Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 233
Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Hallgrímur, Gylfi Sigurðsson og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Hallgrímur var vélstórinn í hópnum, Gylfi stýrimaður og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn446
Beitingaskúr sem stóð rétt vestan við sundlaugina. Lengst til hægri sést í timurþilið sem var kringum sundlaugina. Í skúrnum, sem var líka verbúð, var beitt fyrir a.m.k. tvo báta í gamla daga. Skúrinn var rifinn fyrir mörgum árum. Framan við hann stendur Hólnesrútan en á henni var starfsfólk Hólaness hf flutt til og frá vinnu í frystihúsinu - var sem sagt fyrirtækis-strætó. Tankarnir í baksýn eru líka horfnir.
Ingibergur Guðmundsson 231
Með tilkomu þessa sorpbíls 1990 varð gjörbreyting á sorphirðumálum á sýslunni þvi Vilhelm Harðarson, eigandi bílsins, sá um sorphirðu bæði í Austur- og Vestur Húnavatnssýslum á bílnum.
Skagaströnd - safn427
Bragginn stóð við hlið Lækjarbakka við Strandgötu. Bragginn var byggður á stríðsárunum og gegndi ýmsum hlutverkum þar til hann var rifinn. Í honum var rekið vélaverkstæði Karls og Þórarins um árabil og seinna var hann notaður sem slökkvistöð. Enn (2017) má sjá steypta gólfplötu braggans.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 005
Högni Jensson á kunnuglegum slóðum sem kokkur um borð í Arnari Hu1. Myndin var líklega tekin snemma á áttunda áratugnum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 042
Kristín Sigurðardóttir við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 011
Ólafur Ingibjörnsson hífir um borð í Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Ólafur Bernódusson 704
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn að undirbúa flutning á sjúklingi undir leiðsögn Karls. Sjúklingurinn er leikinn af Lilju Ingólfsdóttur en hjálparfólkið er, talið frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Monika Tischleder, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Guðmundur Egill Erlingsson og Árni Geir Ingvarsson. Karl er lengst til vinstri að segja fólkinu til.
Ingibergur Guðmundsson 230
Myndin sýnir þegar Höfðakot var rifið. Höfðakot stóð við Bankastræti beint upp af brekkunni að norðanverðu, eða fyrir norðan núverandi Bankastræti 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1990. Vörubíllinn var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar.
Ingibergur Guðmundsson 288
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og sama gilti um lyftuskúrinn eins og sést á þessari mynd. Toglyftan sjálf var til vinstri við skúrinn en hún sést ekki á myndinni enda á bólakafi. Myndin var tekin í apríl 1989 þegar þó var farið að hlána og snjórinn að sjatna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 250
Kaffitími í áhaldahúsinu 14. september 2010. Frá vinstri : Stefán Sveinsson og Geir Arnarson starfsmenn sveitarfélagsins.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 131
Rúnar Jósefsson kampakátur með lambhrút í fanginu í Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson 464
Kátar konur við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Vinstra megin eru: Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012), óþekkt, Birna Blöndal og óþekkt. Hægra megin við bandið eru frá vinstri: Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010), óþekkt, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Ardís Ólöf Arelíusdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn434
Andrésarhús hýsti upphaflega verslun og íbúð eigandanna hjónanna Andrésar Guðjónssonar (d.5.10.1968) og Sigurborgar Hallbjarnardóttur (d.3.12.1983). Seinna var rekin verslunin Fellskjör rekin í húsinu og enn síðar verslun Hallbjarnar Hjartarsonar sem svo breytti húsinu í veitingastaðinn Kántrýbæ. Jafnframt því rak Hallbjörn Útvarp Kántrýbæjar á efri hæðinni. Húsið brann 1997 þ.e. syðri hluti hússins. Nýtt hús var strax byggt á staðnum 1998 og tengt við lægri bygginguna sem ekki brann. Hallbjörn hélt svo áfram sínum rekstri í nýju byggingunni. Í dag (2017) er þar rekinn veitingastaðurinn Borgin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 217
Fjórar blómarósir gróðursetja blóm í júlí 2014 á vegum vinnuskólans. Frá vinstri: Victoría Hólmbertsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir og Bjarndís Sól Helenudóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 181
Unnið við jarðvegskjarna í nýjum viðlegukanti í höfninni á Skagaströnd sumarið 1990. Garðurinn hlaut nafnið Sægarður er hann var fullbúinn.
Ingibergur Guðmundsson 296
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni er Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson að gella þorskhausa.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 261
Elvar Geir Ágústsson sýnir vöðvana í vinnunni við golfvöllin í júlí 2011.
