Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 330
Unnið að viðhaldi á leiksskólanum Barnabóli í mars 2010. Smiðirnir eru Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og Guðmundur Rúnar Kristjánsson til hægri.
Ólafur Bernódusson 697
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður í Vík ehf lagar til balana á bílpallinum eftir löndun úr bát sínum, Öldunni Hu 112, í lok mars 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 262
Einar Ari Einarsson í vinnunni hjá vinnuskólanum við golfvöllinn í júlí 2011.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 025
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni eru konur í eldhúsinu í Fellsborg að hvíla sig augnablik á undirbúningi fyrir árshátíð Hólaness hf þá um kvöldið. Allur undirbúningur hátíðarinnar var í höndum starsfólks fyrirtækisins. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Sjöfn Guðmundsdóttir, Anna Skaftadóttir og Svava Svavarsdóttir.
Jón Jónsson 499
Sjósetning á fyrsta bátnum sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf sumarið 1971. Á myndinni er báturinn í sleðanum utan við stöðina en eftir er að renna honum á sjóinn. Báturinn hét Ásdís Hu 10 smíðaður úr eik, 21 brl. með 185 ha Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson og Guðbjörn Hallgrímsson. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971 en mannbjörg varð. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Ingibergur Guðmundsson 278
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna. Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum. Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var. Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo, annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður. Á þessari mynd má þekkja Ingiberg Guðmundsson næst okkur og Magnús B. Jónsson næst honum en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn392
Grunnskólinn á Skagaströnd, Höfðaskóli.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 249
Sigurður Skagfjörð Bjarnson vinnur með loftbor inni í gömlu Tunnunni um miðjan september 2010. Þarna er að verið taka fyrstu skrefin við endurgerð hússins að innan til að hægt sé að koma þar fyrir Spákonuhofinu, sem er í húsinu í dag.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 007
Fyrsta veggeining hússins að Hólabraut 20 reist fyrir hjónin Guðjón Ebba Sigtryggsson (d.16.7.2017)og Halldóru Þorláksdóttur (d.27.12.2017). Húsið var byggt úr forsteyptum einingaplötum úr sérstaklega sterkri steypu og var því raðað upp eins og úr Lego kubbum. Síðan voru einingarnar boltaðar saman með þéttingu á milli eininga. Hús af þessari gerð hafa reynst vel. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1970. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 203
Ásdís Birta Árnadóttir við afgreiðslu í Djásn og Dúllerí 17. júlí 2012. Djásn og Dúllerí var verslun með handverk og heimilisiðnað sem rekin var nokkur sumur á neðst hæðinni í Gamla Kaupfélaginu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 253
Bogga í Vík Hu 6 sjósett 9. mars 2011. Um borð er eigandinn Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018).
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 147
Ole Aamundsen (d.?) frá Lundi við skreiðarhjallinn sinn. Ole var norskur og var athafnamaður á Skagströnd kringum miðja 20. öldina gjarnan kallaður Óli norski. Rak hann m.a. útgerð, fiskvinnslu og lýsisbræðslu. Auk þess var hann umboðsmaður olíufélagsins Shell á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 225
Ísak Karl Tryggvason við vinnu í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 031
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980 árshátíð Hólaness hf. Á henni eru starfsmenn Hólaness og makar þeirra að njóta kaffiveitinga. Vinstra megin við borðið nær okkur eru frá vinstri: Agnar Hávarðarson, Gunnar Helgason (d.19.10.2007), Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991) og óþekkt. Hægra megin við borðið frá vinstri: Heiðdís Sigurðardóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Steindór Gíslason (d.1985), Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir. Við næsta borð má þekkja Kolbrúnu Viggósdóttur í ljósri blússu og Sigþrúði Magnúsdóttur dökkklædda hinum megin við borðið. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 727
Á markaðsdegi Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd var hægt að kaupa notaðan fatnað á góðu verði. Einnig var hægt að kaupa sér kakó/kaffi og vöfflu með rjóma. Á myndinni, sem tekin var 1. maí 2006, eru nokkrir gestir að njóta veitinganna í fundarherberginu á annarri hæð í Rauða kross húsinu. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir Guðrún Guðbjörnsdóttir, Adolf H. Berndsen, Gylfi Sigurðsson, Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir.
