Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 208
Þessi mynd var tekin 18. september 2012. Páll Jóhannesson til vinstri er að ganga frá bátnum sínum fyrir veturinn og spjalla við Guðmund Jón Björnsson í leiðinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1278
Ari Þórsson vinnur við að logsjóða um borð í Mána ÁR 7 í höfninni á Skagaströnd um miðjan september 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 268
Ekki er mikið eftir sýnilegt af Spákonufellsey. Megnið af henni er undirstaða hafnarinnar á Skagaströnd og hluti hennar hefur verið þakinn stórgrýti sem brimvörn hafnarinnar. Á myndinni má þó sjá hluta eyjarinnar vaxinn grastoppum og skarfakáli. Fjær sér í hluta grjótvarnarinnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 241
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af þeim Einari Einarassyni til vinstri og Magnúsi B. Jónssyni til hægri að kynna sér stafsemina.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 169
Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007) við afgreiðslu í apótekinu. Hulda var heilsugæsluhjúkrunarkona á Skagaströnd í fjölda ára og var mjög fær í sínu fagi. Þegar þessi mynd var tekin var apótekið niðri í vesturenda Læknisbústaðarins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 314
Þórdís spákona bíður þolinmóð með spágæsirnar sínar í Spákonuhofinu á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 312
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slá frá sökklinum og hreinsa timbrið. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Ingibergur Guðmundsson
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 019
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún var tekin á verkstæði Hólness hf á neðri hæðinni í Salthúsinu sem nú hefur verið breytt í glæsilegt gistiheimili. Á henni er Gunnar Albertsson við vinnu sína.
Ólafur Bernódusson748
Hitaveita var lögð til Skagastrandar sumarið og haustið 2013 frá Reykjum við Húnavelli. Á myndinni, sem tekin var í lok september, er búið að leggja út leiðsluna í bæinn en ekki búið að grafa hana niður. Leiðslan var svo tekin í nýbyggt dæluhús við enda Sólarvegar og dreift þaðan um bæinn.
Steinþór Karlsson 033
Hafsteinn Pálsson að hífa eða slaka aftur á Arnari Hu 1 sumarið 1999. Hluti karfaaflans úr síðasta hali er kominn niður í rennuna niður á vinnsludekk en hluti aflans er enn í trollinu á dekkinu.
Ólafur Bernódusson893
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) með tvo til reiðar við Kjalarlandsrétt á gangnadegi 8. september 2007.
Ingibergur Guðmundsson 314
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru tveir ungir dugnaðarmenn að bera fúavara á lausu fögin sem fóru í skálann. Viggó Magnússon til vinstri og Stefán Ægir Guðmundsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 331
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Magnús B. Jónsson að lakka veggpanelinn eftir áramótin 1984/85.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1058
Þröstur Líndal Gylfason bóndi á Kjalarlandi að slóðadraga tún sitt í júní 2006.
Ólafur Bernódusson808
Myndin var tekin 12. mars 2009, eftir eitt norð-austan rokið á Skagaströnd, af smáhýsunum við Laufás. Eins og sjá má fauk þakið af einu þeirra af í heilu lagi. Þakinu var svo komið fyrir aftur á sinn stað og fest betur í það sinn og hefur þess vegna haldist þar síðan.
Ingibergur Guðmundsson 333
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Vatnið í skálann er tekið úr lind upp í hlíðinni norðan við hann. Á myndinni eru feðgarnir Halldór Gunnar Ólafsson nær okkur og Ólafur Bernódusson fjær, að koma fyrir hreinsunar-tunnu á vatnsleiðsluna að skálanum. Myndin var tekin snemma vors 1985.
