Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1473
Bræðurnir Friðþór Norðkvist Sveinsson til vinstri og Þorlákur Sigurður Sveinsson að gera klárt fyrir grásleppuveiðið á Bergi sterka Hu 17 um miðjan mars 2012 í Skagastrandarhöfn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1166
Sigurjón Elí Eiríksson í bæjarvinnunni 11. júní 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1178
Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður að saga með steypusög við erfiðar aðstæður. Óli skip - eins og hann var kallaður - var einn þessara manna sem leit á vandamál sem verkefni sem þarf að leysa og gekk í að leysa þau án þess að mikla þau fyrir sér. Myndin var tekin 21. janúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1394
Skarphéðinn Einarsson fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskóla Austur Húnvetninga hefur verið ötull forystumaður á tónlistarsviðinu í sýslunni í áratugi. Skarphéðinn lét af starfi skólastjóra sumarið 2018 en heldur áfram að spila og vera gleðigjafi með tónlist sinni og persónuleika.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1217
Á þessari mynd frá 1. desember 2012 eru þeir að spjalla yfir kaffibolla í bílskúrnum á Fellsbraut 15: Árni Geir Ingvarsson til vinstri, Ragnar Smári Ingvarsson í miðið og Stefán Þór Árnason til hægri. Þeir félagar hittust gjarnan á þessum stað í byrjun desember til að búa til jólaljósaskreytingu ársins á húsin sín.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1300
Arnari Hu 1 snúið í stefnuna 10. apríl 2012 af björgunarskipinu Húnabjörgu. Þar sem höfnin á Skagaströnd er nokkuð þröng er þetta fyrirkomulag haft á hlutunum þegar Arnar er að leggja upp í veiðiferð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1320
Finnur Kristinsson til vinstri aðstoðar Steindór R. Haraldsson athafnamann til hægri við uppsetningu einhverra tækja sem Steindór notaði við tilraunir og framleiðslu sína á matvælum.
Ólafur Bernódusson1003
Þessar konur stofnuðu þrjú fyrirtæki undir sama þaki á Iðavöllum. Myndin var tekin þegar þær opnuðu fyrirtækin í desember 2000. Neðst situr Björk Sveinsdóttir sem opnaði tískufataverslun á loftinu, Birna Sveinsdóttir er í miðið en hún opnaði snyrtistofu í hluta jarðhæðarinnar og efst situr Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir sem opnaði hárgreiðslustofu í öðrum hluta jarðhæðarinnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1343
Gestir á fjölsóttri ljósmyndasýningu, sem Árni Geir Ingvarsson hélt á nokkrum mynda sinna í íþróttahúsinu, eina helgi um miðjan ágúst 2012. Eðvarð Hallgrímsson verktaki er til vinstri en hægra megin er mágur hans Karl Guðmundsson viðskiptafræðingur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1306
Sumarið 2012 gerðu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar göngustíg gegnum skógræktina austan við tjaldstæðin. Stígurinn hlaut nafnið Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem var einn af stofnendum félagsins, formaður í mörg ár og mikill skógræktarmaður. Á myndinni eru hjónin Ólafur Bernóusson og Guðrún Pálsdóttir að jafna mölina á stígnum í blíðviðri.
Sævar og Guðmundur
Þessi mynd var tekin um borð í Arnari Hu 1 23. mars 2013 af þeim félögum Sævari Berg Ólasyni til vinstri og Guðmundi Finnbogasyni til hægri.
Arnar HU 1 - safn 29
Arnar Ólafur Viggósson raðar þorskum í hausarann um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson
Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Steinþór Karlsson 037
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 af þremur óþekktum mönnum að moka mori, sem kom upp með trollinu, í sjóinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1275
Myndin var tekin um miðjan júlí 2012. Á henni er verið að smíða auglýsingaskilti fyrir Spákonuhofið á Skagaströnd. Mennirnir eru frá vinstri: Sverrir Brynjar Berndsen, Adolf H. Berndsen faðir hans og lengst til hægri er Þór Arason (d.11.8.2018).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1204
Starfsfólk vinnuskólans saman út að borða í Kántrýbæ 19. júlí 2012. Vinstra megin við borðið, frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson og Birkir Freyr Gunnarsson. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Geir Arnarsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Fisk Seafood - safn 251
Linda Kristjánsdóttir til vinstri og Vigdís Ómarsdóttir til hægri í heimsókn á hausaþurrkun á Laugum. Í baksýn sér í Baldvin Hjaltason. Öll voru þau starfsfólk Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1290
Myndin var tekin í byrjun apríl 2012 þegar slökkvilið Skagastrandar hélt slökkviæfingu í samvinnu við Brunamálastofnun ríkisins. Á myndinni eru Sigurður Bjarnason til vinstri og Helgi Gunnarsson vara slökkviliðsstjóri til hægri.
