Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 236
Félagsstarf aldraðra á Skagaströnd var um tíma í Höfðaskóla og þar var þessi mynd tekin. Ekki er vitað hvenær það var en á myndinni eru vinstra megin við borðið: Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og Guðrún Guðmundsdóttir leiðbeinandi fólksins. Hægra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Guðný Finnsdóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn090
Pása í blíðunni eftir vel unnið starf við þökulagningu á 4. braut á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir, Soffía Pétursdóttir, Vilhelm Jónsson, Eygló Gunnarsdóttir, Guðmundur Kristinsson, Guðmundur Ólafsson og Ingibergur Guðmundsson.
Ingibergur Guðmundsson 254
Róbert Gunnarsson málar um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1989. Róbert var hluti af hópi unglinga sem fengin voru til að ryðberja og mála togarann ofandekks undir verkstjórn fullorðinna.
Elínborg Jónsdóttir - safn 30
Heyskapur á túninu við Másstaði í Vatnsdal. Þarfasti þjónninn sannar enn einu sinni gildi sitt með því að draga heim sátur af þurru heyi af vellinum. Fólkið á myndinni er óþekkt en í baksýn er Flóðið í Vatnsdalsánni.
Jón Jónsson 453
Fjárrekstur í Svartárdal á leið að Stafnsrétt.
Hjördís Sigurðardóttir - safn084
Hér er verið að vinna við að útbúa golfskálann á Háagerðisvelli. Steinþór Karlsson bankar ryk úr gömlum sófa. Vilhelm Jónsson í bláum galla er á leið inn í skálann til að taka til höndunum. Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) er í dyrunum með eitthvað viðkvæmt í höndunum og Sigurður Berndsen er á leiðinni til að hjálpa Steinþóri í baráttunni við rykið. Karl Berndsen (d. 12.2.1995) lengst til hægri hugar að framkvæmdum úti við. Myndin var tekin í júní 1991.
Ólafur Bernódusson 702
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn með Karli. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen (aftar), Dagný Marín Sigmarsdótir (framar), Magnús B. Jónsson (aftar), Snjólaug Jónsdóttir (framar), Guðrún Soffía Pétursdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Jóhann Hafsteinsson, Guðrún Magnúsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Karl Lúðvíksson kennari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 105
Þrír menn á útkíkki uppi á stýrishúsinu á Sæljóninu RE 317 í svarta þoku sumarið 1960.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 005
Auðbjörg Hu 6 í slipp á óþekktum stað.
Guðrún Guðbjörnsdóttir115
Beitingamenn í skúrnum að beita fyrir Vík - útgerðina stoppa augnablik í febrúar 2016 fyrir ljósmyndara úr Listamiðstöðinni Nes. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Jóhann Ásgeirsson, Damian Lukasz Kacica og Hjalti Hólmar Indriðason.
Jón Jónsson 503
Örvar Hu 14 að koma í höfn á Skagaströnd sumarið 1971. Tvö af rörunum, sem sjást á myndinni, lágu frá höfninni og upp á Höfða í olíutanka sem þar voru frá olíufélögunum Shell (Skeljungur) og BP (Olís). Hin tvö lágu svo í stóru tankana tvo upp við Höfða, norðan við frystihúsið. Skúrarnir sem glittir í á myndinni voru útgerðar- og beitningaskúrar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 041
Björn Ingi Óskarsson starfaði fjölda ára í Rækjuvinnslunni hf. Á myndinni er hann að vinna við þrif í vinnslusalnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn391
Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd.
Jón Jónsson 504
Arnar Hu 1 liggur utan á Örvari Hu 14. Báðir voru þeir togbátar í eigu Skagstrendings hf. Arnar kom til Skagastrandar í janúar 1969 og var seldur aftur 1972. Örvar kom í lok desember 1970 og var svo seldur í maí 1974. Aftan við Örvar sér í Helgu Björg Hu 7, sem var í eigu Útgerðarfélags Höfðakaupstaðar hf. Hún kom til Skagastrandar 1965 og var gerð út þaðan þar til í júní 1971 er hún var seld til keflavíkur. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson) Myndin var tekin sumarið 1971.
