Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1334
Starfsmenn Vinnumálastofnunar á Skagaströnd líta upp úr önnum dagsins í hólunum framan við Stjórnsýsluhúsið um miðjan ágúst 2012. Á myndinni eru frá vinstri: Borghildur Sigmunds- Þorbjargardóttir, Kolbrún Eðvarðsdóttir (fjær), Runólfur Bjarni Gautason (fjær), Eyþór Theódórsson (nær), Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, og Þórunn Valdís Rúnarsdóttir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1128
Kristín Sigurðardóttir Blöndal við vinnu sína á Hreppsskrifstofunni 28. nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1323
Á lokadegi í bæjarvinnunni 9. ágúst 2012 skemmtu unglingarnir sér við að renna sér í froðurennibraut sem komið var fyrir í brekkunni norðan við íþróttavöllinn. Á myndinni eru tveir í brautinni og aðrir bíða uppi eftir að röðin komi að þeim.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 459
Myndin var tekin í jólamessu í Hofskirkju á jóladag 2013. Séra Bryndís Valbjörnsdóttir er fyrir altarinu en kirkjukór Hólaneskirkju syngur við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur. Í kórnum eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Guðlaug Grétarsdóttir, Helga Dögg jónsdóttir, Sigurður Bjarnason, Árdís Indriðadóttir, Ólafur Bernódusson (fjær), Herdís Jakobsdóttir (nær), Dagný Hannesdóttir, Hafþór Gylfason, Þórarinn Grétarsson (fjær), Ragnhildur Ragnarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 383
Adolf H. Berndsen málar þakið á gömlu sjoppunni og BP bensínstöðinni við Karlsskála í júlí 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1460
Árni Ólafur Sigurðsson ber á grindverkið við húsi sitt á Ránarbrautinni í júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 402
Mávarnir á bryggjunni eru stundum til vandræða. Þeir hópast að fiskkörunum þegar verið er að landa og kroppa í góðgætið sem í þeim er. Á þessari mynd frá því í ágúst 2013 nýta sílamávar og silfurmávar sér tækifærið þessar mínútur sem það tekur að ná hinum körunum upp úr bátnum.
Ólafur Bernódusson975
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna eða SH var stofnað í febrúar 1942. 1992 hélt SH upp á 50 ára afmæli sitt með því að bjóða starfsfólki hraðfrystihúsanna, sem mynduðu sölumiðstöðina, til kaffiveislu. Þessi mynd var tekin í veislunni í kaffistofu Hólaness hf. Hægra megin við borðið sitja talið frá hægri: Guðrún Pálsdóttir, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Sveinn Jónasson, óþekktur og Vilborg Magnúsdóttir. Við enda borðsins situr Kristinn Guðmundsson. Vinstra megin við borðið má þekkja Birgir Árnason (d.2.2.2005) og konu hans Ingu Þorvaldsdóttur (d.14.12.2012). Í hvítri skyrtu með kaffikönnur í höndunum er Lárus Ægir Guðmundsson sem var framkvæmdastjóri Hólness hf á þessum tíma. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 66
Þessi undarlegi fiskur, Pálsfiskur (Zenopsis conchifera), kom í trollið hjá Arnari HU 1 á Grindavíkurdýpi í apríl 2008. Pálsfiskur er afar sjaldgæfur við Ísland því hann veiðist mest í Indlandshafi og við Ástralíu. Þó finnst hann í einhverju mæli á strandsvæðum við Atlantshaf. Pálsfiskur getur orðið allt að 80 cm langur en fiskurinn á myndinni var um 30 cm.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1181
Fólk í skrifstofutækninámi í Höfðaskóla í apríl 2010. Fremst frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðrún Magnúsdóttir og Guðbjörg Eyjólfsdóttir.Miðröð frá vinstri: Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og óþekkt. Aftasta röð frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Kristín Jóna Sigurðardóttir, Kristín Björnsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Steinþór Karlsson 040
Karlarnir standa á troðfullu tollinu um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Baksvipinn á Guðjón Guðjónsson (Jonni) en hinn maðurinn er Ólafur Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1391
Af augljósum ástæðum er ekki vitað hvaða barn er á myndinni í óða önn að byggja sér snjóhús í djúpum skafli. Myndin var tekin 19. nóvember 2012.
