Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Soffía Pétursdóttir -safn113
Arnar Hu 1 í Skagastrandarhöfn. Arnar Hu 1 var fyrsta togskip Skagstrendings hf sem var stofnað 1968 og var keyptur til félagsins í janúar 1969. Frá Skagaströnd var hann gerður út til ársins 1972. Arnar var smíðaður í Harstad í Noregi 1964 og var 184 brl. með 600 hestafla Wichmann vél. 1973 var hann svo seldur til Þorlákshafnar en þaðan til Svíþjóðar 1988. Arnar endaði svo ævina í niðurrifi í Danmörku 1999. (Heimild:"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 103
Sæljón Re 317 í slipp. Skipið var smíðaða í Danmörku 1955. Dæmdur ónýtur 1974 en endurbyggður 1979. Sökk 5. október 1988 út af Siglunesi.Heimild:http://emilpall.123.is/blog/2010/08/25/472602/)<br>Þrír menn vor um borð en þeir björguðust yfir í annan bát, Bjarma Ea, sem líka var á rækjuveiðum á svipuðum slóðum. (Heimild: Morgunblaðið 6.10.1988)
Helga Berndsen 046
Helga Berndsen í vinnu sinni sem verslunarmaður. Myndin var tekin 1990 eða 1991.
Ólafur Bernódusson 673
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru yfirmenn stofnunarinnar. Frá vinstri: Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar, Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofunnar og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra. Aftan við Gissur sér í Adolf H. Berndsen oddvita Sveitarfélagsins Skagaströnd. Aðrir eru óþekktir.
Adolf H Berndsen - safn064
Myndin var tekin á sveitarstjórnarskrifstofunni á Skagaströnd þegar hún var í Fellsborg. Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri á Skagaströnd 1972 - 1985 gluggar í pappíra og Guðrún Pálsdóttir, sem lengi vann með Lárusi, skoðar reikninga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 028
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni eru gestir á árshátíð Hólaness hf að njóta kaffiveitinga. Næst okkur eru frá vinstri: Hrefna Björnsdóttir, Gunnar Albertsson og Gunnlaugur Sigmarsson. Við borðið fjær eru frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, Líney Jósefsdóttir, Sveinn Ingi Grímsson, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) og Sigrún Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson 678
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Eftir ræðuhöld og formlegheit vegna opnunarinnar léttist yfir athöfninni og fólk brast í söng við undileik félæagsmálaráðherra á gítar. Þá dönsuðu nokkrar starfsstúlkur kántrýdansa og þessi mynd sýnir slíkan dans í gangi við mikla ánægju viðstaddra. Frá vinstri: Kristín Leifsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, og Eygló Gunnarsdóttir sem er lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 139
Hluti ritnefndar Húnavökunnar á Akureyri 1985. Þangað fór ritnefndin á hverju vori til að lesa prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu Húnavökunnar fyrir prentun. Frá vinstri: Unnar Agnarsson Blönduósi, Páll Ingþór Kristinsson Blönduósi, Stefán Jónsson (d. 29.6.2009) Kagaðarhóli og Jóhann Guðmundsson Holti. Á myndina vantar ritnefndarmanninn Ingiberg Guðmundsson en hann tók myndina.
Skagaströnd - safn432
Bjarmanes eða Gamli skólinn er elsta steinhúsið á Skagaströnd byggt 1912 -13 sem verslunarhús. Frá 1921 var þar rekinn skóli allt til 1958. Eftir það var ýmis konar starfssemi í húsinu. 2004 var húsið tekið í gegn og því komið aftur í upprunalegt horf sem meðal annar hafði það í för með sér að tröppurnar og inngangurinn sem sést á myndinni var fjarlægður. Í dag er rekið kaffihús í Bjarmanesi ásamt því að sveitarfélagið, sem á húsið, notar það fyrir mótttökur af margvíslegu tagi.
