Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 274
Hausttiltekt í garðinum við Hólabraut 16 í október 2011. Frá vinstri: Pétur Eggertsson, Geir Arnarson og Haraldur ?.
Steinþór Karlsson 020
Greinileg hafa þeir hitt á það í þessu hali á karfaveiðunum sumarið 1999 á Arnari Hu 1. Aflinn í trollinu á myndinni eru einhverjir tugir tonna. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 287
Myndin var tekin 4. janúar 2012 þegar verið var að taka niður bækur Bókasafns Skagastrandar til að hægt væri að vinna að endurbótum húsnæðis safnsins í kjallara Fellsborgar. Hanna Lísa Hafliðadóttir (d. 13.7.2015) til vinstri og Aldís Embla Björnsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 312
Götusala fyrir utan búðina á ágúst 2012. Þarna selur Ólafur Bernódusson hákarl, fjallagrös, bláber og rabbarbarasafa ásamt afastrákunum sínum og meðeigendum, bræðrunum Ólafi Halldórssyni framleiðslustjóra til vinstri og Páli Halldórssyni gjaldkera til hægri. Ingvar Gígjar Sigurðsson smakkar á hákarlinum til að átta sig á hvort rétt sé að fjárfesta í einni dós af honum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1167
Elías Gunnar Hafþórsson í pylsupartýi í bæjarvinnunni 11. júní 2009. Bak við hann má þekkja, frá vinstri: Torfi Friðrik Magnason, Alex Már Gunnarsson, Alma Eik Sævardóttir, Almar Freyr Fannarsson og Kristján Ýmir Hjartarson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1256
Eiríkur Lýðsson um borð í Dagrúnu Hu 121 sem hann gerir út og stýrir.
Ólafur Bernódusson897
Jónmundur Ólafsson (d. 19.4.2017) fyrrverandi bóndi Kambakoti í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 85
Þessi mynd er dálítið skrítin. Hún hefur greinilega verið tekin ofan í aðra mynd og kemur því út eins og hún hafi verið tekin fyrir Sálarrannsóknarfélagið. Á henni eru í heyskap hjónin Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) frá Reykholti. "Draugarnir" á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 333
Unnið að nýju þaki á hluta áhaldahúss hreppsins í maí 2010. Sigurður Bjarnason, sem er lengst til vinstri, er að kíkja á hvernig verkið gengur hjá smiðunum Guðmundi Rúnari Kristjánssyni til vinstri og Árna Halldóri Eðvarðssyni til hægri.
Ólafur Bernódusson760
Bræðurnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson til hægri um borð í nýsmíðaðri Öldu Hu 12 í september 2003 sem þeir áttu saman gengum Vík sf. Aldan Hu 12 var ein af mörgum bátum sem þeir bræður áttu saman og gerðu út gegnum tíðina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 311
Anna Dís Ragnarsdóttir í vinnuskólanum í ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 216
Róbert Björn Ingvarsson í vinnuskólanum í júlí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 313
Slavko Velemir í vinnunni við að flísaleggja í ágúst 2012.
Hafliði Óskarsson 5
Í mars 1990 voru áhafnir Örvars Hu 21 frá Skagaströnd og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði í slysavarnaskóla sjómanna um borð í skólaskipinu Sæbjörgu. Á myndinni eru áhafnirnar í flotgöllum að æfa hífingar úr sjó. Gunnar Reynisson er annar frá vinstri og Gestur Arnarson sá fjórði frá vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1072
Guðríður Líneik Daníelsdóttir og Gunnar Reynisson að dunda í garðinum við heimili sitt að Ránarbraut 11 í lok maí 2011.
Ólafur Bernódusson742
Adolf H. Berndsen oddviti Sveitarfélagsins Skagaströnd til vinsti og óþekktur forstöðumaðu hjá Mílu til hægri handala samning um að Míla sjái um lagningu á ljósleiðara í sveitarfélaginu. Undirskrifaður samningur liggur á borðinu milli þeirra. Myndin var tekin 10. maí 2013 í elsta húsi bæjarins, Árnesi.