Ingibergur Guðmundsson 251
Halldór Gunnar Ólafsson um borð í rækjubát að vinna við löndun á rækju sumarið 1989.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 001
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1974 um borð í Arnari Hu 1. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og skipstjóri situr í stólnum en í baksýn er Árni Ólafur Sigurðsson sem seinna varð farsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson 2 37
Héðinshöfði var tveggja íbúða hús við Skagaveg. Húsið var frekar óvandað og það var rifið í nóvember 2002 en þá var þessi mynd tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 82
Hér er fólk að vinna við að pakka banönum. Konan á miðri mynd er Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 258
Stund milli stríða hjá þeim Stefáni Sveinssyni til vinstri og Sævari Hlyn Tryggvasyni til hægri í júní 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 327
Unnið við steinalögn við Suðurveg 1 í júní 2011. Frá vinstri: Vilhjálmur Jónsson, Stefán Sveinsson og Ólafur Ásgeirsson.
Ingibergur Guðmundsson 234
Gylfi Sigurðsson pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Gylfi, Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998), og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Gylfi var munstraður sem stýrimaður, Hallgrímur var vélstórinn í hópnum og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 286
Vatnið í skíðaskálann á Skagaströnd er tekið úr lind norðan og ofan við skálann. Hluta af skurðinum fyrir vatnslögnina þurfti að grafa á höndum og á myndinni er unnið að því en hún var tekin í október 1984. Á myndinni eru Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 279
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Mokararnir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 300
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni er Sveinn Garðarsson (d.17.2.2019) að salta yfir fisk í kari í vinnslunni.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 062
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Maðurinn lengst til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri frá Neskaupstað sem var skipstjóri á Hólmadrang nýjum. Hinir mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 201
Líklega er þetta Auðbjörg Hu 6 í höfn á Skagaströnd. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Í baksýn er síldarfæribandið sem flutti síld frá löndunarkrananum, sem var til vinstri, upp í verksmiðuna, sem var til hægri.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn053 - Copy
Stórt iðnaðarhús á Blönduósi, sem gekk undir nafninu Votmúli, stórskemmdist í eldi í september 2004. Þessi mynd sýnir útlit hússins eftir að slökkviliðið hafði lokið störfum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 245
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd við vinnu á skrifstofu sinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helga Berndsen 038
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1965 í réttarskúrnum við Spákonufellsrétt. Þar seldu konur úr kvenfélaginu Eining kaffi og meðlæti á réttardögum. Á myndinni er allt til reiðu fyrir söluna. Frá vinstri: óþekktur strákur, Vilborg Jónsdóttir (d.9.4.1985) Stóra Bergi, Steinunn Jónsdóttir (d.6.4.1982) frá Stórholti, Guðríður Valdimarsdóttir (d.?) úr Vinaminni og Helga Berndsen úr Karlsskála sem heldur um dóttur sína Guðrúnu Einarsdóttur.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 067
Helgi Gunnarsson aðstoðar föður sinn, Gunnar Helgason (d.19.10.2007) í dekkjaslag vegna vörubíls hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 49
Þessi mynd sýnir Skagaströnd 1981 eða 1982. Byggingaframkvæmdir standa yfir við Mánabraut þar sem byggðar voru sjö íbúðir í félagslega kerfinu. Ýmsar byggingar, sem nú eru horfnar, sjást á myndinni t.d. Héðinshöfði í hægra horninu, Efri-Lækur, Efri-Jaðar, Ásbyrgi, Drangey og fleiri.
Jón Jónsson 465
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 244
Kristinn Guðmundsson skrifstofustjóri hjá Hólanesi hf við vinnu sína hjá fyrirtækinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 305
Systurnar Aðalheiður Sif Árnadóttir til vinstri og Halla Kristín Árnadóttir að vinna í skólagörðunum 1984.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 233
Sjötti ágúst 2014 hlýtur að hafa verið bjartur og sólríkur ef miða má við sólgleraugun sem þau eru með Victoría Hólmbertsdóttir og Geir Arnarson starfsmenn vinnuskólans.
Ólafur Bernódusson 669
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd og Anna Kristín Gunnarsdóttir varaþingmaður.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 062
Haustið og veturinn 1994 byggðu Helgi Gunnarsson og starfsmenn hans tvö ræsi á og við þjóðveginn við Húnaver. Á þessari mynd er fyrra ræsinu lokið og grillir í það aftan við karlana en framkvæmdir standa yfir við síðara ræsið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Baldvin Hjaltason, Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), Hrólfur Pétursson og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 80
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) er fremstur á myndinni. Aftan við hann er óþekkt kona og síðan Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004). Aðrir á myndinni eru óþekkir en hún var tekin í skemmtiferð starfsfólks Hólaness hf um Norð - austurland.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 038
Gunnar Guðmundsson virðir fyrir sér skíðin í gini dauðrar hrefnu á höfninni á Skagaströnd. Líklega hefur myndin verið tekin kringum 1985. Slík sjón var ekki óalgeng á Skagastrandarhöfn á sumrin um nokkuð árabil því hrefnurnar voru skotnar í Húnaflóa og gjarnan skornar á höfninni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 223
Hressir drengir í vinnuskólanum í júlí 2014. Frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Róbert Björn Ingvarsson og Aron Snær Fannarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 204
Starfsfólk vinnuskólans á Skagaströnd að gera sér glaðan dag í Kántrýbæ 19. júlí 2012. Frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Geir Arnarson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Einarsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 008
Þennan fallega vörubíl af Chevrolet gerð gerðu þeir upp feðgarnir Gunnar Helgason (d.19.10.2007) og Helgi Gunnarsson. Bíllinn var síðan í þeirra eigu um árabil og notaður við ýmsa flutninga m.a. heyflutninga eins og sést á þessari mynd. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 693
Hafþór Gylfason um borð í Öldu Hu 112 býr sig undir að landa eftir góðan línuróður. Myndin var tekin í mars 2013.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 006
Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 14 eða Arnari Hu 1 en báðum þeim skipum stjórnaði hann með frábærum árangri.