Ingibergur Guðmundsson 137
Björn Bergmann Jónasson (d.30.5.1985) frá Marðanúpi á hóteli á Akureyri í apríl 1985. Hann var mikill velunnari Húnavökunnar og fór oft með ritnefndinni, sem fór á Akureyri á hverju vori til að lesa prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu ritsins fyrir prentun. Björn var merkur maður, kennari, fræðimaður og ljósmyndari og að mörgu leiti á undan sinni samtíð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 947
Þrímastra skútan Kapilana í höfn á Djúpavík. Herbert Ólafssson (d.25.4.2007) tók myndina sennilega einhverntíma á fimmta áratugnum. Kapilana var sennilega færeyskur kútter sem voru tiltölulega algengir við Ísland á þessum árum.
Ólafur Bernódusson 705
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn með Karli. Frá vinstri: Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Árni Geir Ingvarsson, Anna Borkowska, Guðmundur Egill Erlingsson, Merete Rabölle, Lárus Ægir Guðmundsson, Stefán Þór Hauksson, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir (aftar), Monika Tischleder (framar), Kristín Björnsdóttir og Karl kennari.
Árni Geir Ingvarsson 2 35
Ingibergur Guðmundsson vinstra megin og Hafþór Gylfason til hægri að smíða tröppur fyrir Golfklúbb Skagastrandar þar sem þeir er báðir félagar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 044
Dagný Hannesdóttir til vinstri og Hugrún Sigurðardóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn433
Miðnes eða Sigurðarhús stendur á Hólanesinu. Lengi var rekin bókabúð Björgvins Brynjólfssonar í vesturhluta lægri byggingarinnar. Hinum megin í húsinu var svo lengst af afgreiðsla Sparisjóðs Skagastrandar meðan hann var og hét. Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) var sparisjóðsstjóri og eigandi bókabúðarinnar og hann bjó í húsinu með konu sinni Rósu Pétursdóttur (d.10.10.1998).
Adolf H Berndsen - safn 091
Á myndinni er Helga Jóhannesdóttir nýbúin að gefa nýsmíðinni Arnari Hu 1 nafn í Noregi við afhendingu skipsins til Skagstrendings hf í desember 1992.
Ólafur Bernódusson 699
21. maí 2013 kom Húni II EA 740 í heimsókn til sinnar fyrri heimahafnar á Skagaströnd. Fólki var boðið að koma um borð að skoða skipið og margir nýttu sér það. Á myndinni er Gunnar Albertsson að skoða gamlar slóðir því hann var vélstjóri á Húna II í nokkur ár meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 020
Samstarfsmenn úr frystihúsi Hólaness hf á spjalli með tár í glasi. Frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurbjörn Björgvinsson, Gunnar Jónsson og Jóhann Björn Þórarinsson,
Ólafur Bernódusson 636
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd kynna þrjár stúlkur íslenskan teiknimyndahöfund senm starfaði m.a. fyrir Walt Disney og skapaði nokkrar af frægustu fígúrum Disney samsteypunnar. Stúlkurnar eru frá vinstri: María Gret Gunnarsdóttir, Anita Ragnarsdóttir og Birgitta Rut Bjarnadóttir.
Ingibergur Guðmundsson 301
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að leggja grásleppunet á bát sínum vorið 1987. Maðurinn á bryggjukantinum er óþekktur.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 040
Sigrún Lárusdóttir og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) við störf í pökkunardeild Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson 498
Sjósetning á fyrsta bátnum sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf sumarið 1971. Báturinn hét Ásdís Hu 10 smíðaður úr eik 21 brl. með 185 ha Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson og Guðbjörn Hallgrímsson. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971 en mannbjörg varð. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Skagaströnd - safn439
Í þessu húsi við enda Fellsbrautar er rafstöð þ.e.a.s. í húsinu eru diselvélar sem keyrðar eru til að framleiða rafmagn ef þess þarf eru sem sagt varaafl fyrir Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 592
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 af Stefáni Jónassyni kennara þar sem hann er að kynna næsta nemanda til leiks.