Ólafur Bernódusson842
Aðfaranótt 22. ágúst 2006 lentu báturinn á myndinni - Guðbjartur Sh 45 - og björgunarskipið Húnabjörg í árekstri. Guðbjartur skemmdist allmikið eins og sést en Húnabjörg slapp mun betur. Ekki urðu slys á mönnum við óhappið en auk þeirra skemmda sem sjást á myndinni skemdust nokkur af siglingatækjum Guðbjarts.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 230
Sláttuteymi vinnuskólans að færa sig milli túna í ágúst 2014. Frá vinstri: Viktor Már Einarsson, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Ellen Sigurjónsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1056
Þór Arason (d.11.8.2018) smiður og Ernst Backman hönnuður og þúsundþjalasmiður við opnum Spákonuhofsins 30. júní 2011. Báðir komu þeir mikið að vinnunni við að skapa Spákonuhofið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 338
Óhöpp gera ekki boð á undan sér. Hér hefur karastæða með fiski hrunið á hafnarvigtinni í júlí 2012. Vilhjálmur Jónsson og óþekktur tína fiskinn aftur í körin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1172
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970. Bryggjan sem báturinn liggur við var kölluð Litla bryggja og hún hallaði fram, sem var algengt með bryggjur á þeim tíma sem hún var gerð, til að auðvelda löndun úr bátum sem voru misjafnir á stærð. Báturinn á myndinni er Sigurður Jónsson Hu 18 sem Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri teiknaði og smíðaði. Var hann fyrstur af nokkrum bátum sem Björn smíðaði. Dorgararnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1107
Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) kemur úr grásleppuróðri með sel í farteskinu. Bjarni var löngum kenndur við bát sinn og kallaður Bjarni á Stíganda. Eftir að hann seldi Stíganda Hu 9 gerði hann út á grásleppu á minni bátum, fyrst á Blíðfara Hu 17 og síðan á trillunni Albert. Báturinn sem Bjarni er í á myndinni er líklega Blíðfari. Þeir sem eru að aðstoða hann við að landa selnum eru, um borð í trillunni: sonur hans Helgi Bjarnason (d.1.3.2007) næstur okkur, þá Kristmundur Ingibjörnsson í miðið og annar sonur Bjarna, Skúli Bjarnason lengst frá okkur. Um borð í stóra bátnum (líklega Stíganda Hu 9) er Guðmundur J. Björnsson og óþekktur. Myndina tók Þórarinn Björnsson (d.24.5.1985) líklega kringum 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1354
Myndin var tekin í samkomutjaldi á Hnappstaðatúni um miðjan ágúst 2012 á Kántrýdögum. BioPol bauð öllum sem vildu upp á fiskisúpu í tilefni hátíðarinnar. Á myndinni eru Halldór Gunnar Ólafsson til hægri og Bjarni Jónsson til vinstri að gefa einhverjum gesti að smakka á súpunni. Á sviðinu situr Leo Gillespie með gítarinn og flytur frumsamin lög.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 215
Friðmar Kári Eiríksson bjartsýnn í vinnuskólanum í júní 2014.
Ingibergur Guðmundsson 322
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Baldvin Hjaltason að koma fyrir útihurðinni á skálanum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 342
Kvenfélagskonur að undirbúa þorrablót í Fellsborg í febrúar 2012. Frá vinstri: Jóhanna Karlsdóttir, Áslaug Ottósdóttir, Þórlaug Arnardóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 291
Stelpurnar á myndinni eru að bíða utan við sundlaugina eftir að komast í sundkennslu í maí 2012. Stelpurnar eru frá vinstri: Guðrún Björgvinsdóttir, Arna Rún Arnarsdóttir, óþekkt, Freyja Dís Jóhannsdóttir og Hekla Guðrún Þrastardóttir.
Ólafur Bernódusson977
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna eða SH var stofnað í febrúar 1942. 1992 hélt SH upp á 50 ára afmæli sitt með því að bjóða starfsfólki hraðfrystihúsanna, sem mynduðu sölumiðstöðina, til kaffiveislu. Þessi mynd var tekin í veislunni í kaffistofu Hólaness hf. Steindór R. Haraldsson til vinstri afgreiðir fólk með kaffibrauð en hann sá um veisluna fyrir Hólanes hf. Í biðröðinni eru frá vinstri: Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Ingibjörg Dúna Skúladóttir, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi), Magnús Guðmannsson, óþekkt, Signý Magnúsdóttir (d. 7.4.2016) og Gylfi Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson812
Ólafur Bernódusson smakkar á hákarli í hjallinum sínum um miðjan júlí 2008. Dóttir hans Hólmfríður Anna Ólafsdóttir Martel fylgist vantrúuð með ásamt manni sínum Kristen James Martel. Í baksýn eru nokkrar beitur hangandi á rám.