Steinþór Karlsson 018
Jóhannes Heiðmar Indriðason gerir sig kláran á vaktaskiptum að fara í vinnsluna á Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 236
Myndin var tekin 1. febrúar 2013 af þeim Guðrúnu Soffíu Pétursdóttur til vinstri og Guðríði Líneik Daníelsdóttur til hægri í eldhúsinu í Fellsborg við undirbúning þorrablóts. Milli þeirra sér í Þórlaugu Svövu Arnardóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 269
Þór Arason lappar upp á þakið á skemmunni við Karlsskála í ágústlok 2011 með hjálp skotbómulyftara.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1154
Myndin var tekin um borð í Frigg Hu 15 líklega snemma á sjötta áratugnum. Karlarnir uppi í bassaskýlinu eru að skyggnast um eftir síld. Maðurinn til hægri er líklega Jón Vilhjálmsson (d.31.8.2011) frá Brandaskarði en hinn maðurinn er óþekktur. Frigg var smíðuð 1916 í Danmörku en endaði lífdagana á báli í Vestmannaeyjum í júlí 1964 þá dæmd ónýt. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 321
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Ólafur Bernódusson sem vann við að reisa skálann þá um sumarið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1445
Gunnar S. Halldórsson vert í Kántrýbæ afgreiðir á barnum á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í janúar 2012.
Ólafur Bernódusson758
Eftir áratuga farsælan sjómennskuferil tók Jón Ólafur Ívarsson - Daddi (d.29.12.2013) sig til og fór að mála myndir. Hann hélt svo fjölsótta sýningu á verkum sínum í Höfðaskóla á sjómannadaginn 1. júní 2003 þar sem myndirnar hans seldust eins og heitar lummur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 466
Guðrún Anna Halldórsdóttir tekur saman nóturnar eftir að hafa spilað á saxófóninn sinn við messu í Hólaneskirkju á gamlaársdag 2013.
Ingibergur Guðmundsson 329
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Árni Geir Ingvarsson að vinna við raflagnir í skálanum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 308
Þeir eru á leið milli verkefna í vinnuskólanum með hjólbörur og skóflu. Þá er óþarfi að eyða orku beggja í að ganga á milli staðanna þannig að Kristján Örn Róbertsson ekur Elmari Jóhanni Grétarssyni vinnufélaga sínum í börunum. Myndin var tekin 9. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 324
Feðgarnir Stefán Jósefsson til vinstri og Guðmundur Henry Stefánsson til hægri skera af netum í verbúði hins fyrrnefnda við Fjörubraut. Teinarnir eru hirtir og á þá fellt nýtt net. Netinu sjálfu - af gömlu netunum - er hent vegna þess að þau eru meira og minna rifin eftir notkun um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1313
Sigurjón Elí Eiríksson niðri í lest á Dagrúnu Hu 121 að landa í lok apríl 2012. Sigurjón hefur getið sér gott orð í bílaíþróttum sem keppandi í "drift".
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 66
Óneitanlega voru það miklar framfarir þegar bændur eignuðust dráttavélar. Þessi Farmal Cub var í eigu Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) í Reykholti en hann fékkst meðal annars við búskap. Eins og sjá má er sláttuvélargreiðan tilbúin en áður hafð verið slegið með orfi og ljá eða með sláttuvélum sem hengdar voru aftan í hest.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 027
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það hefur líklega verið kringum 1980. Á henni eru gestir á árshátíð Hólaness hf að njóta kaffiveitinga. Næst okkur á myndinni eru frá vinstri: Anna Skaftadóttir, óþekktur (?Haraldur Árnason?), Sólveig Róarsdóttir og Stefán Þór Árnason. Hinu megin við borðið eru frá vinstri: Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007), Svava Svavarsdóttir og Hinrik Jóhannesson. Við næsta borð má þekkja Björn Fossdal Hafsteinsson (d.13.4.1983) en enn lengra frá má sjá Kristján Blöndal á spjalli við Guðmund Jónsson sem er í rauðri skyrtu og dökku vesti. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1097
Frændurnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson til hægri um borð í Hafrúnu Hu 12 sem Árni átti og gerði út í félagi við bróður sinn Sigurjón Guðbjartsson, föður Jóhanns. Myndin var tekin 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 301
Vinnuskólaverkstjórar íhuga næstu verkefni við áhaldahúsið í júlí 2013 undir mynd af Kára Kristjánssyni (d.11.12.1990) frá því á síldarárunum. Frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Sylvía Hrólfsdóttir og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir.