Adolf H Berndsen - safn045
Þessi mynd var tekin utan af sjó og sýnir skipafjölda á legunni framan við Skagaströnd einhverntíma kringum 1940. Fjöldi skipa er á legunni því höfnin er full af skipum. Eyjan sem sést á myndinni er Spákonufellsey og garðurinn lengst til vinstri er sá sem byggður var á uppfyllingu frá landi út í eyjuna. Stóra húsið vinstra megin við eyjuna er Hafnarhúsið, sem var byggt á höfninni 1935 en síðan flutt á núverandi stað 1944 eða 1945. Ef grannt er skoðað má sjá uppslátt hægra megin við eyjuna en þar er verið að steypa vegg, sem enn stendur, vestan við höfnina.
Jón Jónsson 455
Fjársafn bíður við Stafnsrétt í Svartárdal eftir að vera réttað.
Adolf H Berndsen - safn052
Vinnu- og kynnisferð á vegum Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna til Grimsby 1995. Á myndinni eru fulltrúar frá Skagstrendingi hf. Frá vinstri: Steindór Haraldsson, Jóel Kristjánsson og Magnús B. Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 46
Helga Björg Hu 7 lengst til vinstri , Ólafur Magnússon Hu 54 og svo sést í Ísbergið Ís lengst til hægri. Helgu Björgu gerðu út félagarnir Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013), Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) og Gylfi Sigurðsson. Ólafur Magnússon var einn af mörgum bátum með því nafni sem Stefán Jósefsson hefur átt og gert út. Ísbergið var í eigu fyrirtækisins OK en stærsti hluthafinn í því var Skagstrendingur hf. Það var þó ekki lengi í eigu fyrirtækisins því einungis mánuði eftir að það var keypt sökk það 70 mílur austur af Grimsby eftir að þýskt skip keyrði á það í mikilli þoku. Allir um borð björguðust um borð í þýska skipið. Myndin var tekin í lok apríl 1983.
Ingibergur Guðmundsson 233
Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Hallgrímur, Gylfi Sigurðsson og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Hallgrímur var vélstórinn í hópnum, Gylfi stýrimaður og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 030
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980 árshátíð Hólaness hf. Á henni eru starfsmenn Hólaness og makar þeirra að njóta kaffiveitinga. Við borðið nær gluggunum eru frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Guðmundur J. Björnsson og Þórunn Bernódusdóttir en aðrir eru óþekktir. Við borðið nær okkur eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörn Björgvinsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigurjón Ingólfsson, Steinunn Berndsen, ?Gísli Snorrason?, Gunnar Sveinsson, Eðvarð Hallgrímsson, Hrefna Björnsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Þorlákur Jónsson, Kristján Blöndal og Guðmundur Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 72
Starfsfólk Hólaness hf í skemmtiferð. Efst eru frá vinstri: óþekktur (Ingvar Jónsson?), Þorlákur Jónsson og Ottó Ákason (d.17.9.2005). Næst efst frá vinstri: Kristján Ólafsson, Steindór Gíslason (d.?), Hlíf Sveinbjörnsdóttir og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004). Sigurbjörn Björgvinsson er með sólgleraugu á miðri mynd. Hægra megin við hann eru talið ofan frá: Fjóla Jónsdóttir, Ingibjörg Kristinsdóttir og tveir óþekktir. Neðast fyrir miðju er Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 169
Rækjubáturinn Húni Hu 62 til vinstri og Hafrún Hu 12 til hægri í Skagastrandarhöfn. Húni átti heimahöfn á Blönduósi.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 34
Þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt einhverntíma snemma á sjöunda áratugnum. Rúnar Jósefsson er glaðbeittur með lamb í fanginu en hjá honum stendur Vilhelm B. Harðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 114
Á myndinni liggur skip við hafnargarðinn eða hafskipabryggjuna sem kölluð var. Ef grannt er skoðað má sjá að fremsti hluti bryggjunnar hallast til vesturs. Það er vegna þess að karið sem myndar garðinn seig eftir að búið var að koma því fyrir. Kraninn sem sést lengst til vinstri var löndunarkrani fyrir síldarverksmiðjuna. Hafnargarðurinn hefur nú verið varinn með stórgrýti og þjónar ekki lengur sem viðlegukantur heldur sem brimvörn fyrir innri höfnina. Löndunarkraninn er löngu horfinn. Skipið á myndinni er M.s. Tungufoss I.