Helga Berndsen 061
Adolf J. Berndsen hengir upp afla dagsins af skörfum eftir að hafa skroppið á sjó á skytterí sumarið 1995. Sigríður Ólafsdóttir fylgist með.
Ólafur Bernódusson905
Guðjón Ingimarsson bóndi á Hofi glaðbeittur við fjárdrátt í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Séra Pétur og Dómhildur - safn185
Myndin er af ný útskrifuðum húsmæðrakennurum 2. júlí 1948. Önnur frá vinstri í fremri röð er Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) prestsfrú á Skagaströnd. Aðrar konur á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 32
Kristinn Daníelsson (d.3.8.2011) maður Áslaugar Hafsteinsdóttur vinnur við uppslátt. Myndin var tekin 1964.
Ólafur Bernódusson776
Myndin af Gunnlaugi Sigmarssyni útibússtjóra Landsbankans á Skagaströnd og Erlu Hauksdóttur 16. júní 2005 í tilefni af því að Erla var fyrsti viðskiptavinur harðabnkans sem komið var fyrir í anddyri úibúsins.
Steinþór Karlsson 027
Bæring Skarphéðinsson mokar karfa um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Maðurinn til hægri er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1042
19. september 2012 kom Luis E. Arreaga sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í heimsókn á Skagaströnd. Erindið var að veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu og heiðursskjal frá samtökum Kántrýtónlistarmanna í Bandaríkjunum - The Country Music Association - fyrir brautryðjendastarf Hallbjarnar á sviði kántrýtónlistar á Íslandi. Á myndinni er Luis að afhenda Hallbirni viðurkenninguna.
Steinþór Karlsson 026
Víðir Jóhannesson háseti um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 031
Víðir Jóhannesson gengur á trollinu fullu af karfa og undirbýr að losa úr pokanum niður á vinnsludekkið. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1193
Ungir menn í bæjarvinnunni í júlí 2009. Guðmundur Árnason til vinstri og Einar Ari Einarsson til hægri.
Hafliði Óskarsson 2
Gunnar Reynisson í flotbúningi um borð í skólaskipinu Sæbjörgu í mars 1990. Þá var áhöfnin á Örvari Hu 21 þar í slysavarnaskóla sjómanna ásamt fleiri sjómönnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 310
Bergrós Helga Hafsteinsdóttir í vinnuskólanum í ágúst 2012.
Ingibergur Guðmundsson 246
Guðrún Pálsdóttir við vinnu á skrifstofu Hólaness hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 180
Áslaug Hafsteinsdóttir við skiptiborðið á símstöðinni. Öll símtöl fóru í gegnum miðstöðina hvort sem þau voru innanbæjar eða út úr plássinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1179
Gísli Snorrason vinstra megin og Hjörtur Guðbjartsson til hægri frá Vélaverkstæði Skagastrandar koma fyrir rampi fyrir hjólastóla við innganginn í félagsheimilið Fellsborg í apríl 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 273
Í lok september 2011 var haldin sjóbjörgunaræfing á Skagaströnd þar sem björgunarsveitir af öllu norðurlandi tók þátt. Þessi mynd er af hluta af bátaflotanum sem notaður var í æfingunni utan við hús björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson778
15. desember 2005 undirrituðu Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra og Helgi Gunnarsson verktaki samning um að Helgi byggði nýtt hús yfir heilsugæsluna á Skagaströnd. Undirritunin fór fram í Bjarmanesi. Jón er til vinstri en Helgi hægra megin. Húsið var svo tekið í notkun fullfrágengið í september 2006.