Steinþór Karlsson 019
Það er alltaf handagangur í öskjunni þegar trollið er tekið innfyrir. Þessi mynd var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar hann var á karfaveiðum með flottroll. Karlarnir á myndinni eru óþekktir nema Þráinn Bessi Gunnarsson sem er lengst til vinstri. Ef þú þekkir hina karlana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1293
Sumarið 2012 gerðu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar göngustíg gegnum skógræktina austan við tjaldstæðin. Stígurinn hlaut nafnið Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem var einn af stofnendum félagsins, formaður í mörg ár og mikill skógræktarmaður. Á myndinni eru Ari Jón Þórsson núverandi formaður félagsins (2018) og dóttursonur Jóns á vélhjólbörunum en Róbert Gunnarsson sonarsonur Jóns bíður albúinn að jafna úr hlassinu.
Ólafur Bernódusson1017
Myndin var tekin í júlí 2000 af þeim Einari Karlssyni pípara til vinstri og Sigurði Björnssyni smið til hægri sem þá voru að vinna við að byggja þjónustuhúsið á tjaldsvæðinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1161
Sólrún Ágústa Magnadóttir talar í síma 11. júní 2009 í bæjarvinnunni fyrir utan gömlu tunnuna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1457
Agnes Sævarsdóttir kennari í Höfðaskóla við vinnuborðið sitt að spjalla við Björn Inga Óskarsson tölvueftirlitsmann og netstjóra skólans. Myndin var tekin 1. febrúar 2012.
Ólafur Bernódusson918
Stund milli stríða utan við fiskmarkað Örva ehf 18. mars 2008. Frá vinstri: Sigurður Ingimarsson, Haraldur Árnason, Lárus Ægir Guðmundsson og Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1260
Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka í réttarstörfum í réttinni sunnan við Kjalarland 8. september 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 320
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er skálinn tilbúinn fyrir klæðninguna utan á tjörutexið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1231
Feðgarnir Sigurgeir Snævar Árnason til vinstri og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) faðir hans um borð í bátnum Bogga í Vík 19. mars 2012 að gera klárt til grásleppuveiða.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 472
Áslaug Ottósdóttir við afgreiðsluborðið í kaffihúsinu Bjarmanes í lok júní 2013. Áslaug rak kaffihúsið um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1414
Bræðurnir Adolf H. Berndsen til vinstri og Fritz Hendrik Berndsen til hægri að mála gömlu sjoppuna og BP bensínstöðina við Karlsskála 1. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1049
Óli Albertsson fyrrverandi bóndi á Keldulandi slær í kirkjugarðinum í lok júní 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1423
Eigendur skipa og báta á Skagaströnd bjóða alltaf upp á stutta skemmtisiglingu á sjómannadögum. Á þessari mynd frá sjómannadegi 2. júní 2012 er Hafrún Hu 12 að leggja af stað í slíka siglingu með fullt af fólki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1088
Lionklúbburinn á Skagaströnd verkaði skötu fyrir Þorláksmessu-markaðinn haustið 2010. Á myndinni eru nokkrir félaganna að verka skötuna og pakka í lofttæmdar umbúðir. Mennirnir eru frá vinstri: Guðmundur B. Jónsson (baksvipur), Slavko Velemir, Jón Sveinsson, Sævar Hallgrímsson, Árni Geir Ingvarsson og Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1136
Sigurbjörn Björgvinsson vörubifreiðarstjóri og kokkur í heimsókn í áhaldahúsinu 24. febrúar 2003.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1055
Á myndinni er verið að klippa á borða til merkis um að flokkunarstöð Gámaþjónustunnar á Skagaströnd sé tekin í gagnið. Myndin var tekin 29. júlí 2010 af Adolf H. Berndsen oddvita til vinstri, Vilhelm B. Harðarsyni framkvæmdastjóra Gámaþjónustunnar á Skagaströnd í miðið og Magnúsi B. Jónssyni sveitarstjóra til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1089
Lionklúbburinn á Skagaströnd verkaði skötu fyrir Þorláksmessu-markaðinn haustið 2010. Á myndinni eru Björn Hallbjörnsson til vinstri og Slavko Velemir til hægri að pakka skötubörðum í lofttæmdar umbúðir 19. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1133
Aðalheiður Lovísa Rögnvaldsdóttir í Höfðaskóla í lok nóvember 2002. Aðalheiður er kona Guðjóns Hall Sigurbjörnssonar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1165
Jóhann Örn Stefánsson í pásu í bæjarvinnunni 11. júní 2009.
