Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Hjördís Sigurðardóttir - safn132
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Árni Guðbjartsson, Jóhann Björn Þórarinsson, Guðmundur J. Björnsson, Stefán Þór Árnason, Haraldur Max Árnason og Bergþór Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson 675
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru starfsfólk og nokkrir gestir sem voru á staðnum. Frá vinstri: Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofunnar, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd, Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Þorbjörg Bjarnadóttir, óþekkt, Jensína Lýðsdóttir, óþekkt, Eygló Gunnarsdóttir, óþekkt, Eva Gunnarsdóttir, Kristín Leifsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Sex síðast töldu konurnar eru starfsstúlkur greiðslustofunnar.
Adolf H Berndsen - safn069
Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á bryggjunni. Ernst átti oft erindi á bryggjuna því hann var lóðs í Húnaflóa og lóðsaði stór skip inn á hafnirnar í flóanum. Einnig sá hann lengi um skipaafgreiðsluna á Skagströnd og þurfti oft að vera á höfninni þess vegna. Maðurinn bak við Ensa er líklega sonur hans Adolf J. Berndsen en drengurinn til hægri er óþekktur. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Hjördís Sigurðardóttir - safn135
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Linda Kristjánsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Fríða Hafsteinsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 068
Grétar Haraldsson var verkstjóri í Rækjuvinnslunni hf um árabil. Á myndinni er hann við vinnu þar.
Adolf H Berndsen - safn087
Útgerðarfélagið Skagstrendingur hf var stofnað haustið 1968. Arnar Hu 1, á myndinni, var fyrsta skip útgerðarinnar og reyndist afar vel. Á þessari mynd er hann nýkomin í heimahöfn á Skagaströnd og því enn með gömlu einkennisstafi sína: ÁR 55.
Ólafur Bernódusson 688
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu. Á þessari mynd er björgunarskipið Húnabjörg að koma til hafnar eftir að hafa skutlað gæslumönnunum tveimur um borð í Bjarna. Á myndinni eru fremst, frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Guðmundur J. Björnsson, Reynir Lýðsson og Stefán Sveinsson. Uppi á stjórnpallinum eru, frá vinstri: Ágúst Ómarsson skipstjóri, Höskuldur Erlingsson lögreglumaður og Bjarni Ottósson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn059
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Þessi mynd var tekin af nokkrum konum í eldhúsinu í Fellsborg að undirbúa kvöldverð og skemmtikvöld sem þær héldu í hópnum. Frá vinstri eru: Guðrún Magnúsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir en hinar eru óþekktar nema konan í rauðu peysunni er Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 882
Vatnsleiðsla í sundur í hlíðinni fyrir ofan síldarverksmiðjuna í Djúpavík í Reykjarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn052
Stórt iðnaðarhús á Blönduósi, sem gekk undir nafninu Votmúli, stórskemmdist í eldi í september 2004. Þessi mynd sýnir útlit hússins eftir að slökkviliðið hafði lokið störfum sínum.
Ólafur Bernódusson 677
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd er félagsmálaráðherrann Magnús Stefánsson sannarlega á heimavelli með gítarinn í fanginu enda þekktur og vinsæll úr hljómsveitabransanum á Íslandi.
Hjördís Sigurðardóttir - safn089
Það lá vel á körlunum við þökulagningu á flötinni á 4. braut á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Guðmundur Kristinsson, Guðmundur Ólafsson og Adolf H. Berndsen.
Ólafur Bernódusson 667
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. á myndinni eru Sigríður Gestsdóttir til vinstri og Elín Líndal til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 064
Tveir af starfsmönnum Rækjuvinnslunnar hf. Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn064
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Á þrettándanum héldu þær veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg. Þetta frétti Kertasníkir á leið sinni aftur í fjöllin og hann gat ekki stillt sig um að kíkja við hjá konunum. Við borðið lengst til vinstri eru frá vinstri: Kristjana Jóhannsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir. Milli Hjálmfríðar og Sólrúnar sér í Báru Þorvaldsdóttur. Hægra megin við Kertasníki eru frá vinstri: óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Helga Ólína Aradóttir, Elva Þórisdóttir, Björk Hlöðversdóttir, óþekkt og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir.
