Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 239
Norðurá er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin inni í vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni er framkvæmdastjóri félagsins, Fannar Viggósson, á skrifstofu sinni. Utan við gluggann er bíll að koma upp á vigtina en allt rusl er vigtað áður en það er urðað á svæðinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 113
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 sumarið 1968. Báturinn var á færum og líklega hafa verið fimm karlar um borð. Eins og sjá má voru rúllurnar handsnúnar sem gat verið erfitt ef fiskað var á miklu dýpi og lengi staðið við. Hver maður veiddi í sinn stamp, sem sjást á myndinni, og voru fiskarnir taldir frá hverjum og einum í lestina. Þetta var gert því hlutaskiptin voru þannig að hásetinn fékk þriðja hvern fisk í sinn hlut en útgerðin hina tvo. Þannig uppskáru menn mismikið eftir því hve fisknir þeir voru.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 266
Kátar stúlkur í vinnuskólanum sumarið 2011. Heba Líf Jónsdóttir til vinstri og Aldís Embla Björnsdóttir til hægri. Lengra inni í rörinu grillir í Bergrósu Helgu Hafsteinsdóttur.
Hafliði Óskarsson 3
Á myndinni eru áhafnir Örvars Hu 21 og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði á fyrirlestri um borð í skólaskipinu Sæbjörgu í mars 1990. Frá vinstri eru: Sigurbjörn Ingólfsson, Birgir Þórbjarnarson, Guðjón Guðjónsson, sjö óþekktir, Hafþór Gylfason og óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 140
Ritnefnd Húnavökunnar í kaffipásu á Hótel KEA á Akureyri vorið 1985. Erindi ritnefndarinnar þangað var að lesa prófarkir og leggja síðustu hönd á uppsetningu ritsins fyrir prentun á Akureyri. Frá vinstri: Óþekkt stúlka, Unnar Agnarsson Blönduósi, Jóhann Guðmundsson Holti, Páll Ingþór Kristinssson Blönduósi, Stefán Jónsson (d.29.6.2009) Kagaðarhóli og Ingibergur Guðmundsson Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 227
Viktor Már Einarsson og Lilja Dögg Hjaltadóttir gantast í kaffipásu í vinnuskólanum í ágúst 2014. Milli þeirra stendur Birta Dögg Bessadóttir starfsmaður Samkaupa á þeim tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 296
Lilja Ingólfsdóttir leiðir hóp leikskólabarna í gönguferð í apríl 2011. Frá vinstri: Stefanía Hrund Stefánsdóttir, óþekktur, Ásgeir Sigmar Björnsson, Gunnar Andri Elvarsson, óþekktur, Lilja og óþekktur.
Hafliði Óskarsson 4
Í mars 1990 voru áhafnir Örvars Hu 21 frá Skagaströnd og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði í slysavarnaskóla sjómanna um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Á myndinni eru áhafnirnar að svamla í sjónum í flotbúningum og bíða þess að verða hífðir um borð.
Ingibergur Guðmundsson 253
Óhapp varð í dráttarbrautinni haustið 1989 þegar búkki undir síðunni á Arnarborginni Hu 11 gaf sig þegar verið var að sjósetja bátinn. Nokkur sjór komst í bátinn við óhappið og á myndinni er verið að dæla úr lestinni. Enginn slasaðist við óhappið og vel gekk að koma bátnum á flot aftur - á réttum kili. Arnarborgin endaði svo ævi sína á áramótabrennu á Skagaströnd 1993. Myndina tók Ingibergur Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 222
Vinnuskólinn sér um að slá auða bletti og umferðareyjar á Skagaströnd á sumrin. Þessi mynd var tekin í júlí 2014 af nokkrum starfsmönnum við að losa hey úr söfnunarpokum. Heyinu er síðan fargað. menirnir eru frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Róbert Björn Ingvarsson, Geir Arnarson og Aron Snær Fannarsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 063
Pokarnir koma um borð í Hólmadrang ST 70 með sæmilegan afla. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson836
Jón Ólafur Sigurjónsson er fjölhæfur tónlitarmaður með meiru. Á myndinni frá 10. maí 2010 er hann með bassann sinn að bíða eftir að spila undir á tónleikum kirkjukórs Hólaneskirkju.