Helga Berndsen 029
Feðgarnir Björn Sigurðsson og Sigurður Björnsson smíðuðu nokkra báta í húsnæðinu sem sést á þessari mynd. Einkum voru það skektur sem þeir smíðuðu en einnig nokkrar trillur. Á myndinni er ein af þeim fyrstu ásamt kaupendunum og bátasmiðnum. Frá vinstri: kaupendurnir Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og Helga Berndsen, Guðmunda Jónsdóttir, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) bátasmiður, Guðrún Einarsdóttir og Haraldur Jónsson. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Helga Berndsen 062
Gunnlaugur Árnason (d. 14.9.2016) ekur skarfaafla dagsins heim í hjólbörum eftir vel heppnað skytterí sumarið 1995.
Ingibergur Guðmundsson 299
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni eru þeir Snorri Gíslason (d.29.5.1994) til vinstri og Börkur Árnason til hægri við vinnu sína í vinnslunni.
Ólafur Bernódusson 690
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu.Á þessari mynd er duflið komið á kerru aftan í björgunarsveitarbílnum og er á leiðinna á eyðingarstað. Tunnan fremst á kerrunni inniheldur sprengiefnið. Bjarni er strax að leggja úr höfn aftur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 309
Stundum er þröngt í bílnum sem notaður er til að ferja vinnuskólafólk á milli verkefna í bænum . Á þessari mynd frá í ágúst 2012 eru í bílnum frá vinstri: Eva Dögg Björgvinsdóttir, Friðmar Kári Eiríksson, Ásdís Birta Árnadóttir, Birta Dögg Bessadóttir og Aldís Embla Björnsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 220
Krakkarnir í vinnuskólanum vinna gott starf við að halda bænum hreinum og fínum. Hér er hópur þeirra við slátt á túnbletti milli Túnbrautar og Fellsbrautar í júlí 2014. Frá vinstri: óþekktur, Sylvía Hrólfsdóttir, Ellen Sigurjónsdóttir, Róbert Björn Ingvarsson, Jóhannes Sigurpálsson og Viktor Einarsson.
Ingibergur Guðmundsson 289
Á myndinni er verið að skipta um planka í Auðbjörgu Hu 6 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Fjærst okkur á myndinni er Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður svo er óþekktur maður en næst okkur er Gunnar Þór Gunnarsson. Myndin var tekin í mars 1989.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 066
Gunnar Helgason (d.19.10.2007) dyttar að vörubílnum sínum.
Ólafur Bernódusson 728
Bogga í Vík Hu 6 tekin á land eftir óhapp sem laskaði skrúfu og stýri bátsins. Myndin var tekin í kalsa veðri 29. mars 2010.
Ingibergur Guðmundsson 232
Steindór R. Haraldsson rak hótel Dagsbrún um nokkurn tíma og þá var þessi mynd tekin af honum við vinnu á barnum.
Ólafur Bernódusson 686
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu. Á þessari mynd er björgunarskipið Húnabjörg að skutla gæslumönnunum um borð í Bjarna fram af Höfðanu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 251
Jakop Guðmundsson til vinstri og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til hægri spjalla saman í Bátanausti á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 296
Lilja Ingólfsdóttir leiðir hóp leikskólabarna í gönguferð í apríl 2011. Frá vinstri: Stefanía Hrund Stefánsdóttir, óþekktur, Ásgeir Sigmar Björnsson, Gunnar Andri Elvarsson, óþekktur, Lilja og óþekktur.
