Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 726
Markaður í Rauða kross húsinu. Þar var seldur notaður fatnaður og einnig nýtt prónles. Þá var líka hægt að kaupa sér kakó/kaffi og vöfflu með rjóma. Á myndinni, sem tekin var 1. maí 2006, er Sigurlaug Kristjánsdóttir frá Tjörn lengst til vinstri, Árný Hjaltadóttir frá Steinnýjarstöðum er í miðið og til hægri er Katrín Guðmundsdóttir frá Skagaströnd. Stúlkan lengst til hægri er óþekkt.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 69
Þessi mynd var tekin þegar Lárus Ægir Guðmundsson, sem stendur á bakkanum, var að kenna sund í lauginni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin kringum 1970. Í lauginni eru, frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson, Hafþór Smári Gylfason, Valdimar Valdimarsson, Vilhelm B. Harðarson, óþekktur, Kristinn Guðmundsson, tveir óþekktir, Páll Jónsson, Sigurður Guðmundsson, óþekktur og Stefán Þór Árnason. Ef þú þekkir óþekktu drengina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 286
Myndin var tekin 4. janúar 2012 þegar verið var að taka niður bækur Bókasafns Skagastrandar til að hægt væri að vinna að endurbótum húsnæðis safnsins í kjallara Fellsborgar. Kristján Örn Róbertsson er í forgrunninum en hinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 245
Jón Ólafur Sigurjónsson vinnur við að koma fyrir óvinsælli - en nauðsynlegri - hraðahindrun á Bogabrautinni norðan við Höfðaskóla í lok ágúst 2010.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 057
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) bíður komu Örvars Hu 21 í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd í apríl 1982. Þó svo að myndin virðist segja að hann hafi einn tekið á móti skipinu var það ekki svo því fjölmenni var á bryggjunni þennan dag, flestir við bryggukantinn þar sem Örvar lagði að. Ef til vill hefur þessi aldni guðsmaður bara haft í huga það sem stendur í Biblíunni um að hinir síðustu munu verða fyrstir.....
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 298
Jarðvinna við Bankastræti 9 í október 2013. Adolf J. Berndsen eigandi íbúðar í húsinu fylgist með framkvæmdum lengst til hægri en hinir mennirnir eru óþekktir. Fjöllin skarta hausthrími til skrauts.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 085
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Á henni eru skólastjórnendurnir Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til vinstri og Páll Leó Jónsson skólastjóri til hægri. Milli þeirra er William Sillar kennari.
Ingibergur Guðmundsson 316
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að vinna við vegggrindina í skálanum. Ólafur Bernódusson er lengst til vinstri við vinnu en börnin eru, frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, óþekktur, Halldór Gunnar Ólafsson og Auður Eva Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 297
Þessi mynd var líklega tekin 1987. Þá rak Vík sf saltfiskvinnslu í húsnæði sínu við Fjörubraut. Á myndinni eru fjórir starfsmenn vinnslunnar í reykingapásu. Frá vinstri: Magnús B. Blöndal (d. 7.9.2001), Hjalti H. Indriðason (d.17.11.2020), Gunnar Hafdal og Valdimar Viggósson.
Ólafur Bernódusson835
Konurnar á myndinni tilheyra kjarnanum í kirkjukór Hólaneskirkju. Fremst frá vinstri: systurnar Guðrún Sigurðardóttir og Hjördís Sigurðardóttir ásamt Báru Þorvaldsdóttur. Aftan við þær eru Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) til vinstri og Hrafnhildur Jóhannsdóttir til hægri. Saman eiga þessar konur hátt á annað hundrað ára farsælt starf í kórnum. Myndin var tekin 10. maí 2010.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 002
Myndin var tekin í borðsalnum á Arnari Hu 1 líklega einhverntíma um 1974. Gylfi Guðjónsson er til vinstri bak við borðið en Árni Þórhallsson til hægri. Baksvipur Jóns Þorgeirssonar (d.21.1.2017) er fyrir miðju en til hægri, með axlabönd, er Matthías Guðmundsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 037
Um árabil var það algeng sjón á sumrin að sjá báta koma með dauðar hrefnur í eftirdragi til hafnar á Skagaströnd. Hrefnurnar voru síðan hífðar upp á bryggju og skornar þar eftir kúnstarinnar reglum. Beinagrindin og innyflin voru síðan sett um borð aftur og þeim fargað í sjóinn í Húnaflóanum. Þessi mynd er þó óvenjuleg að því leiti að á henni eru fjórar hrefnur á bryggjunni í einu. Líklega eru þær afli bátsins Sigurbjargar St 55 sem sér í til vinstri. Hrefnuveiðibátarnir fengu úthlutað kvóta þannig að veiðarnar voru ekki frjálsar auk þess sem fjöldi báta, sem máttu stunda veiðarnar, var takmarkaður. Hrefnur geta orði allt að 14 tonn að þyngd og þær lifa venjulega 30 - 50 ár en geta orðið 60 ára. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það kringum 1985.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 142
Þegar þessi mynd var tekin var stór gryfja eftir efnistöku rétt vestan við Spákonufellsrétt. Vatn safnaðist gjarnan í gryfjuna og var því vinsælt hjá yngri kynslóðinni að leika sér í pollinum meðan fullorðna fólkið stritaði í réttinni. Á steininum er líklega Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Vilhelm B. Harðarson og Aðalsteinn Jörgensen. Langt er nú orðið síðan gryfjan var fyllt upp aftur.