Ólafur Bernódusson 658
Biopol á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri hafa starfað náið saman frá stofnum Biopol 2007. Þessi mynd var tekin eftir undirskrift á endurnýjuðum samstarfssamningi milli aðila 2013. Frá vinstri: óþekkt, Stefán B. Sigurðsson rektor HA, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Adolf H. Berndsen oddviti og stjórnarformaður Biopol og Dr. Magnús Stefánsson starfsmaður HA með starfsstöð hjá Biopol á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 681
Í maí 2007 var rifinn olítankur sem stóð á Höfðanum á vegum Shell olíufélagsins. Tankurinn hafði staðið þarna í áratugi eða frá þeim tíma sem kröfur um mengunarvarnir voru í skötulíki. Tankurinn stóð þar sem nú hefur verið gert smekklegt, hellulagt hringtorg sem er vinsæll útsýnisstaður yfir Húnaflóa og Strandafjöllin. Í baksýn, nær sjónum má sjá þrjá tanka sem voru á vegum Olís. Þeir hafa nú líka verið rifnir enda hættir að geta þjónað hlutverkum sínum vegna aukinna krafna í mengunarvarnamálum.
Ingibergur Guðmundsson 287
Veturinn 1984-85 vann fjöldi sjálfboðaliða, um helgar, að því að klæða skíðaskálann innan með panel og innrétta hann. Á myndinni er kaffipása hjá þeim sem þá voru að vinna. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Halldór Gunnar Ólafsson, Þorbjörg Magnúsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Ingibergur Guðmundsson 143
Magnús B. Jónsson kennari við Höfðaskóla kringum 1975 fer yfir nemendaverkefni á kennarastofunni. Magnús er líklega betur þekktur í dag sem sveitarstjóri á Skagaströnd en sem kennari.
Ólafur Bernódusson 630
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti hópsins sem fjallaði um þekkta vestur íslendinga. Krakkarnir kynntu þekktustu persónur úr þeim hópi með söng, upplestri, veggspjöldum og líkönum. Á myndinni eru frá vinstri: Daði Snær Stefánsson í fanginu á Ernu Björgvinsdóttur, Viktor Einarsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, María Gret Gunnarsdóttir, Sigurður Aron Björnsson stendur aftan við Maríu, Alma Vignisdóttir, Leifur Ragnarsson og Gunnþór Kristjánson.
Adolf H Berndsen - safn 094
Þessi mynd var tekin í Noregi í desember 1992 þegar Skagstrendingi hf var afhentur nýsmíðaður frystitogari Arnar Hu 1. Á myndinni eru eiginkonur nokkurra áhafnarmeðlima eða stjórnarmanna í fyrirtækinu eða starfsmenn þess. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir,Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 076
Kristján Karlsson um borð í skektu sem notuð var til að vitja um grásleppunet. Í baksýn sést Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d.2.1.1988) frá Kambakoti. Við Óskina liggur önnur skekta sem líka var notuð við umvitjuna. Í áhöfn Óskar voru þrír menn. Tveir fóru á skektunum til að vitja um gráslepputrossurnar og lönduðu síðan aflanum um borð í Óskina þar sem sá þriðji skar grásleppuna og dró skektuna að næstu trossu. Eins og sjá má var ekki óalgengt að selir slysuðust í netin sem þótti heldur verra því þeir drógu úr veiðgetu netanna sem þeir vöfðu stundum um sig.
Hjördís Sigurðardóttir - safn129
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Fríða Hafsteinsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Þór Gunnlaugsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 147
Ólafur Magnússon Hu 54 var einn af mörgum bátum með því nafni sem útgerðarfélagið Jökull hf hefur átt. Eigendur Jökuls eru hjónin Stefán Jósefsson skipstjóri og Sigríður Gestsdóttir. Þennan bát keyptu þau 1996 og gerðu út en seldu svo aftur haustið 2006. Ólafur Magnússon var smíðaður 1972 í Garðabæ en lengdur 1973. Þegar hann kom til Skagastrandar var hann 125 brl. að stærð með 750 hestafla Caterpillar vél. (Heimild:"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 074
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Kristján Karlsson um borð í skektu sem notuð var til að vitja um grásleppunet. Í baksýn sést Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d.2.1.1988). Við Óskina liggur önnur skekta sem líka var notuð við umvitjuna. Í áhöfn Óskar voru þrír menn. Tveir fóru á skektunum til að vitja um gráslepputrossurnar og lönduðu síðan aflanum um borð í Óskina þar sem sá þriðji skar grásleppuna og dró skektuna að næstu trossu. Eins og sjá má var ekki óalgengt að selir slysuðust í netin sem þótti heldur verra því þeir drógu úr veiðgetu netanna sem þeir vöfðu stundum um sig.