Séra Pétur og Dómhildur - safn203
Sunnudagaskólinn á Skagaströnd 1980 á tröppunum sem voru vestan á Höfðaskóla: Í neðstu tröppunni eru frá vinstri: Óskar Hjaltason, Pálína Hjaltadóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Friðrik Gunnlaugsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Íris Gunnarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Berglind Karlsdóttir. Í næst fremstu röð frá vinstri: Jóhanna Karlsdóttir, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Hallgrímur Oddsson, Hugrún Pálsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Áslaug Gunnarsdóttir, Steinþór Karlsson og Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012).Í þriðju röð frá vinstri: Eva Björg Jónasdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir (eru uppi í handriðinu), Halldór Gunnar Ólafsson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Friðrik Birgisson, Jóney Gylfadóttir (uppi í handriðinu) og Anna Þóra Birgisdóttir. Næsta röð ofar frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Þorlákur Sigurður Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Katrín Sigurjónsdóttir, Kristjana Erlingsdóttir, Vala Rós Ingvarsdóttir, Helga Heiða Helgadóttir, Hulda Magnúsdóttir og Pálína Freyja Harðardóttir. Aftasta röð frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Soffía Lárusdóttir (uppi á handriðinu), Sigrún Lárusdóttir, Birna Sveinsdóttir, Bergþóra Huld Birgisdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson og Ingvar Jónsson. Framan við Ingvar eru Berglind Stefánsdóttir og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 244
Dagrún Hu 121 er gerð út til netaveiða meira og minna allt árið. Lengi var Lýður Hallbertsson maðurinn í brúnni en synir hans, einkum Eiríkur Lýðsson, voru með honum til sjós. Þegar þessi mynd var tekin 19. ágúst 2011 er Lýður kominn í land og sestur á bryggjupollann en Eiríkur tekinn við í brúnni með syni sína með sér á sjónum. Á myndinni eru þeir feðgar Lýður og Eiríkur að gera klárt fyrir næsta róður.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 210 - Copy
Myndin var tekin 2. nóvember 2012 af bátum við Skúffugarðinn. Eigendur báta eru gjarnan á varðbergi þegar veður er eins og sést á myndinni og moka snjónum úr þeim áður en yfirvigtin verður of mikil.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 029
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980 á árshátíð Hólaness hf. Á henni er stjórn og framkvæmdastjóri félagsins á sviðinu í Fellsborg ásamt Vigdísi Viggósdóttur, sem var starfsstúlka í frystihúsinu. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Adolf J. Berndsen, Gunnar Sveinsson og Hjalti Skaftason stjórnarmenn og til hægri er framkvæmdastjórinn, Steindór Gíslason (d.1985).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 276
Á myndinni eru Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Árni Halldór Eðvarðsson til hægri að undibúa að klæða utan húsið Bjarnaborg sem stendur við Strandgötu. Árni var eigandi hússins en Árni Halldór er starfsmaður Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Húsið sjálft á sér langa sögu. Byggt sem lagerhúsnæði fyrir verslunina Borg og þjónaði henni þar til hún hætti kringum 1970. Eftir það komst húsið í eigu Bjarna Helagsonar (d.30.12.1983) útgerðarmanns á Stíganda hu 9 og síðan Slysavarnadeildarinnar á Skagaströnd sem geymsla og höfuðstöðvar félagsins. Vík ehf eignaðist svo húsið en það félag var í eigu bræðranna Árna Guðbjartssonar og Sigurjóns Guðbjartssonar. Þegar félaginu var svo skipt upp eignaðist Árni húsið einn.
Ingibergur Guðmundsson 302
1987 voru þessir ungu menn skipverjar á Ólafi Magnússyni Hu 54. Þegar myndin var tekin voru þeir nýkomnir úr róðri. Hjörtur Guðmundsson til vinstri og Vilhelm Harðarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 224
Árni Geir Ingvarsson bæjarverkstjóri á Skagaströnd skoðar blómabeð utn við leikskólann Barnaból í ágúst 2014.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 051
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. Þessi vörubíll, H 17, sem var rækilega merktur á hurðunum, var í eigu Engilberts Óskarssonar (d.13.9.1982). Seinna fékk hann sér stærri bíl með flutningskassa og stundaði flutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar á honum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en í baksýn sér í gamla kaupfélagið.