Ingibergur Guðmundsson 174
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1993. Sjaldan hafa verið svo mörg stór skip og bátar í höfninni á sama tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 292
Hjónin Guðbjörg Ólafsdóttir og Finnur Kristinsson að dytta að skemmunni sinni við Fjörubraut í maí 2012.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 79
Þórunn Bernódusdóttir á vinnustað sínum sem símaafgreiðslustúlka á Gamla pósthúsinu. Fyrir tíma sjálfvirkninnar þurfti símastúlkan að gefa samband milli númera í kerfinu og "gefa línu" eins og kallað var gegnum tengiborðið sem sést til hægri. Á þessari mynd, sem líklega var tekin einhverntíma kringum 1975, hefur Pálína Freyja Harðardóttir komið í heimsókn af efri hæðinni þar sem hún átti heima á þessum tíma.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 036
Húsið á myndinni hét Gunnarshólmi en var oft kallað Grafarbakki í daglegu tali. Það kom til vegna þess að húsið stóð nálægt gömlum mógröfum sem þarna voru. Eftir að hafa staðið autt um fjölda ára og verið í niðurníðslu fékk Slökkvilið Skagastrandar húsið til að æfa sig að slökkva í því. Á myndinni er mikill eldur kominn í húsið. Hann var síðan slökktur og svo aftur kveikt í og húsið látið brenna til grunna undir eftirliti slökkviliðsins.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 065
Konur við pillunarbandið í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Signý Ástmarsdóttir, Sigurbjörg Björnsdóttir (d.3.4.1981) frá Grund og Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012).
Ingibergur Guðmundsson 138
Húnavöku-ritnefndarmennirnir Jóhann Guðmundsson frá Holti til vinstri og Stefán Jónsson (d. 29.6.2009) frá Kagaðarhóli ritstjóri, önnum kafnir við að lesa prófarkir Húnavökunnar í apríl 1985.
Ólafur Bernódusson 703
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd er einn hópurinn með Karli. Frá vinstri: Monika Jónasdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Þórlaug Arnardóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Jón Gunnarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir og Karl Lúðvíksson kennari.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 009
Magnús Sigurðsson vélstjóri mundar logsuðutækin um borð í Arnari Hu1. Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Ólafur Bernódusson 730
Steypireyður er stærsta skepna jarðarinnar og er reyndar talinn stærsta skepna sem nokkurn tíma hefur verið til enda geta þeir orðið 200 tonn að þyngd og yfir 30 metra langir. Einn slíkan rak dauðan í fjöruna sunnan við bæinn Ásbúðir á Skaga í ágúst 2010. Bræðurnir á Hrauni á Skaga þeir Jóhann og Steinn Rögnvaldssynir voru fengnir til að skera hvalinn og hreinsa beinan eins vel og kostur var því beinagrindin er varðveitt eftir langt hreinsunarferli, sem fól meðal annars í sér langa suðu á beinunum til að ná úr þeim lýsinu. Eftir þurrkun voru beinin síðan flutt til Húsvíkur þar sem þau voru sett saman og hægt er að sjá beinagrindina á hvalasafninu þar. Snemma á öldinni var mikið veitt af steypireyð þannig að hann var kominn í útrýmingarhættu en hann er alfriðaður í dag.
Ingibergur Guðmundsson 134
Hluti af ritnefnd Húnavöku 1985. Frá vinstri: Björn Bergmann Jónasson (d. 30.5.1985) frá Marðanúpi, sem var reyndar ekki í ritnefndinni en ákafur velunnari Húnavökunnar, Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli, ritstjóri og Jóhann Guðmundsson ritnefndarmaður í Holti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 231
Gabríel Sólon Sigurðsson í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Ingibergur Guðmundsson 278
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Á þessari mynd má þekkja Ingiberg Guðmundsson næst okkur og Magnús B. Jónsson næst honum en aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
42
43
44
…
75
Leita í myndasafninu
Leita