Helga Berndsen 016
Þessi systkini voru frá Læk á Skagaströnd. Frá vinstri: Karla Helgadóttir (d.25.9.1986) Björn Helgason (d.11.3.1983) og Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987). Öll giftust þau og eyddu æfinni á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 242
Jóhanna Gunnlaugsdóttir til vinstri og Aðalheiður Harðardóttir til hægri vinna við að búa til sjávarréttapizzur í Marska hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 631
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti hópsins, sem kynnti þekkta vestur íslendinga, að syngja ljóð eftir Káinn við lag eftir Baggalútinn Braga Valdimar Skúlason. Frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Ívan Árni Róbertsson, Trostan Agnarsson kennari aftan við Ívan. Sitjandi í aftari röð frá vinstri: Aron Fannarsson, Birgitta Rut Bjarnadóttir og María Gret Gunnarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, óþekkt, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Sæunn Steingrímsdóttir, óþekkt, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Gunnþór Kristjánsson og Kristmar
Ólafur Bernódusson 696
Sjómennirnir Sævar R. Hallgrímsson til vinstri og Hafþór Gylfason til hægri ræða aflabrögð meðan verið er að landa úr Öldu Hu 112 í Skagastrandarhöfn í lok mars 2013 .
Ingibergur Guðmundsson 280
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Á þessari mynd frá því í mars 1987 er moksturinn langt kominn og vírinn að mestu kominn upp úr snjónum. Mokararnir á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Steindór R. Haraldsson sem lyftir vírnum eins hátt og hægt er.
Ingibergur Guðmundsson 283
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Sumarið 1984 og veturinn á eftir byggði skíðadeildarfólkið skíðakála við hlið lyftunnar. Skálinn var vígður formlega 5. apríl 1985 og þá var húsfyllir í skálnum eins og sjá má á þessari mynd enda var skíðamennska almenn og vinsæl hjá ungum sem öldnum.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn094
Á myndinni eru Unnar Agnarsson til vinstri og Stefán Á. Jónsson (d. 29.6.2009) frá Kagaðarhóli til hægri. Unnar var í ritnefnd Húnavökunnar en Stefán var ritstjóri þess góða rits.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 168
Dagrún St 12 var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971 en hét þá Guðmundur Þór Hu 17.
Ingibergur Guðmundsson 285
Vatnið í skíðaskálann á Skagaströnd er tekið úr lind norðan og ofan við skálann. Hluta af skurðinum fyrir vatnslögnina þurfti að grafa á höndum og á myndinni er unnið að því en hún var tekin í október 1984. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Ólafur Bernódusson. Þess má geta að vatnið úr lindinni þykir einstaklega hreint og gott.
Ólafur Bernódusson 698
Jóhann Sigurjónsson skipstjóri á Öldu Hu 112 í þungum þönkum í löndun í marslok 2013.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 003
Myndin var tekin í borðsalnum á Arnari Hu 1 líklega snemma á áttunda áratugnum. Frá vinstri: Matthías Guðmundsson, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) og Sævar Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson 664
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni takast þau í hendur Magnús Stefánsson þáverandi félagsmálaráðherra og Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofunnar. Aftan við þau má þekkja Búa Þór Birgisson (d. 18.9.2009) og Sigríði Stefánsdóttur systur Magnúsar ráðherra.
