Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 321
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Ólafur Bernódusson sem vann við að reisa skálann þá um sumarið.
Steinþór Karlsson 017
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Þröstur Árnason til vinstri og Jóhannes Heiðmar Indriðason hægra megin tylla sér smástunud á bekkinn í stakkageymslunni áður en þeir fara fram í vinnsluna.
Steinþór Karlsson 030
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Þarna er verið að losa karfa úr pokanum eftir tuga tonna hal. Maðurinn með vidovélina er óþekktur.
Steinþór Karlsson 021
Myndin ver tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni er verið að hífa flottrollið á karfamiðum. Mikil flækja af köðlum koma fyrst upp á spiltromluna áður en belgur trollsins kemur með pokanum í endanum.
Ólafur Bernódusson745
Sumarið 2012 útbjuggu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar og aðrir sjálfboðaliðar, göngustíg gegnum skógræktarsvæði félagsins austan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Hann var síðan nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem í mörg ár var ötull formaður Skógræktarfélagsins. Á myndinni er Ólafur Bernódusson að koma fyrir brú yfir skurð sem sker stíginn.
Steinþór Karlsson 013
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni eru þrír skipverjar að sjósetja gúmíbát til að fara á svartfuglaskyttetrí. Í bátnur er Bjarni Ottósson við mótorinn en hinir tveir eru óþekktir. Jóhann Ásgeirsson stendur við lunninguna og bendir kranamanninum að láta síga. Aftar eru Bæring Skarphéðinsson til vinstri og Slavko Velemir til hægri. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega senmdu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson840
Lísebet Gestsdóttir frá Brandaskarði til vinstri og Sigurlaug Kristjánsdóttir frá Tjörn til hægri. Á myndinni eru þær að selja eigin heimagerðan varning á útimarkaði við félagsheimilið á Blönduósi á Húnavöku 17. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1218
Dagný Marín Sigmarsdóttir heldur ræðu við opnum Spákonuhofsins 30. júní 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1212
Valgeir Karlsson frá Víkum við formlega opnun á sorpmóttöku Norðurár í Stekkjarvík 21. janúar 2011.
Steinþór Karlsson 015
Sævar Berg Ólafsson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson til hægri bíða á bekknum í stakkageymslunni eftir að fiskur komi niður á vinnsludekkið svo hægt sé að hefja vinnsluna. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1129
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd við vinnu sína á sveitarstjórnarskrifstofunni 28. nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 238
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin inni í vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni bíða nokkrir sveitastjórnarmenn eftir gestum. Léttar veitingar vori í boði af þessu tilefni. Mennirnir eru frá vinstri: Björn Kristjánsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Hallur Hilmarsson og tveir óþekktir menn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1158
Ungt fólk vinnugallanum tyllir sér 11. júní 2009 á bekk utan við gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Bæjarvinnufólkið er, frá vinstri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Sara Rut Fannarsdóttir, Viktor Örn Valdimarsson, Halla Björk Víðisdóttir og Kristbjörg Ragnheiðardóttir.
Ingibergur Guðmundsson 327
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Stefán Ægir Lárusson að rýna í teikningarnar áður en næstu skref eru tekin í framkvæmdunum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 343
Fellsborg fær andlitslyftingu í júní 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1169
Rebekka Þórarinsdóttir við vinnu í júní 2009. Þorgerður Guðmundsdóttir kíkir inn í myndina til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1186
Steindór R. Haraldsson flaggar við kirkjuna á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Steindór var meðphjálpari við Hólaneskirkju í áratugi en lét af því starfi haustið 2018.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1067
Tónlistar- og samstarfsmennirnir Birkir Rafn Gíslason til vinstri og Bjartmar Guðlaugsson til hægri á Kántrýdögum 14. ágúst 2010.