Ólafur Bernódusson795
Þessar tvær konur reka spákonuhofið á Skagaströnd og spá þar fyrir fólki ef það hefur áhuga á því. Þessi mynd af þeim stöllum var tekin í golfskálanum á Háagerðisvelli þegar þær stóðu fyrir fjölsóttri gönguferð - Þórdísargöngu - á Spákonufellsborgina 4. júlí 2009. Þegar göngufólkið kom niður aftur tóku þær á móti því með kaffiveitingum í golfskálanum. Konurnar eru Dagný Marín Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 207
Óþekkt listakona stendur hjá verki sínu 30. ágúst 2012 á túnbletti við Vetrarbrautina. Seinna var komið fyrir mislitri lýsingu inn í verkinu sem gjörbreytti því.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 307
Stelpurnar vinna við snyrtingu á beðum á tjaldsvæðinu í ágúst 2012. Frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Heba Líf Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson971
11. júní 2010 fengu þeir félagarnir Stefán Jósefsson til vinstri og Sævar Hallgrímsson til hægri sjaldgæfan flatfisk í netin á Ólafi Magnússyni Hu 54. Um var að ræða sandhverfu. Sandhverfa lifir í ísöltu vatni t.d. í sjónum við árósa og jafnvel uppi í ósum. Hún er mjög sjaldgæf hér við land en þykir frábær matfiskur. Stærsta sandhverfan sem vitað er til að veiðst hafi hér við land veiddist í febrúar 2018 við Ingólfshöfða en hún vóg 12 kíló og var 82 sentimetra löng.
Ólafur Bernódusson934
Í júlí 2008 dvaldi Halldór Sveinsson í Nes listamiðstöðinni. Á þeim tíma hélt hann námskeið í listmálun og var myndin tekin af nokkrum þátttakendum í námskeiðinu. Frá vinstri: Signý Richter, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Halldór leiðbeinandi, Herdís Jakobsdóttir, Elva Þórisdóttir, og Linda Rós Ómarsdóttir. Í baksýn eru fleiri nemendur við vinnu sína.
Ólafur Bernódusson896
Þröstur Líndal Gylfason bóndi á Kjalarlandi flytur uppgefna kind á fjórhjólinu sínu til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 218
Róbert Björn Ingvarsson í vinnuskólanum 7. júlí 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1123
Kaffispjall í áhaldahúsi hreppsins í apríl 2003. Frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) bæjarverkstjóri, Þröstur Líndal Gylfason starfsmaður hreppsins, Guðmundur J. Björnsson gröfumaður og Lárus Ægir Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson741
Sjávarlíftæknifyrirtækið BioPol á Skagaströnd vaktar lífríkið í Húnaflóa. Meðal þess sem starfsmenn þess fylgjast með er þörungablómi í grennd við Skagaströnd. Sýni eru tekin vikulega frá vori fram á haust til að finna út þörungamagn á mismunandi dýpi og hiti og selta mæld og skráð. Á myndinni eru Karen Zech líffræðingur frá BioPol og Ólafur Bernódusson trillueigandi að skrá einhverja niðurstöðu mælinga um borð í Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin sumarið 2014.
Ingibergur Guðmundsson 326
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru þrjár konur að klæða vesturstafninn á efri hæðinni með álpappír eftir að hafa einangrað vegginn með glerull. Þær eru líka að koma fyrir neðstu lektunni undir panelinn sem veggirnir voru klæddi með. Skíðaáhugakonurnar eru frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1057
Einar Guðmannsson til vinstri með frænda sínum Páli Valdimar Magnússyni (d. 12.3.2011) í fjáragi heima á Vindhæli í september 2005.