Helga Berndsen 126
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af þessum systkinum. Frá vinstri: séra Helgi Konráðsson (d.30.6.1959) vinsæll prestur og prófastur á Sauðárkróki og víðar, Margrét Konráðsdóttir (d.17.9.1974) kaupkona í Versluninni Borg á Skagaströnd ásamt manni sínum Sigurði Sölvasyni (d. 24.9.1968). Jón Konráðsson (d.19.3.1986) bóndi og kennari, Sesselja Konráðsdóttir (d.22.4.1987) skólastjóri og móðir Eyjólfs Konráðs Jónssonar (d.6.3.1997) Alþingismanns og Magnús Konráðsson (d.23.1.1986) verkfræðingur hjá Hafnamálastofnun m.a. yfirverkfræðingur við gerð Skagastrandarhafnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 260
Halda mætti að Stefán Sveinsson væri að leita að fjársjóði þar sem liggur marflatur og lýsir með vasaljósi niður í þrönga holu í lok júní 2011. Ekki er vitað hvort leitin bar árangur eða ekki.
Ólafur Bernódusson894
Hallgrímur Hjaltason bóndi á Skeggjastöðum II með tvo til reiðar rekur fé til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 280
Myndin var tekin á kaffistofu sveitarfélagsins í stjórnsýsluhúsinu í lok nóvember 2011. Frá vinstri: Kristín Björnsdóttir skrifstofustjóri, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri og Jóhanna Sigurjónsdóttir skrifstofustúlka.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 237
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Bílavigtin er framan við húsið.
Ólafur Bernódusson752
Þessi mynd var tekin þegar starfsmannafélag Arnars og Skagstrendingur hf færðu Höfðaskóla peningaupphæð til tækjakaupa veturinn 2002 -2003. Á myndinni eru frá vinstri: Finnur Kristinsson frá starfsmannafélaginu, Stella Kristjánsdóttir skólastjóri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 232
Egill Örn Ingibergsson í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Ólafur Bernódusson765
Eftir miklar endurbætur á Bjarmanesi var þar opnað kaffihús sumarið 2004. Á myndinni eru konurnar þrjár sem ráku kaffihúsið fyrstu misserin. Frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sigrún Lárusdóttir og Kristín Krismundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 219
Þessar tvær ungu stúlkur eru við slátt á opnu svæði milli Túnbrautar og Fellsbrautar í júlí 2014. Stúlkurnar eru Sylvía Hrólfsdóttir til vinstri og Ellen Sigurjónsdóttir til hægri og voru í vinnu hjá vinnuskólanum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn202
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í grennd við Bólstaðarhlíðarkirkju? né hvert tilefnið var. Í aftari röð eru frá vinstri: séra Hjálmar Jónsson og séra Pálmi Matthíasson. Í fremri röð eru frá vinstri: Jón Tryggvason (d.7.3.2007) organisti frá Ártúnum, séra Róbert Jack (d.11.2.1990), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) og séra Árni Sigurðsson.
Ingibergur Guðmundsson 334
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson að koma fyrir skólplögn frá skálanum og rotþró snemma vors 1985.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 254
Tveir atvinnurekendur á Skagaströnd. Gísli Snorrason til vinstri rekur Vélaverkstæði Skagastrandar, sem er í baksýn. Vilhelm Björn Harðarson til hægri á og rekur Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar. Myndin var tekin í september 2010.
Ólafur Bernódusson794
Adolf J. Berndsen þáverandi oddviti Höfðahrepps - nú Sveitarfélagið Skagaströnd - vígir dráttarbrautina á Skagaströnd með því að gangsetja dráttarvindurnar 6. apríl 1985.
Ingibergur Guðmundsson 142
Í óeiginlegri merkingu þýðir orðtakið: "að vera í djúpum skít", að vera í vandræðum. Á myndinni fær orðtakið dýpri merkingu því vélin er bæði í vandræðum og líka raunverulega föst í djúpum skít. Myndin var tekin á Vatnsskarði í maí 1987.
Helga Berndsen 139
Á þessari mynd eru þrír athafnamenn á Skagaströnd við kaffiborð á Strandgötu 10. Myndin var líklega tekin rétt fyrir 1970. Á henni eru frá vinstri: Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972) sem stundaði vöruflutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar um árabil. Karl Berndsen sem situr í fangi föður síns Karls Berndsen (d.12.2.1995) og Þórarinn Björnsson (d.24.5.1985). Þeir Karl og Þórarinn ráku saman Vélsmiðju Karls og Þórarins og Karl síðar Vélsmiðju Karls Berndsen allt til dauðadags.