Arnar HU 1 - safn 18
Björn Sigmundsson vélstjóri á Arnari HU 1 í stjórnklefanum niður í vélarúmi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 279
Adolf H. Berndsen, í stiganum, og Sigurður Bjarnason hengja upp jólaseríu á Spákonuhofið í lok nóvember 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 407
Valgeir Karlsson frá Víkum æfir sig á tölvuna á tölvunámskeiði (h)eldra fólks í lok febrúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1413
Þessir tveir herramenn héldu sameiginlega ljósmyndasýningu í íþróttahúsinu í byrjun júní 2012. Arnar Ólafur Viggósson frá Skagaströnd til vinstri og Jón Hilmarsson þáverandi skólastjóri á Hofsósi til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 315
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er hluti af vegggrindunum risinn. Á myndinni er Ólafur Bernódusson ásamt börnum sem komu í heimsókn í fjallið. Frá vinstri: óþekktur, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Ólafur, Auður Eva Guðmundsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson, sem var handlangari hjá pabba sínum við bygginguna.
Ólafur Bernódusson1013
Í september árið 2000 voru haldnir svokallaðir Orkudagar í Fellsborg sem fjöldi manns heimsótti. Þar kynntu mörg fyrirtæki starfsemi sína og framleiðsluvörur. Allt sem kynnt var tengdist á einhvern hátt orkuframleiðslu, notkun eða sparnaði. Myndin var tekin yfir salinn í Fellsborg en sýningin var líka í hliðarsalnum og andyrinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 240
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin á urðunarsvæði Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni eru sveitastjórnamenn og aðrir gestir sem voru á svæðinu til að kynna sér starfsemina hjá hinu nýja fyrirtæki á opnunardeginum.
Steinþór Karlsson 042
Óþekktur maður að hífa um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 036
Jóhannes Heiðmar Indriðason að störfum í vinnslunni á Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Ólafur Bernódusson740
Sumarið 2012 útbjuggu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar og aðrir sjálfboðaliðar, göngustíg gegnum skógræktarsvæði félagsins austan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Mikil vinna fór í að keyra út malarlagi í göngustíginn og raka stíginn til. Hann var síðan nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem í mörg ár var ötull formaður Skógræktarfélagsins. Á myndinni er Ólafur Bernódusson að raka til og slétta mölina á stígnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 459
Myndin var tekin í jólamessu í Hofskirkju á jóladag 2013. Séra Bryndís Valbjörnsdóttir er fyrir altarinu en kirkjukór Hólaneskirkju syngur við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur. Í kórnum eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Guðlaug Grétarsdóttir, Helga Dögg jónsdóttir, Sigurður Bjarnason, Árdís Indriðadóttir, Ólafur Bernódusson (fjær), Herdís Jakobsdóttir (nær), Dagný Hannesdóttir, Hafþór Gylfason, Þórarinn Grétarsson (fjær), Ragnhildur Ragnarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1048
Jakob Guðmundsson bóndi og smiður á Árbakka í miðri heyskapartíð í júlí 2003.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1286
Tryggvi Hlynsson á reykköfunaræfingu slökkviliðs Skagastrandar í byrjun apríl 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 324
Feðgarnir Stefán Jósefsson til vinstri og Guðmundur Henry Stefánsson til hægri skera af netum í verbúði hins fyrrnefnda við Fjörubraut. Teinarnir eru hirtir og á þá fellt nýtt net. Netinu sjálfu - af gömlu netunum - er hent vegna þess að þau eru meira og minna rifin eftir notkun um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1313
Sigurjón Elí Eiríksson niðri í lest á Dagrúnu Hu 121 að landa í lok apríl 2012. Sigurjón hefur getið sér gott orð í bílaíþróttum sem keppandi í "drift".