Arnar HU 1 - safn 55
Gunnar Helgason á leið í grillveislu í Fellsborg með skipsfélögum sínum á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 379
Jón Gunnarsson - Nonni Gunn - byggir geymsluhús í garðinum sínum að Hólabraut 4 í júlí 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 588
Stefán Jósefsson fellir grásleppunet í skemmunni sinni í maí 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1195
Kaffipása í áhaldahúsinu hjá bæjarstarfsmönnum 24. júlí 2009. Þorgerður þóra Hlynsdóttir og Guðmundur J. Björnsson.
Jóhannes Heiðmar Indriðason
Jóhannes Heiðmar Indriðason að störfum um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson986
23. mars 2013 hélt Eggert Þór Bernharðsson (d.31.12.2014) fyrirlestur um fjölskyldumyndir í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd. Á myndinni er hluti áheyrenda á fyrirlestrinum. Frá vinstri á fremsta bekk: Steindór Rúniberg Haraldsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Hjördís Sigurðardóttir, Adolf Jakob Berndsen (d. 27.8.1018). Aftar eru frá viinstri: Árni Geir Ingvarsson, Herdís Jakobsdóttir, Ingibergur Guðmundsson, óþekkt, Vilhelm Björn Harðarson, Signý Richter og Kristín Kristmundsdóttir.
Vaktafélagar
Vaktfélagar um borð í Arnari HU 1 30. júlí 2004. Frá vinstri: Vilhjálmur Jónsson, Tryggvi Hlynsson, Guðni Már Lýðsson, Kristján Karlsson, Jónas Þorvaldsson, Hermann Guðjónsson, Guðlaugur Hjaltason og Grétar Smári Hallbjörnsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1455
Matartími í leikskólanum Barnabóli 1. febrúar 2012. Lilja Ingólfsdóttir leikskólakennari situr til borðs með börnunum. Lilju til hægri handar eru Ísabella Líf Tryggvadóttir, Þórunn Hólmgeirsdóttir og Sóley Sif Jónsdóttir. Lilju til vinstri handar eru Valdimar Viggó Baldursson og Snæbjörn Elfar Arnarsson en barnið sem snýr baki í myndavélina er ekki þekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1254
Sigurður Jónsson til vinstri aðstoðar Steindór R. Haraldsson við að byggja skjólvegg úr múrsteinum við hús Steindórs á Hólabraut 1.
Elvar Freyr Aðalsteinsson
Elvar Freyr Aðalsteinsson býr sig undir að fara frá borði í Arnari HU 1 á gúmmítuðru í júní 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 544
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í Glasgow, eru frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Eygló Kristín Gunnarsdóttir, Inga Rós Sævarsdóttir, Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sigurjón Ingólfsson, Eva Dögg Bergþórsdóttir og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1287
Þessi mynd var tekin á slökkviæfingu slökkviliðs Skagastrandar í byrjun apríl 2012. Sigurður Björnsson til hægri spjallar við fulltrúa frá brunavörnum ríkisins meðan á æfingunni stendur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1319
Grillveisla fyrir unglingana í bæjarvinnunni var haldin 9. ágúst 2012. Næst okkur á myndinni eru Elvar Geir Ágústsson og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir. Aftar til vinstri eru Anna Dís Ragnarsdóttir og Bergrós Helga Hafsteinsdóttir ásamt öðrum unglingum úr bæjarvinnunni þetta sumar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 476
Fjórir togarasjómenn stilla sér upp til myndatöku fyrir óþekktan ljósmyndara úr Nes listamiðstöð áður en lagt er í hann 6. júlí 2013. Sjómennirnir eru frá vinstri: Grétar Smári Hallbjörnsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Kristján Blöndal og Gunnar Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 470
Myndin var tekin 30. júní 2013 þegar Herdís Jakobsdóttir opnaði sýningu á málverkum sínum í Bjarmanesi. Á myndinni er Herdís til hægri með pakka í höndunum. Móðir hennar Helga Hermannsdóttir er með hækjur en aftan við hana er faðir Herdísar, Jakob Guðmundsson. Aftan við hann er svo Adolf H. Berndsen og lengst til vinstri er systir Herdísar, Þórhildur Jakobsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 302
Strákar í vinnuskólanum aðstoða Vilhelm Björn Harðarson við að fegra svæðið sunnan við Fellsborg í lok júlí 2012. Frá vinstri: Kristján Örn Róbertsson?, Friðmar Kári Eiríksson, Elvar Geir Ágústsson og Vilhelm.