Séra Pétur og Dómhildur - safn190
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) á kunnuglegum stað í predikunarstólnum í Hólaneskirkju eldri að tala við söfnuð sinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 295
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból í gönguferð með starfsstúlkunum þar í apríl 2011. Starfsstúlkurnar eru frá vinstri: Sesselja Guðmundsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Lilja Ingólfsdóttir. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 701
Í desember 2013 var haldið skyndihjálparnámskeið í Höfðaskóla á vegum Farskólans á Sauðárkróki. Aðsókn á námskeiðið var svo góð að skipta þurfti hópnum í þrennt en það var Karl Lúðvíksson skyndihjálparkennari úr Steinholti sem kenndi öllum hópunum. Á þessari mynd eru fjórar samstarfskonur úr greiðslustofunni á námskeiðinu. Frá vinstri: Jensýna Lýðsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn203
Sunnudagaskólinn á Skagaströnd 1980 á tröppunum sem voru vestan á Höfðaskóla: Í neðstu tröppunni eru frá vinstri: Óskar Hjaltason, Pálína Hjaltadóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Friðrik Gunnlaugsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Íris Gunnarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Berglind Karlsdóttir. Í næst fremstu röð frá vinstri: Jóhanna Karlsdóttir, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Hallgrímur Oddsson, Hugrún Pálsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Áslaug Gunnarsdóttir, Steinþór Karlsson og Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012).Í þriðju röð frá vinstri: Eva Björg Jónasdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir (eru uppi í handriðinu), Halldór Gunnar Ólafsson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Friðrik Birgisson, Jóney Gylfadóttir (uppi í handriðinu) og Anna Þóra Birgisdóttir. Næsta röð ofar frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Þorlákur Sigurður Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Katrín Sigurjónsdóttir, Kristjana Erlingsdóttir, Vala Rós Ingvarsdóttir, Helga Heiða Helgadóttir, Hulda Magnúsdóttir og Pálína Freyja Harðardóttir. Aftasta röð frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Soffía Lárusdóttir (uppi á handriðinu), Sigrún Lárusdóttir, Birna Sveinsdóttir, Bergþóra Huld Birgisdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson og Ingvar Jónsson. Framan við Ingvar eru Berglind Stefánsdóttir og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson
Ólafur Bernódusson763
Myndin var tekin 21. apríl 2004 þegar löndun stóð sem hæst á frosnum afurðum úr Arnari Hu 1. Guðjón Guðjónsson skipstjóri Arnars til vinstri spjallar við löndunarmanninn Guðmund Eyþórsson um landsins gagn og nauðsynjar.
Ólafur Bernódusson743
Í lok júlí 2013 strandaði Sædís Bára Gk 88 á einu af djúpskerjunum framan við Árbakkastein. Báturinn var að koma úr línuróðri og var talið að sá sem var sið stýrið hefði dottað og lenti Sædís Bára á skerinu. Báturinn skemmdist lítið og enginn meiddist. Hann var svo dreginn af strandstað á næsta flóði.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 017
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún var tekin á verkstæði Hólness hf á neðri hæðinni í Salthúsinu sem nú hefur verið breytt í glæsilegt gistiheimili. Frá vinstri eru: Þórarinn Björnsson (d.24.5.1985), Gunnar Albertsson og Pétur Eggertsson. Maðurinn sem snýr baki í okkur er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 666
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á myndinni eru frá vinstri starfsstúlkurnar: Sigrún Þórisdóttir, Birna Sveinsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Eva Gunnarsdóttir. Lengst til hægri eru svo iðnaðarmennirnir Björn Hallbjörnsson rafvirki og Helgi Gunnarsson trésmiður.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 78
Ekki er vitað um tilefni veislunnar á myndinni. Í afgreiðslulúgunni til vinstri var hægt að ná sambandi við símastúlkuna og panta símtöl við aðra landshluta eða jafnvel báta úti á sjó. Stúlkan gaf síðan samband í símaklefann bak við hurðina til hægri. Að samtalinu loknu þurfti svo að fara aftur í lúguna og gera upp símtalið eftir lengd þess. Veislugestir eru frá vinstri: Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), Rósa Pétursdóttir (d.10.10.1998) kona hans, Hrólfur Jakobsson (d.27.12.1996), Sylvía Hrólfsdóttir, Hörður Ragnarsson og Þórunn Óladóttir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 012
