012).
Hjördís Sigurðardóttir - safn131
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Haraldur Árnason, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Sigurbjörn Björgvinsson og Þór Gunnlaugsson.
1
…
38
39
40
…
75
Leita í myndasafninu
Leita