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 66
Óneitanlega voru það miklar framfarir þegar bændur eignuðust dráttavélar. Þessi Farmal Cub var í eigu Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) í Reykholti en hann fékkst meðal annars við búskap. Eins og sjá má er sláttuvélargreiðan tilbúin en áður hafð verið slegið með orfi og ljá eða með sláttuvélum sem hengdar voru aftan í hest.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1244
Hjördís Sigurðardóttir með son sinn Fritz Hendrik Berndsen sér við hægri hönd og sonardóttur sína Sigurbjörgu Birtu Adolfsdóttur Berndsen sér til vinstri. Myndin var tekin 30. júní 2011 í Spákonuhofinu þegar það var opnað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1289
Sumarið 2012 gerðu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar göngustíg gegnum skógræktina austan við tjaldstæðin. Stígurinn hlaut nafnið Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem var einn af stofnendum félagsins, formaður í mörg ár og mikill skógræktarmaður. Á myndinni er Ólafur Bernódusson að jafna úr malarhlassi á Jónsstíg en síðan stígurinn var gerður hefur hann notið mikilla vinsælda sem mátuleg gönguleið gegnum skógræktina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1189
Unglingar í bæjarvinnunni að dytta að Spákonufellsrétt í júlí 2010. Unglingarnir eru frá vinstri talið: Þórður Indriði Björnsson, Sara Rut Fannarsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson og Jóhann Örn Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 234
Árni Geir Ingvarsson bæjarverkstjóri á kaffitíma í söluskálanum á Skagaströnd í ágúst 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1333
Hjónin Runólfur Bjarni Gautason og Kolbrún Eðvarðsdóttir starfsmenn Vinnumálastofnunar á Skagaströnd líta upp úr önnum dagsins í hólunum framan við Stjórnsýsluhúsið um miðjan ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson755
Rauða kross deildin á Skagaströnd hefur um árabil haft kaffisölu og fatamarkað 1. maí á hverju ári. Þessi mynd var tekin af rauða kross félögum og hjálparkokkum þeirra þann dag 2003 í húsi deildarinnar. Frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) sem heldur um dóttur sína Bergrósu Hafsteinsdóttur, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Pétur Eggertsson formaður deildarinnar í mörg ár, aftan við hann er Ívar Gylfason , Hrönn Árnadóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson sem styður á bak Guðjóns Páls Hafsteinssonar en aftan við Guðjón er Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006) og lengst til hægri er Brynjar Max Ólafsson.
Ingibergur Guðmundsson 324
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er skálinn fullbyggður og sólpallur kominn við suðurhlið hans. Vegna mikils vindálags, sem oft getur verið við skálann, var ekki haft þakskegg að austanverðu til að minnka hættuna á að þakið fyki af.
Ólafur Bernódusson 729
Steypireyður er stærsta skepna jarðarinnar og er reyndar talinn stærsta skepna sem nokkurn tíma hefur verið til. Einn slíkan rak dauðan í fjöruna sunnan við bæinn Ásbúðir á Skaga í ágúst 2010. Fréttir af hvalrekanum voru fluttar í öllum helstu fjölmiðlum landsins enda sjaldgæft að steypireyð reki á fjörur. Á myndinni stendur átta ára gamall drengur, Ólafur Halldórsson, á hvalnum til að sýna stærðarhlutföllin en Ásbúðir sjást til hægri á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1383
Trostan Agnarsson til vinstri og Adolf H. Berndsen til hægri spjalla saman í lok ágúst 2012 á kynningardegi vegna fyrirhugaðra hitaveituframkvæmda á árinu 2013.
Steinþór Karlsson 024
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari Hu 1 kominn niður á dekk til að fylgjast með þegar risahol var tekið innfyrir. Myndin var tekin sumarið 1999 þegar Arnar var á karfaveiðum.
Ólafur Bernódusson777
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra tekur fyrstu skóflustungu að nýbyggingu heilsugæslunnar á Skagaströnd haustið 2005. Það gerði hann með JCB gröfu Guðmundar J. Björnssonar sem leiðbeinir honum við verkið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1314
Ungir menn í bæjarvinnunni í byrjun ágúst 2012. Ísak Tryggvason til vinstri og Kristján Örn Róbertsson til hægri.