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1, líklega kringum 1974. Á henni vinna við trollið Ólafur Ingibjörnsson til vinstri og Guðjón Guðjónsson (Jonni) til hægri. Báðir urðu þeir seinna stýrimenn og skipstjórar á togurum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 205
Óþekkta listakona og tvær aðstoðarstúlkur njóta blíðunnar í hólunum vestan við stjórnsýsluhúsið 20. ágúst 2012. Með óþekktu listakonunni til vinstri eru þær Ásdís Birta Árnadóttir og Aldís Embla Björnsdóttir sem er með húfu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 243
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af tveimur sorphirðumönnum. Vinstra megin er Ómar Kjartansson hjá Ó.K. gámaþjónustu á Sauðárkróki en til hægri er Vilhelm B. Harðarson hjá Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar á Skagaströnd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 167
Karl Berndsen (d.12.2.1995) til vinstri og Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972) til hægri. Bílinn sem þeir standa við átti Númi og stundaði á honum flutninga milli Skagastrandar og Reykjavíkur. Eins og sjá má var langt hús á bílnum þannig að Númi gat tekið með sér nokkra farþega í hverri ferð. Þegar þessi mynd var tekin, líklega einhverntíma kringum 1960, var það a.m.k. átta tíma ferðalag að fara þessa leið að sumri til með Núma. .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 248
Börn hafa gaman af að halda "tombólu" eða hlutaveltu. Þá byrja þau gjarnan á að ganga í hús og betla einhverja hluti til að hafa á tombólunni hjá sér. Merkja svo hlutina og selja miða með samsvarandi númeri sem gefur þá viðkomandi hlut í skiptum fyrir miðann. Oftast nýtur Rauði krossinn eða önnur sambærileg samtök ágóðans af fyrirtækinu hjá krökkunum. Á myndinni eru þrjár ungar stúlkur að halda tombólu á planinu sunnan við söluskálann 1. september 2010. Stílkurnar eru frá vinstri: Telma Jónasdóttir, óþekkt stúlka og Victoría Hólmbertsdóttir. Standandi eru viðskiptavinirnir Harpa Hlín Ólafsdóttir til vinstri og Valgerður Guðný Ingvarsdóttir til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 292
Í apríl 1989 varð stórbruni hjá bátasmiðjunni Mark hf á Vallarbraut. Húsið brann til grunna og bátar sem voru í smíðum brunnu líka eins og sést á myndinni. Húsið var stálgrindahús en stálbitarnir undust upp eins og pípuhreinsarar í hitanum frá eldinum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 140
Þessi fjárflutningabíll með þessum langa palli var í eigu Harðar Ragnarssonar. Á myndinni er bíllinn við Spákonufellsrétt en hjá bílnum er kona Harðar, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með börn þeirra, Vilhelm Björn Harðarson, sem er að klifra í stiganum, og Pálínu Freyju Harðardóttur. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Ólafur Bernódusson744
Sveitarstjórnin á Skagaströnd samdi við Mílu um að leggja ljósleiðara heim í öll hús á Skagaströnd. Undirskrift samningsins fór fram í Árnesi 10. maí 2013. Við það tækifæri var þessi mynd tekin af mönnum frá Mílu, oddvita, sveitarstjóra og varaoddvita Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir utan Árnes. Frá vinstri: tveir óþekktir fulltrúar Mílu, Adolf H. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri og Halldór Gunnar Ólafsson varaoddviti.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 14
Myndin er af fyrstu sjoppunni á Skagaströnd en hún var rekin í græna timburhúsinu sem stendur vinstra megin við við Karlsskála. Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á Karlsskála var umboðsmaður fyrir olíufélagið BP á Íslandi og rak hann sjoppuna með Helgu dóttur sinni. Bensíndæla frá BP var fyrir utan sjoppuna eins og sést á myndinni. Ein af nýungunum sem sjoppan var með á sínum tíma var að fara að selja ís, pinnaís og ís í pökkum, upp úr frystikistu í sjoppunni. Lengst af var ekki fastur opnunartími í sjoppunni heldur þurfti að fara og banka á dyrnar á Karlsskála og biðja um afgreiðslu. Sjoppan var rekin í allmörg ár á árunum um og eftir 1960. Myndin var tekin á sjómannadaginn 1964 en strákarnir eru Vilhelm Harðarsson til vinstri og Aðalsteinn Jörgensen til hægri.
Ólafur Bernódusson867
Finnbogi Guðmundsson við vinnu sína sem íþróttakennari á sparkvellinum við Höfðaskóla í lok mars 2012.
Steinþór Karlsson 035
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1. Tveir hásetar eru að setja stroffu á belginn þegar verið er að taka trollið. Annar toghlerinn sést til vinstri með tveimur "gluggum".