Ólafur Bernódusson770
Þessar konur frá Skagaströnd og úr Skagabyggð sóttu smurbrauðsnámskeið hjá Maritu Jakobsen í Skagabúð árið 2005. Á myndinni sína þær framleiðslu sína í lok námskeiðsins. Aftar standa frá vinstri: Jóhann Sigurjónsdóttir, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Gunnur Gísladóttir. Í fremri röðinni eru frá vinstri: Erla Hauksdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir?, Lilja Karlsdóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, óþekkt, Hrönn Árnadóttir, Vigdís Þorgeirsdóttir, Linda Ævarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Erna Högnadóttir, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir, Árný Hjaltadóttir og Marita Jakobsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 267
Sólarpása sunnan undir Spákonuhofinu í ágúst 2011. Á bekknum sitja frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Hallbjörn Björnsson og Björn Hallbjörnsson. Sitjandi í grasinu er Dagný Marín Sigmarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 315
Erna Hreinsdóttir hjálpar tveimur af nemendum sínum í einu í Höfðaskóla rétt fyrir jólin 2014. Ísabella Tryggvadóttir er til hægri en hitt barnið er óþekkt.
Steinþór Karlsson 027
Bæring Skarphéðinsson mokar karfa um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Maðurinn til hægri er óþekktur.
Hafliði Óskarsson 5
Í mars 1990 voru áhafnir Örvars Hu 21 frá Skagaströnd og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði í slysavarnaskóla sjómanna um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Á myndinni eru áhafnirnar í flotgöllum að æfa hífingar úr sjó. Gunnar Reynisson er annar frá vinstri og Gestur Arnarson sá fjórði frá vinstri.
Steinþór Karlsson 031
Víðir Jóhannesson gengur á trollinu fullu af karfa og undirbýr að losa úr pokanum niður á vinnsludekkið. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 272
Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Bjarni Jónasson að spjalla saman sunnan undir Gamla kaupfélaginu um miðjan september 2011. Halldór og Bjarni voru báðir starfsmenn BioPol á þessum tíma en skrifstofur félagsins eru í húsinu.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 31
Árni Max Haraldsson (d.6.12.1976) í stiga að mála yfir ný-viðgert handriðið á svölunum á Gamla pósthúsinu (Bogabraut 10). Konurnar, sem eru að spjalla, eru Aðalbjörg Hafsteinsdóttir til vinstri og Helga Berndsen til hægri. Konan í miðjunni er Pálína M. Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008). Póstafgreiðslan og símstöðin voru á neðri hæð hússins og var Helga póst- og símstöðvarstjóri. Aðalbjörg bjó með fjölskyldu sinni á eftir hæðinni en hún og Pálína eru systur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 345
Björgunarskipið Húnabjörg kemur úr vel heppnuðum leiðangri í blíðu veðri í júlí 2012. Við bryggjuna er björgunarbáturinn, Aðalbjörg sem er í eigu björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd. Húnabjörg er í umsjón Strandar en í eigu Landbjargar.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 035
Húsið á myndinni hét Gunnarshólmi en var oft kallað Grafarbakki í daglegu tali. Það kom til vegna þess að húsið stóð nálægt gömlum mógröfum sem þarna voru. Eftir að hafa staðið autt um fjölda ára og verið í niðurníðslu fékk Slökkvilið Skagastrandar húsið til að æfa sig að slökkva í því. Á myndinni er nýbúið að kveikja í og slökkviliðskarlarnir bíða átekta.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 322
Bára Þorvaldsdóttir stuðningsfulltrúi og bókavörður til vinstri og Jóhanna Karlsdóttir stuðningsfulltrúi til hægri í Höfðaskóla síðasta dag fyrir jólafrí 2014.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 010
Skipsfélagarnir Finnur Kristinsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri um borð í Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin kringum 1974. Maðurinn í baksýn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1127
Rúnar Jóhannsson í áhaldahúsi hreppsins 28. nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1177
Þetta fólk starfaði við höfnina. Frá vinstri: Haraldur Árnason hjá fiskmarkaðnum, Sigurður Ingimarsson hjá fiskmarkaðnum, Reynir Lýðsson framkvæmdastjóri fiskmarkaðarins og Þórey Jónsdóttir hafnarvörður á Skagastrandarhöfn.