Hjördís Sigurðardóttir - safn128
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Sveinn Ingólfsson, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Sigfús Jónsson, Þór Gunnlaugsson, Steinunn Berndsen, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Jóney Gylfadóttir. Litla stúlkan á myndinni er óþekkt.
Jón Jónsson 500
Myndin var tekin sumarið 1971 af tveim fyrstu bátunum sem smíðaðir voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Fremri báturinn er Ásdís Hu 10, sem sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971. Aftari báturinn er Guðmundur Þór Hu 17 sem seinna varð Dagrún St 12. Eins og sjá má hefur hafnarsvæðið breyst mikið síðan þessi mynd var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 106
Um borð í Sæljóni Re 317 haustið 1960. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) stendur í dyrunum en Kolbeinn ? er í glugganum.
Jón Jónsson 480
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 148
Ánægðir með góðan afla. Bæðurnir Ragnar Smári Ingvarsson til vinstri og Þórarinn Brynjar Ingvarsson til hægri.
Adolf H Berndsen - safn 093
Þessi mynd var tekin í Noregi í desember 1992 þegar Skagstrendingi hf var afhentur nýsmíðaður frystitogari Arnar Hu 1. Á myndinni eru skipstjórnarmennirnir sem tóku við togaranum þeir Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.6.2017) skipstjóri til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson fyrsti stýrimaður til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 50
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með þáverandi togara Skagstrendings hf í baksýn, ísfiskstogarinn Arnar Hu 1 til vinstri og frystitogarinn Örvar Hu 21 til hægri. Báðir voru þeir happa- og aflaskip.
Ingibergur Guðmundsson 151
Sjómannadaginn 1985 kom björgunarþyrla landhelgisgæslunnar í heimsókn á Skagaströnd og sýnd var björgun úr sjó. Á myndinni er sigmaður á leið upp í þyrluna með mann úr sjónum.
Ingibergur Guðmundsson 136
Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli ritstjóri Húnavökunnar innritar sig á hótel á Akureyri vorið 1985. Þangað fer ritnefndin á hverju vori til að lesa prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu Húnavökunnar fyrir prentun.
Skagaströnd - safn444
Þetta hús stendur við Strandgötu norðan við stóru skemmuna. Það var geymsla fyrir verslunina Borg, sem stóð hinum megin götunnar í eigu Sigurðar Sölvasonar (d. 24.9.1968). Seinna eignaðist Bjarni Helgason (d.30.12.1983) útgerðarmaður húsið og notaði það sem verbúð. Þaðan er nafnið, Bjarnaborg, komið. Enn síðar komst húsið í eigu Slysavarnafélagsins á Skagaströnd en núverandi eigandi (2017) er Árni Guðbjartsson útgerðamaður.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 149
Örvar Hu 21 kemur í höfn á Skagaströnd úr túr í austan garra. Örvar reyndist Skagstrendingi hf mikið happaskip og tekjulind enda yfirleitt úrvals og metnaðarfull áhöfn um borð.
Ingibergur Guðmundsson 135
Húnavöku-ritnefndarmennirnir Jóhann Guðmundsson frá Holti til vinstri og Unnar Agnarsson á Blönduósi til hægri, innrita sig á hótel á Akureyri 1985. Þangað fer ritnefndin á hverju vori til að lesa yfir prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu Húnavökunnar fyrir prentun.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 062
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Maðurinn lengst til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri frá Neskaupstað sem var skipstjóri á Hólmadrang nýjum. Hinir mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 201
Líklega er þetta Auðbjörg Hu 6 í höfn á Skagaströnd. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Í baksýn er síldarfæribandið sem flutti síld frá löndunarkrananum, sem var til vinstri, upp í verksmiðuna, sem var til hægri.
1
…
41
42
43
…
75
Leita í myndasafninu
Leita