Ólafur Bernódusson 679
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd er í gangi fjöldasöngur eftir að formlegheitum vegna opnunarinnar var lokið. Halldór Gunnar Ólafsson spilar á gítarinn en svo koma frá vinstri:Dagný Marín Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Baksvipinn á Jensína Lýðsdóttir.
Jón Jónsson 482
Hér eru bændur úr Svartárdal og víðar að rétta í Stafnsrétt. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 665
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Þá var þessi mynd tekin af þeim mágkonunum Sigríði Stefánsdóttur til vinstri og Drífu Óttarsdóttur eiginkonu Magnúsar Stefánssonar þáverandi félagsmálaráðherra.
Ólafur Bernódusson 663
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Þá var þessi mynd tekin af Jensínu Lýðsdóttur sem var einn af starfmönnum greiðslustofunnar og seinna forstöðumaður hennar.
Jón Jónsson 466
Guðrún Sigurðardóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 670
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru þeir á spjalli Gunnlaugur Sigmarsson frá Landsbankanum til vinstri og Helgi Gunnarsson trésmiður til hægri.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 041
Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk við vefstólinn í kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960.
Ólafur Bernódusson 687
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu. Þessi mynd er af Óla Axel Óskarssyni björgunarsveitarmanni þar sem hann bíður skipsins með börgunarsveitarbílinn tilbúinn til að flytja duflið á eyðingarstað.
Ólafur Bernódusson 671
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru systkinin Magnús Stefánsson þáverandi félagsmálaráðherra og Sigríður Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur á Skagaströnd.
Adolf H Berndsen - safn056
Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) að vinna við endurbætur á Bjarmanesi einhverntíma kringum árið 2000.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 038
Jóla-kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri á myndinni eru: Ingólfur Bjarnason, Guðrún Angantýsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Sólveig Eiðsdóttir (fjær), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) (nær) og Björn Ingi Óskarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 798
Hér á árum áður var olíubirgðastöð á Skagaströnd. Olían kom með skipum eins og Kyndli, sem er á myndinni í höfn á Skagaströnd, og var dælt úr því í tanka sem voru uppi á Höfðanum og austan við hann rétt hjá sundlauginni. Úr þessum tönkum var olían afgreidd á bíl sem flutti hana um bæinn og út um sveitir meðan notast var við olíu við upphitun húsa. Einnig var afgreiðsluslanga niðri á höfn vegna bátanna. Tankarnir eru nú horfnir og öll afgreiðsla á olíu til stórnotenda eins og stórra skipa fer fram með tankbílum. Minni bátar nýta sér olúdælur sem eru staðsettar á enda Smágarðs við Skúffugarðinn.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 042
Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti við vefstólinn í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 39
Óþekktur starfsmaður Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar sandblæs litla vog. Við þessa vinnu þarf starfsmaðurinn að vera vel varinn og m.a. fá hreint loft í hjálminn svo hann sé ekki að anda að sér sandryki og öðrum óþverra.
Jón Jónsson 454
Fjárrekstur að Stafnsrétt í Svartárdal
Hjördís Sigurðardóttir - safn122
Hjördís Sigurðardóttir við gróðursetningarvinnu á Háagerðisvelli sumarið 1996.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 060
Þórir GK 116 í slippnum á Skagaströnd. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd. Vörubílinn á myndinni var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar. <br>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 41
Helga Björg Hu 7 var rækjuveiðiskip sem frysti aflann um borð. Skagtrendingur hf átti skipið í nokkur ár.
Ingibergur Guðmundsson 252
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan bát: "Bjarni Helgason Hu 109 1890. Báturinn var smíðaður úr stáli á Ísafirði árið 1988 og var 12 brl. með 218 ha. Caterpillar vél. Hann hét Jón Helgason ÁR 12 þegar Ólafur Ingibjörnsson keypti hann árið 1988 og gerði út þar til báturinn var seldur í maí 1990 til Hornafjarðar". Myndin var líklega tekin 1989 af bátnum í höfn á Skagaströnd.
Jón Jónsson 459
Við Stafnsrétt í Svartárdal.
Ingibergur Guðmundsson 298
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992), faðir eigenda Víkur, að salta yfir í kari.