Ólafur Bernódusson774
Björgunarsveitarmenn úr Strönd að koma úr leiðangri á björgunarskipinu Húnabjörg á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það árið 2005. Mennirnir eru frá vinstri: Hafþór Gylfason, Gunnar Tryggvi Ómarsson, Guðmundur Henry Stefánsson skipstjóri í þessum leiðangri, Valdimar Björnsson og Eiríkur Lýðsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1417
Séra Úrsula Árnadóttir prestur og Steindór R. Haraldsson meðhjálpari tylla sér undir sálmasöng í sjómannadagsmessu 2. júní 2012 í Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1270
Stefán Stefánsson bóndi á Ytri-Ey í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Steinþór Karlsson 039
Þessir þrír eru að gera sig klára í vinnsluna um borð í Arnari Hu1 sumarið 1999. Maðurinn í miðjunni er Jóhann Ásgeirsson og sá til hægri er bróðir hans Gunnar Þröstur Ásgeirsson. Maðurinn til vinstri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 326
Frændurnir Almar Atli Ólafsson til vinstri og Óðinn Örn Gunnarsson til hægri máta sig við stýrið á dráttarvél.
Axel Jóhann Hallgrímsson 112
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni veifa skipverjar þremur stærðum af þorski úr síðasta hali. Ragnar Högnason er með bláa lambhúshettu, Gylfi Guðjónsson er í blárri peysu og Kristján Alexandersson? lyftir stórum þorski. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson895
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri á Skagaströnd fylgist með réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Arnar HU 1 - safn 38
Skúli Tómas Hjartarson, afmælisbarn dagsins, sker fyrstu sneiðina af afmælistertunni sinni um borð í Arnari HU 1 17. maí 2012.
Steinþór Karlsson 034
Guðjón Guðjónsson (Jonni) var 1. stýrimaður á Arnari Hu 1 sumarið 1999 þegar þessi mynd var tekin. Hér er hann kominn í vinnsluna niðri á vinnsludekki en þar tók hann þátt í vinnunni þegar mjög vel aflaðist og ekki hafðist nógu vel undan.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1331
Myndin var tekin 22.maí 2012 þegar verið var að byggja forstofu við Spákonuhofið á Skagaströnd. Mennirnir eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Þór Arason (d.11.8.2018) og Adolf H. Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1307
Eva Dögg Björgvinsdóttir í bæjarvinnunni 28. júlí 2012.
Ólafur Bernódusson 731
Myndin var tekin þegar ráðafólk skálaði fyrir opnun hitaveitu á Skagaströnd 1. nóvember 2013 í dæluhúsinu á Skagaströnd. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson hreppsnefndarmaður, Jensína Lýðsdóttir hreppsnefndarmaður (fjær), Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK (nær), tveir óþekktir, Valgarður Hilmarsson sveitarstjórnarmaður á Blönduósi, Jón Ólafur Sigurjónsson hreppsnefndarmaður (fjær), Haukur Ásgeirsson raf- og hitaveiturstjóri (nær) og Adolf H. Berndsen oddviti hreppsnefndar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Steinþór Karlsson 011
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Hún sýnir þrjá skipverja vera að gera sig klára til að "takaða" eða fara á dekk og taka trollið innfyrir og koma því síðan út aftur eftir að fiskurinn hefur verið hirtur úr því. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 530
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri skolar úr síu eftir slökkviæfingu 9. september 2014.