Ólafur Bernódusson672
Viggó Brynjólfssyni er margt vel gefið. Eitt af því er mikil tónlistargáfa. Á myndinni, sem tekin var 31. júlí 2010, heldur hann á geisladiskinum "Viggó B. í tónum", sem hann gaf út. Þar spilar hann á harmoniku þekkt og óþekkt lög með aðstoð Fannars sonar síns á bassa og gítar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 899
Myndin var tekin á bryggjunni framan við síldarverksmiðjuna á Djúpuvík. Mennirnir tveir eru óþekktir en Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina líklega á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 78
Í skemmtiferð á vegum Hólaness hf líklega kringum 1980. Aftast er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Magnús Jónsson til vinstri, Ottó Ákason (d. 17.9.2005) til hægri og Hlíf Sveinbjörnsdóttir kona Magnúsar lengst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 10
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á þessari mynd er búið að reka niður stálþilið og koma fyrir ankerunum, sem halda við þilið. Úr ankerunum, sem eru steyptu flekarnir sem sjást hægra megin við miðju myndarinnar, er svo stálteinn út í þilið. Síðan var fyllt að ankerunum með möl og grjóti og þannig tryggt að stálþilið tollir á réttum stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 179
Á myndinni er verið að koma fyrir grjótvörn í víkinni frá Hólsnefinu að uppfyllingunni vestan við verksmiðjuna.
Skagaströnd - safn429
Í tengslum við byggingu síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd 1943-46 voru byggðir tveir risastórir tankar undir lýsi og svartolíu upp undir Höfðanum sunnanverðum. Á þessari mynd er búið að taka ofan af öðrum tankinum og breyta honum í hráolíugeymi fyrir Olís. Hinn tankurinn stendur ónotaður. Báðir þessir tankar hafa verið rifnir enda uppfylltu þeir engan vegin kröfur nútímans um mengunarvarnir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 066
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) við pillunarbandið í Rækjuvinnslunni hf.
Guðrún Guðbjörnsdóttir117
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Jóhann Ásgeirsson til hægri, beita fyrir Vík - útgerðina í febrúar 2016.
Jón Jónsson 469
Fossar í Svartárdal á réttardegi. Fjársafnið er að koma af heiðinni til réttar í Stafnsrétt. Fossar eru nú í eyði.
Adolf H Berndsen - safn084
Áslaug Hafsteinsdóttir við vinnu sína á símstöðinni. Símstöðin virkaði svipað og skiptiborð í stóru fyrirtæki. Hringt var í símstöðina og beðið um ákveðið númer eða heimili. Stúlkan, Áslaug, gaf síðan samband með því að tengja númerin saman. Símastöðin var opin frá morgni til kvölds en ekki var þjónusta á nóttunni. Einnig var hægt að koma á símstöðina og panta símtöl, t.d. út úr bænum, og fara síðan inn í annan af tveimur símaklefum, sem voru á staðnum, og taka samtalið þar. Símstöðin var staðsett í Bogabraut 10 þar sem nú (2020) er tónlistarskóli A-Hún.
Árni Geir Ingvarsson - safn 774
Gunnar Sveinsson til vinstri og Þröstur Líndal Gylfason til hægri við kaffiborðið í áhaldahúsinu 20. nóvember 2002.
Adolf H Berndsen - safn 092
Þessi mynd var tekin í Noregi í desember 1992 þegar Skagstrendingi hf var afhentur nýsmíðaður frystitogari Arnar Hu 1. Á myndinni eru nokkrir áhafnarmeðlimir togarans ásamt mökum. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, óþekktur, Hlíf Sigurðardóttir, Gylfi Guðjónsson (fjær), óþekktur og Magnús B. Jónsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson (fjær), óþekkt og Sævar Hallgrímsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 010
Sigurður Árnason (d.26.3.2013) tekur lagið á harmoniku um borð í Auðbjörgu Hu 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 046
Þessi mynd var tekin í pásu í Rækjuvinnslunni hf. Mennirnir tveir til vinstri komu frá fyrrum Júgóslavíu en nöfn þeirra eru ókunn. Hjá þeim situr Þráinn Bessi Gunnarsson. Ef þú þekkir mennina tvo vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson 467
Sjómannadagur á Skagaströnd fyrir 1970. Það sem sést á myndinni er mikið breytt í dag, nóvember 2017. Rörið milli verksmiðjunnar og mjölskemmunnar er horfið ásamt undirstöðum þess. Í gegnum þetta rör var síldarmjölinu dælt frá verksmiðjunni út í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt. Stóru tankarnir eru báðir horfnir og frystihúsinu, sem er stóra gráa húsið með rauða þakinu, hefur verið mikið breytt með viðbyggingum og málun. Miklar landfyllingar eru komnar framan við skemmuna og þar er kominn viðlegukantur fyrir minni báta ásamt því að hafnarvigtin er staðsett þar. Gamla Salthúsið sem stendur uppi í Höfðanum til vinstri er nú orðið gistiheimili fyrir ferðamenn. Það sem er óbreytt er að enn er keppt í kappróðri á sjómannadegi og endamarkið er á svipuðum slóðum og báturinn er á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 900
Myndin var tekin á síldarsöltunarplaninu á Djúpuvík og sennilega er verið að þrífa eftir söltunartörn. Ekki er vitað hvenær hún var tekin en Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Fólkið á henni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 944