Ólafur Bernódusson793
Slökkvilið Skagastrandar á æfingu 22.apríl 2006. Þá komu menn frá Brunavörnum ríkisins með gám þar sem hægt var að æfa reykköfun og að slökkva eld í þröngu rými. Félagarnir í slökkviliðinu eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, óþekktur, Birkir Rúnar Jóhannsson, óþekktur, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) og tveir óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1304
Þetta hús stendur við Strandgötu norðan við stóru skemmuna. Það var geymsla fyrir verslunina Borg, sem stóð hinum megin götunnar í eigu Sigurðar Sölvasonar (d. 24.9.1968). Seinna eignaðist Bjarni Helgason (d.30.12.1983) útgerðarmaður húsið og notaði það sem verbúð. Þaðan er nafnið, Bjarnaborg, komið. Enn síðar komst húsið í eigu Slysavarnafélagsins á Skagaströnd en núverandi eigandi (2018) er dánarbú Árna Guðbjartssonar (d.20.2.2018).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1132
Hallbjörn Björnsson rafverktaki í kaffihorninu í fyrirtæki sínu Neistanum í lok nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1271
Líklega þekkir Logi Hrannar Jóhannsson frá Kambakoti vel kindina sem hann er að klappa á myndinni úr Kjalarlandsrétt 8. septeber 2012.
Ólafur Bernódusson 2 713
Feðgarnir Lýður Hallbertsson til vinstri og Eiríkur Lýðsson til hægri komu með góðan afla í maí 2001 á Dagrúnu. Aflinn var fjórir hákarlar í sömu umvitjun en þeir lögðu oft hákarlalóð á vorin um leið og þeir voru á grásleppu. Hákarlarnir voru allir skornir, kæstir og þurrkaðir og síðan etnir með góðri lyst á þorrablótum vítt um landið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1257
Árni Halldór Eðvarðsson með tvo til reiðar í göngum 8. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1113
Þór Arason (d.11.8.2018) að mála gamla kaupfélagshúsið sem þá gekk í endurnýjun lífdaga. Myndin var tekin í lok maí 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1370
Fólkið a myndinni fylgdist með fyrirlestri um hafnargerð á Skagaströnd í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélaginu sem haldin var 13. október 2012. Fyrir og eftir fyrirlesturinn skoðaði fólk myndir úr Ljósmyndasafni Skagastrandar og reyndi að þekkja fólk sem á þeim var. Fólkið á myndinni er, frá vinstri:Lárus Ægir Guðmundsson (situr næst), Guðlaug Grétarsdóttir í rauðum buxum, Lilja Hjaltadóttir í rauðri úlpu, Adolf H. Berndsen, Herdís Jakobsdóttir, Hjalti Viðar Reynisson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Magnús B. Jónsson.
Steinþór Karlsson 028
Jóhannes Heiðmar Indriðason við störf um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Ingibergur Guðmundsson 318
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er búið að reisa sperrur skálans og þá var að sjálfsögðu haldið reisugilli með kaffi, kleinum og rjómapönnukökum. Til hægri sér í gamla lyftuskúrinn og lyftumótorinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 410
Jón Gunnarsson um borð í bát sínum Rán Hu um miðjan ágúst 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1094
Myndin var tekin 17. janúar 2004 eftir að nokkurra daga illviðri slotaði. Mikil ísing og ofankoma varð til þess að tveir bátar sukku í höfninni eins og sjá má og litlu mátti muna með fleiri báta. Bátarnir voru báðir hífðir upp og þeir endurnýjaðir eftir þörfum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1171
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970. Bryggjan sem bátarnir liggja við var kölluð Litla bryggja og hún hallaði fram, sem var algengt með bryggjur á þeim tíma sem hún var gerð, til að auðvelda löndun úr bátum sem voru misjafnir á stærð. Báturinn til hægri er Sigurður Jónsson Hu 18, og sá til vinstri er Blíðfari Hu 17 en báturinn í miðjunni er óþekktur. Á myndinni má líka sjá nokkra báta sem geymdir voru í fjörunni til vinstri á myndinni. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1051
Feðgarnir Lýður Hallbertsson og Eiríkur Lýðsson um borð í bát sínum Dagrún Hu 121 í febrúar 2008.