Arnar HU 1 - safn 42
Þröstur Árnason með mottu um borð í Arnari HU 1 23. janúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1281
Frá vinstri á slökkviæfingu slökkviliðs Skagastrandar í byrjun apríl 2012: Hilmar Árdal Eðvarðsson, Ingvar Gýgjar Sigurðsson og Ragnar Már Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1372
Fólkið á myndinni fylgdist með fyrirlestri um hafnargerð á Skagaströnd í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélaginu sem haldin var 13. október 2012. Fyrir og eftir fyrirlesturinn skoðaði fólk myndir úr Ljósmyndasafni Skagastrandar og reyndi að þekkja fólk sem á þeim var. Fólkið sem er að spjalla saman á myndinni er, frá vinstri: Lára Magnúsardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Magnús B. Jónsson.
Arnar HU 1 - safn 60
Katrín Inga Hólmsteinsdóttir messi til vinstri og Ingibjörg Dúna Skúladóttir kokkur til hægri í eldhúsinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson833
Um miðjan ágúst 2009 var haldin kántrýhátíð á Skagaströnd. Þá var fólk hvatt til að vera með útimarkaði til að skreyta mannlífið á hátíðinni. Hjónin á Bogabraut 27 Guðrún og Ólafur tóku áskoruninni og settu upp matarmarkað í heimkeyrslunni hjá sér. Þar seldu þau hákarl, reyktan silung, bláber með rjóma, krækiber, heimagerðan krækiberjalíkjör, smákökur og heimagerða smörhnífa. Sem sagt "beint frá býli" í sólinni. Á myndinni er Guðrún Pálsdóttir lengst til vinstri með hjálparfólki sínu, tvö af barnabörnum sínum þau Ólaf Halldórsson og Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur ásamt frænku þeirra Önnu Köru Eiríksdóttur lengst til hægri. þau þurftu svo að hætta sölunni eftir einn og hálfan tíma því þá var lagerinn að mestu uppseldur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1269
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Gráhærði maðurinn er Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) en hinn maðurinn er óþekktur. Í baksýn er Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir.
Arnar HU 1 - safn 6
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af áhöfninni á Arnari HU 1. Standandi eru frá vinstri: Ragnar Högnason, Róbert Freyr Gunnarsson, Fannar Viggósson, Hafsteinn Björnsson, ?Guðni Lýðsson?, Árni Ólafur Sigurðsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Stefán Sigurðsson, Skúli Tómas Hjartarson, Sigurjón Ingólfsson og Ernst Berndsen. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Valdimar Björnsson, Ólafur Ásgeirsson, óþekktur, Magnús Líndal Þrastarson, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur (fjær), Gunnar Helgason (nær), Þröstur Árnason, Kristján Karlsson, Björn Sigurðsson, Magnús Filip Sævarsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson og Ingibjörg Dúna Skúladóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1192
Þessi tvö vinna náið saman á höfninni á Skagaströnd. Reynir Lýðsson er framkvæmdastjóri fiskmarkaðarins og Þórey Jónsdóttir er hafnarvörður. Myndin var tekin í mars 2009.
Rúnar Jósefsson
Rúnar Jósefsson um borð í Arnari HU 1, 18. maí 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1344
Gestir á fjölsóttri ljósmyndasýningu, sem Árni Geir Ingvarsson hélt á nokkrum mynda sinna í íþróttahúsinu, eina helgi um miðjan ágúst 2012. Aðalheiður Ragnarsdóttir bróðurdóttir Árna Geirs er vinstra megin en Þórarinn Brynjar Ingvarsson bróðir hans er til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 411
Einar Haukur Arason húsasmiður við þakviðgerðir í lok ágúst 2013.
Axel Jóhann Hallgrímsson 113
Einar Guðmundsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
50
51
52
…
75
Leita í myndasafninu
Leita