Ólafur Bernódusson982
Í mörg á var skólastarf Höfðskóla brotið upp með svokallaðri Vinnuviku. Þá fengu nemendurnir að fást við ýmis óvenjuleg verkefni sem mörg hver tilheyrðu ekki hefbundnu skólastarfi. Þessi mynd var tekin í einni slíkri vinnuviku vorið 1996. Á myndinni eru krakkarnir að draga vélarvana bíl frá höfninni upp að skóla. Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir er með svart hárband fyrir miðri mynd, María Markovic er dökkhærð til vinstri og aftan við hana er ljóshærð Elva Gunnarsdóttir og Anna María Magnúsdóttir henni á vinstri hönd. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1258
Þau eru ekki gömul börnin á myndinni úr réttunum 8. september 2012 en áhuginn leynir sér ekki. Maðurinn í bláröndóttu peysunni er Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli. Sá sem bograr við að skoða mark á lambi er Jóhann Ásgeirsson bóndi í Kambakoti og næst honum eru börnin hans tvö Freyja Dís Jóhannsdóttir og Logi Hrannar Jóhannsson. Með þeim eru svo Victoria Hólmgeirsdóttir með hvíta húfu og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 239
Svanur Árnason í pásu líklega í vinnu við sorphirðu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 325
Sævar Hallgrímsson sker af netum í febrúar 2012 og Gunnar Sveinsson fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1267
Myndin var tekin 8. september 2012 í Kjalarlandsrétt af glöðu fólki við réttarstörf. Fólkið er: Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og svo feðginin Jakob Guðmundsson og Þórhildur Jakobsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1210
Fannar Viggósson við sorptroðara á urðunarstaðnum í Stekkjarvík í janúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1409
Ólafur Bernódusson til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson til hægri að skera hákarl í kar til kæsingar. Myndin var tekin 6. maí 2011 þannig að hákarlinn hefur líklega verið tilbúinn til átu einhverntíma nálægt jólum það ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1280
Félagar í slökkviliði Skagastrandar á æfingu í byrjun apríl 2012. Frá vinstri: Tryggvi Hlynsson, Ragnar Már Björnsson, Hilmar Árdal Eðvarðsson og Ingvar Gýgjar Sigurðsson.
Ingibergur Guðmundsson 311
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slétta landspildu undir skálann í suðurhlíðum Spákonufells. Eftir sléttunina var keyrð möl úr Hrafná á svæðið og sökkullinn síðan steypur ofan á hana. Gamli lyftuskúrinn sést í baksýn til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1458
Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla til vinstri og Elva Dröfn Árnadóttir kennari í kennarastofunni í Höfðaskóla 1. febrúar 2012.
Ólafur Bernódusson823
Sumarið 2010 fylltist höfnin á Skagaströnd skyndilega af sandsíli og Makríl sem gæddi sér á sílunum. Makríllinn var svo gráðugur að hægt var að veiða hann nánast á bera króka. Þetta nýtti Karl Olsen sér og veiddi hvern fiskinn af öðrum í frístundum sínum. Þessi mynd var tekin af Karli 12. júlí með einn á. Makríllinn hvarf svo úr höfninni nokkrum dögum seinna, jafn skyndilega og hann kom.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 214 - Copy
Myndin var tekin um miðjan júlí 2012 þar sem karlarnir eru að spjalla. Þeir eru frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson, Sigurður Björnsson, Gísli Snorrason og Hjörtur Guðbjartsson. Gísli á bátinn á myndinni en Sigurður koma að smíði hans með föður sínum. Hjörtur og Sigurjón vinna með Gísla á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Ingibergur Guðmundsson 303
Þessi viti stóð áratugum saman á enda hafskipabryggjunnar (Útgarði) í Skagastrandarhöfn og vísaði sjómönnum rétta leið til hafnar. Á myndinni, sem Ingibergur Guðmundsson tók í apríl 1987, er hann þakinn ís eftir mikla ágöf. Vitinn var gasknúinn og því var inni í honum hólf fyrir gaskút. Vitinn var rifinn þegar hann var farinn að láta verulega á sjá eftir endalausan ágang sjávar ekki síst vegna þess að bryggjan sem hann stóð á seig og hallaðist þannig að meira mæddi á honum en áður. Í dag er rör með ljósi á sama stað og vitinn stóð en hinum megin við innsiglinguna í höfnina, við skerið Brúnkollu, er ljósbauja með blikkandi ljósi.
Ingibergur Guðmundsson 328
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er stund miklli stríða eftir að búið er að einangra skálann með glerull. Skíðaáhugamennirnir á myndinni eru Þorbjörg Magnúsdóttir og Guðmundur J. Björnsson.
1
…
46
47
48
…
75
Leita í myndasafninu
Leita