Skipið sem liggur við hafnargarðinn á Skagastrandarhöfn - nú Útgarð- er m.s Tungufoss (I) smíðaður fyrir H/f Eimskipafélag Íslands í Danmörku árið 1953. Svokölluð stykkjavöruskip í eigu Eimskipafélagsins, voru og eru almennt höfð svört að lit á skrokk og þannig var Tungufossinn í upphafi. En þar sem skipið var á fyrstu árum sínum mikið í saltfiskflutningum til suðlægari landa, saman ber Miðjarðarhafið og Suður-Ameríku, þá var skipið málað grátt að lit. Hið sama var upp á teningnum varðandi frystiskip í eigu Eimskipafélagsins að þau voru höfð ljós að lit. Myndin gæti verið tekin skömmu fyrir 1960 af Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007). Í baksýn sér í annað skip, líklega Arnarfell I, úti á legunni.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 047
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf einhverntíma um jól. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Sigurður Bjarnason og óþekktur. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 79
Ottó Ákason (d. 17.9.2005) í skemmtiferð á vegum Hólaness hf líklega kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 104
Færaveiðar um borð í Ásbjörgu Hu 5 í renniblíðu sumarið 1968. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 40
Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga. Hér er hann í Skagastrandarhöfn utan á Arnari Hu 1 sem var nýrri og, eins og sjá má, miklu stærri frystitogari. Togararnir voru báðir í eigu Skagstrendings hf. Örvar reyndist Skagstrendingi hf mikið happaskip sem skilaði ótrúlegum verðmætum að landi.
Adolf H Berndsen - safn090
Landsendarétt stóð við Landsenda, sem er nyrsti endi Spákonufellshöfða, eða á sjávarbakkanum skammt norðan við Réttarholt. Eins og sjá má var meginhluti réttarinnar hlaðinn úr grjóti og enn (í júní 2017) má sjá leifar réttarinnar sem er löngu aflögð sem slík.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn062
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Konurnar héldu veislu og skemmtikvöld innan sinna raða í Fellsborg á þrettándanum 2003. Á myndinni er kvöldverðinum að ljúka og skemmtiatriðin um það bil að hefjast. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Elva Þórisdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir og Ásta Ásgeirsdóttir. Hægra megin frá vinstri: Helga Ólína Aradóttir, Björk Hlöðversdóttir og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir. Við enda hins borðsins sér í Dagbjörtu Bæringsdóttur.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 069
Guðrún Sigurðardóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 682
Ritnefnd Húnavökuritsins kynnir Húnavökuna 2001 í júní það ár í Kántrýbæ. Frá vinstri: Páll Ingþór Kristinsson, Magnús B. Jónsson, Stefán Á. Jónsson (d.29.6.2009) ritstjóri og Ingibergur Guðmundsson. Lengst til hægri er Björgvin Þórhallsson sem var formaður USAH á þessum tíma en ekki í ritnefndinni.
Ólafur Bernódusson 642
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Einn hópurinn fjallaði um þekkta vestur-Íslendinga. Einn þeirra var Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður og á myndinni er hluti af kynningu hópsins á honum.
Skagaströnd - safn445
Verslunin Borg var í þessu húsi sem stóð við Strandgötu rétt norðan við stóru skemmuna. Seinna, eftir að verlun lagðist af í húsinu, var þar aðsetur rafmangsfyrirtækisins Neistinn. Húsið var rifið fyrir allnokkrum árum. <br>
Dagný Sigmarsdóttir - safn 051
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd, líklega kringum 1960. Maðurinn til hægri í dökku peysunni með húfuna er Gunnar Sveinsson og hægra megin við hann er Ómar Þorbjörnsson frá Akurgerði. Maðurinn til vinstri er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 776
Aflaskipið Arnar Hu 1 nokkru áður en hann var seldur til Akureyrar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 118
Myndin var tekin þegar Arnar Hu 1 kom í heimahöfn 15. október 1973 eftir siglingu frá Japan, þar sem hann var smíðaður. Fólki var boðið um borð að skoða og þiggja veitingar. Lengst til vinstri má þekkja Gissur Jóhannsson með sítt hár og framan við hann er lítill frændi hans, Arnar Arnarsson. Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) er í dökkum jakka og hvítri rúllukragapeysu en framan við hann, í smekkbuxum, er sonur hans Þórarinn Brynjar Ingvarsson. Til hægri er Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og horfir út úr myndinni til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Adolf H Berndsen - safn055
Hólaneskirkja í byggingu. Myndin var tekin kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 102
Um borð í mb Sæljóni Re 317 á netaveiðum 1960. Á myndinni er verið að leggja netin og bogni maðurinn er að henda út steinunum jafn óðum. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 955
Brúarfos í höfn á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1940. Á netsíðunni: http://fragtskip.123.is/blog/2015/02/05/bruarfoss-i/ segir meðal annars um þetta skip: "BRÚARFOSS I var fyrsta skipið sem kom frá útlöndum eftir að WW2 skall á Hann kom til Reykjavíkur þ 14 sept 1939 með fullfermi af vörum og um 100 farþega.Meðal farþega voru knattspyrnumenn sem höfðu farið til Þýskalands í keppnisferðalag Skipið var mikið happaskip Sigldi áfallalítið WW 2 Og áhöfn hans varð þeirri ánægju aðnjótandi að takast að bjarga yfir 70 manns af sökkvandi skipum".