Steinþór Karlsson 009
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar verið var að sjósetja gúmmíbát með óþekktum mönnum sem voru að fara á svartfuglaskytterí á frívaktinni. Eins og sjá má þá heldur Arnar áfram að toga á meðan sjósett er og því er króknum ekki sleppt fyrr en untanborðsmótorinn er kominn í gang.
Ólafur Bernódusson764
Vorið 2004 héldu samsýningu á verkum sinum þau Slavko Velemir og Steinunn Steinþórsdóttir í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Þar sýndi Steinunn glerlistaverk en Slavko var með verk úr járni. Á myndinni eru þau með eitt af verkum Steinunnar á milli sín.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1207
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 2. nóvember 2012. Þegar viðrar eins og myndin sýnir þurfa eigendur báta að vera vel vakandi og moka úr þeim snjó sem safnast í þá í skafrenningnum fram af bryggjubrúninni. Ef það er ekki gert er hætta á að yfirvigtin á þeim geti lagt þá á hliðina og þar með sökkt þeim.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1206
Það getur oft verið lítið skyggni þegar norðanáttin blæs og myndar skafhríðarkóf fyrir víkina. Þessi mynd var tekin í einu slíku veðri 2. nóvember 2012 en þá fór snjómoksturstæki með önnur hjólin fram af brúninni á Strandgötunni. Á myndinni er annað tæki að draga gröfuna upp á götuna aftur. Engin slys urðu við óhappið enda kom snjórinn í veg fyrir að grafan færi alveg á hliðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1159
Grillveisla í uppsiglingu hjá bæjarvinnufólki 11. júní 2009 fyrir utan gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Bæjarvinnufólkið er, frá vinstri: Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir og Valgerður Guðmunsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1253
Þessi tvö bíða eftir safninu af fjalli í göngum 8. september 2012. Þeirra hlutverk Var að standa fyrir og beina safninu rétta leið í almenninginn við réttina hjá sunnan við Kjalarland. Fólkið er Páll Jóhannesson og Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016) sem bæði höfðu áhuga á kindum og fjárbúskap.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 270
Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og Ágúst Jónsson til hægri, starfsmenn Trésmiðju Helga Gunnarssonar, ganga frá nýsteyptum gangstéttarkanti við Norðurbraut.
Ólafur Bernódusson756
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1. júní 2003. Lárus Ægir Guðmundsson til hægri hefur nýlokið við að heiðra Hallgrím Jónsson (d.1.4.2013) með silfurkrossi sjómannadagsins fyrir áratuga farsæl störf á sjó. Börnin njóta dagsins með nammið sitt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1465
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) um borð í bát sínum Boggu í Vík Hu 6 um miðjan mars 2012. Líklega er hann að fara að setja Boggu á flot til að geta farið á grásleppu það vorið.
Séra Pétur og Dómhildur - safn201
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) tekur fyrstu skóflustungu að nýrri Hólaneskirkju. Í bókinni:"Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan atburð á bls 60: "Á Mikjálsmessu, 29. september 1979, tók þáverandi sóknarprestur, sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, fyrstu fimm skóflustungurnar að nýrri kirkju á Hólanesi og mynduðu þær kross. Síðan flutti hann bæn og blessunarorð." Hjá Pétri stendur kona hans Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012).
Steinþór Karlsson 025
Óskar Þór Kristinsson var togarasjómaður í áratugi áður en hann kom í land og settist í helgan stein. Þessi mynd af Óskari var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 383
Adolf H. Berndsen málar þakið á gömlu sjoppunni og BP bensínstöðinni við Karlsskála í júlí 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1211
Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Norðurár, sem rekur sorpmóttökuna í Stekkjarvík, við vinnu sína 21. janúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1156
Ungir menn í vinnugallanum tylla sér 11. júní 2009 utan við gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Strákarnir eru frá vinstri: Kristján Ýmir Hjartarson, Almar Freyr Fannarsson, Eyþór Kári Egilsson og Brynjar Max Ólafsson.
1
…
48
49
50
…
75
Leita í myndasafninu
Leita