Ingibergur Guðmundsson 238
Birna Sveinsdóttir við vinnu í Landsbankaútibúinu á Skagaströnd. Myndin var greinilega tekin 8. apríl en ártalið er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 299
Þór Arason byggir forstofu við Spákonuhofið í júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1266
Árni Halldór Eðvarðsson í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 329
Einn af fjölmörgum smábátum sem gerður var út frá Skagaströnd á strandveiðar strandaði við Landsenda á Höfðanum 2. júlí 2012. Engin slys urðu á mönnum og báturinn skemmdist lítið en þurfti þó viðgerð á stýri og skrúfu áður en haldið var til veiða á ný.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 252
Sigurgeir Árnason við vinnu í Bátanausti í mars 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1246
Á myndinni, sem tekin var 4. desember 2012 á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, eru starfsmenn keppninnar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson kynnir, Skarphéðinn Einarsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir sem skipuðu dómnefnd kvöldsins og lengst til hægri er Trostan Agnarsson kennari sem var framkvæmdastjóri keppninnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1054
Stefán Jósefsson um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 í apríl 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 235
Þessir tveir drengir voru í starfsliði vinnuskólans í ágúst 2014. Egill Örn Ingibergsson til vinstri og Elmar Jóhann Grétarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 229
Aron Snær Fannarsson slakar á í stund milli stríða í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 209 - Copy
Basl í snjómokstri 2. nóvember 2012. Grafan er hálf útaf og bjargar sér frá veltu með því að styðjast við gálgann. Karlarnir eru að koma fyrir dráttarvír milli hennar og stærri hjólagröfu sem kom til bjargar. Eins og sjá má er skyggnið mjög takmarkað í snjókófinu.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 183
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Í baksýn er hjallur föður hennar Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 341
Sigurður Bjarnason vinnur við að flokka pappír og plast til endurvinnslu hjá Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar við Fjörubraut. Myndin var tekin í febrúar 2012.
Ingibergur Guðmundsson 323
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru skíðaáhugamenn, sem stóðu að byggingunni, að virða skálann fyrir sér og ákveða næstu skref. Frá vinstri á myndinni eru: Guðmundur Jón Björnsson, Ólafur Bernódusson, þrír óþekktir, Þorbjörg Magnúsdóttir?, Magnús B. Jónsson, Pétur Eggertsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1131
Steindór Rúniberg Haraldsson staddur í rafverkstæðinu Neistanum í lok nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 331
Unnið að nýju þaki á hluta áhaldahúss hreppsins í maí 2010. Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og Guðmundur Rúnar Kristjánsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 332
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er eldhúskrókurinn orðinn tilbúinn fyrir inréttinguna, stiginn upp á loft er kominn á sinn stað og kyndikompan undir honum að verða tilbúin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 153
Þrenns konar flutningatæki má sjá á þessari mynd. Leikfanga-vörubíll bíður eftir nýjum farmi, Aðalsteinn Jörgensen? ekur hjólbörum og fulllestaður vörubíll bíður tilbúinn að aka á áfangastað. Maðurinn sem er að koma út úr bílnum er óþekktur. Myndin var tekin utan við Reykholt en ekki er vitað hvenær.
Ólafur Bernódusson854
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri skera hákarl áður en honum er komið í kösina. Þar er hann látinn verkast ca 2 mánuði áður en hann er hengdur upp til þurrkunar í tvo til þrjá mánuði áður en hans er neytt.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 059
Unnið við snyrtingu og pökkun á vinnslulínunni um borð í Örvari Hu 21. Sjómennirnir eru frá vinstri: Þorsteinn Jakobsson, óþekktur, Vilhelm Þórarinsson og Sævar Hallgrímsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 312
Götusala fyrir utan búðina á ágúst 2012. Þarna selur Ólafur Bernódusson hákarl, fjallagrös, bláber og rabbarbarasafa ásamt afastrákunum sínum og meðeigendum, bræðrunum Ólafi Halldórssyni framleiðslustjóra til vinstri og Páli Halldórssyni gjaldkera til hægri. Ingvar Gígjar Sigurðsson smakkar á hákarlinum til að átta sig á hvort rétt sé að fjárfesta í einni dós af honum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1167
Elías Gunnar Hafþórsson í pylsupartýi í bæjarvinnunni 11. júní 2009. Bak við hann má þekkja, frá vinstri: Torfi Friðrik Magnason, Alex Már Gunnarsson, Alma Eik Sævardóttir, Almar Freyr Fannarsson og Kristján Ýmir Hjartarson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 273
Í lok september 2011 var haldin sjóbjörgunaræfing á Skagaströnd þar sem björgunarsveitir af öllu norðurlandi tók þátt. Þessi mynd er af hluta af bátaflotanum sem notaður var í æfingunni utan við hús björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd.
1
…
45
46
47
…
75
Leita í myndasafninu
Leita