Árni Geir Ingvarsson - safn 954
Djúpavík á velmektardögum sínum 1940. Prúðbúið fólk á ferð á hátíðardegi. Húsið hægra megin á myndinni var "Kvennabragginn" sem hýsti stúlkurnar sem unnu við síldarsöltun á Djúpavík. Í húsinu er nú rekið Hótel Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Ólafur Bernódusson 668
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni er Þorbjörg Bjarnadóttir starfsstúlka greiðslustofu ásamt manni sínum Búa Þór Birgissyni (d.18.9.2009).
Árni Geir Ingvarsson - safn 969
Vinnuflokkur á Djúpavík líklega að vinna að byggingu síldarverksmiðunnar þar 1934 - 1935. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Lengst til hægri í aftari röð er Þórarinn Eiríksson á Finnbogastöðum. Í fremri röð númer 5 er Bernharð Andrésson Norðurfirði, nr. 6 Benedikt Valgeirsson Árnesi, nr. 8 Jón Guðmundsson Stóru-Ávík og maðurinn lengst til hægri í fremri röð er Sveinn Guðmundsson í Djúpuvík.
Guðrún Guðbjörnsdóttir116
Beitingamenn í skúrnum að beita fyrir Vík - útgerðina í febrúar 2016. Lengst til vinstri er Jóhann Ásgeirsson að beita. Gylfi Sigurðsson bíður meðan Damian Lukasz Kacica losar þorsk af línunni svo hægt sé að halda áfram að beita.
Ólafur Bernódusson 662
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru þrjár af nýráðnum starfstúlkum. Frá vinstri: Kristín Leifsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Eva Gunnarsdóttir.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 027
Heyskapur á Brúarlandstúninu. Hjónin Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) og Hallbjörg Jónsdóttir (d.22.12.1987) frá Þórmörk fá hjálp frá Ólöfu J. Árnadóttur (d.11.5.1973)(Lóu á Bakkanum) í Gunnarshólma sem er á milli þeirra hjóna. Barnið í flekknum er Marías Bjarni Viggósson sonur Lóu. Húsið, sem sést á milli Sigurðar og Lóu, er Efri-Lækur sem nú er löngu horfinn. Myndin var tekin 1960.
Ingibergur Guðmundsson 243
Rolf Fougner Árnason (d. 3.6.2014) við vinnu sína sem byggingatæknifræðingur hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 002
Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) skýtur sér fugl í matinn um borð í Auðbjörgu Hu 6 frá Höfðakaupstað (Skagaströnd). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 180
Á myndinni eru hafnar framkvæmdir við nýjan viðlegukant - Sægarð - í höfninni á Skagaströnd haustið 1990. Jafnframt sést á myndinni að verið er að skipa út frystum afurðum annað hvort rækju eða fiski í skip sem liggur við Útgarð.
Adolf H Berndsen - safn067
Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri á Skagaströnd 1972 - 1985 á skrifstofunni sinni í Fellsborg.
Skagaströnd - safn428
Gamla salthúsið eða gamla verbúðin stendur syðst á höfðanum og hefur þjónað fjölmörgum hlutverkum gegnum tíðina. Salthús, verbúð, beitingaaðstaða, járnsmíðaverkstæði og geymsla til að eitthvað sé nefnt. Nú (2018) hefur húsið fengið uppreist æru því búið er að taka það allt í gegn og breyta í glæsilegt gistiheimili með fölmörgum herbergjum undir nafninu Salthúsið. Glæsilegra útsýni en frá því er vandfundið.
Hjördís Sigurðardóttir - safn136
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Á myndinni er Ernst Berndsen sem var einn helsti talsmaður þess að koma stöðinni á fót.
1
…
39
40
41
…
75
Leita í myndasafninu
Leita