Ólafur Bernódusson761
Myndin var tekin 15. janúar 2004 af þremur mönnum úr björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd við að bjarga bíl úr snjó vestan við Vélaverkstæðið. Þá var ný afstaðin stórhríð með miklu fannfergi svo miklu reyndar að þakið á verkstæðinu gaf sig undan snjóþunganum. Mennirnir eru óþekktir
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 034
Myndin var tekin á slökkviæfingu Slökkviliðs Skagastrandar. Hér er verið að sprauta froðu á Höfðanum en bíllinn var staðsettur niður á vegi austan við hann. Hörður Ragnarsson (ber að ofan) og Gunnar Albertsson munda stútinn en Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Helgi Gunnarsson fylgjast með ásamt tveimur óþekktum mönnum.
Helga Berndsen 068
Á myndinni, sem var tekin 1995, eru bræðurnir Guðmundur Árnason (d.14.10.2009) í bláum bol og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) með hjálm, að undirbúa málningu á þakinu á Karlsskála.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 304
Þessar þrjár blómarósir voru við vinnu í vinnuskólanum í júlí 2012 þegar myndin var tekin. Frá vinstri: Guðrún Rós Hjaltadóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir og Birta Dögg Bessadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 206
Á myndinni, sem tekin var 21. ágúst 2012, eru Geir Arnarson til vinstri og Vilhelm Björn Harðarson til hægri að koma fyrir einu af listaverkum Erlendar Magnússonar í hólunum vestan við stjórnsýsluhúsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 334
Menn frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar vinna að nýju þaki á hluta áhaldahúss hreppsins í maí 2010. Helgi Gunnarsson heldur á tösku meðan hann spjallar við Sigurð Bjarnason. Í baksýn er Árni Halldór Eðvarðsson starfsmaður hjá Helga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 297
Þrír ungir menn að snyrta blettinn austan við Rækjuvinnsluna í júní 2012. Frá vinstri: Friðmar Kári Eiríksson, Ísak Karl Tryggvason og Elmar Jóhann Grétarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 336
Bryggjudorg er eitthvað sem flestir hafa prófað, sem aldir eru upp í sjávarplássum landsins. Hvað afla varðar getur rétt beita skipt sköpum. Hér eru tveir ungir menn að útvega sér beitu með því að kroppa notaða beitu af krókunum á línu sem bíður þess að vera beitt á ný. Ólafur Halldórsson er til hægri en hinn drengurinn er líklega Almar Atli Ólafsson.
Ólafur Bernódusson738
Sumarið 2012 útbjuggu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar og aðrir sjálfboðaliðar, göngustíg gegnum skógræktarsvæði félagsins austan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Mikil vinna fór í að keyra út malarlagi í göngustíginn á vélinni sem sést á myndinni og raka stíginn til. Hann var síðan nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem í mörg ár var ötull formaður Skógræktarfélagsins. Á myndinni eru frá vinstri: Atli Þór Þórsson, Ólafur Bernódusson, Árni Geir Ingvarsson og Ari Þórsson.
Ólafur Bernódusson914
24. janúar 2088 fengu þeir á Hafrúnu Hu 12 sérkennilegan afla á línuna. Það var þorskurinn á myndinni því í baki hans var fastur fimm metra langur haki. þorskurinn var greinilega búinn að vera að dragnast með hakann í bakinu í nokkurn tíma því skaftið var með hrúðurkörlum á. Skipstjórinn á Hafrúnu, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, heldur í hakann á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 275
Þegar verið var að vinna við að ná varahlutum úr aflögðum Ford Pickup í gamla ketilhúsi verksmiðjunnar 24. október 2011 vildi svo illa til það kviknaði í honum. Þar sem hann var ekki á hjólum þurfti að hafa snör handtök og ná í lyftara sem dró hann út fyrir dyrnar þar sem honum var leyft að brenna að mestu. Á myndinni sér í Árna Guðbjartsson (d.20.2.2018) lengst til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson næst lengst til hægri en hann var eigandi bílsins sem brann. Hinir karlarnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 332
Gísli Snorrason vinnur að einhverju viðhaldi við íbúð tengdaforeldra sinna að Bankastræti 9 í mars 2010. Adolf J. Berndsen eigandinn og tengdafaðir Gísla fylgist með og handlangar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1061
Ólafur Bernódusson að flaka fisk í útgerðarskúrnum sínum 9. ágúst 2007.
1
…
44
45
46
…
75
Leita í myndasafninu
Leita