Helga Berndsen 128
Myndin var tekin 1970 í póst- og símaafgreiðslunni á Skagaströnd þegar fagnað var vígslu sjálfvirks síma á Skagaströnd. Maðurinn til hægri er Birgir Sigurjónsson umdæmisstjóri í Brú en Helga Berndsen stöðvarstjóri Pósts og síma á Skagaströnd situr til vinstri. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Sama má segja um unga drenginn sem gægist út um afgreiðslulúguna til hægri.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 060
Trollið tekið um borð í Hólmadrang St 70. Bobbingalengjan er að koma úr kafinu og karlarnir að gera sig klára til að hífa belginn og pokann inn. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 064
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri. Hinn maðurinn er óþekktur
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 263
Skyndilegur leki kom að þessum bát, Smyrill SH 29, í róðri í byrjun júlí 2011. Báturinn var umsvifalaust hífður upp og í ljós kom óútskýrð sprunga á skrokknum. Gert var við bátinn og hann hélt áfram róðrum innan fárra daga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 242
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af Guðmundi Sigvaldasyni (d.8.2.2017) til vinstri sveitarstjóra Hörgárbyggðar og fyrrverandi sveitarstjóra á Skagaströnd og Magnúsi B. Jónssyni til hægri sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagaströnd. Þeir félagr voru á staðnum að kynna sér starfsemi Norðuráss.
Helga Berndsen 027
Ernst Berndsen umboðsmaður BP á Skagaströnd dælir bensíni á bíl Jón Steindórssonar. Bensínafgreiðslan var í skemmunni við vestan við Karlsskála, sem sést í baksýn. Í skemmunni var einnig selt sælgæti, ís og gosdrykkir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma á áttunda áratugnum.
Helga Berndsen 094
Síldarbræðsla í fullum gangi í verksmiðjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin kringum 1950. Gufuketill verksmiðjunnar var kyntur með svartolíu en ketillinn var í rými lengst til hægri í húsinu til vinstri og svartur reykurinn fór út í andrúmsloftið gegnum stóra skorsteininn. Þaðan var gufan leidd í næsta rými hússins og látin knýja túrbínu til rafmagnsframleiðslu fyrir verksmiðjuna. Síðan var gufan leidd áfram neðanjarðar yfir í verksmiðjuhúsið þar sem hún var notuð til að sjóða síldina. Úr síldinni var svo unnið mjöl og lýsi. Mjölinu var blásið yfir í stóru skemmuna gegnum rörið sem sést á myndinni milli veksmiðjuhússins og skemmunar. Lýsinu var aftur á móti dælt í tank sem stóð upp við Höfðann rétt norður af frystihúsi Hólaness hf. Næst okkur á myndinni eru leyfar gömlu bryggjunnar sem var rétt austan við Hólsnefið. Bryggjuna byggðu sjómenn á Skagaströnd 1922 með styrk frá Verslunarfélagi Vindhælinga.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 58
Á árum áður var það nánast lífsspursmál að eiga kú til heimilisþarfa. Á þessari mynd er Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) í Reykholti með kusu sína.
Helga Berndsen 132
Vorið 1965 fylltist Húnaflói af hafís. Meðal annars kom ísinn auðvitað inn á höfnina á Skagaströnd. Til að sporna við því og vernda bátana í höfninni var strengdur sterkur vír frá Ásgarði (gömlu löndunarbryggjunni) og yfir í enda Skúffugarðs. Vírinn var látinn vera rétt við yfirborðið og þannig stöðvaði hann ísrekið inn í höfnina. Myndin sýnir aftur á móti víkina austan við Skúffugarðinn en hún fylltist af ís eins og sjá má.
Ingibergur Guðmundsson 304
Eftir miklar breytingar og uppbyggingu var sundlaugin á Skagaströnd endurvígð í október 1986. Fjölmenni mætti til að skoða breytingarnar sem þóttu hafa tekist vel. Á myndinni er fólk að hlusta á Adolf J. Berndsen oddviti Höfðahrepps, lengst til vinstri, lýsa framkvæmdunum.
Helga Berndsen 028
Rifjað upp á gamla mátann með hrífum. Frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), óþekkt kona, Helga Berndsen og Jón Steindórsson. Í baksýn má sjá Farmal Cub dráttavél með rakstrarvél aftan í. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 335
Menn frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar vinna að nýju þaki á hluta áhaldahúss hreppsins í maí 2010. Helgi Gunnarsson til vinstri og Gunnlaugur Sigmarsson til hægri stilla sér upp fyrir myndatökuna. Á bakvið eru starfsmenn Helga við vinnu sína á þakinu.