Arnar HU 1 - safn 41
Þrír hressir í vinnslunni um borð í Arnari HU 1 í lok janúar 2013. Frá vinstri: Þröstur Árnason, Arnar Ólafur Viggósson og Kristján Blöndal.
Ingibergur Guðmundsson 325
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er stund miklli stríða eftir að búið er að einangra skálann með glerull. Skíðaáhugamennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Pétur Eggertsson, Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson.
Arnar HU 1 - safn 52
Reglulega eru haldnar slökkvi- og björgunaræfingar um borð í Arnari HU 1. Þessi mynd var tekin á einni slíkri þar sem búið er að búa um messann, Evu Dís Gunnarsdóttur, á börum til flutnings. Ingimar Vignisson er vinstra megin við börurnar og Kristján Blöndal hægra megin í ljósum bol. Aðrir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1156
Ungir menn í vinnugallanum tylla sér 11. júní 2009 utan við gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Strákarnir eru frá vinstri: Kristján Ýmir Hjartarson, Almar Freyr Fannarsson, Eyþór Kári Egilsson og Brynjar Max Ólafsson.
Ólafur Bernódusson796
Í nokkur ár veiddist vel af hörpudiski í Húnaflóa og voru gerðir út nokkrir bátar á þessar veiðar yfir sumarið og fram á haustið. Skelin var m.a. unninn á Skagaströnd og skapaði allmikla atvinnu. Smátt og smátt dró úr veiðunum þar til svo kom að þær hættu að borga sig. Þessi mynd var tekin 16. september 2006 af löndun á skel, líklega úr Arnarborg Hu 11. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðbjartur Sævarsson, Vilhjálmur Skaftason og um borð að hífa er Marías Bjarni Viggósson
Ólafur Bernódusson740
Sumarið 2012 útbjuggu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar og aðrir sjálfboðaliðar, göngustíg gegnum skógræktarsvæði félagsins austan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Mikil vinna fór í að keyra út malarlagi í göngustíginn og raka stíginn til. Hann var síðan nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem í mörg ár var ötull formaður Skógræktarfélagsins. Á myndinni er Ólafur Bernódusson að raka til og slétta mölina á stígnum.
Ólafur Bernódusson789
Þessi hákarl kom á línuna hjá Öldunni Hu 112 16. janúar 2006. Hjá hákarlinum stendur Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður og eigandi Öldunnar. Hákarlinn var auðvitað skorinn og verkaður til að gleðja bragðlaukana haustið 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 403
8. ágúst 2013 var Arnar Hu 1 að leggja af stað í túr en Benni Ólafs að koma úr stuttum túr. Um borð í Benna Ólafs er eigandinn, Ólafur Bernódusson. Eins og sjá má er töluverður stærðarmunur á þessum tveinmur skipum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1146
Á myndinni er Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) standandi til vinstri en hitt fólkið á henni er ekki þekkt. Ekki er heldur vitað hvenær né hvar hún var tekin en ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1227
Hjónin Steinunn Friðriksdóttir og Gunnlaugur Sigmarsson við opnun Spákonuhofsins 30. júní 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 259
Þrír ungir menn í vinuskólanum í lok júní 2011. Frá vinstri: Einar Ari Einarsson, Ísak Karl Tryggvason og Elvar Geir Ágústsson.
Steinþór Karlsson 029
Guðfinnur Bjarni Ottósson til vinstri og Ólafur Ásgeirsson til hægri við störf um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 306
Sigurjón Elí Eiríksson við slátt í hólunum vestan við stjórnsýsluhúsið í ágúst 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1288
Stefán Sveinsson lagar húfuna á dóttur sinni Stefaníu Hrund Stefánsdóttur meðan hann spjallar við Jón Ólaf Sigurjónsson. Myndin var tekin um miðjan desember 2012 þegar þeir voru að sækja sér jólatré í Gunnfríðastaðaskóg.