Ingibergur Guðmundsson 330
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er kaffipása einhverntíma eftir áramótin 1984/85 þegar verið var að klæða skálann að innan og vinna við innréttingar. Á henni eru skíðaáhugamennirnir, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Ólafur Bernódusson, Kjartan Birgisson og Ingibergur Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 247
Unnið að skógrækt á tjaldsvæðinu með stórvirkum vinnuvélum. Myndin var tekin 1. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 425
Flutningabíll fór út af veginum sunnan við Árbakka 10. apríl 2013 í vondu veðri og slæmu skyggni. Á myndinni er stór vinnuvél að draga bílinn upp á veginn aftur sem hann komst ekki af sjálfsdáðum.
Ingibergur Guðmundsson 319
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að klæða skálann að utan. Á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Halldór Gunnar Ólafsson og Baldvin Hjaltason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1164
Pása í bæjarvinnunni 11. júní 2009. Krakkarnir eru, frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir, Indriði Theodór Hjaltason og Rósa Björg Einarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 285
Myndin var tekin 4. janúar 2012 þegar verið var að taka niður bækur Bókasafns Skagastrandar til að hægt væri að vinna að endurbótum húsnæðis safnsins í kjallara Fellsborgar. Lengst til vinstri er þáverandi bókavörður, Sigþrúður Magnúsdóttir en síðan koma hjálparstúlkurnar Aldís Embla Björnsdóttir og Jensína Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1048
Jakob Guðmundsson bóndi og smiður á Árbakka í miðri heyskapartíð í júlí 2003.
Steinþór Karlsson 038
Á þessari mynd frá sumrinu 1999 um borð í Arnari Hu 1, eru tveir sjómenn að setja stroffu um belginn á trollinu til að ná því inn. Maðurinn til vinstri er líklega Baldur Magnússon en sá til hægri líklega Skúli Tómas Hjartarson. Báðir eru mennirnir bundnir við skipið ef illa skyldi fara.
Ólafur Bernódusson771
Fyrsta skóflustungan tekin að gervigrasvellinum á Skagaströnd. Líklega var þetta 2005 eða 2006 en skólabörn aðstoðuðu Magnús B. Jónsson sveitarstjóra við moksturinn. Til vinstri klappar Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri fyrir verkinu en nemendur Höfðaskóla fylgjast með.
Arnar HU 1 - safn 43
Spjallað í matsalnum milli hífa 27. mars 2004. Frá vinstri: Elvar Freyr Aðalsteinsson, Skúli Tómas Hjartarson og Kristján Karlsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1329
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri að skreyta ljósastaur við Bogabrautina fyrir Kántrýdaga 16. ágúst 2012.
Steinþór Karlsson 041
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumaruið 1999. Á henni er búið að breiða yfir hluta aflans úr síðasta hali á dekkinu því vinnslan er full. Maðurinn til vinstri er óþekktur en til hægri er Guðfinnur Bjarni Ottósson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 006
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999 af nokkrum skipverjum að fylgjast með félögum sínum á gúmmíbát á svartfuglaskytteríi. Báturinn sést, ef vel er skoðað, út við sjóndeildarhringinn vinstra megin við miðju. Bæring Skarhéðinsson er lengst til hægri með heyrnartól. Maðurinn í blárri peysu og sjóbuxum er Jóhann Ásgeirsson og maðurinn með bláu húfuna til hægri er Slavko Velemir. Hinir tveir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1007
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi Gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000.
1
…
47
48
49
…
75
Leita í myndasafninu
Leita