Ólafur Bernódusson 674
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd er Adolf H. Berndsen oddviti Sveitarfálagsins Skagaströnd að flytja tölu. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hlustar á en aftan við þá eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Valgarð Hilmarsson og Sigríður Stefánsdóttir.
Helga Berndsen 067
Heiðursmennirnir tveir í forgrunninum eru Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) frá Reykholti til vinstri og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum til hægri. Þrátt fyrir að vera hættir að vinna vegna aldurs fylgdust þeir vel með á höfninni alveg fram í andlátið. Myndin var tekin 1995.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 061
Um borð í Hólmadrang St 70 var fyrsta skrefið á vinnslulínunni að gera að fiskinum áður en hann fór áfram á línunni - hausun- flökun - snyrting - pökkun og frysting. Maðurinn næst okkur er Axel Jónsson frá Skálteigi í Norðfjarðarsveit. Hann var í áhöfn Hólmadrangs meðan Magni Kristjánsson frá Norðfirði var skipstjóri á Hólmadrangi. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 102
Þessi mynd var tekin þegar þær Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) lengst til vinstri og Helga Berndsen, í miðið, voru með vörukynningu í kaupfélagshúsin. Konan sem er að smakka hjá þeim er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en dagatalið á veggnum segir að það hafi verið þann 20. einhvers mánaðar en ekki er hægt að lesa ártalið. Myndina tók Þórður Jónsson (d.25.12.2010)
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 058
Unnið við snyrtingu á vinnslulínunni um borð í Örvari Hu 21. Sjómennirnir eru frá vinstri: Sævar Hallgrímsson, Ragnar Högnason og óþekktur maður.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 171
Á myndinni er verið að draga þorskanet skammt fram af Skagaströnd. Líklega var myndin tekin um borð í Vísi Hu 10 kringum 1962. Áhöfnin í þessum róðri hefur verið frekar óvenjuleg því á myndinni má sjá þrjá sem fóru með sem gestir. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur (?Stefán Stefánsson?(d.2.1.1988)), Áslaug Hafsteinsdóttir, Jón Stefánsson (d.3.8.1991), Sigurður Kristinsson, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) (fjær), Sigurður Árnason (d.26.3.2013) (nær) og Jón Gunnar Jósefsson. <br>Á þessum tíma var Vísir Hu 10 í eigu bræðranna, Jóns, Jósefs og Stefáns Stefánssona og Sigurðar Árnasonar.
Árni Geir Ingvarsson 2 34
Stefán Jósefsson útgerðarmaður og skipstjóri um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni HU 54 í Skagastrandarhöfn.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 90
Konan lengst til hægri er Áslaug Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Á myndinni er hún að pakka banönum ásamt fleira fólki.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 289
Myndin var tekin 4. janúar 2012 þegar verið var að taka niður bækur Bókasafns Skagastrandar til að hægt væri að vinna að endurbótum húsnæðis safnsins í kjallara Fellsborgar. Stúlkan á myndinni er Sigurbjörg Birta Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 241
Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 239
Norðurá er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin inni í vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni er framkvæmdastjóri félagsins, Fannar Viggósson, á skrifstofu sinni. Utan við gluggann er bíll að koma upp á vigtina en allt rusl er vigtað áður en það er urðað á svæðinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 113
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 sumarið 1968. Báturinn var á færum og líklega hafa verið fimm karlar um borð. Eins og sjá má voru rúllurnar handsnúnar sem gat verið erfitt ef fiskað var á miklu dýpi og lengi staðið við. Hver maður veiddi í sinn stamp, sem sjást á myndinni, og voru fiskarnir taldir frá hverjum og einum í lestina. Þetta var gert því hlutaskiptin voru þannig að hásetinn fékk þriðja hvern fisk í sinn hlut en útgerðin hina tvo. Þannig uppskáru menn mismikið eftir því hve fisknir þeir voru.
1
…
43
44
45
…
75
Leita í myndasafninu
Leita