Ólafur Bernódusson 680
Í maí 2007 var rifinn olítankur sem stóð á Höfðanum á vegum Shell olíufélagsins. Tankurinn hafði staðið þarna í áratugi eða frá þeim tíma sem kröfur um mengunarvarnir voru í skötulíki. Tankurinn stóð þar sem nú hefur verið gert smekklegt, steinlagt hringtorg sem er vinsæll útsýnisstaður yfir Húnaflóa og Strandafjöllin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 953
Þessi óþekkti ræðumaður er líklega að flytja hátíðarræðu við vígslu Borgarvirkis 23.júní 1950 eftir miklar viðgerðir og endurbætur á virkinu. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú veist hver ræðumaðurinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson 2 36
Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) við kaffiborðið í áhaldahúsi hreppsins þar sem hann vann um tíma
Guðrún Sigurðardóttir - safn 012
Gylfi Sigurðson frá Þórsmörk heldur kátur á lúðu um borð í Aðalbjörg Hu 7. Í brúarglugganum er skipstjórinn, Þórhallur Árnason (d.4.2.2008). Á þessum bát voru þeir hætt komnir ásamt fleirum eitt sinn í línuróðri á Skagagrunni. Leki kom að bátnum þannig að vélarúmið hálf fylltist af sjó. Betur fór þó en á horfðist því þegar drepið var á vélinni hætti lekinn því það hafði farið sundur slanga þannig að vélin dældi kælivatninu út í vélarúmið í stað þess að dæla því út. Eftir að gert hafði verið við slönguna var vélin sett í gang, báturinn lensaður og róðurinn kláraður.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 048
Námsmeyjar í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 stilla sér upp til myndatöku á efstu hæð skólans. Í miðjunni í öftustu röðinni eru Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk til vinstri og Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti til hægri. Aðrar eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 237
Félagsstarf aldraðra á Skagaströnd var um tíma í Höfðaskóla og þar var þessi mynd tekin af leiðbeinandanum Guðrúnu Guðmundsdóttur. Það var alltaf líf og fjör í þessum samkomum eldra fólksins með Guðrúnu eins og sést á myndinni þar sem hún er eitthvað að grínast með fólkinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 082
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) um borð í Ósk Hu 33 á grásleppuveiðum. Þær systur hafa fengið að fljóta með því karlarnir þeirra voru í áhöfn Óskar við þriðja mann.
Ólafur Bernódusson 695
Karl Olsen um borð í Öldunni Hu 112 bíður eftir króknum í löndun eftir góðan línuróður 26. mars 2013.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 048
Ingólfur Bjarnason og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir við veisluborð í kaffistofu Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Adolf H Berndsen - safn080
Ekki er vitað hvar eða af hvaða tilefni þessi mynd var tekin af þessum glæsilegu framreiðslustúlkum. Frá vinstri: Oddný Jóhannsdóttir, Björg Jóhanna Ólafsdóttir (d.1.3.2007), Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d.6.3.2007) og Guðrún Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson 656
Sjúkrasjóður Höfðakaupstaðar hefur starfað í áratugi og safnð fyrir ýmsum lækningatækjum sem sjóðurinn hefur síðan gefið heilsugæslunni á Skagaströnd gegnum árin. Á þessari mynd frá því í júlí 2014 eru fulltrúar Sjúkrasjóðsins að færa Christine Weinert sjúkraþjálfara ýmis tæki til að nota við sjúkraþjálfunina. Frá vinstri: Christine, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Gígja Óskarsdóttir og Ingibjörg Kristinsdóttir.
Ólafur Bernódusson 657
Biopol á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri hafa starfað náið saman frá stofnum Biopol 2007. Á þessari mynd er verið að skrifa undir endurnýjun á samstarfssamningi milli þessara aðila eftir sex ár 2013. Frá vinstri: Stefán B. Sigurðsson rektor HA, Adolf H. Berndsen stjórnarformaður Biopol og Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri Biopol.
Hjördís Sigurðardóttir - safn133
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson og Jóhannes Sveinsson.
Ingibergur Guðmundsson 310
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slétta landspildu undir skálann í suðurhlíðum Spákonufells. Eftir sléttunina var keyrð möl úr Hrafná á svæðið og sökkullinn síðan steypur ofan á hana.
Ólafur Bernódusson 676
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd hafa yfirmenn stofnunarinnar og starfsfólk greiðslustofunnar stillt sér upp til myndatöku. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofu, Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar, Þorbjörg Bjarnadóttir, Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Kristín Leifsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Eva Gunnarsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
1
…
40
41
42
…
75
Leita í myndasafninu
Leita