Steinþór Karlsson 012
Guðmundur Henry Stefánsson við vinnu á vinnsludekkinu í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1321
Á lokadegi í bæjarvinnunni 9. ágúst 2012 skemmtu unglingarnir sér við að renna sér í froðurennibraut sem komið var fyrir í brekkunni norðan við íþróttavöllinn. Á myndinni eru Róbert Björn Ingvarsson vinstra megin og Elmar Jóhann Grétarsson til hægri að renna sér. Egill Örn Ingibergsson er kominn úr einni bunu og er á leið upp brekkuna til að skella sér í aðra ferð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1355
Starfsfólk BioPol á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Frá vinstri: doktor Bjarni Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri, Soffía Magnúsdóttir líffræðingur, Svana Lára Hauksdóttir líffræðingur og doktor Magnús Stefánsson.
Ólafur Bernódusson1002
Þessar konur stofnuðu þrjú fyrirtæki undir sama þaki á Iðavöllum en myndin var tekin þegar þær opnuðu fyrirtækin í desember 2000. Til vinstri er Birna Sveinsdóttir snyrtifræðingur sem var með snyrtistofu. Í miðið er Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir hárgreiðlukona sem var að opna hárgreiðslustofu og til hægri er Björk Sveinsdóttir sem opnaði tískuvöruverslun á loftinu á Iðavöllum.
Helga Berndsen 127
Jón Ísberg (d.24.6.2009) sýslumaður í Húnavatnssýslum vígir sjálfvirka símann á Skagaströnd árið, 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1122
Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) til vinstri spjallar við Skarphéðinn Einarsson til hægri í réttunum 4. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 226
Anton Þór Einarsson til vinstri og Ísak Karl Tryggvason hægra megin bregða á leik í vinnuskólanum í ágúst 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1406
Iðnaðarmenn í vinnu við að innrétta Spákonuhofið á Skagaströnd 30. mars 2011. Frá vinstri: Björn Hallbjörnsson rafvirki, Hallbjörn Björnsson rafvirki og Þór Arason (d.11.8.2018) smiður.
Ólafur Bernódusson1004
Fólkið á myndinni var starfsfólk Rækjuvinnslunnar á Skagaströnd í desember 2000 þegar þessi mynd var tekin á Hótel Dagsbrún en þá var fólkið á námskeiði þar. Fólkið er frá vinstri: óþekkt, Kristín Björnsdóttir (nær), Sólveig Eiðsdóttir (fjær), Vilhjálmur Skaftason (nær), Þráinn Bessi Gunnarsson (fjær), óþekktur, Sveinþór Arason, Sigrún ?, Ólafur Guðmundssson, Berglind Karlsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Arnar Ólafur Viggósson, Cristina Silod Yecyec, Guðrún Magnúsdóttir, Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir (nær), Sigurður Bjarnason (fjær), Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir (nær), Gylfi Sigurðsson (fjær), óþekkt, Róbert Jónasson, Heiðrún Níelsdóttir og Sigrún Lárusdóttir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1309
Guðmann Einar Magnússon yngri frá Vindhæli hjálpar til í heyskapnum í góðum þurrki 28. júlí 2012.
Arnar HU 1 - safn 48
Kristján Pétur Guðjónsson til vinstri og Ragnar Ásmundur Einarsson til hægri í borðsalnum á Arnari HU 1?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 2
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á verkstæðinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1130
Gunnar Þór í slysavarnahúsinu 29. nóvember 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 469
Eðvarð Hallgrímsson húsasmiður og verktaki að mála Gamla kaupfélagið í júní 2013. Húsið gerði hann upp í upprunalegri mynd að utan í félagi við mág sinn Lárus Ægi Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1168
Sigurjón Elí Eiríksson til vinstri og Indriði Theodór Hjaltason til hægri í bæjarvinnunni 11. júní 2009.
1
…
49
50
51
…
75
Leita í myndasafninu
Leita